Tíminn - 28.06.1933, Side 3

Tíminn - 28.06.1933, Side 3
TÍMINN 109 Nýír skólar. Nú virðist sá tími nálgast, að struamhvörf verði í fólksflutningum þjóðanna, innbyrðis. Síðustu áratugina hefir fólkið streymt án afláts úr sveitunum blómlegum og auðugum og hverskon- argæðum, til kaupstaða, borga og sjávar. Lífið á þessum stöðum hefir verið ört, eins og blóðrás fólksins og óeðlilega heitt. Menn hafa leitað fyllingar lifsins eða einhvers og einhvers. En harð- hnjóskótt, steinlögð borgastrætin hafa íótlamað marga i leitinni, svo að heimurinn hefir minnkað og ljókkað og versnað í augum ýmsra, sem lent hafa í baráttunni við borgaskítinn og örbirgðina þar. Lýðurinn hefir ráð- þrota horft á allan þann sæg fólks, sem þyrpst hefir til sjávar, borga og L>æja. En sveitirnar hafa sáralitið heimt aftur aí fólki sínu. þangað til nú. Skýrslur frá öðrum löndum, t. d. Norður-Aineríku, lierma, að nú þyrp- ist fólk aftur til sveitanna í liundruð þúsundatali eða jafnvel miljónum saman á skömmum tíma. þegar fólkið fer almennt að „hverfa aftur til jarðarinnar", verða sveitirnar að gera ráð fyrir nýjum kröftum frá nýju fólki. Ef til vill eldar fyrir þeim tima, að straumur- inn beri fólkið aftur i faöm sveit- anna íslenzku. Menn, sem gera ráð iyrir þessari breytingu í framtíðinni, sjá nauðsyn þess að bæta menning- arleg skilyrði sveitanna. Hefir þegar verið hafizt handa með stofnun ung- mennaskóla og héraðsskóla, og virð- ast stofnanir þessar eiga almennum vinsældum að fagna. En barnafræðsla sveitanna situr enn á hakanum, mjög víða. Skólahús góð og einnig sæmilegan aðbúnað hefir vantað, samkvæmt kröfum nýja tímans. Ef sveitaböm fengju jafnan námstima móti kaupstaðabömum er það líklegt, að sveitirnar ælu upp enn betra fólk og hæfara í lífsbarátt- unni en nú gerist, þvl að þar er nátt- úran sjálf hinn mikli hjálpari og ágæti kennari. Nýlega hélt Aðalsteinn kennari Eiriksson útvai’pserindi um fræðslu- mál sveitanna. þar er brugðið upp nýjum myndum til framkvæmda á þessu sviði og ræddar af miklum skilningi þær kröfur, sem gera þarf^ og bent á ýmsa möguleika til þess að fullkomna skólakerfi sveitanna með. almenna henningu, andlega og verklega, fyrir augum. Hefir Aðalsteinn með stuðningi fræðslumáfastjómar látið gjöra teikn- ingu af skólahúsi, sem fullnægi kröf- um tímans. það á að vera heima- vistarskóli, s.em um íeið er menning- arheimili sveitarinnar á flestum svið- um. þar eiga að vera vinnustofur og tæki, til þess að fullkomna handa- vinnu og heimaframleiðslu, ennfrem- ur gert ráð fyrir garðyrkjunámi, íþróttanámi o. fi. í sambandi við skóla þessa. Aðalsteinn gerir ráð fyrir því, að sveitir gætu mjög létt undir byggingu svona skóla með því að leggja fram sjálfboðavinnu við að- flutning efnis og við að byggja skrokk hússins t. d. úr steinsteypu. Siðan tækju þá fagmenn við. Skólahugmynd þessi hefir vakið at- iiygli Munu nokkrar sveitir þegar liafa tekið málið til rækilegrar at- hugunar og einhverjir hefjast handa til bygginga á þessu sumri. Vil ég benda mönnum á að fylgjast vel með þessum orðum og spyrjast fyrir um möguleika til þess að koma svona skólum upp. Væri æskilegt, að Aðal- steinn ætti kost á því að kynna hug- mynd sína betur fyrir þeim, er áhuga hafa fyrir málum þessum. Fræðslu- málastjórnin gerir vafalaust sitt til að svo verði. Gunuar M. Magnúss. -----o---- Rit Nemendasambands Laugar- vatnsskóla, sem nýkomið er út í til- efni af 5 ára starfi skólans, er hin eigulegasta