Tíminn - 06.11.1935, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.11.1935, Blaðsíða 1
 <S>jaíbbagi fclatsinp ci 1. >4ni Átgan^uiíun foatat 7 fl* 2^fgtei&ðla •4 tnnfteltnta á £angao«a JO. 6iml 2353 - Póotbilj 061 XIX. árg. Reykjavík, 6. nóvember 1935. 46. blað. Hið nýja landnám Eitt af mestu stórmálum samtíðarinnar er heimilismynd- unin. íslendingum fjölgar um tæp 1500 árlega. Útflutningur til annarra landa er bæði ó- framkvæmanlegur og óæskileg- ur. öll nálæg lönd mega heita lokuð fyrir útflutningi og auk þess er Island bæði nógu stórt ög nógu ríkt að náttúrugæð- um til að bjóða lífsskilyrði öll- um sem vaxa upp í landinu. En á síðustu árum hefir dýr- tíðin valdið því, að heimilis- myndun hefir orðið mjög dýr hér á landi. Kaupstaðarhús og sveitabæir hafa orðið dýrari í nýbyggingu lieldur en þjóðin getur risið undir. Ódýrustu, góðu íbúðirnar, sem verka- ménn kaupstaðanna hafa feng- ið, eru verkamannabústaðim- ir, og þar kostar hver íbúð 10 —11 þús. kr. Nýir sveitabæir kosta stundum minna, en oft meira. Mörg af hinum nýju býlum eru svo dýr fyrir þá sem í þeim búa, að þeir geta ekki risið undir. Vandamálið mikla er þess vegna þetta: Hvemig er hægt að byggja ný heimili svo að þau séu í einu góð og ódýr. Ég hefi í sumar séð eitt slíkt býli, norður í Stafni í Reykjadal í Suður-Þingeyj- arsýslu. Þar höfðu ung hjón skapað sér gott og myndarlegt nýtt heimili með eigin atorku og skulduðu ekki nema um 3000 kr. I Stafni býr aldraður bóndi; ég hygg að hann hafi átt sjö sonu, og að tveir séu komnir burtu, en 5 eru enn heima. Jörðin liggur þar sem mætist Reykjadalur og Mývatnsheiði. Dalurinn er þéttbyggður, en heiðin strjál að býlum en auð- ug að landkostum. Vegna þess að samtíðin þráir þéttbýli, fækkar býlunum á heiðinni. Sum eru lögst í eyði, og fleiri munu á eftir fara. Feðgamir í Stafni sáu að um tvennt var fyrir þá að gera, að yfirgefa jörðina og flytja allir í þéttbýli, eða að vera kyrrir og breyta henni í þétt- býli. Þeir tóku síðari kostinn, og nú eru þeir að gera í Stafni, þar sem mætist dalurinn og heiðin, eina hina merkilegustu tilraun með landnám og sam- vinnubyggð, sem gerð hefir verið hér á landi. Túnið í Stafni liggur nokkuð hátt, en moldin er djúp og frjó. Einn af eldri bræðrunum reið á vaðið og reisti nýbýli í túnfætinum, og hefir sléttað nýtt tún þar hjá, sem er 5—6 dagsláttur á stærð. Ungi bónd- inn er nemandi úr héraðsskól- anum á Laugum, og þar hefir hann meðal annars numið tré- smíði. Kona hans hefir líka verið í húsmæðradeildinni á Laugum. Á heimili þeirra hefir skólavistin sýnilega gert land- nemum mikið gagn. Á nýbýlinu í Stafni er bað- stofa með aðalhlið móti suðri, þrjú góð herbergi. Eldhús er Fmmk á A. >UhL Karíöflu* vækíin í gær var lagt fram frum- varp í efri deild um verzlun með kartöflur og aðra garð- ávexti. Flutningsmaður var Bernharð Stefánsson. Fara helztu ákvæði frv. hér á eftir: Ríkisstjóminni er heimilt að taka í sínar hendur innflutning á kartöflum og öðrum garð- ávöxtum frá 1. maí 1936, og er þá öllum