Tíminn - 07.10.1933, Page 2

Tíminn - 07.10.1933, Page 2
162 TlMIiriV on launalögin ákveða. petta vekur réttmœta óánægju þeira, sem laun taka samkvæmt launalögum. Alþingi treystir sér ekki út í endurskoðun launalaganna, en ríkisstjórnir eru við og við að bæta ýmsum embættis- mönnum upp laun með launuðum aukastöríum eða greiðslu fyrir auka- vinnu.“ Við hinar nýju ríkisstofnanir, sem komið hefir verið á fót í stjórnartíð Framsóknarfiokksins eru 5 forstöðumenn með um 10 þús. kr. árslaunum, eftir því sem Mbl. sjálft hefir skýrt frá. Annað starfsfólk þessara fyrirtækja hef- ir vitanlega miklu lægri laun. Nú hyggst Mbl. að telja einföld- um sálum trú um að laun þess-. ara 6 manna hafi orðið til þess að öll gamla embættismannafylk- ingin hafi risið upp og heimtað launuð aukastörf! Svo herfilega er sannleikanum rangsnúið. Skýrslur ríkisgjaldanefndarinn- ar um launakjör ýmsra starfs- manna árið 1926 og framhald þeirrar skýrslu fyrir árið 1927, sem samin er af Einari Markús- syni ríkisbókara, ber með sér að hvort þessara ára um sig hafa um 70 embættismenn og starfs- menn í opinberri þjónustu haft 10 þús. krónur og meira í árs- tekjur frá hinu opinbera. Hvernig ætlar nú Mbl. að telja fáfróðum íhaldsmönnum trú um, að launakjör í ríkisstofnunum, sem stofnaðar voru á árunum 1928—30 hafi getað orðið þess valdandi, að 70 opinberir starfs- menn höfðu 10 þús. til 40 þús. kr. laun í stjórnartíð íhaldsmanna á árunum 1926 og 1927? Hitt er auðvitað hið rétta í málinu, sem haldið hefir verið fram hér í blaðinu, að hinar mörgu háu launagreiðslur frá tíð íhaldsstj órnarinnar hafa — á- samt óhóflega háum launagreiðsl- um í einstaklingsrekstrinum — gert allar umbætur á launamálum ríkisins mjög erfiðar nú á seinni árum. 3. 1 síðasta blaði Tímans var bent á nokkur dæmi um launa- greiðslur af hálfu íhaldsstjórnar- innar árið 1926. Þar var skýrt frá því, að Einar Amórsson pró- fessor hefði haft í laun krónur 18658,34, Guðm. Sveinbjörnsson skrifstofustjóri kr. 20,530,00, Sig- urður Briem aðalpóstmeistari kr. 15300,00, Þorsteinn Þorsteinsson, hagstofustjóri kr. 16694,00, Vig- fús Einarsson skrifstofustjóri kr. 15400,00 o. s. frv. Mbl. hefir vitanlega ekki mót- mælt þessum tölum. Og það er eins og samvizka greinarhöf. hafi í þetta sinn orðið honum að fóta- skorti, sem sjaldgæft mun þó vera. Blaðið viðurkennir, að þarna hafi í stjómartíð Jóns Þor- lákssonar átt sér stað „óhæfileg- ur austur til einstakra embættis- manna“. Og síðan bætir það við: „Þessi dæmi áttu vitanlega að vera síðari stjómum til viðvörun- ar en ekki til eftirbreytni“. Þannig hljóðar hin síðari játn- ing Mbl. um fjármálastjóm í- haldsmanna. Og hver er svo meiningin með öllum þessum skrifum Mbl. um skuldaaukningar og launamál og annan vísdóm, sem blaðið hefir fram að bera fyrir almenning á þessu landi. Tilgangurinn er einmitt sá — og enginn annar — að fá almenn- ing á þessu landi til að trúa því, að þeir mennimir, sem blaðið sjálft segir, að í launamálunum hafi gefið fordæmi, sem eigi að vera „síðari stjómum til viðvör- unar en ekki eftirbreytni", eigi nú að taka við stjómartaumun- um og skapa réttlæti í þessum efnum! 