Tíminn - 11.12.1933, Síða 3

Tíminn - 11.12.1933, Síða 3
TÍMINN 199 Fréttir Grein um vegamál á Austur- landi, eftir Pétur Jónsson bónda á Egilsstöðum, birtist í næsta blaði. Rignlngar í október voru all- miklar, 36% umfram meðallag, eða l1/® sinnum meðalúrkoma á öllu landinu, Tiltölulega mest var iiún á Akureyri, 137% umfram meðallag eða 2x/3 sinnum meðal- úrkoma. Úrkomudagar voru 4 íleiri en venjulega. Mest mánaðar- úrkoma mældist í Vík í Mýrdal, 283.6 mm. og mest sólarhringsúr- koma á sama stað, 74,4 rnm. Sólskin i Reykjavík. í október- mánuði var sólskin töluvert skem- ur en verið hefir undanfarin ár og ekki nema 24% af því, sem mest gæti verið. Alls naut sólar við yfir októbermánuö í 73.2 st., en meðaltal 10 undanfarinna ára er 98.3 st. Stjörnuhröp. 9. okt. kl. 19—20.30 sáust óvenjulega mikil stjörnu- hröp í Vestmannaeyjum. Stjörnu- hröp þessi sáust einnig erlendis og eru slæðingur úr halastjörnu, sem sást árið 1900 af þeim Gia- cobini og Zinner. Samskonar stjömuhröp í minni stil sáust 9. okt. 1926. — (Veðráttan). Vamarg arðurinn vl8 Hóraðsvötn. Lókið er nú við að hlaða varnar- garð gegn landbroti Héraðsvatna. Hann er 540 metra langur og hafa farið i liann 2000 rúmstikur af grjóti og 1500 rúmstikur af torfi. Grjótið var flutt á bíl um hálfs kílómetra vegalengd og var not- uð þéttiloftsbarvél við að sprengja grjótið. Kostnaður við verkið nam alls 14 þús. kr. — FÚ. Fréttir frá JJórshöfn. Laugar- dagsmorguninii 25. fyrra mánaðar kom upp eldur í dúnhreinsunar- vél á Syðra-Lóni á Langanesi. Var vélin í hesthúsi, sem er áfast við fjós bóndans. Læsti eldurinn fljótt um sig og komst í timburskilrúm, sem er á milli fjóssins og hest- hússins og þegar menn komu að voru tvær kýr dauðar í fjósinu, en eldurinn varð brátt slökktur. Tjón bóndans Guömundar Vil- hjálmssonar fyrv. kaupfélaga* stjóra, er þó tilfinnanlegt, þar sem hann missti þama 2 kýmar af þremur, dúnhreinsunarvólina og húsin urðu fyrir skemmd- um. — í sumar og haust hefir verið einmunagóð tið og hlý. Heyfengur bæði mikill og góður. Aftur var sauðfé í haust með rýrasta mótl til frálags. — Fisk- afli á Langanesi var nokkuð mis- jafn í sumar. Var mjög rýr á Skálum, en á þórshöfn fengu trillubátar 80—210 skippund yíir aumarvertíðina. Eru því hœstu bátamir með góðan afla og betri en í meðallagi. Nú er dágóður fiskafli (skrifað seint í nóvember) þegar á sjó gefur, en flestir bátar hættir róðrum fyrir nokkru. Ræktunarlramfarir á Akranesl. Á þessu ári hafa Akurnesingar aukið túnrækt sína um: sáðslétt- ur 24,5 hektara, þaksléttur 0,45 hektara, framræsluskurði 3372 ten.m., lokræsi 468 metra, girð- ingar 4858 metra, áburðarhús og safnþrœr 554 dagsverk. Auk þess hefir verið hafinn undirbúningur á mikilli ræktunarviðbót á næsta vori. Verzlunarjöfnuðurinn. Verðmæti útflutnings í ár hefir numið 39.2 millj. kr., en innflutningurinn á sama tima hefir numið 37.8 millj. kr. Útflutningurinn er því 1.4 millj. kr. meiri en innflutningur- inn. Á sama tíma í fyrra nam sá munur 7.7 millj. kr. Innflutning- urinn til októberloka í ár hefir verið 37% meiri en í fyrra og út- flutningurinn á sama tima 9% meiri. Tveir piitar teknlr fastlr fyrir þjófnað. í sl. viku tók lögregl- an 2 pilta fasta, sem komnir voru inn í íbúð hér í bænum til þess að stela. Maðurinn, sem þarna átti heima kom af hendingu heim og gerði lögreglunni aðvart. Pilt- arnir sem eru 17 ár^ gamlir hafa þegar játað á sig marga þjófnaði. Hafa þeir farið inn í íbúðir þegar fólk hefir ekki verið heima, með lyklunum, sem fólk skilur oft eft- ir