Tíminn - 08.05.1935, Blaðsíða 1

Tíminn - 08.05.1935, Blaðsíða 1
Ojaíbbagt fe 1 o 6 o i n p tt 1. >öt»i Árgongutmn teatat 7 {<* ^fgteifcsk* Ofl taaí)clmta á iaugaoeg 10. 6im! 2353 — Póst^ij ðGI 20. blað. Reykjavík, 8. maí 1935. XIX. árg. Viðuvkenning Fimmtugsafmæli Jónasar Jónssonar er ný afstaðið. Þann dag var gjört einskon- ar bráðabirgðayfirlit yfir braut_ ryðjandastarf þessa þjóðkunna manns. Nær fimmtíu menn víðsveg- ar á landinu nota afmælisdag- inn til þess að minnast opinber. lega í riti J. J. eða einstakra framkvæmda hans. í Reykjavík var efnt tilfjöl- mennustu afmælishátíðar, sem vitað er til að nokkrum ein- staklingi hafi verið haldin hér á landi — og hefir þó sízt ver- ið litið svo á, ag J. J. ætt hlut- fallslega miklu fylgi að fagna í sjálfum höfuðstaðnum. Árnaðaróskir berast hvaðan- æfa af landinu, bæði frá stofn- unum og einstaklingum, og einnig frá mönnum í öðrum löndum. Og því fer mjög fjarri, að öll viðurkenningin komi frá samflokksmönnum Jónasar Jónssonar eingöngu. Þessi afmælisfagnaður hefir að sjálfsögðu gildi fyrir J. J. persónulega. En hann hefir auk þess víðtækara gildi. Bráðabirgðayfirlit það, sem nú hefir fengist yfir brautryðj- andastarfsemi J. J. mun hafa mikil áhrif á samherja hans, vegna þess, að umfram það, sem minningargreinamar sjálf- ar leiða í ljós, þá rifjast upp fjölmörg einstök atriði, svo að kalla í hverju máli, sem hljóta að hleypa kappi í kinn, og er þar ekki sízt átt við andstöðu þá, sem flest þessi umbóta- störf hafa sætt. Og það fer heldur ekki hjá því, að jafnvel þeir, margir hverjir, sem staðið hafa álengd ar og látið sig litlu skipta þau átök, sem óhjákvæmileg voru á hverjum tíma, til þess að fá til vegar komið ýmsu því, sem nú er fram komið, — að einmitt þeir hrífist með og leggi hönd á plóginn um mörg þau1 úr- lausnarefni, sem fyrir liggja, en þar sem Jónas Jónsson fer í fararbroddi. Menn komast ekki hjá því að viðurkenna það, og einkum eftir þennan afmælisdag, að J. J. er þegar á miðjum aldri orð- inn sá maður með þjóðinni, sem náð hefir alþjóðar viður- kenningu fyrir óvenjulegt um- bótastarf, enda þótt allmikill hluti þjóðarinnar láti þessa við urkenningu enn sem komið er aðeins í té með þögn. Síðan Jón Sigurðsson leið, hefir enginn íslenzkur stjórn- málamaður hlotið svo mikla og almenna viðurkenningu. Það er ekki öðrum stjórnmálamönn- um til lasts. En það er styrkur í starfi og ánægjuefni þeim flokki, sem hefir valið sér Jón- as Jónsson að foringja. Aðalfundur miðstjórnar Framsóknar- flokksins verður haldinn í Sambandshúsinu í Reykjavík dagana 7. og 8. júní n. k. Jónas Jónsson alþingism. fór utan með Gullfossi í gærkveldi. Hann mætir sem fulltrúi Alþingis á mínningar- hátíð sænska ríkisþingsins. Kúadauðinn Ég verð var við það í bréf- um til mín frá bændum víðs- vegar að, að það hefir slegið óhug á þá vegna kúadauðans sem sagt hefir verið frá í Eyjafirði, bæði í blöðum og útvarpi. Menn eru hræddir um að um eitrun hafi verið að j ræða frá sddarmjöli, og eru að spyrja um, hvort