Tíminn - 23.05.1934, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.05.1934, Blaðsíða 1
(öjaíbbagx 6latsins et 1. jání. fÁrgatiguilnn fostar 10 f*. 2^fgreibsía ©8 inntjelrata á Saugaoeg 10. ©frai 2353 — póstíjólf 961 im Arg. Reykjavík, 23. mal 1934. 24. blað. Bændakúgun ,bændayinanna6 „Bændavinir“ berjast fyr- ir bændakúgun. Þau undur hafa gerzt í land- inu, að dálítill flokkur tiltölu- léga kauphárra opinberra starfsmanna í Reykjavík hefir myndað félagsskap með sér til að innleiða og festa, ef þeir fá því orkað, þá venju, að bænd- um í sveit sé borgað mun lægra kaup við sömu vinnu, heldur en áðkomumönnunum úr bæjun- um. I þessu skyni klufu þeir sig úr Framsóknarflokknum snemina í vetur. Til að við- halda þessari kúgun á bændum gefa þeir út blað, og senda sem gjöf á flestöll sveitaheimili. Til að fullkomna verk sitt, bjóða þeir fram sprengimenn í flest- um sveitakjördæmum til að reyna að skaða þann flokk, sem verið hefir síðan 1917 vamar- veggur um málefni sveitanna. En í tveim kjördæmum, Rang- árvöllum og Skagafirði, bjóða þeir ekki fram sprengiménn. Þeir vilja ekki spilla fyrir íhaldinu! Hvað segja vinnubækur Geirs vegamálastjóra? Móthreyfingin gegn réttleysi sveitanna í þessum efnum hófst í vetur er almennur bændafundur á Strönd í Rang- árvallasýslu samþykkti tillögu Sigurþórs í ' Kollabæ í einu hljóði, og mótmælti kröftug- lega því ranglæti að sveita- menn fengju minna kaup fyrir sömu vinnu á sama stað heldur en bæjamenn. Ástæðan var sú, að Þorst. Briem hafði gengið ákaflega langt í að nota sér at- vinnuneyð bænda í Rangár- vallasýslu sumrin 1932 og 1933, þegar verið var að byggja brýmar á Þverá og Markar- fljót. Hér fara á eftir nokkrar töl- ur uni kaupgjaldið, eftir bók- um vegamálastjóra. Verka- 'mennimir eru nefndir með bókstöfum sínum, en ekki fullu nafni. Mennimir með háa kaupið eru yfirleitt aðkomu- menn, en þeir með lága kaupið bændur og bændasynir: Brúargerð á Þverá sum- arið 1932 (21. ág. til 3. sept.). Vikuna 11.—20 júlí fengu sveitapiltar úr héraðinu við Þverárbrú eftirtöld daglaun: S. S. 16.00 S. J. 9.00 J. D. 16.00 J. J. 9.00 J. S. 17.00 G. E. 7.50 O. S. 14.00 B. S. 7.50 P. I. 11.50 Á. Þ. 7.50 P. P. 10.00 F. T. 750 S. Ó. 8.00 B. B. 9.00 O. G. 5.00 A. J. 7.50 G. E. 7.50 B. Ó. 5.50 J. G. 5.00 J. E. 7.50 S. G. 5.00 Ef rúmið leyfði, mætti taka upp úr vinnubókunum áþekk dæmi í hundraðatali um hinn gífurlega kaupmismun sumarið 1932 við Þverárbrú. Næsta ár er haldið áfram við Markarf 1 j ótsbrú. Markarfljótsbrú 30. apríl til 13. mai 1933. Menn skyldu ætla að Rangæ- ingar hefðu hækkað í kunnáttu og kaupi við að vinna að sama verki sumar eftir sumar, en svo er ekki. Sagan endurtekur sig hjá Þorst. Briem við Mark- arfljót 1933. Vinnubækur verk- stjóranna segja frá kaupinu á þessa leið: i S. S. 16.00 F. I. 7.50 J. D. 16.00 S. K. 7.00 í O. S. 14.00 A. S. 6.50 B. J. 12.00 K. J. 4.50 i M. S. 11.50 G. S. 6.50 H. J. 10.00 F. O. 4.50 Sömu hlutföll halda áfram allt sumarið. Þegar fer að vetra ! hverfa þeir, sem betur er j borgað til heimkynna sinna í 1 kauptúnunum. En fyrsta hálfa mánuðinn af okt. 1933 em um 30 menn að starfi austur þar. i Kaup þeirra er yfirleitt kr. 5— ! 