Tíminn - 28.05.1931, Qupperneq 2

Tíminn - 28.05.1931, Qupperneq 2
TfMINH Að gefnu tilefni lýsir miðstjórn Framsóknar- flokksins yfir þyí að af hálfn Framsóknarflokks- ins liefir ekki yerið stofn- að til neinna samninga né nein tilboð gerð til neinna flokka um breyt- ingar á nóyerandi kjör dæmaskipun. Miðsfjórnin Enn segir Morgunbi. 6. júlí s. á.: (Fyrirsögn): Uppboð og smurt brauð. „Það var reglulega á- nægjulegt að heyra til J. M. á fundinum í gærkvöldi, hve vel og rækilega hann sannaði mál Morgunbl., að honum væri gjamt að halda uppboð á sjálfum sér. Tveir ræðumenn lögðu fyrir hann há eindregnu spurningu, hvort hann ætlaði sér að styðja íhald eða Tímastjórn, ef hann kæmist á þing. Jakob þverneitaði að svara því ... fyrri en hann sæi hvernig kosningamar færu. Jakob talaði með dálitlum rosta um smurt brauð og ofaní-át. Hann má kalla afstöðu sína til iandsstj órnarinnar á fundinum í gær hverju nafni sem hann vill. En Morgunblaðið nefnir slíkt slsoðanahringl og tvískinnungs- hátt, sem hann sýndi berlega, engu öðru nafni en uppboð. Söluskilmálar birtir á uppboðs- staðnum — Alþingi íslendinga“. 8. júlí s. á. skrifar Magnús Jónsson um Jakob Möller meðal annars: „30. júní rýkur hann svo enn upp án minnsta tilefnis og stefnir að mér persónulega eitruðustu getsökum, sem hann nær til, talar um hrossakaup í kosningum, að ég hafi selt mig fyrirfram, sett met í bitlingum, snöru í hengds manns húsi og annað þvílíkt góðgæti. Ég svara þessu ekki“. Loks segir Morgunbl. 9. júlí 1927: „Á síðasta fundi í barnaskóla- portinu minntist Jón Óiafsson á ummæli nokkur, sem alkunn eru eftir einn flokksmann Jakobs Möllers. Nýlega var búið að gera J. M. að bankaeftirlits- manni, en hann þótti ekki nægi- lega þægur við Framsókn: „Eg hefi aldrei fyrri séð neínn svíkja með beinið í kjaftinum“.“ Svo mörg eru hin blíðu og mildu orð íhaldsins rétt fyrir kosningarnar 1927. Jón ólafsson klykkir út á opinbeinm fundi með hinni miður vingjarnlegu J líkingu um beinið! -----o---- Ólafur Thors. Böm eru stundum merkilega fundvís á heppilegar samlíkingar. Þegar Ól. Th. talaði á húströpp- | um í Vestmannaeyjum, sem ! frægt er, þá bar þar að mann, sem leiddi með sér fjögra ára j dóttur sína. Hann stanzaði í j þvögunni. Telpan hnippti í hann, j benti á Ólaf og sagði: „Pabbi, r.ei sko hanann!“ — H^ninn er montinn fugl, en heimskur, há- vær og gefinn fyrir að láta á sér bera. Sama lýsingin á við Ólaf, ef skift er um merkingu i , „fugl“. Engum hefði dottið hani í hug til þingsetu, ef hann hefði ekki ráðið yfir peningum og þorski. Skrítinn kostur. Alþ.bl. telur það meðal kosta á frambjóðanda jafnaðarmanna í Barðastrandarsýslu, að „hann er öreigi í hugsun". Hingað til hefir ekki þótt spilla, að þing- menn væru hugsandi menn. En öðrum en „öreigum í hugsun“ gengur sjálfsagt illa að fylgja Héðni í sæng með íhaldinu. Afturköllun framboða Tvö framboð til þingmennsku hafa verið afturkölluð: Einar Jónsson á Geldingalæk afturkall- aði framboð sitt fyrir íhaldið í