Tíminn - 21.01.1933, Síða 1

Tíminn - 21.01.1933, Síða 1
©jaíbfcri og afgrci6slumaí>ur Ciraans ef Hannreig £>orstcins&ótjJr, Cœfjargötu 6 a. .RcYfjoöti. ^.fgtclbsía Ciraans cc i €œf jarijötu 6 a. ©pin &a$lcga>fL 9—6 Stlði 2S53 XVIL árg. Reykjavík, 21. janúar 1933. 3. blað. Atta þúsundirnar Skuldir bænda Jónas Jónsson alþm. hefir eins og kunnugt er, ritað um það hér í blaðinu, að hann hefði í hyggju að bera fram á næsta Alþingi frumvarp um hátekjuskatt til bráðabirgða, sem á að koma í veg fyrir, að árstekjur einstaks manns geti farið fram úr 8 þús. krónum, á meðan ekki rætist fram úr yfirstandandi örðugleik- um þjóðarinnar. Á því virðist ekki vera neinn efi, að þessi tillaga J. J. sé í fullu samræmi við hugsunarhátt og álit almennings, ekki sízt í sveit- unum, eins og nú standa sakir. Á bændafundinum í Kjósarsýslu var t. d. samþykkt alveg sam- hljóða tillaga, og hvarvetna er krafan um hámarkslaun nú að verða háværari og háværari. Al- menningi, sem verður að neita sér um öll þægindi og jafnvel sumt af lífsnauðsynjum, finnst það - nokkuð hart, að einstökum mönnum skuli haldast það uppi jafnframt að hafa svo að segja ótakmörkuð fjárráð. I venjuleg- um árum -getur hið vinnanda fólk leyft sér umburðarlyndi í þessum efnum. En 'á meðan kreppan er sem hörðust, er það alveg sjálf- sagt mál, að allir taki á sig ein- livern hluta af byrðinni. Það er rýttlæti, sem ómögulegt er að mæla á móti. En nú er komið hljóð úr horni. Það er rödd Reykjavíkuríhalds- ins. Mótmælin eru hafin í Morg- unblaðinu, málgagni stórkaup- mannanna, húsabraskaranna og stórútgérðarmannanna í Reykja- vík. 0g viti menn! Mbl. segir það skýrt og skorinort (15. þ. m.), að svo framarlega sem einstakir menn megi ekki fá meira en 8 þús. kr. laiín á meðan verið .er að létta sárustu neyð almennings, sé „beinlínis stefnt að kollvörpun núveranda þjóðskipulags“*). Þetta eru eftirtektarverð um- mæli, þegar þau koma fram í málgagni annars stærsta stjórn- málaflokksins á Alþingi. Er það í raun og veru alvara Mbl. og íhaldsflokksins í heild, að „núveranda þjóðskipulag" sé í því fólgið fyrst og fremst, að einstökum mönnumi haldizt uppi að hafa meira en 8 þús. kr. árs- telcjur á sama tíma, sem þúsund- ir fjölskylda hafa ekki nema nokkur hundruð? Sem betur fer er þetta rangt hjá Mbl. „Þjóðskipulagið“ stend- ur jafnrétt fyrir því, þó að þeim, sem máttinn hafa mestan, sé gjört að skyldu að taka á sitt bak einhvern hluta- af byrðum kreppunnar. Það er auðvitað líka rangt hjá Mbl., að méð skatti þeim, sem hér er um að ræða, sé verið að taka af mönnum „eignir“ þeirra. Hér er um það eitt að ræða, að lækka allra hæstu árstekjurnar, og það eingöngu til bráðabirgða. Samansafnaðar eignir frá fyrri árum hafa menn í friði alveg eins þó að þessi hátekjuskattur verði samþykktur. Mbl. segir, að það sé „athug- andi“, hvort ekki mætti lækka eitthvað hæstu launin hjá starfs- *) Feitletrað í Mbl. sjálfu. mönnum ríkisins. „Athugandi" er það! Lengra nær sparnaðarhug- urinn ekki í þetta sinn! En rit- stjórar Mbl. gætu sem sé hugsað sér, að þjóðskipulaginu væri ekki með öllu kollvarpað, þó að ríkið hætti ein þrjú ár eða svo að borga starfsmönnum sínum meira en 8 þús. kr. í árslaun! En það eru aðrir menn, sem Mbl. alveg sérstaklega ber fyrir brjósti. Það eru launamenn einstak- lingsfyrirtækjanna, sem margir hverjir hafa miklu hærri laun en starfsmenn ríkisins. Og það eru gróðamennirnir úr Mbl.