Tíminn - 30.06.1937, Blaðsíða 4

Tíminn - 30.06.1937, Blaðsíða 4
112 T í M I N N Framsóknarilokkuríim er orðínn stærstí flokkur þíngsíns. Framh. af 1. síðu. í góðri trú studdu Bænda- flokkinn og enn hafa stutt hann við nýafstaðnar kosningar hverfa á ný inn á þá braut að efla áfram þann flokk, sem í 20 ár hefir að því unnið með betri árangur en nokkur flokkur ann ar að safna sveitafólkinu sam- an til sameiginlegra átaka. Og í þeirri geigvænlegu árás á réttindi dreifbýlisins, sem nú stendur fyrir dyrum og síðar verður að vikið, mun meiri þörf verða slíkra samtaka en nokkru sinni fyr. Kommúnistagrýlan og íalsbréíið 1 sambandi við úrslit kosn- inganna er rétt að minna á það, að höfuð rógsefni „breiðfylk- ingar“-frambjóðendanna á hend ur Framsóknarflokknum, var það, að Framsóknarflokkurinn hefði gert leynisamning við Kommúnis’ta um gagnkvæman stuðníng í kosningunum. Áttu samningar þessir að hafa verið á þá leið, að Framsóknarmenn skyldu kjósa kommúnista í Reykjavík og á Akureyri en aftur á móti skyldu kommún- istar kjósa Framsóknarflokks- frambjóðendur í þeim sveita- kjördæmum, þar sem atkvæði þeirra gætu riðið baggamun- inn! Forráðamenn Sjálfstæðis- flokksins gengu svo langt í þessum ósannindum, að þeir birtu í ísafold falsað bréf, sem átti að vera frá „einum af aðal- foringjúm Framsóknarflokks- ins“ og hafa verið sent trúnað- armönnum flokksins víðsvegar um land rétt eftir áramót í vetur! I bréfi þessu var skýrt svo frá, að „vottfastur“ samn- ingur hefði verið gerður við kommúnista! „Bréfið“ var ekki birt í Moi’gunblaðinu og til- gangurinn sýnilega sá, að koma því í ísafold út um allt land rétt fyrir kjördag svo að lítið bæri á og miðstjóm Framsókn- arflokksins bærust ekki fréttir af. En þetta fór á annan veg. Ritstjórar Isafoldar voru kall- aðir fyrir rétt, og gá'tu þar hvorki gert grein fyrir höfundi bréfsins né hverjum það hefði verið sent! Sögðust aldrei hafa séð bréfið sjálft heldur aðeins afrit, og þetta afrit væru þeir búnir að eyðileggja! Af trúnað- armönnum Framsóknarflokks- ins, sem skipta mörgum hundr- uðum, kannaðist enginn við að hafa fengið þetta bréf í hend- ur eða neitt líkt því! - Og nú vai’pa kosningaúrslit- in sjálf skýru Ijósi á vopnaburð þeirra heiðursmanna, sem Sjálfstæðisflokknum stjórna. f Reykjavík, þar sem Framsókn- arflokkurinn átti að hafa samið um að kjósa kommúnista(!), hefir hann aukið atkvæðamagn sitt um 30% — og á Akureyri úr 337 atkvæðum upp í 528 at- kvæði. Hitt má vel vera, að menn sem áðm’ fylgdu komm- únistum, hafi í sumum kjör- dæmum greitt frambjóðendum Framsóknarflokksins atkvæði fremur en „breiðfylkingunni“, og er það sízt að lasta, ef svo væri, því að ekki getur Fram- sóknarflokkurinn haft á móti því, að menn sem stutt hafa aðra flokka, snúist til fylgis við hann. Á það má hinsvegar benda, að jafnvel þótt gengið væri inn á þá fráleitu staðhæf- ingu fsafoldar, að öll kommún- istaatkvæði sveitakjördæmanna, í kosningunum 1934, sem ekki komu fram nú, hefðu verið greidd Framsóknarflokknum, þá hefði Framsóknarflokkur- inn, eins og atkvæðatöluraar sýna, alstaðar getað fengið þingmenn sína kosna án þeirra. Þetta getur hver og einn sann fært sig um sjálfur við nánari athugun atkvæðatalnanna. Vonbrlgði »Breiðfylkingarínnar“ f skrifum íhaldsblaðanna um kosningaúrslitin ber mest á tvennu: Vonbrigðunum út af fylgisleysi Bændaflokksins og gremjunni út af „ranglátri k jördæmaskipun". „Kosningarnar sýna, að Bændaflokkurinn er liðinn und- ir lok“, segir dagblaðið Vísir í feitri fyrirsögn 26. þ. m. dag- inn eftir að fullnaðarúrslit kosninganna urðu kunn* *). Og blaðið heldur áfram á þessa: leið: „Bændaflokkurinn hefir reynzt að mestu leyti hugar- burður, og hefir það eflaust komið ýmsum mjög á óvart.