Tíminn - 12.11.1938, Qupperneq 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
Edduhúsi, Lindargötu 1D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA,
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
Edduhúsi, Lindargötu 1 D.
Sími: 2323.
Prentsmiðjan Edda h.f.
Símar: 3948 og 3720.
22. árg.
Reykjavík, laugardagiim 12. nóv. 1938
65. blað
Tuttngu ára f ullveldt Islamls
Tílkyniaíng frá ríkíssijórnsnni um
hátíðahöldín 1. des. n.k.
Starfsemi Ferða-
félags Islands
Félagið hefár byggt tvö
sæluhus í sumar
í Ferðafélagi íslands eru nú
um 2200 meðlimir og hefir þeim
fjölgað jafnt og þétt frá þvi, að
félagið var stofnað fyrir eliefu
árum. Þátttaka í ferðalögum
þess hefir einnig farið stöðugt
vaxandi.
Félagið á nú þrjú sæluhús, öll
mjög vönduð. Hið elzta er í
Hvítárnesi við Hvítárvatn, er þar
rúm fyrir um 40 manns. Á síð-
asta ári hafa um 1000 manns
ritað nöfn sín í gestabókina og
undanfarin ár hafa á annað
þúsund gesta komið þar á hverju
sumri. Á síðastliðnu sumri voru
fullgerð sæluhús á Hveravöllum,
þar sem rúm eru fyrir 30 manns,
og í Árskarði í Kerlingarfjöll-
um, þar sem 18 manns geta kom-
izt í rúm í einu. Sæluhúsið á
Hveravöllum er upphitað með
hveravatni og á næsta sumri er
fyrirhugað að byggja þar sund-
laug. Öllum er heimil gisting í
húsum félagsins meðan húsrúm
leyfir.
Á næstu árum er ráðgert, að
íélagið snúi sér að því að byggja
lítil sæluhús, sem ætluð séu
göngumönnum. Verða þau fyrstu
liklega reist í Þjófadölum, norð-
austan í Langjökli, og í Fljóts-
drögum, þar sem upptök Norð-
lingafljóts eru.
Árbók gefur félagið út og hafa
félagsgjöldin að miklu leyti
runnið til hennar, en þau eru 5
krónur fyrir mann á ári. Síðasta
árbók fjallaði um Eyjafjörð, en
á næsta ári er fyrirhugað að
helga hana Flj ótsdalshéraði.
Félagsmenn fá árbókina endur-
gj aldslaust.
Auk félagsgjaldanna hefir fé-
lagið haft 1000 kr. styrk frá bæj-
arsjóði tvö undanfarin ár og
notið nokkurs fjárstyrks frá
ýmsum velunnurum sinum. Þá
hefir félagið haldið árlega
hlutaveltu seinustu árin og
hagnazt talsvert á þeim. Að
þessu sinni heldur það hluta-
veltu sína á morgun í K. R.-
húsinu.
Stjórn félagsins skipa: Geir
Zoega vegamálastjóri (forseti),
Steinþór Sigurðsson magister,
Jón Eyþórsson veðurfræðingur,
Kristján Ó. Skagfjörð kaupmað-
ur og Pálmi Hannesson rektor.
Eínræði
í Tékkoslovakíu
Tékkneska stjórnin hefir á-
kveðið að bjóða Chvalkowsky
utanríkisráðherra fram sem for-
setaefni ríkisins og verða ekki
önnur framboð leyfð. Jafnframt
hefir verið ákveðið að leysa upp
alla stjórnmálaflokka og leyfa
aðeins einn „einingarflokk“
bæði meðal Tékka og Slovaka.
Margir stjórnmálaflokkarnir
hafa fyrir nokkru boðizt til þess
að leggja samtök sín niður og
ganga í einn „einingarflokk“.
Var það flokkur dr. Benezar,
sem fyrst reið á vaðið í þessum.
efnum.
