Tíminn - 20.10.1937, Page 1
^fgteifrela
09 tíintjeimta Jiafnaiatt. )6
©iml 2353 — í>ó»tf>ólf 96)
(öjaíbbagi
blabsins er I |4oi
&tgangnrinn fostat 7 ft.
XXI. ár.
Reykjavík, 20. október 1937
Fjárlagaræðan
í fjái’lagiii'æðuiiiði, sem Eysteiun Jómsson fjár-
málaráðlierra flutti á Alþingi föstudagiim 15.
þ. m. og foirtist hcr í Iieilu lagi, ræddi Iiauu
uui rýrnun tollteknanna, ríkisútgjöldin á síð-
ustu 10. árum, ríkisskuldir, ríkisábyrgöir og
gjaMeyrisinál.
Vörutollierinia Iiefir lækkað uni 800 þiis. kr.
og' verötollurlnn uni 1 inilljón síöan árið
1925.
A£ hækkun ríkisiitgjaldanna síðasta áratug,
er meginhlutinn vegna framkvæmda í þág’es
atviimuvegaima og' almenuiugs í laudinu.
RÆÐAN:
Þessi framsöguræða fjárlag-
anna hlýtur að verða með nokk-
uð öðru móti en venja er til. Yf-
irlit hefir nú þegar verið gefið á
þingi því, er haldið var í vetur,
um afkomu rikissjóðs á árinu
1936 og er í rauninni engu sér-
stöku við það að bæta, en geta
má þess þó hér, að bráðabirgða-
uppgjörið, sem þá var lagt fram,
hefir staðizt því nær alveg. —
Gjöldin á rekstursreikningi hafa
við endanlegt uppgjör hækkað
um ca. 150 þús. en gjöldin um
227 þús. Tekjuafgangur á rekstr-
arreikningi er endanlega rúml.
5 þús. kr., eða gjöld og tekjur
standast á. Landsreikningurinn
fyrir árið 1936 verður lagður
fram síðar á þessu þingi.
Reikningsafkoma
áranna 1936 og 1937.
Flesta þá, sem nú eiga sæti á
Alþingi, mun reka minni til þess,
að gert var ráð fyrir því í fjár-
lagafrv. fyrir árið 1936 og 1937
(yfirstandandi ár) að rekstur
ríkissjóðs yrði greiðsluhallalaus
og tekjuafgangur þar af leiðandi
allríflegur bæði árin til greiðslu
á föstum, samningsbundnum af-
borgunum. Einnig munu menn
minnast þess, að fjárhagsaf-
koman 1936 varð því miður ekki
með þessum hætti. í stað þess að
tekjuafgangur átti að verða um
680 þús. kr. og skuldir að lækka
um ca. 1 millj. kr., varð tekjuaf-
gangur ekki teljandi, þótt jöfn-
uður næðist á rekstrarreikningi
og skuldir stóðu því sem næst í
stað. Að vísu hefir þetta almennt
verið viðurkennd sæmileg út-
koma eftir ástæðum, en því ber
ekki að leyna sjálfa sig eða aðra,
að hún var ekki eins góð og við
var búizt fyrirfram samkvæmt
tekjuvonum ríkissjóðs. Um af-
komu yfirstandandi árs er of
snemmt að fullyrða nokkuð, eins
og sakir standa. Tekjur verða að
vísu eitthvað hærri en í fyrra,
en þó alls ekki í neitt svipuðu
hlutfalli við það, sem viðskiptin
hafa aukizt almennt og vöruinn-
flutningur. Rikissjóður hefir
jafnframt orðið fyrir þungum á-
föllum á þessu ári, ekki sízt af
völdum fjárpestarinnar, sem
geysað hefir, og þykir mér því
ekki líklegt að afkoma hans
verði betri en síðastliðið ár. Áður
en gengið er frá afgreiðslu fjár-
laganna á þessu þingi, er ákaf-
lega nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir því, í hverju það hefir
legið, að fjárlögin fyrir 1936 ekki
gáfu jafn góða raun og almennt
var álitið fyrirfram, bæði af
stjórnarandstæðingum og þeim
sem stjórninni fylgdu. Stafaði
það af því, að umframgreiðslur
væru meiri, en búast hefði mátt
við? Eða stafaði það af hinu,
að tekjur ríkissjóðs reyndust
minni en gera hefði mátt ráð
fyrir?