4. Mbl. hefir auðvitað ekki mik- ið við það að athuga, þó að gróði sá sem nú er af ríkisstofnunum rynni í vasa kaupmanna í Rvík, ef stofnanimar yrðu lagðar nið- ur. „Og þó að einstaklingar hefðtí Lögreglnankningin. Umræður á bæjarstjórnarfundi í fyrradag. hag af því, að þessar stofnanir yrðu lagðar niður“, segir blaðið, „þá er það einnig hagur fyrir ríkið, því að ríkisbúskapurinn hvílir að öllu leyti á einstakling- um þjóðfélagsins. Velgengni þeirra er sama og velgengni rík- isins“! Hvílík speki! En því þá ekki að greiða þeim „einstaklingum“, sem eru í þjón- ustu ríkisins, sem allra hæst laun! „Velgengni þeirra er sama og velgengni ríkisins“, segir Mbl.! Mbl. hefir gefið játningu mn hina fyrri afstöðu íhaldsmanna í launamálunum — á sama hátt eíns og það áður hefir gefið játn- ingu um sín eigin ósannindi við- víkjandi aukningu ríkisskuldanna. En íhaldsflokkurinn á eftir að gera fleiri játningar um hið raunverulega innræti sitt gagn- vart réttlátri skipun launakjar- anna í landinu yfirleitt. Hann hefir þegar gert játningu sína viðvíkjandi frv. Jónasar Jónssonar um hámarkslaun, á síðasta þingi. En þessum málum mun verða haldið vakandi af Framsóknar- mönnum. Eyðslustéttinni, sem að Mbl. stendur, mun ekki haldast uppi að hafa þetta efni í rang- færslum og fíflskaparmálum ein- um. Mbl.-liðinu mun verða gef- inn kostur á réttlátri launalækk- un og réttlátum launajöfnuði — hjá ríkinu og annarsstaðar — og fulltrúar íhaldsins munu á sínum tíma verða kvaddir til að gera nýjar játningar í atkvæðagreiðsl- um á Alþingi. ----o---- Kjötverkunarkenslan í Noregi. Norska blaðið „Fædrelandsvennen" skýrir svo frá 26. sept. sl.: „Samhliða framförum í sauðfjár- ræktinni er nú farið að salta kjötið niður í tunnur, til þess að líkja eftir íslenzka kindakjötinu, sem til fárra ára lagði undir sig allan markað- inn á vetunia. En til þess að geta framleitt vöru, sem sé samkeppnis- fær við íslenzka kjötið bæði að verði og gæðum, þarf að koma á sams- konar meðferð og umbúnaði á öllu kjötinu. Landbúnaðarráðuneytið hefir feng- ið í þjónustu sína Islending, sem er kunnáttumaður í meðferð sauða- kjöts. Hann hefir i haust ferðast rniili sláturhúsanna og í ýmsum stærri bæjum hér á landi. M. a. var hann nýlega í Kristianssand óg gaf ráðleggingar og fyrirmæli um söltun kindakjöts hér“. Blaðið bætir við: „það er enginn efi á því, að við Norðmenn getum orðið ofan á í sam- keppni við íslenzka kjötið, bæði hvað snertir verð og gæði jafnframt því sem innlenda framleiðslan eykst". Blaðið þykist ennfremur hafa það eftir góðum heimildum, að ekki muni verða flutt inn mikið af ís- lenzku kjöti í ár. Eftir samningn- um sé að vísu heimilt að flytja inn 11500 tunnur, en sennilega seljist ekki nema helmingurinn af því, þar sem norska saltkjötið muni nú fara batn- andi. Er skýrt frá því, að í Stav- anger, þar sem hingað til hafi verið lögð áherzla á að selja kjötið nýtt eða kælt, muni verða tekin upp salt- kjötsverkun í haust undir umsjón bins íslenzka ráðunauts. Hér í blaðinu hefir áður verið drepið á kennslu þá í saltketsverk- un, sem íslenzkir menn hafa tekið að sér í Noregi í haust. F.ru þetta alvarleg og heldur óviðkunnanleg tíðindi, frá sjónarmiði okkar íslend- inga og myndi mörgum hafa þótt ó- trúlegt, a'd fyrir gæti komið. Eins og kunnugt er, er það kaupmaður á Húsavík, sem hlutazt hefir til um, að Norðmenn yrðu þessarar kennslu aðnjótandi, sennilega fyrir góða borgun. Glæsilegt dæmi um þjóðholl- ustu hinnar íslenzku kaupmanna- stéttar! ■o■.... Á fundi bæjarstjómar Reykja- víkur í Kaupþingssalnum í fyrra- kvöld var lögregluaukningin á dagskrá. Skýrði Jón Þorláksson frá því, að