Rangárvallasýslu, óg Pétur Lár- usson jafnaðarmaður tók aftur framboð í Suður-Múlasýslu. í gær flutti Morgunbl. og önn- ur bæjarblöð eftir því þá fregn, að séra Brynjólfur Magnússon hefði afturkallað framboð sitt af Iiálfu Framsóknar í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Þessi fi'egn er ó- sönn með öllu. Séra Biynjólfur var töluvert lasinn síðustu daga og lét þess getið á fundi í Kjós, að hann mundi líklega ekki geta mætt á öllum framboðsfundum, svo sem hann ella hefði gert. Hann var þó á fundi á Brúar- landi í gær. Úr þessum ummæl- um hefir Mbl. gert afturköllun framboðs. Það er ekki einsdæmi, að menn hindrist frá að sækja framboðs- fundi vegna lasleika. Svo er nú t. d. um Jón Ólafsson, frambjóð- anda íhaldsins í Rangárvalla- sýslu. Við þetta er ekkert at- hugavert. Jakob Möller hefir nú um nokkra stund skrifað daglega á- deilugreinar um Framsóknar- flokkinn í blaðið Vísi, og ekki all-ósjaldan hafa ádeilur þessar beinst að mér. Er svo að sjá, sem hann álíti mig í baráttusæti listans í Reykjavík, að Helgi Briem sé viss, og líkur til, að ég verði annar maður, en ekki Einar Arnórsson eða Héðinn Valdimarsson. Ég get þakkað þetta traust Möllers. Það mun áreiðanlega styrkja sigurvonir Framsóknar- manna í Reykjavík. En þar sem Möller virðist ekki skilja af hverju það stafar, að hann gerir ráð fyrir, að ég hafi töluvert fylgi í Reykjavík, mun þykja standa mér næst, að skýra það fyrir honum og öðrum í- haldsmönnum, einkum þar sem Möller lætur í aðra röndina í veðri vaka, að ég hafi sem þing- maður unnið svo lítið fyrir höf- uðstaðinn, að framboð mitt sé eiginlega ofrausn gagnvart Reyk- javík. Ég hefi í útvarpsræðu og ann- arsstaðar bent á, að Reykjavík hafi a. m. k. 8 þingmenn fyrir sig, auk hinna 12, sem þar eru búsettir. Ég hefi leitt rök að því, að sanngjam hlutur Reykja- víkur hefir aldrei verið fyrir borð borinn á Alþingi fyrir það, að mál bæjarins hafi ekki átt þar nægilega marga. Mér hefir fund- ist, að þar sem Rvík átti fyrst og frernst sína 4 þingmenn og auk þess sérstaklega alla lands- kjömu fulltrúa íhaldsins og soc- ialista, sem eru beinlínis með meginfylgi sitt og áhuga tengd- ir við Rvík, þá væri ekki meðan svo stæði ástæða til að kenna í brjósti um borgara Reykjavíkur, að þeir væru afskiftir með áhrif á þingmál. En þegar ég talaði um hina 4 landkjörnu, sem væru beint þing- menn Reykjavíkur, þá taldi ég mig ekki með, af því að ég hefi unnið með hagsmuni alls lands- ins fyrir augum, og þar með ekki ósjaldan fyrir Rvík, sem líka er eðlilegt, þar sem hér býr fjórði hluti landsmanna. En úr því Möller og fleiri íhaldsmenn eru í þeirri trú, að ég hafi sem land- kjörinn þingmaður gleymt þörf- um Rvíkur, vil ég nefna nokkur dæmi. Ég vona að þar sem Möller er töluvert la'öfuharður um að En hvers vegna vílar Mbl. ekki fyrir sér að fara með svona raka- laus ósannindi? Það er auðskilið máj. Ihaldinu og ólafi Thors stendur veruleg- ur stuggur af séra Brynjólfi. Hann er þrautþekktur í héraðinu sem drengskapar- og