Tolltekjur ríkisins
hafa brugðizt.
Umframgreiðslur urðu að vísu
nokkrar, en ég fullyrði, að þær
urðu ekki meiri en svo, aö fyrir-
fram hefðu allir búizt við því, að
umframtekjur ríkissjóðs myndu
vega upp á móti þeim. Aðalá-
stæðan til þess, að útkoman árið
1936 varð lakari en gert var ráð
fyrir, og að útkoman árið 1937
verður sennilega einnig lakari en
búizt var við, er áreiðanlega sú,
að tekjur ríkissjóðs hafa brugö-
izt vonum manna, jafnvel þótt
þær hafi farið lítilsháttar fram
úr áætlun. Eg gerði í fjárlaga-
ræðu minni síðastliðinn vetur
nokkuð ítarlega grein fyrir þessu
en ætla hér að bæta við nokkrum
atriðum og sýna fram á til upp-
lýsingar, þær breytingar, sem
orðið hafa á vörutolli og verð-
tolli undanfarin ár, en það eru
; þeir tveir almennra tolla, sem
! mestar tekjur hafa gefið rikis-
sjóði. Eg ætla fyrst að taka vöru-
tollinn:
Árið 1925 nemur vörutollurinn
kr. 2.176 þús.
Árið 1930 nemur vörutollurinn
1.949 þús.
Árið 1934 nemur vörutollurinn
1.702 þús.
Árið 1936 nemur vörutollurinn
1.384 þús.
Árið 1936 hefir hann því num-
ið um 800 þús. kr. lægri fjárhæð
heldur en árið 1925, og hefir far-
ið stöðugt lækkandi hin siðustu
ár, þangað til nú í ár, að hann
hækkar eitthvað lítilsháttar frá
í fyrra. Þessi lækkun vörutollsins
á sér aðallega þrjár ástæður hin
allra síðustu ár: 1) Minnkandi
heildarinnflutning til landsins,
og einkum minni innflutning
vörutollflokkana (vefnaðarvara
o. s. frv.). 2) Lækkun eða niður-
felling vörutolls af hráefnum til
iðnaðar (t. d. hampur, tunnu-
efni o. fl. Lög frá 1935.). 3)
Lækkaðan vörutoll á vélum (sbr.
lög frá 1935).
Enn meir áberandi er þó þessi
lækkun eldri tollanna, ef litið er
til verðtollsins:
Árið 1925 nam verðtollurinn
kr. 2.085 þús.
Árið 1930: kr. 2.337 þús.
Árið 1934: — 1.694 —
Árið 1936: — 1.084 —
Síðastliöið ár liefir því verð-
tollurinn numiö aöeins réttum
hqlmingi af því, sem hann var
árið 1925, og 600 þús. kr. minna
en hann nam síðasta árið fyrir
seinustu stjórnarskipti, áriö
1934. Þó hefir verðtollurinn á
þessu tímabili verið hækkaður á
mörgum vörutegundum. Þessi
gífurlega lækkun verðtollsins á
sér svipaðar ástæður og lækkun
vörutollsins: 1) Gífurlega lækk-
un á innflutningi verðtolls-
skyldra vara, sem ýmist er tekið
að framleiða í landinu sjálfu eða
orðið hefir að loka úti af mark-
aðinum, vegna gjaldeyrisörðug-
leika. 2) Lækkun eða burtfelling
verötolls af hráefnum til iðnað-
arins hin allra síðustu ár. 3) Af-
nám verðtolls af vélum til iðn-
fyrirtækja, er lögfest var árið
1935.
Innflutningur verðtollsskyldra |
vara hefir minnkað miklu
meira en annar innflutningur.