umsóknarfrestur sá, er hann hafði sett (til 1. okt.) væri liðinn og kvaðst hann hafa sent lögreglustjóra þær umsókn- ir, er sér hefðu borizt. Gat borg- arstjórinn þess þá um leið, að hann hefði skrifað dómsmála- neytinu (Magnúsi Guðmunds- syni), og spurst fyrir um, hvort sér hefði verið heimilt að auglýsa, og kvaðst hafa fengið frá M. G. svar þess efnis, að þetta hefði verið heimilt. Mun engum hafa þótt það undarlegt, þar sem upp- lýst er, að M. G. hafi sjálfur ver- ið í ráðum með Jóni um að hann skyldi auglýsa stöðumar! I sambandi við þetta las Her- mann Jónasson lögreglustjóri upp á fundinum, bréf, sem hann hafði ritað borgarstjóra, í tilefni- af því, að borgarstjóri hafði sent honum afrit af fyrirspurainni til dómsmálaráðuneytisins. Bréf lög- reglustjórans er svohljóðanda: 29. september 1933. Ég lieíi móttekið bréf yðar, herra borgarstjóri, dags. 26. þ. m., er fylgdi afrit af bréfi, er þér tjáið yður lmfa sent dómsmálaráðuneytinu sama dag viðvíkjandi auglýsingum á lögreglu- þjónastöðum. í tilefni af bréfi þessu tel ég rétt að taka fram eftirfarandi: þegar ég auglýsti lögregluþjóna- stöðurnar var það samkvæmt þeim skilningi, sem áður hafði af mér og fyrirrennara mínum í embættinu verið lagður í 17. gr. tilsk. um bæj- arstjórn í Reykjavík, frá 20. april 1872, en á þann skilning höfðu þá- verandi borgarstjóri, bæjarstjórn og stjórnarráð fallizt ágreiningslaust. það liggur líka i augum uppi, að þessi skilningur, sem lagður hefir verið á greinina, er réttur. Lög- regluþjónana skal „skipa eftir uppá- stungu lögreglustjóra" og eftir veit- inguna framkvæma þeir löggæzluna eftir hans fyrirskipun, en hvorki bæjarstjórnar né borgarstjóra. Með því að lögreglustjóra er að lögum fyrirskipað að gera uppástungur um veitinguna, verða þær upplýsingar, sem af umsækjendunum er krafizt, að vera ákveðnar af honum, því ella væri lagaákvæðið ekki framkvæman- legt. þér bendið að vísu á það, herra borgarstjóri, að í 2. gr. bæjarstjórn- ar tilsk. standi: „Framkvæmd á- kvax-ðana þeirra, er bæjarstjómin gerir og bæjaimálefna yfir höfuð, er á hendi oddvitans11 og bætið við í svigum „nú borgarstjóra". En við nánari athugun hljótið þér að sjá, að hinar max-gvíslegu framkvæmdir bæjarmálefna, sem áiúð 1872 heyrðu undir oddvita bæjarstjómar, er þá jafnframt var bæjarfógeti og lög- reglustjóri í Reykjavík, heyra nú Frá Skattstofunni. Undanfarið hefir Mbl. bölsót- ast nokkuð út af vinnutímanum á Skattstofunni og aukavinnu fulltrúa míns. Nú í vikunni bað ég blaðið fyrir eftirfarandi leið- réttingu, sem það hefir ekki birt, en í stað þess endurtekið ósann- indi þau, sem áður höfðu komið þar, og ég var búinn að leið- rétta. „Á skattstofunni vinnur aðeins einn fastamaður fyrir utan mig, A. L. Petersen fulltrúi, sem uppliaflega var ráðinn af Einari Arnórssyni. og' var vinnutími hans fyrir fastakaup- inu ákveðinn 10—12 og 1—4 daglega af Einari. þótt ég persónulega álíti þennan vinnutíma, sem tíðkast á flestum eldri opinberum skrifstofum, of stuttan, hefi ég ekki séð ástæðu til að breyta ákvörðun Einars Arn- órssonar í þessu, einkanlega þar sem undir ýmsar starfsdeildir, sem mynd- azt hafa við stækkun bæjarins, svo sein hafnarstjórn, bi-unamálastjórn, rafveitustjórn, lögreglustjórn o. s. frv., og getur bæjarstjóm og bæjar- ráð falið þessum starfsdeildum og öðrum ýmsar fi’amkvæmdii’, enda er það iðulega gert. þessi tilvitnun yð- ar breytir því engu um það atrði, sem bér ræðir um. Mál þetta liggur því þannig fyrir, að ég hefi auglýst lögregluþjóna- stöðurnar samkvæmt þeirri löghelg- uðu venju, er myndazt hefir, og þeim skilningi, er jafnan iiefir verið lagður i umrætt ákvæði 17. gr. tilsk. 