Tíminn - 04.06.1932, Síða 1
©faíbfert
og afgrctðsluma&ur Cimaní er
Hannucig J>orsteins&óttir,
Sœfjargötu 6 a. 2?eyfjamf.
iS.fgreibsía
2T i nt a n s er í Ccef jargötu 6 a.
(Dpin öa^Iega fl. 9—6
Simi 2353
XVI. árg.
Reykjavík, 4. júní 1932,
24. blað.
ÚtsTörin í Reykjavík
Eftir Eystein Jónsson skattstjóra
Birting útsvarsstigans.
Einn nefndarmanna úr niður-
j öf nunarnef nd Rvíkur, Gunnar
Viðar, hefir birt í Mbl. þ. 29. f.
m. grundvallarreglur nefndarinn-
ar við álagningu útsvara í ár.
Allt fram á árið 1931 hafði
það aldrei komið til orða innan
nefndarinnar svo ég vissi til, að
reglur þessar yrðu birtar. Árið
1931 fór Morgunblaðið fram á,
að reglurnar yrðu birtar, en
meirahluta nefndarinnar sýndist
eigi ástæða til, að svo yrði gert
þá fremur en endranær.
Ástæður þær, er Mbl. færði
fram því til stuðnings, að regl-
urnar væri rétt að birta, voru
að mestu þær sömu og G. V.
færir fram í grein sinni í Mbl.,
að með því sé myndaður grund-
völlur undir opinberar umræður
'Um útsvarsálagningu, er orðið
geti nefndarmönnum til leiðbein-
ingar, og að það hafi heppileg
áhrif á nefndannenn í réttlætis-
átt, þannig, að eitt verði látið
yfir alla ganga. — Hvort-
tveggja er þetta rétt, og má
færa ýms fleiri rök fyrir því,
að rétt sé að birta reglurnar og
einnig ýms á móti. En þar sem
þær hafa nú verið birtar, skal
eigi rúmi eytt hér undir slík rök.
Hinsvegar get ég ekki annað
en bent á það, að einkennilegt
virðist, að Sjálfstæðismönnum í
nefndinni skuli eigi fyr en nú
hafa hugkvæmst að birta reglur
hennar fyrir niðurjöfnun. Annar
núverandi nefndarmaður, Sigur-
björn Þorkelsson kaupm., mun
hafa átt sæti í nefndinni tölu-
vert á annan tug ára og G. V.
árin 1929, 1930 og svo nú í ár.
Allt þangað til 1931 höfðu þessir
menn og flokksbræður þeirra
meirahlutavald í nefndinni. Virð-
ist óneitanlega einkennilegt, að
þeir skyldu eigi þá birta regl-
urnar og verða þar með aðnjót-
andi aðhalds um réttlæti og
heyra álit manna um aðferðir
þeirra og fá tillögur um það frá
almenningi, hversu haga skyldi
niðurjöfnuninni. Nú virðast þess-
ir sömu menn álíta mjög áríð-
andi, að almenningur fái aðstöðu
til þess að láta nefndina heyra
skoðanir sínar. Virðist óneitan-
lega, að þeim hefði átt að vera
það enn meira áhugamál á með-
an þeir sjálfir áttu og gátu ráð-
ið álagningunni.
Nú vill svo vel til að það kem-
ur skýrt fram í grein G. V., hver
aðalástæðan er fyrir því, að
hann birtir reglurnar og sézt þá,
að ætlunin með því er ekki sú,
að fá tillögur almennings um
málið eins og fyrst er látið í
veðri vaka. Samkvæmt eigin frá-
sögn G. V. í greininni, birtir
hann reglurnar vegna þess, að
tillögum hans og S. Þ. um að
hækka ekki eignaútsvör í ár og
annari tillögu hans, er miðaði
að því að hlífa stóreignum við
útsvari, var vísað á bug af
meirahluta nefndarinnar. Með
grein sinni hyggst G. V. því að
skapa almennan mótþróa gegn
því, að leiðrétting fari fram á
hinu geysilega ranglæti, sem
framið hefir verið á efnaminni
stéttum þessa bæjar, með því að
taka svo að segja ekkert tillit
til eigna við útsvarsálagningu.
Fyrst G. V. hefir nú riðið á
vaðið með því að skýra frá
starfsaðferðum og reglum niður-
jöfnunarnefndar 1932, álít ég
rétt að gefa almenningi í sem
stytztu máli yfirlit um starfsað-
ferðir og starfsreglur nefndar-
innar síðustu ár. Vænti ég, að
sem flestir vildu kynna sér þær
skýringar, sem unnt er að gefa
í því efni.
