Tíminn - 30.06.1937, Blaðsíða 1
^ýgrefbela
og tnnt>einua ^afnaroti. 16
<3imt 2353 - Póotbélf ððl
©Jaíbbagi
biaóatn* tt • fAoi
ÁigAiifntm (obHoj 7,J%,
XXI. ár.
Reykjavík, 30. júní 1937.
28. blað.
Framséknarflokkurínn er orðinn stærstí flokkur þingsíns
Hann helir unnið 4 ný þingsæií, tvö í Rangárvallasýslu, eitt í Skagafírði
og eitt í Vestur-Húnavatnssýslu.
Sjálfstœðisflokkurinn hefir tapað 3 píngsætum og Alþýðuflokkurínn 2.
„Bændaflokkurinn er liðinn undír lok“.
Um hvað var barist?
Xosningum er lokið. Niður-
stöður eru kunnar. Þjóðin hef-
ir kjörið nýtt Alþingi.
Tvær af niðurstöðum kosn-
inganna mega teljast mikils-
verðastar:
Þjóðin hefir fengið þeim
i'Jokkum, sem staðið hafa að
stjórnarsamvinnunni undanfar-
in ár, áframhaldandi meira-
hluta á Alþingi.
Og þjóðin hefir gert Fram-
sóknarflokkinn að Stærsta
flokki þingsins.
Um það var að verulegu
leyti barizt í kosningunum,
hvor heilladrýgri myndi vera
viðreisnar og framfaraviðleitni
stjórnar- og þingmeirahluta
þriggja síðustu ára í íjármál-
um og attvinnumálum — ,eða
hin „neikvæða“ niðurrifspóíitík
Sjálfstæðisflokksins, sem und-
anfarið kjörtímabil hefir stefnt
að því einu að skapa tortryggni
gegn þeim úrræðum, sem fram-
kvæmd hafa verið í löggjöf og
landstjórn. í hverju einasta kjör
dæmi landsins voru frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins
spurðir sömu spurningarinnar:
Hver eru ykkar úrræði, ef þið
komizt til valda? Hvað ætlið
þið að gera í afurðasölumálun-
um? Hvað í skatta- og tolla-
málum? Hvað ætlið þið að
spara og hve mikið? En fram-
b j óðendur S j álf stæðisflolcksins
þögðu við þessum spurningum.
Þeir lýstu aðeins yfir því í al-
mennum orðum, að þeir ætluðu
sér að „bæta ástandið“ „rétta
við atvinnuvegina“ o. s. frv. Að
fela Sjálfstæðisflokknum meira
hluta að þessu sinni var eins og
að skrifa upp á óútfylltan víxil!
Og því hefir þjóðin neitað við
kjörborðin 20. júní.
Og um það var þá jafnframt
að verulegu leyti barizt, hvort
j Framsóknarflokkurinn ætti að
fá afl til þess að vera áfram
forysta þjóðarinnar í hinni al-
j mennu framfarabaráttu, vernd-
ari þingræðisins og nægilega
! s'terkur miðflokkur til að halda
i niðri hinum
Á sigurgleði Framsóknanuanna
cftir kosningamar ber einn dapran
skugga. Einn er sá af þlngmönn-
um Framsóknarfiokksins, sem nú
kemur ekki „heill hildi frá“. pau
völd, sem em mönnunum œðri,
hafa hrifið hann úr hópi sam-
herja og vina. par hefir að visu
komið „maður í manns stað“. En i
þingflokki Framsóknarmanna mun
sr. Sigfúsar Jónssonar, hins göfug-
mannlega aldursforseta, lengi verða
með söknuði minnst, mannsins,
sem á sjaldgæfan hátt fómaði sin-
um hinnztu kröftum fyrir sann-
færingu sína og trú á góðan mál-
stað.
,rauðu“ og
j „svörtu“ öfgum til. beggja
j handa. Einnig í þessu efni hafa
J kosningarnar leitt í ljós, hvert
almenningsálitið stefnir.
Fr am sóknar Uokkurínn
Sigur Framsóknarflokksins í
kosningunum er mikill og glæsi-
legur. Hann hefr unnið tvö ný
kjördæmi og eitt að hálfu, og
bætt við sig fjórum þingsæt-
um. Samanlagt atkvæðamagn
flokksins alls í landinu hefir
aukizt um nokkuð á fjórða þús-
und síðan um síðustu kosning-
ar og er nú meira en nokkru
sinni fyr.
Hið allra eftirtektarverð-
asta við fylgisaukningu flokks-
ins er ”þó það, að hún kemur
fram í svo að segja öllum kjör-
dæmum landsins, þar sem
flokkurinn hafði menn í kjöri.
Einnig í þeim kjördæmum, þar
sem ekki unnust þíngsæti að
þessu sinni, hefir fylgið vaxið
og sumstaðar til stóra muna
eins og sjá má af atkvæðatöl-
unum, sem birtar eru á öðrum
stað hér í blaðinu.
