Tíminn - 23.05.1934, Side 3
T í M I N PT
Ná vilja þeir þegja
- og láta gleymast
í>að er ixokkuð bersýnilegt
undanhald hjá „bændavinun-
uxn“ um varnir í áníðslu sinni
á sveitunum.
1. í>eir þegja við því, að tveir
íjölmennir bændafundir á öuð-
urlandi mótmæla einum rómi
kaupkúgun Þ. Br. í opinberri
vinnu og ranglæti í fram-
kvæmdum.
2. Þeir þegja við því, að
bændafundir í Þingeyjarsýslu
heimta opinberu vinnuna í hér-
aðinu til handa bændum og
hafa þá um leið áhuga fyrir
réttlátu kaupi.
8. Þeir þegja um að eini
bóndinn á Vesturlandi, sem
þeir státa af að fylgi þeim,
hefir opinberlega ráðizt á alla
hði í bændaáníðslu Þ. Briems.
4. Þeir þegja um að Jón í
Stóradal hefir orðið semja um
mikla kauphækkun á Blönduósi
við verkamenn, og afhenda
þeim yfirráðin í skipavinnu á
staðnum yfir bændum, sem þar
þurfa að vinna.
5. Þeir þegja um, að Þorst.
Briem lét í haust sem ieið taf-
arlaust undan hóp af kjósend- j
um Á. Á., sem heimtuðu veru- j
lega kauphækkun handa öllum,
og fengu hana, í brúarvinnu
skammt frá Þingeyri.
6. Þeir þegja um, að Tr. Þ.
og Geir Zoéga sömdu við Al-
þýðusambandið veturinn og
vorið 1930, um vissan kaup-
taxta í hverri sýslu, hækkuðu
kaupið um allt að 20%, og hafa
látið ómótmælt að Tr. . hafi
lofað meiri hækkun vorið eftir.
7. Þeir þegja um, að Tr. Þ.
og G. Zoega framkvæmdu þessa
miklu hækkun upp á eigin ein-
dæmi. Bændur fengu „ekkert í
staðinn".
8. Þeir þegja um að G. Z.
borgaði Breiðdælingum 5 kr. á
dag í vegavinnu í fyrravor. Nú
hafa íhaldsmenn í sýslunefnd
Suðurmúlasýslu hækkað kaupið
úr 5 í 9 kr.
9. Þeir þegja um að ég hafi
tvisvar lýst sök opinberlega á
hendur Þ. Br. og G. Z. umi
ranglæti í kaupborgun, þar sem
Árnesingar og Reykvíkingar
unnu á Hellisheiði í vetur, Ár-
nesingar fyrir 75 aura um tím-
ann. Reykvíkingar fyrir 1,20
kr. Sama vinna á sama stað.
10. Þeir þegja um dæmi eins
og það, að tveir synir bónda í
Þingvallasveit vinna í opinberri
vinnu sitt til hvorrar handar
við bæinn. Annar er 10 daga
að vinna fyrir því kaupi, sem
hinn fær á 6 dögum. Báðir full-
orðnir.
11. Þeir játa sök sína við
umrædda vinnu við Markar-
fljót og Þverá. Þeir hafa borg-
að verkamönnum\ úr kaupstöð-
unum hærra kaup, stundum allt
að helmingi, stundum allt að
Va hærra en sveitamönnum.
Vegamálastjóri er einn til frá-
sagnar um, hvort duglegir
verkamenn úr Rangárvallasýslu
dugðu miður til að beygja járn.
teina í steypuna, heldur en að-
komuverkamenn.
12. Þ. Br. getur ekki dulið
gremju sína yfir því, að endur-
skoðandi LR. skyldi ekki hjálpa
til að fela ósamræmið um kaup
gjaldið. Hversvegna má þjóðin
ekki vita um ranglætið í ltaup-
greiðslum stjórnarinnar?
13. „Bændavinirnir" þegja
mn það, að þó að þeir vilji hafa
bændur á 50 aura tímakaupi
við eríiðisvinnu í sveit, þá
Iwrgar Kreppulánasjóður að
sögn embættismanni á 6000 kr.
eftirlaunum kr. 2,50 um tímann
við að skrifa upp skuldir bænda,
að Þ. Br. borgar Tr. Þ. 7200
kr. árslaun fyrir eftirvinnu við
kreppumálin, að Jón í Stóra-
liáliiiDiinisrir
illskoiir
tyrir skip og hús.
Titanhvíta, chemisk hrein,
Blýhvíta, fl. teg.
