Tíminn - 06.05.1933, Qupperneq 3
TÍMINN
77
Auk lögakyldra fasteignatrygginga getur félagiö einnig tdc-
ið í brunatryggingu fyrir fullt verðraæti það sem hér greinir:
1. Fasteignir utan kaupataöa og kauptúna, hvar sem «r á
landinu.
2. Lausafé:
a. I kaupstöðum og kauptúnum: Lausafé (nema verzlun-
arvörur) allra þeirra roanna, sem vátryggja fasteignir
hjá félaginu.
b. I sveitum (utan kaupataða og kauptúna): Hverskonar
lausafé, s. s. húsgögn, bækur, fatnað, búslóð, búsáhöld
og verkíæri, heimilisbirgðir (matvæli o. fl.) framleiöslu-
birgðir (fóðurbirgðir, fiskbirgðir o. fl.), búpening í hús-
um o. s. frv.
Iðgjöld félagsina eru lægri en annara félaga.
Vátryggjendur þurfa ekki að greiða stimpilgjald.
Félagið hefir aðalskrifstofu í Reykjavík (Amarhvoli,
4915, 4916, forstj. 4917). Umboðsmenn hefir félagið í hverjum
kaupstað og kauptúni.
99
Freyja
Akureyri
cfi
framleiöir kaffibæti í stöngum og kaffibætisduft, sem selt er í
smápökkum. — Kaffibætir þessi hefir náð ótrúlegum vinsældum
og útbreiðslu á þeim skamma tíma, sem liðinn er sfðan hann
kom á markaðinn, enda eingöngu búinn til úr beztu hráefnum.
Fæst hjá öllum kaupfélögum landsins og' mörgum kaup-
mönnum.
Vínnufatagerð Islands h.f.
Reykjavík
Símslceyti: Vinnufatageröin. — Skrifstofa: Edinborgarhúsinu.
Sími: 3666. — Pósthólf: 34.
Framleiðir:
Vinnubuxur
„Overalls“
Jakka
Samfestinga
Til framleiðslunnar er notaður fullkomnasti
vélaútbúnaður og aðeins beztu fáanleg efni.
fyrir
fullorðna
og börn
„Inngangsiæða"
Magnúsar Jónssonar á landsfundi
ihaidsmanna var birt í Mbl. núna í
vikunni. Er mestur hluti ræðurmar
um inníiutningshöftin. Dettur M. J.
í hug, að nokkur trúi því í alvöru,
að liagur almennings í heild hatni
við að kaupa útlendan óþarfa fyrir
íslenzka framleiðslu og borga fjölda
fólks há laun af þessari sömu fram-
leiðslu fyrir að selja óþarfann?
Myndi ekki vera hagkvæmara fyrir
heildina, að rikið taki tekjur sínar
þannig, að ekki þurfi um leið að
lieimta óþarfaeyðslu af borgurunum?
Erá þjóðhagslegu sjónarmiði væri
jafnvel betra að sjá einhv.erju af
verzlunai’stéttinni fyrir opinberu við-
urværi en að láta hana hafa óbundn-
ar hendur um að stuðla til eyðslu
á gjaideyri landsins. þetta veit M. J.
fullvel og allir viti bornir kaupmenn.
Mikið er það, að maður í þjónustu
kirkjumiar skuli geta forhert sig svo
gegn sannleikanum sem M. J. gerir í
þessum efnurn-
Fréttir
Framsókuaríélögin í Reykjavík
halda bæði fundi í næstu viku. Fram-
sóknarfélag Reykjavikur á mánudag
og Félag ungx-a Framsóknarmanna á
miðvikudag. Sjá augl.
Aðalíundi Kaupfélags Eyíirðinga
er nýlokið. Mættir voru 95 fulltrúai''
frá átján deildum. Félagið heíir
á liðna árinu rekið aimenna vöru-
vei’zlun og annast um sölu á afurð-
um íélagsmanna, stai’frækt smjörlík-
isgerð, brauðgerðarhús og mjólkur-
samiag. Sjö söiubúðir hefir félagið
rekið á Akureyri. Dalvík og Ólafs-
firði. Vörusala samtals 3,750.000 kr.
