Tíminn - 18.09.1934, Qupperneq 3
T í M I N N
61
Fyrsti réttardagnr
I gær var fyrsti réttardagur
víða um land. Heyskapartíminn
er að verða úti, og sláturtíð
fer í hönd. Eftir fregnum að
dæma, er útlit fyrir, að fé
verði sæmilega vænt í haust.
Og full þörf er á, að svo reyn-
ist, því að misjafnlega hefir
gengið að afla heyjanna á
þessu sumri.
Öuxmanlands og vestan hefir
heyskapurinn orðið sæmilegur.
hiorðan. og austanlands hefii'
sumarið aftur á móti verið
næsta eríitt. En þurkdagamir
í siðustu viku hafa að mestu
leyti bjargað því, sem bjargað
varð. I Suður-Múlasýslu sunn-
anverðri er þó úti 2—3 vikna
heyskapur, og svipað ei- i
Skaptafellssýslum. Eins og sak-
ii1 * * * 5 * * * * * ii standa er ástandið verst í
norðanverðri Strandasýslu. og
norðurhluta ísafjarðarsýslu.
Þar er enn úti helmingur af
fyrra túnaslætti.
Það er víst, að í vetur verð-
ur þörf mikillar fóðurbætis-
gjafar. Getur oltið mikið á
því, að nú séu tryggðar nægar
íóðurbætisbirgðir í landinu. Og
í því efni eru nú orðin hægust
heimatökin, þar sem síldar-
mjöhð er. Er það nú almennt
tahð notadrýgstur fóðurbætir
með hröktum heyjum. Og pen-
ingarnir fyrir það fara ekki út
úr landinu.
Oft hefir verið rætt um fóð-
urtryggingu opinberlega hér á
landi, og m. a. á síðasta Al-
þingi. Var þar samþykkt eftir-
farandi þingsályktun:
„Efri deild Alþingis ályktar að
slcora á ríkisstjómina, þegar svo
her undir, að grasbrestur eða í 11
nýting heyja verður þess sýnilega
valdandi í einhverjum héruðum
lnndsins, að óhjákvæmilegt verði
að tryggja bústofninn með því að
kaupa fóðurbæti, að gera þá í
tælca tíð ráðstafanir gegn því, að
selt verði svo mikið út úr land-
inu af síldarmjöli, að eigi verði
bætt úr þessari þörf. í þessu efni
leiti stjórnin tillagna Búnaðarfé-
lags íslands, sem á ári hverju
aflar, sér um það vitneskju, nægi-
l<ga snemma, hversu víðtækra
ráðstafana muni þörf“.
Þessi þingsályktun mun
koma mörgum í hug nú.. Og
vonandi er, að stjóm Búnað-
arfélags íslands hafi gætt vel
j skyldu sinnar, að safna í tíma
þeim upplýsingum, sem því er'
; ætlað að útvega. Sjaldan er
‘ meiri þörf á að félagsskapur
| bændanna sé vel á verði, en
• einmitt þegar eins stendur á
. og nú.
Fréttir
Dánardægur. Aðfaranótt 15. þ.
m. iézt liér í bænum frú Hólmfríð-
ur Pálsdóttir, móðir þeirra bræðra
Kristinssona, Aðalsteins, Jakobs
og Sigurðar. Hún var nærri 80 ára
að aldri, fædd 29. sept. 1854.
Sjúkrasamlag Reykjavikux átti
25 ára starfsafmæli 12 þ. m. Á
þessum 25 árum hefir samlagið
greitt samtals 1 milj. 680 þús. kr. 1
i sjúkrakostnað fyrir fólk, sem
tryggt hefir verið í samlaginu.
Rnnnsnkn er lokið í ávísana-
svikamálinu frá s. 1. vori. Hefir
mál verið höfðað gegn Eyjólfi Jó-
lmnnssyni forstjóra Mjólkurfélags
Heykjavíkur og Landsbankagjald-
kerunum Guðmundi Guðmunds-
syni, Steingrími Björnssyni og
Siguröi Sigurðssyni. Jónatan Hall-
varðsson fulltrúi hefir haft rann-
sóknina með höndum.
