Tíminn - 03.11.1938, Side 4
244
TlMIIVIV, fimmtudagiim 3. nóv. 1938
61. blað
Jarðarför mannsins míns, Gríms Jóns-
sonar frá Þorlákshöfn, fer fram frá Dóm-
kirkjunni laugardaginn 5. þ. m. og hcfst
að heimili okkar, Laugaveg 124, kl. 1 e. h.
Sæunn Jónsdóttir.
Kaupum tómar ílöskur
og bökunardropaglös með skrúfaðrí hettu
þessa víku.
Áiengisverzlun ríkisins.
Húðir og skinn.
Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar
HÚÐIR og SKIIXIV, sem falla til á heimilum
þeirra, ættu þeir að biðja KAUPFÉLAG sitt
að koma þessum vörum í verð. — S VIHI5AÍVH
ISL. SAMVEVtVUFÉLAGA selur AAUTGItlPA-
HÚÐIR, HROSSHÚÐIR, KALFSKINN, LAMR-
SKIW og SFLSKIM til útlanda OG KAUPIR
ÞFSSAR VÖRUR TBL SÚTU3VAR. - NAUT-
GRIPAHÚÐIR, HROSSHÚÐIR og KÁLFSKIIVIV
er bezt að salta, en gera verður það strax að
lokinni slátrun. Fláningu verður að vanda
sem bezt og þvo óhreinindi og blóð af skinn-
unum, bæði úr holdrosa og hári, áður en salt-
að er. Góð og hreinleg meðferð, á þessum
vörum sem öðrum, borgar sig.
Daladíer forsœtisráðh. Frakka
er 54 ára gamall. Hann er bak-
arasonur, alinn upp í smábce í
Suður-Frakklandi. Hann sökkti
sér svo niður í stjórnmál á unga
aldri, að hann vanrœkti nám
sitt. Féll hann því við stúdents-
próf, þegar hann reyndi að taka
það í fyrsta sinn. Á unglingsár-
um sinum var hann sósíalisti og
mikill aðdáandi Karl Marx.
Hann skípti þó flfótlega um
skoðun og gekk í radikalaflokk-
inn. Á háskólaárum sínum naut
hann um tíma tilsagnar Herriots
og varð fyrir miklum áhrifum
frá honum. Hafa þeir verið góðir
vinir síðan, þó ekki hafi þeir
allt af verið sammála. Þeir eru
nú aðalforingjar radikalaflokks-
ins.
Daladier var hermaður á
styrjaldaráruum og gat sér góð-
á<n orðstýr.
Hann varð ráðherra í fyrsta
sinn 1924. Varð þá nýlendumála-
ráðherra. Síðan hefir hann
gegnt mörgum ráðherraembœtt-
um. Forscetisráðherra hefir hann
verið þrisvar sinnum, í fyrsta
sinn 31. jan. 1933 eða degi síðar
en Hitler kom til valda i Þýzka-
landi.
Daladier hefir verið orðlagð-
ur fyrir tvennt: Hann talar yf-
irleitt lítið og hefir því oft verið
nefndur hinn þögli. En þegar
hann byrjar að tala, einkum við
ókunnuga, spyr hann þá spjör-
unum úr og kvarta blaðamenn
undan þvi, að þeir komizt iðu-
lega ekki að með sínar spurn-
ingar fyrir spurningum hans.
Daladier er maður þrekvaxinn
og hinn myndarlegasti á velli.
Jafnt samherjar sem andstœð-
ingar viðurkenna, að hann hafi
meira starfsþrek en flestir menn
aðrir. Hann er manna rólynd-
astur og hefir það oft komið
honum að góðum notum.
* * 4=
/ skýrslum frá spönsku stjórn-
inni segir að í 552 loftárásum á
24 spánskar borgir hafi 3662
manns verið drepnir. í þessum
árásum var alls varpað niður
12.704 spregjur.
