Tíminn - 05.12.1934, Blaðsíða 1

Tíminn - 05.12.1934, Blaðsíða 1
\ ©jaíbbagi blofisiaa ct 1. íöbI. S(<0<m3n«U>a (eatos iO Ct. 54. blað. Reykjavík 5. desember 1934. ffleðferð fjárlaganna á Álþingi Stjórnarflokkarnír vilja ouka verk- legar framkvæmdir, lækka hæstu laun, draga úr framleiðsiu- og nauð- synjavörutollum og hækka skatta á hátekjum og stóreignum íhaldið vill minnka kaupgetualmennings og skera niður verklegar íramkvæmdir: Einsiakir þingmenn sljórnarandslæðinga báru fram við 2. umr. um 30 iillögurum hækkun útgjalda, en þingmenn sijórnar• flokkanna enga■ Greiðsluhaili íhaldsins (og »bænda- flokksins«) var kominn upp í 4 millj. Fulltrúar stjórnarflokkanna samtaka um að bera ábyrgðina á fjárlögunum Annari umræðu fjárlaganna er nú lokið á Alþingi. Áður en sú umræða hófst, var útbýtt 29 breytingatill. frá stjórn- arandstæðingum um hækkun útgjalda (og 3 frá Ásg. Ás- geirssyni) og nema þær sam- 1als um 530 þús. kr. útgjalda- hækkun, auk nærri 700 þús. kr. ábyrgða. Þá má nefna það, að Jón A. Jónsson bar fram tillögur um að hækka áætlunina um tekjur af áfengisverzlun og áfengis- tolli um 650 þús. kr. Ber það vott um fremur litla gætni i fjármálum, að ætla að hækka tekjuáætlunina þannig alger- lega út í bláinn. Einstakir þingmenn stjóm- arflokkanna báru engar breyt- ingartillögur fram. Fjárveitinganefnd var klofin og lögðu íhaldsmenn fram sér- stakt álit. Af hálfu meirahlut- ans er Jónas Guðmundsson framsögumaður fyrrahluta fjárlaganna. og Jónas Jónsson framsögum. síðara hluta. En Magnús Guðmundsson er fram- sögumaður minnahluta nefnd- arinnar. Tillögur f járveitinga- nefndar. Nefndin gerði nokkrar tillög- ur til hækkunar á tekjuáætlun og lækkana á útgjöldum. Enu- fremur nokkrar till. um hækk- un útgjalda, aðallega til verk- legra framkvæmda. Er hækk- un tekjubálksins samkv. þess- um tillögum um 47 þús. kr. meiri en hækkun gjaldabálks- ins að frádregnum lækkunun- um. Þá bar meirihlutinn fram sérstakar tillögur um að fella niður dýrtíðaruppbót af laun- um yfir 5000 kr. og gera til- svarandi lækkun hjá starf3- mönnum utan launalaganna. Minnihlutinn bar hinsvegar fram tillögur um að skera nið- ur verklegar framkvæmdir um 600 þús. kr. Um þennan gífurlega niður- skurð verklegra framkvæmda stendur baráttan í umræð- unum milli flokkanna og þá jafnframt um hina nýfram- komnu kenningu íhaldsmanna um að „slá niður“ kaupgetuna, sem fræg er orðin úr eldhús- dagsumræðunum og greinum Magnúsar Jónssonar í Mbl. —• Um leið gefst íhaldinu enn einu sinni kostur á að gera sinni gefast kostur á að gera grein fyrir því, hversvegna það vill hlífa hátekjum og stóreignum, jafnframt því, sem það leggur til að rýra kaupgetu almennings. Ábyrgðarleysi íhaldsins. Fjármálaráðherra reiknaði út í eldhúsdagsumræðunum, að samkvæmt tillögum íhalds- manna, þeim, sem þá var vit- að um, (og ,,bændafl.