Eg hygg aö það hafi fáir gert
sér grein fyrir því, hve hraðstíg
breytingin á innflutningi verð-
tollsvaranna . hefir verið og
hversu alvarlegar afleiðingar
hún hefir haft í för með sér fyi'ir
ríkissjóðinn. Eg ætla að nefna
hér nokkur dæmi um innflutning
þessara vara, sem sýna mjög
glögglega þá breytingu, sem orð-
ið hefir. Eg hefi ekki yngri dæmi
en frá árinu 1935. Nýrri sundur-
liðaðar verzlunarskýrslur eru
ekki til. Eg ætla aö bera saman
árin 1925 og 1935:
Ár 1925 Ár 1935
kr. kr.
Vefnaðarvara 6.341.000 3.182.000
Fatnaður 3.880.000 1.739.000
Skófatnaður 1.472.000 858.000
Húsgögn 297.000 37.000
Hljóðfæri 386.000 25.000
Þetta eru aðeins nokkur
dæmi, sem sýna hina gífurlegu
breytingu á innflutningi toll-
varnings, en enn .þá meiri hef-
ir þessi breyting þó orðið árin
1936 og 1937. Hert hefir verið
á innflutningshöftunum og
iðnaðurinn þróast i landinu
sjálfu. Er komið svo langt árið
1936, að af 41,6 millj. kr. inn-
flutningi samkvæmt bráða-
birgðaskýrslu fyrir það ár,
nema verðtollsvörur aðeins 7,5
millj. kr., en vefnaðarvörur og
skófatnaður einn saman nam
árið 1925 yfir 10 millj. krónum.
í raun og veru má orða þetta
svo, að verötollurinn sé smátt
og smátt að hverfa úr sögunrfi
miðað við það sem áður var.
Eitt dæmi, sem sýnir greinilega
hvernig innlendi iðnaðurinn
hefir áhrif á tolltekjur ríkis-
sjóðs, er framleiðsla sú á skó-
fatnaði, sem nú er rekin hér á
landi. Það má gera ráð fyrir
því, að skófatnaður verði fram-
leiddur hér á næsta ári fyrir 6
—700 þús. kr. Aðflutnings-
gjaldið af þessari vöru er sem
næst 25%, og tolltap ríkissjóðs
því um 150—170 þús. kr. við það
að þessi framleiðsla flytzt inn í
landiö. Það er þessi gífurlega
breyting á innflutningi og við-
skiptum landsmanna, sem or-
sakar að menn hafa oi'ðið fyrir
vonbrigðum um heildartekjur
ríkissjóðs á síðustu árum. Þessi
þróun hefir orðið örari en
menn óraði fyrir, og það er
fyrst og fremst þessi breyting,
þetta hrap gömlu tollteknanna,
sem gert hefir það nauðsynlegt
að leggja á nýja skatta og nýja
tolla, þó að hitt sé rétt, að
nokkur hækkun heildar-
greiðslna hefir einnig átt sér
stað.
Þegar tollvöruinnflutningur
minnkar, verður að setja ný
ákvæði til tekjuöflunar í stað-
inn.
Þegar þessi staðreynd, sem
hér hefir verið bent á, er at-
huguð, þá kemur það greini-
þær skatta- og tollahækkanir,
sem gerðar hafa verið til að
vega upp á móti hinni gífur-
legu lækkun á aðaltekjuliðun-
um. Það er gersamlega óhugs-
andi, að ríkissjóöur geti sinnt
þeim kröfum, sem til hans eru
gerðar frá atvinnuvegunum og
öðrum aöilum nema þetta
teknatap sé vegið upp, og aö
tekjur ríkissjóðs fari fremur
vaxandi en minnkandi með
aukinni fólksfjölgun í landinu
og auknum greiðslum til al-
mennra þarfa. Það er stað-
reynd, að ef tekjur rikissjóðs af
tollum út af fyrir sig eiga að
haldast, þá verður að gera eitt
af tvennu í náinni framtíð eða
| hvorttveggja, að færa gjöld yf-
ir á þær vörutegundir, sem áð-
ur hafa veriö innfluttar, en nú
eru framleiddar í landinu
sjálfu, eða að færa aðflutnings-
gjöldin yfir á þær vörur, sem
enn eru fluttar til lanasins og
það enda þótt þær þyki nauð-
synlegri en sumar beirra. sem
útilokaðar eru, en áður gáfu
tekjurnar að mestu.
