Tíminn - 01.07.1933, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.07.1933, Blaðsíða 1
XYIL árg. Reykjavík, 1. júlí 1933. 31. blað. Árið 1933, fimmtudaginn 15. júní, kl. 2 e. h. var aðalfundur Sambands íslenzkra samvinnufé- laga settur í samkomuhúsinu Skjaldborg á Akureyri af for- manni Sambandsins, Ingólfi Bjarnarsyni alþingism. í Fjósa- tungu. Formaður bauð fundar- menn velkomna og gat þess, að Sigurður Kristinsson forstjóri gæti ekki, sökum veikinda, mætt á fundinum, fyrr en síðar, og ennfremur vantaði marga full- trúa, sem ókomnir væru til bæj- arins. Mættir voru á fundinum allir stjórnai-nefndarmenn S. I. S., þeir: Ingólfur Bjarnarson, alþm. í Fjósa- tungu. Sigurður Bjarklind, kaupfélags- stjóri á Húsavik. þorsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri á Reyðarfirði. Sigfús Jónsson, kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki. Einar Árnason, alþm. á Eyrarlandi. Formaður stakk upp á þrem mönnum í kjörbréfanefnd og hlutu kosnigu: Vilhjálmur þór, Akureyri. Björn Hallsson, Rangá. Sigurður Jónsson, Amarvatni. Var þá gefið hálftíma fundar- hlé. Að því loknu gerði Vilhjálm- ur Þór grein fyrir störfum nfend- arinnar. Lagði nefndin til, að all- ir mættir fulltrúar, 36 að tölu, fengju rétt til að sitja fundinn sem gildir fulltrúar, þrátt fyrir það, þó eigi hefði verið hægt að koma á fundum í sumum deildum af óviðráðanlegum orsökum og þó þess hefði ennfremur eigi ver- ið gætt í sambandsdeildunum, að þeir menn, sem eru í tveim eða fleiri félögum, eiga að tiltaka, hvaða félög þeir vilja láta fara með umboð sín á fundum S. I. S. Tillaga nefndarinnar var sam- þykkt með ölluxn atkv., og eru þá þessir fulltrúar mættir sem löglegir fundarmenn: 1. Frá Kf. Stykkishólms: Sigurður Steinþórsson, kaupfélagsstjóri, Stykkishólmi og Jón Steingríms- son, sýslumaður, Stykkishólmi. 2. Frá Kf. Hvammsfjarðar: Bjarni Jensson, Ásgarði. 3. Frá Kf. Saurbæinga: Guðmund- ur Theodors, Stórholti. 4. Frá Kf. Króksfjarðar: Jón Ólafs- son, Króksfjarðarnesi. 5. Frá Kf. Steingrimsfjarðar: Jóna- tan Benediktsson, Hólmavík. 6. Frá Kf. Ilrútfirðinga: Kristmund- ur Jónsson, Borðeyri. 7. Frá Kf. Vestur-Húnvetninga: Hannes Jónsson, Hvammstanga. 8. Frá Sláturfélagi Austur-Hún- vetninga: Runólfur Björnsson, Iíornsá. 9. Frá Vf. Vindhælinga: Ólafur Bjömsson, Árbakka. 10. Frá Kf. Húnvetninga: Bjarm Jónasson, Blöndudalshólum. 11. Frá Kf.. Skagfirðinga: Sigurður þórðarson, Nautabúi og Pétur Sighvats, Sauðárkróki. 12. Frá Slf. Skagfirðinga: Sigurður Björnsson, Veðramóti. 13. Frá Kf. Fellshrepps: Tómas Jónasson, Hofsós. 14. Frá Kf. Fljótamanna: Hermann Jónsson, Haganesvík. 15. Frá Kf. Siglfirðinga: Vilhjálmur Hjartarson, Siglufirði. 16. Kf. Eyfirðinga: Vilhjálmur þór, Akureyri, þórarinn Eldjárn, Tjörn, Hólmgeir þorsteinsson, Hrafnagili, Ingimar Eydal, Akur- eyri, Stefán Stefánsson, Varðgjá, Einar Árnason, Eyrarlandi, Bern- harð Stefánsson, Akureyri, Berg-. steinn Kolbeinsson, Kaupangi. 