Rekstrarafgangur ái’sins er 115 þús.
ki’. Skuldir viðskiptamanna íólags-
ins littfa lækkað um 220 þús. kr. Fé-
iagið heíir bætt hag sinn á árinu um
náiega 600 þús. kx-.
Júnas þorbergssou útvarpsstjóri er
nýkominn úr ferð norður á Akur-
eyi’i. Fór útvarpsstjórinn norður til
að sjá um útvarpið frá Akureyri,
þrjú kvöld í röð, og jafnframt upp-
töku á grammofónylötur, fyrir ís-
ienzka ríkisútvarpið, sem hann
hefir gert samning um við brezkt
íeiag. Dvelja sérfræðingar frá félag-
inu hér nú í þessum erindum. Eftir
þeirri reynslu, sem fékkst við út-
vai’pið frá Akureyri, má búast við
að hægt verði að útvarpa viðsvegar
að af landinu gegnum landssímann
og útvarpsstöðina i Rvik og myndi
möi’gum hafa þótt lygilegt fyrrum, að
slíkt gæti átt sér stað.
Samnlugarnlr við Bi’eta eru að hefj-
ast á ný. Jón Árnaso og Stefán þor-
varðarson fóru á mánud. var frá
Reykjavík. Magnús Sigurðsson fór í
gær, og Richard Thors var ytra.
Sigurður skólameistari Guðmunds-
son og þorst. M. Jónsson bóksali
hafa verið hór í bænum nokkra
daga.
Búnaðarsambaud Suðurlauds hélt
nýverið fund við þjórsárbrú og á-
kvað að láta ráðunaut sinn fram-
vegis búa í Gunnarsholti og hafa
þar búrekstur, aðallega nautpening.
Á Laugarvatnl er nú nýberjað
matreiðslunámsskeið fyrir ungar
stúlkur. Eru þær tæplega 40. þar að
auki eru þar um 40 hörn við sund
og íþróttanám. Um miðjan maí byrj-
ar garðyi’kjunám með 12 nemendum.
Á miðvikudagluu var samþykkti
Alþingi lög sem heimila háskólan-
um að reka happdrætti í nokkur ár
til að afla fjár í byggingarsjóð. J. J.
bar fyrst fram frv. um háskólabygg-
ingu 1930. Frumvarpið var samþykkt
í fyrra. Sig. Nordal og Guðjón húsa-
meistari settu happdrættismálið á
hreyfingu í haust en Alexander Jó-
hannesson hefir mest beitt sér fyrir
því við þingmenn.
Nú i vikunni fór Guðjón húsa-
meistai’i upp í Reykholt til að vera í
ráðum með skólanefnd um hvar
vera skyldi Snorragarður og líkneski
það, s.em Norðmenn gefa 1941. Á-
kváðu þeir að styttan skyldi vera
framan við skólann.
Hákou Bjamason skógfræðingur
er nýkominn heim og vinnur íxú
fyrir Skógræktarfélagið. Hann hefir
boðið ungmennasambandi Borgar-
íjarðar að aðstoða við gróðursetn-
ingu ti’jáplantna í Reykholti og var
það þegið með þökkum.
Fimmti bekkur Akureyrarskóla fer
í vor um þingeyjarsýslu að Möðru-
dal, en menntaskólanemendur í Rvík
ráðgara ferð austur á Siðu.
Nýlátiun er hér í bænum Jóhann-
es Sigurjónsson frá Laxamýri, Jó-
hannes var bróðir Jóhanns heitins
skálds, en talsvert eldri. Stundaði
hann nám við menntaskólann í Rvík
og lauk þar stúdentsprófi. Eftir föður
sinn bjó hann á Laxamýri ásamt ein-
um bræðra sinna. Hann las mjög
enskar bókmenntir og átti stórt safn
bóka á því máli. þekkti hann og vel
til Englendinga, því að fjöldi enskra
manna dvaldi á Laxamýri á sumr-
um við veiðar. Átti Jóhannes síðar
bréfaskipti við marga þeirra. Síðustu
æfiárin var hann mjög heilsutæpur.