Útgjöld ríkisins fara hækkandi.
Það er ekki óalgengt, að heyra
hér á Alþingi og utan þings talað
um hin sívaxandi útgjöld rikis-
ins, einkum hin 3 síðustu ár, og
er þá venjulega talað urn þessi
gjöld eins og einhvern almenn-
ingi fjandsamlegan hlut, og er
helzt í skyn gefið, að mest séu
þau bein og bitlingar. Nú er það
að vísu ekki rétt, að heildar-
greiðslur ríkissjóðs árin 1935 og
1936 hafi verið hærri en stundum
áður, t. d. árin 1930 og 1934, þó
þær væru hinsvegar hærri en árin
1932 og 1933. Og þótt heildar-
greiðslur ársins 1937 og 1938 séu
hærri samkvæmt fjárlögum en
árin 1935 og 1936, þá getur sú
hækkun ekki talizt mjög veruleg.
Hitt er rétt, að á síðasta 10 ára
tímabili, hafa heildarútgjöld
ríkissjóðs vaxið mjög verulega.
En hvaða útgjöld eru það, sem
aðallega hafa hækkað?
En þá er ekki ófróðlegt að
gera sér grein fyrir, í hverju
þessi hækkun liggur, og hver af-
staða þingflokkanna yfirleitt
hefir verið til hennar. Þá er það
eigi síður fróðlegt að athuga,
hvort það er fremur styrkur til
atvinnuveganna og framkvæmd-
ir, eða kostnaður við rekstur
þjóðarbúsins sjálfs, sem hækk-
uninni veldur. Eg hefi gert sam-
anburö á þessu og er annarsveg-
ar tekið árið 1926 og hinsvegar
árið 1936. Eru þá samræmdir
landsreikningarnir fyrir bæði ár-
in, en formið var annað árið
1926. Þótt þessi samanburður sé
ekki hárnákvæmur, þá er hann
réttur það sem hann nær, og gef-
ur mjög góða hugmynd urn í
hverju hækkunin liggur. Heild-
arútgjöld ríkissjóðs á rekstrar-
reikningi árið 1936 voru 15.480
þús. kr., en heildargreiðslur skv.
rekstrarreikningi 1926 kr. 9.758
þús., og hefir hann þá verið
færður eftir sömu reglum og árið
1936. Heildarhækkun útgjald-
anna á þessu 10 ára skeiði er því
um 5.720 þús. lcr. — Þá ætla ég að
geta um þær greinar fjárlag-
anna, sem hafa hækkað, en síðar
að skýra með örfáum orðum i
hverju hækkunin liggur.
7. gr., vaxtaútgjöld, hefir
hækkað um 487 þús. kr. 9. gr., al-
þingiskostnaður, hefir hækkað
um 25 þús. kr., 10. gr., lcostnaður
við stjórnarráðið, hagstofu og
utanríkismál, hefir hækkað um
154 þús. kr. 11. gr. A, dómsgæzla
og lögreglustjórn, hefir hækkað
um 620 þús. kr. 11. gr. B, sameig-
inlegur kostnaður við embættis-
rekstur, hefir hækkaö um 160
þús. kr. 13. gr. A, vegamál, hafa
hækkað um 820 þús. kr. 13. gr. B,
samgöngur á sjó, hefir hækkað
um 238 þús. kr. 13. gr. C, vitamál,
um 133 þús. kr. 14. gr. B,
kennslumál, hefir hækkaö urn
472 þús. kr. 16. gr., verklegar
framkvæmdir, hefir hækkað um
1.966 þús., 17. gr., til almennrar
styrktarstarfsemi, um 788 þús.
kr. og 18. gr., eftirlaun, um 132
legar í ljós en nokkru sinni
fyrr, hversu fjarstætt það er,
að liggja mönnum á hálsi fyrir
þús. kr. Aftur á móti hafa út-
gjöld á eftirtöldum liðum læklc-
að: 12. gr., heilbrigðismál, hefir
lækkað um 174 þús., 14. gr. A,
kirkjumál, hefir lækkað um 16
45. blað
I Ólöf Bjarnadóttír I
á Egilsstöðum.