öðrum óheimilt að flytja nefndar vörutegundir til landsins. Stofnun, sem nefnist Græn- metisverzlun ríkisins, skal ann- ast innflutning og verzlun kar- taflna og annara garðávaxta. Ríkissjóður leggur fram nauðsynlegt stofnfé til verzlun- arinnar, og er ríkisstjóminni heimilt að taka lán í því skyni. Gi-ænmetisverzlun ríkisins ei skylt að kaupa fyrir gildandi innkaupsverð samkvæmt 10. gr. allar þær kartöflur, sem framleiddar em innanlands og fram eru boðnar á þeim stöð- um, er hún ákveður, eftir þvi sem geymslurúm og markaðs- þörf leyfir. Skal hún haga inn- kaupum og verzlun sinni þann- ig, að hver landshluti sé fyrst látinn fullnægja sinni neyzlu- þörf, eftir því sem við verður komið. Grænmetisverzlun ríkisins skal láta reisa á hentugum stað í Reykjavík geymslu- og mark- aðsskála fyrir kartöflur og aðra garðávexti, sem framleiddir em í landinu og ætlaðir eru til sölu innanlands. Stærð skálans skal við það miðuð, að hann rúmi til geymslu allt að 6000 tn. af garðávöxtum, en lóð þannig valin og byggingu þannig hag- að, að auðvelt sé að stækka hann, ef þörf krefur. Heimilt er Grænmetisverzl- un ríkisins að láta reisa geymsl- ur fyrir garðávexti á þeim stöð- um úti um land, þar sem hún telur brýna þörf fyrir þær. Innkaupsverð og söluverð Grænmetisverzlunar ríkisins á garðávöxtum, svo og hámarks- verð garðávaxta í smásölu skal ákveðið af 5 manna verð- lagsnefnd. Ríkisstjómin skipar formann nefndarinnar, en Bún- aðarfélag Islands, S. 1. S., Verzlunarráð Islands og Al- þýðusamband Islands hafa rétt til að tilnefna hvert sinn mann í nefndina. Tilnefni einhver að- ili ekki nefndarmann, skipar ríkisstjómin mann í hans stað. Nefndarmenn skulu starfa kauplaust. Hagnaði, sem verða kann á rekstri Grænmetisverzlunar ríkisins, skal varið til þess að byggja geymslu- og markaðs- skála, svo og til að tryggja framtíð stofnunarinnar, með því að koma upp nauðsynleg- um varasjóði. Ríkisstjómin semur reglu- gerð fyrir Grænmetisverzlun ríkisins og skipar forstöðu- mann hennar og endurskoð- endur. Heimilt er að fela ein- hverri ríkisstofnun eða Sam- Framh. á 4. slOu. A víðavangi lhaldsblöðin og Sf. Sl. Ihaldsblöðin gera það að um- talsefni nú, að Sláturfélag Suðurlands greiði bændum 14 aurum lægra verð í haust pr. kg. af kjöti en það gerði í fyrrahaust. Út af þessu hefir Tíminn snúið sér til Helga Bergs forstjóra og spurt hann um málið. Svaraði forstjórinn því, að 4 aurar af þessum mis- mun samsvöruðu liækkun verð- jöfnunargjaldsins frá því í fyrra, en annars hefði félags- stjómin tekið þessa ákvörðun um útborgunarverðið. Virðist félagið þar fara eftir þeirri reglu, sem almennt er notuð í samvinnufélögum, sem sé að á- ætla verð svo lágt, að öruggt sé að það standist, og greiða því hærri uppbót eftir á, ef til kemur. Hins vegar má geta þess, að Helgi Bergs lýsti yfir því opinberlega í fyrra, að á- ætlunai*verð félagsins þá hefði staðist án þess að grípa hefði þurft til sjóða félagsins. Annars er næsta hvimíeiður sá áróður íhaldsblaðanna, sem rekinn hefir verið