Tíminn - 01.11.1938, Qupperneq 4

Tíminn - 01.11.1938, Qupperneq 4
240 TtMIM, þrtgjudaginn 1. nóv. 1938, 60. blað Einn frœgasti œfintýramadur veraldar, Hubert Wilkins, varð nýlega fimmtugur. Hann er ást- ralskur að uppruna. Hann hœtti háskólanámi í miðjum klíðum og varð stríðsfréttaritari hjá enska stórblaðinu „Morning Post“ l Balkanstyrjöldinni. Hann náði hvað eftir annað svo góðum myndum af vígstöðvunum, að undrum þótti sœta. Urðu þessar myndatökur til þess að hann var ráðinn sem Ijósmyndari í hinn frœga norðurleiðangur Vil- hjálms Stefánssonar 1913—17. Sýndi hann þar svo mikinn dugnað, að hann varð brátt einn af helztu mönnum leíðangurs- ins. Þegar hann kom úr leið- angrinum, gerðist hann flug- maður í enska hernum og fékkst einkum við myndatökur af víg- stöðvum óvinanna. Var það hœttulegt starf og munaði oft litlu, að flugvél hans vœri ekki skotin niður. 1919 reyndi hann að fljúga frá Englandi til Ástra- líu, en misheppnaðist. Næstu ár tók hann þátt í ýmsum leiðangr- um til Suðurheimskautsins. Ár- in 1926 og 1927 gerði hann mis- heppnaðar tilraunir til að fljúga frá Alaska yfir norðurheim- skautið. Honum heppnaðist það loksins i apríl 1928. Flaug hann frá Point Barrow í Alaska til Spitsbergen á 20 klst. og 20 mín. Síðan hefir hann tekið þátt í nokkrum flugleiðöngrum til suð- urheimskautsins. Á seinustu ár- um hefir verið mest um hann rætt í sambandi við fyrirhugaða tilraun hans til að fara undir ís- breiðuna á norðurpólnum i kaf- bát. Hann hefir enn ekki getað framkvœmt þessa hugmynd, vegna fjárhagsörðugleika, en nú hefir ráðizt fram úr þeim og er afráðið að tilraun þessi verði gerð nœsta sumar. * * * Hér fara á eftir ummœli þriggja heimsfrægra rithöfunda, sem lýsa viðhorfi þeirra til ást- arinnar og tilhugalífsins: — Starfaðu eins og lif þitt vœri eilíft. Elskaðu, eins og þú ættir að deyja í dag. — Seneca. — Þegar maður verður ást- fanginn, byrjar maður á því, að táldraga sjálfan sig og endar með þvi að táldraga aðra. — Os- car Wilde. — Þegar maður ber upp bón- orðið, fleygir hann sér fyrir fœt- ur stúlkunnar, sem hann elskar. Hann hugsar ekki um það þá, að þessir sömu fætur munu hér eft- ir troða á honum til dauðadags. — Anatole France. * * * í árbókum Espólíns segir svo frá vorinu 1508: „Var þetta vor hart til matfanga með almenn- ingi, en fuglanet var uppspennt og stóð í stilli á páskum. En á páskadag sjálfan var Ögmundi presti (siðar biskupi í Skálholti) sagt til að fuglinn vœrí kominn í látrið. Prestur bannaði að slá hann, sagði að nú vœri lífgun- dagur, en ei dauða. Kýr var yxna í fjósí, hún sleit síg upp, og hljóp tJR BÆmiM Félag ungra Framsóknarmanna heldur aðalfund sinn í Sambands- húsinu í kvöld. Fundurinn hefst kl. 8,30. í fundarbyrjun fer fram inntaka nýrra meðlima. Formaður félagsins og gjaldkeri gera grein fyrir störfum félagsins og fjárhag, og síðan fer fram kosning í stjórn og til fulltrúa- ráðs Framsóknarfélaganna í Reykja- vík. Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur aðalfund sinn í Sambands- húsinu á fimmtudagskvöldið og hefst hann klukkan 8,30. Venjuleg aðalfund- arstörf, svo sem stjómarkosning, kosn- ing í fulltrúaráð Framsóknarfélag- anna o. s. frv. Listsýning. Sveinn Þórarinsson listmálari og kona hans, Agnete Karen Þórarins- son, opnuðu listsýningu í Markaðsskál- anum á laugardaginn var. Sýningin er opin kl. 10—9 daglega. Óskar Jónsson verkstjóri í Eddu prentsmiðju er 45 ára á morgun. Áskriftalistum að úrvalsritgerðum Jónasar Jónsson- ar óskast skilað bráðlega. Nýir áskrif- endur snúi sér til afgreiðslu Timans eða skrifi til Jóns Helgasonar, póst- hólf 961, Reykjavík. Menningar- og fræðslusamband alþýðu, sem er einn þátturinn í starfsemi Alþýðusambands íslands, munu gefa gefa út fjórar bækur í haust samkv. auglýsingu hér í blaðinu f. m. Eru það