Tíminn - 01.11.1938, Page 1

Tíminn - 01.11.1938, Page 1
RITSTJÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. RITSTJÓRN ARSKRIFSTOFUR : Edduhúsi, Lindargötu 1D. SÍMAR: 4373 og 2353. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN AFGREIÐSLA, INNHEIMTA, OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: Edduhúsi, Lindargötu 1D. Sími: 2323. Prentsmiðjan Edda h.f. Símar: 3948 og 3720. 22. árg. Rcykjavík, þriðjndaglim 1. nóv. 1938. BRIMBR JÓTUR Á HÚSAVÍK Kostnaðarverd hans áætlað 160 þús. kr. Á árunum 1933—1936 var byggð hafnarbryggja í Húsavík. Bryggja þessi er lengsta bryggja hér á landi, um 300 metra löng. Finnbogi R. Þor- valdsson verkfræðingur gerði teikningar að mannvirki þessu og hafði yfirumsjón fram- kvæmdarinnar. Bryggjan er suðurarmur hinnar ákveðnu hafnargerðar í Húsavík. Nú hefir Finnbogi R. Þor- valdsson verkfræðingur gert á- ætlun um brimbrjót — eða skjólgarð — norðvestan hafnar- innar, suður úr Húsavíkurhöfða. Á sá brimbrjótur að vera mót- armur hafnlarbryggjunnar, ná 200 metra frá landi, upp jafnt vatnsfleti um hásævi, en koma ca. 1,5 metra yfir sjávar- flöt um lágsævi. Á brjóturinn að verja höfnina fyrir öllum á- gangi brims úr aðalhafáttinni og gera hana tryggt lægi fyrir báta og skip á hverju sem geng- ur. Siðar getur hann orðið und- irstaða fullkomins hafnarbakka, ef ástæða- þætti til að gera þarna athafnapláss og af- greiðslustað fyrir skip, eins og líklegt má telja að verði, þegar tímar líða. Áætlar verkfræðingurinn að brimbrjóturinn muni kosta 160 þús. krónur. Kosningar til búnadarpings á Sudurlandi Kosningar til búnaðarþings fóru fram á Suðurlandi og í Vestm.eyjum á sunnudag. Voru þær yfirleitt sæmilega og sum- staðar dável sóttar. Veður var víðast fremur gott, stillt, en sumstaðar dálítil snjóél. Tíminn hefir ekki enn fengið fullnaðar fregnir um það, hve margir hafi neytt atkvæðisrétt- ar síns, en i eftirtöldum hrepp- um Árnessýslu mun kjörfunda- sóknin hafa verið þessi: Á Kosn.réttar kjörskrá: neyttu: Fjórir bræðnr Ölfus 68 39 Sandvíkurhr. 33 15 Eyrarbakki 46 35 Villingaholtshr. 36 26 Gnúpverjahr. 31 29 Hrunamannahr. 66 46 Biskupstungur 60 48 Laugardalur 22 20 Grímsnes 46 34 í vesturhreppum Rangárvalla sýslu, Djúpár-, Ása- og Holta- hreppum, en þar hafa bændur með sér eitt sameiginlegt bún aðarfélag, var kosið á einum stað, að Efri-Rauöalæk. Mun fundarsóknin hafa verið sæmi- leg. í Fljótshlíð kusu 70—80% þeirra, sem kosningarétt höfðu Úr Vestur-Skaftafellssýslu hafa fáar fregnir borizt um kjörsóknina, en þó mun hún víðast hafa verið dágóð. — í Kirkjubæjarhreppi kusu t. a. m. 26 bændur af 30, sem kosning- arrétt áttu. í Vestmannaeyjum voru 130 manns á kjörskrá, en 44 greiddu atkvæði. Talning atkvæðanna fer fram austanfjalls, þegar allir atkvæðakassarnir eru komnir á einn stað. Bruninn í Marseille Stórkostlegur bruni var í Marseille í síðastl. viku. í bruna- rústunum hafa fundizt 27 lík, en 68 manna eT auk þess saknað. Myndin hér að ofan birtist nýlega í Heimskringlu. Er hún af fjórum brœðrum úr frumbyggjasveit íslendinga vestra. Eru þeir komnir af hinni nafnkunnu Hafnarœtt, sem kemur víða við sögu Austlendingafjórðungs. — Faðir þeirra brœðra var Guð- mundur Ásgrímsson, œttaður frá Vopnafirði í Norður-Múlasýslu, en móðir þeirra var Ingibjörg Sveinsdóttir, og var hún dóttur- dóttir Jóns sterka, frá Höfn í Borgarfirði eystra. Hafa þessir brœður allir verið búsettir norður við Manitoba- vatn, í hinni svonefndu Álftavatnsbyggð, og hefir farnazt vel, hafa œtíð verið vinmargir, enda drengir hinir beztu, og ötulir starfsmenn á öllum sviðum, segir í Heimskringlu. Á myndinni eru brœðurnir í þessari röð: Sveinn, fœddur 1858, Einar, fœddur 1861, Guðmundur, fœddur 1863 og Páll fœdd- ur 1866. Nýja strandferðaskipið *. ,* .?