1872. Munið þér væntanlega ekki lialda því fram, herra borgarstjóri, að öll jmu yfirvöld, er um þessi mál hafa fjallað og skapað venjuna, svo sem fyi’irrennari yðar í borgarstjóx-aem- bætti bæjai’stjórnarinnar, fyrirrenn- ari minn í lögreglustjóraembættinu og dómsmálaráðherrar, hafi brotið gildandi lagaákvæði með því að framkvæma cða líða framkvæind á viðkomandi lögum á sama hátt og ég hefi bæði fyrr og nú skilið lögin og framkvæmt. Að lokum vil ég ennfremur benda yður ú það, að bæjarráöið hafði á fundi sínum 8. þ. m. einróma fallizt á það, ásamt yður, að ég auglýsti stöðurnar. þá ákvörðun hefi ég nú framkvæmt og þar eð hún þannig hcfir fengið sitt gildi gagnvart al- menningi, verður henni ekki breytt héðan af, fremur en réttaráhrifum fyrri auglýsinga minna og fyrir- rennara míns um sama efni, sem framkvæmdar hafa verið á nákvæm- lega sama hátt. Eg sé enga ástæðu til þess að skrifa dómsmálapráðuneytinu við- víkjandi umræddu bréfi yðar, þar eð réttaráhrif auglýsinganna verða eigi úr gildi felld með yfirvaldsúr- skurði. Hinsvegar sendi ég ráðu- neytinu afrit af þessu bréfi til yðar. Lögreglustjórinn í Reykjavik. (Sign) Hermann Jónasson. Til borgarstjórans í Reykjavík. Á bæjarstjómarfundintim vildi Á bæjarstjórnarfundinum urðu litlar umræður, og- kærði borgar- stjóri sig sýnilega ekki um að ræða málið. Stefán Jóhann Stefánsson beindi til borgarstjóra ýmsum fyrirspuraum, t. d. hvort borgarstjórinn ætlaðist ekki til, að þeir umsækjendur kæmu til greina, sem sæktu til lögreglu- stjórans, en ekki borgarstjóra. Neitaði J. Þ. að svara þessari spurningu, og sagði, að það kæmi sér ekki við! Spurði Stefán þá, hvort hæft væri í því, að borgar- stjórinn hefði sagt við þá um- sækjendur, sem spurt hefðu, að þeir einir kæmu til greina, sem sæktu til sín. Þessu gengdi Jón engu. Umsóknarfresturinn hjá lög- reglustjóra er til 15. þ. m. hér er um eins manns vinnu að ræða, því að mér eru eigi reiknuð aukalaun fyrir vinnu á öðrum tím- um, og þar sem eigi hefir verið lengdur vinnutími á skrifstofum ríkisins yfirleitt. Skætingi blaðsins í minn garð per- sónulega hirði ég eigi um að svara nú fremur en endranær. Eysteinn .Tónsson." Það er vitanlegt, að rétta stefnan í þessum málum er sú, að lengja vinnutímann á flestum op- inberum skrifstofum, en um ein- stakar stofnanir geta eigi orðið gerðar undantekningar, nema þá eftir sérstökum fyrirskipunum ríkisstjómar. E. J. ---o—— Guöbrandur Magnússon forstjóri og Halldór Stefánsson alþm. komu heim austan af Seyðisfirði moð Esju um síðustu helgi Alþingi hefir verið kvatt saman þriðjud. 2. nóv. n. k. Amór Sigurjónsson ritstjóri er ný- kominn til bæjarins úr ferð norður í þingeyjarsýslu. Rannsóknir á ormaveiki í sauðíé. Um mörg undanfarin ár hefir orma- veiki í sauðfé valdið miklu tjóni víða um landið, og fram til þessa hafa menn lítil tök haft á því að stemma stigu fyrir þeim ófögn- uði, enda er hér um að ræða kvilla, er læknisfræðin hefir lítil deili kunn- að á. Nú um liríð heíir Níels P. Dungal döcent unnið að því að rannsaka orsakir og eðli þessara kvilla. Er þeim rannsóknum nú svo langt komið, að byrjað er á lækn- ingatilraunum. Má