Niðurjöfnunin 1923—28.
Öll þessi ár voru íhaldsmenn
(þ. e. núv. sjálfstæðismenn) í
yfirgnæfandi meirahluta í nefnd-
inni. Formaður var Einar Arn-
órsson skattstjóri og með hon-
um unnu 3 íhaldsmenn aðrir og
1 jafnaðarmaður (Magnús V.
Jóhannesson).
Ég hefi athugað gjörðabók
nefndarinnar fyrir þessi ár, í því
skyni, að kynna mér grundvall-
arreglur hennar þá. En athugun
mín hefir orðið árangurslaus.
Ekki er einn einasti stafur um
það bókaður öll þessi ár, hvaða
reglum hafi verið fýlgt. Ég hefi
einnig spurt mig fyrir um það,
livort reglurnar hafi verið birt-
ar opinberlega, en orðið þess vís-
ari, að svo hefir heldur ekki ver-
ið. í fundargjörðum nefndarinn-
ar er þess getið sum árin, að
einstökum nefndarmönnum hafi
verið falið að undirbúa grund-
vallarreglur, en síðan er þeirra
aldrei minnst. Um reglur nefnd-
arinnar er því allt vandlega hul-
ið.
G. V. segir þó í grein sinni
nú í Mbl., að fyr en 1929 hafi
enginn útsvarsstigi verið til á
eignir, en getur þess þó jafn-
frarnt, að eitthvert tillit hafi
verið tekið til þeirra. En það
sézt greinilega á eignaútsvars-
stiga þeim, er samþykktur
fékkst árið 1929 (hans verður
síðar nánar minnst) fyrir harða
aðgöngu Helga Briem og Sigurð-
ar Jónassonar, að fyrir þann
tíma, meðan íhaldsmenn réðu
mótstöðulaust, hefir sama og
ekkert tillit verið tekið til eigna
Við álagningu útsvara, enda þótt
eignir séu lögboðinn gjaldstofn
fyrir útsvörum ásamt tekjum.
Er nú einnig fenginn stjórnar-
ráðsúrskurður fyrir því, að taka
skuli til greina að verulegu leyti
eignir manna við álagningu út-
svara. Það liggur því ljóst fyrir,
að á meðan íhaldsmenn réðu
niðurjöfnun útsvaranna, hafa fá-
tækum mönnum verið lagðar á
herðar byrðar, er þeir áttu að
bera, sem efnaðri voru, sam-
kvæmt lögum og landsvenjum.
Ilvaða réttlæti er í því að láta t.
d. mann sem hefir 5 þús. kr.
tekjur og er eignalaus, bera svo
að segja sama útsvar og þann
sem hefir sömu tekjur en á 50
þús. krónur skuldlausar?
Niðurjöfnunin 1929 og 1930.
Árið 1929 urðu skattstjóra-
ski$ti í Rvík. Þá tók Helgi Briem
við starfi skattstjóra og for-
mennsku njn.*). Sigurður Jónas-
son tók þá og sæti í nefndinni.
Ég hygg, að þetta ár verði flest-
um reykvískum útsvarsgreiðend-
um minnisstætt. Jafna skyldi nið-
ur svipaðri uppliæð og árið áð-
ur, þó heldur hærri. Bjuggust
menn við svipuðum útsvörum og
árið áður. En útkoman varð
önnur. Allir tekjulægri menn og
efnaminni fengu stórkostlega út-
svarslækkun og útsvör þeirra
tekjuhærri og efnaðri hækkuðu
stórlega. Hver var ástæðan? I-
haldsmenn voru þó enn í meira-
hluta í njn. Mun ég nú gera
grein fyrir ástæðunum.
Lágtekj umenn höf ðu fengið
ötula talsmenn í njn., sem fengu
áorkað lækkun útsvara þeirra og
samþykktan og bókaðan útsvars-
stiga þeim stórum í hag frá því,
sem áður var. Fyrir atbeina H.
B. og S. J. fékkst samþykkt að
leggja á eignir nokkuð, þótt í
smáum stíl væri. Samkvæmt á-
ætlun G. V. gaf eignaútsvars-
stigi sá, er þá var samþykktur,
um 100 þús. kr. alls í útsvörum
eða um 6% af útsvarsupphæð-
inni allri það ár. Birtí ég hér
með tekju- og eignarútsvarsstig-
ana, er samþ. voru 1929. H. B.
og S. J. voru á móti útsvarsstig-
unum eins og þeir voru samþykt-
ir, þótt þeir hins vegar teldu þar
um leiðrétingu að ræða (en ekki
nógu mikla). Enda þótt íhaldsm.