nú á annað ár í þeim tilgangi að bera róg milli Sf. Sl. og annara sam- vinnufélaga í landinu, og það þó vitanlegt sé, að Sf. Sl. vann að því með öðrum samvinnu- félögum, að undirbúa kjötlögin og koma þeim fram. Væri æskilegt að Sláturfélagið af- þakkaði þessa vafasömu ,hjálp‘ nefndra blaða — opinberlega og sem fyrst — því að hún getur engum orðið til framdráttar nema andstæðingum bænda- stéttarinnar. Guðmundur á Stóra-Hofi er að reyna að verja sam- keppni sína um fé í haust við Sláturfélag Suðurlands. En seint mun honum gapga að fóðra það, að hann, sem sjálf- ur situr í stjórn Sláturfélags- ins, skuli jafnframt vera for- maður í öðrum félagsskap, sem vinnur að því, að kaupa fé af sunnlenzkum bændum handa kaupmönnum í Reykjavík. Ef Guðmundur óskar, mun það vera sannanlegt, að mikill hluti af þátttakendum í félagsskap hans hafi áður verið og séu fé- lagsmenn í Sf. Sl. Athæfið er því augljóst, þrátt fyrir það, þó að Guðm. reyni að telja fólki trú um, að allt það kjöt, sem hann lætur kaupa, myndi hafa farið til kaupmanna hvort eð var. Sveinn á Egilsstöðum birtir í fylgiblaði Isafoldar ærið langt mál, sem hann nefn- ir „Framleiðslukostnaðarverðið og hinir trúu þjónar“. Megin- efni þessa máls eru rætnislegar árásir á Jón Árnason, Pál Zoph- oniasson og kjötverðlagsnefnd- ina. Tvennt í þessari grein er þess vert, að á það sé minnst. Sveinn virðist ganga út frá því, að ákvarðanir kjötverðlags- nefndar um verð á kjöti, séu byggðar á framleiðslukostnaði. Ættu þó flestir að vita, að kjöt- verðið er miðað við sölumögu- leika, en ekki framleiðslukostn- að, og það meðal annars af því, að um framleiðslukostnaðinn liggja engar áreiðanlegar heim- ildir fyrir. — Þá fullyrðir Sveinn, að kjöt muni seljast alveg jafnt, hvort sem verðið á því er hátt eða lágt! Má vel vera, að svo væri, ef kaupend- ur kjötsins væru eingöngu rík- ir menn, sem ekki létu sig muna um aurana. En æskilegra hefði verið, að þessi ágæti „bændavinur“ íhaldsins gæti látið sér skiljast það, að fjöldi kjötkaupenda er einmitt fátækt fólk, sem því miður verður mjög að horfa í kostnaðinn, þegar það kaupir lífsnauðsynj- ar sínar, rétt eins og þekkist i sveitunum. Og menn, sem ekki geta sett sig inn 1 svo mikils- vert atriði, betur en Sveinn á Egilsstöðum gerir, ættu helzt ekki að vera að bjóðast til að vera forystumenn bænda í lífs- baráttu þeirra. Fjandskapurinn gegn bændum utan Suðurlands. Þeir Jón í Dal, Hannes og Þorst. Briem halda áfram í blaði sínu eftirtölum út af því, að bændur í Dölum, Húnávatns- sýslu eða annarsstaðar á Norð- ur-, Austur- og Vesturlandi skuli fá að flytja nokkra dilka- skrokka á Reykjavíkurmarkað- inn. Ennfremur halda þeir áfram að telja eftir verðjöfn- unargjaldið, sem gengur til þess að bæta upp hið verðlága útflutningskjöt þessara sömu bænda. I fyrra lét Hannes þó stundum á sér skilja, að hon- um þætti verðjöfnunargjaldið helzt til lágt. En kannske hann sé nú orðinn vonlaus um, að íhaldið muni lána honum áfram atkvæðin úr Víðidal, og ætli að reyna að hreiðra um