Þessar' ráðstafanir sýna ljós-
lega, hversu Tékkar telja sig
skuldbundna til að hlíta fyrir-
mælum Þjóðverja og ítala, því
þeir hafa fengið orð fyrir að
vera ein lýðræðissinnaðasta
þjóð í heimi og hefðu því ekki
gripið til slíkra ráða ótilkvaddir.
Chalkowsky, sem nú verður
forseti, var áður sendiherra
Tékka í Róm. Hann er talinn
hafa verið að ýmsu leyti and-
vígur utanríkismálastefnu Be-
(Framh. á 4. síðu.J
T í m a n u m hefir borizt
eftirfarandi tilkynning frá
ríkisstjórninni um hátíða-
hald 1. des. næstk. í tilefni
af 20 ára fullveldi íslands:
Samkvæmt tillögum nefndar
þeirrar, er ríkisstj órnin hefir
skipað til þess að gera tillögur
um, hvernig minnzt skuli 20 ára
fullveldis íslands hinn 1. dag
desembermánaðar næstkom-
andi og sem í eiga sæti fulltrúar
allra þingflokkanna, tilkynnir
ríkisstjórnin:
1. Ríkisstjórnin mælist til
þess, að fullveldisdagurinn verði
haldinn hátíðlegur, sem al-
mennur fridagur og að messað
verði í öllum kirkjum landsins í
tilefni dagsins.
2. Ríkisstjórnin óskar eftir því,
að héraðsstjórnir og félög gang-
ist fyrir hátíðahöldum þennan
dag.
3. Forsætisráðherra mun flytja
hátíðaræðu 1. des. kl. 1 e. h„ úr
salarkynnum ríkisútvarpsins.
4. Þess mun verða farið á leit
við formenn stjórnmálaflokka,
er fulltrúa eiga á Alþingi, að
þeir flytji stuttar ræður í sam-
bandi við hátíðahöld, er ríkisút-
varpið mun gangast fyrir að
kvöldi hins 1. des.
5. Jafnframt mun endurvarp-
að hér hálftíma dagskrá frá
Norður-Ameríku, samkvæmt ósk
Vestur-íslendinga og fyrir at-
beina ríkisstjórnarinnar. For-
sætisráðherra íslands mun
flytja ávarp til íslendinga vest-
an hafs. Verður því ávarpi end-
urvarpað um Norður-Ameríku.
6. Forsætisráðherra og frú
hans munu veita gestum mót-
töku í tilefni af fullveldisaf-
mælinu. Nánar mun verða skýrt
frá því i blöðunum.
7. Ráðstafanir hafa verið
gerðar til þess, að sendisveitum
og ræðismannaskrifstofum ís-
lands og Danmerkur erlendis
verði send gögn, svo sem bækur
og myndir, er veita fræðslu um
ísland og unnt er að láta í té
erlendum blöðum, er hafa hug
á að minnast 20 ára fullveldis-
afmælis íslands.
Fullveldisins
miiinst í Danmörku.
í tilefni af 20 ára afmæli
dansk-íslenzku sambandslag-
anna veröur sérstakri athöfn
útvarpað af danska útvarpinu
1. des. n. k. Athöfnin hefst kl. 17
eftir íslenzkum tíma og flytja
ræður Stauning forsætisráð-
herra og Sveinn Björnsson
sendiherra. Á eftir verður leik-
inn þjóðsöngur íslands. Siðan
spilar útvarpshljómsveitin ís-
lenzk lög og loks fer fram upp-
lestur úr íslenzkum bókmennt-
um.
íslendingafélagið í Kaup-
mannahöfn hefir ákveðið að
minnast dagsins með skemmti-
samkomu í húsakynnum iðn-
aðarmannafélagsins. Hefir Frið-
rik ríkiserfingi og Ingrid kona
hans lofað að koma þangað.
Nýjar ofsóknír gegn
Gyðingum í Þýzkalandí
Skáldkonan Pearl S. Buck, sem
fengið hefir bókmenntaverð-
laun Nobels 1938.