óhætt muni vera að gefa það næsta vetur. Út af þessum bréfum vil ég skrifa nokkur orð um málið frá mínu sjónarmiði, en ann- ars er undir rannsókn hver or- sökin hafi verið og verður niðurstaða hennar vafalaust birt þegar hún er fengin. Ég vil þá fyrst upplýsa það að það hefir víða á landinu, þar sem hröktu heyin frá í sumar hafa verið gefin, borið með mesta móti á doða. Hvor- ugt þetta kom mér á óvart. í því fyrsta útvarpserindi sem ég flutti á síðastliðnum vetri, að tilhlutun útvarpsfræðslu- nefndar Búnaðarfélags Islands benti ég á þetta, og réð mönn- um til að fá sér doðaáhöld og til að gefa fóðursalt, sem nú væri alveg sérstök þörf á. Doðinn, sem oftast kemur um burðinn, orsakast, að því er bezt er vitað nú, af kalk- skorti. Sé kalk- eða steinefna- skorturinn ekki mjög mlkill, þá batnar hann af dælingu, en sé hann á mjög háu stigi, batnar hann bara í bráðina, en svo leggst kýrin aftur með krampa og drepst mjög fljótt. Mér þótti líklegt, að steinefn- in hefðu tapast það mikig úr hröktu heyjunum, að hætta yrði á þessu, og því sagði ég það sem ég sagði í erindi mínu í vetur. Og ég hygg, að nú sé það komið á daginn, að ég hafi getið rétt til. Og því aðeins er það komið á daginn, að menn hafa ekki gætt þess að fara að mínum ráðum í haust og gefa fóðursaltið. Ég er sannfærður um, að orsökin til hins tíða doða og mikla kúadauða, er engin önn- ur en vöntun steinefna í fóðr- ið. Bændur þurfa því alveg á- reiðanlega ekki að vera hrædd- ir um neina eitrun eða annað frá fóðurbætinum, sem sé or- sök til þessa. Hann hefir, þar — eða sumar tegundir hans, eins og t. d. síldarmjölið — dregið úr því að fram kæmu og til skaða leiddi, kalkskort- urinn í heyinu, og því átt sinn þátt í því að ekki hafa enn fieiri kýr drepist, en raun hef- ir orðig á. Og óhræddir skulu þeir kaupa fóðurbæti, sjái þeir sér hag í því eftirleiðis. Annars er þess að vænta, að prófessor Dungal takist að sanna hver sé hin raunveru- lega orsök kúadauðans í Eyja- firði, enda þó hann hér suður í Reykjavík hafi slæma að- stöðu til þess, þar sem hann ekki getur séð hina sjúku eða dauðul gripi, og ekki fram- kvæmt ýmsar þær athuganir, sem hann annars ætti kost á, ef hann væri á staðnum. P. Z. A víðavangi Hverjir borga hærri skatt? Mbl. og fjánnálaglópar þess hafa hvað eftir annað leyft sér að bera fram þaú ósannindi, að breytingin á tekjuskattslög- unum, sem gerð var á síðasta Alþingi, hafi í för með sér til- finnanlega skattahækkun á bændum og öðrum smáfram- leiðendum úti um byggðir landsins. Á þessu byggja svo íhaldsblöðin þá fölsku staðhæf- mgu, að breytingin muni hafa áhrif í þá átt að draga úr tekjustofnum sveitafélaganna. Til þess enn einu sinni að hrekja þessar ósvífnisfullu blekkingar, skal hér birt eftir- farandi yfirlit um skatt nú og fyr af 3000—14000 kr. hrein- um árstekjum, miðað við hjón með þrjú börn — til heimilis utan Reykjavíkur: cð 'S *j? Jr 0) Kr. 3000 3500 4000 4500 5000 6000 7000 8000 10000 12000 14000 s- tí s ■£ c3 3 CO -cð :o oá —1 > Kr. 3,00 7,00 