17. Frá Kf. Svalbarðseyrar: Sigurð- ur Sigurðsson, Halldórsstöðum. 18. Frá Kf. Suður-þingeyinga: Sig- urður Jónsson, Arnarvatni, Sig- urður Bjarklind, Húsavík, Karl Kristjánsson, Eyvík. 19. Frá Kf. Norður-þingeyinga: þór hallur Björnsson, Kópaskeri. 20. Frá Kf. Langnesinga: Karl Hjálmarsson, þórshöfn. 21. Frá Kf. Vopnfirðinga: Ólafur Methúsalemsson, Vopnafirði. 22. Frá Kf. Héraðsbúa: Björn Halls- son, Rangá, Erlingur þ. Sveins- son, Víðivöllum. Ennfremur mættur framkv.stj. Jón Árnason. 1 sambandi við samþykkt full- trúatölu var eftir tillögu kjör- bréfanefndar samþ. í einu hljóði svofelld yfirlýsing: „Fundurinn ákveður, að framvegis skuli sambandsdeildir, sem eigi leggja fram með kjörbréfi skrá um þá félagsmenn, sem veita félaginu rétt til fulltrúakjörs, eigi öðlast rétt til nema eins fulltrúasæti® á aðal fundi S. í. S. Jafnframt endurtekur fundurinn þá ályktun aðalfundar S. í. S. 1931, að stjórn S. í. S. láti prenta eyðu- blöð fyrir kjörbréf og sendi hverri sambandsdeild". Kosning fundarstjóra: Sigurður Bjarklind kaupfélags- stjóri, Húsavík, kosinn fundar- stjóri í einu hljóði. Kosning fundarritara: Fundarstjóri kvaddi til fundar- ritara þá Hólmgeir Þorsteinsson og Karl Kristjánsson, ásamt Sveini Jónssyni starfsmanni K. E. A., er ráðinn var til að færa til bókar. Var þá gengið til dagskrár þannig: 1. Nefndakosningar: A. Reikninganefnd: Kosningu hlutu: Sigurður Jónsson, Amar- vatni með 24 atkv., Björn Halls- son, Rangá með 24 atkv., Vilhj. Þór með 22 atkv., Sigurður Stein- þórsson með 16 atkv., Jón ólafs- son með 15 atkv., Hannes Jóns- son með 15 atkv., Jakob Líndal með bundinni kosningu milli hans og ólafs Methúsalemssonar, með 22 atkv. B. Ferðakostnaðarnefnd: Jón Ólafsson, ólafur Methúsalemsson og Stefán Stefánsson. 2. Skýrsla formanns: Formaður stjórnar S. 1. S., Ingólfur Bjarnason, gerði grein fyrir helztu framkvæmdum, er stjórnin hefði haft með höndum á liðnu ári. Hafði stjómin, í fé- lagi við K. E. A. keypt 3 frysti- hús sitt á hverjum stað á land- inu, til þess að tryggja aðstöðu til frystingar á kjöti og beitusíld. 3. Skýrsla framkvæmdastjóra útf lutningsdeildar: Jón Árnason hóf þá flutning mjög rækilegrar og fróðlegrar skýrslu um afurðasöluna s. 1. ár. En kl. 7 var fundi frestað til næsta dags og um leið framhaldi af skýrslu framkvæmdastjórans. Var kvöldfundur ekki haldinn, af því að Ræktunarfél. Norðurlands hafði boðið fundarmönnum að skoða tilraunastöð sína þetta kvöld. Föstudaginn 16. júní kl. 9 ár- degis var fundur settur að nýju á sama stað og áður. Var þá mættur fulltrúi frá Kf. Húnv., ! Jón Jónsson í Stóradal. Flutti nú Jón Árnason framh. ! skýrslu sinnar um sölu ísl. vára og gerði grein fyrir hinum marg- liáttuðu örðugleikum, er við hafði