■'**> . *. Myndin, sem hér birtist, er af strandferðaskipi þvi, sem samið hefir verið um byggingu á í stað Esju. Það verður 210 feta langt, 35 feta breitt, 20y2 fet að dýpt, eða 36 fetum lengri, 5 fetum breið- ara og 2 fetum dýpra en Esja. Hraðinn verður 15 sjómilur á klst., én hraði Esju er 11 mílur. Farþegarúm er fyrir 155, en Esja hafði rúm fyrir 80—90 farþega. Smiði skipsins á að verða lokið i ágúst- mánuði nœsta sumar. Styrjöld Japana og Kínverja Fyrstu dagana eftir fall Can- ton og Hankow, barst sá orðróm- ur út, að þessir ósigrar þýddu endanlega uppgjöf Kínverja og að Chiang Kai Shek myndi segja af sér. Þessum orðrómi hefir nú verið svarað með margendur- teknum yfirlýsingum frá stjórn. inni um að styrjöldinni verði haldið áfram og einn ráðherr- ann hefir látið svo um mælt, að nú fyrst væri hún að byrja. Fyrir þá, sem hafa fylgzt með hernaðaraðferð Chiang Kai Shek, komu þessir atburðir ekki á óvart. Stefna hans hefir verið sú, að halda uppi stöðugum smá- skæruhernaði, en komast hjá öllum stærri orrustum. Hann hefir reynt að tefja framsókn Japana, en jafnan hörfað undan áður en kæmi til endanlegrar orrustu milli aðalherjanna. — Stórborgirnar hafa verið látnar af hendi, án þess að kinverski herinn liði verulegt tjón. Chiang Kai Shek hefir ekki talið her sinn nægilega sterkan til að verja þær, enda hafa fylgt yfir- ráðum þeirra miklir erfiðleikar í sambandi við útvegun mat- væla. Með því að láta þær af hendi, hefir kínverska stjórnin losnað þar við erfiðleika, sem gátu reynzt henni of torveldir viðfangs. Markmið Chang Kai Sheks hefir verið að lokka jap- anska herinn sem lengst inn í iandið áður en til nokkurra úr- slitabardaga kæmi og búast fyrst til varanlegra varna, þegar komið væri af sléttunum upp í fjalllendið. Þ-etta undanhald að- alhersins hefir tekizt vonum framar. Talsverður hluti kin- verska hersins er þó enn eftir í þeim landshlutum, sem Japanir hafa lagt undir sig, skiptur í marga smáflokka, sem halda uppi stöðugum smáskæruhern- aði og hindra flutninga Japana. Megin hluti þess lands, sem Ja- panir telja sig nú ráða yfir, er enn raunverulega á valdi þess- ara smáflokka. Það eru aðeins stærstu borgirnar, sem Japanir hafa fullkomlega á valdi sínu. Samfara þessu undanhaldi kínverska hersins hafa gerzt ein hverjir stórfelldustu fólksflutn- ingar sögunnar. Það er talið, að um 20 millj. manna hafi flúið þau landssvæði, sem Japanir hafa farið yfir, og leitað sér ból- 60. blað A. KROSSGÖTIJM Fyrstu snjóar sunnanlands. — Refasýningar. — Loðdýramerkingar í haust. — Eyðibýlin í Laxárdal. — Togari tekinn 1 landhelgi. — Skipsstrand. — Dálítil snjókoma var sunnanlands og vestan í gær og í fyrradag og gerði hvíta jörð niður að sjó. Er það í fyrsta skipti á þessu hausti, sem snjó festir á láglendi suðvestan lands. Enn