atorkumað- ur, gætinn, fastur fyrir og hverj- um manni vinsælli. Og hann er glæsilega mælskur og ágætur fundamaður. Ól. Th. finnur van- mátt sinn gegn honum í drengi- legri baráttu. Þess vegna er reynt að beita öðrum vopnum. Það á að reyna að telja kjósend- um trú um það, að séra Bryn- jólfur hafi tekið aftur framboð sitt — sé ekki í kjöri. Sögunni um þetta á að læða út, vísa til Mbl. sem heimildar og vitna í það, að sr. Brynjólfur hafi ekki mætt á einhverjum fundi. Slíkur er drengskapur íhaldsins, að það reynir að nota lasleika andstæð- inganna til þess að níðast á þeim. Þetta vopn á að snúast í hönd- um íhaldsins og verða séra Bryn- jólfi til aukins fylgis. „verkin tali“ fyrir mig sem þing- mann Reykvíkinga, þá sýni hann þá sanngirni, að benda á nokkuð mörg dæmi um hvað hann sjálf- ur, Einar Amórsson og Magnús guðfræðingakennari hafa gert fyrir bæinn. Möller verður að vera harður í kröfum við sig og sína, ekki síður en aði'a. Ég minnist þá hér á nokkur menningai-mál Rvíkur, sem ég hefi haft nokkur skifti af: 1. Sundhöllin. Ég flutti fyrstu ræðu mína á þingi um það mál 1923. Ihaldið eyddi því þá og tafði það síðar. 1928 undirbjó ég stjómarfrv. um sama efni, sem var samþykkt. Gert ráð fyrir að 100 þús. kr. kæmu til verksins úr ríkissjóði. Mbl. og margir í- haldsmenn notuðu þetta mál sem stöðugt rógsefni gegn mér út á landi. Iþróttamenn bæjarins studdu þetta mál, og að lokum varð íhaldið í bænum að sætta sig við að sundhöllin yrði bygð. Án þessarar þrálátu forgöngu frá 1923—29 myndi enginn steinn hafa verið hreyfður í Rvík fyrir sundhallarbyggingu. 2. Landsspítalinn. Ég átti þátt í að stöðva 3 miljóna plan Guðm. Hannessonar á þingi 1923. Benti þá á, að sjálfsagt væri að byggja við hóf, og hita húsið með vatni úr laugunum. Næsta ár gengu þessar tillögur mínar í gegn í þingsályktunartillögu og litlu síðar var byrjað að byggja húsið. Ég átti persónulega þátt í að útvega nálega eina miljón króna að láni í húsið, réði þang- að 6 lækna, án allrar aðstoðar Læknafélagsins og opnaði spítal- ann laust fyrir síðustu áramót, til afnota fyrir alla, en ekki síst fyrir Reykjavíkurbúa, sem í verki nota hann sem bæjarspít- ala, sér til stórkostlegs sparnað- ar. 3. Barnakennsla Rvíkur hefir verið í meira lagi vanrækt af íhaldinu. Ég átti þátt í að velja mikinn fjölda ágætra kennara að nýja barnaskólanum, þannig, að þar eru nú að hefjast áður ó- þekktar umbætur í uppeldismál- um bæjarins. 4. Bærinn eða landið höfðu hér engan almennan unglingaskóla, þegar íhaldið lét af völdum. Á þingi 1928 bar ég fram frv. um gagnfræðaskóla fyrir bæinn. 1- haldið beitti sér yfirleitt móti málinu og stórskemmdi frv. Þó gekk það fram, og skólinn byrj- aði þá um haustið. Á þingi 1930 bar ég fram ■ frv. um gagnfræða- skóla handa kaupstöðunum yfir- leitt. Það var samþykkt, og nú er það ekki þingi og stjóm að kenna ef almenningur í bænum notar ekki hina stórmiklu menn- ingarmöguleika, sem gagnfræða- skólinn hefir að bjóða. 