Tíminn - 09.07.1936, Side 1
Jl&fgteifcski
•9 tau&etmta á Sangaoefl 10.
6im! 2353 — Pómtbóq ðOI
©Jaíbbagi
b la 6 a I n * ct I. )ðni
&egan£Ut{nn foetai 7 £*.
XX. árg.
Reykjavík, 9. júlí 1936.
27. blað.
A víðavangi
Ráðunauturinn og
jarðræktarlögin
Eftir Gunnar Þórðarson, bónda, Grænumýrartungu
Þótt hin nýju jarðræktarlög
hafi mætt allmikilli óvinsemd í
umræðum íhaldsblaðanna, eins
og yfirleitt öll umbótamál
Framsóknarflokksins, þá mun
því ekki hafa verið mikill gaum-
úr gefinn. En þegar starfs-
menn Búnaðarfélags íslands
reyna að villa bændum sýn um
gildi þessai’a laga, og leitast
við að gjörá nýmæli þeirra tor-
tryggileg, og það jafnvel í
blaði félagsins, sem gefið er út
með styrk frá þjóðinni, þá
virðist full ástæða til almennra
andmæla.
Ég mun þó ekki gjöra um-
sögn ritstjóra Freys um laga-
frumvarpið að sérstöku um-
talsefni, þótt hún sé óafsakan-
lega óvinsamleg og einhliða.
Hinsvegar vil ég gera nokkr-
ar athugasemdir við hina feit-
létruðu og stórorðu grein Pálma
Einarssonar ráðunauts, sem
birtist í blaði hinna þröngsýnu
og íhaldssinnuðu Bændaflokks-
manna.
Ráðunauturinn talar um að
stjómarskráin mæli sérstak-
lega fyrir um félagafrelsi, og
vill með því gefa í skyn, að í
fyrirmælum jarðræktarlaganna
um skipulag Búnaðarfélags ls-
lands sé gengið mjög nærri
þessu ákvæði. Þetta er sagt í
mjög villandi tilgangi. í lögun-
um er sjálfstæð aðstaða Búnf.
ísl. hiklaust viðurkennd, þótt
tekið sé fram hvaða reglum því
beri að hlíta, meðan það fer
með þau mál, sem að lögum og
fjárframlögum eru á vegum
ríkisvaldsins.
Búnaðarfélag íslands getur
ekki haft lagalega kröfu til
stórkostlegra fjárframlaga úr
ríkissjóði, né umráða yfir
margháttuðum styrktum af
ríkisfé, nema hlíta þeim skil-
yrðum, sem fyrir þeim eru sett.
(0g úrskurðarvald landbúnað-
arráðherra, í þeim málum, er
nauðsynlegt sé um ágreining að
ræða til að gjöra aðstöðu bún-
aðarmálastjóra sem ljósasta,
þar sem hann veitir forstöðu
bæði sérmálum félagsins, og
þeim málum, er ríkið felur því.
En af því leiðir aftur, að eðli-
legt hlýtur að teljast að leitað
sé samþykkis ráðherra á, hver
valinn er til starfsins). —
Sigurði Sigurðssyni fyrv.
búnaðarmálstjóra var þetta vel
ljóst. Á Búnaðarþingi 1933 bar
hann fram tillögu um að öll
framkvæmd mála sem falin eru
Búnaðarfélagi Islands með sér-
stökum lögum eða af landbún-
aðarráðherra, skuli vera í aðal-
umsjón búnaðarmálastjóra með
hlutaðeigandi starfsmönnum
undir yfirumsjón ráðherra. Af
greiðslu þessara mála þarf ekki
að bera undir stjórn Búnaðar-
íélags Islands. Hér er gengið
drjúgum lengra en. í hinum
nýju jarðræktarlögum.
