Tíminn - 22.04.1933, Page 2

Tíminn - 22.04.1933, Page 2
64 TtMINH íjarlæga flokksmenn, sem jafnan hafa treyst blöðum sínum til drengilegrar bersögli um mál þjóðarinnar. Magnús Guðmundsson og Ól- afur Tbors hafa fram undir 20 málgögn til að túlka íhaldsstefn- una. Samvinnuflokkurinn hefir sjaldnast haft nema 2 blöð. Það er þessvegna ekki beinlínis saxm- gjarnt, að ætlast til að þessi tvö blöð geti bæði staðið á verði um stefnumálin móti íhaldi, sociahst- um og kommúnistum, og um leið varið rúmi til að segja samherj- um sínum frá því hvílíkt ágæti sé að láta Magnús Guðmundsson og ólaf Thors stjórna réttarfar- inu, heilbrigðismálunum, land- helgisgæzlunni, svo að eigi sé fleira nefnt. Þeir menn sem hafa viljað fá límann og Dag til að veva mál- gögn íhaldsmanna, af því þeir ættu nú fulltrúa í landsstjórn með samvinnumönnum, hafa gert nýjar kröfur, ósanngjamar og fjarstæðar kröfur, og 1 ósamræmi við stefnu og sögu flokksins. All- ir ritstjórar, sem unnið hafa við Dag og Tímann frá byrjun hafa neitað að styðja íhaldið, stefnu þess eða fulltrúa. Og menn vita ekki annað en að sú framkoma hafi verið að skapi samherjun- um út um land. Hin glæsilega þátttaka í flokksþinginu síðasta, hinn sterki samhugur fulltrúanna og óbifandi festa þeirra að láta Framsóknarflokkinn vera fram- vegis sterkan umbótaflokk í land- inu, sannar bezt að kjósendur Framsóknarflokks þingmannanna ætlast ekki til að Tíminn verði á nokkurn hátt bendlaður við íhaldsstefnuna. -----o- ,Saluvika‘ hútnsðra þingeyskar konur höíðu vikunám- skeið í húsmœðraskólanum á Laug- um nú í vetur. Neínir ein konan þennan tíma í bréfi „sœluviku". Sveitakonur hafa sjaldan frí, sízt viku í einu. þótti þeim mikill fengur að taka bað í lauginni snemma morguns, koma svo í morgunkaffið, íylgjast svo með í störfum ungu kvennanna í húsmæöraskólanum, hlusta á fyrirlestra og hafa fundi sjálfar. Heígi Ágústsson frá Birtingaholti, formaöur í skóianefnd Laugarvatns- skóla, sagði í fyrravor, þegar þar var undirbúið hið fyrsta námsskeið fyrir húsmæður, að sízt væri vanþörf slíkr- ar tilbreytni; því að sveitakonur hefðu meiri vinnu og minna frí en nokkur önnur stétt á landinu. Nú i vor, þegar jörð er orðin gróin, verður annað námsskeið fyrir hús- mæður á Laugarvatni. það mun standa í viku, en þó sennilega stillt svo til að konur, sem ekki geta verið nema 3 daga, komi um miðja vik- una,' og hætta þá allar jafnt. Slikt námskeið er i aðra röndina hugsað sem sumarfrí, fyrir þá stéttina, sem vinnur mest, og minnsta hefir hvíld- ina, Kennslan er aðallega sýni- kennsla, svo og fyrirlestrar og mál- fundir. í fyrra kom þar annar af teiknimeisturum Byggingar- og land- riámssjóðs, og sýndi teikningar af fyrirmyndar húsum og húsbúnaði. Sá þáttur ætti að koma til greina á öllum húsrnæðranámsskeiðum. Suð- urland er stórt, og bílferðirnar nokk- uð dýrar. En stjóm Laugarvatns- skóla mun hafa í hyggju að undir- búa alveg sérstaklega, að ferðimar úr Árnes- og Rangárvallasýslu á „sæluviku" húsmæðranna geti orðið mjög ódýr, eins og líka veran öll. Héraðsskólamir eiga að vera gesta- stofa héraðanna, bæta úr ótal sam- eiginlegum þörfum fólksins í