Tíminn - 13.11.1934, Blaðsíða 3
T í M I N N
197
i
Husqvarna-
prjúk.avélar
eru viðurkenndar
fyrir gœði
Þó er verðið
ótrúlega lágt
Samband ísl. samvinnufélaga
Fréttir
FárviSriS um síðustu mánaðamót
heíir valdið feikna tjóni á Norður-
landi á eignum, auk þeirra hörm-
legu mannskaða, sem urðu af
völdum þess. Mest er tjónið á
Siglufirði. pá hefir orðið stórtjón á
Húsavík, Langanesi og á ýmsum
stöðum við Eyjafjörð og talsvert á
Kópaskeri. Bryggjur hafa eyðilagst
vélbátar slitnað upp og; brotnað
sjór gengið í hús og eyðilagt vör-
ur og jafnvel brotið upp vegi og
girðingar. Tjón einstakra manna
er á flestum þessum stöðum mik-
ið og tilfinnanlegt. Hefir að tilhlut-
un ríkisstjórnarinnar verið unnið
að því, að rannsaka tjónið og virða
það.
Dvöl, hið vinsæla fylgirit Nýja
dagblaðsins, er byrjað að koma út
á ný.
Hrútasýning var haldin hér í
bænum á sunnudaginn. Fjórir
hrútar af fimmtán, sem komu á
sýningarstaðinn, fengu 1. verð-
iaun. Voru þeir frá 91—96 kg. á
þyngd.
Samúel Ólafsson fyrv. fátækra-
fulltrúi andaðist sl. sunnudag eft-
ir langa vanheilsu.
Dætur Reykjavíkur II. heitir ný
bók eftir þórunni Magnúsdóttur.
Saini höfundur gaf út fyrir tæpu
ári síðan smásögur undir þessu
nafni og fengu þær góða dóma.
Skemmdimar á Langanesi. -
Skemmdirnar á þórshöfn og norð-
anverðu Langanesi af völdurn
brimsins mikla á dögunum hafa
verið metnar á 23 þús. kr.
Símakappskák fór fram aðfara-
nótt sl. sunnudags milli Taflfé-
lags Hafnfirðinga og Taflfélags
Akureyrar. Teflt var á 10 borðum.
Úrslit urðu þau, að Hafnfirðing-
ar unnu 6, gerðu 3 jafnteíli og
unnu þannig með 7% gegn 1%-
Einu tafli var ekki lokið og geng-
ur dómur um það. Taflið stóð yf-
ir frá kl. 21 að kvöldi til kl. 9
að morgni.
ÚtllutninBurinn, Um seinustu
mánaðamót nam útflutningurinn
37.2 milj. kr. og er það tveim
milj. kr. minna en á sama tíma í
fyrra.
Innflutningurinn. Um seinustu
mánaðamöt nam innflutningur-
inn það sem af er þessu ári 40.1
milj. kr. og ei’ það 2.3 milj. kr.
meira en á sama tíma í fyrra. þá
var útflutningur 0.4 milj. kr.
hærri en innflutningurinn, en nú
er innflutningurinn 2.9 milj. kr.
meiri.
í Tidens Tegn segir nýlega, að
meðal bólca, sem Nationalforlaget
í Oslo gefur út í haust, verði
skáldsaga eftir Snorra Hjartarson
(Snorrasonar alþm.), sem hann
nefnir: Höit flýver ravnen. Mynd
af Snorra fylgir þessari frásögn
blaðsins.
KappllugiS frá Englandi til Ástr-
alíu er nýafstaðið. Ensku flugmenn
irnir Scott og Black unnu og voru
ekki nema 71 klukkustund frá
London til Melboume í Ástralíu.
Næsta met áðúr var um 7 sólar-
hringa og er því hér um undur-
samlegt afrek að ræða. Milli Eng-
lands og Astralíu var flogið í fyrsta
sinn árið 1919 og tók það flug
rúmlega einn mánuð.
Slátrunin í haust. Samkv. upp-
lýsingum frá kjötverðlagsnefnd
hefir verið slátrað til sölu um
372 þús. fjár alls á landinu. þar
af eru um 4/5 í höndum samvinnu
féiaga bænda. Á Norður- og Aust-
urlandi hefir verið mikil slátrun
og fé fremur rýrt. En á Suður- og
Vesturlandi er slátrun með minna
móti og fé fremur vænt
Kosningar fóru fram i Bandaríkj
unum 7. þ. m. og var kosið um
stefnu Rooseveíts forseta og flokks
hans í viðreisnarmálunum. Hefir
forsetinn unnið stórkostlegan sig-
ur í þessum ltosningum og hefir
flokkur hans fengið 3/4 sætanna
í fulltrúadeild þingsins. Kjörsókn-
in var geisimikil.