6.50 á dag. Bændaþrælkunin ! naut sín nú til fulls. Tillaga Sigurþórs í Kollabæ. Mikil óánægja ríkti meðal manna, sem unnu við sömu i vinnuna með svo herfilega ólík- um kjörum. Engin sýnileg hugs un kom fram í kaupmismun- ■ inum, nema hinn ákveðni vilji ; yfirvaldanna til að borga bænd- ; unum sem allra minnst, senni j lega til að auka löngun þeirra ; til að hafa heimilisfang í sveit j framvegis. Stundum var, auk annars misréttis, hærra kaup á öðrum bakka árinnar heldur en j á hinum ! Menn geta skilið, að þessi kaupgreiðslumáti Þorst. Briem átti formælendur fáa í Rangár- þingi. Á hundrað manna bænda fundi í byrjun janúar s.l., kom i engin hönd upp til varnar rang- j lætinu, þegar Sigurþór Ólafs- | son bar fram og fékk sam- þykkta á Strönd 4. jan. s.l., til- lögu þá, sem hér fer á eftir: „Almennur íundur bænda í j Rangárvallasýslu skorar á ríkis- j stjórnina- að hlutast til um, að | sveitamönnum sé eigi greitt lægra i kaup íyrir sömu vinnu en kaup- j staðarmönnum, þegar um opinbera vinnu er að ræða og jafnframt sé samræmd betur en nú er, kaup- greiðsla i slíkri vinnu í hinunj \ ýrnsu héröðum landsins, par sem aðstaða og lífskjör eru svipuð“. Daginn eftir samþykktu Ár- nesingar sömu till. líka mótat- kvæðalaust. Báðir þessir almennu bænda- fundir höfðu verið boðaðir af 1 „bændavinunum" í Reykjavík, ! til að reyna að safna einhverju ! fylgi í sveitum á Suðurlandi j til framdráttar Þorst. Briem. j En nú voru bændur vaknaðir og j sókn byrjuð á móti ranglæti kaupgjaldsins*). Ný hreyfing frá Þingey- ingum. Á framboðsfundum mínum í vor 1 Suður-Þingeyjarsýslu, hreyfði ég aldrei kaupgjalds- málum þessum að fyrra bragði, og enginn maður lagði liðsyrði áníðslu Þorst. Briems á sveita- mönnum. En á fundi í Mý- vatnssveit, þar sem stadd- ir voru 40 bændur og bænda- synir frá flestum heimilum í sveitinni, kom fram og var samþykkt í einu hljóði þessi tillaga um opinbera vinnu: „Fundurinn lítur svo á, að ibúar sveitanna eigi að sitja fyrir þeirri atvinnu, sem ríkið veitir við vega- og brúagerðir í hverri gveit, og skorar á stjórn Fulltrúaráðs Fram sóknarfélaga i héraðinu, og mið- stjórn flokksins í Reylcjavík, að koma þeirri kröfu fram“. Tillaga um sama efni var litlu síðar samþykkt í einu hljóði á fundi í Reykjadal. Málið var nú komið inn á nýjan veg. Hugmynd Þorsteins Briems og „bændavinanna" var að halda sveitamönnum á sem lægstu kaupi við opinbera vinnu, borga bæjarmönnum hærra, stundum allt að því þre- falt hærra, og látast með þessu vera velgerðamenn sveitanna. Rangæingar og Árnesingar höfðu fyrstir og öflugast mót- mælt þessari ósvífni. Síðan koma Þingeyingar og drógu fram nýja hlið á máliiru. Þeir hafa á ýmsum stöðum nægileg- an vinnukraft til að taka að sér þá opinberu vinnu, sem þar er fáanleg. Þeir krefjast að •sitja fyrir aðkomumönnum. Þeir tala ekld um kauphæðina, því þeir telja sjálfsagt, að þar sé byggt á réttlæti en ekki kúgun. Aðstaða Þingeyinganna sýnir, að þeir ætla að hafa nýtilega atvinnu af opinberu vinnunni, og þá er um leið ákveðin aðstaða þeirra til kaupgjaldsins. Vesturland talar. Um sama leyti og Þingeying- ar hófu kröfuna um það, að sveitamenn ættu forgangsrétt að opinberri vinnu heima í hér- aði, varð bændakúgunarpólitík Þ. Briems fyrir sýnilegu áfalli á Vesturlandi. Einn hinn þekkt- asti bóndi vestur þar, Jón Fjalldal á Melgraseyri flytur á sýslufundi Norður-Isfirðinga mjög róttækar tillögur um kaupgjaldsmálið. Telur hann bændur hafa borgað mun hærra kaup en ríkið við opinbera vinnu í sveitum, að bændum sé skaði að þessu lága kaupgjaldi