Svartfugl eftir Gunnar Gunnars- son, Sælueyjan eftir August Strind- berg, báðar þýddar af Magnúsi Ás- geirssyni, Lönd og ríki eftir J. F. Horrabein og Verklýðsshreyfing nú- tímans eftir Finn Moe. Bækurnar eiga að kosta 8 kr. Tíminn hefir verið beðinn að geta þess að pantanir eigi að sendast til Menningar- og fræðslu- sambands alþýðu, Alþýðuhúsinu, Reykjavik. Ignaz Friedman heldur kveðjuhljómleika í Gamla Bíó kl. 7,15 í kvöld. Gestir í bænum. Runólfur Sveinsson skólastjóri á Hvanneyri, Stefán Sigurgeirsson bóndi í Hvammi í Hjaltadal, Ólafur Sveins- son í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum. Athygli skal vakin á auglýsingu á 3. síðu blaðsins f dag um verðlækkun á for- lags- og umboðssölubókum Acta h.f. út, hingað og þangað um grund- irnar, og snerti með fœtinum nettogið; hljóp þá upp net- stöngin svo netið slóst yfir fugl- inn, nœr þrjú hundruð að tölu; var hann þá tekinn að boði prests og borinn inn í stofu og geymdur fram yfir miðdégi á mánudag, en síðan sleginn og skiptur meðal fólksins; var það orðtak eftir Ögmundi biskup síðan, að þá skal taka gæs er gefst, kvað hann slíkt vera jarð- teikn af Guði að bjarga mönnum svo furðanlega. Mörgœsir koma jafnan á vorum í stórhópum, af hafi á land eystra, og eru þá mjög spakar nokkra daga, sem þreyttar séu af löngu flugi, og þá vorkuldar eru og nœðingar, knappast þœr mjög þétt við vötn eða vermsli, og er þá auð- veldast að spretta yfir þœr neti“. Ögmundur var um þetta leyti prestur að Breiðabólstað í Fljóts hlíð. 78 Andreas Poltzer: Patricía Auglýsing um dráttarvextí. Samkvæmi ákvæðum 45. gr. laga nr. 6, 9. jan. 1935 og úrskurði samkvæmi iéðrl laga- grein falla dráitarvcxtir á allan tekjju- og eignaskatt, sem féll í gjalddaga á manntals- þingi Reykjavíkur 31. ágúst 1938 og ekki hef- ir verið greiddur í síðasta lagi ÍIIM 9. ÁÓV- EMBER NÆSTROMMDI. - A það, sem greitt verður eftir þann dag, falla dráttarvexthir frá 31. ágúst 1938 að telja. Þetta er birt til leiðbeiningar öllum þeim, sem lilut eiga að máli. Tollstjórinn í Reykjavík, 31. október 1938. «Fón lleriiisiiinssoii. MINNIN G ARRIT Jóns Raldvinssonar forscta fæst á eftirtöldum stöðum: SKRIFSTOFUM: Alþýðusambands íslands, Sjómannafélags Reykjavíkur, Verkakvennafélagsins Framsókn, Alþýðubrauðgerðarinnar, Alþýðublaðsins. Á sömu stöðum eru afgreidd minningarspjöld Minningarsjóðs Jóns Baldvinssonar forseta og tekið á móti gjöfum til sjóðsins. Erlendar fréttir (Framhald af 1. síðu.) að hætta öllu samstarfi við kommúnista. Var það síðara til- laga frá Daladier sjálfum, en hann taldi ekki unnt að vinna áfram með kommúnistum vegna stefnu þeirra í fjármálum. Það var Daladier, sem upphaflega fékk því til leiðar komið gegn vilja Herriot, að radikala flokk- urinn hóf samvinnu við kom- múnista. Franska þingið kemur saman 15. þ. m. Það er talið, að utan- ríkismálastefna stjórnarinnar hafi nægilegt þingfylgi, en vafa- samt hvort Daladier fær meira- hluta þingsins til að fallast á tillögur sínar um viðreisn fjár- hagsins og atvinnulífsins. Tak- ist honum það ekki, þykir lík- legt, að hann muni efna til kosninga. í helztu nýlendunum, sem áð- ur voru eign Þjóðverja, Tanga- nyika og Suðvestur-Afríku, hafa verið haldnir fjölmennir fundir til að mótmæla afhendingu þeirra til Þjóðverja. Goebbels hefir nýlega flutt ræðu og sagt að Þjóðverjar myndu fylgja nákvæmlega á- ætlunum Hitlers í „Mein Kampf“. Við munum sækja fram, sagði hann, með „Mein Kampf“ í annari hendinni og sverðið í hinni. — Hér í blaðinu hefir nýlega verið skýrt frá fyrirætlun Hitlers í „Mein Kampf“ 79 - Kaup og sala - Ullarefni og silki, margar tegundir. BLÚSSUR, KJÓLAR o. fl. nýkomið. SAUMASTOFAN UPPSÖLUM. Sími 2744. 