“) ættu fjárlögin að verða með 3'/2 millj. kr. halla, og var þá reiknað með 600 þús. kr. nið- urskurðinum á verklegum framkvæmdum. Að viðbættum nefndum ha kkunartillögum einstakra þirgmanna, er þá greiðsluhallinn kominn upp í fjórar miljónir króna — ef í- haldið ætti að ráða og taka sínar eigin tillögur alvarlega. Þetta er fyrirhyggja mann- anna, sem bezt þykjast vita í atvinnu. og fjármálum. Þetta er ábyrgðartilfinning þessara „máttarstólpa þjóðfélagsins". Þetta er alúðin og vitið, sem íhaldið leggur fram við afgr. mikilsverðasta þingmálsins. Atkvæðagreiðslur við 2. umr. fjárlaganna fóru fram á Al- þingi í fyrrad. Stóðu þær frá kl. 1—4 og kl. 5—6l/2- Alls fóru fram um 230 atkvæðagreiðsl- ur, þar af margar með nafna- kalli. Tlllögur stjórnarand- stæðinga um aukna eyðslu og niðurskurð á verklegum framkvæmd- um felldar með einróma atkvæðum meirahlutans. Tillögur fjárveitinganefndar, sem bomar voru fram af nefndixmi ! hcild eða meira- hluta hennar voru sam- þykktar, að undanteknum nokkrum minnaháttar tillögum, sem teknar voru aftur. En allar tillögur einstakra þingmanna um hækkun á gjöldum ríkisins voru felldar, nema tvær frá Magnúsi Torfa- syni, þar af önnur um 10 þús. kr. til sandgræðslu í Áme3- sýslu. Tillögur fhaldsmanna í fjár- veitinganefnd um stórfelldan niðurskurð verklegra fram- kvæmda, voru sömuleiðis drepnar með atkvæðum stjóm- arflokkanna. Eins og áður er getið, voru ekki af einstökum þingmönn- um stjómarflokkanna bomar fram neinar breytingatillögur við fjárlagafrumvarpið. Er slíkt einsdæmi á Alþingi og ber vott um æskileg samtök og gætni í þessum málum. Búnaðarfélagið. Samþykkt var tillaga frá meirahluta fjárveitinganefndar um', að styrkur til Búnaðarfé- lagsins skyldi bundinn eííirfar- andi skylyrði: „Ríkisstjóminni er falið að undirbúa tillögur um framtíð- arskipulag félagsins og um yfirstjóm búnaðarmála og leggja þær fyrir næsta Al- þingi. Þar til sú framtíðarskip- un er gerð, getur ríkisstjómin gert það að skilyrði fyrir greiðslu á styrk til félagsins, að fjárhagsáætlun þess sé sam- þykkt af landbúnaðarráðherra svo og ráðning búnaðarmála- stjóra, er ekki sé nema einn“. — Samþykkt með 25:16 atkv. Skilyrði fyrir ábyrgðum. Samþykkt var: „Að krefjast þeirra trygg- inga, sem stjómin metur gild- ar, fyrir hverri þeirri ábyrgð, sem hún gengur í f. h. ríkis- sjóðs, enda séu allar slíkar lán- tökur framkvæmdar af fjár- málaráðuneytinu eða öðrum trúnaðarmönnum landsins, sem ráðuneytið samþykkir til þess í hvert sinn“. Afnám dýrtiðaruppbót- ar á hálaunum. Samþykkt var: „Að greiða embættis- og starfsmönnum ríkisins, sem taka laun samkv. launalögum og hafa undir 4000 kr. laun, dýrtíðaruppbót eftir sömu regl- um og jafnháa og gert var 1934, þeim, sem hafa 4000 til 4100 kr. laun, 15% dýrtíðar- uppbót, þeim, sem hafa 4100 til 4200 kr. laun, 14% dýrtíð- aruppbót, og þannig stiglækk- andi um 1% fyrir hverjar 100 kr., sem launin hækka, þó aldrei hærri uppbót en svo, að laun ásamt dýrtíðaruppbót nemi ekki meiru en 5000 kr. — Samþ. með 28:7 atkvæðum. 