Tíminn - 12.02.1935, Blaðsíða 4
24
T 1 M I N N
Jarðir til sölu
Kolbeinn í Kölla-
firði og »vinir« hans
Framh. af 3. síðu.
Eftirtaldar jarðir, tilheyrandi dánar- og félagsbúi
Þóreyjar Pálsdóttur og Bjarna Þórðarsonar frá Reyk-
hólum, eru til sölu:
Reykhólar Barmar. Borg. Laugaland og átta hndr.
að fornu mati úr jörðinni Hóium _ allar í Reykhóla
hreppi í Barðastrandarsýslu. Ennfremur yarpeyjan
Stagley í Flateyjarhreppi í sömu sýslu.
Jarðirnar Reykhólar og Laugaland eru báðar laus-
ar til ábúðar í næstu fardögum.
Semja ber við Pál Magnússon lögfræðing, Ljós-
vallagötu 12 (sími 4923) eða við undirritaðan.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu b. febr. 1935
Ragnar Jónsson
settur
Hinar margeftírspurðu ágætu
j u n o
SAUMAVÉLAR
fást nú attnr h|á
Sambaud ísl. samvinn fálaga.
T. W. Euch
(Iiitasmidla Bnchs)
Tietgensdage 64. Köbenhavn B.
LITIR TIL HEIMALITUNAR:
Demantssorti, hrafnsvart, kastorsorti, Parisarsorti og
allir litir, fallegir og sterkir.
Mælum méð Nuralin-lit, á ull og baðmull og silki.
TIL HEIMANOTKUNAR:
, Gerduft „Fermenta“ ogog„Evolin“ eggjaduft, áfengis-
lausir ávaxtadropar, soya, matarlitir, „Sun“-skósvert-
an, „ökonom“-skósvertan, sjálfvinnandi þvottaefnið
„Persil", „Henko“-blæsódinn, „Dixin“-6ápuduftið,
„Ata“-skúriduftið, kryddvörur, blámi, skUvinduolía
o. fl.
Brúnspónn.
LITVÖBUB:
Anilinlitir, Catechu, blásteinn, brúnspönslitir.
GLJÁLAKK:
„Unicum“ á gólf og húsgögn. Þornar vel. Ágæt tegund.
HOLLENSKT EXPORT KAFFI-SURROAT:
Bezta tegund, hraint kaffibragð og ilmur.
Fæst allstadar á Islandi
FREYJU kaffibætisduftið
— nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi kaffibæti, ekkert vatn
eða önnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Freyju kaffibætis-
duftið drýgst, beilnæmast og bezt. Og þó er það ódýrara en kaffi-
bæti í atöngum.
Notið það bezta, sem iinnið er í landinn
gerðarhús í bænum og við hlið-
ina á Kaupfélagi Reykjavíkur
selt brauðin 12% ódýrara en
„vinir“ Kolbeins í bakarastétt.
Lítum svo á, sem trúnaðar-
menn bænda, þá Eyjólf
Jóhannsson, ól. Thors og
Þorvald í Amarbæli. Og ber-
um saman verkin í mjólkur-
málinu. Munurinn á athöfnun-
um er augljós, þegar bomir em
saman mennimir.
Ég vil enn leiða Kolbein og
„vini“ hans nær kjama máls-
ins. Úr því haxm biður um
„þessa“ bændur, þá verður
hann að athuga, hvaða ástæða
var til fyrir þá stjóm og þing-
meirahluta, sem byrjaði að
leysa málið, að leggja það í
lófann á mönnunum, sem vom
búnir að glíma við lausn þess í
mörg ár, en gátu ekki neitt.
Hið nýja sölusamband nær
yfir allt Suðurland og Borgar-
fjarðarláglendið. Mörg þúsund
bænda eiga líf og afkomu sína
undir því hversu fer um yfir-
stjórn samsölunnar. Nú vill
Kolbeinn í Kollafirði og „vinir“
hans, að leiðtogar Mjólkurfé-
lagsins 1 Rvík, Korpúlfsstaða-
eigandinn og Þorvaldur taki
þar við.
