Tíminn - 13.03.1935, Side 2

Tíminn - 13.03.1935, Side 2
40 T 1 M I N H Laun hátekjumanna í Reykjavík Óláns fjós og óláns tala Sigurður Eggerz sagði eitt sinn í blaðagrein um Jón Þor- láksson, að nornirnar hefð’i mælt svo um yfir vöggu hans, að hann skyldi jafnan vanta einn humlung á að ná sínu tak- marki. Sigurður Eggerz leiddi þá rök að því, að umsögn norn- anna hefði orðið að áhrínsorð- um. Jón hefði alltaf vantað einn þumlung að hverju því takmarki, sem hann hefði reynt að ná. Saga síðari ára hefir ekki breytt þessu. Jón Þorláksson hefir haft viðleitni á margan hátt. En hann hefir jafnan strandað. Ráðagerðir hans hafa borið í sér einhverja innri meinsemd, sem orðið hefir þeim að aldurtila. Jón Þorláksson er búinn að viðurkenna ósigur lífs síns. Hann hefir dregið sig í hlé í landsmálabaráttunni. — En á gamalsaldri hefir hann þó gert tillögu sem er alveg óvenjulega langt frá að nálgast takmark- ið. Það er tillaga hans í bæjar- stjóm Reykjavíkur um að koma upp 13 hundruð kúa búi í Reykjavík, til að eyðileggja lífsmöguleika meginhlutans af bændum á landinu sunnan- og vestanverðu. Ef til framkvæmda kæmi vrði fyrirtæki þetta áreiðan- lega ólánsstofnun fyrir höfuð- staðinn og ólánstala er á höfðatölu kúnna, sem Jón Þor- láksson vill setja í þetta risa- vaxna íhaldsfjós. Jón Þorláksson lýsti þessari hugmynd þannig, að tilgangur- inn væri sá, að gera bæinn al- veg sjálfstæðan um mjólkur- framleiðslu. 1 bæjarlandinu segir hann að nú séu 700 kýr, en 2000 þurfi handa bænum. Nú er það tilgangur Jóns að skera niður alla mjólkurað- aðflutninga til bæjarins og gera bæinn að stórfelldum landbúnaðarbæ, auk atvinnu bæjarbúa o. s. frv. Þó er þessi framkvæmd ekki huguð fyrst og fremst sem blessun fyrir bæinn, heldur sem bölvun og eyðilegging fyrir nokkur blóm- legustu héruð landsins. Þessi ólánstillaga J. Þ. er svo ólánleg, hvar sem á hana er litið, að alstaðar blasa við smíðalýtin. Það sem J. Þ. fer hér fram á, er fyrst og fremst stefnusvik gagnvart íhalds- mennskunni. Þar sem socialist- ar hafa sett upp bæjarbú, eins og á ísafirði og Siglufirði, hefir J. Þ. og allt hans lið ó- virt jafnaðarmenn fyrir slíkar framkvæmdir og talið kúabú, )-ekin af bæjarfélagi, hreina fjármálaglópsku. Og þegar jafnaðai-menn í Rvík hafa lagt til að koma hér upp bæjarfjósi, þá hefir Mbl. svívirt þá fyrir að láta sér detta annað eins í hug. J. Þ. svíkur þess vegna í- haldsstefnuna og fleygir sér í fang socialista með þessari til- lögu. En látum nú svo vera, að Jón og lið hans vildi skifta um stefnu og ganga socialistum á hönd í þessu máli, þá er eftir að framkvæma hina nýju stefnu. Og hvemig yrði framkvæmd- m. Ræktun og húsiabyggingar og bústofnskaup eftir tillögu J. Þ., er miljónafyrirtæki. Og bærinn hefir enga peninga, og er í mestu vandræðum með smáupphæðir í atvinnubætur, hvað þá það sem meira er. J. Þ. vantar landið til að rækta, beitilandið fyrir kýmar, og fjármagnið til