Tíminn - 12.02.1934, Side 1

Tíminn - 12.02.1934, Side 1
 ©faíbbagi ? 6la6ðino er 1. jnttí. jArgangutinu foatar JO ft. ^fcjrei&sía »8 innþetmta d SangaDeg 1 ©. ©Jtat 2555 — 5>óstí>6l/ 90J XVIDL árg. Síldarverksmiðja ríkisins. Magnús Guðmundsson hefir | nú nýlega sett menn í stjóm síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði. En verksmiðju- stjórnin er lögum samkvæmt skipuð þrem mönnum, er at vinnumálaráðherra tilnefnir. í henni sátu áður Þormóður Eyj- ólfsson konsúll og bæjarfull- trúi á Siglufirði (formaður), Guðm. Hlíðdal landsímastjóri og Loftur Bjarnason útgerðar- maður í Hafnarfirði. Tveir þeir síðamefndu höfðu skor- azt undan að starfa í stjórn- inni áfram. 1 hina nýju verksmiðju- stjórn em nú settir Þormóður Eyjólfsson, Jón Þórðarson og Sveinn Benediktsson. Við setningu Þormóðs Eyj- ólfssonar, sem verið hefir áður formaður verksmiðjunnar, er ekkert að athuga. Hann er einn þeirra manna, sem kunn- ugastir eru sölu síldarafurða og hefir fylgst með verk- smiðjumálinu og rekstri verk- smiðjunnar frá byrjun. En setning hinna tveggja er. í mesta máta athugaverð. Verksmiðjan á að hlíta stjórn keppinauta sinna. Um Jón Þórðarson, sem er maður búsettur á Siglufirði, mun í sjálfu sér ekki vera neitt sérlega ámælisvert per- sónulega. En á setningu hans eru þó þeir meinbugir, að al- gerlega óverjandi er, að setja hann til þessa starfs. Haim er sem sé umboðsmaður h/f. Kveldúlfur á Siglufirði og á þar að gæta hagsmuna þess fé- lags. Nú er það vitanlegt, að h/f. Kveldúlfur rekur sjálfur síldarvinnslu, þ. e. a. s. alveg samskonar framleiðslu og síld- arverksmiðja ríkisins. Kveld- úlfur er því aðal keppinautur ríkisverksmiðjunnar hér á landi. Það liggur alveg í augum uppi, a. m. k. meðal allra þeirra, sem nokkuð þekkja til viðskipta, hversu hættulegt það getur verið fyrir hvaða fyrirtæki sem er, ef aðal keppinautar þess hafa aðgang hvenær sem er að öllum áform- um þess og „viðskipta leynd- armálum“. I ótalmörgum til- fellum getur þetta stórskaðað fyrirtækið. Ekkert einkafyrir- tæld myndi taka slíkt í mál. Og engum ráðherra getur dott- ið í hug að gera slíka ráð- stöfun um ríkisfyrirtæki, nema hann annaðhvort sé algerlega skilningssljór á þessa hluti eða beinlínis vilji fyrirtækið feigt. Sveinn Benediktsson. Setning Sveins Benedikts- sonar er, þó með öðru móti sé, einnig algerlega óverjandi ráðstöfun. öllum landslýð er það minnisstætt, með hverjum hætti Sveinn hvarf úr verk- smiðjustjóminni og burt af Siglufirði sumarið 1932. Eng- inn maður í landinu er jafn illa þokkaður af alménnipgi á Siglufirði og einmitt Sv. B. Sökum óvinsælda sinna varð hann að hrökklast þaðan á al- veg óvenjulegan hátt, og þó að þar væri vafalaust ekki lög- lega að farið, gafst dómsmála- ráðherrann (M. G.) þá alveg upp við það að rétta hlut hans eða koma fram lögum við þá menn, sem að þeim atburðum stóðu. Svo megn var andúðin á þessum manni, að M. G. virðist ekki hafa þorað annað en að láta hann fara úr verk- smiðjustjóminni og láta máhð niður falla. Verksmiðjan þarfnast ttrygg- is og velvildar. Með þessu óafsakanlega glap- ræði nú, setning Sveins í verk- smiðjustjórnina í annað sinn, þrátt fyrir allt, sem á undan er gengið, er vinnufriðnum á Siglufirði, vitandi vits, stofnað í voða. Hinu stóra ríkisfyrir- tæki, síldarverksmiðjunni, sem bæði ríkissjóður og fjöldi út- gerðarmanna og vinnandi fólks á mjög mikið undir, er og þar með sköpuð óhæg aðstaða. Verksmiðjunni er það út af fyrir sig ákaflega mikilsvert, að hún njóti velvildar þess fólks, sem að síldaröfluninni og síldarvinnslunni starfar. 