Menn skulu taka eftir því,
að þetta leggur til sá maður,
sem mesta reynslu hafði um að
annast þetta starf, og ekki
dregur það úr gildi þessarar
tillögu gagnvart ráðunautnum
og flokksbræðrum hans, að Sig-
urður Sigurðsson var sam-
ílokksmaður þeirra við síðustu
kosningar.
Því fer þess vegna fjarri, að
bændum sé sýnd móðgun með
þessu ákvæði, heldur sýnir
ráðunauturinn þeim móðgun
með því að gjöra ráð fyrir, að
þeir ekki skilji eðli þessara
ákvæða.
Það er hin mesta fjarstæða,
að Búnaðarþing sé með lögum
þessum „svift ákvörðunarvaldi
um úrslit allra hinna mikils-
verðustu mála er landbúnað
varða“. Slíkt vald hefir eðli-
lega alltaf verið hjá Alþingi, en
ekki Búnaðarþingi. ,Það er
Framsóknarflokkurinn á Al-
þingi, sem átt hefir tillögur
þær, sem valdið hafa úrslitum
hínna stórfelldustu umbóta-
mála landbúnaðarins hin síð-
ustu ár, svo sem í mjólkurmál-
inu, sem fært hefir hlutaðeig-
andi bændum nú þegar yfir
hálfa miljón króna hagnað, og
í kjötsölumálinu, sem gefið hef-
ir 600.000 króna tekjuauka til
framleiðenda á einu ári.
Mikill meiri hluti Búnaðar-
þings hefir jafnvel verið svo
skammsýnn á þýðingu og eðli
þessara laga, að samþykkja
ályktun, þar sem þess er kraf-
izt af ríkinu að fyrst það hafi
tekið málið þannig í sínar
hendur, þá tryggi það bænd-
um alltaf fullt framleiðsluverð
alveg eins og með lögunum
hafi verið gengið á hlut bænda
í þágu ríkisins, þótt það gagn-
stæða sé jafnvel viðurkennt í
upphafi ályktunarinnar.
Búnaðarþing hefir, því mið-
ur, vart átt frumkvæði að til-
lögum um nokkur hin stærri
hagsmuna- og umbótamál land-
búnaðarins nú undanfarið.
Eða hver átti frumkvæði að
stofnun fóðurbirgðasjóða, sem
verja má til allt að 75.000-kr.
árlega. Var það Búnaðarþing-
ið? Var það Búnaðarþing, sem
átti frumkvæði að því að lagðar
voru fram 750.000 krónur til
að létta ábyrgðarskyldum af
mönnum, sem langflestir eru
bændur eða við landbúnað, svo
nokkur allra nýjustu dæmi séu
tekin.
Og sérstaklega má í þessu
sambandi benda á, að það var
ekki Búnaðarþing, sem átti
neinn þátt í undirbúningi eða
úrslitum nýbýlamálsins, sem nú
eru mestar framtíðarvonir
tengdar við, vegna hinnar upp-
vaxandi kynslóðar. Búnaðar-
þing var á sínum tíma jafnvel
Framh. á 4. aflta.
Viðskiptin við útlönd.
Samkvæmt bráðabirgða-
skýrslum Hagstofunnar nam
verðmæti innfluttrar vöru í
júnímánuði 4 millj. 378 þús.
kr. á móti 5 millj. 108 þús. kr.
í sama mánuði í fyrra.
Heildarverðmæti innflutn-
ingsins fyrstu 6 mánuði yfir-
standandi árs, er samkvæmt
bráðabirgðaskýrslunum, 19
millj. 707 þús. kr., en var 22
22 millj. 945 þús. kr. á sama
tímabili árið 1935.
I innflutningnum á þessu ári
er meðtalið efni til Sogsvirkj-
unar fyrir ca. 180 þús. kr. og
til rafveitu á Siglufirði fyrir
54 þús. kr., en á sama tíma í
fyrra var innflutningur til
Sogsvirkjunar ca. millj. kr.,
en þessar upphæðir ber að
draga frá skýrsluupphæðum
Hagstofunnar bæði árin. Er
því vöruinnflutningurinn í lok
júnímánaðar þ. á. um það bil 3
millj. kr. lægri en á sama tíma
árið áður.