Stjómarskipti hafa orðið í Frakk-
landi. Doumergue hefir sagt af
sér, en Flandin myndað nýja
stjóm. Nýtt fjársvikamál virðist
hafa orðið stjórninni að’ falli, en
ekki mun vera um verulega stefnu-
breytingu að ræða og er þetta tal-
in afturhaldssöm stjórn eins og sú
er frá fór.
Sú villa hefir slæðst inn á 1.
^íðu í hluta af upplagi þessa blaðs,
að búið sé að samþykkja kjötlögin
á Alþingi. Frv. er búið að vera til
umræðu í báðum deildum, en hef-
ir verið vísað til einnar umr.
í efri deild, vegna breytinga.
Mjólkurlögin eru enn í efri deild
til 2. umr. i dag.
í september síðastl. var úrkoma
97% umfram meðallag á öllu
landinu eða helmingi meiri en
venjulega. Á fjórum stöðum suð-
vestanlands (Vík, Eyrarbakka,
Vestmannaeyjum og Hvanneyri)
var hún þó minni en venjulega.
— (Veðráttan).
í Reykjavík var sólskin í sl.
septembermánuði 105.3 kl.st. Er
það 27% af þvi, sem getur verið.
Meðaltal 11 undanfarinna ára var
125 kl.st.
Homaf j arðarbíll kom nýlega,
til Reykjavíkur. Bíllinn lagði
á stað úr Hornafirði á laugardag-
inn og hefir því ferðin geng<ð
nokkuð seint. Stafar það mest af
því, að billinn bilaði í Öræfum og
tafðist þar í tvo daga, meðan
verið var að sækja varahluti til
Hornafjarðar. Yfirleitt gekk ferðin
vel. Vatnsföllin reyndust ekki
neinn verulegur farartálmi. Var
Skeiðará með minna móti, en öll
vötnin á Breiðamerkursandi voru
farin á ís, nema Jökulsá. Vegirnir
voru sæmilegir, eftir því sem ger-
ist, á þessum tíma árs.
„pófaramir“ (sbr. blaðið í dag):
Efst Sigurður Kristjánsson, sá sem
skrifaði „mosagreinina", Ó. Th.,
Garðar, Jakob Möller, og Magnús
„dósent“. Einn af kaupendum
Nýja dagbl. hefir heitið 25 kr.
verðlaunum fyrir beztu vísurnar
um „þófarana", en greinin ásamt
myndunum hefir birzt í því blaði
áður.
Sverrir porbjömsson hagfræð-
ingur er nýkominn heim að af-
loknu námi við háskólann í Kiel.
MUEADEE Distemper
þvottegta vatnsmálning
Falleg, hentug og ódýr innanhúsmálning.
Fæst í um 80 smekklegum litum. Biðjið um litaspjald.
Sendum gegn póstkröfu út um land. ' .
Einkasalar hér á landi
HÁLiBINN
REYKJAVÍK
Anægðastir lifa þeir er gera skyldur sinar
Ein af mörgum er sú, að vera líftryggður hjá
VátryggingaféisgiRu Kye Danske af 1864
Aðalumboð fyrir ísland
Vátryggingaskrifstofa
SIGFUSAR SIGHVATSSONAR
Lækjargata 2 — Sími 3171
w
Odýr dverglampi
OSRAM
u
er ekki sá, sem fæst fyrir mirmst verð,
heldur sá, sem er ódýrastur í notkun,
en það er: ber mesta birtu með minnstri
straumnotkun og þolir mestan hristing.
SRAM ítenar
standa öllum iömpum íramar
Hann lauk þar prófi með mjög
hárri einkunn, og mun hann hafa
tekið hærra próf en nokkur ís-
lendingur hefir áður tckið í þeim
fræðum.
Kirkjudeilan i þýzkalandi hefir
farið harðnandi. Óánægjan gegn
kúgun og yfirgangi hinnar nazist-
isku yfirstjórnar kirkjunnar fær-
ist stöðugt í aukana bæði meðal
lútherskra og katólskra manna.