í nefndinni yrðu vegna andstöð-
unnar frá hálfu H. B. og S. J.,
að slá nokkuð af fyrri hlut-
drægni sinni og ásælni í vasa
þeirra efnaminni, bera útsvars-
reglur þessar þó fullkomlega með
Eignastiginn 1929.
Eign. Útsvar.
10 þús. 7,5 kr.
15 — 15 —
20 — 25 —
25 — 37,5 —
30 — 50 —
35 — 65 —
40 — 80 —
45 — 95 —
50 — 110 —
55 — 130 —
60 — 150 —
65 — 170 —
70 — 190 —
75 — 210 —
80 - 230 -
85 — 250 —
90 — 270 —
95 — 290 —
100 — 310 —
110 — 360 —
120 — 410 —
130 - 460 —
140 — 510 —
150 — 560 —
160 — 610 —
170 — 660 —
180 — 710 — r
190 — 760 —
200 — 810 —
225 - 960 —
250 - 1110 —
275 — 1260 —
300 — 1410 —
350 — 1710 —
400 - 2010 —
450 — 2310 —
500 — 2610 —
600 — 3310 —
700 — 4010 —
800 — 4710 —
900 — 5410 -
1000 — 6110 —
það, sem er yfir miljón 8°/(
*) njn. = niðurjöfnunarnefnd.
Tekjustiginn 1929: Útsvör á tekjur:
U Ö-o G u G u G u G U G E E E G h E
&>:b 0 co tS ro :0 :0 :o 10 :0 :0 :0 :0
r-í <D .O £ rO rO .c rO rO
•O 1—' <N co Tt< 10 co c— <» 05 O T—<
4J Jz; a S s s Ú s s s s s s
G G c G G G G G G
Kr. 1800 2100 2400 2700 3000 3300 3600 4000 4500 •r-< •O -o •0 •O •O •O •O ■O •O *©
O 10 15 20 30 40 50 70 90 110 w 10 15 20 30 40 50 70 90 w 10 15 20 30 40 50- 70 w 10 15 20 30 40 50 m 10 15 20 30 40 w 10 15 20 30 M* 10 15 20 M 10 15 w 10 w w
5000 140 110 90 70 50 40 30 20 15 10
5500 170 140 110 90 70 50 40 30 20 15 10
6000 210 170 140 110 90 70 50 40 30 20 15
6500 250 210 170 140 110 90 70 50 40 30 20
7000 300 250 210 170 140 110 90 70 50 '40 30
7500 350 ?00 250 210 170 140 110 90 70 50 40
8000 400 350 300 250 210 170 140 110 90 70 50
8500 450 400 350 300 250 210 170 140 110 90 70
9000 500 450 400 350 300 250 210 170 140 110 90
9500 560 500 450 400 350 300 250 210 170 140 110
10000 650 560 500 450 400 350 300 250 210 170 140
11000 750 650 560 500 450 400 350 300 250 210 170
12000 900 750 650 560 500 450 400 350 300 250 210
13000 1050 900 750 650 560 500 450 400 350 300 250
14000 1200 1050 900 750 650 560 500 450 400 350 300
15000 1350 1200 1050 900 750 650 560 500 450 400 350
16000 1500 1350 1200 1050 900 750 650 560 500 450 400
17000 1700 1500 1350 1200 1050 900 750 650 560 500 450
18000 1900 1700 1500 1350 1200 1050 900 750 650 560 500
19000 2100 1900 1700 1500 1350 1200 1050 900 750 650 560
20000 2350 2100 191)0 1700 1500 1350 1200 1050 900 750 650
21000 2600 2350 2100 1900 1700 1500 1350 1200 1050 900 750
22000 2850 2600 2350 2100 1900 1700 1500 1350 1200 1050 900
23000 3100 2850 2600 2350 2100 1900 1700 1500 1350 1200 1050
24000 3400 3100 2850 2600 2350 2100 1900 1700 1500 1350 1200
25000 3700 3400 3100 2850 2600 2350 2100 1900 1700 1500 1350
26000 4050 3700 3400 3100 2850 2600 2350 2100 1900 1700 1500
27000 4400 4050 3700 3400 3100 2850 2600 2350 2100 1900 1700
Lengra nær hinn bókaði stigi ekki, en „praksis“ var að leggja
40% á tekjur yfir 27 þús.
sér óréttlætið, sem ríkti í álagn-
ingunni. Maður með 5 þús. kr.
nettó-tekjur átti að bera 140 kr.