Verðmæti útflutningsins í
júnímánuði þ. á. var 2 millj.
85 þús. kr., en 1 millj. 973 þús.
kr. í júnímánuði í fyrra. —
Fyrstu 6 mánuði þessa árs
hafa verið fluttar út vörur fyr-
ir samtals 16 millj. 185 þús.
kr., samkvæmt bráðabirgða-
skýrslunum, en fyrir 16 millj.
646 þús. kr. á sama tíma 1935.
Verzlunarjöfnuðurinn er ó-
hagstæður í lok júnímánaðar
þ. á. um ca. 3 millj. 300 þús.
kr., en var óhagstæður um ca.
5 millj. 800 þús. kr. á sama
tíma 1935. Er verzlunarjöfnuð-
urinn því 2»/z millj. kr. hag-
stæðari nú en á sama tíma í
fyrra.
Skörungar íhaldsfundarins.
Morgunblaðið telur upp 18
ræðumenn, er tekið hafi þátt í
hinum „frjálsu umræðum“
„landfundarins" auk þeirra,
sem „erindin“ fluttu. Gefur
þessi ræðumannaskrá talsverða
hugmynd um, hvernig fundur-
inn hefir verið saman settur.
Mest ber þar á einni af mjólk-
urverkfallsfrúm „húsmæðra-
félagsins". Þá koma þjóðskör-
ungar eins og Jón Noimann og
Lúðvík C. Magnússon, Júlíus
Nýborg, Sólmundur Einarsson
o. þvíl., en af bændum utan
þings eru ekki aðrir tilnefndir
en Bjarni í Vigur (sá sem
skrifaði „löngu vitleysuna“ um
kjötlögin) og Þórður nokkur á
Bakka í Landeyjum, sem raun-
ar er ekki bóndi. Sýnir
þetta, hve vendilega bænda-
stéttin hefir forðast samkundu
þessa.
Þá skýrir Mbl. frá því, hverj-
ir hafi verið í undirbúnings-
nefnd fundarins, og eru það
þeir Valtýr Stefánsson, Stefán
Pálsson, Einar Einarsson tré-
smiður og Guðjón bryti. Hefir
þessi nefnd sýnilega verið meir
valin með tilliti til matfang-
anna en landsmálanna. Nefnd-
in pantaði mat í Valhöll fyrir
300 manns, en að borðinu korn
ekki nema 200! Svo mikil voru
vanhöldin!
Danska ríkisstjórnm hef-
ir svarað mótmælum ísl.
ríkisstjórnarinnar gegn
fréttaburði Extrabiaðsins
Danska ríkisstjórnin hefir í gær íalið sendiherra Dana hér
að flytja íslenzku ríkisstjórninni orðsendingu þess efnis:
Að danska ríkisstjómin harmi það mjög, ef grein sú í
„Extrabladet“, sem mótmælt hefir verið af íslands hálfu, hafi
valdið íslenzku ríkisstjórninni erfiðleikum.
Danska stjórnin skýrir frá því, að hún hafi í gær tjáð rit-
stjóra Extrablaðsins, að henni þyki það mjög miður, að grein
þessi hafi verið birt, og það því fremur, sem í greininni sé í
mörgum atriðum rangt frá sagt. Umleitanir um lán í Danmörku
af íslands hálfu hafi engar átt sér stað og heimsóknir konungs
og Staunings forsætisráðherra á tslandi standi ekki í neinu
sambandi við neitt slíkt.
Danska ríkisstjórnin lætur þess ennfremur getið, að hún
hafi lagt áherzlu á það við ritstjórann, að upplýsingar Extra-
blaðsins um viðskiptajöfnuð íslands síðustu mánuðina, séu
rangar, því að viðskipti íslands séu nú stöðugt að færast í þá
átt að skapa fullan jöfnuð út á við, og að verzlunarjöfnuðurinn
sé nú mun hagstæðari en á sama tíma í fyrra.