að hrinda verk- inu áfram, þó að ekki vantaði annað. Og hvar hefði J. Þ. bústofn- inn? Og ekki sízt kunnáttu- mennina til að stýra slíku fyr- irtæki? Og hve mörg ár tæki að koma í lag svo stórfelldri ræktun og svo miklum húsa- byggingum! Þetta eru að vísu fáránlegar hliðar á fyrirtækinu, en þó er annað enn fjarstæðara, og það er hugsunin, sem liggur næst á bak við sjálfa hugmyndina. J. Þ. heldur í sinni vanmáttugú drýldni, að einhver einn lands- hluti geti tekið sig út úr þjóð- arheildinni og verið „sjálfstæð- ur“. J. Þ. heldur, að Reykjavík geti orðið sjálfstæð urn mjólk- urkaup, aðeins af því að honum; líkar ekki i bili við sunnlenzka bændur. En hefir J. Þ. gætt að hvort Rvík getur um allt staðið á eigin fótum? Hversvegna fær bærinn aldrei nokkurt lán er- lendis, nema „bændurnir" skrifi upp á víxilinn? J. Þ. veit afar- vel um Sogslánið. Hann gat ekkert fengið nema landið gengi í ábyrgð fyrir hann eða „bæinn“ hans? Hvar var þá sjálfstæði hans og hvar var „drýldniri', sem hann hyggur nú að dugi sér í mjólkurmál- inu? Nei. Jón var þá auðmjúk- ur og ríkisstjórnin varð að senda tvo valda menn til að hjálpa honum við Sogslánið í Stockhólmi, þá Sigurð Jónasson og Jón Krabbe. Jón skildi þá hve mikil nauðsyn það var að þjóðin öll stæði á bak við fjár- málaútvegun lians fyrir höfuð- staðinn. I bili hefir hann gleymt því, að alveg eins og þjóðin varð að standa saman um Sogsmálið, þannig þarf hún Öil að taka á að leysa mjólkur- málið. En á bak við þessa vansköp- uðu hugsun Jóns um hið full- komna fullveldi Rvíkur gagn- vart byggðum landsins, er samt ein hugsun, enn lægri og enn ómannlegri: Hefndartil- finning gagnvart sunnlenzkum bændum, sú hugsun, að vilja setja á stofn risafyrirtæki, ein- göngu til að komá þeim á von- arvöl. Segjum að einhverjar illar nornir hefðu gefið J. Þ. óska- stund á síðasta bæjarstjómar- fundi, og hann notað tækifærið og fengið óskina úppfyllta: 13 hundruð kýr í risavöxnu fjósi. Nóg ræktarland handa kúnum og jafnvel beitiland orðið til úr melum og hraunum í nánd við • Rvík. Hvaða blessun thefði svo fylgt þessu fyrir bænduríMýr- arsýslu, Borgarfirði, Kjós, Gullbringusýslu, Árnessýslu og Rangárvallasýslu ? Með uppfylling óskar sinnar hefði J. Þ. fengið þá ánægju, að koma miklum hlutaaf bænd- um þessara svæða á vonarvöl, fella í verði eignir þeirra, og valda því, að þeir hefðu þús- undum saman flæmst frá jörð- um sínum. Draumsjón J. Þ. hefði í uppfyllingu! sinni verk- að eins og Kötlugos á hag þessara manna. Vöntun síðasta þumlungsins í hugsun J. Þ. er þessi: Hann skilur ekki verkskiptinguna í þjóðfélaginu. Hann skílur ekki að bændumir á landinu sunnan- og vestanverðu hafa eðlilegan rétt á að framleiða þá mjólk, Tekjur framleiðslustétt- anna. Álit og tillögur launamála- nefndar hafa nú verið lagðar fyrir Alþingi. Eins og áður hefir verið sagt frá, aflaði nefndin sér upplýs- inga eins nákvæmra og kostur var, um þjóðartekjurnar og