5. Kennaraskólinn hafði verið algerlega vanræktur af þingum og stjómum, þar til ég átti þátt í að lóðin var girt og prýdd og húsið skinnað allt upp, svo að það er nú miklu betra, en þeg- ar það var nýtt. 6. Menntaskólinn, eina mennta- stofnunin sem íhaldið lét sem sér þætti vænt um, var svo vanrækt, að þegar Jón Ófeigsson sigldi og heimsótti 25 menntaskóla, var ekki nema einn, að hans dómi, lakar útbúinn en menntaskóli okkar, en 24 betri. Að sögn skólalæknis, Guðm. Björnsonar, koma venjulega fram berltlar í 20—25 nemendum á ári. Skólinn mun langsamlega mest vera not- aður af unglingum frá íhalds- heimilum. Á síðasta kjörtímabili, hefir skólinn fengið höfuðvið- gerð, þannig, að hann er nú viða hið innra óþekkjanlegur frá því sem var. Bókasafnshúsið var gert nothæft fyrir nemendur og kennara. Heimavist fyrir 20—25 nemendur hefir verið undirbúin í skólanum, og áhöld og kennslu- tæki keypt meir en nokkru sinni fyr og skólanum séð fyrir aukn- um, góðum kennslukröftum. Síð- ari hluta vetrar fara nu oft um 40—50 piltar í bíl, sem skólanum var útvegaður, til kappróðra á bátum skólans inn í Kleppsvík. Berklasýkla hefir ekki orðið vart með óeðlilegum hætti, síðan gert var við húsið. 7. Háskólinn er húslaus að kalla má, og mátti slíkt heita minnkun fyrir bæ og land. Á þingi 1930 flutti ég frv. um byggingu og nýtt skipulag háskólanum til handa. Ég flutti ræðu um þetta efni á Alþingi fyrst eftir að ég stóð upp úr þriggja vikna legu í hálsbólgu, sem nokkrir af starfs- mönnum háskólans kölluðu brjál- semi, og sem Vísir birti um marg- ar mjög frumlegar dylgj ugreinar frá hálfu ritstjórnarinnar. Frv. þetta náði samþykki allra flokka í Ed., bæði þá og nú í vetur, og er talið víst, nema ef íhaldið bregður fæti fyrir málið, að það gangi fram á næsta þingi, og á þann hátt að séð verði fyrir vaxtarþörf háskólans í margar aldir. 8. Reykjavík vantaði gistihús, og svo mjög kvað að því að jafn- vel íhaldsmenn viðurkenndu, að þeir yrðu stundum að letja er- lenda merkismenn að koma hér, af því að ekki væri unnt að sjá þeim fyrir sómasamlegri gist- ingu. Nú hefir Hótel Borg verið reist með ábyrgð bæjar og lands- ins, og leysir vel þennan vanda bæjarbúa. Mun mega fullyrða að fullkomnara gistihús gæti varla verið um að ræða í ekki stærri bæ. Áreiðanlegt er að ef íhalds- stjóm hefði setið að völdum 1927 —1931 myndi engin umbót hafa orðið á hótelmálum bæjarins. Ég átti talsverðan þátt í að koma þessu máli í höfn, bæði sem þing- maður, fulltrúi í stjóm landsins og í undirbúningsnefnd Alþingis- hátíðar. Þegar lán til fyrirtækis- ins var á leið með að stranda, var til mín leitað og tókst mér að greiða úr því. 9. Fyrir almenning í Reykjavík, og ekki sízt fyrir marga starfs- menn landsins, er Amarhvoll veruleg umbót, auk þess sem það er mál manna, sem dómbærir eru, að það hús sé í einu bæjarprýði og til nokkurrar eftirbreytni sem skrifstofubygging. Mætti Reykja- víkurbær þakka fyrir, ef hann ætti slíkt hús fyrir skrifstofur bæjarins. Svo sem kunnugt er, gerði íhaldið og blöð þess allt það