ríkissjóðs, og líka mikill skaði að því, að kaup sé lágt við sjávarsíðuna, því að þá dvíni þar markaðurinn fyrir sveita- vörur. Þessar tillögur Jóns Fjalldals höfðu alveg sérstak- lega lamandi áhrif á „bænda- vinina“ , því að þeir höfðu í vetur gert veg Jóns Fjalidal mikinn og með réttu látið hann njóta mikils hróðurs sem jarðabótafrömuð og umbóta- mann í héraði. Að fá slíkar til- lögur frá honum sýndi klofn- ingsmönnum að vonlaus bar- átta þeirra um að draga kaup af sveitamönnum, myndi ekki vera sem allra ljúffengastur kosningamatur. Ihaldið í Suður-Múlasýslu bregst „bændavinunum“. Nú átti Austurland eftir að segja sitt orð um stefnu Þorst. Briem og þar kom íhaldið í opna skjöldu. Magnús Gíslason frambjóðandi íhaldsins í hérað- inu, fær samþykkt að kaupið skuli í sýslusjóðsvinnu vera 9 kr. á dag í vor. I fyrra kúgaði ríkisstjórnin fátæka bændur og bændasyni í Suður-Múlasýslu að vinna fyrir 5 kr. á dag. Þeir reyndu að gera verkfall, en þá var þeim hótað, að ekki yrði snert á því að laga vegina í sýslunni. Þannig var mótstað- an brotin í það sinn. En þó að Mbl. þykist styðja Þ. Briem, þá reyndist sýslumaður Sunn- mýlinga ekki betur en þetta nú í vor. Blönduós lokar hringnum. Þorst. Briem var nú búinn að sjá í öllum fjórðungum lands- ins, hversu aðstaða hans þótti aum og vesalmannleg, og að það var sýnilegt, að hann myndi hrekjast fyrir straumn- um eins og lítið fis. Hann sá fáa vini koma sér til hjálpar. En á einum stað þóttist hann eiga tryggan talsmann og nokk- urs megandi, þar sem var Jón Jónsson í Stóradal. Um mörg undanfarin ár hefir Jón átt sæti í stjórn Kaupfélags Aust- ur-Húnvetninga og verið þar mikils ráðandi. Hefir hann sýnt talsverðan dugnað í því að eiga í langvarandi útistöðum um kaupgjald við uppskipun við hina blásnauðu verkamenn á Blönduósi. Hafði hann á þann hátt sett í hættu freðkjötið frá mörgum af kaupfélögum landsins veturinn 1931—32 með karpi sínu þar á Blöndu- ósi, þótt allt bjargaðist það seinna fyrir úrræði Jóns Árna- sonar framkvæmdastjóra. Nú munu þeir Jón Jónsson og Þor- steinn hafa hugsað sér að nota kaupfélagið á Blönduósi sem tilraunadýr, halda þar niðri kaupi, og sýna með því að þeir væru meistarar í því að láta fátæklinga vinna fyrir lítið, þó að þeir „stóru“ við Kreppusjóð þurfi sitt. Jón fær sitt fram, og það verður verkfall á Blönduósi. En íhaldsforkólfurinn Eggert Claessen lætur skip Eimskipa- félagsins sigla framhjá. Síðan lætur Magnús Guðmundsson skip ríkissjóðs sigla framhjá. Þá gefst Jón upp með tilraun sína, hækkar kaup verkamann- anna, semur við þá allnákvæm- lega til lengri tíma, m. a. að verkamenn á Blöndósi útvegi þá bændur, sem með þarf úr sveitinni við skipavinnu! í haust sem leið kljúfa þeir Þorst. Briem og Jón Jónsson Framsóknarflokkinn í þeirri von að þeir geti orðið uppbóta- þingmenn, þótt þeir falli í kjör- dæmum. En þeir gefa upp sem ástæðu, að ekki megi semja um kaup við menn í opinberri vinnu. Ríkisstjórnin má ekki semja við þá menn, sem hún ræður í vinnu. Þetta átti að vera til að tryggja það, að sveitamenn fengju nógu lágt kaup í vega og brúavinnu. Eft- ir nokkra mánuði sér Þorst. Briem sig einangraðan og fylg- islausan í málinu og Jón í Stóradal er búinn að hækka kaupið á Blönduósi, semja, og semja um að bændur héraðsins ráði sig hjá verkamannafélag- inu á Blöndósi- J. J. Sjónhverflngar Tryggva Þórhaiíssonar