Skulu hér nefnd nokkur dæmi,
sem sýna hversu slæmt ástandið
er: Buder, prestur i Stuttgart, var
nýlega byrjaður að undirbúa
nokkur böm undir fermingu, eftir
ósk foreldranna. Einn dag komu
nokkrir nazistar þangað inn, sem
hann var að kenna börnunum og
skipuðu honum að hætta. þegar •
hann gegndi því, rifu þeir af
honum bókina og einn drenginn
börðu þeir með jámstöng í höf-
uðið svo hann stórmeiddist. Annar
prestur í Stuttgart, Gerlack, var
handtekinn fyrir altarinu, þegar
hann var að gefa saman hjón. Iðu-
lega hefir það komið fyrir, að
prestar liafi verið hnepptir í varð-
hald eða haldnir fangar heima hjá
sér, þegar þær ætluðu að halda
guðsþjónustu. Oft hefir kirkjunum
verið lokað rétt fyrir messugerð
og kristilegum samkomum hleypt
upp af nazistum. En nú hefir.
Hjtler orðið að láta undan síga i
þessu máli.
Skógræktarfélag íslands. Eftir
aðalfund félagsins, sem var hald-
inn sl. föstudag, skipa þessir
menn stjórnina: Einar Ámason
alþm., H. J. Hólmjám framkv.- I
stjóri, Maggi Magnúss læknir,
Árni Friðriksson náttúrufræðingur
og Jón Ólafsson. — Félagsmenn
eru nú um 400.
Myndarleg gjöf. 1. þ. m. átti
frú Guðrún Bjömsdóttir frá
Komsá 25 ára starfsafmæli við
bamaskólann á Siglufirði. í til-
efni af því afhenti hún skólanum
að gjöf 6000 fcrm. landspildu, sem
hún hafði á erfðafestu. Er tilætl-
un hennar, að þama verði komið
upp skólagarði, þar sem börnin
ejálí annizt um ræktun á bló.m-
urn og trjám.
Tjónið, sem varð af völdum of-
veðursins á dögunum, á Húsavík,
er metið 93 þús kr.
Morð I réttarsalnnm, það bar
uýlega við í borginni Sind i Ind-
landi, að verið var að yfirheyra
Hindúa, sem var ákærður fyrir
það að hafa gefið út níðrit um
Muhameð. Auk áheyrenda voru
þar staddir margir lögregluþjónar.
En áður en þeir fengu áttað sig til
fulls hafði hinn ákærði verið um- ..
kringdur af þrem mönnum, tveir •
þeirra tóku hann og héldu honum,
en hinn þriðji veitti honum mörg,
banvæn sár með laghníf. Síðan
reyndu þeir að komast undan, en
tókst það ekki. Vom þetta Mu-
hameðstrúarmenn og sögðust þeir
hafa framið verkið eftir visbend-
ingu frá Guði. — Atburður þessi
vakti svo mikla gremju hjá Hind-
úum, að til upphlaups horfði um
tíma.
Flugslysið á Ermarsundi. 1. okt.
vildi til hræðilegt flugslys á Erm-
arsundi og var nokkuð sagt frá
því í útvarpsskeytum. Öll áhöfn
ílugvélarinnar, sjö menn, fórst.
Skipstjóri, er var sjónarvottur að
slysinu, lýsir því þannig: það hef- '
ir ekki tekið lengri tima en sex
sek. Við sáum flugvélina koma
fram úr skýjunum. Hún flaug
lægra en farþegaflugvélar venju-
lega. Annars virtist allt vera í
lagi. Allt i einu heyrðum við óg-
urlegan hvell, flugvélin sprakk
í mola og brakinu rigndi yfir
okkur. Ég sendi strax neyðar-
merki og komu mörg skip á vett-
vang. Tókst okkur að finna fimm
lík. — Flugmaðurinn hafði tekið
þátt i flughernaði í heimsstyrjöld-
inni og flogið alls i 3500 kl.st.
þótti hann góður flugmaður. Fé-
lagið, sem átti flugvélina, hafði
haldið uppi farþegaflutningi yfir
Ermarsund í tvö ár og flutt 10
þús. manns yfir sundið á þeim
tíma og er þetta fyrsta slysið, sem
hefir hent það á þessari leið.
