Tíminn - 12.08.1933, Síða 1

Tíminn - 12.08.1933, Síða 1
XVIL ái* *. Reykjavík, 12. ágúst 1938 38. blað Svarta hættan „— — Hann (Mussolini) bjargaði þjóð sinni frá tvo- földum háska: Frá kyrkingartökum kommúnista og frá spillingu og ábyrgðarleysi þingræðisins —------- og hanu sýndi mönnum fram á, að þjóðlífið er dýrmætara on líf einstaklingsins. Facisminn byggir á framtíð þjóðarinnar en ekki einstaklingsins, því að þjóðin lifir, þóti einstakl- ingarnir f;\Ui frá. — — Gæfusöm er sú þjóð, sem ; eignast slikan ícringja á vandræðatímum". (Allar letur- breytingar Tímans). ' (Morgunblaðið 8. ágúst 1933). j Ummælin, sem prentuð eru hér að framan, eru, eins og tilvitn- unin ber með sér, tekin upp úr Mbl. núna í vikunni. Af hverju eru þessu ummæli eftirtektar- verð? Mbl. er að vísu ómerkilegt blað' og nýtur lítillar virðingar. En flokkurinn, sem gefur út þetta blað, hefir fengið 20 þing- menn kosna inn á Alþingi. Hann hefir, að vísu vegna lélegrar kjör- sóknar annara, fengið 48% greiddra atkvæða. Þessi flokkur, íhaldsflokkurinn, keppir að því að ná meirahluta og landsstjórn við næstu kosningar. Og þess vegna er full ástæða til að taka eftir. Því að blað íhaldsflokksins er með. þessum orðum að flytja landsfólkinu nýjan boðskap. Greinin, sem ofangreind um- mæli standa 1, er birt í tilefni af 50 áz’a afmæli hins ítalska ein- valdsherra. Hún er ómengaður boðskapur svartliðanna í Italíu og Þýzkalandi. Hún er lofgerð um afrek ítalska fascistaflokks- ins, sem hafi bjargað þjóðinni þar frá kommúnismanum og þingræðinu! Ménn taki eftir því, að þessar tvær stjórnaraðferðir, kommúnisminn og þingræðið, eru hér nefndar hlið við hlið og lag^- ar að jöfnu í blaði hins íslenzka „Sjálfstæðisflokks“! En þess er ekki minnst, hvað þessi útrýming kommúnismans og þingræðisins hafi kostað í Italíu. „Líf þjóðar- innar er dýrmætara en líf ein- staklingsins“. Þannig farast Mbl. orð. l Hvað er hér að gerast? Á því geta menn glöggvað sig bezt með því að rif j a upp og kynna sér al- menn ummæli íslenzkra blaða (og Mbl. líka) fyrstu árin eftir að byltingin brauzt út í Ítalíu. Menn geta sömuleiðis kynnt sér þær greinar, sem á undanförnum árum hafa verið birtar hér í landi um Nazistaflokk Hitlers í Þýzkalandi. Þá kvað við í öðrum tón en í Mbl. nú. Það er ekki oí- mælt, þó að fullyrt sé, að allur þorri almennings hafi enga ósk átt heitari en þá, að þeir sorglegu og átakanlegu atburðir, sem byltingastefna þessara flokka hafði í för með sér, ætti ekki eftir að endurtaka sig hér á landi. Hugur íslenzku þjóðarinn- ar hefir í þessu efni verið hinn sami og í öðrum lýðfrjálsum löndum. Hér á landi hefir alþýða manna fram á þenna dag lesið með hryllingi frásagnir um mis- þyrmingar og morð, sem í bylt- ingalöndunum eru framin í þjón- ustu æðisgenginnar valdabaráttu, hvernig lög og réttur, þar sem slíkt ástand ríkir, eru vettugi virt, hvernig stjórnarskrám nkj- anna hefir verið kollvarpað og almenn mannréttindi fótum troð- in. I augum íslenzkrar alþýðu hefir 1 margar aldir ekkert verið til, „dýrmætara en líf einstakl- ingsins“. Við íslendingar höfum ekki verið þjóð hernaðar eða blóðsúthellinga. í meðvitund al- mennings hér á landi hefir mannslífið verið dýrmætara en allt annað. Enginn alþingismaður myndi fram á þennan dag’ hafa leyft sér að ympra á því að fórna mannslífi til hagsmuna fyrir þjóðarheildina. Slíkt myndi liafa verið viðurstyggð í augum