Sifllufjarðarbær hefir keypt
Goos-eighirnar á Siglufirði fyrir
180 þús. danskar krónur. Eignim-
ar eru tvær síldarverksmiðjur,
íiinrn bryggjur, ásarnt söltunar-
pöllum, 2 íbúðarhús og 2 hús fyr-
ir skrifstofur og verzlun, ennfrem-
ur mikil lóðaréttindi. Fasteigna-
mat mannvirkjanna er 427 þús.
kr., auk véla. Seljandi er Handels-
banken í Kaupmannahöfn. Var
þoimóður Eyjólfsson bæjarfulltrúi
nýlega á ferð i Reykjavík til að
gera út um þessi kaup fyrir
bæjarins hönd og útvega nauðsyn-
legt lán til kaupanna.
Gustav A. Sveinsson hæstarétt-
armálafiutningsmaður hefir verið
kærður fyrir fjársvik og framselt
bú sitt til gjaidþrotaskipta. Talið
er, að skuldir hans nemi um 70
þús. kr. Mbl. í fyrradag skýrir frá
þvi, að hann hafi nú sagt af sér
varaformennsku í stjórnmálafélag-
inu Vörður og stjómarstörfum
hjá Sparisjóði Reykjavíkur og öá-
grennis og skilað leyfisbréfi sínu
til að flytja mál fyrir hæstarétti.
Á Norður -og Austurlandi breytt-
ist tíðarfar til batnaðar um miðja
s. 1. viku. Snerist veður til sunn-
anáttar, og hefir verið a. m. k. 3
—4 daga góður þurkur um mestr
allt Norður- og Austurland þó
mun þurkurinn ekki hafa náð
nema að litlu leyti til vestursveita
í Húnavatnssýslu og sunnanverðra
Austfjarða. En ástandið hefir
breytzt mikið til batnaðar þessa
daga, enda var það viða hörmu-
legt orðið.
Verzlunum fjtflgar í kreppunnl.
Árið 1929 voru hér á landi 71
heildverzlun, 899 kauptúnaverslanir
og 41 sveitaverzlun. þessar tölur
hafa aldrei verið jafnháar áður.
Árið 1932 em heildsölumar orðn-
ar 76, kauptúnaverzlanimar 978
og sveitaverzlanir 44. Sýnir þetta
að verzlununum hefir fjölgað,
þiátt fyrir það, þó viðskiptin hafi
ininnkað stórum. Sýnir það, að
fólk leitar sér atvinnu, þar sem
meiri mannafla er sizt af öllu
þörf, í stað þess að reyna heldur
ttð heí'ja einhverja gagnlega fram-
leiðsiustarfsemi.
í ágústmánuði siðastl. hefir út-
flutningurinn numið 5,2 milj. kr.
og útílutningurinn frá því í árs-
byrjun til 1. sept. hefir verið 24.958
þús. kr. lnnflutningurinn á sama
tíma hefir numið 31.965 þús. kr.
eftir fyrstu átta mánuði ársins.
Aðsókn að Reykholtsskóla hefir
verið með mesta móti og er skól-
inn orðinn fullskipaður. Hefir orð-
ið að vísa frá nokkrum umsókn-
um. Hvanneyrarskóli verður lika
fullsltipaður í vetur. Á Laugar-
vatni er búið að vísa 70 nemend-
um frá. Svo mikil er aðsóknin.
Heyskapur á Hvanneyri hefir
gengið vel í sumar og hafa heyj-
ast um 4000 hestar.
Árið 1932 voru flutt inn egg fyrir
110 þús. kr. og kartöflur fyrir 358
jiús. kr. Báðar þessar vörutegund-
ir er auðveldlega hægt að fram-
leiða hér á landi og innflutningur
n slikum vörum ætti ekki að
þurfa að eiga sér stað.
Met í hraðakstri. Amerískur bíl-
stjóri, A1 Jenkins ók nýlega 5000
km. á 24 klst. Er það nýtt met.
En hann lét sér ekki nægja með
það, því í þessari æfintýralegu
ökuferð setti hann 15 ný met á
ýmsum vegalengdum.