14. þ. m. lézt aö Egilsstööum á
Völlum í Fljótsdalshéraöi, frú
Ólöf Bjarnadóttir, nær 103 ára
að aldri.
Ólöf sál. var fædd í Hellisfirði
í Suður-Múlasýslu 1. dag nóvem-
bermánaðar 1834. Foreldrar
hennar voru Bjarni Petursson og
Guörún Erlendsdóttir, sem þá
bjuggu í Hellisfirði, hin mestu
sæmdarhjón, og af góðu fólki
komin.
Ólöf heitin giftist Pétri bónda
Sveinssyni í Vestdal í Seyðisfirði,
og bjuggu þau með hinni mestu
rausn í Vestdal þangað til Pétur
heitinn maður hennar andaðist
áriö 1880.
Síðar bjó hún ekkja á Þórar-
insstaöaeyrum við Seyðisfjörð
mörg ár, en síðari árin, allt til
dauðadags, dvaldi hún hjá eldri
dóttur sinni, frú Margréti, konu
Jóns heitins Bergssonar, bónda
og kaupfélagsstjóra á Egilsstöð-
um á Völlum.
Með manni sínum eignaðist
hún son, Svein að nafni, er dó
ungur, og tvær dætur, er upp
komust, frú Margréti, er giftist
merkisbóndanum Jóni Bergssyni
á Egilsstöðum á Völlum og frú
Önnu, sem dó á undan móður
sinni, en hafði verið gift Ás-
mundi prófasti Gíslasyni á Hálsi
í Fnjóskadal (nú i Reykjavík).
Báðar dæturnar voru efnileg-
ar, vel upp aldar og vel menntar,
enda hlutu þær góð gjaforð.
Ólöf heitin var prýðilega gefin
til líkama og sálar, og hélt sálar-
og líkamskröftum ótrúlega vel,
. allt til síðustu stundar. Hún var
stálminnug og fróð, og hafði
yndi af öllum nytsömum fróð-
leik. Hún fylgdist vel með öllum
viðburðum, er máli skiptu, og
unni landi og þjóð af alhug.
Hún var dugnaðar- og rausn-
arkona í öllum hlutum, sköruleg
í framgöngu og tali og var á-
nægjulegt að ræða við hana fram
á síðustu elliár. Góðgjörn var
hún og vildi öllum gjöra gott,
en engum hið gagnstæða. Hún
átti því láni aö fagna, að njóta
samvista ástfólginnar dóttur og
efnilegra barnabarna, þangað til
herra lífs og dauða kallaði hana
úr þessum heimi til betri heims.
Allir afkomendur hennar og
venzlamenn syrgja hana liðna
og blessa minningu hennar.
Guð gefi þjóð vorri marga
hennar líka. Jón Finnsson.
þús. kr. og 15. gi\, til vísinda,
bókmennta og lista, hefir lækkað
um 61 þús. kr.
Þá mun ég skýra nokkuö í
hverju hækkanirnar liggja.
489 þús. kr. hækkun vaxtaút-
gjalda, þar af 300 þúsund
vegna íslandsbanka.
Vaxtaútgjöld ríkissjóös hafa
samkvæmt þessu yfirliti hækkaö
um 489 þús. kr. 300 þús. kr. af
þeirri upphæð er hægt að rekja
til þeirrar skuldabyrðar, sem rík-
issjóður tók á sig vegna íslands-
banka, þannig, að hækkun
vaxtaútgjaldanna á þessum ár-
um, sem stafar af öllum fram-
kvæmdum ríkissjóös, er kr. 187
Framh. á 2. síðu.
Uian úr heimi
Bandaríkin og Japan.
[Grein þessi, sem er skrifuð af
Livingstone Hartley, og birtist í hinu
kunna ameríska blaði Christian Science
Monitor sýnir ljóslega hversu Ameríku-
menn láti sig skipta atburöi þá, sem nú
eru að gerast í Austur-Asíu].