heima, undir mottum, i vösum á fötum o. þessh. Hefir piltunum orðið töluvert gott til fjár. Á ein- um stað náöu þeir 1 850 kr. og á mörgum öðrum stöðum í smá- upphæðir. - Simtefli. Nýlega voru 12 sím- skákir tefldar milli taflfélags Esk- firðinga og Hafnfirðinga. Úrslit uiðu þannig, að Eskfirðingar unnu 5 skákir, gerðu 6 jafnteili og töp- uðu 1. Einnig má geta þess, að þeir hafa áður teflt við Húsvík- inga, Akureyringa og Siglfirðinga og haít yfirhöndina við þá. Óhentugar samgöngur. Miklum óþægindum veldur það flestum lilutaðeigendum, hve samgöngur vorar eru óreglulegar. Oft líða heilar vikur milli skipaferða og stundum koma mörg skip í einu. Eru litlar líkur til að bót verði á þess ráðin fyrr en íslendingar verða þess megnugir að ráða einir yfir siglingunum til og frá land- inu og opinberri íhlutun um allar skipaáætlanir verður komið á. Nú sjá erlendu skipafélögin sér mest- an hag í því að elta skip Eim- skipafélagsins og ná frá þeim sem mestu af vöru- og fólksílutning- um. Kosningamar 16. júlL í seinustu Hagtíðindum er gefið yfirlit yfir síðustu alþingiskosningar, þátt- töku í þeim o. fl. Á kjörskrá voru rúml. 53 þús. kjósendur, en aðeins 69% þeirra neyttu atkvæðisréttar síns. Hafa alþingiskosningar aldrei verið eins illa sóttar síðan 1919. Mest þátttaka heíir verið í kosningunum 1931, þá kusu 78,2% kjósendanna. Bezt voru kosning- arnar nú sóttar í Hafnarfirði, þar var þátttakan 92.9%, en verst voru þær sóttar í Eyjafjarðar- sýslu, þar var þátttakan 51.5%. Utan kaupstaðanna var kosningin bezt sótt í Vestur-Skaptafellssýslu, þátttakan 89.2%. Kvenfólkið er í meirahluta meðal kjósendanna (52%), en hinsvegar var þátttaka þess í kosningunum miklu verri en karlmannanna. Af karlmönn- unum neyttu 79% atkvæðisréttar síns, en af kvenkjósendum aðeins 61.9%. Árbók 1933, sem Dansk-islansk Samfund gefur út er nýkominn. í ái-bókina skrifa nú Tryggvi Svein- bjömsson ritari í sendisveit ís- lands í Kaupmannahöfn, um ís- land 1932, yfirlit um atvinnulíf og stjómmál. Koefod Hansen um skóg- rœkt á íslandi, Jón Helgason biskup um danska embættismenn á íslandi. Ellen Aagegaard, Ferðaminningar frá íslandi. Kristinn Ármannsson um æðri menntun á íslandi, Elías Wessén prófessor i Stokkhólmi skriíar um starf félagsins Sverige —ísland, segir frá bókaútgáfu fé- lagsins, og öðru kynningarstarf) félagsins á íslandi í Svíþjóð. Eitt kvæði er í bókinni á íslenzku eftir Pál Árdal og er það einnig í danskri þýðingu. Bóndadagurinn eftir Guðmund Friðjónsson í danskri þýðingu o. fl. Á móti menningunni. Sígaunar- ar i Rúmeníu hafa fyrir skömmu efnt til ráðstefnu um ýms þau mál, sem snerta þeirra þjóðflokk. Meðal samþykkta ráðstefnunnar var það, að skora á ríkisstjórn- ina að banna alla bílaumferð, því hún dragi stórlega úr sölu á hest- um og ennfremur að vinna gegn frekari útbreiðslu útvarpsins, því það spillti mjög fyrir aðsókn að Sígaunarahljómleikum. Gamaldags. í Barcelona kom ung stúlka nýlega til fangelsis- varðar og baðst þess að verða sett í einhvern fangaklefann. Ástæðan til þessarar beiðni væri sú, að unnusti hennar hefði verið tek- inn fastur, hann væri í þessu fangelsi og hún vildi endilega vera undir sama þaki og hann. En fangavörðurinn var harðbrjó_sta og sagði nei. Kuldar í Rnglandi. Viða í Eng- landi hafa verið kuldar og hríð- ar undanfarna daga. Snjókoma varð víða mikil og féll tveggja til sex þumlunga snjór. — FÚ. Án dóms og laga. Óvenjulega mikið liefir borið á því í Banda- ríkjunum i síðastl. mánuði, að menn hafi verið teknir af án dóms og laga. í borginni St. Joseph í Missouri réðist mannfjöldi á fang- elsi í fyrradag og náði þaðan negra, sem átti að hafa svívirt hvíta konu, og var hann hengdur. í Salisbury í Maryland tókst mannfjölda að bjarga úr fangelsi fjórum mönnum, sem höfðu verið tftknir íastir fyrir að taka negra Ltösmagnið er aðalatridið UOS’ Happdrætti Háskóla Islands Tekur til starfa 1. janúar 1934. 