verið að stríða í þessum efnum ! s. 1. ár. Jafnframt skýrði hann i fyrir fundinum viðhorf til vöru- j sclunnar nú. Taldi hann ekki j miklar líkur til að kreppunni ; mundi létta fyrst um sinn, þó hinsvegar væri ekki vonlaust um, að verð ísl. landbúnaðarafurða, einkum ullar og kjöts, kynni eitt- hvað að hækka á þessu ári frá því, sem verið hefði á síðasta ári. í sambandi við þetta sagði hann ítarlega frá gildandi viðskipta- samningum íslendinga við Norð- menn og Breta, en við þá samn- ingsgjörð. hafði hann verið fyrir hönd íslenzka ríkisins. Taldist framkv.stj. svo til, að ef notuð væru fyllilega þau kjötinnflutn- ingsleyfi til þessara þjóða, er nú eru fyrir hendi, mætti flytja til Noregs í næstu kauptíð um 100 þús. skrokka og til Bretlands um 60 þús. skrokka, en út þyrfti að flytja, ef að venju léti, um 200 þús. skrokka. Líkur væru til þess eftir reynslu undanfarinna ára, að selja mætti til Danmerkur og Svíþjóðar svo mikið kjöt, að á- stæða væri til að ætla, að hægt yrði að verzla utanlands á næsta hausti því kjötmagni, er nauðsyn krefði. Árið 1932 hafði S. 1. S. alls selt innlendar vörur fyrir 4,4 miljónir króna. Öll var skýrsla framkvæmda- stjórans hin ítarlegasta, enda þökkuðu fundarmenn hana með lófataki. Þegar hér var komið, mætti fulltrúi Kf. Hallgeirseyjar, Ágúst Einarsson frá Miðey. . .4. Umræður um skýrslu f r amk væmdast jóra. Þá hófust umræður og fyrir- spurnir út af skýrslu framkv.stj. útflutningsdeildar og tóku marg- ir til máls. Eftir tillögu Jóns Árnasonar var skipuð 9 manna nefnd, til þess að semja álit og tillögur um kjötsölu Sambands- ins eftirleiðis og leggja síðar fyr- ir fundinn. Þessir menn voru skipaðir í nef ndina: Þorsteinn Jónsson, Reyðarfirði, Þórhallur Björnsson, Kópaskeri, Karl ICristjánsson, Eyvík, Sigurð- ur Þórðarson, Nautabúi, Vilhj. Þór, Akureyri, Hannes Pálsson, Undirfelli, Jón ólafsson, Króks- fjarðarnesi, Sigurður Steinþórs- son, Stykkishólmi, Ágúst Einars- son, Miðey. Með nefndarskipuninni lauk umræðum um kjötverzlunina í bili. öllum fyrirspúrnum, er beint var til framkvæmdastjórans út af skýrslu hans og starfi, svar- aði hann rækilega og greiðlega. 5. Klæðaverksmiðjan Gefjun. Verksmiðjustjóri Jónas Þór hóf umræður um rekstur verk- smiðjunnar. Minntist hann þess tjóns, er verksmiðjan hefði beð- ið s. 1. vetur, er skrifstofan, á- samt vinnsluefnisgeymslu hefði brunnið. Taldi hann nauðsyn á, að komið yrði upp kamgarnsvél- um vegna fínni dúkagerðar. Gat hann þess, að mjög hefði verið aukin dúkavinnslan eftir brun- ann, til þess að bæta tjónið og fullnægja eftirspurn. Nú á 4 mánuðum væri búið að vinna um 10 þús. metra dúka, eða svipað og allt árið 1929. Með sama hraða mætti vinna allt að 30 þús. m á ári, ásamt aukinni lopavinnslu, og þá um leið lækka vinnslu- gjald til muna. Var þá gefið fundarhlé til kaffidrykkju og til þess að gefa fundarmönnum færi á að skoða verksmiðjuna og vélarnar. Kl. 5 byrjaði fundur að nýju. Komu þá fram ýmiskonar fyrir- spurnir viðvíkjandi verksmiðju- starfseminni, og svaraði verk- smiðjustjórinn þeim greiðlega. Að lokum var samþykkt í einu hljóði að heimila stjórn S. 1. S. að koma upp kamgarnsvinnslu- vélum til aukningar Gefjunni og kosta til þess þeirri fjárhæð, er nauðsyn krefur. 