14 greiddu ekki atkvæði. Starfsmenn utan t&una- laga. Samþykkt var. „Að gera þær ráðstafanir, þarf til að gata fram- kvæmt spamað á launum þeirra manna, sem ekki taka laun samkv. Iaunalögum, en starfa þó hjá ríkinu, stofnunum þess eða öðrum stofnunum, sem rík- isstjómin getur ráðið launa- greiðslum hjá. Skal sú niður- færsla vera tilsvarandi og gerð eftir sömu reglum og lækkun dýrtíðaruppbótar á laun sam- kvæmt launalögum og koma til framkvæmda eftir því sem lög og samningar leyfa“. — Sam- þykkt. með 32:3 atkvæðum. 14 greiddu ekki atkvæði. Eftirtektarvert var það, að fjöldi íhaldsmanna sat hjá við þessa atkvæðagreiðslu eða greiddu atkvæði gegn tillög- unni. Hefir þó löngum kveðið við þann tón í íhaldsblöðunum, að laun utan launalaganna væm of há, en nú gugna íhaldsmenn, þegar á á að herða. „Yfirboð* frá „bænda- flokknum“. Felld var með 29:13 atkv. (7 sátu hjá) tillaga frá „bænda- flokknum“ um heimild fyrir ríkisstjómina til „að greiða úr ríkissjóði framlag til verðjöfn- unarsjóðs til aukaverðuppbót- ar á útflutt kjöt af framleiðslu ársins 1934, allt að þeirri upp- hæð, er aðrar tekjur sjóðsins nema það söluár, ef verð á því kjöti verður tilfinnanlega lágt, svo að verðjöfnunarsjóður hrekkur hvergi nærri til að bæta upp verð útflutta kjötsins til samræmis við kjötverð á ir.nlendum markaði“. Yfirlýsing foraætisráð- herra. I sambandi við þessa at- kvæðagreiðslu gaf Hermann Jónasson forsætisráðherra svo- hljóðandi yfirlýsingu viðvíkj- andi afstöðu stjórnarflokkanna til málsins: „Ut af breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið frá 3 þing- mönnum um heimild handa rík- isstjórninni til þess að greiða úr ríkissjóði aukauppbót á út- flutt kjöt af framleiðslu ársins 1934 vill ríkisstjómin taka þetta fram til viðbótar þeim yfirlýsingum, sem hún hefir áður gefið um þetta mál: Ennþá er ekki seldur nema nokkur hluti kjöts þess, sem seldur verður á erl. markaði af framleiðslu þessa árs og því ekki vitað um úrslit kjötsöl- unnar fyrir þetta ár. örugt er heldur ekki að heimild til greiðslu í verðjöfnunarsjóð komi að notum, ’nema ríkis- stjórninni sé jafnhliða séð fyr- ir tekjum til að mæta greiðsl- unum . Tekjuöflunar er ekkert getið í sambandi við tillöguna 0g ekki líklegt að slík tekjuöfl- un geti gengið fram á þessu þingi, m. a. vegna þess, að eng. inn veit hver upphæð kann að vera nauðsynleg í þessu skyni. 1 byrjun næsta þings, senni- lega í marz, verður komin frek- ari vitneskja um úrslit kjötsöl- unnar, og mun ríkisstjómin þá, ef verðjöfnunargjaldið skapar ekki viðunandi verðjöfnun, beita sér fyrir nauðsynlegum aðgerðum og jafnfram bera fram tillögu til tekjuöflunar til að standast framlög þau til verðjöfnunarsjóðs, sem honum yrðu ætluð“. Framh. á 3. síðu tnnf)clrata <S íangaocg IO. ©£wl 2353 - 961 XVni. árg. Athugasemd um sarnvinniimál í 88. tölublaði „Dags“ 4. ágúst þ. á. er dálítil grein með yfirskriftinni „Samvinna bænda“. Grein þessi er þörf hugvekja, þar sem sögð eru ýms sannindi, sem samvinnu- mönnum er nauðsynlegt að skilja og hug- festa. Höfundurinn vill beina hugsun lesend- etmá að hinni siðbætandi og mannbætandi lilið samvinnustefnunar, og það er stór- Jjakkavert. t núverandi fjárhagsöngþveiti, ] ar sem ,,í skyldunum hvín, en hvomsar í þörfunum", gleymist mörgum, sem þó kalla sig samvinnumenn, að 'til sé önnur hlið