* * *
Eftirfarandi atburður gerðist
1453: „Var abbadís Þóra að Stað
í Reyninesi. Voru þá fangaðir
18 þjófar eður ránsmenn fyrir
vestan Staðaröxl, sem síðan er
kallaður Þjófahellir; höfðu þeir
rcent konum og píkum, týgjum
og vopnum, og báru í hellirinn,
en smalamaður á Reynistað
komst í hellirinn, sem þeir
sváfu, og bar frá þeim öll vopn
og sagði til þeirra. Tóku sig sam-
an sveitarmenn, margt lið, og
fönguðu þá og höfðu heim til
Staðar, og geymdu þá í þrjár
nœtur, á meðan þingað var, og
síðan voru þeir hengdir 17 þar
sunnan á í gilinu; heitir þar af
Dysjagil, en hinn 18. af þeim
fékk líf; hann var 18 vetra að
aldri, og höfðu þeir hrœtt hann
til með þeim að vera að ránum
og þjófnaði“. (Skarðsárannáll).
ÚR BÆIVUM
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn í kvöld í Sam-
bandshúsinu. Hefst kl. 8,30. Fyrir
fundinum liggja venjuleg aðalfundar-
störf, kosning stjómar, kosningar til
fulltrúaráðs o. s. frv.
Bíóin.
Á Gamla Bíó er um þessar mundir
sýnd skemmtimynd, sem nefnist: Lög-
tak hjá ungfrúnni. Er mjöo- létt yfir
þessari mynd, en efnið að sönnu lít-
ið. Á Nýja Bíó er sýnd skrautleg lit-
mynd, sem hefir inni að halda mikið
af íburðarríkum tízkusýningum.
Jórunn Bjarnadóttir
yfirhjúkrunarkona á Kleppi andað-
ist í Landsspítalanum 31. október.
Gestir í bænum.
Sveinn Guðmundsson kaupmaður í
Vestmannaeyjum, Helgi Thorlacius
bóndi á Tjörn á Vatnsnesi, Óskar 111-
ugason í Reykjahlíð í Mývatnssveit,
Gestur Jónasson í Álftagerði í Mý-
vatnssveit, Kristján Þórhallsson í
Vogum í Mývatnssveit, Sigursveinn
Sveinsson, Fossi í Mýrdal, Guðlaugur
Ólafsson, bóndi Guðnastöðum, Land-
evjum, Guðni Gíslason, bóndi, Lundi,
Landeyjum, Pétur Benteinsson á Drag-
hálsi í Svínadal.
Fátækramálfn.
(Framhald af 1. slðu.)
um og óreglumönnum, sem ekki
nenna að vinna.
4. Að því er mjög illa varið til
þess að gefa með ýmsum þuTfa-
mönnum, sem mætti koma fyrir
þar, sem það væri bænum ódýr-
ara og færi þó betur um þurfa-
mennina".
Greinarhöf. víkur síðan að
þeim úrræðum, sem hann telur
að myndu bæta úr ágöllunum.
Nefnir hann m. a. þessi úrræði:
„Með því að innheimta með
harðri hendi styrk þann, sem
bæjarsjóður hefir orðið að
greiða með konum og börnum
þeirra, sem hlaupið hafa frá
skyldu sinni og vinna fyrir góðu
kaupi, sem þeir eyða venju-
lega í óreglu.
Með því að láta slæpingjana
vinna af sér það, sem bæjar-
sjóður hefir orðið að greiða,
annaðhvort með þeim sjálfum
eða öðrum, sem þessir slæpingj-
ar hafa átt að sjá fyrir að lög-
um“.
Telur greinarhöf. að m. a. sé
hægt að láta slíka þurfamenn
vinna við ræktunaryinnu í
bæjarlandinu.