“ Einn af miðstjórnarmönnum Sjálfstæðisflokksins sagði á fundi í vikunni sem leið: Stærstu mistök, sem ég hefi þekkt í kosningaundírbúningi eru að hafa gert kosningabanda lag við flokk, sem hvergi er til nema í heilabúi Jóns I Stóradal! Morgunblaðið 27. f. m. tek- ur í sama streng, en reynir þó vP friða flokksmenn sína. 1 grein með fyrirsögninni „Eftir kosn- ingamar“ segir á bessa leið: „Bændaflokkurinn hefir fengið heldur rýra uppskeru i þessum kosningum. Hann hefir fengið einn þingmann kosinn í sjálfstæð- iskjördæmi og eitt uppbótarþing- sæti fyrir bandalag sitt við sjálf- stæðismenn annarsstaðar, þar sem sjálfstæðismenn annaðhvort buðu ongian fram cð*u buðu frajm í bandálagi við þá í tvímennings- kjördæmum. Bændaflokksins eigin fylgi virð- irt hafa verið nálega hverfandi. Bændaflokkurinn virðist hafa beðið sinn hnekki við það, að það er ekki pláss fyrir hann. ..þrátt fyrir það getur enginn séð oftir þvi, að þessi tilraun var gerð. það var sjálfsagt að spyrja íbúa sveitanna að því, hvort það væri mikill hópur manna, sem vildi herjast á móti áhrifum sósíalista og kommúnista án þess að þeir þó vildu fylgja Sjálfstæðisflokkn- um.það gat vel hugsast að hann væri allstór þessi hópur — — — En kosningarnar gáfu svarið. þessi hópur er mjög fámennur — —.“ En Pálmi Einarsson er ekki í vandræðum með sitt svar! Hann segist hafa verið viss í Strandasýslu, en Ólafur Thors hafi haft af sér a. m. k. 150 atkvæði með fundinum á Hólmavík! Árásin á kjördæmaskíþunina. Og nú er af hálfu Sjálfstæð- isflokksins hafin ný árás á kjördæmaskipunina. Nú á að taka upp á ný baráttuna frá 1931 baráttuna fyrir því að brjóta niður „bændavaldið" — áhrif sveitanna og smáþorp- anna á löggjöf og stjórn lands- ins. Mbl. talar um það 27. þ. m. „hvílík óskapa hætta er fólgin í svona kosningarfyrirkomulagi“. 0g Vísir talar um „rangláta *) Börn af íhaldshoimilum í Reykjavík hafa, eítir því sem dag- blöð skýra frá, tekið upp nýjan loik i sambandi við kosningaúr- slitin. þeir, sem í leiknum eru fara að skima í kringum sig í allar átt- ir eins og þeir séu að leita að ein- hverju. Eitt leiksystkinanna spyr: Að hverju eruð þið að leita? En hin svara: Ég er að leita að Bændaflokknum! kjördæmaskipun“, sem hafi við þessar kosningar „leikið flokk- inn*) ver en nokkru sinni áð- | ur“. Það er bert að hverju er stefnt með þvílíkum ummælum. Eina úrræðið sem Sjálfstæð- ismenn koma auga á sjálfum ; sér 'til viðréttingar, er að ráð- i ast á stjórnarskrána, sem þeir sjálfir greiddu atkvæði með íyrir fjórum árum og ganga enn á ný á rétt sveitanna — Reykjavíkurvaldinu til fram- dráttár. Með stuðningi sósíalista og kommúnista geta þeir vitanlega látið samþykkja nýja stjórn- arskrá á Alþingi, þrátt fyrir kosningasigur Framsóknar- i flokksins. En áður en slík stjórnarskrá gengur í gildi verða að fara fram nýjar kosningar — kosn- ingar þar sem hinar dreifðu byggðir enn hafa þann rétt, sem þeim var eftir skilinn í kjördæmaskipun Ásgeirs Ás- geirssonar. Ennþá hafa íslenzk ir bændur meira að segja um skipun Alþingis en íhaldsat- kvæðin frá Kleppi! Hvað mundi höfðatölureglan hafa þýtt í kosningunum sem nú eru nýafstaðnar? Hún | mundi hafa þýtt það að kom- j múnistar