svo um tekjur einstakra stétta þjóðfélagsins. Sú niðurstaða, sem nefndin komst að við þessa athugun, er á þá leið, að meðaltekjur full- vinnandi fólks, sem vinnur að framleiðslu, hafi verið árið 1933, sem hér segir: Karlar Konur Við iðnað 2100-2400 1400-1600 Við sjávarútveg 1800-2100 1200-1400 Við landbúnað 1400-1600 1000-1600 Eins og gefur að skilja hef- ir margt þeirra manna, sem stiíída þessar atvinnugreinar talsvert lægri tekjur en þetta, en aðrir líka nokkru hærri. En eigi að síður er það ljóst af þessum tölum, að framleiðslu- stéttirnar yfirleitt búa við lág- ar tekjur, yfirleitt lægri tekj- ur en þær stéttir þjóðfélags- ins, sem ekki vinna að fram- leiðslustörfum, því meðaltekj- ur þjóðarinnar eru talsvert hærri. Hátekjumenn í Rvík. Jafnframt þessari athugun fékk nefndin leyfi fjármálaráð- herra (Á. Á.) til þes's að at- huga skattaframtöl í Reykja- vík árið 1934 og gerði hún síð- an skrá yfir þá, sem höfðu yf- ir 6000 kr. tekjur árið 1933 og birtast skýrslur um niður- stöður þeirrar athugunar í áliti nefndarinnar. Sýna þær tölur ljósast hversu gífurlegur mun- ur er á tekjum manna og að fólkið, sem starfar að fram- ieiðslunni, hinn óbreytti vinnu-. lýður, verður langharðast úti. Fer hér á eftir útdráttur úr þessum skýrslum nefndarinnar: 120 kaupmenn hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Þrjátíu og sex hafa frá 10—15 þús. kr., fjórtán frá 15—20 þús. kr., fjmm frá 20—25 þús. kr., fjórir frá 25—30 þús. krónur, fjórir frá 30—35 þús. krónur, tveir frá 35—40 þús. kr., fimm frá 40—45 þús. kr., fjórir frá 45—50 þús. kr. Fjórir þeir Stjórnmál Janúai' lauk þannig, að íhald- ið var í miklum vígahug út af rnjólkurmálinu. — Þegar þeir Pétúr Halldórsson og Jakob Möller sáu að mótstaða þeirra var þýðingarlaus í Rvík, en skaðleg fyrir fylgi íhaldsstefn- unnar úti í sveitum, drógu þeir sig í hlé á yfirborðinu og aðrir af þekktari leiðtogum flokks- ins, en stóðu hinsvegar á bak við og ýttu konum sínum sín- um fram. Mynduðu íhaldskonur félagsskap all víðtækan um að forðast mjólkurkaup. Mbl. birti ráðleggingar um matreiðslu, þar sem ekki var notuð mjólk, en í staðinn soð og ýmisleg önnur nýstárleg efni. Mbl. og Vísir létu vel yfir samtökum kvenna sinna og þóttust hafa ráð bænda í hendi sér. Töldu blöð þessi að samsalan skaðað- ist Um nokkur þúsund lítra á dag vegna verkfallsins. Stjórn samsölunnar sá að framferði kvennanna og áðurgreindra blaða mundi stórlega v&rða við lög. Fól stjóm saansölunnar for- manni sínum, sr. Sveinbirni Högnasyni, að hefja þessi mála- ferli. Verða fyrir þeim ritstjór- arnir Páll Steingrímsson, Jón tekjuhæstu hafa þessi laun: Einn 64 þús. kr., annar 78 þús. kr., þriðji 90 þús. kr. og fjói-ði 96 þús. kr. I þessum flokki eru taldir fjórir lyfsalar. 