-liðinu, sem með engu móti vilja — og ekki heldur nú í erfiðleikunum — gefa eyrisvirði eftir af því fé, sem þeir á venjulegum tímum reikna sjálfum sér af framleiðslu þjóðarinnar. Mbl. veit — og allir kunnugir vita — að hæstu launin í þjón- ustu ríkisins, eru einmitt orðin til fyrir áhrif frá einstaklings- rekstrinum og bönkunum, og að það er svo að segja alveg ókleift fyrir ríkið að lækka nokkuð laun hjá sínum hæstlaunuðu mönnum, á meðan þeir til samanburðar geta bent á þau geisiháu laun, sem greidd eru af öðrum en rík- inu, og sem ómögulegt er að ráða við af hálfu hins opinbera nema með hátekjuskatti. — Og þau háu laun, sem ákveðin eru hjá embættismönnum samkv. launa- lögunum er heldur ekki hægt að lækka nema með skatti. Mbl. spáir því, að slíkur há- tekjuskattui’, sem hér ræðir um, myndi ekki gefa miklar tekjur í ríkissjóð, því að ýmsir myndu lækka laun sín sjálfkrafa, ef taka ætti af þeim kúfinn. En at- : vinnufyrirtæki þau, sem þessir menn vinna við, myndu þá vænt- anlega standa sig betur. Og munu þá flestir verða sammála, að betra sé, að þetta fjármagn renni til styrktar atvinnuvegun- um en í vasa einstakra manna, sem verja því á vafasaman hátt. Hæstu launagreiðslurnar al- mennt, hjá ríki og einstaklingum, er ómögulegt að takmarka nema með því að fara skattaleiðina. Sama er vitanlega að segja um gróða. Um það niunu allir sann- færast við nánari umhugsun. Og undirtektir Mbl. ættu raunar að vera almenningi nægileg sönnun í því efni. ----o----- Úrræði Reykj avikuríhaldsins í skuldamálum hændanna eru nú þessa dagana að koma í ljós nokkuð greinilega í dagblöðum íhaldsins hér í bænum. Jón þorláksson, hinn nýi borgarstjóri, segir, að bændumir (kaupfélögin) eigi að gefa sjálfum sér eftir skuldirnar. það var nýárs- gjöf lians til bændanna og framlag til hins . „politíska samstprfs"! Visir segir að sjóðir kaupfélaganna eigi að fara í skuldagjöf og það sem á vanti, eigi kaupfélögin (þ. e. bænd- urnir sjálfir) að lána bændunum, og sé ekki til inikils mælst! Svona er alvaran í herbúðunum þeim! Og samt álita þessir menn sjálfa sig sérstak- lega girnilega til samstarfs fyrir bændastéttina og samvinnumennina í landinu! Grein í Tímanum í gær gefur mér tilefni til að bæta nokkrum orðum við það, sem þar er sagt og áður hefir verið ritað urn skuldamál bænda. Engum dettur í hug að neita því, að skuldir bænda eru miklar. Hve miklar þær eru, er ekki full- upplýst enn, en innan við 35 mil- jónir eru þær ekki. En þó þær séu svona háar, þá er mjög langt frá því að „mikill meiri hluti af bændum landsins séu gjaldþrota menn“ eins og sumir, sem um þau mál hafa verið að skrifa, hafa viljað halda fram. Mörgum þykja þetta miklar skuldir, og ýmsir af bæjarbúum álasa bændum fyrir þessa skulda- söfnun. Það er af mörgum taiið, að þessar skuldir séu til orðnar á síðasta áratug. Svo er vitanlega ekki nema að nokkru leyti — kannske mestu leyti — það er órannsakað mál. Að hinu leytinu er það vitanlegt að skuldir gomlu selstöðuverzlananna, sem hættar eru að starfa hér á landi, en sem selt hafa skuldirnar til innheimtu fyrir lítinn hluta af nafnverði, eru margar hverjar eldri. Hve heilbrigt það er, að láta afskrift- irnar koma fram á buddum þeirra málafærslumanna, sem skuldirnar hafa keypt, munu flestir geta séð, og væri þess full þörf að undir þann leka væri sett, að menn kaupi skuldir á 10—30 % af nafn- verði, en innheimti þær svo að fullu. Sú afskrift kemur ekki niður á réttum stað, og léttir ekki und- ir með framleiðslunni. En þó nokkur hluti skuldanna sé gamall, og stafi meðal annars frá því er menn voru að sperrast við að kaupa jarðirnar, þá er enginn efi að mikill hluti þeirra hefir myndast síðan 1920 eða á síðasta áratugnum. Þetta er ekki undarlegt, þegar þess er gætt, hvað bændastéttin hefir framkvæmt þessi ár. f jarðabætur hefir hún lagt um 15 miljónir króna af ágóða bú- skaparins og lánsfé. Á liðugum 1000 jörðum hafa vérið byggð nýtízku hús úr steini eða tibmri. 