hinum dreifðu byggðum og sjóþorpunum. Skulu nú nefnd nokkur dæmi. Vetr- arskólinn á Laugavotni hætti síðast í marz. þá byrjaði íþróttanámsskeið fyrir pilta og stúlkur og stendur all- an aprílmánuð. í maí byrjar mat- reiðsiukennsla fyrir ungar stúlkur, og garðyrkjunámsskeið hjá Ragnari Ásgeirssyni. Er aðsókn svo mikil að þeim báðum, að fyrir löngu er orðið yfirfullt. þá er jafnan á vorin söng- kennsla fyrir barnakennara hjá þórði Kristleifssyni, og er þess vænst, aö þar verði hafin byfjun að nýíri efl- ingu söngsins í skólum landsins. Samhliða þessu byrjar áðurumtalað námsskeið fyrir giftar konur, þegar skógurinn er orðinn grænn -og nátt- úran i blóma. Er búist við mjög mikilli aðsókn að því, bæði úr sveit- unum og úr Reykjavík. Mun margn höfuðstaðarkonunni þykja fýsileg vikudvöl á Laugarvatni um vor. þá er gert ráð fyrir að hafa sund- og íþróttakennslu fyrir börn frá Eyrur- bakka og Stokkseyri nú í vor, og ef tii vill varanlegt íþróttanamsskeið fyrir ungt fólk úr bæjum i júlí og ágúst, þar sem lágmarkstími er vika, og. þar miðað við sumarfrí. — Á Laugarvatni getur námsskeiðastarf- semin orðið alira fjölbreytilegust af því, að þar eru húsakynni mest og skólinn iiggur milli hins fjölbygðasta sveitaiiéraðs og höfuðstaðarins. En mjög m,un sækja í horfið með hina aðra héraðsskóla. í Reykholti var í fyrravor sundnámsskeið fyrir fjölda af börnum og unglingum af Akra- nesi, og má telja víst, að þar mynd- ist sundskóii fyrir alla sem vaxa upp á Akranesi og Borgarnesi. Að Reykjum i Hrútafirði hafa verið lialdin nokkur sundnámsskeið og mun mega svo að orði kveða, að þar iæri hver unglingur að synda. þá hafa leiðandi Framsóknarmenn i Stykkishólmi við orð, að koma börnum þaðan til sundnáms að Laugum i Dalasýslu. Er þar svo sem kunnugt er hin prýðilegasta sund- iaug og heimavist. þá mun í ráði að þingeyingar bjóði börnum af Húsa- vík sundnámskeið í Laugaskóla, og mun æskan tæplega slá hendi við því boði. Á Núpi er nú verið að fullgei'a skólann og sundlaugina, og er ætiazt til að hún verði hituð við raforku. Um leið og því er lokið munu Vestfirðingar efna þar til margháttara námsskeiða, í íþróttum, lieimilisiðnaði o. fl. Loks er Eiða- 'skóli að byrja nýja stefnu í þessum efnum. Slá Héraðsbúar nú hring um skóla sinn, og er fullvíst, að hann mun eiga í vændum aukinn vöxt og margbreytt viðfangsefni. þannig eru umbótamenn landsins í öllum héruðum þar sem ungmennaskólar eru í stöðugri framsókn með að nota hina nýbyggðu skóla til að efla þjóðina i lífsbaráttu nútímans. S. K. ----o---- Samyrkja bænda Eftir Pótur Magnússon frá Jaðri. ------ Ni. Fyrir nokkrum árum síðan, fiutti ég erindi i félagi einu hér í bænum um það, hver nauðsyn væri á þvi, að jarðræktarframkvæmdir íslend- inga yrðu skipulagðar og byggðin dregin saman. Siðan hafa komið fram ýmsar raddir um þetta og þar á meðal frá Búnaðaríélagi íslands. En hingað til hefir ekki tekist að benda á leið í þessa átt, sem væri íramkvæmanleg. það hefir með réttu verið bent á það, hvílíkan kostnað og verðmætatap það hefði í för með sér, ef bændur, í þessu skyni, yfir- gæfu í stórum stíl jarðir sínar með íbúðarhúsum og öðrum