29 heildsalar hafa yfir 6 þús. kr. tekjui', þar af enginn neð- an við 7 þús. kr. Sex hafa frá 10—15 þús. kr., fjórir frá J.5 —20 þús. kr., þrír frá 20—25 þús. kr., þrír frá 25—30 þús. kr., einn frá 30—35 þús. kr., þrír frá 35—40 þús. kr. og tveir þeir tekjuhæstu hafa frá 41—43 þús. kr. 52 aðrir verzlunarmenn hafa yfir 6 þús. kr. tekjur, þar af þrír yfir 10 þús. kr. Sá tekju- hæsti hefir 15—16 þús. kr. 67 forstjórar (til þeirra eru m. a. taldir útgerðarmenn) hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Tuttugu og fjórir hafa frá 10—15 þús. kr., þrettán frá 15—20 þús. kr., átta frá 20—25 þús. kr. og þrír frá 25—30 þús. kr. Sá tekjuhæsti hefir 75 þús. kr. 6 skrifstofustjórar hafa yfir 6 þús. kr. tekjur, og hefir eng- inn þeirra neðan við 8 þús. kr. Sá tekjuhæsti hefir 14—15 þús. kr. II eignamenn (menn, sem eingöngu hafa tekjur af eign- um) hafa yfir 6 þús. kr. tekj- ur. Tveir hafa frá 18—19 þús. kr., einn 21—22 þús. kr., annar 28—29 þús. kr., þriðji 32—33 þús. kr. og fjórði 43—44 þús. krónur. 53 fulltrúar, gjaldkerar, bók- arar og skrifarár hafa yfir 6 þús. kr. Fimm þeir tekjuhæstu hafa milli 11 og 12 þús. kr. 36 skipstjórar hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Tíu hafa 10— 15 þús. kr., tíu 15—20 þús. kr. og sex 20—27 þús. kr. 79 stýrimenn og vélstjórar hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Þar af hafa 12 yfir 10 þús. kr. 26 læknar hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Átta hafa 10—15 þús. kr., tveir 15—20 þús. kr. og sá tekjuhæsti 25—26 þús. krónur. 15 lögfræðingar hafa yfir 6 þús. kr. tekjur, þar af 7 með 10—15 þús. kr. 6 hæstaréttarmálafl.menn lrafa yfir 6 þús. kr. tekjur, þar af fimm 11—14 þús. kr. 13 verkfræðingar og sér- í febrúar Kjartansson og Valtýr Stefáns- son og auk þess höfuð skörung- arnir í liði kvennanna, en það eru þær systur Ragnhildur í Háteigi og Guðrún Pétursdóttir, móðir þeirra Bjarna Benedikts- sonar og Sveins, sem féll fyrir íhaldið í Norður-Þingeyjarsýslu í vor sem leið. Er búizt við að þetta fólk verði að borga bænd- um eftir dómi all verulega fjár- hæð. Verður sú upphæð vafa- laust greidd úr flokkssjóði í- haldsins. En mjög brá íhalds- mönnum við málaferlin og útlit með skaðabætur og hafa haft betri gát á orðum sínum og at- höfnum síðan. Ihaldið skilur vel, að ef sam- vinnumönnum í sveit og verka- mönnum í bæjum tekst að leysa þetta mikla vandamál þanníg, að bændur fái stórum bætta aðstöðu og almenningur í bæjum betri vöru og með eitt- hvað hagstæðara verði, þá muni fleira á eftir fara, búðum verða fækkað og óþörfum milliliðum, en hlynt að starfandi kaupfé- lögum. Nýlega var haldinn fundur í Mjólkurfélagi Reykjavíkur. Bar þar á góma sá möguleiki, að fræðingar hafa yfir 6 þús. ltr. Fjórir hafa yfir 10 þús. kr, og sá tekjuhæsti hefir 15—16 þús. kr. 10 skólastjórar og kennarar hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Þrír hafa yfir 10 þús. kr. 8 byggingameistarar hafa yf- ir 6 þús. kr. tekjur. Fjórirhafa 12—15 þús. kr. og sá tekju- hæsti 22—23 þús. kr. 31 tré_ og járnsmiðir hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Tveir hafa yfir 10 þús. kr. og sá tekjuhæri-i þeirra hefir 15—16 þús. kr. 8 klæðskerar hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Tveir hafa 13—15 þús. kr. og tveir 17—-20 þús. krónur. 