allra viti borinna og heiðarlegra manna. Jafnvel líf hinna mestu afbrotamanna er með lögum verndað hér á landi eins ög hjá ýmsum öðrum þjóðum, sem svip- aðan hugsunarhátt hafa haft og við íslendingar. En hvað er þá á ferðinni nú, þegar blað fjölmennasta flokks- ins í höfuðstaðnum og stærsta flokksins á Alþingi tekur til að vegsama hástöfum, að erlendir einræðismenn hafi brotið niður þingræðið og uppgötvað verð- mæti, sem séu „dýrmætari en líí einstaklingsins" ? Þessi nýstárlegu ummæli í ís- lenzku blaði, tákna blátt áfram það, að svarta hættan, andi fas- cistaflokkanna í Ítalíu og Þýzka- landi, er byrjuð að grafa um sig fyrir alvöru í íslenzkum stjórn- málum. Svo alvarleg' sem slík tíðindi mega þykja, þá verður nú að segja þau eins og þau eru. • En þetta er ekki í fyrsta sinn, sem Mbl. ritar í þessum anda á árinu, sem nú er að líða. Svo merkilegt sem það kann að þykja, má óhætt fullyrða það nú, að ekkert annað blað, sem þingræðisflokk á að baki sér, á Norðurlöndum eða í Vestur-Ev- rópu, hefir tekið að sér að verja hryðjuverkin, sem átt hafa sér stað í Þýzkalandi í vetur og vor, og ofbeldisstjórnina þar. Mbl. og fylgiblöð þess eru þar algerlega einsdæmi. Það liggur í augum uppi, að Mbl. myndi ekki rita um þessi efni á þann hátt, sem nú hefir lýst verið, ef ekki væri jarðveg- ur fyrir slík skrif nú orðið í í- haldsflokknum. Það væri að sjálfsögðu fjar- stæða, að halda því fram, að allir þeir, sem greitt hafa íhalds- flokknum atkvæði við síðustu og undánfarnar kosningar, séu sama sinnis og þeir, sem nú láta veg- sama ofbeldið í blöðum flokksins. Sá hugsunarháttur, sem hér er á ferðum, er að miklu leyti nýr. Hann hefir m. a. magnast við æfintýrablæ hinna þýzku bylt- ingafregna í vetur og komu ít- ölsku flugmannanna hingað, þó að þeim verði engin sök á því gefin. En hitt er jafn víst, að hin inn- flutta öfbeldisdýrkun og einræð- isandi er orðinn hinn ráðandi hugsunarháttur innan íhalds- flokksins í kaupstöðunum og sér- staklega í Reykjavík. Það er engin tilviljun, að óaldarflokkur Nasista, sem mest óð uppi í vor, með gífuryrðum og heitingum hætti við að hafa frambjóðendur í kjöri og virðist nú vera sofn- aður til feðra sinna. „Hreyfing- in“ svokallaða var aldrei annað en „óróleg“ deild úr Reykjavíkur- íhaldinu. Og þegar Mbl. prédikar ofbeldið og Heimdallur er farinn að æfa ,,fánalið“ í Kveldúlfsport- inu, hafa þeir „órólegu“ ekki yfir neinu að kvarta! En fyrir þá menn alla, sem ann- ars hugar eru, en hingað til hafa stutt íhaldsflpkkinn við kosning- ar, er þetta nýja viðhorf, fullkom- ið alvörumál.' Slíkir menn geta ekki framvegis samvizku sinnar vegna kosið þá fulltrúa á þing, sem styða myndu til valda þann hugsunarhátt í landinu, sem nú lætur vegsama ofbeldið í orði og telur útrýmingu þingræðisins hlið- stæða þjóðarnauðsyn og baráttuna gegn kommúnismanum. Slíkur hugsunarháttur hlyti að heimta staðfestingu í verki ef hann á að vera sjálfum sér samkvæmur. Öllum frjálslyndum mönnum i landinu verður það nú ljósara með degi hverjum, að hér er voði á ferðum. íslenzka þjóðin hefir hing- að til haft langlundargeð gagn- vart ágangi á öryggi þjóðfélags- ins. Menn í háum stöðum, eins og Guðmundur Finnbogason og Guð- mundur Hannesson, hafa verið launaðir úr ríkissjóði árum sam- an við að skrifa bækur til að rífa niður þingræðið og núveranda þjóðskipulag. Mikill hluti þjóðar- iiinar hefir álitið um þá eins og