1 þetta sinn hefði það verið alveg sjálfsagt, úr því að tæki- færið gafst, að setja í verk- smiðjustjórnina a. m. k. einn mann, sem verkamenn búsettir og aðfluttir á Siglufirði gátu skoðað sérstaklega sem sinn fulltrúa. Sú leið hefði verið vænleg til að skapa frið og ör- yggi um verksmiðjuna. Hvatt er á bak við? Menn munu almennt spyrj a um það, hvað ráði svo heimsku- legu tiltæki, sem hér er um að ræða. Sv. B. er á engan hátt sérlega eftirsóknarverður í þetta starf. Fjöldi útgerðar- manna og annara hefir meiri þekkingu á síldarafurðum og síldarafurðasölu en hann. Hér hljóta að búa launráð að baki, ef nokkuð veldur ann- að en grunnhyggni og forsjár- laust kapp. Það er því eðlilegt að spurt sé: Er íhaldsflokkurinn með þess- ari ráðstöfun vitandi vits að stofna til óeirða norður á Siglu- firði á næsta sumri í því skyni, að fá tækifæri til að senda ríkislögregluna norður og réttlæta þannig fjáraustur sinn á kostnað allra lands- manna, sem nú er farinn að mælast illa fyrir um1 allt land? J. p. og Sv. B. verSa aS fara. 1 lengstu lög mun þess vænst af íbúuni Siglufjarðar, að þeir stilli nú í hóf, þótt illa sé af stað farið, og láti ekki þessa óhæfilegu ráðstöfun valda vandræðum að óþörfu. En æskilegast væri það, að M. G. sæi nú svo sóma sinn, að láta þessa tvo menn, um- Reykjavík, 12. febrúar 1934 7. blað Utan úr heimi Rósturnar í París Alveg óvenjulegir atburðir hafa gerst í Frakklandi í sam- bandi við fjársvikamál Stav- iski. Tvö ráðaneyti hafa fallið á fáum dögum. Sextíu þúsund borgarbúa hafa tekið þátt í götubardögum móti 15 þús. hermönnum og lögreglumönn- um. Hundruð manna hafa særst og margir fallið á götum og torgum borgarinnar. Hversvegna gat þetta fjár- svikamál kveikt slíkan eld? Orsökin virðist auðsæ. Fjár- svikamálið skaðaði allan al- menning. Svikin voru fram- kvæmd í sambandi við sölu á fölsuðum verðbréfum, sem sparsöm alþýða keypti í góðri trú. En fjöldi háttsettra manna í landinu var í vitorði með svikaranum, og vegna þess tókst honum að féfletta svo marga. Þessi hluti þjóðar- innar heimtar rannsókn og að rannsóknin gangi jafnt yfir alla, líka þá hátt settu. Dala- dier var fulltrúi þessara manna og hans stjórn var líkleg til að geta lokið málinu á heiðarleg- an hátt. En nú hefir honum og stjóm hans verið hrundið. Hin mikla uppreist var gerð móti honum og til að hindra rannsókn á hneykslismáli, sem hefði sýnt spillingu íhalds- stéttanna í landinu, ef hún hefði náð fram að ganga. Sú stjóm, sem nú tekur við mun læra af reynslunni. Austurríkí. Seinasta árið hefir stjóm- málaaðstaðan í Austurríki verið sú, að einn maður, Dol- fuss, hefir öllu ráðið. Hann er studdur af miðflokknum, svo- nefndum kristilegum sósíalist- um, og nýtur einnig stuðnings heimvamarmanna, sem eru í- haldssamir og hafa komið sér upp árásarsveitum. Með þenn- an liðstyrk verður Dolfuss að slást til beggja handa. Annars vegar eru jafnaðarmenn, sem hafa haft mikið fylgi og hins- vegar nazistar, sem vilja sam- einingu Þýzkalands og Austur- ríkis og hefir töluvert fjölgað eftir að flokksbræður þeirra náðu völdum í Þýzkalandi, enda hafa þeir fjárstyrk þaðan og grunur leikur á, að þeir fái líka send vopn. Dolfuss hefir tekið