mannvirkj- um og húsuðu bæ sinn á nýju landi. Hinu verður ekki heldur neitað, að næsta óviðfeldið væri að ætla sér að koma slíkri gerbreytingu á í skjótri svipan með nokkurskonar þvingunar- ráðstöfunum, svo sem algerðri neitun um lán eða önnur fjárframlög til handa bændum, sem búa á þeim jörðum, er dæmdar eru til þess fyr eða síðar að leggjast í eyði. það fær hinsvegar ekki dulist, að nauðsynin á samfærslu byggðanna verður með ári hverju æ meira að- kallandi. Afkoma nútímalandbúnað ar gerir kröfur til samgangna, öfl- ugra orkuvera til vinnslu búnaðar- afurða og allskonar félagslegs sam- starfs, sem ókleift er að koma við í strjálbýii. Dráttur á skipulagningu þessara mála getur iika orðið bæði dýr og hættulegur. því meira fé, sem lagt er fram til jarðabóta og annara mannvirkja á útkjálka-, af- dala- og rytjajörðum, þeim, sem ættu að yfirgefast, þeim mun óaðgengi- legra verður sérhvert spor til sam- færslu byggðanna. Væri illa farið, ef stefnuleysi í þessum efnum gerði fjárframlög ríkisins að steinum í götu eðlilegrar þróunar landbúnaðarins. Ég fæ ekki betur séð en að stofn- endur Ræktunarfélags Vallnahrepps hafi komið auga á hagnýta og íram- kvæmanlega lausn á þessu máli. Með leið þeirri, sem hér er farki, vitðist verða siglt framlijá þeim skerjum, sem öll stærri spor í áttina til stór- ræktunar og skynsamlegrar sam- færslu byggðanna hættir við að steyta á. — Hér er séð fyrir þvi, sem í bráðina er mest aökaliandi í hin- um dreifbýiu og aískekktu sveitum, að gera bændum kleift að skapa sér, þegar á næstu árum, svo mikið vól- tækt iand, sem þörf hvers einstaks bónda krefur. þetta er gert án þess að fyrst um sinn sé stórfé jafnframt bundið i öðrum mannvirkjum en sjálfri ræktuninni, eins og gera verð- ur þegar nýbýli eru sett á stoin. Bygging gripahúsa og annara mann- virkja, sem hljóta að fylgja i spor aukinnar íæktunar, myndi þá koma upp eftir hendinni, þar séin hent- ast þætti eftir atvikum. Hefir þessi aðíerð það tii sins ágætis, að fyrst er komið á þeim íramkvæmdum, sem arðberandi eru beiniinis og verða að standa undir öilum öðrum kostnaði, og hitt jafnframt, að hægt verður að nota eldri byggingar og mannvirki meðan nauðsyn krefur. Bvo er háttað um margar jarðir, sem annars eru vel í sveit settar, að þær hafa gnægð góðs beitilands, err btii tún, óvéltæk og slæm skilyrði til jarðræktar. Með samyrkjunni er bændum á slíkum jörðum skapaður mökuleiki til að verða þéss aðnjót- andi, sem þá vanhagar einkrnn um, véltækan lieyskap á ræktuðu landi, og landbúnaðinum þar með, en um skeið gert kleift að njóta hinna sérstöku hlunninda þessara jarða, beitilandsins, án þess að sæta þeim erfiðleikum og kostnaði, sem ör ræktun á siikum jörðum hefir í för með sér. Varia er hægt að hugsa sér að þéttun byggðanna gæti átt sór stað með eðlilegra og óþvingaðra móti, en verða myndi, ef þessi leið yrði upp tekin i hinurn ýmsu hóröðum landsins. Með þátttöku sinni í sam- yrkjunni, væri bændum, svo sem fyr er sagt, gert kleift á skömmum tima að auka bú sín eins og þörf krefur. Jafnframt myndu þeir halda áfram lieimaræktun sinni, svo sem ástæður iivers og ,eins leyfðu. Myndi skilyrðin