Sjálfstædisilokkurínn
Sjálfstæðisflokkurinn hefir,
ef miðað er við síðustu kosn-
ingar, bætt við sig nokkuð á
þriðja þúsund a'tkvæða*). En
ef tekið er tillit til þess hversu
mikið greiddum atkvæðum hef-
ii fjölgað síðan þá, kemur í
ljós, að fylgi flokksins hefir
ekki vaxið í hlutfalli við kjós-
endafjöldann. Hefir flokkurinn,
ef þetta er aðgætt, tapað um
2% af atkvæðatölunni við kosn-
ingarnar 1934. Og í sveitakjör-
dæmunum hefir hann tapað
miklu meira, því að öll atkvæða-
aukningin og kemur fram í
Reykjavík einni og vel það.
Úrslitin eru þau, að hann hefir
tapað þrem þingsætum, tveim í
Rangárvallasýslu og einu í
*) Hér eru ekki meðtalin þau
ca. 2000 atkvæði, sem Sjólfstæðis-
flokkurinn hefir „lónað" Bænda-
flokknum.
Skagafirði og er nú ekkilengur
stærsti flokkur þingsins.
Reykjavíkurvaldíd.
Það eftirtektarverðasta við
fylgi Sjálfstæðisflokksins nú,
er hið áberandi sterka Reykja-
víkurvald í flokknum. Af nál.
24 þús. atkvæðum, sem flokkn-
um eru greidd, hefir hann feng-
ið rúml. 10 þúsundir í Reykja-
vík. 0g ef Hafnarfirði og Gull-
bringu- og Kjósarsýslu er bætt
við, sést ennfremur, að flokk-
urinn hefir fengið um 12500, 1
eða meira en helming af öllu at-
kvæðamagni sínu, í Reykjavík
og allra næsta nágrenni hennar.
Þetta fylgi hefir verið aukið
nú í kosningunum m. a. með (
því að lofa Reykvíkingum
að létta af þeim um 2 millj. kr. ;
í útsvörum og flytja þá byrði
að nokki-u leyti yfir á sveitar- ‘
félögin með breytingu á fá- 1
'tækralögunum og að nokkru
leyti yfir á landið í heild með
útsvarsálagningu á verzlanir
ríkisins. — I kaupstöðunum ut-
an Reykjavíkur hefir flokkur-
inn fengið um 2500 atkv. Eru
þá eftir um 9000 atkvæði ann-
arsstaðar, og er meirihluti
þeirra vitanlega í kauptúnum
þeim, sem til sveitakjördæm-
anna teljast (Akranesi, Bol-
ungarvík, Stykkishólmi, Sandi,
Ólafsvík, Sauðárkróki, Húsa- |
vík, Eyrarbakka, Stokkseyri, !
Austfjarðaþorpunum o. s. frv.).
Alþýðuflokkurinn.
Alþýðuflokkurinn hefir tap-
að tveim þingsæ'tum. Hann hef-
ir nú um 200 atkvæðum færra
alls í landinu en síðast, og sé
tekið tillit til kjósendafjölgun-
ar er atkvæðatap hans um 12%
miðað við kosningamar 1934.
í Reykjavík hefir flokkurinn
rnjög tapað fylgi og hafa bæði
Sjálfstæðisflokkurinn og Kom-
múnistaflokkurinn vaxið á
hans kostnað.
ósigur Alþýðuflokksins í
Reykjavík má að einhverju
leyti rekja til þeirrar harðvít-
ugu atkvæðasöfnunar, sem þar
hefir verið rekin í vor af hálfu
Sjálfstæðisflokksins og þeirra
stóru fjárupphæða, sem sá
flokkur hafði til ráðstöfunar í
kosningunum. En fylgistap Al-
þýðuflokksins er þó jafnframt
og öllu fremur afleiðing af því,
með hverjum hætti hann rauf
stjórnarsamvinnuna við Fram-
sóknarflokkinn s. 1. vetur. Af-
staðan í Kveldúlfsmálinu og
hinar vanhugsuðu „kosninga-
bombur“, sem í fljótræði voru
fram bornar í frumvarpsformi
á Alþingi, hafa sýnilega rýrt
álit flokksins, og er það eðli-
legt. Mun það réttmæli, sem
rnm'kur Alþýðuflokksmaður lét
sér um munn i'ara eftir kosn-
ingarnar, að úrslitin í þetta
sinn stöfuðu af því, að ýmsiv
í hinni „órólegu deild“ flokks-
ins hefðu, þótt dugandi menn
væru, „ meir lá'tið stjórnast
af skapsmunum en vitsmunum“
nú upp á síðkastið. En að svo
miklu leyti sem þjóðin hefir
Helgi Jónasson
C
Pálmi Hannesson
Skúli Guðmundsson
Þingflokki Framsóknarmanna
hafa í kosningunum bæzt fimrn
nýir liðsmenn, en það eru hinir
nýkjörnu þingmenn í Rangár-
vallasýslu, Skagafjax-ðarsýslu
Sleingrímur Steiuþórsson
ofif Vestur-Húnavatnssýslu. —
Tveir þessara manna, Stein-
grímur Steinþórsson og Svein-
björn Högnason hafa áður átt
Sveinbjörn Höynaaon
sæti á Alþingi. Hinir þrír,
Helgi Jónasson, Pálmi Hannes-
son og Skúli Guðmundsson
taka þar nú sæti í fyrsta sinn.
dæmt um ágreininginn milli
Framsóknax- og Alþýðuflokks-
ins s. 1. vor, þarf ekki um þann
dóm að deila.