á samvinnumálefnunum en hin fjárhagslega. gleyma því, að fyrsta skilyrðið fyrir því að i'járhagsstritið beri rétta og farsællega ávexti er, að hinni mannbætandi hlið mál- efnanna sé fyrst og fremst gaumur gefinn. Það er því síður en svo, að ástæða sé til að andmæla aðalefni greinarinnar, heldur vekja athygli á henni sem orði' í tíma talað. Og þó — þó hafa slæðst inn í grein þessa ummæli, sem úr getur orðið söguleg fölsun, og hlýtur að verða í augum þeirra, sem ekki þekkja nógu vel til, og það er yfirleitt ÖU yngri kynslóðin í landinu. Og af því þetta er ekki einsdæmi í ritum uití samvinnumál, þá er ástæða til að benda á það, og vara við því. I greininni stendur þessi kafli: „Þegar verðfall afurðanna skall yfir um 1920, þá reyndi á þroska og samheldni sam- vinnumanna. Félagsmenn í K. E. A. stóð- ust vel þá raun ... þeir fylktu sér saman cg tóku upp nýtt skipulag, þar sem hver deild ber ábyrgð á viðskiptum sinna manna gagnvart félaginu. Síðan hefir þetta skipu- lag verið tekið upp í flestum öðrum1 kaup- félögum“. Það er að vísu satt, að slíkt skipulag var þá „nýtt“ í K. E, A., en alls ekki í öðrum eldri kaupfélögum, jafnvel K. E. A. sjálfu, því það er einmitt hið frumlega skipulag fyrstu kaupfélaganna hér á landi. Skipulag fyrsta og elzta kaupfélagsins hér á landi (K. Þ.) var einmitt grundvallað ekki einungis á algerðri sjálfsábyrgð deild-t anna, lieldur og á fullkominni sjálfsstj ói*n þeirra, m. ö. o. hinu ítrasta lýðræði — sjálfstjórn og sjálfsábyrgð eifistaklinganna. Mörg önnur yngri kaupfélög — þar á meðal K. E. A. — löguðu skipulag sitt eftir erlendum fyrirmyndum, með sterkri og valdríkri miðstjórn, en minna lýðræði. 1 stjórnskipun og starfsháttum stóðu slík fé- lög- og standa nær venjulegri kaupmennsku eða umboðsverzlun en hin upphaflegu ís- lenzku kaupfélög. Það er hlutarins eðli, að undir valdríkri fámennisstjórn eiga einstak- iingarnir minni kost á að hafa bein áhrif á rekstur fyrirtækisins. Þetta skipulag var afsakað með því, að alþýða manna væri ekki þroskuð til fyllra lýðræðis. En forgöngu- inenn fyrstu kaupfélaganna byggðu á því, að sjálft lýðræðið væri hinn eini skóli, sem kennt gæti mönnunum sjálfstjórn, kennt j>eim að lifa í virkilegu lýðræði, enda hefir því verið haldið fram af fjölmörgum félags- fræðingum. Þetta, sem höfundur greinarinnar kallar að K. E. A. hafi tekið upp „nýtt skipulag“ og orðið með því fyrirmynd annara eldri og yngri félaga, er því í rauninni ekkert annað en afturhvarf í áttina til eldra frumlegs, al- ísienzks skipulags, í líltingu við það, sem upphaflega var í K. Þ. Það er ömurlegt, þegar oflæti og sögu- leg vanþekking verða til þess að blandað er inn í jafn þarfa hugvekju sem hin um- rædda grein er, slíkri villu sem hér hefir verið bent á. Gerum ráð fyrir, að greinin sé skrifuð af ungum manni, sem sjálfur man lítið eða ekkert aftur fyrir 1914, því síður til 1882. Það er þó í rauninni engin afsökun. Þeim sem vilja rita um þróun samvinnustefnunn- ar hér á landi er skylt að afla sér réttrar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.