fyrir lieimaræktuninni drjúgum batna við þá stækkun bú- anna — og þar með aukinn hús- dýraáburð, — sem hinn aðfengni heyskapur hefði í för með sér. Svo kæmi að lokum, aö ræktunarlandið lieimafyrir yrði fullnægjandi og myndu þá hlutaðeigandi bændur sleppa sínum hluta af félagslandinu, en nýbýli stór eða smá rísa upp á þeim slóðum, sem að sjálfsögðu yrðu, er timar liðu, hjarta byggð- anna. Að iokum skai bent á það, að á þessum samyrkjulöndum gæfist bændum kostur á að framleiða garðávexti til manneldis og skepnu- fóðurs í langtum stærri stíl en nú er hægt, vegna slæmrar aðstöðu hinna dreifðu býla um jarðvinnzlu- vélar og fleire, sem þar þarf við. Myndi sú starfsemi og aðrar fram- kvæmdir á samyrkjulandinu verða bændum oinkar gagnlegur skóli, bæði um félagslega starfsemi í at- vinnurekstri og kunnáttu i allri meðóferð á nýtízku landbúnaðar- vélurn, sem enn mun vera næsta á- bótavant. Sú leið, til eflingar landbúnaðin- um, sem rædd hefir verinð hér að framan, hefir, eins og fyr er drepið á, þann höfuð-kost, að hún er fram- kvæmanleg. Hér er í rauninni ekki kiafizt neinna verulegra aukinna fjárframlaga af hálfu hins opinbera. Hér er einungis verið að tryggja það, að hinar afskekktari og dreif- býlli sveitir geti, að sínum hluta, notið þess fjárstyrks, sem fram er lagður af rikinu og að fénu sé að sem mestu leyti varið til skipulagðra og félagsbundinna framkvæmda, sem í senn tryggja stórum meiri fram- leiðslu og kostnaðarminni hlutfalls- lega, on til þessa hefir almennt átt sér stað, og eru jafnframt spor í áttina til réttrar þróunar í landbún- aðarhéttum þjóðarinnar. það eru allar líkur til að þetta mál muni eiga að fagna miklum vinsældum meðal bændastéttar lands- ins; benda allar undirtektir, þar sem því hefir verið hreyft, eindregið í þá átt. Á fjölmennum fundi aust- firskra bænda, sem haldinn var að Egilsstöðum 28.—30. jan. þ. á., bar hinn áhugasami kaupfélagsstjóri Héraðsmanna, þorsteinn Jónsson, málið íram til umrœðu og vakti það meiri áhuga meðal fundar- manna- en nokkuð annað mál, sem þar var rætt. í 7. tbl. Tímans þ. á. er birt ályktun fundarins um málið, þar sem mælt- er með því á allan hátt og skorað á Búnaðarþingið að greiða fyrir því eftir mætti. Búnaðarfélag íslands er þessa dagana að undirbúa frumvarp til laga um fjárveitingar til samyrkju- féiaga bænda. Er þess að vænta, að Alþingi sýni fullan skilning á þýð- ingu þessa máls. 10. marz 1933. -----o--— Sútunarverksmiðja þegar afurðir eru verðlitlar og gömlu atvinnuvegirnir geta ekki framfileytt þeim sem við þá vinna, a. m. k. í bili, reyna menn að von- um að .leyta nýrra úrræða. Skiftir þá miklu máli, að rétt sé stefnt um lramkvæmd, þvi aldrei eru misstignu sporin hættulegri en á erfiðieika- tímum. Fregnir hafa borist um það, frá mörgum þingtnálafundum viðsvegar um land, að samþyktar hafi verið tiilögur um stofnun og starfrækslu fullkominnar sútunarverksmiðj u. Mun til þess ætlast, að ríkissjóður komi veiksmiðjunni upp og starf- ræki hana. Pað sem fyrir fillögumönnum mun vaka, er að gera skinn og húðir verðmeiri en nú er og auka atvinnu í landinu. Væri liægt oð ná þessum tvöfalda tilgangi, er máiið mikilsvert, en á því virðast mér allmiklir agnúar og skal ég nefna nokkra. 