kommúnistana, að „kenningar“ þeirra væru góðlátleg vitleysa, sem engan gæti skaðað. En nú eru magnaðri öfl að verki. Svarti fáninn er þegár á loft hafinn í herbúðum þeirra manna, sem nægilega fyrirlitningu hafa á al- þýðu þessa lands (með „mosann í skegginu"), til að telja sig þess umkonma að ráða niðurlögum þess þjóðfélags, sem hún hefiv reynt að skapa sér til verndar öryggi og mannréttindum. Annað taréf Ásgeirs Ásgeirssonar forsætisráðherra til Ólaís Thors. Lárus Helgason sextugur Utan úrheimi Lárus Helgason bóndi í Kirkju- bæjarklaustri varð sextugur 8. þ. m. Hann er fæddur 1873 á Fossi á Síðu. Um langt árabil hefir Lárus haft forystu í öllum h'elztu menningar. og framfaia- rÁálum V estur-Skap taf ellssýslu. Hann hefir verið formaður Kau])- félags Véstur-Skaptfellinga síðan 1911, átt sæti í stjórn stærsta samvinnufélagsins á Suðurlandi, Sláturfélags Suðurlands, og verið útibússtjóri þess eystra. Hann hefir beitt sér manná mest fyrir samgöngubótum sýslubúa á sjó og landi og verið formaður hluta- félagsins „Skaftfellingur“. Þrisv- ar sinnum hafa Vestur-Skaptfell- ingar kosið hann á þing, 1922, 1927 óg 1931. — Bera hinar stór- auknu opinberu framkvæmdir í sýslunni þess menjar, að Klaust- urbóndinn var Vestur-Skaptfell- ingum þarfur á Alþingi eins og heima fyrir í héraði. Lárus Helgason og kona hans, Elín Sigurðardóttir frá Breiða- bólstað á Síðu, hafa nú búið í Kirkjubæjarklaustri 28 ár. Um myndarskap og alúð við þá er að garði koma, ber sá bær nú af flestum öðrum sveitaheimilum á landinu. Nýju bréfi frá miðstjórn í- haldsflokksins, þar sem enn er j heimtað sumarþing og vetrar- kosningar, hefir forsætisráðherra svarað á þessa leið: Reykjavík, 8. ágúst 1933, í tilefni af bréfi miðstjórnar Sjálf- stæðisflokksins, dags. 4. þ, m. varð- andi aukaþing út af frumvarpi því til stjúrnarskipunarlaga um breyting á stjórnarskrá konungsríkisins Is- lands, 18. maí 1920, sen^ samþykkt var á síðasta Alþingi, skal eftirfar- andi tekið fram: 1. þar .sem dregin eru i efa um- madi min í bréfi dags. 4. þ. m. uni, i að nefnt stjórnarskrárfrumvarp komi þá fyrst til framkvæmda, er þaö ó- breytt hefir náð samþykki næsta Al- þingis, konungur staðfest það og 12 vikur liðnar frá þeim degi, er út- koma ])ess í A-deild Stjórnartíðind- nnna er auglýst í B-deild þeirra, þá læt ég hér með fylgja álitsgjörð Ein- ars hæstaréttardómara Arnórssonar um gildistöku stjórnatskrárbreytinga, cr staðfestir algcrlega uinmæli mín um þotta. 2. þar sem bent hefir vérið á þá leið, að flýta megi fyrir gildistöku stjórnarskrárinnar og' því, að hún komi til framkvæmda með því að breyta lögum nr. 11 frá 1877 að því er tekur til stjórnarskrárbreytinga, | þá er þess að gæta, að hvað sem 1 liður því atriði, er telja verður út af fyrir . sjg mjög vafasamt, að slik breyting gcti náð til stjórnarskrár- frumvarps, sem þegar hefir verið , samþykkt. á fyrra Alþingi, þá mundi slik breyting' á gildistöku stjórnar- skrúrfrtimvarpsins icla í sér rifting á þ\ í sarokomulagi sem varð á siö- ; asta Alþingi milli flokka urn málið. þpð er \itað, að af hálfú Framsókn- arflokksins liefði þá ekki náðst sam- komulag um ákvæði, sem fól í sér mög'uleika fyrir haust- eða vetrar- 1 kosningum pg þeirri áhættu um kjör- 1 sókn, sem þeim eru samfara. Af gi'eindum á'stæðum er ókleift að vorða við framkomnum óskum um, ; nð Alþingi verði þegar kvatt sanmn og stofnað til haust- eða