hart á þessum andstæðingum báðum. Hann hefir lagt þingræðið á hilluna og beitt ýmiskonar þvingunarráðstöfunum. Margir ásaka hann fyrir, að leita ekki stuðnings jafnaðarmanna, þar sem hvorirtveggju eiga í höggi boðsmann Kveldúlfs og Svein Benediktsson, fara úr verk- smiðjustjórninni, áður en verk- smiðjan fer að starfa á næsta sumri. Setning þeirra er alveg ósæmileg, og almenningur í landinu getur ekki þolað það, að þannig sé í gáleysi og á- byrgðarleysi, farið með fyrir- tæki, sem ríkið er búið að leggja í á aðra miljón króna og stofnað er til að veita þús- undum manna atvimui. við nazismann. En Dollfuss segir: Mín hugsjón er að vernda sjálfstæði Austurríkis. Hefði ég gengið til bandalags við sósíalista, myndu öll íhalds- öflin hafa sameinast til mót- stöðu. Þingræðið getur verið gott, en það er varla hentugt, þegar allt leikur á jafn veikum þræði og hjá okkur. Þær að- ferðir, sem ég nota, eru nauð- vörn, gerðar til þess að bjarga sjálfstæði og framtíð Austur- ríkis. • Undanfarið hafa farið harð- orðar skeytasendingar milli Austurrílds og Þýzkalands, þar sem Dollfuss ásakar Þjóðverja þunglega fyrir undirróður í landinu og hefir á orði, að leita úrskurðar Þj óðabanda- lagsins. Má. gera ráð fyrir, að þar eigi eftir að draga til stærri tíðinda. Samvinnufélögin í Frakklandi Hinn mikli, franski sam- vinnumaður Charles Gide sagði, að Rín væri einskonar landa- mæri fyrir samvinnuna í Ev- rópu. Norðan við Rín þróaðist samvinnan vel og ætti sterk ítök í hugum fólksins. Fyrir sunnan gengi henni miklu ver að festa rætur. Það er að vísu rétt, að í hin- um germönsku löndum hefir samvinnan náð mestum þroska. En hún hefir líka náð að vaxa og orðið til mikilla bóta í ótal fleiri löndum. Fyrstu samvinnufélögin í Frakklandi voru stofnuð um 1860. Þróunin var hægfara, lengi vel, enda voru á árunum 1890—1912 harðar innbyrðis- deilur hjá samvinnumönnum sjálfum. Loks tókst fyrir at- beina Gide og fleiri að jafna ágreiningsmálin og ná fullum sáttum. Síðan hefir þróunin verið stórfelld og þó einkum eftir heimsstyrjöldina. Árið 1932 voru 2452 þús. meðlimir í neytendafélögunum frönsku. Ársveltan var 4046 milj. franka. Má geta þess til samanburðar, að 1928 var hún ekki nema 3552 milj. franka. Sýnir það, að kreppan hefir kennt mönnum að beina iim- kaupum sínum þangað, sem hægt var að gera þau bezt. Franska Sambandið hefir sjálft nokkurn iðnrekstur. Á t. d. 3 skóverksmiðjur og 1 saltnámu. Á þingi Frakka í vor komu íhaldsflokkarnir því til leiðar, að skattar voru hækkaðir á samvinnufélögunum. Sýnir það, hversu auðvaldið álítur sam- vinnuna hættulega, að það reynir að stöðva framgang hennar með ranglátri löggjöf. Sambandsþing frönsku sam- vinnumannanna í sumar varð því óvenju fjölmennt. Þar var ákveðið að hefja sterka sókn móti löggjöf íhaldsmanna. Einn- ig var samþ., að leggja mikla áherslu á það, að auka þekk- ingu ungra manna á samvinnu- stefnunni. Mikla athygli hafa vakið teikn- ingarnar af húsum Samvinnu- byggingarfólagsins og greinarnar um það, sem birtust í Nýja dagbl. í síðastliðnum mánuði. Hefir dag- lega verið spurt eftir þessum blöðum og sézt á því, að áhugi manna er almennur fyrir þessu máli. Nokkur eintök af blöðunum ér hægt að fá enn á afgr. blaðsins. Æ s k a n í landinu, íslenzku þjóðinni fjölgar um 1000 sálir áiiega. Á undanförnum árum hefir heim- ilafjölgunin eingöngu orðið við sjávarsíð- una. Fróðir