Tíminn - 11.09.1934, Side 4
T í M I N N
öðru lyfi en því, sem fá má á rannsóknar-
stofu Háskólans og sem reyndist vel í fyrra
og virtist víða bjarga fénu frá óþrifum og
uppdrætti.
1 fyrra var meðalið selt í pillum á stærð
við lambaspörð, en nú er það selt í brúsum,
lítri í hverjum brúsa, og því hæfileg inn-
gjöf handa 200 fjár. Brúsinn mun kosta um
6 krónur og sprauta til að gefa inn með um
kr. 1.50. Þetta er vitanlega aukakostnaður,
en þeir sem þurfa að gefa hröktu heyin,
ætti ekki að horfa í hann og sprautuna
geta margir átt saman.
1 þriðja lagi ættu menn nú að gæta þess
vel að reyna að láta mótstöðuafl fjárins
ekki minnka áður en það er tekið í haust.
Það verður gert ódýrast með því að byrja
að hýsa féð tímanlega og gefa því þá ofur-
lítið af síldarmjöli með, t. d. 20—25 grömm
á kind. En þess má vel gæta, þegar snemma
er farið að hýsa, að stytta ekld um of beit-
ai'tímann, og það má vel vera, að víða hagi
svo til, að betr sé að gefa síldarmjölið í
stokka í haganum, en að reka féð heim til
hýsingar. Hvorttveggja getur aftrað megi'-
un, en það er aðalatriðið.
1 fjórða lagi þarf að gefa fóðurbæti með
hröktu heyjunum. Með beit er síldarmjölið
bezt, á því leikur enginn vafi. En standi
kindin inni, er það ónóg með hröktum
heyjum. Þá þarf að blanda það hafra-
fóðurmjöli, eða maís. — Trúlegt er líka,
ao lítil lýsisgjöf með sé nauðsynleg og gild-
ír jafnt hvort sem beitt er eða gefið inni.
í fimmta lagi hygg ég að menn eigi nú
eins og raunar æfinlega að nota beitina eins
og mögulegt er. Hún mun reynast betri en
heyin í vetur, en vitanlega má ekki oftreysta
iienni, frekar en öðru.
í haust þurfa menn að birgja sig upp af
nægum fóðurbæti handa fénu. Má þá ætla,
að auk venjulegs heymagns þurfi þeir, sem
eiga hröktu heyin að ætla kindinni um 60
grömm af fóðurbæti á dag, tómt síldarmjöl,
þegar beitt er að ráði, en allt að 1/3
blandað hafraíoðui'mjöli þegar inni stendur.
Verzlanir þurfa að vera birgar af fóður-
bæti til vetrarins, því þess er vart að vænta,
eins og kaupgeta bænda er, að þeir þegar í
naust geti birgt sig upp vetrarlangt og
tryggja þarf það, eins og Árni G. Eylands
benti á hér í blaðinu, að nóg síldarmjöl
verði til í landinu, og' þá helzt á þeim höfn-
um, sem mest eru líkindi til að það verði
notað, því þess eru dæmin, og þau mörg,
að ekki hefir verið auðflutt á milli hafna
að vetrinum þegar hafís hefir teppt eða lok-
að siglingunum.
Ekki eru líkur til þess, að kýr í vetur
komizt í nema mjög lága nyt, af hröktu töð-
unni. Mér þætti gott ef 20 marka kýrin
gæti komizt í og haldið sér í 10 mörkum,
eftir því sem látið er af töðunni víða á land-
inu.
Vilji menn láta kýrnar mjólka vel í vet-
ur, þá er öldungis óhjákvæmilegt að gefa
þeim fóðurbæti. Er það þá auk ærkjötsins,
sem áður er bent á, síldarmjöl og maís eða
síldarmjöl og hafrafóðurmjöl, sem bezt er
að gefa. Er því þá blandað saman þannig,
að 1/4—1/3 verði af síldarmjöli, en hitt
maís eða hafrafóðurmjöl.
Hver bóndi verður, áður en hann fer að
gefa fóðurbætinn, að leggja niður fyrir sér
hvort það borgi sig. Verður hann þá annars-
vegar að taka verð eins kíló af fóðurbæti og
hinsvegar hvað hann geti fengið fyrir
mjólkuraukann, annaðhvort með því að selja
hann eða nota hann í bú sitt, og má hann þá
reikna með því að hann fái 2—3 kg. af
mjólk fyrir eitt kg. af fóðurbæti. Þó gildir
]>etta vitanlega ekki, hvað hverja einstaka
kú snertir lengra en sem nemur því, sem
henni er eðlilegt að geta mjólkað, en það
þekkir bóndinn af fyrri reynzlu sinni af
kúnni.