Dvaldi hann þá hér í bænum á heim-
ili dóttur sinnar, Jónu, sem gift er
' Árna Benediktssyni frá Hallgilsstöð-
um á Langanesi. Jóhannes heitinn
er jarðsunginn í dag.
í vélstjóraskólanum luku 23 prófi
og í Stýi’imannaskólanum 12 fiski-
mannaprófi og 3 farmannaprófi.
„í leikslok", smásögur frá stríðinu,
eftir Axel Thorsteinsson eru nýkomn-
ar út í 2. útgáfu. Höf. var sjálfur á
vígstöðvunum eins og fleiri Vestui’-
íslendingar.
Nemendur Samvinnuskólans, Kenn-
ai’askólans og Verzlunarskólans hafa
allir farið skemmtiferð til þingvalla
í lok námstímans.
Aðalsteinn Sigmundssou kennari
við Austurbæjarskólann efíarinnmeð
bekk úr skólanum námsferð til Fær-
eyja. Dvelja drengirnir þar viku milli
Lyruferða.
Tvö námsskeið hefjast í Austur-
bæjarskóla Reykjavíkur er almenni’i
kennslu lýkur þar, um miðjan maí
n. k. Annað er sumai'skóli fyrir böm
á aldrinum 6—14 ára. Verður þeim
kennt bæði úti og inni, lögð t. d.
áherzla á náttúi’ufi’æðikennslu úti í
náttúrunni. Sund vei’ður og kennt, í
sundlaug skólans, sem þá á að
verða tilbúin. — Hitt námsskeiðið
er fyi’ir unglinga, til undii’búnings
undir inntökupróf í menntaskóla og
gagnfnæðaskóla. — í fyrra voru
samskonar námsskeið við Austur-
bæjarskólann og urðu mjög vinsæl.
Kröfugöngur vei'kamanna í Rvík
fóru að venju fram 1. maí. Stjói’nuðu
jafnaðarmenn annai’i en kommún-
istar hinni. Glaða sólskin var og
gott veður. Engin stórtiðindi urðu og
ailt fór vandræðalaust fram.
íslenzka vikan hófst sl. sunnudag,
og iýkur henni í dag.
Prestskosning er nýafstaðin í •
Hi’aungerðisprestakalli í Ámessýslu.
Sigurður Pálsson cand. theol. var
rétt kjörinn meö 175 atkv. Sr. Val-
geir Helgason fékk 118 atkv. og sr.
þorgeir Jónsson skólastjóri 5 atkv.
17 ára gömul stúlka, Helga Jóns-
dóttir að nafni fannst örend í flæð-
ai’máli á Akureyri á mánudags-
inorguninn var. Réttari’annsókn hef-
ir staðið yfir undanfarið út af slysi
þessu.
Verkfræðingur útvarpsins, Gunn-
laugur Bi’iem er lagður af stað á
alþjóðafund um útvarpsmál, sem
haldinn er í Luzern í Sviss. þar á
m. a. að gera ráðstafanir til að
koma í veg fyrir truflanir, sem stafa
af líkum bylgjulengdum sumra út-
varpsstöðva.
Samvinnuskólanum var sagt upp á
mánudaginn var. Rúml. 56 nemend-
ur stunduðu þar nám á sl. vetri. 31
nemandi gekk undir burtfararpróf.
Kennaraskólanum var slitið 29. f.
m. 32 nemendur skólans luku kenn-
araprófi og auk þeirra 3 stúdentar
prófi í uppeldisfræði.
Flensborgarskólanum var sagt upp
sama dag. 10 nemendur luku gagn-
fræðapi’ófi.
Ungur söngvari. Einar Kristjánsson
stúdent, sem stundað hefir söngnám
í þýzkalandi, er nýkominn hingað
til bæjarins og hefir sungið hér
nokkrum sinnum. Er hann talinn
mjög efnilegur í list sinni.
Sjóslys við Austurland. Vélbátur-
inn „Friðþjófur frækni“, 7 smál., frá
Norðfirði, fórst 26. f. m. Báturinn
var gamall og er talið að vélin hafi
brotið sig niður og komið gat á bát-
inn. Fjórir menn fórust: Pétur
Sveinbjörnsson, Sverrir Sverrisson,
Guðmundur Jóhannsson frá Raufar-
höfn og Einar Einarsson bæjarfull-
tröi á Norðfirði.