1. þó sútuð yrðu öll skinn og húðir, sem árlega tilfallast í land- inu þyrfti ekki stóra verksmiðju til þess og muudi hún ekki veita nema fáum mönnum atvinnu. því full- komnari sem verksmiðjan yrði búin að vélum, þess færri menn þyrfti tii vinnunnar. 2. pó slík verksmiðja yrði starf- rækt, yrði ekki hjá því komist að íiytja inn mikið af sútuðu leðri, skinnum og vörum úr leðri og skinni, vegna þess, að leður- og skinnaframleiðsla landsins er svo fá- breytt. 3. Ósútuð skinn og húðir er flutt inn tollfrjálst í flestum nágranna- löndum okkar og einnig í Banda- ríkjunum. Aftur á móti er sútað leð- ur og skinn víðast hvar tollað og það mjög hátt. Sama máli gegnir méð vörur úr leðri og siknni. þær eru hátt tollaðar og sala þeirra er- lendis mundi því reynast mjög erfið. 4. Ekki þykir mér líklegt, að neitt \erulega hæiTa verð fengist fyrir skinn og húðir sem sútað yrði í landinu, en nú fæst fyrir þsesar vörur með því að flytja þær óunnar úr landi. Húða- og skinnaverð í ná- grannalöndunum er engu hærra en á samskonar vörum hér á landi. þó má gera ráð fyrir einhverjum hagn- aði á þeim hluta varanna, sem unn- ar yrðu úr vörur til notkunar i landinu, en það yrði ekki nema lít- iil hluti skinna og húða, eins og áð- ur er sagt. 5. Áx síðari árum hefir nokkuð verið unnið að sútun sér á landi. í Reykjavík eru tvö sútunarverkstæði. Á Akureyri hefir S. í. . látið afulla talsvert af gærum í allmörg ár. í sambandi við afullunina hefir lítið eitt verið unnið að sútun tvö undan- farin ár. En aðbúðin hefir verið slæm og því lítið orðið úr fram- kvæmdum. En nú er í ráði að koma upp liéntugra húsnæði , sumar og kaupa óhjákvæmilegar vélar. Tilætl- unin er að áíitunin verði aðallega stunduð sem vetrarvinna og reynt að bera sem minnst í vélakaup. Yrði þá hér að mestu um handverk að ræða til stuðnings heimilisiðnaði ög smáhandverksmönnum, og hygg ég þetta rétta stefnu i málinu. 24. marz 1933. Jón Árnnson. ----O----- Atvinnuvegur eyðilagður. Merkur maður sagði, þegar hann frétti úr skipulagslögum Framsókn- arflokksins, hversu mál skuli gerð að flokksmáli: þetta eru mikil tiðindi. Nú er eyðilegður mikill og góður atvinnuvegur á Alþingi. „Hrossa- kaupin“ svonefndu hafa nefnilega aldrei þótt fara í bága við sann- f æ rin garákvæði st j ómarskrárinnar. Engin furða, þó að Mbl. haldi fast í „sanníæringuna" núnal Hugleiðingar um refarækt Eftir Jón Guðmundsson i Ljárskógum. „Sveltur sitjandi kráka, en fljúg- andi íær“, segir spakmælið. Og þrátt fyrir lamandi og seigdrepandi áhrif kreppunnar- hjá bændastétt landsins, er þó umhugsun þeirra fyrir framtíð sinni bezt skýrð með þessu spakmæli — hjá mjög mörgum þeirra. þeir iviija ekki láta svelta sig inni, sem melrakka i greni við hungurfæðu þá, er gjörialiin afurða- sala býður, og þeir vilja heldui’ ekki geíast upp, tii að krefja ríkið um tramfærslu sína. Nei, það sem bændur munu al- mennt vilja i þessu efni, mun í aðalatriðunum vera þetta tvennt: I) að ltíita alira bregða og allra leiða til þess, að rýmka um sölu aðal- íramleiðsluvöru sinnar, kjötsins og 2) að finna