Tíminn - 07.01.1933, Side 1

Tíminn - 07.01.1933, Side 1
LA 'N 0 o0 KAS Á (• i'-í Ji’h 132539 ©falbfeti og afgrciðslumaður C i m a n s et Hannueig þ o rsIeinsðóttir, Ccefjargötu 6 a. &eYfjamf. XVII. árg. Reykjavík, 7. janúar 1933. JAfgtei bsía C i m a n s ec í tœfjarððtu 6 a. ©pin ða^Iega- fL 9—6 Stmi 2553 1. blaö. Pólitískt viðhorf um áramótin i. Skamfndegið er að hníga. Aft- ur eru áramót, og aftur stefnir rás tímanna móti hækkandi sól. Síðustu minningarnar eru dapur- legar. Árið 1932 hefir verið kreppuár. Úti í heimi hefir óvíða létt í lofti á síðasta ári. Viðskiptaörð- ugleikarnir hafa vaxið, tollmúr- amir hækkað milli landanna. Máttur þjóðfélaganna til að veita börnum sínum brauð af fram- leiðslunni hefir farið þverrandi. Atvinnuleysið hefir vaxið. Neyðin hefir færzt í aukana. Djúpið milh ríkra og fátækra hefir stækkað. Baráttan um lífsgæðin, og þar með hin pólitísku átök milh hags- muna, hafa harðnað eins og jafn- an er eðlilegt, þegar litlu er að skipta milli landsins barna, og á meðan þeir, sem minna máttar eru, eru ekki algjörlega sviftir rænu sinni og sjálfbjargarvið- leitni. Aðeins í einu landi, Englandi, þar sem peningavaldið er sterkast í álfunni, hefir svipa kreppunn- ar knúið fram á yfirborðinu nokkurskonar samstarf í stjóm- málum, þar sem hrumur öldung- ur úr fremstu röð alþýðunnar hvarf frá flokki sínum og gekk til samstarfs við hið volduga fjármagn. Með þeim atburðum hófst útilokunarstefna hinna brezku þjóða, sem víða kemur nú þungt niður, og einnig hér hjá oss Islendingum. Kosningar og stjómarskipti hafa verið mjög tíðar í heiminum á krepputímanum. Shkt er að ýmsu leyti afleiðing ástandsins. Um hin stóru vandamál hafa lög- gjafamir verið sérstaklega knúð- ir til að spyrja þjóðimar áhts og ráða. Síðan síðustu þingkosning- ar fóru fram hér á landi, hafa farið fram kosningar í Englandi, Irlandi*), Þýzkalandi (hvað eftir annað), Frakklandi, Danmörku (báðar deildir þingsins rofnar), Sviþjóð, Belgíu og Bandaríkjum Norður-Ameríku. 1 öllum þessum löndum nema einu (Danmörku, þar sem hlutföllin breyttust lítið, en þó heldur í vil ríkisstjórainni), hafa kosningamar haft í för með sér breytingar á þingmeirahlut- anum. — Aðrar þjóðir virðast eftir þessu ekki vera eins var- fæmar og við Islendingar gagn- vart kosningum á krepputímum. II. Á þessum tímum er margt fundið til foráttu þingræðisfyrir- komulaginu, sem nú má heita gildandi um alla Norðurálfuna nema í Rússlandi og Italíu. Þó hefir þetta fyrirkomulag reynzt hin bezta trygging, sem enn hefir tekizt að finna til að vemda rétt og hagsmuni lítilmagnanna, án þess að grípa þurfi til tvíeggj- aðra ofbeldisráða. Hinir pólitísku flokkar eru *) Sfðustu skeyti frá útlöndum herma nú frá þingrofi í írlandi og kosningum í annað sinn á þessu stutta tímabili. form nútímans á framkvæmd þingræðisins. Flokkafyrirkomu- laginu má með rökum finna margt til foráttu. En þetta fyrir- komulag hefir rutt sér til rúms í öllum löndum og sýnist vera knýjandi nauðsyn. Með hverju ári þroskast þetta fyrirkomulag og leitar sinna eðlilegustu far- vega. Tilgangur flokkanna er að gefa samræmda heildarmynd af vilja margra manna, sem skyldir eru í skoðunum eða líkra hagsmuna eiga að gæta og sameina átök þeii-ra í hagkvæmum vinnu- brögðum. Af hálfu flokks út á við á ekki að koma fram ein- staklingsvilji heldur samkomú- lag. Milh flokkanna út á við kem- ur hin opinbera barátta fram. Því er yfirleitt í þingum stórþjóð- anna aðeins einn ræðumaður af hálfu hvers flokks