sig annarsstaðar! A. m. k. mun Húnvetningum þykja kveðjan köld. Gremjan í Sjálfstæðisflokknum. íhaldsblöðin eiga erfitt með að verja frumhlaup flokks- xnanna sinna, sem hlupu brott úr utanríkismálanefnd og neit- uðu að mæta á fundi samein- aðs Alþingis um utanríkismálin. Hefir þetta tiltæki þeirra vakið nikla gremju meðal ýmissa flokksmanna utan þings. Finnst þeim það, sem von er, bera vott um furðu mikið ábyrgðar- leysi og næsta litla fyrirhyggju, að neita samstarfi um þau mál- in, sem helzt ættu að vera utan við flokkadeilumar og jafn- fram að útiloka Sjálfstæðis- flokkinn frá þeirri aðstöðu, sem honum var veitt til að fylgjast með og láta uppi álit sitt um meðferð þessara vandasömu mála. Telja margir með réttu, að nú geti Sjálfstæðisflokkur- irm ekkert sagt, þó að stjómar- flokkamir neiti að taka tillit til hans í öðrum málum. Ástæðan, sem íhaldsmenn færa fram fyrir þessu athæfi sínu a. m. k. út á við er sú, að einn Kveldúlfsbræðra, Richard Thors, hafi verið „móðgaður" í blaðagrein! I þessari blaða- grein var það dregið í vafa, að þessi Kveldúlfsbróðir væri nægilega vel fallinn til að vera hæstráðandi í íslenzkri fisk- verzlun eða taka þátt í milli- ríkjasamningum. Það mun nú ílestum finnast, að slíkt sjón- armið geti fullkomlega átt rétt Bernharð Stefánsson alþm., sem er fulltrúi Framsóknav- flokksins í landbúnaðamefnd efri deildar og flytur nú frv. um eflingu kartöfluræktarinn- ar. á sér. En það er rétt eins og þegar „kóngurinn“ var móðgað- ur í gamla daga! I augum þingflokks Sjálfstæðismanna virðist Kveldúlfsbróðirinn vera ábyrgðarlaus og friðhelgur. Misdýrir bræður! Þegar þessi ósköp ganga á út af því að óskeikulleiki Richard Thors hefir verið dreginn í efa, verður manni að líta um þrjú ár aftur í tímann. Annar Kveld- úlfsbróðir, Ólafur Thors, kom þá heim frá Noregi og hafði tekið þátt í milliríkjasamning- um þar fyrir Islands hönd. Þar var því um utanríkismál að ræða alveg eins og nú. Og hvað skeður? Eitt af bæjar- blöðunum hér rís upp og hellir sér yfir þennan virðulega Kveld- úlfsbróður og samningamann með óbótaskömmum. Svo langt var þá gengið, að Ólafur var í þessum greinum beinlínis nefndur „landráðamaður“. Og einn af nefndarmönnunum úr utanríkismálanefnd, Héðinn Valdimarsson, beitti sér fyrir árásunum á samningamanninn. Þá gengu Sjálfstæðismenn ekki úr utanríkismálanefnd. Þá neituðu þeir ekki að taka þátt í fundum Alþingis um utan- ríkismálin. Þá gerðu þeir yfir- leitt ekkert annað eða meira en vant er, þegar deilt er á menn og málefni af andstæðingunum. Hvað veldur slíkum umskipt- um? Hvernig stendur á því, að Sjálfstæðismenn taka svo gíf- urlega upp þykkjuna fyrir þann Kveldúlfsbróðurinn, sem til Spánar fór, en létu Ólaf liggja óbættan hjá garði? Gera þeir Ólaf svo miklu ódýrari en bróð- ur hans, þrátt fyrir það, þó að hann væri þingmaður fyrir flokkinn, en Ríkarður óbreytt- ur liðsmaður? Ólíklegt verður það að telj- ast. Myndi hitt ekki vera ástæð- an, að í hið fyrra sinn var Jón Þorláksson enn formaður flokksins, og