bók. Allir vinir æskunn- ar í sveitum landsins þurfa að eign- ast hana. Rits þessa og nemenda- móts Laugarvatnsskóla, sem nú er nýafstaðið, verður nánar getið í næsta blaði. Samvinna og kommúnlsmi, eftir Jónas Jónsson frá Hriflu, sérprentun úr Samvinnunni, er í dag seld á göt- unum í Reykjavík, og fæst á af- greiðslu Tímans Laugaveg 10, Flemtri miklum vii"ðist hafa slegið á komm- únista við útkomu þeaaa rita. L Jón Hannesson bóndi í Deildartungu, frambjóðandi Framsóknarflokksins í Borgarfjarðar- sýslu, er fyrir löngu svo kunnur al- menningi, að óþarft er að kynna liann frekar. Varla eru þau störf til í sveitar og héraðsmálum, að Jón ha.fi ekki gegnt þeim í lengri og skemmri tíma. Oddviti sveitar sinn- ar um langt skeið, ýmist í stjórn eða endurskoðandi Kaupfélags Borgfirð- inga fjöldamörg ár, hefir verið fast- eignamatsnefndarformaður sýslunnar, setið á Búnaðarþingi sem fulitrúi Borgfirðinga undanfarið. Búinn að vera formaður Búnaðarsambands Borgfirðinga fjöldamörg ár o. fl. o. fl. þegar á að velja einn Borgfirðing í eitthvert áríðandi trúnaðarstarf fyrir almenning, er sjaldan gengiö fram hjá Jóni i Tungu. Ekki er þetta þó af því að Jón sé að ota sjálfum sér fram. Hann er fremur fáskiptinn við fyrstu kynningu og lætur litið á sér bera, svo ýmsir telja honum það til frádráttar. Jón Hannesson er ósvikinn íslenzkur bóndi og alþýðu- maður í bezta skilningi. Hann hefir lengi l)úið einu stærsta búi, sem liér á landi gerist, en hann hefir samt ekki hætt að vinna. þrátt fyrir stór- an búrekstur og óhemju annríki fyrir almenning vinnur hann með fúlki sínu að jafnaði, með hinu mesta kappi og hlífir sér sjálfum ekki í erfiðari verkin. það hefir heldur aldrei hlaðizt neinn múr á ihilli Jóns og þjónustufólks hans eins og stund- um vill verða, þegar mönnum finnst þeir vera komnir eitthvað upp fyrir almenning og þykjast eiga að sýna á sér yfirstéttarsvip. það er eins og sumum finnist þeir endilega til- lieyra einliverjum félagsskap fyrir ofan almenning, ef þeir eignast nokk- uð margar ær eða kýr, eða jafnvel þó að þeir komizt ekki nema inn fyrir búðarborðið í einhverri kaup- mannsholunni. En Jón Hannesson hef- ir fastmótaða frjálsiynda lífsskoðun, enda alltaf öi’uggur Framsóknar- maður, og þurfa menn hvorki að ótt- ast naglalega þröngsýni af honum né að hann stingist í vasa yfirstéttar- innar í Reyltjavík. það væri sómi fyrir bændur og. aðra alþýðumenn í Borgarfirði að senda Jón í Deildartungu á Alþing. Kvæntur er Jón Sigurbjörgu Björns- dóttur úr Skagafirði, gáfaðri og merkri konu. Eiga þau mörg börn efnileg. V. G. ---0---- Utanfarasjóður Eíðaskóla. Á Eiðamótinu 1929 var borið fram og einróma samþ., að efnt skyldi með frjálsum framlögum til stofnunar sjóðs, sem liéti Utanfarasjóður Eiða- skóia. Og hefði hann það hlutverk að styrkja til utanfarar áhugasama hæfi- leikamenn, er hefðu lokið námi á Eiðum. í framsögu málsins var þess getið, að slík sjóðsstofnun væri viðeigandi, starfandi minning um þúsund ára af- mæli Alþingis, þeirrar stofnunar, sem á blómaskeiði sínu vann meðal annars hvorttveggja til ágætis, að íull- nægja útþrá æskulýðsins og styrkja heimþrá hans og starfslöngun. En þeir þættir skyldu nú megin uppistaða í starfi alþýðuskólanna. — þá þegar safnaðist í sjóðinn talsverO fjárhæð. En síðan hafa fjárhagsástæður haml- að vexti hans. Annar sjóður, eldri og stærri, á nú þegar merkan þátt í sögu Eiðaskóla. það er Nemendasjóðurinn, sem er jal'naldri alþýðuskólans