Frá Rússlandi. Málshöfðun ráð-
stjórnax’innar gegn 6 brezkum verk-
fræðingum og nýfallinn dómur í máli
þeirra hefir vakið óhemju athygli um
alla Norðurálfu. Verkfræöingarnir,
sem voru í þjónustu brezks iðnfélags
og stóðu fyrir rússneskum mann-
virkjum voru ákærðir fyrir njósnir
og sviksemi í starfi sínu í því skyni
að tefja framkvæmd verksins. Ýmsir
samverkamenn þeirra . rússneskir
voi-u einnig ákærðir. Einn af brezku
verkfræðingunum játaði sekt sína,
og annar játaði í byrjun réttarhald-
anna, en tók síðar játninguna aftur
og kvað sér hafa verið þröngvað til
játningar. Hinir fjórir neituðu sök-
um þeim, er á þá voru bornar, en
Rússamir játuðu allir. Réttarhöldin,
sem voru opinber, og sótt af erlend-
um lilaðamönnum, eru mikið í’ædd
í erlendum blöðum og gefa frásagnir
þeirra fremur óglæsilega mynd af
málfæi’slunni fyrir rússneskum dóm-
stólum. — Tveir af brezku verkfræð-
ingunum voru dæmdir i fangelsi 2—3
ára, þrem vísað úr landi og einn
sýknaður, en allir Rússarnir dæmdir
í fangelsi. í mótmælaskyni hefir
brezka þingið lagt bann við innflutn-
ingi íússneskra vara í Engl^ndi. —
Mál eins og þetta hafa áður verið á
döfinni í Rússlandi, og er í-áðstjórn-
in almennt gi’unuð um að nota máls-
höfðanir þessar til að dreifa athygli
manna frá misheppnuðum áætlunum.
— En erfitt er-að vita, hvað sannast
er í þeim efnum.
Almennri þegnskylduvinnu ungi’a
manna er nú verið að koma á í
þýzkalandi. Á það að draga úr at-
vinnuleysinu og miða að því aS
venja hina ungu kynslóð við hlýðni
og heraga.
10 ítalir komu til Reykjavíkur
núna i vikunni. Ætlar ítalska stjórn-
in að senda 24 flugbáta í hóp vest-
ur um haf og fara þær norðurleið-
ina og koma við hér. Vinna ítalirnir
að undirbúningi hér, en flugvélani-
ar eru væntanlegar um næstu mán-
aðamót.
Viðskiptasamningar milli Dana og
Englendinga hafa verið undirritaðir
í London. Danski sendihen-ann í
London undirritaði samningana fyr-
ir hönd Dana en John Simon utan-
í’íkisi’áðheiTa og Runciman verzlun-
ax-málaráðherra fyrir hönd England-
inga. Danir halda 63% af svína-
kjötsmarkaði sínum í Englandi.
Forsætisráðherrar Breta og Frakka
ei-u nýkomnir vestan um haf frá við-
ræðum við Roosewelt forseta um
viðskipta- og gengismál. — Er
Roosewelt fylgjandi tollalækkun, og
vænta margir frá honum þeirra ráð-
stafana, er að haldi megi koma.
Dollai’inn er nú eins og kunnugt er
fallandi og vöruvei’ð til muna hækk-
andi fyi-ir vestan haf.
í fregnum frá Kína, er berast til
vesturlanda nú siðustu dagana er
talið, að til ófriðar dragi milli Rússa
og Japana í Austurálfu. Hafa Japanar
dregið úr liðsafla sínum í Kína og
talið, að þeir beini honum að landa-
mæra Siberíu. Rússar hafa hinsvegar
dregið saman allmikið lið og um 300
fiugvélar norðan megin landamæi’-
anna.
Vísindamaðurinn Einstein, sem er
Gyðingaættai’, og Nobelsverðlauna-
skáldið Tomas Mann eru flúnir úr
þýzkalandi. Einstein hefir verið hoð-
in professorstaða við ýmsa erlenda
liáskóla og mun nú setjast að i
París.