20,30 30.80 44.80 79.80 128,80 191.80 359.80 583.80 863.80 5-SS-- ■ cr. cí C Æ — á-sl"53 Kr." 3,00 8,00 16,00 28,60 46,20 100,10 183,70 289,30 548,90 852,50 1196,80 Þetta yfirlit sýnir glöggt, að skatturinn hækkar ekki frá því seiri| áður var fyr en komið er upp í 5000 kr. hreinar tekjur (þ. e. þegar búið er að draga frá vinnulaun og önnur rekstursútgjöld) á ári. En spekingarnir við Mbl. halda víst, að bændur almennt hafi m'eira en 5000 kr. hreinar árs- tekjur! Eitt dæmið enn urn þekkingu þeirra á kjörum sveitafólksins eða vilja til að segja satt. Hvernig stjórnar íhaldið í Reykjavík? Nýja dagblaðið hefir undan- farna daga birt ýmsar eftir- tektarverðar niðurstöður við- víkjandi fjármálastjóminni hér í Reykjavíkurbæ. Þessar niðurstöður eru allar byggðar á fjárhagsáætlun yfirstand- anda árs (sem samþykkt hefir verið af íhaldsmeirahlutanum) og bæjarreikningum sex síð- ustu ára. Þessar niðurstöður sýna það, að bæjarstjórnin er á þessu ári að hækka útsvör og neyzluskatta á Reykvíking- um um 688 þús. kr. frá því sem var í fyrra. Sú hækkun nemur um 30%. Þær sýna, að útgjöldin fara hraðhækkandi ár frá ári. Þær sýna, að raf- magnið er selt bæjarbúum með 80% álagningu og að arð- urinn af bæjarfyrirtækjum er að verulegu leyti tekinn til að borga dagleg útgjöld bæjar- sjóðs í stað þess að lækka verðið á gasi, vatni og raf- magni. Þær sýna ennfrem'ur, að síðan 1929 er íhaldið búið að hækka skattana á bæjarbú- um um hvorki meira né minna en 113% eða meira en helm- ing. Þær sýna, að engin tilraun hefir verið gerð til sparnaðar. Þær sýna, að bær- : inn heldur við dýrtíðaruppbót og hálaunum og stofnar hvern bitlinginn á fætur öðrum handa gæðingum meirahluta- ans. Þær sýna að íhaldið í bænum stendur í vegi fyrir því að ríkið geti fært niður hálaun. ! | Reykjavíkurbær skuldar 14,7 milj. kr. Og hvernig er svo efnahag- ur bæjarins. Samkvæmt síð- ’ asta efnahagsreikningi eru J skuldir bæjarsjóðs, rafmagns- j veitu, gasstöðvar, vatnsveitu og hitaveitu taldar ca. 6 milj. 240 þús. kr., skuldir hafnar- sjóðs ca. 2 milj. kr., og þar við bætist svo Sogslánið. sem er um 6Vá milj. kr. að upphæð. Samkvæmt þessu eru þá skuldir Reykjavíkurbæjar alls meira en 14,7 miljónir króna. Það eru yfir 445 krónur á hvert mannsbarn í bænum. Þannig er fjármálastjóm þeirra manna, sem nú þykjast þess umkomnir að tala digur- barkalega um skuldir ríkisins, og ráðleggja öðrum að fara gætilega í lántökum: Hækkun skatta um 113% á sex árum! 445 króna bæjarskuld á hvert mannsbarn í Reykjavík. Svona er stjórnað, þar sem íhaldsmenn ráða einir. Það er ekki að furða, þó að slíkir menn gorti af gætni sinni í fjármálum! „VaraJiðið“ grípur til „hand járnanna"1! Fyrir nokkrum dögum boð- aði varalið íhaldsins til „flokks- fundar“ austur í Árnessýslu. Var fundurinn fámennur, eins og vænta mátti, en héðan úr Reykjavík voru þeir mættir m. a. Jón frá Dal og Svafar Guð- mundsson. Magnús Torfason var ekki á fundinum, og er sagt að hann hafi ekki verið látinn vita af honum. Svafar Guðmundsson