sem komið er, er þetta þó föl eitt, og þegar austur í sveitimar er komið og í upp- sveitum Árnessýslu og Rangárvalla- sýslu er aðeins grátt í rót. Norðan- lands snjóaði sumstaðar talsvert í októbermánuði og i snjóþyngstu sveit- unum, t. a. m. í Fljótum, vora menn snemma mánaðar teknir að nota sleða og skíðafæri gott. t r t Refasýningar, sem haldnar verða í nokkrum héröðum landsins, hefjast í Borgarnesi á morgun. í Búðardal verð- ur sýning 3. nóvember, í Hólmavík 5., á Hvammstanga 7., á Blönduósi 8. í Sauðárkróki 9., Stykkishólmi 12. og í Reykjavík 14. og 15. nóvember. Á sýn- ingum þessum mun dæma, ásamt H. J. Hólmjárn ráðunaut, Norðmaðurinn Aurdal, sem dvaldist hér um tíma í fyrra. Er hann væntanlegur hingað til lands með Lyru í nótt, en fer aftur utan þann 17. þ. m. Áður en hann fer heimleiðis er í ráði, að hann haldi námskeið, þar sem mönnum verður kennt að dæma um loðdýr. Ef til vill verða loðdýrasýningar haldnar austan- fjalls eftir miðjan mánuðinn, en það er enn ekki fullráðið. r r r Merkingar á silfurrefum og bláref- um fóru fram á öllu landinu í október- mánuði, nema á Austfjörðum, en þar standa þær fyrir dyrum. Voru merkt dýr allra þeirra manna, sem í Loð- dýraræktarfélaginu eru. Að þessu sinni voru miklu strangari kröfur gerðar til undaneldisdýra heldur en verið hefir, enda er loðdýrastofninn íslenzki í mikilli framför. Níu menn höfðu þessar merkingar með höndum, þeir Metúsalem Stefánsson, Hafsteinn Pétursson á Gunnsteinsstöðum, Guð- mundur Jónsson í Ljárskógum, Björn Andrésson í Leynimýri, Tryggvi Guð- mundsson á Kleppi, Einar Farested á Hvammstanga, Þórhallur Þorgeirs- son í Reykjavík, Kristinn Briem á Sauðárkróki og Jón Dungal í Mjóanesi. Áður en merkingarnar hófust áttu þeir fund með sér í Reykjavík til að ráðgast um hvað skyldi lagt þeim til grundvallar. r r r í Laxárdal í Austur-Húnavatns- sýslu hefir á síðustu árum hver jörðin lagzt í eyði á eftir annari. Af nálægt tuttugu jörðum, sem i dalnum eru, eru þessir bæir komnir í eyði: Sel- hagi, Kálfárdalur, Skyttudalur, Mjói- dalur, Mörk, Litla-Vatnsskarð, Kára- hlíð, Sneis og Núpsöxl. Af þessum jörðum er Mjóidalur hin mesta og hefir um langan aldur verið höfuð- ból. Þessar jarðir eru í tveimur hreppum, Bólstaðarhlíðarhreppi og Engihlíðarhreppi. Auk þessara jarða er fyrirsjáanlegt að fleiri leggjast í eyði á næstunni. Laxárdalurinn er ákaflega grösugur, góðar slægjur, sauð- fjárlönd ágæt að sumiinu, en snjó- þungt að vetrinum. Jafnhliða því sem byggðin hefir færzt svo mjög saman í Laxárdalnum, hefir þó verið byrjað að reisa nýbýli í Langadal, næstu sveit að suðvestan. r r r Á laugardaginn var enskur togari, sem varðbáturinn Óðinn tók að veið- um í Garðsjó innan landhelgislín- unnar, dæmdur í 21100 króna sekt. Togarinn heitir Fleming og er frá Hull. Skipstjórinn viðurkenndi brot sitt, en áfrýjaði. r r r Á sunnudagsmorgun klukkan fimm strandaði enskur togari, Lincolnshire, á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, við Sléttanes, 4—5 mílum sunnan við vitann hjá Svalvogum. Var þá snjó- koma og dimmviðri. Sendi togarinn frá sér neyðarmerki og koma tveir enskir togarar og varðbáturinn Gaut- ur, er staddur var á Þingeyri, tU að- stoðar, en fengu ekki að gert. Um miðjan dag í gær kom varðskipið Ægir á