í hverju máli. Þetta er m. a. geisilegt hagræði í vinnubrögðum þinganna. Ætti liinsvegar svo að segja hver ein- stakur þingmaður að gera grein fyrir sinni sérskoðun á smáatrið- um í hverju máli, eins og stund- um kemur fyrir hér á Alþingi, væri það vitanlegt alveg ókleift, þar sera t. d. eiga sæti 500—600 manns í einni þingdeild, eins og í Bretlandi eða í Þýzkalandi. Þegar talað er um pólitískan flokk, er ekki fyrst og fremst átt við þá fulltrúa af sama flokki, sem sæti eiga á löggjafarþingun- um. Pólitískur flokkur saman- stendur af öllum þeim mönnum í landinu, sem bundizt hafa sam- tökum um að vinna að ákveðnum markmiðum, sem nánar eru til- greind í stefnuskrá eða ákveðin með flokkssamþykktum á hverj- um tíma. Þingfulltrúar í flokki eru menn, sem flokkurinn hefir valið til að vera í kjöri og fram- kvæma verk, sem flokkurinn hef- ir ákveðið, að svo miklu leyti sem hægt er fyrirfram — ef þeir ná kosningu. Þingmaður, sem á þingi fer í bága við samþykktir flokksins hefir frá flokkslegu og siðferðilegu sjónarmiði fyrirgert umboði sínu frá flokknum. í ýmsum stjómarskrám og m. a. hér á landi er ákvæði um að þingmaður eigi að greiða atkvæði „eftir sannfæringu sinni“. Sumir halda því fram, að flokkafyrir- komulagið fari í bága við þetta ákvæði. En svo er í raun og veru ekki. í fyrsta lagi á frambjóð- anda að vera fyrirfram ljóst, hverju honum er trúað fyrir. 1 öðru lagi er þingmanni ávalt inn- anhandar að víkja úr flokki eða leggja niður þingmennskuumboð, ef honum þykir sannfæringu sinni misboðið með því að hlýta samþykktum flokks síns. 1 löndum þar sem þingræðið og flokkafyrirkomulagið hefir náð þroska, eru vinnuaðferðir flokk- anna yfirleitt á þessa Jeið. 1 hverjum einstökum landshluta hafa flokksmennimir félagsskap. Hin einstöku félög senda fulltrúa á flokksþing til að fara þar méð þeirra umboð. Á flokksþingum eru stef nuskrár og flokksmál ákveðin með samkomulagi eða at- kvæðagreiðslu. Þeir, sem stefnu- málum eru ósamþykkir verða að fara í annan flokk eða vera utan flokka. Flokksþing kýs stjóm flokksins. í Englandi mun það vera föst venja að form. flokks verði jafnan forsætisrh., ef flokk- urinn myndar stjórn. En í flokks- stjórninni geta auðvitað verið jöfnum höndum flokksmenn inn- an þings og utan, þó að það fari vitanlega mjög oft saman að eiga sæti á þingi og gegna öðrum trúnaðarstöðum fyrir flokk sinn. Frambjóðendur flokkanna eru jafnan útnefndir af flokksfélög- um eða stjórn flokksins. Þar sem flokkar eru komnir á það stig, að almannavilji njóti sín fyllilega, kemur það auðvitað ekki til mála, að þingmenn ákveði framboð, því að þá gæti sú hætta vofað yfir, að þingmennimir úrskurðuðu sjálfa sig til framboðs móti vilja meirahluta flokksins eða ein- hverja aðra, sem flokknum væru til óhagræðis og drægju úrstarfs- kröftum hans eða áhrifamögu- leikum. III. Hér á landi hafa risið upp póli- tískir flokkar eins og í öðrum þingræðislöndum. En þróun flokk- anna er enn fremur skammtáveg komin. Veldur strjálbýlið og sam- gönguörðugleikarnir þar miklu um. Er það og miklu tíðara hér en víðast annarsstaðar, að póli- tískir flokkar flosni upp, klofni, breyti um nafn eða fremji aðrar slíkar „hundakúnstir“. Af þessu leiðir, að flpkkar hér á landi hafa haft flesta ókosti hins almenna flokkafyrirkomulags, en vantað suma af beztu kostum þess. Tveir minnstu stjórnmálaflokk- arnir hér á landi, Alþýðuflokkur- inn og hinn nýstofnaði kommún- istaflokkur, hafa þó tekið upp flokksskipulag með fyrirkomulagi