Zinkhvíta, fl. teg.
Dekkhvíta, fl. teg.
Þurrir litir, 40 mism. litir.
Rifin krít.
Olíukítti í 6%, 12f/a og 25 kg.
dunkum.
Hvítt Japaniakk, fl. teg.
Hvítt Mattlakk, fl. teg.
Lagaður farfi, allir litir.
Hvítur Mattfarfi.
Grár Skipafarfi.
Vélalakk, allir litir.
Aluminium-, gull- og kopar-
brons.
Broncetinktura.
Fernisolía, ijós og dökk.
Þurkefni, fl. teg. .
Terpentína, frönsk og aænsk.
Mislit lökk, alhr litir.
Glær lökk, allskonar.
Menja, chem. hrein.
Hrátjara, prima aænsk.
Blackfemis.
Carbolineum.
Calisium þaklakk, (svart).
Asfaltbik 48,00 pr. 160 kg. tn.
Stálbik.
Botnfarfi í tré- og járnskip.
Lestarfarfi.
Medúsamálning.
Málningaruppleysari.
Trélím, fl. teg.
Vítissódi.
Ryðklöppur.
Stálburstar, t'l. teg.
Stálsköfur, fl. teg.
Sandpappír.
Kíttisspaðar, fl. teg.
Málningarpenslar,
80 teg. og stærðir,
og allt annað, sem að málningu
lýtur.
Hvergi betri vörur.
Hvergi lægra verð.
0. Eilingsen
N.B. Leitid tilboda.
dal veitti sér 20 kr. kaup á
dag við sama, að Hannes á
Ilvammstanga fær 1000 kr.
fyrir tveggja daga vinnu við
að endurskoða verksmiðjuna á
Siglufirði, og að hann fær 450
kr. mánaðarlega fyrir eitt af
sínum fimm aukastörfum hjá
víkissjóði.
14. Niðurstaða málsins er sú,
að „bændavinimir“ eru á flótta
um hvert einstakt atriði í mál-
inu. Vegna framkomu Jóns
Jónssonar og H. J. fá bændur
enga verðhækkun á vörum sín-
um, sem annars hefði verið
komin fram með bráðabirgða-
lögum, sem kosningar hefði
staðfest. Á hinn bóginn eru
bændur um allt land komnir í
sóknaraðstöðu við stjómina og
vegamálastjóra. Bændur vilja
fá að sitja fyrir opinberri
vinnu í sveitunum, og njóta
réttlætis í kaupgreiðslu. Stjóm-
in og sýslunefndir semja og
hækka eins og Þ. Br. við kjós-
endur Á. Á. eins og Magnús
Gíslason í Suður-Múlasýslu,
eins og Jón Jónsson á Blöndu-
ósi, eins og Tr. Þ. við Alþýðu-
sambandið 1930, er hann hækk-
ar kaupið um allt að 20% og
gefur fyrirheit um meira næsta
ár. Enginn er með veslings
„bændavinunum“ nema sveita-
pilturinn, sem er nýbúinn að
fá bitling við refarækt hjá
Búnaðarfélagi íslands. Hann er
eins og þeir stóru í Kreppu-
lánasjóði, og ánægður með sitt
hlutskipti. En bændastéttin bið-
ur ekki um „náð“, aðeins rétt-
leeti. J. J.
A,dalfundnr
Iþróttasambands Islands
verður haldinn í Iðnó í Reykjavík, dagana
28. og 29. júní n. k.
Dagskrá samkvæmt 7. og' 10. gr. laga Í.S.Í. Fulltrúar
eiga að mæta með kjörbráf.
Stjórn I. S. I.
ÍJtvegsbanki tslands h.f.
Aðalfundur
Otvegabanka laiands hi. v*rðurh*ldinn í Kaupþtngsaalnum,
Pósthúastræti 2 í Reykjavík, laugard. 2. júní 1984 kl. 2 e.h.
Dagskrá:
1. Skýrsla fulltrúaráðsin* um starfsemi Útvegsbankans síðast-
liðið starfsár.
2. Framlögð endurskoðuö reikningsuppgjörð fyrir ái’ið 1988.
8. Tillaga um kvittun til framkvæmdarstjómarinnar fyrir
reikningsskil.
4. Kosning tveggja fulltrúa í fulltrúaráð.
5. Kosning 2 endurskoðunarmanna.
6. önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir í skrifstofu
bankans frá 29. maí, og verða að vsra sóttir í síðasta lagi
daginn fyrir fundinn. Aðgöngumiðar verða ekki afhentir nema
hlutabréfin sé sýnd. Útibú bankans, ennfremur Prívatbanken
í Kjöbenhavn og Hambros Bank, Ltd., London, hafa umboð
til að athuga hlutabréf, sem óskað er atkvæðisréttar fyiir að
gefa skilríki um það til skrifstofu bankans.