strandstaðinn. Tókst að ná hinu strandaða skipi á flot laust eft- ir hádegið í dag. Var farið með það inn til Þingeyrar. festu í hinu svonefnda Innra- Kína. Þúsundum saman hefir þetta flóttafólk farizt á leiðinni, einkum úr hungri, en megin- þorrinn hefir þó komizt til á- kvörðunarstaöarins. Samtímis hafa kínverskir iðju_ höldar flutt þangað verksmiðjur sínar eftir því, sem ástæður hafa leyft, háskóiar hafa flutt þangað bókasöfn sín o. s. frv. Smáborgir, sem fyrir 1—2 árum höfðu nokkrar þúsundir íbúa, hafa nú margar nokkuð á annað hundr- að þús. ibúa. Þessir miklu fólks- fiutningar hafa skapað stór- felldar framfarir og athafnalíf í hinum afskekktu héruðum og fióttamennirnir hafa vakið sjálfstæðishuginn og hernaðar- andann í hinum friðsömu íbúum þeirra. Skáldkonan Pearl Buck, hefir komizt svo að orði, að merkilegasti árangur styrjaldar. innar væri sá, að nýja og gamla Kína, sem áður voru fjarlæg og andstæð hvort öðru, hafi nú sameinazt í þessum héruðum og skipazt til sameiginlegrar varn- ar gegn erlendum yfirgangi. Landbúnaður hefir verið næst- um eini atvinnuvegur Innra- Kína og hefir meira en fullnægt öllum þörfum íbúanna. Meöan stjórn Chiang Kai Shek heldur þessum héruðum, ætti herinn því ekki að þurfa að búa við fæðuskort. Erfiðasta viðfangsefni stjórn- arinnar verður að tryggja hern- um nægileg vopn. Þau verður hún að fá frá Rússlandi og franska Indo-Kína, þar sem Japanir ráða yfir öllum höfnum Kína, en frá báðum þessum löndum eru langir og erfiðir flutningar. Japanir gera sér það sjálfir ljóst, að þeir hafa enn ekki brot- ið mótstöðu Kinverja á bak aft- ur. Meðan fögnuðurinn var sem mestur í Japan yfir falli Canton, gaf stjórnin út yfirlýsingu, þar sem m. a. var sagt að menn mættu ekki vænta endanlegs sigurs of fljótt. Viðureignin við aðalher Kínverja verður erfiðari eftir því, sem lengra dregur inn i landið, einkum þegar komið er upp í fjalllendið. Sigrar Japana hafa enn ekki gefið þeim neinn teljandi hagnað. Smáskæru- hernaðurinn hindrar enn alla atvinnustarfsemi í hinu her- numda landi, auk þess, sem al- menningur þar fæst yfirleitt ekki til að vinna fyrir Japani. Áður en Kinverjar hafa hörfað undan, hafa þeir líka eyðilagt nær öll þau mannvirki, sem gátu orðið Japönum til gagns, eins og rafmagnsstöðvar, vatnsveitur, flóðgarða, járnbrautir o. s. frv. Heilir borgarhlutar hafa verið brenndir til kaldra kola og sjálf ir voru Japanir búnir að valda stórfelldu eignatjóni með loft árásum. í öllum stærri borgum hefir verið ríkjandi hungurs- neyð, sem þeir hafa verið neydd- ir til að reyna að bæta úr, svo ekki hlytist af meiri örðugleikar fyrir stjórn þeirra þar. Styrjöld. in hefir enn ekki fært þeim ann- að en fjárútlát, en fjárhagur þeirra leyfir þeim naumast lang_ vinna styrjöld, án verulegs hagnaðar. Þess vegna byggja Kínverjar sigurvonir sinar á langvinnri styrjöld og miða all an hernað sinn við það. Aðrar fréttir. Tékkneska stjórnin hefir nú gengið frá uppkasti að nýrri stjórnarskrá. Samkvæmt henni verður nafni landsins breytt og það kallað Vestur-Slovakia. Stjórnarfyrirkomulag ríkisins verður þingræði eins og verið hefir, en einstakir landshlutar fá meira sjálfræði en þeir hafa áður haft. Þingi radikala ‘ flokksins franska er lokið. Flokkurinn lýsti fylgi sínu við stefnu Dala diers