Tíminn - 03.03.1937, Side 4
40
T 1 M I N N
Hamburg 36,
Símnelni: Ægír.
Dammtorstrasse 27.
Símii 346635 & 525931.
Kaupum íslenzkar afurðír hæsta verði
Utvegum allar íunflutníngsvörur
frá Þýzkalandi og flestum öðrum
löndum með beztu skilmálum.
framgöngu. Reglumaður með
afbrigðum á þeim aldri.
Nú er það huggun foreldra
og vina hans, að vita, að hann
er kallaður þangað, sem andi
hans fær meira að starfa
„Guðs um geim“, laus við jarð-
lífsböndin, þar sem hann á-
I
! nam í Svíþjóð á sama tíma.
| Þannig má, segir blaðið, telja
I næstum óendanlega.
Þær tölur, sem hér hafa ver-
ið nefndar, sýna aðeins við-
' skipti C. W. S. Heildarumsetn-
1 ing kaupfélaganna, sem fá
ýmsar vörur sínar frá öðrum
Margt er til mikilla bóta í
byggingarlist seinni ára og nú
er HELLU-ofnian, sem ryður
sér til rúms um Norðurlönd,
kominn.
F allegur,
fyrirferðarlítill,
polir að vatnið frjósi
í honum,
gefur geislahítun,
ódýr,
íslenzkur.
Þetta er fyrsti HELLU-ofninn, sem settur var upp hér á landi, í
húsi Þóris Baldvinssonar, húsameistara í Reykjavík. Hann er 82
mm á þykkt, 700 mm hár og 2000 mm langur. Hitaflötur hans er
10,72 m2, en teningsmál bans aðeins 0,12 m3. Vatnsmagn hans er
einungis 19 lítrar, en hann hltar ágætlega stofuna, sem er 31,3
m2 að flatarmáli eða oa. 80 teningsmetrar.
I0|í
Skrifstota Austurstræti 14, 3.
liæö. Reykjavik. Sími 1291.
I + I
Helgí Ólaísson
Helgi ólafsson var fæddur
29. des. 1908 á flelgustöðum
við Reyðarfjörð. Þar ólst hann
upp hjá foreldrum sínum, Ólafi
Helgasyni og Guðrúnu Stef-
ánsdóttur.
Haustið 1925 fór hann í Al-
þýðuskólann á Eiðum; var þar
við nám í tvo vetur. Þar kynnti
hann sig sem siðprútt og
skyldurækið ungmenni, sem
vann sér traust og virðingu
bæði kennara og meðnemenda
sinna. Heima í sveit sinni var
hann hvers manns hugljúfi.
1930 veiktist hann og varð að
fara á Vífilsstaðahæli. Þar og
á heilsuhælinu á Reykjum var
hann 214 ár. Var þá heilsa
hans það góð, að hann fékk
fararleyfi heim. En hann var
einn af þeim mönnum, sem
vann meiri og kaldari vinnu en
heilsan þoldi. Hann vildi ekki
vera öðrum til byrði og mun
því hafa lagt meira að sér við
vinnu, en heilsan þoldi. Því
hann varð að fara aftur á hæl-
ið 1935 og dó þar 21. marz
1936.
Hann bar sjúkdóm sinn með
karlmennsku og stöku jafnað-
argeði, svo að aldrei heyrðist
æðruorð eða óstillingarhjal til
hans.
Æfisaga hans varð ekki löng
en fögur til eftirbreytni.
Með burtför Helga er þungur
harmur kveðinn að foreldrum
hans, því hann var þeim ágætur
sonur, hlýðinn, dagfarsgóður,
og sannarlegt prúðmenni í allri
samt öðrum burtförnum vinum,
tekur á móti okkur síðar meir.
Blessuð veri minning hans.
Vinur.
Utan úr heími
Framh. af 1. síðu.
menn ráða er orðið algerlega
hljótt um samvinnufélögin og
frá nokkrum stöðum hefir
frétzt með sannindum að starf-
semi þeirra hafi verið bönnuð.
Málaleitun Alþjóðasambands-
ins um hjálp til spanskra sam-
vinnumanna hefir yfirleitt ver-
ið vel tekið eins og fjárfram-
iag K. F. ber líka nokkurn vott
um.
Sænska samvinnublaðið „Vi“
birtir fyrir nokkru tölur, sem
gefa góða hugmynd um það,
hversu stórvaxin ensku sam-
vinnufélögin eru orðin.