En hafa þessir menn sýnt,
að þeir séu hinir ákjósanleg-
ustu ráðsmenn fyrir bændur,
einmitt um mjólkina? Ég tek
fyrst til athugunar þrjá
þekkta leiðtoga í Mjólkurfélag-
inu, og reyni að meta hvort
sennilegt sé, að þúsundir
bænda á Suðurkpidi krefjist að
fá þá til að fara með sameig-
inlegar f ramleiðslutekj ur
þeirra.
Magnús á Blikastöðum er
einn af þekktustu leiðtogum
félagsins. I sumar sem leið
komst upp, að hann brá trún-
aði við félagið. Hann setti
sína mjólk ekki í félagið, eins
og honum bar skylda til, held-
ur hafði á henni lausasölu utan
við, til að fá hærra verð í sinn
vasa. Þetta komst upp og
margir fátæku fulltrúarnir í
félaginu heimtuðu að hann
yrði rekinn úr félaginu, og brot
hans var þess eðlis, að hann
átti það skilið. Það varð þó
ekki. Ihaldið bjargaði honum.
Hann lifir þannig, að vera
ráðamaður í félaginu en smygl-
aði vöru sinni utan við það.
Annar valdamaður í Mjólk-
urfélaginu var Vagn Jóhanns-
son. Hjá honum varð mikil
sjóðþurð, líklega nokkrir tugir
þúsunda. Valdamenn í félag-
inu breiddu yfir það. Að lokum
var hann látinn fara, en málið
ekki kært, og ekki rannsakað.
Fátæku bændumir í félaginu
urðu að þola þessa smán á
trúnaði þeirra. En hinir vold-
ugu „vinir“ Kolbeins breiddu
yfir fésýslu Vagns.
Loks kemur sjálfur forstjór-
inn, Eyjólfur. Um hann sann-
ast að hann gefur út sviknar
ávísanir á Landsbankann, að
hann lokkar 2—3 af starfs-
mönnum bankans með sér út í
ófæruna, að hann fær sér á
þann hátt að láni tugi þúsunda
af fé bankans, án vitundar
bankastjóranna, og án þess að
borga vexti. Þetta gengur ó-
hikað í nokkur ár. Hvar sem
var annarsstaðar í siðuðu landi
myndi slíkur forstjóri vera
geymdur undir lás og loku. Og
hvað sem lögreglan hefði gert
í málinu, þá hefði félagsstjóm-
in undir eins átt að losa sig
við slíkan mann. En hvað ger-
ist hér? Þegar sökin hefir
sannazt á Eyjólf, gefur stjóni
félagsins honum traustt
Smásöluverð
á ci«garetíum má ekki vera hærra en
hér segir:
Þetta getur verið góð latína
í Mj ólkurfélaginu. En allsstað-
ar annarsstaðar mun lands-
mönnum hrjósa hugur við því
hyldýpi af þróttleysi og vönt-
un á velsæmistilfinningu, sem
kom fram í þessum atburðum.
Þetta em nú „bændaleiðtog-
amir“, sem Kolbeinn og „vin-
ir“ hans , vildu fela umráð
mjólkurmálanna fyrir allt Suð-
urland og Borgarfjörð.
Snúum þá heim! á Korpúlfs-
staði. Vill Kolbeinn Högnason
telja bændum landsins trú um
að Thor Jensen eða synír hans
séu fæddir til að hafa forgöngu
um samvinnumál smáframleið-
anda. Fyrst er það, að Thor
Jensen hefir með búskap sín-
um útrýmt um 100 bændum
eins og þeir gerast austan-
fjalls. 1 öðru lagi hatar Thor
Jensen og synir hans öll sam-
tök bænda. Þeir hafa alltaf
gert sitt til að sundra mjólkur-
samtökunum. Þeir fyrirlíta alla
venjulega bændur, alla sem
vinna sjálfir. Undan þeirra
eigin tungurótum er það kom-
ið, að Mbl. lýsir mjólk frá
Kolbeini Högnasyni og öðrum
dugandi bændum, með orðinu
„samsull".
Vill Kolbeinn og „vinir“ hans
í alvöru halda fram, að bænd-
ur landsins eigi að óska eftir
að Kveldúlfsliðið stýri samsöl-
unni, fyrirtæki, sem þeir hata,
fyrir bændur sem þeir fyrir-
líta?