annara þjóða. Þetta skipulag hef- ir alveg bersýnilega gert þessum flokkum stórgagn. Þetta sést bezt á því, að flokkur með jafn frá- leita stefnu og kommúnistaflokk- urinn — og framandi fyrir ís- lenzkt skaplyndi — skuli hafa safnað um 1100 kjósendum til fylgis við sig við síðustu kosn- ingar. Þetta fylgi, þótt ekki sé ýkja mikið, er hvorki stefnunni né foringjunum, heldur eingöngu skipulagi flokksins að þakka eða kenna. I Framsóknarflokknum hefir á síðustu árum verið gerð nokkur tilraun til að koma á sama fyrir- komulagi og í flokkum annara menningarlanda. Félög hafa verið stofnuð í einstökum héröðum, og innan skamms eiga þau að geta myndað fullkomið kerfi um land allt. Þegar það er komið í kring á hverjum flokksmanni að vera innanhandar, á auðveldan hátt, að hafa þau áhrif, sem honum bera, á stefnu flokksins og starf í landsmálum. Flokksþingið 1931, þar sem mættu um 250 flokks- menn víðsvegar að af landinu — utan Reykjavíkur — var stærsta sporið í þessa átt. Þar var m. a. komið föstu skipulagi á flokks- stjórnina. En í henni eru, sam- kvæmt því, á hverjum tima, i’áðhei’rar flokksins, eða aðrir út- nefndir af þingmönnum — og ásamt þeim fjórir menn (fram- kvæmdaráðið) kosnir af flokks- þinginu sjálfu. 1 framkvæmda- ráðinu eru nú einn alþingismað- ur og þrír utanþingsmenn. Með því að halda áfram á þessari leið vill Framsóknar- flokkurinn vinna að því, að styrkja þingmannina í starfi þeirra og tryggja hverjum flokksmanni, hvar sem er á landinu, möguleika til þess að geta látið til sín heyra á hvaða tíma sem er, um viðfangsefni flokksins í þjóðmálunum. Á þennan hátt mun að því stefnt í Framsóknarflokknum, að koma í veg fyrir það, þrátt fyrir strjálbýlisörðugleikana, að um þingmenn hans þurfi nokkurn- tíma að segja það, sem íhalds- blað í Vestmannaeyjum sagði í sumar um þingmenn síns flokks, að þeir væru fámenn „klíka“, sem endurnýjaði sjálfa sig á móti vilja kjósendanna! IV. Um leið og Tíminn þakkar les- endum sínum fyrir hið liðna ár, vill hann bera fram þá ósk til lianda öllum Framsóknar- og samvinnumönnum í landinu, að samtök þeirra og lífsstefna megi bera sem giftudrýgstan árangur á hinu komanda. Sorti viðskiptakreppunnar grúf- ir enn yfir landi voru og þjóð. Torleyst verkefni bíða framundan. Og bændastéttin ís- lenzka hefir orðið sérstaklega hart úti af völdum kreppunnar. Ilönd hins óviðráðanlega hefir um stundarskeið lagst með mikl- um þunga á hina ungu framsókn sveitanna. Til þess að létta það farg, veltur nú meir á en nokkuru sinni fyr að standa saman um samvinnufélögin og treysta hin pólitísku samtök F ramsóknarmanna. En sumum tíðindum megum við fagna, Framsóknar- og sam- vinnumenn, nú um áramótin. Við megum fagna því, að ýmsar fregn- ir utan úr heiminum, benda nú á, að sortanum sé eitthvað að létta. Við megum fagna því, að Sambandinu hefir, þrátt fyrir allt, tekizt að bæta hag sinn út á við á þessu ári meir en hægt væri að gjöra sér vonir um. Og við getum glaðst yfir því, að ýmsum af andstæðingum okkar hefir lærzt það nú á hinum erf- iðu tímum, að úrræði samvinn- unnar gefast bezt, þegar á reyn- ir. í meðvitundinni um þá trú allra góðra samherja, að tryggð dugandi N einstaklinga og flokka við lífstefnu sína og hugsjónir, séu dýrmætasta eign þjóðarinn- ar — jafnt á krepputímum sem öðrum — vill Tíminn hefja göngu sína á hinu nýbyrjaða ári. G. G. -o- Baráttan um hæstarétt i. Lögin um liæstarétt á íslandi voru sott á Alþingi 1919. Braskaravaldið i Keykjavík, sem síðar varð stofninn í