9Giillfoss‘ fer ankaferð til Stykk- isbólms væntanlega á fimmtudagskvöld. svaraði Patricia. Henni tókst einnig að tala látlaust og rólega. * * * Sir William lögreglustjóri var óánægð- ur. Hann kallaði Duffy og Whinstone inn til sín. — Jæja, herrar mínir, hafið þið upp- götvað nokkuð nýtt? var það fyrsta, sem hann sagði, er þeir komu inn. Þetta var málamyndarspurning, því að auðvitað vissi Sir William allt um rannsóknir þær, sem fram höfðu farið útaf hvarfi hins horfna lávarðar. Duffy og Whinstone vissu það, og svör- uðu ekki. — Þið vitið, að ég er ekkert hrifinn af frönsku aðferðinni, hélt lögreglustjór- inn áfram. En úr því að við komumst ekki úr sporunum, er rétt að við, aldrei þessu vant, reynum að skapa okkur mynd af þessu tilfelli Kingsley lávarðs. Þér hafið orðið, Duffy yfirfulltrúi. Þó Duffy virtist þunglamalegur sili við fyrstu sýn, spratt hann fimlega upp úr stólnum sínum, gekk hvatlega fram og aftur um gólfið, en þó svo létt, að fótatakið heyrðist varla, og settist svo á stólinn aftur. Sir William og Whinstone fulltrúi, sem þekktu þennan ávana Duf- fys, biðu þolinmóðir þangað til Duffy tók til máls. — Sir William, sagði Duffy loksins, að minni skoðun hefir Meller, eða ef þér viljið heldur kalla hann Ortega — senni- lega heitir hann hvorugu nafninu — numið lávarðinn á burt. Eða gert út af við hann fyrir fullt og allt! Jafnvel þó að það síðara sé tæplega eins líklegt. Ég get hugsað mér, að þetta hafi gerzt þannig: — Ortega tekst með einhverju móti að fá Kingsley lávarð til þess, að láta allt vinnufólkið sitt fara að heiman þetta kvöld. Síðan kemur Ortega með sína skó- sveina. Þeir neyða lávarðinn til að fara með sér. Af einhverri ástæðu verður Or- tega að verða eftir. Hann sér ungfrú Holm koma inn — hún álpaðist þarna inn af tilviljun. Hann felur sig og hverf- ur rétt á eftir, meðan ungfrú Holm er í hinum endanum á húsinu. Hann gefur sér ekki einu sinni tíma til að opna dyrnar, sem ungfrú Holm hefir skellt í á eftir sér, fyrr en seinna, að hann lýkur þeim upp. Þetta g.erir hann máske með vilja, því að hann vill ekki, að stúlkan sé læst inni í húsinu. Hann hefir þekkt Patriciu og veit að hún er barnabarn lá- varðarins, því að hann hlýtur að hafa talað við hana fyrir hönd lávarðarins áður, eða að minnsta kosti hefir hann séð hana áður. Aðalfundnr Framsóknarfélags Reykjavíkur verður haldinn n. k. fimmtu- dagskvöld kl. 8y2 í Sambands- húsinu. STJÓRNIN. SVAR til Héðins Valdimarssonar. Vegna ummæla þeirra, sem Héðinn Valdimarsson viðhefur í ritgerð sinni „Skuldaskil Jón- asar Jónssonar við sósíalism- ann“ í Nýju landi 14. okt. sl. um afstöðu mína og fleiri Fram- sóknarþingmanna til hins svo- kallaða geðveikismáls, vil ég taka þetta fram: H. V. var einu sinni á opinberum fundi þar sem ég einnig var staddur — með dylgjur svipaðar þessum. Ég svaraði honum þá, að þetta væru ósannindi, sögð gegn betri vitund. H. V. mótmælti því ekki þá. Þetta sama svar endurtek ég nú. Bjarni Ásgeirsson. ►gamla Bíótmmmmtn Lðgtak hjá ungfrúnni Bráðskemmtileg og spennandi amerísk gamanmynd, gerð eftir leikriti H. M. HARWOOD. — Aðalhlutverkin leika hinir glæsi- legu leikarar JEAN HARLOW og ROBERT TAYLOR. tNÝJA BÍÓ I MANHATTAIV COCKTAIL (Vogues 1938). Afburða skrautleg og skemmti- leg amerísk tískumynd með tiskuhljómlist tízkusöngvum, og tízkukvenklæðnaði af öllum gerðum og í öllum regnbogans litum Aðalhlutverkin leika: JOAN BENNETT og WARNER BAXTER. EilsitWMllllMilkin sem fórst fyrír þ. 26. f. m. vegna veikinda, verður í Gamla Bíó Á MORGUN (mídvíkudag) kl. 7 síddegis. Bifreiðarafóevmar -- Viðtækiarafgevmar. ACCUMULATOREN-FABRIK, DR. TH. S0NNENCHEIN. Kaupiim tómar ílósknr og bökunardropaglös með skrúfaðri hettu pessa viku. w Afengísverzlun ríkísins. Míðstj. Framsóknarflokksíns heldur fund í Edduhúsinu kl. 5 á morgun (miðvikudag). Eysteinn Jónsson. Herniunn Jónasson. f ÚTBREIÐIÐ TÍMANNf

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.