vetrar- kosuinga. j 3. Óskirnar um, að bráðlega sé stofnnð til nýrra kosninga, munu að- allega styðjast við kröfu um það, að regiulegi Alþingi (fjárlagaþing) verði ekki. kvatt saman fyrr en að afstöðn- um kosningum, sem fari fram ct'tir binni nýju stjórnarskrá. En þeirri j kröfu má fullnægja með því að ! kveðja til aukaþings í stað reglu- legs Alþingis; (fjárlagaþings) upp úr næstu áramótum, en reglulegt Al- þingi komi sainan síðar á árinu að ufstöðnum kosningum. Til þess þnrí uð visu uð setja ný lagafyrirmæii um, ,að reglulegt Alþingi megi á því ári koma sainan síðar en 15. febrúar, en það kæmi ekki í bága við það samkomulag, sem varð um stjórnar- j skrána á síðasta Alþingi. Er stjórnin ! Roosewelt og menn hans. Hin friðsamlega bylting í at- vinnu- og viðskiptalífi Banda- ríkjanna heldur áfram undir for- ystu Roosewelts forseta. Allur atvinnurekstur landsins er nú undir ströngu opinberu eftirliti. Áf stjórnarinnar hálfu er gengið í’íkt eftir því, að fyrirmælum ríkisvaldsins sé hlýtt. Atvinnu- rekendur hafa verið knúðir til að ganga inn á niðurfærslu vinnu- tímans, lágmarkskaup verka- manna, takmörkun framleiðslunn- ar og að leyfa frjáls samtök verkamanna, sem þeir hafa hing- að til staðið á móti. Kaupmenn eru hindraðir í því að nota hina almennu verðhækkun framleiðsl- unnar til óréttmætrar álagning- ar. 3300 miljónum dollara er nú ve'rið að verja til nýrra fram- kvæmda af hálfu hins opinbera. Síðan Roosewelt tók við völdura hefir ein miljón manna fengið at- vinnu. Skipuð hefir verið af.for- setanum nefnd til að berjast gegn vaxandi glæpamannavaldi og öryggisleysi í réttarfari sam- bandsríkjanna. Trúin á einstaklingsframtakið er lömuð. Forystumenn einkafjár- magnsins hafa misst völd sín og áhrif i hugum borgaranna. Veld- ur því hið sívaxanda atvinnuleysi og hin tíðu bankahrun, þar sem ljöldi fólks hefir misst aleigu sína vegna ógætilegrar og oft á tíðum ósæmilegrar meðferðar á fé bankanna. Orðtak Suðurríkja- inanna: „Bankastjóri hefir geng- ið að eiga' hvíta konu“, sýnir al- menningsálitið þar á bankastjór- unum, því að það er talin hin mesta skömm, ef hvít kona geng- ur að eiga svartan mann. Af samherjum Roosewelts og nánustu samverkamönnum í hinni stórkostlegu viðreisnarbaráttu, eru nú ýmsir tilnefndir og gerð- ir að umræðuefni í heimsblöðun- um. Nánasti samverkamaður for- setans er talinn vera Moley pró- fessor í lögum við Columbia liá- skólann í New York. Það var Moley sem í fyrra stjórnaði rannsóknunum í mútumálum borgarstj órnarinnar í New York- borg, en afleiðingar þeirra mála urðu m. a. þær, að borgarstjórinn James Walker varð að láta af völdum. Það voru þessi mál, og röggsemi Roosewelts, sem þá var landstjóri í New York ríki, sem vöktu þjóðarathyfeli á hinni nýju stefnu og' ýmsum þeim mönnum, sem nú eru mest ráðandi í land- inu, en til fárra ára voru ekki taldir samkvæmishæfir vegna byltingalitaðra skoðana og virð- ingarleysis fyrir hinu almáttuga auðvaldi. Annar af nánustu samverka- mönnum Roosewelts er lögfræði- prófessorinn Berley, einnig frá reiðubúin til að ræða þennan mögn- loika nánar. Ásg. Ásgeirsson. • Síðan þetta bréf var sent, virðist íhaldið loksins vera að gugna á hinni ósæmilegu kröfu um vetrarkosningarnar, en í Mbl. er nú yínprað á því, að fá mann í viðbót við M. G. inn í stjórnina. Slíkt kemur auðvitað ekki til mála.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.