Síðastliðinn miðvikudag og
fimmtudag hafa Gyðingar orðið
fyrir miskunnarlausari ofsókn-
um i Þýzkalandi en nokkru sinni
fyr síðan nazistar komu til valda.
Var það haft að tilefni, að pólsk-
ur Gyðingur skaut þýzkan sendi-
sveitarmann, von Rath, til bana
í París.
Ofsóknirnar hófust í Mún-
chen, sem er einskonar höfuð-
borg nazismans, að kveldi mið-
vikudagsins. Réðust stórir hópar
manna á búðir Gyðinga í borg-
inni, brutu hurðir og glugga og
eyðilögðu vörur í stórum stíl.
Um líkt leyti var kveikt í bæna-
húsi, sem G-yðingar áttu. Jafn-
framt var byrjað að handsama
alla karlmenn á aldrinum 15—
60 ára og voru margir þeirra
hart leiknir.
Skömmu síðar hófust sams-
konar aðfarir í öðrum borgum
Þýzkalands. í Berlín hafa 9 af
11 bænahúsum Gyðinga þar
verið eyðilögð og allar verzlanir
þeirra mega heita í rústum. Er-
lendum blaðamönnum hefir ver-
ið bannað að taka myndir af
eyðilögðum húsum, en þeir segja,
að útlit margra þeirra sé líkast
því, að þau hafi orðið fyrir
sprengjuárás. Eftir þessar árás-
ir á verzlunarhús Gyðinga hafa
að jafnaði fylgt meiri og minni
rán, framin af hinum venjulega
óaldarlýð borganna. Alls er tal-
ið, að 26 bænahús Gyðinga í
Þýzkalandi hafi verið brennd og
eyðilögð þessa tvo daga. í mörg-
um borgum hafa Gyðingar ver-
ið handsamaðir í þúsundatali.
í Vínarborg einni hafa 10 þús.
rnanns verið teknir fastir og 22
Gyðingar þar hafa framið sjálfs..
morð síðan ofsóknir þessar byrj-
uðu.
Erlendum fréttariturum kem-
ur saman um það, að hér virðist
yfirleitt vera um skipulagðar
árásir að ræða, en þær séu ekki
gerðar a'f múgnum á götunum.
Fólkið, sem sé á ferð um göturn-
ar, láti þær afskiptalausar að
jafnaði og sýni árásarmönnun-
um enga samúð. Lögreglan hef-
ir ekkert gert til að hindra þetta
A. KROSSGÖTTJM
Dragnótaveiðarnar. — Refabú í Saurbænum. —
Frá Salthólmavík. — Úr Fnjóskadal. — Fiskirækt
--------------- á ísafirði.
Vesturlandsvegurinn. —
í Þistilfirði. — Minkabú
Dragnótabátar eru nú flestir hættir
veiðum. Þó eru enn nokkrir bátar á
veiðum við Breiðafjörð og í Garðsjó.
Afli hefir yfirleitt verið rýr og brugðizt
illa á sumum veiðistöðum, eins og t. d.
Ólafsvík og Skarðsvík. Veldur hinn rýri
afli því, hversu margir bátar eru hættir
veiðum, en heimilt er að nota drag-
nótina í landhelgi til 30. þ. m. Afla-
bresturinn hefir líka áhrif á útflutn-
inginn á frysta fiskinum. Mun hann
varla verða meiri en 1.650 þús. kr. í ár
og er það ekki nema ca. 200 þús. kr.
aukning frá í fyrra, þrátt fyrir mikið
aukna dragnótaútgerð og fjölgun
frystihúsanna. Mörg frystihúsin hafa
í sumar ekki fengið nema 60—70% af
því kolamagni, sem þau fengu í fyrra.