Ólafur Slgurðsson fiskiræktar
ráðunautur hefir verið hér syðra
undanfarin tíma og kynnt sér
framkvæmdir klakstöðvanna í ná-
grenni Reykjavíkur og fyrir aust-
an fjall. Blaðið hefir nýlega átt
tal við Ólaf og sagði hann, að
áhugi manna fyrir klakrælct færi
nú vaxandi. Hefir verið unnið að
byggingu fimm klakstöðva í sum-
ar og gerðar miklar endurbætur á
tveimur. þegar þær eru fullgerðar
verða yfir 20 klakstöðvar starf-
ræktar hér á landi.
Stjórn Xennarasambands íslands
hefir skrifað bæði fræðslumála-
stjóru og kennslumálaráðherra, í
tilefni af vali skólanefndar Reykja-
víkur á kennurum og krafizt, að
þeir menn sætu fyrir öðrum um
kennarastöður, sem liefðu kenn-
araréttindi, en stæði svo á, að
taka þyrfti menn til kennarastarfs,
sem ekki hefði þau réttindi, þá
yrði þeir ráðnir til bráðabirgða.
b'orseti Kennarasambandsins hefir
tjáð blaðinu, að víðar en hér
hafi sltólanefndir mælt með próf-
lausum mönnum og muni Sam-
bandsstjómin einnig taka það til
athugunar.
FREYJl) kaffibstisduftit
— nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi kaffibæti, ekkert vatn
eða önmir efni til uppfyllingar. Þess vegna er Preyju kafíibætis-
duftið drýgst, heilnæmast og bezt. Og þó er það ódýrara en kaffi-
bæti í stöngum.
Notið þíið beztn, sem unnið er í landinu
NIÐURSUÐUDÓSIR
með þéttu loki fást eins og að undanförnu hjá Guðm. Breið-
fjörð, — Blikksmiðja og tinhúðun Laufásveg 4.
Fjárbúið
á Rangá hefir til sölu næsta
iiaust nokkra fjárhrúta, bæði
veturgamla og lambhrúta.
Sanngjarnt verð.
Rangá, 10. sept. 1984.
Björn Hallsson.
Heilbriöði og höé-
un kynferðislífsins
eftir Dr. Karl Evang er ný-
komin á bókamarkaðinn. Þetta
fræðirit um kynferðismál er
öllum nauðsynlegt að lesa.
Fæst hjá öllum bóksölum.
VERÐ KR. 1.2 5.
Nýlétinn er Jón bóndi Jónsson
að Ási í Holtum, hátt á sjötugs-
aldri. Hann var fæddur- og uppal-
inn í Ási, tók ungur við jörð og
búi eftir föður sinn og bjó þar
síðan góðu búi til dauðadags. —
Reglusamur dugnaðar- og elju-
maður.
Nýlátin er í sjúkrahúsi Hvíta-
bandsins húsfrú þorgerður Odds-
dóttir frá Lækjarkoti í þverárhlíð.
Theódór og Valtýr reikna. Theó-
dór Arnbjarnarson og Valtýr
Stefánsson leggja saman í Mbl. .i
sunnudaginn var og gefa bænd-
um ráð um fóðurbætisgjöf í
vetur. Bezt að gefn lýsi, segja
þeir, og er nóg að gefa kindinni
5 grömm á dag, „og eru þá 200
fjár um litrann". Bendir þessi
útreikningur á að hér sé ekki
um menn að ræða, sem stundað
hafa búfræðinám, því þeir álíta
að lýsi hafi sömu eðlisþyngd og
vatn! Sannleikurinn er sá, að
lýsislítrinn vegur um 800 grömrn
og skakkar því æðimiklu. Er illt
til þess að vita, að menn, sem
kannske einhverjir glepjast til að
trúa, vegna sérnáms þeirra, skuli
gefa slíkar ráðleggingar.
Silkisokkar. Árið 1932 voru
fluttir inn silkisokkar fyrir kr.
167.923.
Kaupfélag Vestur-Húnvetnlnga
er nýlega farið að gefa út fjö!
ritað mál, Félagstíðindi K. V. H.,
og ræðir það ýms hagsmunamál
kaupfélagsins og héraðsbúa og
flytur einnig fróðleik um sam-
vinnumál eftir því sem rúm leyf-
ir. Er áreiðanlegt, að blaðið get-
ur orðið hlutaðeigendum að góð-
um notum og ættu kaupfélögin
yfirleitt að taka upp þennan sið.