og hefir verið svo studdur af nemendum skólans og öðrum hollvinum, að í mörg ár hefir hann með hagstæðum lánum styrkt til námsvistar fjölda nemenda, sem annars hefðu átt örðugt úrkosta eða orðið að hverfa frá námi í skólanum. En sömu orsakir, sem stemmt hufa stigu fyrir vexti Utaníarasjóðsins hafa einnig komið niður á Nemendasjóðn- um. þvi þykir ástæða til þess nú, að vekja atliygli allra vina Eiðaskólans á því, að þessir tveir sjóðir eru eitt bezta fjárhagslegt athvarl fátækra nemenda á erfiðum tímum, og er þá gert ráð fyrir að Utanfarasjóðurinn gangi til liðs við Nemendasjóðinn, meðan kjörin heima fyrir eru sem kröppust. — Nú er hátíðaár Eiða. þar hefir skóli verið í hálfa öld. þess |Góð plata Ier bezta ánægjan ekki sízt á sumrin. 4 plötur ókeypis (25 cm) Ibjóðum við að senda yður þegar þér kaupið 6 plötur, og sendum við hverjar 10 plötur burðargjaldsfritt. Skilyrði fyrir kaupbæti þess- um eru, að 5 kr. fylgi hverri pöntun og að við höfum með- tekið hana íyrir 1. ágúst n. k. IÚtvarpinu höfum við eða út- Öli lög, sem þið heyrið i vegum. Utanáskrift: HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ Bankastræti 7, Reykjavík. Sími 3056. Símnefni HÍjóðfærahús. > Verðlistar sendir ókeypis! Ný bók. Sigurður Helgason: Svipir. Reykjavík 1932. það virðist svo sem -allur fjöldi ís- lendinga kunni lítt að meta aðrar bók- menntagreinir skáldskapar en ljóð og skáldsögur (Romaner) — sem jafn- framt eru einskonar æfisögur sögu- persónanna. Enn skortir allan fjöldann skilning á gildi smásögunnar (No- velle) — smámyndum, sem brugðið er upp af því, hvernig menn bregðast við ytri atvikum, og leiða þannig i ljós skapferi’i sitt. Fólk dæmir oft smá- söguna á þá leið, „að það sé engin saga“, „hún sé svo endaslepp" o. s. frv. þetta kemqr al' þeim misskilningi, að sú krafa er gerð til smásögunnar, að liún sé æfisaga, sem auðvitað nær ekki neinni átt. það er sennilega af þessum ástæð- um að þegja á í hel jafn athyglis- verða byrjendabók og „Svipi“ Sigurð- ar Helgasonar. Ég hefi aðeins séð hennar lítillega minnst í einu tímariti. Hitt þykist ég viss um, að allir þeir, sem eitthvað skyn bera á þessa hluti séu sammála um, að margar sögurn- ar í bókinni séu svo laglega sagðar, að ástœða sé til að hvetja höf. að láta ekki hugfallast, heldur halda áfram. Mannlýsingar eru víða góðar í sög- unum og glöggur skilningur á sani- bandi því, sem er á milli sálfræðilegra • eiginda og þess, hvernig mönnuin farnast í lífinu. I ýair þetta sér vel i sögunni <(Torfi“, sem er að sumu leyii frumlegasta sagan í bókinni. „Hjón“ er og prýðilega sögð smásaga, þó liún sé dálitið ýkjakennd. Viða eru og glöggar iýsingar, sem sýna, að höf. athugar vel það, sem fyrir augu ber. Má í því sambandi nefna lýsing- una á sjóferðinni i sögunni. „Skuggi þess liðna", sem er ágæt. Góðlátleg glettni kemur frarn í sumurn sögun- um, eins og „Urðardómi" og „Milli sviga" og gerir þær skemmtilegar af- lestrar. Ég ætla ekki í þessum línum að gera lilraun til að hártoga ýms atriði í bókinni. þó get ég ekki stillt mig um að nefna eitt — meira vegna höf. en lesendanna. Yfirleitt virðast karl- mennirnir í sögunum vera huglausar rolur og bera nokkurn svip hver af öðrum að þessu leyti, að undantekn- um sjómönnunum. þeir eru hinir vöskustu i hverri raun. — Konurnar eru aftur á móti dugmiklar. Ilér skal staðar numið. þeir sem liafa ánægju af að lesa vel sagðar smásög'ur, eiga að lesa bókina. Og eftir lesturinn vona ég að það