vænta þess áður langt líði, að fundin verði lyf og að- ferðir til þess að lœkna kvilla þessa, eða a. m. k. draga úr þeirri hættu sem af þeim stafar, á líkan hátt og tekizt hefir að vinna bug á bráða- pestinni. Fram til þessa hefir verið mjög örðugt að framkvæma svo vandasamar vísindalegar rannsóknir sem þessar hér á landi mest vegna skorts á áhöldum og sæmilegu hús- næði. En nú er þess skammt að bíða, að byggð verði rannsóknarstofa, þar sem komið verði fyrir áhöldum þeim til fullkominna vísindalegra rann- sókna í þarfir landbúnaðarins, er þjóðverjar gáfu íslendingum 1930. Má vænta mikils af þeiri rannsóknar- stofu, eftir þeim árangri, sem þegar er fenginn á liinni ófullkomnu rann- sóknarstofu Háskólans, er hingað til hefir verið notuð í þessu skyni. — Tilraunir eru gerðar í haust með fé, sem geymt er í Tungu við Reykja- vík. Frá Seyðisíirði hafa Tímanum bor- izt þessar fréttir. þorkafli var góður í vor, en tregur í sumar. Tólf að- komubátar af Suðurlandi lentu í fiskitregðu, en afkoma þeirra vonum betri vegna hagstæðrar veðráttu, Sjó- mennimir gátu í hjáverkum fullverk- að aflann með tiltölulega litilli fyrir- höfn. Agangur botnvörpunga á land- helgina aldrei annar eins um mórg ár. Elstu menn muna ekki jafn-hag- stætt tíðarfar síðan árið 1880. Gras- vöxtur og garðávöxtur með ágætum. Náðu sjaldgæfar garðjurtir .fullkomn- um þroska, einnig bygg, hafrar cg baunir í tilraunareit. Jörð, sem sáð var í grasfræi 9. júní í fyrsta sinn, var tvíslegin á sumrinu og skilaði töðufeng eins og mörg gamalgróin tún. Bilvegur hefir verið lagður upp á Fjarðarheiði, og vantaði herzlumun að háheiðin væri fullrudd á norður- brún, verður því marki náð í haust í liagstæðri tíð. Vænta Seyðfirðingar, að hvorutveggja eigi sér stað á næsta sumri, að Fjarðarheiðarvegurinn verði fullgerður og bílvegakerfi Austurlands tengist Norðurlandsveg- unum. — Síld virðist mikil úti fyrir Austfjörðum. Fengu vélbátar meir en 2 tunnur í sérhvert reknet yfir nótt, af feitri og fallegri síld. Treysta Aust- firðingar því að nú sé hafið nýtt síldartímabil við Austurland, áþekkt og áratugina fyrir aldamót. Eiga þeir von á því, að firðimir fyllist af síld með vetrarbyrjun. Seyðisfjörð- ur, Mjóifjörður og Norðfjörður voru fullir af síld í allan fyrravetur. Er þetta að meirihluta svonefnd milli- síld, en markaður fyrir hana tak- markaður til söltunar. Er þvi af mikl- um áhuga unnið að því, að upp kom- ist síldarverksmiðja á Seyðisfirði. Úr Borgarílrði er skrifað: f þessu héraði varð heyskapurinn almennt með bezta móti. þó var óvanalega fátt fólk við heyvinnu og tíð mjög til tafar votviðrasöm. En grasvöxtur góður og vélanotkun fer óðum í vöxt. Hinir stóru nýju túnaukar síðustu ára gefa ágæta uppskeru. Fengust sumstaðar í sumar 30 hestar af dag- sláttu af vænu bandi. Ég hafði tal nýlega af einum bóndanum (frá Varmalæk), þar sem var búið að hirða af túninu í sumar 900 hesta af töðu. Á þeim bæ bjó um langt skeið víðkunnur dugnaðarbóndi. Sléttaði hann og bætti túnið, svo af því fengust um eða yfir 300 hestar í meðalári, og var það mikil framför frá því sem áður var. Synir lians, sem búa þar með móður sinni, ræstu fram fyrir 5 árum forblauta mýri og hafa gert undanfarin ár úr henni tún með aðstoð hinna nýju verkfæra og útlends áburðar. Og þetta er árang- urinn. Á8ur voru á þessum bea reit-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.