menn segja, að á síðustu miss- irum hafi mannfjöldi á borð við þann, sem nú býr á Akureyri, bæz.t við í kaupstöðum og sjávarþorpum á ári hverju. Atvinnan við sjóinn hefir ekki nægt handa þessari viðkomu. í Reykjavík er stöðugt atvinnuleysi, og sama er sagan í ollum helztu kauptúnum landsins. Atvinnu- bótastyrkur, sem nemur mörgum hundruð- um þúsunda, er orðinn fastur liður á fjár- lögunum. Það fer til að skapa atvinnu í land- inu, og hana ekki alltaf nauðsynlega, því að annars er hungursneyð fyrir dyrum. Nábúaþjóðirnar þekkja annað stig enn hættulegra. Það er atvinnuleysisstyrkur. Þá er hraustum mönnum borgað fé tii að lifa, til að forða þeim frá hunguidauða, af því þeir hafa ekkert lífvænlegt að gera. Einn flokkur hér á landi, kommúnistafl., gerir kröfu um þessi framlög. Hann vill láta borga mönnum fyrir að gera ekki neitt, jafnhliða og hann vinnur að því að lama atvinnulífið í landinu. íslenzka þjóðin má vera glöð yfir því að fólkinu fjölgar. Landið er stórt, og það getur fætt og klætt miklu fleiri menn held- ur en nú búa hér. En það þarf að hafa fyr- irhyggju um að nota gæði landsins. Og þessi fyrirhyggja hefir ekki verið nógu mikil. Þess vegna er atvinnuleysi í landinu. Þess vegna vex atvinnuleysið. Og þess vegna vex í landinu ókyrrð og órói, sem vel getur orðið hættulegur lífi og fram- tíð íslenzku þjóðarinnar. Eftir síðustu kosn- ingum að dæma, eru um 3000 manneskjur í landinu, sem telja sig líklegar til að vilja byrja að sækja mál sín með ofsa og ofbeldi. Ég á þar við kommúnistana. Og jafnhliða því gerir nokkuð af verzlunar- og embættis- stétt landsins sig líklega til að vilja líka beita ofbeldi, fylgja stefnu, sem erlendis hefir sótt sín mál með morðum, brennum og hverskonar glæpsamlegu athæfi. Þessar öfgastefnur þróast bezt og mest hjá æsku landsins, í bæjunum. Menn spyrja eðlilega: Hvað verður um frelsi Islendinga, menningu, framfarir og sjálfstæði, þegar þetta unga fólk er búið að erfa ríkið, og farið að útkljá mál sín með brennum og blóðsúthellingum ? Flestir sæmilega þroskaðir menn munu viðurkenna, að ekkert nema eyðilegging fyrir land og lýð, muni leiða af því, ef stéttimar fara að útkljá skoðanamun sinn með ofbeldi*). Og samt nægir ekki fyrir eldri kynslóðina að svara óánægju æskunnar með gagnárás- um. Æskan getur verið á villigötum, og er það. En hún þarf framsýnnar handleiðslu með, en ekki riffilkúlur fyrir röksemdir og úrræði. Ólgan í æsku landsins kemur af því, að unga fólkinu finnst réttilega, að því séu flestar leiðir lokaðar. Tökum unglinginn í sveit. Mörg börn eru á sama bæ. Eitt þeirra getur máske fengið jörð foreldranna, að þeim fráföllnum. En hvað eiga hin að gera? Kaupa uppsprengda jörð. Húsa hana sæmi- lega, kaupa sér bústofn. Segjum að þetta sé hægt. Þá er ungi maðurinn búinn að fá jarðnæði, og bústofn. En hann er kominn í hengjandi skuldir, sem honum finnst óbæri- legt að rísa undir. Hann lítur yfir markað- *) Ég hefi í tveim ritgerðum í tímaritinu Samvinnan leitt rök að því, að ofbeldissteín- urnar, kommúnismi og nazismi, gætu eingöngu leitt bölvun og eyðileggingu yfir þjóðina. Einar Olgeirsson reyndi að mótmæla fyrri greininni, en hefir ekki enn reynt að svara hinni síðari. Jafnvel honum er það ljóst, að ekki er hægt að færa skynsamleg rök fyrir gildi byltingarstarf- serni á íslandi. J. J.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.