t t t
Markús Torfason bóndi í Ólafsdal
hefir sagt Timanum ýms tíðindi lír
byggðunum við sunnanverðan Gils-
fjörð. í einni sveit, Saurbænum,
hafa risið upp fjögur refabú, þar af
þrjú á þessu ári. Eru þau að Hvíta-
dal, Stórholti, Fagradal og Bjarna-
stöðum. Búið í Hvítadal er sameign
nokkurra manna, en hin munu ein-
stakír menn eiga. í ráði er að fimmta
refabúinu verði komið á laggimar nú
á næstunni. í búum þessum eru blá-
refir og silfurrefir og dálítið af Alaska-
refum.
t t t
Á undanförnum árurn hefir verið
unnið að ýmsum endurbótum á Vest-
urlandsveginum. Var í sumar varið um
5—6 þúsund krónum til upphleðslu
vegarins í Saurbænum og má þar nú
heita góður vegur. Milli Brekku og
Bessatungu er þó enn dálítill spölur,
sem eigi er enn lokið við að lagfæra,
en verður gert að sumri. Vegarstæðinu
hefir verið nokkuð breytt og er nú
ekki lengur farið yfir Hvolsá, sem áð-
ur gat verið farartálmi. í stað þess
er farið meðfram ánni og yfir vatns-
litla sprænu, Brekkuá, sem í ráði er
að brúa áður en langt um líður. Á
Svínadal, milli Saurbæjar og Hvamms-
sveitar, er vegur enn örðugur á köfl-
um.
t r r
í fyrrasumar reisti Kaupfélag Saur-
bæinga myndarlegt og vandað slátur-
hús við Salthólmavík. í sumar voru
byggðir bústaðir handa verkamönnum
kaupfélagsins til að hafast við i, þegar
vinna stendur yfir, einkum slátrun að
haustlaginu og uppskipun vara vor og
haust. í skýlum þessum eru svefnher-
bergi og eldhús. Geta 14—16 manns
búið þar í einu.
r r t
Úr Fnjóskadal er Tímanum skrifað:
Sumarið hefir verið meðalgott hér í
dalnum, bæði að því er við kemur
veðurlagi, nýtingu og magni heyja.
Vænleiki sauðfjár í betra lagi. Heimt-
ur aftur á móti mjög misjafnar, og
kenna menn þaö refum, er sloppið hafi
með yrðlinga úr grenjum á vestur-
hluta Bleiksmýrardals s. 1. vor. —
Byggt hefir verið á tveim bæjum hér
í dalnum í sumar, Þórðarstöðum og
Hrísgerði. Hús þessi eru lítil, en snotur,
sniðin við gjaldþol jarðanna.
r t t
Við Þistilfjörð í Norður-Þingeyjar-
sýslu var fyrir nokkrum árum stofnað
fiskiræktarfélag, og klakhús reist í
Flögu í Þistilfirði. Formaður félags-
ins er Jóhannes Ármann bóndi á
Gunnarsstöðum, en klakvörður Jó-
hannes Guðmundsson bóndi í Flögu.
Klakið er nú árlega fast að hálfri
milljón laxaseiða. Telja menn, að
fyrsti klaklaxinn hafi gengið í árnar
í sumar, sem leið. Veiðiár þær, er
klakið nær til, eru 5 talsins, Hafra-
lónsá, Laxá, Hölkná, Sandá og Sval-
barðsá. Lax til klaksins er aðallega
veiddur í Sandá. Fiskiræktarráðunaut-
urinn, Ólafur á Hellulandi, telur ár
þessar mjög álitlegar laxár. Reynt hefir
verið að leigja árnar út til stangar-
veiði, en aðalhindrun þess er sú, að
enn er eigi bílfært yfir Öxarfjarðar-
heiði. En óefað er hér um góðar stang-
arveiðiár að ræða.
Á síðastliðnu vori stofnuðu nokkrir
ísfirðingar með sér hlutafélag, sem
skyldi reka loðdýraeldi, einkum
minkarækt. Var minkagirðingu kom-
ið fyrir innan við Seljalandstún og í
lok septembermánaðar keypti félagið
90 dýr. Kostuðu hver tvö kvendýr og
eitt karldýr um 450 krónur.