Merkiskona látin
Hinn 9. þ. m. andaðist á sjúkrahúsinu á
Akureyri frú Björg Björnsdóttir. Hún var
fædd 14. júlí 1862 að Harastöðum á Skaga-
strönd. Foreldrar hennar voru Björn bóndi
Jóhannesson og kona hans Sigurlaug Jóns-
dóttir, eitt hinna mörgu og merku systkina
frá Háagerði. Björn var dugnaðar. og gleði-
í.iaður og sótti sjóinn ótrauður, þó erfitt
væri aðstöðu. Var hann formaður á skipi
sínu, en druknaði í mannskaðaveðri haustið
1879.
Eftir að Björg missti föður sinn, sem
hún rnini mjög, varð hún að vinna fyrir
sér hjá vandalausum. Þá voru ekki önnur
úrræði fyrir unglinga, sem litlu höfðu úr að
spila. Brátt kom i ljós, að sæti heimar var
vel skipað fyrir dugnað hennar og atorku.
Hún giftist 19. maí 1896 Jónasi gagn-
íræðingi Sveinssyni, Kristjánssonar frá
Stóradal. Ilafa þau hjón með hagsýni og
heimflisrækni fleytt sér yfir marga örðug-
leika til góðrar afkomu. Einkabarn þeirra
er frú Sigurlaug, kona Jónasar Þorbergs-
sonar útvarpsstjóra. Tvö fósturböm ólu þau
hjónin upp frá barnsaldri, Ingibjörgu Árna-
dóttur, er giftist Davíð Jóhannessyni, sím-
stjóra á Eskifirði, en lézt á bezta aldri fyrir
nokkrum árum, og Sveinbjöm Lárusson bíl-
stjóra á Akureyri. Létu þau ekkert á skorta
að koma þessum fóstui’börnum sínum: til
menningar.
Björg var jafnan talin fyrirmyndarhús-
móðir sakir einstaks þrifnaðar, reglusemi
og híbýlaprýði. Hún gleymdi ekki skyldum
sínum í neinni grein og fórnaði heimili sínu
öllum kröftum seint og snemma. Hún var
góð eiginkona, ágæt móðir og í einu orði
trygglynd kona og hispurslaus. Við fyrstu
kynningu var Björg sáluga fremur fálát, en
þeir, sem náðu vináttu hennar þurftu ekki
að óttast að hún hyrfi í skyndi sem dögg
fyrir sólu. Og mörgum liðsinnti hún og
gladdi í kyrþey og óskaði ekki að slíkt væri
í hámælum haft. Um mörg ár reyndi hún
mikinn heilsubrest, en lét það ekki á sig' fá,
en vann sem hetja til hinnstu stundar og
lagði ekki árar í bát fyr en ekkert var und-
anfæri. Minning hennar geymist í hlýjum
huga þeirra, sem þekktu hana bezt.
11. nóv. 1934.
S. K.
Nokkur þíngmál
Framh. af 2. síðu.
og kirkju og um 200 í annari opinberri
eign.
Sjávarútvegsnefnd neðri deildar flytur
frv. um vátryggingar opinna vélbáta
(trillubáta). Ingvar Pálmason og Gísli Guð-
mundsson hafa áður flutt þingsályktunar-
tillögu um undirbúning laga um almennar
vátryggingar fyrir vélbáta. En áðumefnt
frv. um opnu vélbátana er komið frá milli-
þinganefridinni í sjávarútvegsmálum.
Tveir Framsóknarmenn og tveir Alþýðu-
ftokksmenn í neðri deild flytja frv. um að
afnema lögin um sölu þjóðjarða og kirkju-
jarða.
Ýmsar þingsályktunartillögur eru fram
komnar viðvíkjandi landhelgisgæzlu og
björgunarstarfsemi við strendur landsins,
svo og eftirliti með veiðarfærum sjómanna,
sem sumstaðar eiga í vök að verjast fyrir
ágangi togara, sem slíta og skemma veiðar-
færi þeirra. Hvarvetna að koma kvartanir
um hve gæzlan hafi verið léleg tvö undan-
farin ár. Hefir ríkisstjómin nú til athug-
nnar í samráði við Skipaútgerð ríkisins
r.ýtt skipulag á þessum málum, sem geti
komið að betra haldi og orðið ríkinu ódýr-
ara en nú er.
Jónas Guðmundsson, Jón Sigurðsson og
Bjarni Bjarnason flytja frv. um að afnema
Prestlaunasjóð og feLa sýslumönnum og