Loks tekur danska ríkisstjórnin það fram, að greinin í
„Extrabladet“ hafi ekki haft áhrif á skrif annara danskra
blaða. Aðeins eitt þeirra, Dagens Nyheder, hafi gert fyrirspum
um það, livort Islendingar væru að leita fyrir sér um danskt
lán, og hafi fjármálaráðherrann svarað fyrirspuminni neitandi.
Þannig hefir þá íhaldsrógurinn héðan að heiman enn á ný
verið kveðinn niður — af dönsku ríkisstjóminni. Vill ekki Mbl.
gefa út „fregnmiða“ um það?
Ef tirtektarvert!
Um ræðuhöldin á fundinum
segir blaðið að öðru leyti;
„Það var alveg sérstaklega
eftirtektarvert*), hve margar
af þessum ræðum — auk
sjálfra frumerindanna — voru
bæði vel samdar og vel flutt-
ar — —“.
Munu fundarmönnum finn-
ast þetta nokkuð vafasöm
„compliment". En Tíminn getur
fyrir sitt leyti vel gengið inn
á það, að það sé „sérstaklega
eftirtektarvert“, ef sá söfnuð-
ur, sem talinn er upp í Mbl.
hefir haldið „vel samdar og vel
fluttar ræður“. Sýna þessi um-
mæli, að moðhausarnir kunna,
a. m. k. undir niðri, góð skil
á sínu heimafólki.
Sundrungin í íhaldsflokknum.
Mbl. hefir enn ekki fengizt
til að birta nöfn „fulltrúanna"
á landsfundi íhaldsmanna. En
nýlega birtist í blaðinu löng
grein um „skipulag Sjálfstæð-
isflokksins", sem landsfundur-
inn hafi samþykkt.
Blaðið er að vísu fremur fá-
ort um það, hvernig þetta nýja
„skipulag" sé. Þó tekur það
fram, að í flokknum eigi að
vera miðstjórn og „flokksráð“.
Hver myndi hafa spáð því í
tíð Jóns Þorlákssonar, að árið
1936 yrði komin ,,ráðstjórn“(!)
í Sjálfstæðisflokknum?
En kunnugir vita, að það er
sundrungin innan flokksins og
óánægjan með skuldakónginn í
formannssæti, sem hefir knúið
ráðamenn flokksins til að setja
honum skipulagsreglur.
Mbl. viðurkennir þetta ó-
beint og þó svo ótvírætt, að
ekki verður um villst. I blað-
inu segir svo:
„— — Má telja alveg
vist, að með Reglum
þessum verði tköpuð
ánægja með flokksstarf-
ið innan Sjálfstæðis-
flokksins, og að með
þeim verði í fram-
kvæmdinni flokksfylg-
inu siglt í heila höfn —“
Þessar línur lýsa því vel,
bvernig greinarhöfundur Mbl.
lítur á ástandið innan íhalds-
flokksins. Hann tekur það
fram, að hann vonist eftir, að
með skipulagsreglunum verði
„sköpuð4'*) ánægja með flokks-
starfið innan Sjálfstæðisflokks-
ins. Þessi ánægja hefir þá ekki
verið fyi’ir hendi, úr því að nú
er talað um að „skapa“ hana.
Og hjá greinarhöf. gægist ó-
neitanlega fram talsverður ótti
um, að nokkur hætta hafi verið
á því, að ekki yrði hægt að
sigla „flokksfylginu — — í
heila höfn“.
Þeir, sem eiga að „skapa“
ánægjuna!