Joseph Göbbels
framferði þeirra. Þykir það
styðja þann grun að árásirnar
séu gerðar af flokksbundnum
nazistum eftir fyrirskipunum frá
hærri stöðum.
Þýzk blöð hafa líka reynt að
ýta undir ofsóknirnar. Þannig
sagði t. d. blað Göbbels, Angriff:
„Hver einasti Gyðingur verður
látinn sæta ábyrgð fyrir morðið
á von Rath og fyrir hvaða móðg-
un eða tjón, sem þýzkur maður
verður fyrir af völdum Gyðinga,
hvar sem er í heiminum. Fyrir
allt slíkt verður hver einasti
einstaklingur Gyðingakynflokks
ins að borga miskunnarlaust.“ í
ræðu, sem Göbbels hélt á
fimmtudaginn, lét hann líka svo
um mælt að árásirnar væru eðli-
legt endurgjald fyrir morð von
Rath.
Vegna þess, hvað ofsóknirnar
hlutu harða dóma erlendis, taldi
þýzka stjórnin þó rétt að reyna
að stöðva þær og gaf út fyrir-
mæli á þá leið á fimmtudaginn.
Jafnframt lofaði hún að setja
strangari lög gegn Gyðingum.
Árásirnar héldu þó áfram lengi
eftir að þessi tilkynning var birt
og virðist það sýna, að stjórnin
hafi ekki látið sér mjög annt um
að framfylgja henni.
Þegar hafa verið sett ýms
strangari lög gegn Gyðingum.
Þeim er m. a. fyrirskipað að búa
í ákveðnum borgarhluta, þar
sem ekki er aðrir íbúar. Þeir
verða jafnframt að afhenda lög-
reglunni lykla að íbúðum sín-
um og verzlunum. í Múnchen
hafa þeir verið sviptir búsetu-
leyfi.
Utan Þýzkalands er talið að
atburðir þessir geti haft mjög
víðtækar afleiðingar, m. a. á
væntanlega samninga Breta og
Þjóðverja. Jafnvel helzta stuðn-
ingsblað Chamberlains, „Times“,
hefir krafizt mótmæla ensku
stjórnarinnar gegn þeim um-
mælum í blaði Göbbels að Chur-
chill, Duff Cooper o. fl. brezkir
stjórnmálamenn séu svipað inn-
rættir og Gyðingurinn, sem
skaut von Rath. Anthony Eden
hefir tilkynnt, að hann muni
gera fyrirspurnir til stjórnar-
innar, varðandi þessi mál, í
þinginu næstkomandi mánudag.
Aðrar fréttir.
Kemal Ataturk, sem verið
hefir forseti tyrkneska lýðveld-
isins síðan það var stofnað, lézt
síðastl. fimmtudag, 57 ára gam-
all. Undir stjórn hans hafa orð-
ið miklar framfarir í Tyrklandi
og má telja hann í röð allra
fremstu stjórnmálamanna á
þessari öld. Nánasti samverka'
maður hans, Ismes pasha, hefir
verið kjörinn forseti. Hann hef-
ir verið forsætisráðherra í 13 ár.
Ameríska skáldkonan, Pearl
Buck, hefir hlotið Nobelsverð
laun þessa árs. Hún er alin upp í
Kína, dvaldi síðan um skeið í
Ameríku, en flutti síðan aftur til
Kína og hefir verið þar lang-
dvölum. Þær sögur hennar, sem
(Framh. á 4. síBu.J
A víðavangi
í „Tidskrift for det norske
landbruk11 september-hefti, eru
birtar niðurstöður norskra bú-
reikninga í ýmsum hlutum
landsins árið 1936—37. Hefir
anharsvegar farið fram athug-
un á búskap á stórum og meðal-
stórum jörðum, hinsvegar á
smábýlum. Tilgreint er, hve
mörg bú lögð eru til grundvall-
ar útreikningunum í hverju til-
felli. * * *
Viðvíkjandi stórum og meðal-
stórum jörðum, er aðalniður-
staðan þessi: 87 jarðir í Austur-
Noregi renti að meðaltali 4,06%
af höfuðstólnum, 25 jarðir i
Þrændalögum 4,93%, 30 jarðir í
Vestur-Noregi 3,71%, 29 jarðir í
Suður-Noregi 3,42%, 5 jarðir í
Norður-Noregi 2,20% og 30 jarð-
ir í fjallasveitunum austanlands
3,50%. — Hér á landi telur bú-
reikningsskrifstofan, að búin
renti 4,50%—5,86% af höfuðstól.