í lok greinarinnar kemst hann
m. a. svo að orði:
„Hvernig getur nokkur bæjar-
stjórn staðið sig við, að horfa á
fátækraframfærið í Reykjavík
tvöfaldast á 5 einna mestu góð-
ærisárunum, án þess að hafist
sé handa þegar í stað og gert
allt, sem í mannlegu valdi stend
ur til að ráða bót á þessu á-
standi? Hafa menn íhugað
hvemig fer með fátækrafram-
færið hér i bænum, ef harðnar
í ári eitt eða tvö ár, þar sem það
er alltaf að vaxa á góðærisár-
unum?“
í framhaldi greinarinnar
verða afskipti ETamsóknar-
flokksins af þessum málum
nánar rakin.
Isfisksalan.
(Framhald af 1. síðu.)
tali 1058 vættir og meðal verðið,
sem þeir fengu 854 sterlings-
pund. En á þessu ári er afla-
magn hvers togara 1448 vættir,
og meðalverð eftir veiðiför 1263
sterlingspund. Hefir þvi meðal-
verðið orðið 409 sterlingspund-
um hærra nú en þá, en það
liggur aðallega í því, hvað afla-
magnið í hverri ferð hefir verið
meira í ár, því verðið hefir ekki
hækkað nema úr 16 í 17 shill-
ing á vætt.
í ísl. krónum nemur öll ís-
fisksala á þrem síðustu mán-
uðum ca. 1,9 millj. króna, á
móti ca. 1.6 millj. á sama tíma
í fyrra. En veiðiferðirnar í ár
eru 64 á móti 48 í fyrra.
Rykírakkar
nýkomnir.
Smckklegt úrval.
VIMUFATA &
S J ÓKLÆÐ ABÚÐKV
Hafnarstræti 15. Sími 2329.
Skrifstofu- og verzlunarfólk!
Drekkið morgun- og eftrimið-
dagskaffið í hinum vistlegu og
björtu sölum Oddfellowhússins.
— Kaffi með pönnukökum og
mörgum öðrum kökutegundum.
Mánaðarfæffi. — Vikufæffi.
Lausar máltíffir frá kr. 1.25.
Aðalfnndnr
Árnesingafélagsins verður næst-
komandi föstudag, 4. nóv., kl. 9
síðd. í Oddfellowhúsinu, uppi.
STJÓRNIN.
HÚS :
Nýtízku steinhús af ýmsum
gerðum til sölu. Ennfremur mik-
ið úrval af eldri húsum. Hús
tekin í umboðssölu.
HARALDUR GUÐMUNDSSON
Símar: 5415 Hafnarstr. 15.
5414 heima.
TRÚLOFUNARHRINGAR, sem
æfilán fylgir, sendir gegn póst-
kröfu, hvert á land, sem er. —
Sendið nákvæmt mál.
SIGURÞÓR,
Hafnarstræti 4, Reykjavík.
82 Andreas Poltzer:
bendingar um málið. Að minnsta kosti
eru einhverjir í spilinu, sem hafa áhuga
á því, að andlátsfregnin verði ekki hljóð-
bær fyrst um sinn. Ástæðurnar til þess
virðast vera svo aðkallandi, að jafnvel
Kingsley lávarður, sem auðvitað hlaut
að fá frétt um andlát sonar síns, beygði
sig fyrir þeim.
En þetta útilokaði hinsvegar ekki, að
ritari hans, vinur okkar, Ortega, kæmist
á snoðir um andlátið. Það þurfti ekki til,
að lávarðurinn segði honum það sjálfur.
Maður eins og Ortega vílar ekki fyrir
sér að opna annarra bréf eða annarra
skrifborðsskúffur.
Það er ekki enn fengin skýring á þvi,
hversvegna hann lagði kapp á að giftast
ungfrú Holm, erfingja þessara stóreigna,
svo óviðbúið og á svo einkennilegan hátt.