266 býli hafa verið raflýst. Á um 1900 bæjum hefir vatn verið leitt 1 bæ og fénaðarhús. Miðstöðvarhitun hefir verið kom- ið fyrir á kringum 500 bæjum. Fénaðarhús hafa verið byggð að meira eða minna leyti upp úr steini á fullum 1500 bæjum. Til mikils hluta af þessum framkvæmdum hafa verið tekin lán. Þau eru tekin, og þegar bænd- urnir hafa tekið þau, hafa þeir miðað möguleika sína til að standa í skilum við það verð á vörum þeirra, sem þá var. Þetta er eðlilegt, og fyrir það er engum álasandi. En svo kemur verðfallið. 1931 fæst mikið á fjórðu miljón króna minna fyrir þær sauðfjárafurðir, sem bændurnir gátu selt úr búi sínu en 1929. Og 1932 minnkar þetta enn. Þá fæst töluvert á fimmtu miljón króna minna fyrir sauðfjárafurðirnar, sem bændurn- ir hafa að selja en 1929*).Þaðer *) Á árinu 1930 var líka verðfall. það mun því láta nærri, sem gizk- því ekki lítið sem aðstaðan hefir breyzt. Það eru ekki litlar skuld- ir, sem vaxta má með 4 milj. Bændur hefðu leikið sér að standa í skilum með allar sínar skuldir, hefði verðfallið ekki komið, þegar burt séð er frá einstaka mönnum. Þar, sem bændur á síðasta ári fá á fimmtu miljón minna fyrir sauðfjárafurðir sínar en 1929, er ekki að undra þó mörgum veiti erfitt að standa í skilum. En það er ekkert, sem betur sýnir vilja bændanna til að standa í skilum, þrautseigju þeirra og dæmafáan dugnað en það, að þrátt fyrir þetta verðfall, þá segja mér þær lánsstofnanir, sem mest hafa með lán bænda að gera, að þeir hafi sem heild stað- ið sæmilega í skilum í haust, og ]?að munu ekki vera mikið meiri lán í vanskilum hjá þeim en sum- um öðrum stéttum, sem í ár hafa margfalt betri afstöðu til að standa í skilum en bændurnir. Skyldi vera að hún væri ekki hærri, upphæðin sem þar er ekki staðið í fullum skilum af. 15. jan. 1933. Páll Zóphóníasson. ---o-- Kreppan og bændnrnir Iíftir Friðjón Jónsson bónda Hofstöðum í Mýrasýslu. I. það hefir verið furðu“ liljótt yfir bændastétt landsins um þau vand- ræði, sem þeir eiga við að etja, yf- irleitt um alta afkomu. Sýnir það, betur en allt annað — það æðruleysi, sem þeim er í blóð borið, að þeir æðrast lítt, þó á bjáti og ömurlegt sé um þeirra framtíð. — þó liafa nokkrir fundir verið haldnir til að ræða þessi mál. Nú fyrir skömmu (10. des.) boðaði ég undirritaður, á- samt Guðbrandi Sigurðssyni bónda á Ilrafnkellsstöðum í Hraunlireppi til umræðufundar fyrir þessa tvo hreppa, Hraunhrepp og Álftanes- hrepp. Umræðuefnið var fjárhags- vandræði bænda og horfur um fram- tiðarafkomu. Var fundur þessi vel sóttur, og mætti þar meðal annara þingmaður okkar Mýramanna, Bjarni Ásgeirsson. Á fundinum komu fram og voru samþykktar eftirfarandi til- lögur: 1. „Fundurinn álítur nauðsyn að kosin sé þriggja manna nefnd í hverri sveit af kosningabærum mönnum, til þess að gera yfirlit yfir greiðslumöguleika manna, og aðstoða þá i samningum við skuldheimtu- menn og skilanefnd sýslunnar og láti uppi álit sitt um livað þeim sé unnt að greiða: a. af tekjum sínum, án þess að bústofn þcirra skerðist um of. b. með þvi að ríkið kaupi af þeim jarðimar gegn fasteignamatsverði og tryggi scljendum lifstiðarábúð með eriðafestu og afgjaldi er nemi einu ærverði fyrir hv.ei’t þúsund í land- vcrði, en þriðjungi lægra af húsa- verði, og að þeir fái að vinna af . sér afgjaldið með jarðabótum. c. hve mikinn hluta skuldanna sé nauðsyn að fella niður". 