Vopnabrakið í austri er mjög
alvarlegt. Taki Rússland til
sinna ráða, sem mjög er hætt
við, er friðnum i Evrópu mikil
hætta búin. Þá mun og koma á
daginn, að ekki er svo ýkja
langt yfir Kyrrahafið milli
Ameríku og Asíu.
Þrátt fyrir það, að Bandarík-
in hafa tekið drjúgan þátt í
málum Austur-Asíu og oft haft
þar á hendi forustuna, hafa at-
burðirnir í Norður-Kína ennþá
verið látnir afskiptalausir.
Margir Ameríkanir hafa með
nokkrum ugg fylgzt með hinni
gífurlegu útþenslu Japana,
og reynt að beita áhrifum sín-
um í þá átt, að Bandaríkin
stofni sér ekki í neinn voða,
vegna afskipta af hinni „gulu
hættu“. — Þessum mönnum
finnst að þar sem brezkt fjár-
magn í Kína er sex sinnum
meira en fjármagn Banda-
ríkjamanna þar, og þar sem
lönd Breta í Asíu eru mörgum
sinnum stærri en Filippseyj-
arnar, geti Ameríkumenn látið
London gæta hagsmuna þeirra
í Asiu og Kyrrahafinu.
Ef við athugum málið lítið
eitt betur, munum við komast
að raun um að hagsmunir
Ameríkumanna í Asíu eru aðr-
ir og meiri en fjármagn þeirra
og verzlun, eða örlög Filipps-
eyja. Þeir verða þar beinlínis
að hugsa um sína eigin framtíð,
því forlög þeirra hljóta að mót-
ast nokkuð af því, sem fram
fer hinumegin Kyrrahafsins.
Austan Kyrrahafsins er
130,000,000 Bandaríkjamanna,
10,000,000 Kanadamanna, og
um 43,000,000 rómverskra Ame-
ríkana. Vestan megin eru svo
600,000,000 Asíubúa, sem þegar
þjást af vöntun á landrými og
hráefnum. Ef hægt verður að
sameina þenna gula múg í eitt
sterkt herveldi, gerist það eðli-
lega heimaríkt á Kyrrahafinu
og eyjum þess. Bandarikin og
hinir veikbyggðu nágrannar
þeirra munu þá komast að því
fullkeyptu.
Evrópumenn eiga stór lönd
í Asíu, en hafa tiltölulega lítið
vald. Brezka heimsveldið getur
ekki eitt varið lönd sín í Kyrra-
hafinu fyrir Japönum, ef að
því væri um leið kreppt í Norð-
ursjónum og Miðjarðarhafinu.
Frakkland og Holland eru enn-
þá ver stæð. Þau standa ger-
samlega varnarlaus fyrir
auknu herveldi Japana. Hags-
munum hins hvíta kynstofns
verður ekki framar borgið i
hernaði, nema með sameigin-
legum átökum hinna vestrænu
ríkja, að meðtöldum Banda-
ríkjunum.
Hagsmunum hins hvíta kyn-
stofns á þessum slóðum stafar
nú aðal hættan af hinni stór-
felldu tilraun Japana til að
brjóta undir sig hinar mörgu
gulu milljónir í Austur-Asíu.
Við sjáum svart á hvítu, bæði
á landabréfum og í sögubókum,
hina gífurlegu útþenslu Jap-
ana síðan um 1900. Framrás
Japana í Kína heldur áfram,
og þeir leitast við að stækka
áhrifasvæði sitt í Austur-Asíu.
Nái Japanar undir sig nægi-
lega miklu af Kína, munu þeir
auka og styrkja herveldi sitt
að mun.
Hráefnalindir Kína og mark-
aðsmöguleikar þar mundu
mjög auka vald þeirra og áhrif,
bæði á landi og sjó. í dag er
Japan of veikt til að þola fjár-
hagslegar refsiaðgerðir Vestur-
landaþjóðanna. En það getur
svo farið, að á morgun verði
herinn búinn að styrkja svo að-
Framh. á 4. síðu.