hefðu fengið úrslita- j atkvæðið á þinginu. Ef hún ein hefði ráðið skipun þingsins hefðu Framsóknarmenn og Al- þýðuflokkurinrí ekki getað myndað stjóra saman og Sjálf- stæðisflokkurinn og Bændaflokk urinn ekki heldur. En hvað sem þessu líður, þá er eitt víst: Að gegn þessari yf- irvofandi árás af hálfu Sjálf- stæðisflokksins verða sveitirn- ar og sjávarþorpin í hinum dreifðu byggðum að skipa sér cinhuga til vamar undir for- ustu Framsóknarflokksins. Kosningasiguriim og framtíðin. Á tuttugu ára starfsafmæli Framsóknarflokksins og Tím- ans hefir flokkurinn nú unnið annan sinn glæsilegasta kosn- ingasigur. Sá sigur er óbrot- gjarn og verðugur minnisvarði þessara tímamóta. En þessi sigur er eins og all- ir aðrir sigrar, að hann skapar sigurvegurunum skyldu til að vinna fleiri sigra og meiri á komandi árum: Fyrst og fremst sigra á þeim viðfangs- efnum í þágu alþjóðar, sem úr- lausnar bíða á næstunni — en einnig í öðru lagi nýja sigra í kosningum komandi ára til þess að tryggja farsælum málstað allan þann framgang, sem verða má. Af Framsóknarflokkskjör- dæmunum frá 1931 eru fjögur ennþá óunnin. Þrjú þeirra, Austur-Húnavatnssýsla, Vest- ur-Skaptafellssýsla og Dala- sýsla eru samkvæmt niður- stöðum þessara kosninga, unn- in jafnskjótt, og það, sem eft- ir er af fylgi Bændaflokksins, bverfur aftur inn í Framsókn- arflokkinn. í Borgarfirði á Ak- ureyri og á Snæfellsnesi hefir stórlega unnizt á í þessum kosn ingum. Og í Vestur-lsafjarðar- sýslu er flokksfylgið á ný kom- ið á fastan grundvöll**). Framsóknarmenn um Iand allt! Látum kosningasigurinn *) p. e. Sjálfstæðisflokkinn. * *) Framsóknarflokkurinn hefir nú aðeins tveimur kjördæmakosn- um þingmönnum færra en 1931. pá hafði hann tvo landkjörna þingmenn (en alls 23), hinsvegar aðeins einn þingmann í Skagafirði og einn í Rangárvallasýslu. Hítaf, ilmar, heillar drótt, hressir, styrkir, kætir. Fegrar, yngir, færír prótt Freyju kaffibætir. „ - - - VEIT ÉG ÞAÐ, en pað er pó að minnsta kosti eitt sem má reyna til ad bæta og hlíðka skapið með og pað er REGLULEGA GOTT KAFFI • En ei pú vilt búa til óað- fínnanlegt kafií pá verðurðu blessuð góða að uota Ferðamenn ættu að skipta við Kaupfélag Reykjavíkur. — Þar hafa þeir tryggingu fyrir góðum og ó- dýrum vörum. Happdræíii Háskóla Islands Kolaverzlun SIGURÐAR ÓLAFSSONAR Símn.: Kol. Reykjavík. Sími 1933. Endurnýjum til 5. flokks er hafin. Endur- nýjunarfrestur til 5. júlí. í 5. — 10. flokki eru 4000 vinningar. Ágæt herbergi til leigu á Hverfisgötu 82 yfir lengri eða skemmri tíma. — Hentugt fyrir ferðafólk. — Simi 3454. samtals 861 pús. krónur. eða samtals 4 5 allra vinninga. Arður til hluthafa. aðeins Loftur. Aðalfundur H f. Eimskipafélags íslands 19. júní sam ;; þykkti að greiða 4 af hundraði í arð fyrir árið 1936 Aðalskrifstofa vor í Reykjavík og afgreiðslumenn fó- lagsins úti um land, greiga arðinn gegn afhendingu arðmiða. Allt með islenskum skipum! H.L Eímskipaíélag Islands. 20. júní ekki reynast oss neina værðarvoð — heldur hvatningu til nýrrar bjartsýni, meira samstarfs, öflugri átaka og stærri sigra! Ritstjóri: Gísli Guðmundsson. Prentsm. EDDA h.í- Sumarskólí guðspekinema verður haldinn að Valhöll á Þigvöllnm dagana 10—16 ágúst. öll erindi flytur E. C. Bolt Erind- in verða þýdd orði til orðs á íslenzku, | Nánari upplýsingar gefa Marta Indriðadóttír Bergstaðastræti 50 A. sími 4944 og Sigurður Ólafsson Lindargötu 18 sími 3625.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.