2500 hlutir í 10 flokkum. Verð 60 kr. á ári eða 6 kr. l hverjum flokki. Vinningar samtals kr. 1.050.000,00 á ári. 1 á 50QOO kr„ 2 á 25000 kr., 3 á 20000 kr. 2 & 15000 kr,, 5 á 10000 kr. o.s.frv. á heilan hlut. Fimmti hver miði fær vinning á árinu. ATHS. Fyrsta starfsárið verða einungis gefnir út fjórðangsmiðar, og verða fyrst seldir A-miðar nr. 1-25000, þá B-miðar nr. 1-25000, en þá C- og D miðar með sama hætti. Umboðsmenu í nálega öllum kauptúnum. IVinuingarnir ern skattfrjálsir. GEFJUaF hefir ávalt fyrirliggjandi allskonar fata- og frakkaefni. GEFJUN AR-T AUIN eru hentugustu og ódýrustu efnin 1 hverskon- ar fatnað handa konum og körlurn. A hinni aýju saumastofu vorri saumum vér nú drengjaföt (rennilásblússur, pokabuxur o. fl.) og kvenkápur. Afgreiðum drengjafötin með mjög stuttum fyrirvara. Verzlið við ÖEFJUN, með þvl móti fáið þér mest fyrir peninga yðar og þér fáið þá beztu innlendu dúka, sem völ er á. GEFJUN-sölubúð og saunastofa. Laugavegi 10. — Sími 2838. Kolaverzlun SIGURÐAR ÓLAFSSONAH Simn.: KOI,. Reykjavfk. «wl 1933. KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR Bankastræti 2, sími 1245. Ferðamenn hafa bezta tryggingu fyrir góðum vörum með hæfilegu verði, verzli þeir við kaupfélagið. Komið í kaupfélagsbúðina, þegar .. þið komið til Reykjavikur. .. af lífi án dóms og laga. prjú hundruð hermenn börðust við mannfjöldann, en fengu ekki við ráðið. í South Carolina voru þrír menn teknir fastir í gær og höfðu þeir staðið fyrir því að taka negra af lífi 16. nóv. — F.Ú. UppreUn í Kína. Bretar hafa nú sent tundurspilli, og Bándaríkin annan, til Foochow í Fu-Kien 1 Kína, þar sem uppreist stendur nú yfir, og eiga herskipin að vernda brezka og bandaríska borg- ara þar. Búizt er við að Japan- ar hafi sent herskip þangað í gísr. FÚ. BÆKUR. Allar fáanlegar íslenzk- ar bækur og erlendar bækur um margskonar eíni fyrirliggj- andi eða útvegaðar fljótt. — Sömuleiðis öll erlend blöð og timarit. RITFÖNG allskonar, fyrir skrif- stofur, skóla og heimili, sjálí- blekungar o. m. fl. Allar pantanir utan af landi af- greidar fljótt gegn póstkröfu. — E. P. BRIEM Bókaverzl., Austurstr. 1. Sími 2726. Reykjavík. Ættartölnr. Það er eugum vansalaust að vita ekki deili á ætt sinni. Ég sem ættartölur gegn sann- gjörnu verði. fíunnar Þorsteinsson Box 508. Reykjavík. MYNDA. og RAMMAVERZL. ÍSLENZK MÁLVERK. Freyjugötu 11. Sími 210ö í byrjuu vikuunar. Framh. af 2. síðu. VI. Stjórnarskrá og kosningalög. Nú er búið að ganga frá stjómarskrá og kosmngalögum. Byggðavaldið í sinni gömlu mynd. hefir verið brotið á bak aftur. Nú verða bændur landsins að leita sér sam- banda við sjóinn, þar sem margmennið býr. íhaldssömu bændurnir fá bandamenn í spekulöntum, og óhófseyðslulýð bæjanna. Umbótabændurnir fá bandamenn í miðstétt l kauptúna og kaupstaða. Samvinnustefnan bindur þá menn saman. Þetta er önnur hliðin, sjálfur veruleikinn. En um formið sjálft, stjórnarskrá og kosn- ingarlögin er það að segja, að hvorttveggja er hið mesta hrákasmíði, fullt af mótsögn- um og fjarstæðum. Verulegur hluti af báð- um þessum lagabálkum er miðaður við þrengstu sérhagsmuni íhaldsmanna, og við það að skaða Framaóknarflokkinn, Það