* * *
Það er að heyra á Árna frá
Múla, að mikill munur sé á um-
tali Framsóknarmanna og Sjálf-
stæðismanna um andstæðinga
sína: Framsóknarmenn brigsli
sínum andstæðingum persónu-
lega um allar vammir og
skammir, en Sjálfstæðismenn
séu eins og „lamb það, er til
slátrunar er leitt“, hógværðin
ein og ljúfmennskan í garð
sinna andstæðinga! Heyr á
endemi! Er maðurinn frá Múla
búinn að gleyma þeim þrjú
hundruð sextíu og fimm per-
sónulegu svívlirðingar- og ill-
yrðagreinum, sem árlega birtust
í Mbl. um Jónas Jónsson frá
Hriflu meðan hann var foringi
í stjórnarandstöðu og síðar eftir
að hann varð ráðherra? Er hann
búinn að gleyma því, þegar í-
haldsblöðin sögðu að Pálmi
Loftsson hefði stolið fiski og að
Guðbrandur Magnússon væri
,rummungur“? Er hann búinn
að gleyma æðarkollu-ofsókninni
á hendur Hermanni Jónassyni?
Og minnist hann ekki lengur
þess, sem hann sjálfur hefir lát-
ið sér um munn fara um Eystein
Jónsson, að hann væri „óvinur
þjóðfélagsins" og gleddist yfir
fátæktinni í landinu? Eða þegar
Sigurður Kristj ánsson, sem síð-
ar var gerður að þingmanni og
framkvæmdastjóra hjá Sjálf-
stæðisflokknum kallaði bænd-
urna á flokksþingi Framsókn-
armanna óþveginn lýð með
„fiður í tötrunum og mosa í
skegginu“.? Þeir, sem svona
hafa „brúkað munn“, eru illa til
þess fallnir að kenna öðrum
kurteisi.
* * *
Mbl. birtir í dag grein, þar
sem farið er um það mörgum
og fjálgum orðurn, hve sam-
göngur við Austfirði séu slæm-
ar. Það er alveg rétt, að Aust-
urland er nú mjög illa sett að
þessu leyti. En í gær var í þessu
sama blaði, Morgunblaðinu,
ráðizt harkalega á ríkisstjórn-
ina fyrir það, að hún hefði fest
kaup á skipi til þess m. a. að
bæta úr samgönguþörf Aust-
fjarða. Blaðið sagði frá, að þessi
ráðstöfun stjórnarinnar væri
hneyksli, sem fyrir alla muni
þyrfti að hindra. Þannig eru
skrif Sjálfstæðisblaðanna nú,
eitt í dag og annað á morgun,
ábyrgðarlaust hjal til að reyna
að gera einhvern óánægðan.
* * *
Ritstjóri íslendings á Akureyri
á erfitt með að átta sig á grein-
argerð Tímans um skuldir og
skattamál á síðustu árum. Nið-
urstöður Tímans eru þó byggðar
á tölum, sem birtar voru jafn-
framt og enginn hefir reynt að
hrekja (tölur úr landsreikningi,
manntalstölur o. s. frv.). En
maðurinn við íslending þarf
ekki að vera hissa á því, þó að
þetta „standi öðruvísi“ í Mbl.
Hann hefði gott af því, að reyna
að kynna sér málin sjálfur, og
trúa ekki öllu, sem þeir segja
honum „fyrir sunnan.“
(Framh. á 4. síBu.)