í útsvar, en annar með sömu
tekjur og 30 þús. króna skuld-
lausa eign, átti að bera 190 kr.
eða aðeins 50 kr. hærra.
Þó er ef til vill enn frekar á-
stæða til þess að benda á órétt-
læti það, sem átti sér stað við-
víkjandi frádrætti vegna ómaga.
Eins og útsvarsstiginn ber með
sér, er 500 kr. frádráttur á tekj-
um fyrir hvern ómaga hjá lág-
tekjumönnum og upp að 10 þús.
kr. tekjum, en eftir það er 1000
kr. frádráttur fyrir hvern ó-
maga. Þeir, sem hæstar höfðir
tekjumar, fengu því mestan frá-
dráttinn vegna ómegðarinnar.
Iljá hátekjumönnum fór svo, að
frádráttur í sjálfu útsvarinu varð
400 kr. fyrir hvert barn (40%
af 1000 kr.), en hjá þeim, sem
lægstar höfðu tekjurnar var frá-
drátturinn í útsvarinu fyrir
barnið 5 kr. Er þetta þveröfug't
við tilhögun hjá öðrum þjóðum,
sem eitthvað eru á veg komnar
í réttiætisátt í skattamálum, þar
sem frádráttur vegna ómegðar
er hafður minni eftir því, sem
tekjurnar eru hærri, og í sumum
tilfellum látinn falla niður hjá
h átek j umönnum.
Enda þótt breytingar þær á
grundvellinum fyrir álagningu
útsvaranna, sem að framan er
minnst, hefðu miklar leiðrétting-
ai' í för með sér, frá því, sem áð-
ur var, þá er þó ein höfuðástæð-
an ótalin fyrir því, að sú lag-
færing, sem varð í þessu efni
1929 komst á. Með hinum nýja
skattstjóra kom ný framkvæmd
á skattalögunum. Ríkt var geng-
ið eftir réttum framtölum. Að-
eins til dæmis um það, hver á-
hrif þessi breyting hafði á
grundvöllinn fyrir útsvarsálagn-
ingunni skal ég geta þess, að
eigi var fátítt fyrir árið 1929, að
þeim sem bjuggu í eigin stór-
hýsum var látið haldast uppi, að
meta leigu sína yfir árið sem
svaraði 1000 kr. eða svo, enda
þótt kostnaður við húsin (þ. e.
vaxtagreiðsla,. fyrning, opinber
gjöld o. þvíl.) næmi 6—9 þús.
krónum og kom þannig til frá-
dráttar öðrum tekjum þeirra 5—
8 þús. kr., vegna þess, að þeir
höfðu efni á að búa í slíkum
húsakynnum. Þurfti góðar at-
vinnutekjur til þess að standast
slík töp. Þegar nú leiga þessara
manna var metin af skattstjóra
í samræmi við það, sem leiga var
í bænum yfirleitt, hækkuðu út-
svarsskyldar tekjur þeirra a. m.
k. því, sem áðurtöldu tapi nam.
(Geta menn hæglega séð hver
áhrif þetta hafði á útsvar þess-
ara manna, þar sem af tekjuvið-
bót þessari bar oft að greiða
20—40%. Gát því munað í út-
svari vegna leiðréttingar á þess-
um lið 2—3000 krónum.)
Ennfremur voru gerðar rnarg-
víslegar tilraunir til leiðrétting-
ar íramtölum, svo sem að krefj-
ast þess að menn gæfu upp
hverjum þeir skulduðu o. fl. o.
fi. Þegar eftir var gengið reynd-
ist fjöldamargt rangt sem í
skýrslunum stóð. Árangurinn af
starfi skattstjóra kom fram í
því, að skattskyldar eignir Reyk-
víkinga reyndust ríflega 13 milj.
hærra í árslok 1928 en árið áður
Eitthvað af þessari aukningu
hefir auðvitað safnast fyrir af
tekjum ársins 1928, sem var gott
ár, en samkvæmt reynslu er var-
lega til tekið að áætla 10 milj.
af þessari aukningu framkomna
vegna leiðréttra framtala. Mun-
aði eigi lítið um þær eignir og
tekjur af þeim við útsvarsálagn-
inguiia.