og Bonnets og samþykkti (Framh. á 4. síðu.J w A víðavangi Mbl. hefir unnið að því ó- sleitilega undanfarið að auglýsa starfsemi kommúnista og Héð- ins Valdimarssonar og láta hana vekja sem mesta eftirtekt. íhaldið veit, að síðan Bænda- flokkurinn leið, hafa engir menn í þessu landi verið því larfari en H. V. og félagar hans. Svo þunnt er nú móðureyra Mbl., þegar þessar hjálparhell- ur þess eiga í hlut, að furðu sætir. Tíminn leyfði sér fyrir nokkrum dögum að láta í ljós iá skoðun, að Stalin og hans menn austur í Rússaveldi myndu lítið fylgjast með handa- gangi Brynjólfs Bjarnasonar, Einars Olgeirssonar og Héðins hér úti á íslandi og yfirleitt láta sig litlu skipta, hverju megin hryggjar þeir lægju í heimspóli- tikinni. Þetta finnst Mbl. goðgá! Það má ekki annað heyra en að leir Einar, Brynjólfur og Héð- inn séu frægir menn i Rúss- landi! * * * Mbl. á sunnudaginn var er að hóta því, að ríkisstjórninni skuli verða „sýnd 60 fiskiskip við landfestar eða á þurru landi um vertið hér við Faxaflóa“. Liggur næst að skilja þetta á þá leið, að aðstandendur blaðsins ætli að beita sér fyrir því, að fiski- flotinn verði stöðvaður, ef ekki hafi orðið stjórnarskipti fyrir næstu vetrarvertíð. Fyr hefir iað nú skeð, að spáð hafi verið „óvenjulegum atburðum“ úr þeirri átt og þó enginn lands- brestur orðið. En söm er þeirra gerð, sem til slíkra hermdar- verka æsa, sbr. tilraun Ólafs Thors til að koma af stað sild- veiðaverkfalli um árið. * * * Skrif Sjálfstæðisblaðanna um skattahækkanir minna mest á karlinn, sem hélt að það væri annað að borga eina krónu held- ur en fjóra 25-eyringa í ferju- toll! Þesskonar misskilning gengur venjulega seint að leið- rétta. * * * Jón í Stóradal er að reyna að gera upp árangurinn af kjöt- lögunum á þá leið, að þau hafi lítið gagn gert. En í þessu upp- gjöri sínu gleymir hann alveg öðru meginatriðinu: Hvernig farið hefði um kjötverðið á inn- lendum markaði, ef lögin hefðu ekki verið sett. En til þess voru kjötlögin fyrst og fremst sett, að koma í veg fyrir, að innlenda verðið hrapaði niður úr öllu valdi. Fyrir þá vernd, sem lög- in veita að þessu leyti, greiða svo seljendur kjöts innanlands verð- jöfnunargjald til hjálpar þeim, sem sæta lægra verði erlendis. * * * íhaldsblöðin tala mikið um lýðræði þessa dagana. En ætli það væri ekki ástæða til að leyfa lýðræðinu að koma til skjal- anna, þegar ráðandi stjórn- málaflokkur verður uppvís að því að hafa sagt kjósendum sín- um ósatt, eins og Sjálfstæðis- flokkurinn í Reykjavík í hita- veitumálinu? * * * Jón á Akri neitar að hafa haldið því fram, að skuldir þjóðarinnar hafi vaxið um milljónatugi á síðustu árum. Ef aðrir íhaldsmenn hafi haldið slíku fram, geti þeir svarað fyr- ir sig, segir hann. Það er vel farið, að Jón hefir iðrast. * * * „Þjóðviljinn" kom út í dag í nýju formi, sem málgagn hins nýja flokks, sem enginn kann að nefna. Ritstjórar eru Einar Olgeirsson og Sigfús Sigurhjart- arson. Brynjólfur Bjarnason tilkynnir þar, að Kommúnista- flokkurinn sé lagður niður. í Alþýðublaðinu er hinn nýi flokkur kallaður S. A.-flokkur- inn, sem mun eiga að vera skammstöfun fyrir: Sameining- arflokkur Alþýðu. En sú skamm- stöfun er líka þekkt í Þýzka- landi, eins og kunnugt er.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.