----o-----
„Ssmkeppnin lifi“!!
Eitt þeirra mála, sem Alþingi hefir
til meðferðar nú, er „Frumvarp til
laga til varnar óréttmætum verzlun-
arháttum". f greinargerð, er því fylg-
ir, er svo frá skýrt, að Verzlunarráð
íslands hafi séð um samningu frum-
varpsins, í samráði við ýms sérfélög
innan kaupmannastéttax’innar.
Hér verður séi’staklega vakin at-
hygli á 14. gi’. þessa frumvai’ps, sem
hljóðar svo:
„Nú hefir framleiðandi eða heild-
sali sett á vörutegund, eða uppruna-
legar umbýðir hennar, ákveðið smá-
söluvei’ð, og er þá — svo fremi til-
greint verð ekki veitir útsölumanni
ágóða, er fer fram úr 25% af inn-
kaupsverði — bannað að selja vör-
una eða bjóða fram í smásölu við
lægra verði, nerna leyfi viðkomandi
fi’amleiðanda eða heildsala eða önn-
ur heimild komi til, eða salan falli
undir 1. mgr. 5. gi’.* eða varan sé
seld notuð eða skemmd. Brot gegn
ákvæðum þessum varða sektum, allt
að 4.000 kr.“
Grein þessi taiar skýru máli. það
er tilgangurinn með henni að tryggja
* I. mgr. 5. gr. eru ákvæði um út-
sölur (skyndisölur), sem má hafa
tvisvar á ári, í mesta lagi einn mán-
uð í senn.
Kolaverzlun
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
Simn.: Kol. Reykjavlb. Síml 1881.
smákaupmönnunum minnst 25%
ágóða af þeim vörum, er þeir selja.
Komi það fyrir, að einhver verzlun
vilji gera sig ánægða með minni
álagningu, t. d. á einhverja nauð-
synjavöi’utegund, þá vilja höfundar
þessa frumvarps, að til séu laga-
ákvæði, sem gei’i mögulegt að banna
slíka nægjusemi.
Vonandi er að þetta ákvæði frum-
varpsins verði ekki lögfest á Alþingi.
En þó að kaupmannastéttin ' i
Reykjavík, sem er helzta máttarstoð
Sjálfstæðisflokksins, hafi samið þetta
frumvai’p og fengið það flutt á Al-
þingi, þá má telja alveg víst, að
Morgunblaðið, Vísir og öll önnur blöð j
flokksins, reyni enn sem fyr að halda
lesendum sinum i þeirri trú, að
frjáls samkeppni í verzlun og við-
skiptum sé eitt af grundvallaratrið-
unum í stefnuskrá Sjálfstæðismanna.
Skúii Guðmundsson.
------o-...
Ódýr skólavist.
Sérstaklega litill reyndist dvalar-
kostnaðui’ nemenda í héraðsskólun-
um. Skv. auglýsingu um Reykholts-
skólann hér í blaðinu hefir kostn-
aður nemenda allan síðastl. vetur
vérið þar aðeins kr. 320 fyrir pilta
og kr. 284 fyrir stúlkur. Svipaður er
kostnaðurinn á Laugarvatni og hin-
um öðrutn héraðsskólum. Er þarna í
innifalið fæði, hreinlætisvörur, hús-
næði og öll skólagjöld. þjónustu-
gjald er ekkert, því nemendur þjóna
sér sjálfir. — Komast unglingamir
tvimælalaust af með helmingi minni
peninga eða meira í þessum skólum
heldur en ef þeir fara til Reykjavík-
ur og stunda þar nám allan vetur-
inix. Skólarnir eru eins og stór
heimili, þar sem tilgangurinn og
takmarkið er að læra, þroskast og
eilast áður en gengið er út í lífs-
baráttuna. Æskugleði og félag_slíf er
oftast einkennandi þessi stóru skóla-
heimili, enda margir sem minnast
ætíð seinna vem sinnar þar sem
beztu stunda æfi sinnar. V.
-----o------ ■
t