12 bakarar hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Fimm liafa yfir 10 þús. kr. og tveir þeir tekju- hæstu 14—15 þús kr. 8 rakarar hafa yfir 6 þús. kr. tekjur. Sá tekjuhæsti hefir 17—18 þús. kr. Enginn þeirra, sem nú hafa verið taldir, er í þjónustu rík- isins. Alls voru 739 menn hér í Reykjavík árið 1933, er ráku einkarekstur og höfðu yfir 6 þús. kr. árstekjur. 151 höfðu frá 10—15 þús. kr., 55 frá 15— 20 þús. kr., 24 frá 20—25 þús. kr., 13 frá 25—30 þús. kr., 6 frá 30—35 þús. kr., 5 frá 35— 40 þús. kr., 8 frá 40—45 þús. kr. og 4 frá 45—49 þús. kr. — Auk þess eru þeir allra tekju- hæstu, sem hafa yfir 50 þús. og áður hafa verið skilgreindir sérstaklega. Auk þessara manna voru í Reykjavík sama ár 273 starfs- menn rikis og ríkisstofnana (bankar meðtaldir) sem höfðu yfir 6 þús. kr. tekjur. 54 höfðu frá 10—15 þús. kr., 16 frá 15 —20 þús. kr. og 4 frá 20—27 þús. kr. Það var vegna þessara há- tekna, sem breytingin á skatta. lögunum var gerð á Aiþingi 1934. Yfirleitt dylst ekki nein- um, sem þessa skýrslu les, ið hinn gífurlegi múnur á tekjum þeirra, sem vinna að fram- leiðslunni hörðum höndum og hinna, sem taka laun sín af framleiðslunni á annan hátt, er langt um meiri en hóf sé á. Sauðfjárkvlllar. Talsvert. hefir liorið á vanheilsu í fénaði í Skaga- firði og kenna menn um slæmum lieyjum frá síðastliðnu sumri. samsalan keypti mjólkurstöð félagsins, ef til vill að hún yrði tékin eignarnámi. Sagði Eyjólf- ur Jóhannsson, að þá myndu bændur losna úr verzlunar- tengslum við hann og yrði þá félagið ekki lengur á neinn hátt riðið við mjólkurmeðferð, heldur verzlunarfyrirtæki utan um skrifstofuhúsið við höfnina. Hvað úr því verður bíður síns tíma. Alþingi kom saman 15. febr. eins og til stóð. Hermann for- sætisráðherra var þá nýkom- inn úr utanför. íhaldið var í daufu skapi Sótti minna þing- setningarathöfnina en vant var. Mátti á ýmsum merkjum sjá, að undangengin átök við Fram- sóknarmenn hafa tekið á leið- togana. Einkum var Ölafur Thors gleðilaus. Forsetar voru kjörnir hinir sömu og áður og þingmenn yf- irleitt í sömu nefndum og áð- ur. Voru nú engir snúningar við Þorst. Briem eins og í haust er Jón Baldvinsson setti hann niður í efri deild. Heldur var dauft yfir þing- inu fyrstu dagana. Mjög stutt var milli þinga og stjóminni vannst ekki tími til að fullgera nema fá frv. En unnið var í nefndum að mörguim þýðingar- miklum málum og voru þau að koma í deildimar fyrstu vikur þingsins. íhaldið kom ekki méð nein frv. sem máli skiptu og enn síður varaliðið. Meðan Hermann forsætisráð- herra dvaldist í Danmörku ræddi hann við Stauning for- sætisráðherra Dana um verzl- unarmál landanna. Varð það til þess, að Danir sendu þrjá menn til Islands í