Ég kem síðast að Þorvaldi í
Amarbæli. Kolbeinn og „vinir“
hans telja hann án efa einkar
vel fallinn til bændaforustu.
Aðrir vita, að hann er allt af
að snúast, að hann er nokkurs-
konar hlaupagosi, sem enginn
ætlast til neins af, sem þekkir
manninn. Og Ámesingar og
Rangæingar munu brosa góð-
látlega í kampinn, þegar Kol-
beinn í Kollafirði stingur upp
á, að skifta á sr. Sveinbimi og
Þorvaldi í stjóm samsölunnar.
Mér finnst sennilegt, að Kol-
beinn í Kollafirði og „vinir“
hans fari að athuga sinn gang
betur áður en þeir heimta, að
valdið yfir samsölunni sé tekið
af þeim mönnum, er hafa það
nú og fengið í hendur Eyjólfi,
Jensen og Þorvaldi. Að minnsta
kosti er það verst fyrir „pilt-
ana sjálfa“, ef þeir halda á-
fram trú sinni á það, sem var.
Ef Kolbeinn og „vinir“ hans
líta á hvað þeir hafa gert á
undanfömum árum, ef þeir líta
bak við tjöldin og spyrja fá-
tæku Mjólkurfélagsbænduraa
hvað þeir hugsa um verðleika
Eyjólfs, Vagns og Magnúsar
Þorlákssonar, þá hygg ég að
verði minni sannfæringarfesta
í röddinni, er þeir í næsta
skifti biðja urri Barrabas
m j ólkurmálanna.
Sjálfsagt er Kolbeini og „vin-
um“ hans ljóst. að kröfur
þeirra verða ekki teknar há-
tíðlega. Mjólkurmálið var tekið
af þeim, þar sem það var
í eymd og vonleysi. Þeir
gerðu við kosningamar í vor
allt sem hægt var málstað
bænda til tjóns. Á sex mánuð-
um er búið að vinna þrekvirki
í mjólkurmálinu. Hin „siðferði-
legu“ virki Eyjólfs og Vagns
hafa verig tekin hvert af öðru.
Málið hefir unnizt af því að
það var tekið úr höndum
skammsýnna klíkuforkólfa, og
gert að landsmáli. Sigrar
stjómarflokkanna byggjast á
því, að framkvæmd mjólkur-
málsins er nú í höndum dug-
andi manna, sem stefna að því
að leysa það á þann hátt, að
allur almenningur á landinu
sunnan- og vestanverðu hafi af
því sannarlega endurbót á
lífskjörum sínum. J. J.
Capstan 10
Players N/C med. 10
Do. 20
May Blossom 20
Elep’nant 10
Commander 20
De Reszke 20
Do. Turks 20
Soussa 20
Teofani 20
Craven A. 10
Westminster A.A. 10
Melachrino No. 25 20
Abdulla No. 70 20
Do. Imperial 20
Do. No. 25 20
Do 25 10
Do, fí 28 25
Do. )) 16 20
Do. )) 16 10
Bastos 20
Papastratos , No. 1 20
Hellas No, 2 20
Do. „ 5 20
stk. pakkinn kr, 0,85
- - — 0,85
- - _ 1,60
— — 1,30
- - 0,60
— - _ 1,20
— _ _ 1,30
— - — 1,35
— — 1,35
_ _ _ 1,35
_ - 0,80
— — 0,75
_ - 1,35
— — 1,45
— — — 1,45
— — — 2,35
— — — 1,20
— - - 2,50
- 2,60
— — 1,40
_ - — 1,06
— — — 1,50
— - — 1,50
— — — 1,30
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má álagning-
in í smásölu vera 3°/0 hærri vegna flutningskostnaðar.
Athygli skal vakin á því að hærri álagning á cíg-
arettur í smásölu en að ofan segir er brot á 9. srr.
reglugerðar frá 29. des. 1931 um einkasölu á tóbaki og
varðar frá 20—20000 króna sektum.
Reykjavík 8. febrúar. 1935
Tóbakseinkasala ríkisins
Munnfóbakið
er frá
Brödrene Braun
KAUPMANNAHÖFN
Biðjíð kauptnann yðar um
B.B. munntóbak
Fæst allsstaðar.