Ég hefi þá nokkuð reynt að lýsa hvemig
ástandið er með heyjaforðann og heygæðin
undir veturinn. Jafnframt hefi ég bent á'
það, sem ég tel að menn þurfi sérstaklega
að hugsa um viðvíkjandi undirbúningi und-
ir hann og viðvíkjandi því, að sleppa sem
bezt yfir hann. En á það vil ég svo benda
síðast, sem mestu skiptir, en það er dugn-
aður, hagsýni og búmannsvit einstakling-
anna. Það skiptir ef til vill allra mestu. En
það byggist aftur á þekkingu þeirra á bú-
skapnum, trú þeirra á sjálfa sig og landið
sitt, og því, hve heilir þeir eru í því starfi,
sem þeir hafa með höndum. Og því má eng-
inn gleyma, að það, að starfið, hvort sem
það er bóndastarfið eða annað, fari vel úr
hendi, byggist fyrst og fremst á því, að að
því sé unnið með alhug og óskipt af þeim,
sem það eiga að framkvæma.
30. ágúst 1934
P. Z.
P. W. Jacobsen & Son
Timburverzlun
Símnefni: Granfuru.
Stofnaö 1824.
Carl Lundsgade Köbenhavn.
Afgreiðum fré Kaupmannahöfn bœöi stórar og litlar pantanir og
heila skipsfarma frá Sviþjóö. — Sís og umboössalar annast pantanir.
EIK OG EFNI t ÞILFAR TIL SKIPA.
Girðingarefni
Girðingarnet allar venjulegar gerðir.
Garðanet
Refanet
Hænsnanet
Járnstaurar
Víriykkjur
Samband ísl. samvínnufélaga
Hvernig sem mjólkurlögin verða, verð-
ur mjóikin altaf að vera hrein þegar
hún kemur úr fjósinu.
Notíð ARGDS vattbotnaí mjólkursigtin
%
Samband ísl. samvinnufélaga
Sjálfs er
höndin
hollust
Kaupið innlenda framleiöslu
þegar hún er jöfn erlendri og
ekki dýraii.
MAUSER fjár- og stórgripabyssur
á kr. 20,00.
Sport-rifflar kal. 22, með 60 cm.
hlaupi á kr. 30,00.
Super-X riffla og fjárbyssu skot
eru 50% kraftmeiri en
venjuleg skot.
JJað bezta er ódýrast.
SPORTVÖRUHÚS REYKJAVÍKUR,
Reykjavík.
Kolaverzlun
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
Sínin.: KOT,. Reykjnvfk. Simi 19T3.
Nvja Flóra
er nú komið á markaðinn og selst nú um land allt.
Enn á ný höfum við
lækkað verðíð stórkostlega.
Það er tvöfaldur hagnaður að kaupa nýja Flóra smjörlíkið
Það er bezt. Það er ódýrast
Húsmæður! Biðjið aðeins um Flóra smjörlíkið.
Kaupfélög og kaupmenn! Sendið pantanir yðar til
Smjörlikisgerðarinnar Flóra
Akureyri.
John Ingíis & Sons
Millers,
Leith Edinburgh 6.
Vörur vorar eru alþektar á íslandi FYRIR GÆÐI:
ING-LISH — blandað hænsnafóður.
INGrLISH — alifuglafóður.
INGLISH — maismjöl.
INGLISH — maís kurlaður og fleiri fóðurvörur.
Alt í „Blue Staru-sekkjum.
Pantanir annast.
framlefOir:
Kristalsápu, grsensápu, stansfa-
sápu, handaápu, raksápi:,
þvott&efni (Ilreins hvítt), kerti
allskonar, skósvertu, skóyulu,
leðurfeiti, jíólfáburO, vagn-
áburð, í ægilög og kreólin-bað-
lög.
Kaupið H R E IN S vörur,
þær eru löngu þjóðkunnar og
fást í flestum verzlunum landa-
ins.
Hí. Hreinn
Skólagðto. Bcykjavfk.
Sfmi i«25.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Prentsmiðjan Acta.
©
(@
(@
B e z t a
Munntóbakið
er frá
Brödrene Braun
KAUPMANN AHÖFN
Biðjið kaupmann yðar um
B. B. munntóbak
Fæst allsstaðar.
@)
@)
@)
Qi
Q)
^jj)
^i)
©©©©©©©©©oooooooo©©
i