bar hæfilega lotn- ingu fyrir yfirlæti Kveldúlfs? Þá var Kveldúlfur enn ekki búinn að leiða þingmenn flokks- ins inn í „þrældómshúsið", og kúga þá til að óvirða þing- ræðið að hætti nazista. Eða er hitt ástæðan, að ráða- menn íhaldsins hafi einhvem- veginn verri samvizku í fisk- málunum, en þeir höfðu út af norsku samningunum 1932? Uian úr heimi Fyrir rúmlega viku síðan var gerð bylting í Grikklandi. Yfirmenn hersins brutust þar til valda og neyddu forsetann og ríkisstjórnina til að segja af sér. Lýstu þeir yfir því, að Georg fyrverandi konungur . myndi aftur taka við konung- dómi. Konungurinn, sem und- anfarið hefir dvalið í Englandi, neitaði hinsvegar að hverfa aftur til landsins nema því að- eins að þjóðin væri látin segja til um það við atkvæðagreiðslu, hvort hún vildi endurreisa kon- ungdæmi í landinu í stað lýð- veldisins, sem verið hefir. Þjóð- aratkvæðagreiðsla var því látin fara fram núna um helgina og urðu úrslitin þau, að yfirgnæf- andi meirihluti atkvæða eða um ll/2 milljón var með endur- reisn konungsstjórnarinnar, en aðeins rúmlega 32 þús. á móti. Spánska stjórnin sagði af sér í vikunni, sem leið, vegna hneykslismáls, sem opinbert varð, og sumir ráðherramir voru við riðnir. Höfðu þeir ætlað að leyfa stofnun spila- vítis og þiggja fé fyrir. For- sætisráðherranum tókst þó strax að mynda nýja stjóm, þar sem þeir ráðherrar, er við hneykslismálið voru riðnir, voru útilokaðir. Stauning hefir nú eftir kosn- ingarnar í Danmörku gert nokkurar breytingar á stjórn sinni. Fimm af ráðherrum þeim, sem verið hafa, láta af störfum, en sex nýir koma í þeirra stað. Kunnastir hinna fráfarandi ráðherra, eru Borg- bjerg kennslumálaráðherra, sem er einn af elztu og þekkt- ustu leiðtogum jafnaðarmanna- flokksins — eitt sinn ritstjóri Social Demokraten — og Zahle dómsmálaráðherra, úr radikalaflokknum, sem um langt skeið var forsætisráð- herra Dana. Láta þeir báðir af störfum fyrir aldurs sakir. Sáttaumleitanir í Abessiníu- málinu, sem Frakkar hafa gengizt fyrir, hafa enn engan árangur borið. Um 50 þjóðir hafa nú ákveðið að taka þátt í refsiaðgerðunum gegn ítalíu og tilkynnt Þjóðabandalaginu það. Er nú talið mikið undir því komið, hvaða afstöðu Bandaríkin taka í því máli og hvort þau selja ítölum olíu, kol og járn. En þau standa, eins og kunnugt er, utan við Þjóða- bandalagið eins og Þýzkaland og Japan. Italir hafa nú hafið mikla sókn á norðurvígstöðvunum í Abessiníu, og taka þátt í henni um 125 þús. hermanna. Lið innfæddra Afríkumanna er þar haft í fararbroddi. Einn af smákonungum Abessiníu, sem raunar var áður tengda- sonur sjálfs keisarans, hefir gengið í lið með Itölum með lið sitt, og er sagt að hermenn hans berjist með miklum á- kafa, því að þeir óttast grimmi- legar hefndir af hálfu lands- manna sinna, ef ítölum tekst ekki að vinna stríðið. Ennþá hefir her Abessiníumanna lát- ið undan síga og telur sig ekki kominn í þá aðstöðu, sem hann telur æskilegasta, til þess að taka á móti Itölum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.