2. „Fundurinn skorar á stjórn og þing, að breyta nauðasanmingalög- unum með tilliti til bænda og greiða fyrir því með framlagi úr ríkissjóði, að var á í síðasta blaði, að verð- fallið á þessum þrem árum væri til jafnaðar nál. 4 milj. á ári, miðað við árið 1929. Rltstj. Utan úr heimi. Styrjaldir og vígbúnaður. Á tveim stöðum í heiminum a. m. k. hafa staðið blóðugir bar- dagar nú undanfarna mánuði. Kínverjar og Japanar eigast enn við út af Manchúríu, og er sú styrjöld nú búin að standa með litlum hvíldum á annað ár. Báru Japanar þar raunar um eitt skeið aígerlega hærra hlut og gerðu Manchúríu, sem er einn byggilegasti hluti hins víðáttu- mikla Kínaveldis, að sjálfstæðu ríki undir japönsku eftirliti. Ilafa Kínverjar þrásinnis leitað aðstoð- ar Þjóðabandalagsins út af þess- um yfirgangi, og sendi bandalag- ið nefnd austur til rannsóknar. Gekk álit nefndarinnar mjög móti Japönum, en þrátt fyrir það hef- ir bandalagið enn ekkert aðhafst. En oft hefir verið talið, að Jap- önum og Rússum myndi lenda saman í Kína út af málum þess- um, enda kommúnistahreyfingin talsvert útbreidd í Kína nú orð- ið. Enn hefir þó eigi dregið til þeirra tíðinda. — Hin styrjöldin, sem minna þykir um vert, hefir staðið í Suður-Ameríku, milli tveggja smáríkja þar, Bolivíu og Paruguay, og veitir ýmsum betur. Á fundum Þjóðabandalagsins er afvopnun þjóðanna nú tíðasta málið á dagskrá, án þess að til úrslita dragi. Þykir mörgum sem þar. fari fram skrípaleikur einn. Eru nú Þjóðverjar að rísa úr rot- inu eftir hinn mikla ósigur í heimsstyrjöldinni og heimta, að vígbúnaður verði nú tafarlaust takmarkaður, svo að um muni, ella muni nú Þýzkaland taka að vígbúast til jafns við önnur ríki og að engu hafa takmarkanir friðarsamninganna á landher og flota Þýzkalands. Og sjálfur Lloyd George, sem (fyrir hönd Breta) var einn af þeim fjórum stórmennum (the big four), sem gerðu friðarsamninginn, hefir nú opinberlega í blöðum tekið í strenginn með Þjóðverjum í þessu efni. — Hinir þrír, sem samninginn gerðu, voru Wilson forseti og Clemenzceau þáv. for- sætisráðherra Frakka, sem nú eru báðir dánir, og ítalski for- sætisráðherrann þáverandi, Or- lando, sem enn er á lífi. í hinu fræga enska tímariti, Rewiew of Rewiews, birtist á síðastliðnu sumri mjög eftii’tekt- arverð grein um afvopnunarmál- in, og er hún byggð m. a. á ýms- um rannsóknum Þjóðabandalag’S- ins. Greinin fjallar um það, sem þar er nefnt „alþjóða-leyndar- málið“ (the international secret), sem sé það, að auðfélög í ýmsum löndum, privat fyrirtæki, sem eigi allar aðal vopnaverksmiðj- urnar, vinni á bak við tjöldin, beri mútur á blöð og stjórnmála- ínenn, gefi jafnvel sjálfar út Framh. á 4. síðu. að þeim veitist auðveldara að ná slíkum samningum". 3. „Fundurinn álítur ólijákvæmi- legt að hækka að mun skatta af há- um tekjum, til þess að standast straum af þeim ráðstöfunum, sem nauðsynlegar ei'u tii jbargar í nú- verandi kreppu". 4. „Fundurinn skorar á stjórn og þing að gjöra ráðstafanir til að innláns- og útlánsvextir lækki veru- lega frá því sem nú er og að vextir <y

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.