íhaldsflokknum og „núveranda Sjálfstæðisflokki", réð þá lögum og lofum í landinu. þetta var á þeim árunum, þegar striðsgróðaæðið hafði liertekið milliliðastéttina og hið gífur- lega fjárliagshrun var að skella með sinum ógurlega þunga á bankana, og hið vinnanda fólk í landinu, sem varð að bera afleiðingamar. það var á þessum tíma, sem sviksamleg gjaldþrot og undandráttur eigna fór að verða arðvænlegur atvinnuvegur, svo að um munaði. það var á þeim árum, þegar grundvöllurinn var lagður að „fjáraukalögunum rniklu" og „óskapaláninu", þar sem tolltelcj- ur hins unga fullvalda ríkis voru veðsettar í þrjátíu ár fyrir eyðslu- skuldum fjárglæframanna. það var þáverandi dómsmálaráð- herra braskaraflokksins, sem samdi hæstaréttarlögin og valdi dómarana í liæstarétt, sem samkvæmt lögun- um átti (með dómaraprófinu) að hafa sjálfsákvörðunarrétt til að end-1 urnýja sjálfan sig, því að samkvæmt hæstaréttarlögunum getur enginn i ráðherra skipað mann í réttinn nema dómararnir, sem fyrir eru, leggi þar á samþykki sitt. þannig hlaut hæsti- *réttur, svo lengi, sem þessi lög gilda, að mótast af anda og starfsaðferðum hinna fyrstu dómara, og hlýtur að gera framvegis, svo lengi sem lögin eru óln’eytt. Og það var líka ákveðið i þessari hæstaréttarlöggjöf braskaraflokksins, að atkvæðagreiðsla dómaranna skyldi vera leynileg, og að ágreinings- atkvæði, þó að fyrir komi, þurfi ekki að birta. það er eins og ytra tákn þessa dómstóls, að dómstóllinn hefir allt frá því að hiann var stofnaður, hafst við í skuggalegum og þröngum húsa- kynnum uppi á lofti fangahússins í Reykjavík, þar sem öllum almenn- ingi er, vegna húsþrengslanna, mein- aður aðgangur að þeim réttargerðum, sem þó eiga, eftir bókstaf laganna, að vera í heyranda hljóði og öllum mönnum opinberar. Og ekki hefir orðið vart við, að dómendurnir hafi haft neitt við þetta fyrirkomulag að athuga. II. Tveir af núverandi hæstaréttar- dómurum, þeir Eggert Briem og Páll Einarsson, hafa átt sæti i réttinum frá upphafi. Um Eggert Briem, sem er lítt kunnur maður, er í rauninni fátt að segja. Hann hefir aldrei ritað neitt um lög eða innt af hendi, út af fyrir sig, nein störf, sem athygli hafi vak- ið til góðs eða ills. Hinsvegar er það þó á margra rnanna vitorði, að þessi hæstaréttardómari er ákaflega sann- lærður íhaldsmaður. Er þess skemmst að minnast, að fulltrúi verkamanna á Alþingi, lýsti því í þingræðu fyrir fáum árum, að nefndur dómari hefði látið þau orð falla þá fyrir skemmstu, að réttast væri að gjöra alla verka- mannaforingja höfði styttri! Taldi þingmaðurinn þessi orð fremur ógætileg hjá manni í slíkri stöðu og ekki vænlegt fyrir alla að þurfa að sækja rétt sinn í hendur honum. Hæstaréttardómarinn hefir aldrei mótmælt því, svo að vitað sé, að þessi ummæli væru rétt eítir honum höfð. Páll Einarsson hafði áður en hann . var skipaður í hæstarétt verið borg- arstjóri í Reykjavík og bæjarfógeti á Akureyri. Af starfi hans sem borg- arstjóra fara annars litlar sögur, enda munu flestir Reykvíkingar bún- ir að gleyma, að hann hafi gegnt þeirri stöðu. Einu sporin, sem hann sýnist hafa skilið eftir svo að mun- að verði, eru tvö meiðyrðamál við bæjarfulltrúa, sem á sínum tíma var þjóðkunnur maður, en virðist hafa haft ákaflega litla trú á vitsmunum og lagaþekkingu borgarstjórans. Enda tapaði P. E. öðru þessu meiðyröa- máli vegna vankunnáttu í lögum (höfðaði málið of seintl). Eftir þetta varð P. E., eins og áður er sagt,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.