bar fram á fundinum tillögu um að Magnús Torfason yrði rekinn úr „Bændaflokknum“. Stóðu þá upp tveir bændur innan héraðs, tóku upp vörn fyrir Magnús og kváðu þá myndu fleiri fara, ef tillaga Svafars næði samþykki. Tíminn hefir ennþá ekld frétt nákvæmlega hvaða afdrif tillagan fékk. En sýnilega hefir verið þarna gerð mjög ákveð- in tilraun til að framkvæma fyrirskipun Ólafs Thors í „nýj- é rsboðskapnum". M. T. segir skilið við „einkafyrirtækið“. En nú hefir fundurinn borið árangur! 1 gær tilkynnir Morgun- blaðið, að „Bændaflokknum“ hafi í fyrradag borizt bréf frá Magnúsi Torfasyni, þar sem ! bann tilkynni úrsögn sína úr flokknum. Virðast forráða- menn „einkafyrirtækisins" eftir þessu hafa hraðað sér að skýra Mbl. frá tíðindunum, og kemur það engum á óvart. Með brottför Magnúsar Torfa sonar má sjálfsagt ganga út frá því, að dagar „einkafyrir- tækisins" séu taldir. Hann var sá af frambjóðendum þess, sem flest atkvæði fékk í kosningun- um í vor, og hiklaust má gera ráð fyrir, að kjósendur hans fylgi honum að málum fremur en Svavari Guðmundssyni og hans nótum. Mbl. heimtar í gær, að „einka fyrirtækið" geri kröfu nmj það, pí Magnús Torfason víki sæti sem uppbótarþingmaður á Al- þingi og varamaður tak'. sæti i hans stað. Slíka kröfu getur „einkafyrirtækið' auðvitað ekki gert. Það hefir samþykkt M. T. sem frambjóðanda sinn og þegið að launum kjörfylgi hans. Og þeir Svavar Guðmundsson og félagar hans gengu til kosn- inga með þá alveg sérstöku yf- irlýsingu, að þingménn þeirra yrðu engum flokksböndum háð- ir. Enginn af frambjóðendum þeirra átti að vera bundinn við neitt nema það, að greiða at- kvæði eftir „sannfæringu sinni“. Svo lengi sem Svavar getur ekki sannað það, að M. T. hafi greitt atkvæði móti sannfæringu sinni, getur hann ekki með neinum rökum hald- ið því fram, að M. T. hafi brot- ið neitt það af sér, sem geri hann óverðugan til að hafa þann rétt, sem honum var veittur sem frambjóðanda í síðustu kosningum. Hann klappaði. 1 lok hins margumtalaða Borgamessfundar þ. 13. febr. sl., bar íhaldið fram vantraust á Bjarna Ásgeirsson alþm. Voru þá allmargir horfnir nf fundi. Svartasta íhaldsklíkan í Borgarnesi sat þó enn, enda vissi hún hvers var að bíða. Þó íhaldið hefði meirahluta á fundinum, þorði það ekki að bera tillöguna upp fyrr en rneginþorri andstæðinganna og nokkrir hinna gætnari mánna úr þeirra eigin hópi voru farnir af fuhdi. Þeir vita, að Bjami Ásg. er vinsæll með af- brigðum. Þegar tillagan var borin upp, ofbauð þó mörgum >- haldsmanninum, og einn stóð upp og fór út og sagði um leið svo að sá, sem þetta ritar heyrði glöggt: Með þessu greiði ég ekki atkvæði. Þessi maður hefir án efa verið í vafa um þá stundina, hvort hann hefði valið sér hið góða hlut- skiptið, er hann skipaði sér í flokk með andófsmönnum framfara og bætts skipulags, en verndurum alls ósamræmis og misréttis í þjóðfélaginu. Er tillagan var samþykkt, spratt Guðmundur sýslumaður úr sæti sínu og klappaði. Eitt augnablik hefir gamla mann- inum fundizt sá tími