Jónas Jónsson alþm. bar fram á
baustþinginu í fyrra þingsályktun-
artillögu um það, að skora á
stjórnina að athuga hvort ekki
væri hægt að koma þjóðminja-
safninu fyrir í þjóðleikhúsinu.
Taldi hann að möguleiki væri til
ii ð það fengi þar rúmbetri húsa-
kynni, sem jafnframt væri eld-
trvgg. þessi tillaga var samþykkt.
Athugun hefir nú farið fram og
iiefir niðurstaðan orðið sú, að
nægjanlegt húsnæði sé handa
safninu, án þess að þrengja nokk-
uð að væntanlegri leikstarfsemi.
Eru því allar líkur til, að þjóð-
minjasafnið verði innan skamms
flutt í þjóðleikhúsið.
Innfiutningur á lifandl skepn-
um. Samkv. verzlunarskýrslum
1932 voru það ár fluttar inn 25
sauðkindur, 30 svln, 1 hundur, 91
loðdýr og 10 hænsni.
•# t,
•—^/
n.'ykjfivik. Simi 1249 (3 linurþ
Simnefni: Sláturfélng.
Áskurður (á brauð) ávalt
fyrirliggjarnli:
Hni gibjúgufSpegep )nr.!. gild
Oo — 2. —
Bo. — 2. injó
Sai'ða-Hangibjúgu, gild,
Do. mjó,
Soöi:ar Svinn-rullupylsur,
Do Kálfarullu-pylsur,
Do. Sauða-rullupylsur,
Do. Mosaikpylsur,
Do. Malakoffpylsur,
Do. Mortadelpylsur,
Do. Skinkupylsur,
Do. Hamborgarpylsur,
Do. Xjötpylsur,
Do. Lifrarpylsur,
Do. Lyonpylsur,
Do. Cervelatpylaur.
Vörur jxsur wru allar
búnar til i eigln vlnnustofu,
og staudaat — a0 dðml nayt-
•nda — samanburO rlð
samskonar erlandar.
VertfekrAr sendar, og pant-
anir afgreiddar um allt land.
Sextdid
oss nafn yðar og heitn-
ilisfang og við sendum
yðnr ókeypis sýnishoru j
af Vikurltinu og Sögu-
s&fninu.
Vikuritiö,
Reykjavik.
MAUSER fjár- og stórgripabyseur
á kr. 20,00.
Sport-rifflar kal. 22, með 00 em.
hlaupi á kr. 30,00.
Super-X riffla og fjárbyeau skot
eru 50% kraftmeiri en
venjuleg skot.
það bezta er ódýraat
SPORTYÖRUHÚS REYKJAVtXUR,
Reykjavlk.
TRYGGINGU
hafa menn fyrir að fá góðar
vörur með góðu verði, með því
að verzla við
Kaupfélag Roykjavíkur.
Framh. af 3. síðu.
verið frá upphafi staðráðið í því, að ráðast
á þaö skipulag, sem upp yrði tekið, hvernig
svo sem það yrði.
Það er augljóst, að höíuðástæðan fyrir
þesari framkomu Mbl. er hið gengdarlausa
liatur þess til samvinnuíélaganna og sér í
Iagi Sambands ísl. samvinnufélaga. Blaðið
íullyrðir t. d. að Sambandið ráði öllu í
Kjötverðlagsnefndinni, vitandi þó, að Sam-
bandið á þaí aðeins eimi fulltrúa af íimm.
Það gæti hka út af íyrir sig verið nógu
iróðlegt, ef Mbl. vildi gera grein fyrir því,
hvaða hvatir það álítur að hggi til grund-
vallar hjá þeirn mörgu mönnum, sem þessi
mál hafa undirbúió og um þau fjallað. Aí
skrifum blaðsins veróur ekki annað ráðið en
að þessir menn séu með ráðnum hug að baka
öllum lilutaöeigendum tjón, bæði iramleið-
endum og neytenduin!