Kommúnistar.
Kommúnistaflokkui’inn hefir,
þegar tillit er tekið til kjós- j
endafjölgunar, aukið fylgi sitc 1
um 42% og fengið þrjá þing- 1
menn kosna. Er þetta í fyrsta ;
sinn, sem sá flokkur vinnur i
þingsæti. Úi’slitin sýna, að .
hvorki meii’a né minna en 1000 j
—1500 Alþýðuflokksmenn hafa ,
kosið Kommúnistalistann í
Reykjavík. óttinn við íhalds- ,
meirihlu'ta 'nefir sýnilega vald- (
ið því, að þessi hópur manna
hefir ekki þorað að láta komm-
únistaatkvæðin verða „ónýt“.
Eru til þess mestar líkur, að
þingseta Kommúnista nú sé
bein afleiðing af kosningasam-
bandi Sjálfstæðis- og Bænda-
flokksins og „breiðfylkingar“-
skrifum Ólafs Thors í Moi’gun-
blaðinu í upphafi kosningabar-
áttunnar.
Nazistar.
Um Nazista er fátt að segja
séi’staklega í þessum kosning-
um. Þeir höfðu mann í kjöri í
einu kjördæmi af persónuleg-
um ástæðum. En að öðru leyti
studdu þeir vitanlega „breið-
fylkinguna“ og greiddu fram-
bjóðendum hennar a'tkvæði,
enda telja þeir suma frambjóð-
endurna t. d. Jóhann Jósefsson,
Gísla Sveinsson, Sigui’ð Hlíðar
og Jóhann Havsteen, beinlínis í
sínum hóp.
Bændafilokkurinn.
Um Bændaflokkinn hafa
kosningarnar leitt það í ljós, að
sá flokkur er nú orðið lítið
meira en nafnið eitt. Hann hef-
:r fengið 2 þingmenn- kosna í
stað 3 í kosningunum 1934.
Hannes á Hvammstanga, sem
þá var „móðurskip“ flokksins
er nú fallinn, og ef Þorsteinn
Briem hefði ekki notið atkvæða
Sjálfstæðisflokksins í Dala-
sýslu, hefði Bændaflokkurinn
hvergi komið manni að í kjör-
dæmi og þá horfið út úr þing-
inu. Alls er talið, að Bænda-
flokkurinn hafi fengið rúml.
3500 atkvæði, í öllu landinu, og
er það, miðað við kjósenda-
í'j ölgun, 5% atkvæðatap frá
kosningunum 1934. En það sem
mes'tu máli skiptir er, að af
þeirn hefir Bændaflokkurinn,
eftir því sem næst verður kom-
ist, fengið nál. 2000 atkvæði
frá Sjálfstæðisflokknum vegna
kosningabandalagsins. Er þá
reiknað með sömu atkvæðatöl-
um hjá Sjálfstæðisflokknum nú
og síðast. Virðist þá um helm-
ingur þeiri-a, sem 1934 gi’eiddu
Bændaflokknum atkvæði, vera
kominn í Framsóknarflokkinn
aftur.
Eina leiðin: Að sam>
eina dreifibýlið um
F r ams óknarfilokkinn
og stefinu hans.
Allar líkur benda því til þess,
að dagar Bændaflokksins séu
þegar taldir. Er vert að benda
á það, að fyrir mörgum þeirra,
sem flokk þennan studdu í upp-
hafi, mun það hafa vakað, að
ný flokksmyndun væii líkleg til
þess að sameina meginþoi’ra
sveitafólksins um hagsmuna-
mál landbúnaðarins. Þessum
mönnum mun, sem skiljanlegt
er, hafa þótt það óeðlilegt, að
ekki skyldu allir íbúar hinna
dreifðu byggða fylgja Fram-
sóknarfloklmum að málum, og
þá talið hitt reynandi að safna
öllum fylgismönnum Fram-
sóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins í sveitum saman í
rinn nýjan flokk með nýju nafni
og nýrri forystu. Enda var það
svo sumstaðar, að Sjálfstæðis-
menn gerðu sitt til að ýta und-
ir stofnun þessa nýja flokks og
þóttust sjálfir ætla að ganga
í hann, en stóðu svo ekki við
orð sín, þegar til kom.
Nú, þegar sýnt er, að þessi
tilraun til nýrrar flokksmynd-
unar í sveitum ber engan
ái’angur nema þann að veikja
hin eldi’i flokkssamtök dreif-
býlisins, Framsóknai’flokkinn,
munu hinsvegar allir þeir, sem
Framh. á 4. síðu.