vera að koma aftur, þegar þeir fóru með völd, er liðu honum að taka fé úr ríkissjóði til eigin nota og vildu kaupa hús hans fyrir miklu meira en sann- virði. En þetta var aðeins draumur, sýslumaður góður. Sá tími kemur ekki aftur, þó hann sé klappaður fram. Fundarmaður. Athygli skal vakin á aug- lýsingu Framsóknarflokksins í blaðinu í dag um landsmála- fundi í næsta mánuði. Utan úr heimi Rússar og Frakkar hafa nú stofnað til vamarbandalags sín á milli. Um þetta varnarbanda- lag hefir verið gerður opinber og skriflegur samriingur og undirritaður af fulltrúum beggja þjóðanna. Er samning- uririri á þá leið, að hvor þjóðin skuli veita hinni í ófriði, ef þj óðabandalagið gefur þann úr- skurð, að á hana hafi verið ráð ist að fyrra bragði. Rússar vildu fella niður fyrirvarann um úrskurð þjóðabandalagsins, en að því vildu Frakkar ekki ganga. Eigi eru Frakkar held- ur skuldbundnir til að veita Rússum í stríði, sem þeir lenda í í Austurálfu, jafnvel þótt þar kynni að vera um árásarstríð að ræða á hendur Rússlandi. 1 Þýzkalandi fær þessi samn- ingur heldur kaldar undirtekt- ir, eins og við mátti búast, og einnig í Póllandi. Þessa dagana er haldið hátíð. legt í Englandi 25 ára ríkis- stjórnarafmæli Georgs V. Breta konungs. Er við þetta tækifæri saman kominn í London geisi- legur fjöldi aðkomufólks úr öll- um löndum Bretaveldis. Svo er að orði komizt, að aldrei setjist sól í ríki Bretakonungs, og er það bókstaflega rétt, því að Bretaveldi á ítök í öllum heimsálfum. En um allan hinn brezka heim hlýddu menn samtímis á hátíðarútvarpið frá London sl. mánudag. Er vakin athygli á því til gamans í erlendum skeytum, að þá hafi verið kvöld í brezku ný- lendunum í Ástralíu og fólk setið við arinelda sína að lok- inni vinnu, en í Kanada hafi þá verið rétt um fótaferða- tíma og fólk orðið að hraða sér á kreik til að ná 1 útvarp- ið. — Bretar eru menn kon- unghollir og er því hátíð þessi meira virði í þerra auguiri en vera myndi í augurri annara þjóða. En þar við bætist, að vel þykir við eiga, að auglýsa seiri mest mátt og dýrð hins brezka ríkis á þessum viðsjár- verðu tímum. Stöðugar viðsjár eru milli ítala og Abyssiníumanna og halda Italir áfram að flytja her suður þangað. Keisarinn í Abyssiníu býr nú einnig her sinn eftir beztu föngum, og er sagt, að hann muni geta haft nokkrum hundruðum þúsunda á að skipa, ef til ófriðar kem- ur. Er her hans stjórnað af Norðurálfumönnum. Talið er af sumum, að keisari þessi sé eigi alllítill fyrir sér, og hefir hann verið nefndur í gamni og alvöru „hinn brúni Napole- on Afríku". En erfitt er að stjórna Abyssiníumönnum, því að þeir eru menn deilugjarnir og sundurlyndir, líkt og Arab- ar, enda þeim skyldir. Þræla- hald mikið hefir tíðkast þar í landi, enda þótt þjóðin teljist kristin. Hefir keisarinn að vísu löngu lofað að afnema það, en átt erfitt með að fá þegna sína til að sætta sig við þá lífs- venjubreytingu, sem afnám þrælahaldsins hefir í för með sér. /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.