Verzlunarvelta sambands
ensku kaupfélaganna(C. W. S.)
nam á síðastl. ári rúml. tveim
milljörðum íslenzkra króna. Það
seldi til kaupfélaganna og ann-
ara viðskiptamanna sinna 102
millj. kg. af smjöri og til sam-
anburðar nefnir „Vi“ það að
öll smjörframleiðslan í Svíþjóð
sé 67 millj. kg. Það seldi 321
millj. kg. af sykri, en öll árs-
neyzlan í Svíþjóð er 270 millj.
kg. Tóbaksverksmiðja þess
framleiddi á síðastl. ári vörur
fyrir 160 millj. kr. eða 12 millj.
kr. meira en öll tóbakssalan
en C. W. S., er vitanlega miklu
meiri.
Álít dýralækna
um horgfárzku
fjárpestína
Dýralæknar landsins hafa sam-
kvæmt boði landbúnaðarráðherra
sctið á ráðstefnu hér í bænum
undanfarna daga til að ræða um
orsakir og eðli borgfirzku fjárpest-
arinnar. Hafa fjórir þeirra, Hann-
es Jónsson, Bragi Steingrímsson,
Sigurður Hlíðar og Jón Pálsson,
komizt að þeirri niðurstöðu, að
veikin sé ekki „sjálfstæður sjúk-
dómur, heldur sjúkdómsform, sem
kemur fram í sambandi, beint eða
óbeint við tvo áður þekkta
sjúkdóma: lungnadrep annarsveg-
ar og lungnaorma hinsvegar". þá
telja þeir engar sannanir fyrir því
að veikin sé bráðsmitandi og ó-
læknandi, því „oss er lcunnugt um
nokkra sjúklinga, sem taldir eru
að bafa haft þessa veiki, en hafa
nú náð noklcrum bata“.
Tveir af dýralæknunum, Ásgeir
Einarsson og Ásgeir Ólafsson, eru
ekki að öllu leyti sammála hin-
um, en „telja þó sennilegt, að
veikin sé ekki nýr (innfluttur)
sjúkdómur, heldur sjúkdómsform,
sem komi fram í sambandi við tvo
áður þekkta sjúkdóma: Lungna-
pest annarsvegar og lungnaorma-
veiki hinsvegar".
„Hinsvegar teljum við“, segja
þeir, „að veikin sé nýtt fyrirbrigði
að því leyti, að svo illkynjaður
faraldur í sauðfé hafi ekki komið
fyrir á síðari áratugum. Ennfrem-
ur teljum við veikina nýtt fyrir-
brigði að því er snertir sjúklegar
breytingar í lungum og sum ytri
sjúkdómseinkenni".
Framsóknarfélag
stoinað í Bolungarvík
Seint í síðastliðnum mánuði
gengust nokkrir áhugasamir Fram-
sóknannenn í Bolungarvík fyrir
stofnun Framsóknarfélags þar.
Stofnendur voru aðeins fimmtán,
en hinsvegar er kunnugt all-
margra fylgismanna Framsóknar-
flokksins, sem eigi höfðu aðstöðu
(il að ganga í félagið á stofnfund-
inum, en munu ganga í það síðar.
I stjórn féiagsins voru kosnir
pórður Hjaltason bóndi á Ytri-
Búðum formaður, Jens E. Níelsson
kennari Ytri-Búðum og Guðmund-
ur Magnússon bóndi Hóli.
Ágæt herhergfi
til leigu á Hverfisgötu 32
yfir lengri eða skemmri
tíma. — Hentugt fyrir
ferðafólk. — Sími 3454.
Dvöl, 1,—2. hefti 5. árg. er ný-
komin út. Hún er fjölbreytt að
vanda og skemmtileg. íslenzkir
höfundar eru í þetta sinn m. a.:
Jón Eyþórsson, Kolbeinn frá
Strönd, Hallgr. Jónasson, Berg-
sveinn Skúlason, Valdimar Jó-
bannsson, Sigurður þorsteinsson,
Karl Strand, Vigfús Guðmunds-
son, og erlendir höfundar: Maupa-
sant, Feuchtwanger, Galsworthy 0.
fl. Skagfirðingur og G. St. senda
þuru í Garði vísu, og kvæði eru
þar eftir tvö ung skáld, o. m. fh
er í þessum heftum. þau kosta
aðcins eina krónu samanlagt til
áskrifenda og er það óvanalegt
bókaverð.
Ritstj.: Gísli Guðmundsson.
Prentsmiðjan Edda h.f.
♦