nýjar leiðir, er heilla- vænlegar þykja tii stuðnings þeim í þessari hörðu baráttu, sem þeir nú verða að heyja fyrir fjárhagslegu sjálfstæði sinu. — Ein af þessum nýju leiðum, sem mér er sérstak- lega kunnugt um að menn horfa til, mun verða gjörð að umtalsefni í þessum greinarstúf, ef vere mætti að skilningur manna á því sviði yrði 'fyrir það nokkru gleggri. Er það refaræktin sem hér er átt við. Reíárækt er enn þá í bernsku hér á landi, sem vonlegt er, því segja má, að hún sé ékki enn þá búin að slita barnaskónum að fullu meðal þeirra þjóða, er fyrst byrjuðu á henni. þvi að þótt loðskinn og þar á meðal refaskinn, hafi verið eftir- sóttur varningur allt frá því að menn fóru að skýla iíkama sínum með iatnaði, héfir rányi'kja — veiði — vei-ið uppistaða loðskinnafremleiðsl- unnar fram á vora daga, og er enn að miklu leyti á mörgum skinna- tegundum. Nú er það svo með marga þá er áliuga hafa fyrir refarækt, að þeir inna fyrst og fremst eftir því, hvort íefarækt muni vera arðvænlegur at- vinnuvegur í nútið og framtíð, en samhljóða svör við þeirri spurningu er erfitt að fá. Eirm svarar því, að hún sé öruggasti atvinnuvegur, sem liægt sé að hugsa sér. Annar segir, að refaiæktin sé einungis hættulegt fjárglæfraspil, sem enginn ætti að koma nærri. Og fjöldi manna er i skoðunum sínum einhversstaðar þar á milli. — Sannleikurinn er sá, nú á þessum viðsjárverðu tímum getur þorri manna ekkert um þetta sagt með nokkurri vissu. Nú vita menn það, að matarbúr stóx-þjóðanna standa full af mat, en þrátt fyrir það deyr fólk úr hungri, af því að það getur ekki keypt ofan í sig matinn. Á mörgum öðrum framleiðslusviöum er sama sagan, vörurnar liggja óseldar af því, að almenning skortir kaupgetu. þrátt fyrir þetta telja nákvæmustu sér- fræðingar, bæði í Ameríku og Nor- egi, að silfurrefarækt muni eiga sér trygga og blómlega framtíðarvon, enda hafa silfurrefaskinn verið að hækka allt síðastliðið ár. Hvað hafa þessir sérfræðingar þá fyrir sér? Og hvernig getur slík ó- bófsverzlun þrifist mitt í krepp- unni? — Orsakimar til þess eru sannar og -sýnilegar, vegna þess að loðskinn yfirleitt og þá fyrst og fremst silfurrefaskinn, hafa sína sér- stöðu á heimsfnarkaðnum. það hefir allt af verið svo — og er enn — að efnaða peningafólkið hefir fyrst og fremst keypt og klæðst loð- dýíafeldum, ýmist til skjóls eða skreuts, en ekki meginþorri alþýð- unnar, sem fyrst og fremst verður að fæða sig og klæða, og hefir löng- um ekki haft afgangs gjaldeyri til óhófskaupa. Að vísu voru alþýðu- konur farnar að klæða sig og skreyta með loðskinnum, en yfirleitt voru það ódýr loðskinn, sem þær notuðu — en hinsvegar ekki ósennilegt að þær svelti sig eitthvað dálítið, nú um þessar mundir, heldur en að gcta ekki haft eitthvað loðið um háls- inn. þar sem það er nú víst, að það cr fyrst og fremst ríka og menntaða fólkið, sem kaupir í'efaskinn, til þess að skreyta sinn dýrmæta líkama með, þá er það jafnframt víst, að kaupgetuna skortir ekki, jafnvel nú í kreppunni. En þessari staðreynd fylgir önnur, og hún er sú, að þetta ríka fólk kaupir ekki nema fyrsta

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.