En hann hefir eflaust haft sinar á-
stæður til þess. Menn af sama tagi og
Ortega, hefðu eflaust fundið ráð til þess
að gera slíkt hjónaband löglegt og óað-
finnanlegt. Heldur en ekkert hefði hann
getað sagt, að ungfrú Holm ásakaði hann
um að hafa neytt sig til að giftast, í
hefndarskyni.
Og með því að presturinn, sem átti að
gefa þau saman, og svaramennirnir,
voru handbendi Ortega, þá mundu þeir
allir hafa vitnað með honum. Því miður
Patricia 83
hefir okkur ekki tekizt ennþá, að fá
neitt sem gagn er í, upp úr þessum
mönnum, sem teknir hafa verið fastir.
Þeir standa á því fastar en fótunum, að
Ortega hafi ekkert sagt þeim um fyrir-
ætlanir sínar. Það er Ortega, sem hefir
ráðninguna á gátunni; ef við náum í
hann, þá fáum við um leið að vita um
örlög Kingsley lávarðar.
Duffy yfirfulltrúi stóð upp, gekk út
að glugganum, sneri aftur að stólnum
sínum og settist.
— Þetta er nú mín skoðun á málinu,
sagði hann.
— En hvaða skýringu hafið þér á þess-
ari næturheimsókn, sem ungfrú Holm
fékk? spurði lögreglustjórinn.
— Ég held, að þessi heimsókn standi
ekki í neinu sambandi við Kingsleymálið.
Maðurinn var þjófur, svokölluð gistihús.
rotta, sem stal þar sem hann komst
höndum undir.
Sir William sneri sér nú að Whinstone
fulltrúi, sem hafði hlustað þegjandi á
skýringar starfsbróður síns.
— Jæja, eruð þér sammála áliti yfir-
fulltrúans, Whinstone?
— Því miður get ég ekki verið sammála
Duffy yfirfulltrúa í ýmsum mikilsverð-
um atriðum, sagði Whinstone hægt.
— Það kann að vera, að Duffy yfirfull-
(JAJVLLA iiID *i*i+n+*iiiiiiii iÍ T mm m f í! i MAIVIIATTAV
|j L o g t a k | COCKTAIL
B hjá ungfrúnni | (Vogues 1938). jj
|| ♦♦ jj Afburða skrautleg og skemmti- jj
Bráðskemmtlleg og spennandi 8 leg amerísk tískumynd með jj
jj amerísk gamanmynd, gerð eftir n jj tískuhljómlist tízkusöngvum, og B
jj leikriti H. M. HARWOOD. — S jj tízkukvenklæðnaði af öllum jj
1 ** p gerðum og í öllum regnbogans jj
| Aðalhlutverkin leika hinir glæsi- Ij p litum jj
| legu leikarar j| Aðalhlutverkin leika: a
JEAN HARLOW og JOAN BENNETT Og 5!
:: ROBERT TAYLOR. ♦♦ ll ' ^ ^ 8 WARNER BAXTER. |
Á morgun er síðastí end-
urnýjunardagur í 9. fl.
Happdrættið.
Góðbrauð
fyrir litla aura. Allar vörur búnar til úr beztu
fáanlegum efnum. Fingöngu fagmenn að verki.
Hremleg’ búð. — Lipwr afgreiðsla.
Hverjir hafa efni á að kanpa annarsstaðar?
Sparið peninga, verzlið við okkur.
Nveinabakaríið
Frakkastíg 14. Simi 3727.
(Aðnr Theódúr Magnússon). Útsala Vitast. 14.
Reykjavík. Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag.
Mðnrsuðuverksmiðja. — Bjúgnagerð.
Reykhús. — Frystihús.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niffursoffiff kjöt
og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og allskonar áskurff á brauff,
mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði. Frosiff kjöt
allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir fyllstu nútíma-
kröfum.
Ostar og smjör frá Mjólknrbúi Flóamanna.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um
allt land.
ÚTBREIÐIÐ TfMANN