Reykjavík, 4. aprfl 1934.
F. h. fulltrúaráðsins.
St. Guðmundsson.
Héraðssköisnn á Laugum
starfar næsta vetur frá fyrsta vetrardegi til sumars.
Auk bóklegra greina verður kennt leikfimi, sund, söng-
ur og handavinna. Smíðar verða og kenndar sem séf.
nám. — Skólahúsin eru raflyst.
/
I fjarveru minni í sumar tekur Konráð Erlendsson
kennari, Laugum, um Einarsstaði, við umsóknum og
veitir upplýsingar um skólann.
Leifur Asgeirsson.
Sö ilasmí ðabúðin
SLEIFNIR
Laugavegi 74 * *
selur ódýrast og bezt: Reiðtýgi, aktýgi og allt annað tilheyr-
andi söðla- og aktýgjasmíði.
Fyrsta flokks efni og virma. Hröð og ábygileg afgreiðsla.
Aðgerðir afgreiddar fljótt og vel. Vörur sendar um allt land.
Sleipniv
Sími: 3646.
Yerðskrá
Matarstell 6 m. nýtízku
postulín............26.60
Kaífistell 6 m, nýtízku
postulín............12,80
Skálasett 6 st,, nýtízku 5.00
Ávaxtasett 12 m. postul. 6.75
Ávaxtasett 6 m. postul. 8,75
Skálar ekta krystall frá 6.50
Blómavasar postulín frá 1.60
Mjólkurkönnur, 1 1. postul. 1.90
Dömutöskur, ekta leður frá 6.50
Vekjaraklukkur, ágætar 5.50
Vasaúr, 2 tegundir 12.50
Sjálfblekungar með glerp. 1.50
— með 14 k. gullp. 5.00
Barnadiskar með myndum 0,75
Baniamál með myndum 0.50
Bamafötur og skóflur 0.25
og ótal margt fallegt,
en J>ó ódýrt.
K. Eínarsson & BjörnssoD.
BankastræH 11.
Síml: 3646.
Kolaverzlun
SIGURÐAB ÓLAFSSONAR
fUmw.i KOIu Reykjavík. Siml 1SS3.
Lax. og silungsveiðarfarL
SilungMtangir úr itáli, frá kr.
3,85 til 12,00. Silungastangir úr
banxbus, frá kr. 4.50 til 110,00. —
Laxastangir frá kr. 30,00 til 160,00.
Laxa- og silungahjól frá kr. 3,00
til 00,00. Laxalínur úr silki, wat-
arproof, frá kr. 0,00 til 29,00 pr.
100 yds. Silunga- og laxaflugur
fré k.r. 0,50 til 1,50. Gerfibeita
(Spoons og Minnows) allskonar,
mjög stórt úrval og ódýrt. — Viö
afgraiöum pantanir gegn póstkröfu
um land allt. Við höfum meiri,
fjðlbreyttari og ódýrari birgðir en
nokkru sinni áður. —Kynniö yð-
ur það sem við höfum að bjóða,
það mun borga sig fyrir yður,
snru síður »n okkur.
8portvöruhás Reykjavikur,
Reykjavik.
89
nazistar í málgagni sínu, að þessi árín hafi
þeir samvinnu við Sjálístæðismenn og bætir
svo að þessir tveir flokkar hafí myndað
einskonar viðreisnarbandalag Reykjavíkuri
Nazistar gáfu nú út hverja yfirlýsinguna
af annari (sbr. Tímann 24. apríl s. 1.) um
að þeir ættu tvo íulltrúa á lista íhaldsins,
að þar væri fullt samkomulag, og að þeir
bæðu hð sitt að „kjósa hinn sameiginlega
iista“ þessara flokka. Daginn fyrir kosn-
inguna gekk Jón Þorl. svo endanlega undir
jarðarmenið og þakkaði nazistum opinber-
lega í Mbl. fyrir stuðning þeirra, og segir
sið sér só það „ijúft og skylt“.
Dýpra hefir enginn svokaliaður leiðtogi að
lýðræðisflokki fallið. Honum er ljúft og
skyit að þakka fyrir stuðning stefnu sem
neíir fyrir yfirlýst takmark að rjúfa þjóð-
skipulagið, koma á innanlandsstyrjöld, af-
námi alls frelsis í landinu, og hlyti að kasta
þjóðinni í kúgunarhlekki erlendrar þjóðar.