Eins og áður er getið, er
Mbl. fremur fáort um „skipu-
lagsreglur“ íhaldsins og hvergi
hafa þær birtar verið fremur
en nöfn fulltrúanna. En ekki
munu þær vera mjög í þá átt
að auka lýðræðið innan flokks-
ins. Nöfn miðstjórnarmanna,
sem birt hafa verið (enda
naumast hægt að dylja til
lengdar, hverjir séu í mið-
stjórninni!) sýna, að öll mið-
stjómin er búsett í Reykjavík.
Miðstjórnarmönnunum hefir
verið fjölgað um 3, úr 7 upp í
10. En það er svo sem ekki
verið að bæta við fulltrúum
fyrir hinar dreifðu byggðir.
Hinir þrír nýju miðstjómar-
menn eru Kristján Guðlaugs-
son, Bjarni Benediktsson og
Árni frá Múla!
Þeir eiga líklega að „skapa“
ánægjuna með flokksstanfið!
*) Leturbr. Timans.
Utan úr heimi
Kosningar eiga að fara fram
í haust, bæði í Svíþjóð og Nor-
egi. Hefir sænska jafnaðar-
mannastjórnin nýskeð sagt af
sér, en formaður Bændaflokks-
ins, Axel Pehrson myndað
stjóm til bráðabirgða fram að
kosningum. Ágreiniiígur um
hermál og tryggingamál er tal-
inn hafa valdið stjómarskipt-
unum. — 1 Noregi mun hins-
vegar stjóm Nygaardsvold,
sem studd er af Bændaflokkn-
um sitja óbreytt fram til kosn-
inga þar.
Fundur Þjóðabandalagsins
hefir staðið yfir í Genf, og var
Abessiníumálið enn á dagskrá.
Ákveðið er nú, að hætt verði
við refsiaðgerðimar gegn ítal-
íu, en hinsvegar hafa Bretar
og Frakkar látið í veðri vaka,
að þeir muni ekki, að svo stöddu
viðurkenna yfirráð Itala í
Abessiníu. Abessiníukeisari var
sjálfur mættur á fundi Þjóða-
bandalagsins, og flutti þar
mikla ræðu, þar sem hann rakti
tildrög stríðsins og skýrði frá
hemaðinum og þeim hörmung-
um, sem íbúar Abessiníu hefðu
átt við að búa. Fanst áheyrend-
um mikið til um ræðu hans,
og hafði hún þó eins og vænta
mátti lítil áhrif á úrslit mála.
FuUtrúar ítala mættu ekki á
fundinum, en ítalskir blaða-
menn gerðu óp að ræðu keis-
arans og voru reknir út með
lögregluvaldi og síðar vísað úr
landi. Fregnir ganga um það,
að keisarinn muni ætla aftur
til Abessiníu og taka upp her-
stjórn gegn ítölum í vesturhl.
landsins, sem enn er sjálfstætt
ríki.
Undanfarið hafa staðið yfir
samningar um yfirráðin yfir
Dardanellasundi. Sundið hefir
áður verið friðlýst svæði og
Tyrkjum óheimilt að byggja
þar vígi, en nú mun þessu
verða breytt á einhvern hátt,
en ágreiningur er sagður þar
um milli Rússa og Breta við-
víkjandi leyfum til að fara með
lierskip milli Svartahafs og
Miðjarðarhafs.
Valtýr kvartar!
Valtýr Stefánsson ritstjóri |
Morgunblaðsins hefir á nýaf-1
stöðnum fundi helztu ráða-)
manna íhalsins látlð i ljós j
djúpa hryggð yfir þvi, að hann j
skuli ekki vera virtur þess að
fá að vita um mlkilsvarð-,
andi tillögur, sem bornar séu
fram af fulltrúum fiokksins.
Nefudi hann það til, að sér
hefði verið algerlega ókunnugt j
um það, að Magnús Quð-
mundsson hefði í fyrra borið.
fram tillögu um að fá hingað
danska flugvél tll sildarleitar
og iandhelgisgœzlu. Að öðrum
kosti myndi hann ekkl haia
hleypt formanni flokksins i,
blaðið með árásir á þossa ráð-
stöfun.