6. Gæruverksmiðjan. Verksmiðjustjóri Þorsteinn Davíðsson talaði um gæruverkun og starfsemi verksmiðjunnar. I-agði hann áherzlu á að vanda þurfi meðferð gæra, frá því þær eru flegnar af kindunum og þar til þær eru komnar til verksmiðj- unnar, rista rétt fyrir, rífa ekki í fláningu, þvo blóð úr og hreinsa sem bezt innan skinnið, salta vandlega og helzt í stafla og binda síðan 10 st. í búnt og flokka eftir stærð og lit. Taldi hann, að líkur væri til að hægt væri að fá hæst verð fyrir vel hvítar gærur, ef þeim væri hald- ið út af fyrir sig. Þá talaði hann nokkur orð um sútun skinna. Taldi hann, að öll efni til að súta skinn þyrfti að kaupa frá útlöndum, og yrði sút- unin að vera verksmiðjuiðnaður, en aftur á móti gæti vinnslan úr hinum sútuðu skinnum, svo sem skógerð og söðlasmíði, orðið að einhverju leyti heimilisiðnaður. Ekki taldi hann, að þörf væri fyrir meira en eina litla sútunar- verksmiðju í landinu eins og sak- ir stæðu, af því ekki væru líkur til að það mundi svara kostnaði að súta skinn til útflutnings. Nokkrar umræður urðu um þessi mál, og gerði framkv.stj. Jón Árnason grein fyrir ýmsu, er gert hefði verið og gera ætti í komandi tíð fyrir þau. Engar tillögur voru fram bornar. Var þá fundi lokið þenna dag. Laugard. 17. júní kl. 10 f. h. komu fundarmenn saman á sama stað og áður, en sökum þess að forstjóri Sig. Kristinsson var enn ókominn vegna seinkunar á komu Dettifoss, var fnudi frestað til kl. iy2 e. h. Á tilteknum tíma hófst fundur að nýju. Var þá mættur forstj. S. I. S., Sigurður Kristinsson og einnig skólastjóri Samvinnuskól- ans, Jónas Jónsson. Ennfremur þessir fulltrúar: Frá Kf. Rauð- sendinga: ólafur Þórarinsson. Frá Kf. önfirðinga: Magnús Guðmundsson. 7. Samvinnuskólinn. Skólastjórinn, Jónas Jónsson, gaf glögga skýrslu um starfsemi skólans s. 1. vetur. Hafði skólinn starfað með svipuðu sniði og vet- urinn áður, og viðlíka aðsókn, þrátt fyrir aukna örðugleika manna til skólagöngu vegna vax- andi fj árhagskreppu. 8. Tímaritið „Samvinnan“. Ritstjóri þess, Jónas Jónsson, ■gaf ítarlega skýrslu um tímarit S. í. S. „Samvinnuna“ og gat ýmsrar nýbreytni í ritgerðum og efnisvali, er nú stæðu fyrir dyr- um og væri að hefjast. 