Hið auðvirðilega samband nazista við
iiialdsflokkinn var nú orðið öllum ljóst, svo
að ekki varð á móti mælt. En 22. apríl s. 1.
birti Mbl. ræðu Ólafs Thors, frá setningu
ílokksþings íhaldsmanna. Þar segir Ó. Th.
beinhnis að hann og hans lið stefni að því
að afnema prentírelsið og að það sé nauð-
synlegt flokki hans til sinna þarfa. Hvers-
vegna þolir íhaldið ekki prentfrelsi eins og
aðrir flokkar? Ó. Th. býst við að flokkur
sinn muni vilja framkvæma verk sem betra
sé að hægt verði að leyna fyrir þjóðinni.
Engin menntuð þjóð afnemur prentfrelsi.
Það er hvergi gerf, nema þar sem stjómir
brjóta stjórnarskrána, þar sem ofbeldismenn
og ódrengir rjúfa eið sinn að hiíta lögum
landsins. Tiilaga Ó. Th. um að afnema prent-
frelsið í þágu íhaldsflokksins er sú gífur-
legasta ásökun á siðferði þess flokks, sem
nokkurntíma hefir fram komið.
Og á flokksþinginu flutti flokksprestur
íhaldsins, Knútur Arngrímsson, ræðu, sem
nú er búið að dreifa út um land til þúsund
heimila. Það skiptir ekki miklu máli að þessi
prestur haiði hrakizt úr prestsembætti á
Húsavík fyrir að yrkja klám og níð um; eitt
sóknarbarn sitt. Það er einmitt sýnishom af
því hverskonar láglýður gengur í sameigin-
lega þjónustu nazismans og íhaldsins. Hirð-
prestur íhaldsins lætur sér ekki nægja að
afnema prentfrelsið vegna íhaldsins. Haxm
segir, að það verði að leggja allt andlegt líf
í landinu í hlekki, skáldskapinn, kvikmynda-
húsin, leikhúsin, kirkjurnar og skólana.
Kxiútur segir að ef íhaldið ætli sér að halda
völdum í landinu stundinni lengur, verði
hann að taka sér til fyrirmyndar þá flokka
ei’lendis, sem með ofbeldi og glæpum hafa
lagt í rústir þjóðskipulag og menningu
merkilegra ríkja með því að afnema allt
frelsi, með því að innleiða skrílræði.
Jón Þorl. og Ólafur Thors, formaður og
varaformaður íhaldsflokksins hafa þannig
opinberlega tekið nazismann að sér, hrósað
stefnu þessari, notað hana, gengið í banda-
lag við hana um kosningar, og loks fengið
útskúfaðan og auðnulausan prest, sem er út-
lagi úr kirkjunni til að skrifa opinberlega
fyrir flokkinn og sent það út fyrir kosn-
ingar, að það þui'fi að drepa allt andlegt
frelsi í landinu, ef Ihaldsflokkurinn eigi að
,-geta haldið völdum.
Einn hinn mei’kasti prestur á landinu
sagði nýlega við mig, með fullum viðbjóði á
bai'dagaaðferðum kommúnista og nazista
þessi merkilegu orð: „Frelsið er lífið“. Ef
þjóðin glatar frelsi sínu er líf hennar þrot-
ið. I einum af stj ómmálaflokkum landsins
er nokkuð af liðinu heltekið af banvænni
pest, svörtu sýkinni, nazismanum. Aðeins
‘ eitt átak getur hljóðalaust læknað þessa
sýki í þjóðfélaginu, og frelsað þjóðina frá
því að þurfa að berjast með þungum fóm-
um við hina pestnæmu sótt. Friðsamir og
menntaðir tslendingar geta læknað íhaldið
af fylgi vi'ð glæpastefnuna ex-lendu, með því
að hríðfella nú við kosningarnar frambjóð-
endur þess flokks, sem hefir gengið í opin-
bei't bandalag við hi’eyfingu, sem stefnir að
því að leggja frelsið og þjóðskipulagið í
rústir. J. J.
Gísll SigurbjörnssoD
Söðlasmiður.
Laugavegi 72. —- Sími: 2099
smíðar reiðtygi fyrir konur,
karlmenn, telpur og drengi.
Beisli, töskur og ólar, aktygi
o. fl. — Vönduð vinna og efni.
Mjög lágt verð. Vörur afgreidd-
ar út um land.