þeim erindum, að freista að ná samkomulagi um bætt viðskipti milli landanna. Nú er það svo, að frá fornu fari kaupa íslendingar mikið í Dan- mörku, eri kaup Dana á íslenzk um vörum haí'a minnkað ár frá ári, eftir því sem meira hefir orðið um bein viðskipti við hin stærri lönd. Hér heima var val- in nefnd úr öllum þrem flokk- unum til að semja við Danina. Vann nefndin að þessum mál- um í Jiðuga viku, að því er talið er með þeim árangri, að báðir megi við una. Á þessum erfiðu tímum verður hönd að selja hendi í viðskiptum þjóðanna eða jöfnuður að koma milli fleiri ríkja. Þannig geta Danir t. d. keypt minna af íslandi heldur en íslendingar af þeim, en í þess stað vísað á einskonar innieign um verzlunarjöfnuð í Póllandi, þar sem er mikill markaður fyrir síld og 1 Portú- gal, þar sem ísland þarf að selja mikinn saltfisk. Um þessa samningatilraun er það að segja, að smáþjóðirnar finna á yfirstandandi erfiðleikatímum milda nauðsyn að standa samán um lausn hinna erfiðu viðskipta mála. Landsfundur bænda kom sam- an um líkt leyti og Alþingi. Til fundarins var boðað af legát- um „varaliðsins". Hafði sú manntegund leikið með þessa hugmynd tvo undanfarna vetur. Var tilgangurinn sá, að véla bændur úr Framsóknarflokkn- um og koma þeim í þjóns að- stöðu við íhaldið. I undirbún- ingsnefndinni áttu sæti, auk „vina“ íhaldsins, Sigurgrímur bóndi í Holti,Björn Birnir bóndi í Grafarholti og Guðmundur Jónsson á Hvítárbakka. Þeir réðu því að til fundarins * var boðað með miklu meira víðsýni en áður. Auk fulltrúanna frá almennum bændafundum og búnaðarsamböndum, skyldu nú korna fulltrúar kaúpfélaga, mjólkurbúa, héraðssamböndum kvenna, ungmennafélögum og' nemendasamböndum sveitaskól- anna. Voru þessi ákvæði tekin eftir fyrirmynd norska bænda- sambandsins, þar sem unnið hef ir verið að þessúm máluin í alvöru og einlægni. Á fundinn komu um 140 fulltrúar víðsveg- ar af landinu. Allur undirbún- ingur fundarins var að öðru leyti í niestu handaskolum, ekki séð fyrir fundahúsi, eða öðru, sem með þurfti Snemma á fund- inúm var borin upp tillaga um að kjósa Sigurð Bjarklind sem aðal fundarstjóra, en Pétur á Oddstöðum og Páll á Ásólfsstöð um til aðstoðar. Ihaldið og vin- ir þess risu æfir á móti því að kjósa fastan fundarstjóra fyr- ir alla fundina. Þeir vildu hafa allt laúst og opið, því að engin var alvaran. En er til kom, var Bjarklind kosinn með 80 atkvæðum en á móti voru greidd 38. Nú sló óhug miklum á íhald- ið og vini þess. Undu þeir verst hag sínum Gísli Sveinsson, Jón í Stóradal og sr. Eiríkur á Hesti. Þorsteinn Dalasýslumað- ur bar Framsóknarmönnum þann vitnisburð, að þeir kæmu eins og flugur allsstaðar að af landinu ef halda ætti landsfund í Reykjavík. Varð nú deila um skipulagið. Vildu íhaldsmenn og vinir þess binda félagsskapinn við eldri bændur, en útiloká æskuna, bæði karla og konur, og þá ekki sízt kaupfélögin.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.