í Sambandshúsinu (Samvinnuskólanum) er opln allan daginn. Sími 1121 sem þau gátu til að spilla fyrir framkvæmd þess máls. 10. Þegar íhaldið skildi við, var Amarhólstúnið í hinni mestu vanrækslu, girðingin niðurfallin, „draugur" í hliðinu upp að myndastyttu landnámsmannsins, og sóðaskapurinn keyrði fram úr hófi. Ég átti þátt í að girða tún- ið og friða, og nú er það hinn vinsælasti leikvöllur barna í Reykjavík bæði í snjó á vetrum og sól á sumrum. Var því fremur þörf að muna eftir börnum Reyk- víkinga, þar sem leiðtogum íhaldsins hefir hætt til að gleyma þörfum þeirra. 11. í Reykjavík er ekkert lista- safn. Ég hefi átt nokkurn þátt í að flýta fyrir því máli, með frv. um menningarsjóð, sem Alþingi samþykkti. Samkvæmt því renn- ur þriðji hluti andvirðis fyrir upptækt áfengi til þess að kaupa fyrir listavei’k íslenzkra lista- manna ríkinu til handa. Hin síð- ari ár hefir verið keypt margfalt meira af listaverkum en áður, og er nú í ráði að nota útvarpssal- inn fyrst um sinn jafnframt sem safn til bráðabirgða, þar sem al- menningur eigi kost á að kynnast listaþróuninni, eins og hún er að gerast hér á landi. Ég læt mér nægja að benda á þátttöku mína í þessum 11 menn- ingarmálum, er öll snerta höfuð- staðinn mjög mikið, til að rök- styðja þá skoðun, að framboð mitt sem annar maður á lrsta Framsóknarflokksins sé ráðstöfun í mjög viðunanlegu samræmi við hagsmunaþarfir kjósenda í Rvík. Út frá meðferð þessara mála munu kjósendur geta áttað sig á, að Framsóknarflokkurinn muni hafa verið og geti orðið Reykja- vík liðtækur við lausn fleiri við- fangsefna en svokallaðra menn- ingarmála. Þrátt fyrir þátttöku mína í framangreindum málum hefi ég verið svo yfirlætislaus, að líta á mig sem fulltrúa landsins alls, en ekki Reykjavíkur sérstaklega. En þar sem Jakob Möller og Magnús Jónsson hafa lengi verið þing- menn Reykjavíkur, og Einar Arn- órsson og Möller átt sæti í bæjar- stjórn auk þess, þá verður að telja mjög sennilegt, að þeir geti nefnt fjölmörg og stór umbóta- mál, almenningi til handa, sem þeir hafi beitt sér fyrir og leitt til lykta. Mér finnst að hinar yfirgripsmiklu kröfur, sem Möll- er gerir til mín í þessu efni, fyr- ir það eitt að vera frambjóðandi í Reykjavík, séu skýr sönnun þess, að hann og félagar hans geti djarflega úr flokki talað. Ég vil þess vegna beina þeirri áskorun til Jakobs Möllers, að hann gefi í blaði sínu nú þegar allítarlega skrá yfir framkvæmd- ir sínar og áðurnefndra lags- bræðra hans, í þágu Reykjavík- ur, bæði sem þingmanna og bæj- arfulltrúa. Af vei’kunum má á- lykta um starfhæfni þeirra. Kjós- endur hafa gott af að heyra hvernig verk íhaldsins tala. J. J. ----o---- Kjósendur, sem fara úr bænum fyrir kosn- ingar, þurfa að muna eftir að kjósa C-listann áður en þeir fara. Listi Framsóknar er C-listi. Ritstjóri: Gísll Guðnundasen, Ásvallagötu 27. Sönai 1245. PrentemUgan Acte. Kröfuharður yið aðra Ef til yill kröfulítill við sjálfan sig og sína?

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.