verði fleiri en ég, sem vænta meira af höfundinum. Eiríkur SigurSsson. er minnst af hálfu Eiðasambands- ins, svo sem getið hefir verið um. þess mun jafnframt mega vænta, að sjóðum Eiðaskóla berist á afmælis- árinu venju fleiri vinarkveðjur. Tillögum veita móttöku, auk skóla- stjórans Jakobs Kristinssonar, Jó- hannes Arngrímsson skrifari, Seyðis- firði, úngfrú Svafa Stefánsdóttir, kennari, Oddagötu 1, Akureyri, Ásm. Guðmundsson, háskólakennari, Lauf- árveg 75, Reykjavík, og undirritaður Guðgeir Jóhannsson. Bergstaðastræti 81, Reykjavík. Skrifstofa Framsóknarflokkslns er á Laugaveg 10. Sími 2353. Deeriníí rakstrarvélar. Mikilsverðasta nýjungin, á sviði heyvinnuvélanna, sem hér hefir verið reynd á síðustu árum, eru hinar nýju Deering rakstrarvélar méð stítum tindum. Þær eru nú notaðar á nokkrum tugum heimila víðsvegar um land, og eiga tvímælalaust skilið sömu útbreiðslu eins og sláttuvélarnar. Samband ísl. samvinnufélaga. Höfvtsn tils dælur til að dreifa blásteinsblöndu yfir jarðeplagarða til varnar gcgn jarðeplasýkinni Fáum ennfrem- • ur duft sem notað er í sama tilgangi. Samband isl. samvinnufélaga P.WJacobssn&Sön Timburverzlun. Símnefni: Granfuru. Carl Lundagade Stofnað 1824. Köbenhavn. Afgreiðum frá Kaupmannahöfn báeði stórar og litlar pantanir og heila skipsfarma frá Svíþjóð. Síb og umboðssalar anuast pantanir. EIK OG EFNI í ÞILFAB TIL SKIPA. ri st í: rrmssasmmzsmasmisizssmssismmaasm Kosningar í Danzig. Samkvæmt friðarsamningunum var Danzig gerð að sérstöku fríríki, en áður hafði hún verið tilheyrandi þýzkalandi. Var það gert með tilliti til Pólverja. þoir eiga aðeins litla landsspildu, sem nær að sjó, sem þá var hafn- laus, en Danzig er, sem kunnugt er, einn stærsti hafnarbærinn við Eystra- salt. — En samkomulagið milli Ðan- zigbúa og Pólverja hefiV aldrei verið gott. Hefir það því auk annars leitt lil þess, að Póiverjar hafa með ærn- um kostnaði komið sér upp höfn, á landi því, sem þeir eiga og smátt og smátt liefir náð í mikinn hluta þeirra viðskipta, sem Danzig hafði áður. Er nú þar sem áður var eyðileg strönd, risin upp á skömmum tíma stór og myndarlegur hafnarbær, sem heitir Gdynia. þetta hefir leitt til enn meiri úlfuðar milli Danzig og Póllands, því afleiðingarnar hafa ver- ið stórum aukið atvinnuleysi í Dan- zig, og er nú svo komið, að af 400 þús. íbúurn cru þar 40 þús. atvinnu- leysingja. Nazisminn hefir því átt góð gróðrarskiiyrði í Danzig. Vi5 minnkandi atvinnu, sem fæðir af sér allsleysi og örvæntingu hefir ofríki Pólverjanna bætt. þar að auki stend- ur Danzig i nánu sambandi við jiýzkaland og þýzkra áhrifa gætir þar mjög, enda fór þar svo við seinustu Super-X fjárbyssu og riffla skot eru 50% kraftmeiri en venjuleg skot. Reynið Super-X skotin. — Verð 3,00 pr. 100 stk. MAUSER-fjárbyssur á kr. 25,00. Rifflar 60 cm. hlaupl. kr. 30,00. Sportvöruhús Reykjavíkur Reykjavík. kosningar, sem fóru fram nú ný- verið, að Nazistar unnu meirihluta þingsætanna. Rætist þar þá við eitt svartliðaríkið í Evrópu, ef ekki verð- nr af sameiningu við þýzkaland. Innflutningurinn. Fyrstu 4 mánuði ársins liefir verðmæti innfluttrar vöru numið 10.2 milj. kr. Er það 1.1 milj. kr. meira en í fyrra, eða 13%. Inn- flutningurinn á þessum tima verið 0,5 milj. kr. meiri en innflutningur- innn. Innflutningurinn til Reykjavík- ur er hlutfallslega minni nú, en í fyrra, eðu 60% af öllum innflutningn- um, en var í fyrra 74%.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.