var ekki nóg með að brjóta niður byggða- valdið almennt, heldur þurfti lika að skaða þann flokk sérstaklega, sem heldur uppi vörn fyrir umbótalíf í sveitunum. Ihaldið krafðist þess í fyrra að þingmannatala Reykjavíkur yrði miðuð við það, að Fram- sóknarflokkurinn fengi hér engan fulltrúa, og var tilgangurinn auðvitað sá, að eyði- leggja flokkinn í höfuðstaðniun. Verður þetta mál rakið hér ítarlegar síðar. Nú í vetur gekk öll viðleitni meginhluta íhaldsins og þeirra Jóns í Stóradal og Hannesar á Ilvammstanga út á það að auka erfiðleik- ann fyrir Framsóknarmönnum í einstökum kjördæmum. Að ráðum þessara manna geta fulltrúaráð eða félög kjördæmanna og miðstjórn flokksins, ekki hindrað það, að fjandmenn flokksins bjóði sig fram undir nafni flokksins og standi þannig á kjörseðl- inum við hliðina á trúnaðarmönnum, flokks- ins. í öðru lagi lögðu sömu menn áherzlu á það, að flokkamir gætu ekki ráðið því, hvaða menn færu í uppbótarsætin. Eins og nú er háttað kosningarlögunum, getur Seyð- isfjörður varla fengið minna en tvo þing- menn í vor og með sniðugri tilhögun frá hálfu kjósenda gæti bærinn fengið 4 þing- menn, Framsókn ætti þá að fá aðalþing- manninn, en socialistar, íhald og kommún- istar hver sinn uppbótarþingmann. Hér er aðeins tæpt á göllum þessa verks, sem byrjaði með skrílvikunni, og endar þannig, að Jón Þorláksson lýsir því yfir, að flokks- bræður sínir hafi framið þingsvik í þessu máli, og bókar í efri deild, að kosningalöy- in séu brot á stjórnarskránni og gengur af fundi til að reyna þannig að þvo hendur sínar af þeirri vansmíð, sem hér hefir verið gerð. VII. Launanefndin. Nokkrir íhaldsmenn báru fram tillögu um skipun launanefndar, til að gera fyrir næsta þing sparnaðar- og skipulagstillögur í launa- málum. Eysteinn Jónsson bætti við verk nefndarinnar með tillögu í neðri deild, að hún skyldi athuga líka launagreiðslur í bönkunum, og hjá stofnunum, sem ríkið heldur uppi, og um kaupgreiðslur einstak- lingsfyrirtækja, sem hækkar kaupgreiðslur almennt. Ég bætti við í Ed. till. um að leit- ast við að finna grundvöll fyrir launagreiðsl- ur ríkisins eftir vöruverði á íslenzkri fram- leiðslu (landaurar) og var hún samþykkt. Var nefndin þannig búin að fá víðtækt og merkilegt verkefni. En er kom til að kjósa í nefndina, sást að lítill hugur fylgdi máli hjá íhaldsmönnum, og að þeir líta þessa til- raun eins og skopleik frá sinni hálfu. Þeir völdu í nefndina Kára Sigurjónsson og Kristján Albertsson báða mennina gersam- lega án reynslu og þekkingar á slíkum mál- um. Kristján Albertsson er á fóðrum hjá Kveldúlfi og er þetta samskonar tilraun að koma af framfæri Kveldúlfs yfir á ríkis- sjóð, eins og þegar Ámi í Múla er tekinn að fisksamlaginu fyrir Austfirðinga, þó að Austfirðingar sjálfir æski ekki eftir að hafa hann að verki við eitt eða annað. Tilgangur íhaldsins með að flytja til- lög uum launanefnd er sá, að geta sagt við fátæklinga landsins: Okkur ofbýður kostnaður ríkisins við embættisrekstur landsins. Við höfum »ett sparnaðarnefnd. Og nú verður sparað. En við embættismenn kaupstaðanna segja þeir: Við vitum að laun ykkar eru of lág. Þið eruð samflokks- menn okkar, og við viljum hjálpa ykkur til launahækkunar. 1 þessu skyni höfum við beðið um að nefnd yrði skipuð og tillögur hennar koma fyrir næsta þing. Upp úr ára- mótunum ættu laun ykkar að geta hækkað. En í sinn hóp segja íhaldsleiðtogarnir um þetta mál: Við höfum leikið vel, sett launa- nefnd og tekið Kristján Albertson af Kveld-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.