Kjötverðlagsnefndin er nýlega tekin til
starfa. Það er þó þegar kominn í ljós nokkur
árangur af hinu bætta skipulagi. Það hefir
tekizt að lialda miklu stöðugra verðlagi á
aðalmarkaðsstöðunum innanlands en verið
hefir mörg undaníarin ár. Og þó hefi ég
íyllstu ástæðu til að ætia, að um það leyti
sem nefndin tók til staria hafi lausakaup-
menn verið byrjaðir að selja kjöt til verzl-
ana 20 aurum undir því verði, sem Sam-
vinnufélögin höfðu ákveðið hér í bænum. Er
af þessu ljóst, að sami leikurinn hefði verið
leilíiim nú í haust og undanfarin ár, ef
engar ráðstafanir hefðu verið gerðar.
Jafnframt því sem nefndin telur það eitt
aí sínum höfuðverkefnum að festa verðlagið
og hækka. það eitthvað frá því sem áður
hefir verið, síðan hið gííurlega verðfall
byrjaði, þá mun hún einnig leitast við að
færa niður tilkostnað eftir því sem föng eru
á, ekki sízt hér í bænum. Er mér það ljóst
að starf nefndarinnar er vandasamt og að á
því kunni að vera hægt að finna einhverjar
misíellur og einkanlega í byrjun. Er ekkert
við því að segja, þó að fundið verði að
ráðstöfunum hennar, en þess ætti að mega
krefjast, að það yrði gert með rökum og
án heimskuiegra getsaka um illan tilgang
þeirra manna, sem að þessum málum starfa.
Eg hefi altaf haldið því fram, að jafn-
framt því sem verðlagið yrði fært upp svo
að viðunandi megi teljast, þá verði þó ávalt
að stilla þar í hóf og miða við það, sem
sanngjarnt getur talist og framkvæmanlegt
með tilliti til kaupgetu neytendanna. Mbl.
og sum önnur bæjarblöð, sem um þetta rita,
virðast vera að læða þeirri trú inn hjá bæj-
arbúum, að meiningin sé að pressa út úr
neytendum, það sem allra frekast er uimt.
Mér hefir ekki dottið slíkt í hug. Eg get
vel ímyndað mér, að sumir framleiðendur
hafi gert sér hærri vonir í þessu efni en
ég tel unnt að fullnægja. En hér verður að
taka, og hafa verið tekin, nauðsynleg tillit.
Og það ætla ég að megi sýna fram á með
samanburði við nokkur undanfarin ár.
Eg get auðvitað ekkert um það vitað,
hvaða verðlagsákvæði nefndin kann að setja
hér á eftir. En þann 1. sept sl. ákvað hún
kjötverð í heildsölu hér í bænum kr. 1.40
pr. kg. Samtímis var smásöluálagning á-
kveðin 20%, og er það lægra en áður hefir
verið*).
Undanfarin sjö ár hefir kjötverðið í
heildsölu, miðað við 1. september, verið sem
liér segir:
Árið 1927 kr. 1.70 pr. kg.
— 1928 — 1.50 -------
— 1929 — 1.60 -------
— 1930 — 1.70 -------
— 1931 — 1.40 -------
— 1932 — 1.00 -------
— 1933 — 1.10 -------
Eg er þess fullviss, þrátt fyrir einstaka
hjáróma raddir, eins og þær, sem nú koma
fram í Mbl.„ að allur almenningur í sveit-
um og bæjum óskar að árangur geti orðið
sem beztur af þeim í-áðstöfunum sem gerð-
ar hafa verið og lítur með velvilja á starf
þeirra manna, sem kvaddir hafa verið til að
vinna að þessum málum.
Það verður heldur aldrei of oft vakin at-
hygli á því, að íbúar bæjanna hafa ótvíræðra
hagsmuna að gæta um það, að afkoma fólks
í sveitum geti verið það þolanleg, að það
geti haldist við atvinnu sína þar og þurfi
ekki að flytja á „mölina“, með öllum þeim
alvarlegu afleiðingum, sem slíkur fólksflutn-
ingur hefir fyrir afkomu. bæjabúanna.
Það er því alveg víst, að hin óvinsamlega
framkoma Mbl. o. fl. í garð bændanna í
þessu máli, er heldur ekki til hagsmuna
fyrir bæina. Jón Ámason.
*) Árið 1932 var var smásöluálagningin á sama
tíma 36% og 1933 33%.