9. Kjötverzlunin. Nú hafði nefnd sú, er skipuð var í kjötsölumálinu, lokið störf- um, og hafði Þorsteinn Jónsson orð fyrir nefndarmönnum. Ilafði nefndin orðið sammála, nema um eina tillögu. Þar hafði hún klofn- að, og lagði minni hlutinn, Sig- urður Þórðarson og Vilhjálmur Þór, fram breytingartillögu með greinargerð. Eftir allítarlegar umræður voru tillögur nefndarinnar bornar undir atkvæði þannig: „A. Fundurinn skorar á deildir S. I. S. að láta ekki undir höfuð leggjast að sækja til ríkisstjórnar- innar um kjötútflutningsleyfi fyrir lok júlímán. n. k., svo sem lög mæla fyrir um. Telur íundurinn rétt, að deildirnar sendi umsóknir sínar til framkvæmdarstjórnar S. í. S., en stili þær þó að. sjálfsögðu til ríkis- stjórnarinnar". Tillagan samþ. í einu hljóði. „B. Fundurinh skorar á fram- kvæmdastjóra deilda S. í. S. að gera að nýju fyrir lok ágústmán. n. k. rækilegar áætlanir um kjötútflutn- ingsþörf deilda sinna, miðað við næstu liaustkauptíð, og tilkynna framkvæmdastjórn S. í. S, tafarlaust áætlanirnar". Tillagan samþ. í einu hljóði. „C. Fundurinn telur eðlilegt og nauðsynlegt, vegna væntanlegra tak- markana á útflutningsleyfum á kjöti, að framkv.stj. S. í. S. gefi þeim sambandsdeildum, sem aðstöðu liafa til kjötfrystingar, bendingar um það fyrir næsta haust, hve mikið sé ráðlegt fyrir hyert félag að frysta af kjöti, og hve mikið að salta í næstu haustkauptíð". Tillagan samþ. í einu hljóði. „U. Strax að lokinni kauptíð, og aldrei seinna en 25. okt. ár hvert, skulu sambandsfélög þau, sem relca slátrunarstarfsemi, eða taka kjöt til útílutnings eða heildsölu innan- lands frá félagsmönnum sínum eða öðrum, tilkynna framkvæmdarstjórn Sambandsins nákvæmlega, hve mik- ið kjöt þau hafa til sölu. þegar fé- lögin hafa framvísað kjöti sinu til sölu á þennan hátt, mega þau ekki ráðstafa þvi til sölu eða afhenda það öðrum, nema með samþykki sam- bandsstjórnar, enda ber S. í. S. ekki skylda til að taka meira kjöt til sölu, en framvísað liefir 'verið". Tillagan samþ. í einu hljóði. „E. Fundurinn lítur svo á, að eðli- legt sé og hagíelldast fyrir sam- bandsfélögin, að þau láti S. í. S. annast sölu á öllu því kjöti, sem þau selja út af félagssvæði sínu. Ákveður fundurinn, að ef félögin selja sjálf í kauptíðinni kjöt í heild- sölu utan síns félagssvæðis, þá skuli þau haga svo sölunni, að ekki verði öðrum sambandsfélögum eða S. I. S. til tjóns eða óþæginda, enda hlýti þau verðákvæðum framkvæmdar- stjórnar S. í. S. og tilkynni henni söluna strax". Tillagan samþykkt með 24 at- kvæðum móti 1. Þessi síðastgreinda tillaga var sú, er ágreiningur hafði orðið um í nefndinni. Fer hér á eftir breytingartillagan, er minni hluti nefndarinnar bar fram ásamt greinargerð, en tillagan var felld með 17 atkv. gegn 13. Greinargerð: „Viðvíkjandi innan- landssölu sambandsdeilda S. I. S. á kjöti, getum við ekki verið sammála meðnefndarmönnum okkar. Við lít- um svo á, að heppilegast sé og í beztu samræmi við stefnu og starf- semi samvinnuhreyfingarinnar > landinu, að Sambandið annist um Framh. á 4. síðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.