Það hefir fengið okkur mörgum fyrver- andi flokksmönnum og kjósendum Tr. Þ. hryggðar- og gremju, hvernig hann hefir iarið með álit sitt og virðingu í skrifum sín- um síðan hann fór úr Framsóknarflokkn- um. Þó virðist keyra um þverbak í gi’ein, er hann birtir í Framsókn 14. apríl og nefnir „Sj ónhveríingar“. Hann talar um það þar, eins og oftar, að „Bændaflokksmenn ‘‘ sýni hófsemi í rit- hætti, en fer þó jafnhliða beinum, lítilsvirð- ingarorðum um Framsóknarmenn, kallar þá magnaðar undirlægjur, og dróttar að þeim, að þeir sitji á svikráðum við bændur og annað sveitafólk. Hami gengur jafnvel svo langt, að líkja Framsóknarmönnum við mann, sem hann telur „frægastan að endemum" í sögunni í því að svíkja og blekkja aðra. Þessu til sönn. unar telur hann svo að þátttaka manna í flokksþinginu hafi verið fölsuð um allt að helmingi, þótt kunnugt sé að kjörbréf hvers fulltrúa væri athugað og úrskurðað af sér- stakri kjörbréfanefnd, kosinni á flokksþing- inu. Þá telur hann, að „eigi íáir“ af mið- stjórnarmönnum flokksins séu gengnir úr honum, án þess að nefna nokkur dæmi, og þótt kunnugt sé að flestallir miðstjórnar- mennirnir væru mættir á flokksþinginu og séu alkunnir áhugamenn flokksins. Þessar aðdróttanir um fals og blekkingar Framsóknarmanna eru svo augljós ósann- indi að enginn mun trúnað á leggja, og eru því eingöngu Tr. Þ. sjálfum til vansæmdar og persónulegum velvildarmönnum hans til skapraunar. Stórfelldasta ásökunin í þessan grein Tr. Þ. er þó það, að hann gefur í skyn, að inn- an Framsóknarflokksins hafi jafnan verið hópur manna, sem setið hafi á svikráðum við bændur og landbúnaðarmál. En sér hafi tekist að halda þeim niðri með meirihluta- valdi þangað til í vetur. Hann segir: „Ágreiningur varð margsinnis áður í Fram- sóknarflokknum gamla. Við sem vorum trúir málefnum bændanna höfðum meiri- hluta nálega alltaf þangað til á aukaþinginu í haust“. Og á áframhaldinu má skilja, að þeir hafi gjört vel, að vera ekki löngu búnir að reka þessa menn úr flokknum, saman- borið við tíðindin í vetur. Þetta eru svo gífurlegar sakargiftir gagn- vart fyrverandi samherjum, og núverandi forráðamönnum Framsóknarflokksins, að krefjast verður þess að færð séu ítarleg rök fyrir þeim. Ég vil því leyfa mér að skora á Tr. Þ. að gjöra fulla grein fyrir því, við hvað hann á með þessum þungu ásökunum. Ella getur hann ekki vænzt þess að þeir sem enn kunna að taka eitthvert mark á því sem hann seg- ir, gjöri það íramvegis. Kjósandi í Strandasýslu. I.eynióskir íhaldsmanna. Eitt af því, sem „bændavinirnir“ forðast að minnast á, er ofbeldisverk nazistanna og einræðisþankar íhaldsflokksins, er gerast Öðru hvoru all áberandi. Um öll þau mikilsverðu mál, sem kosið verður um 24. júní, er eitt, sem íhaldið og „bændavinirnir“ drepa aldrei á. Það er sá voði, sem vofir yfir, ef flokkur íhaldsmanna með bandamenn sína, nazista og „bændavinina“ kemst til valda. íhaldið hefir svo oft opinberað hug sin-n til einræðisstefnanna, að ekki er ef á um það, að þingræðið er því einkis virði ef hið 1000 ára gamla lýðræðisform Islendinga stendur valdadraumum þess í vegi. Kjósendurnir verða að skilja það, að ó- gæfa kúgunarinnar og ófrelsisins, sem nú ríkir svo miskunnarlaust um stóran hluta Evrópu á sér talsmenn hér á landi og þá fleiri en margan grunar — innan íhaldsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.