Tíminn - 05.01.1939, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.01.1939, Blaðsíða 3
2. blað TDIIIVA. fimmtwdajgiim 5. jamiar 1939 7 HEIMILIÐ Heimilisidnaðair Inngangsorð. Á tímum eins og þeim, er við lifum á, verður þörfin á sjálfs- bjargarviðleitni einstaklinga og þjóða æ brýnni með hverju ári. Nauösynleg viðskiptahöft í sambandi við vaxandi skilning á menningarlegu og efnalegu sjálfstæði þjóðarinnar, hefir orðið þess valdandi, að á sein- ustu árum hefir risið upp hver iðnaðargreinin eftir aðra. Sömu orsakir liggja eflaust til grund- vallar fyrir vexti heimilisiðnað- arins í landinu, en eins og kunn- ugt er, hnignaði honum mjög á fyrstu tugum þessarar aldar, vegna þess, að hann gat ekki haldið áfram í þeirri mynd, sem hann var, eftir hina miklu byltingu í búnaðar- og lifnaðar- háttum þjóðarinnar, er þá varð. Nú er heimilisiðnaðurinn að rísa upp aftur, að nokkru í nýrri mynd og með nýjum vinnuað- ferðum, sem hinar breyttu kringumstæður hafa skapað og samlagað sér. Hinn nýi heim- ilisiðnaður hefir tekið hand- vélar í þjónustu sína, þar sem er spuna- og prjónavélin. Með þeim tækjum virðist spuna- og prjónaskap vel fyrir komið í bráðina, þó enn vanti mikið á, að þessar vélar séu nógu al- mennt notaðar, eða þær séu al- staðar notaðar af þeirri kunn- áttu, sem æskilegt væri. Ekki er heldur æskilegt, að þessar vélar útrými með öllu rokk- spuna og handprjóni, og mun að því vikið síðar hér í blaðinu. Uiii vefnað, hnignun lians og endurrcisn. Vefstóllinn er þriðja aðalá- hald íslenzks heimilisiðnaðar, en þó undarlegt sé, það áhald- ið, sem minnst mun notað. Virð- ist þetta því einkennilegra, sem vefstóllinn var einmitt það verkfærið, sem ekki þurfti um- skipta við, þó kringumstæður heimilanna breyttust. í fljótu bragði virðist því erfitt að átta sig á orsökunum til þess, að vefnaður lagðist niður almennt. Þær liggja sennilega ekki að- eins í fólksfækkun heimilanna eins og hnignun rokkspunans og handprjónsins, heldur mun það einnig eiga rót sína að rekja til þess, að um sama leyti tóku norsku ullarverksmiðjurn- ar að hafa umboðsmenn hér á landi, er höfðu vefnaðarvörur þeirra á boðstólum. Mun ýms- um hafa þótt „noxsku vaðmálin" fallegri en hin íslenzku heima- unnu og þótt fyrirhafnarminna að afla þeirra en hinna heima- unnu, ekki sízt eftir að menn fóru að geta sent ull í vaðmál- in og gjalda vinnulaun í ull. Á sama tíma fækkaði fólkinu á heimilunum. — Ullarvinnan minnkaði, konurnar áttu fullt í fangi með að spinna í og prjóna „plöggin“. Karlmenn- irnir, en það voru þeir, sem ófu víðast hvar, voru ekki fleiri en það á hverju heimili, að þeir höfðu nóg að gera við útiverkin á vetrum. Þeir hættu að vefa og unglingarnir lærðu ekki lengur þessa list. Með öðrum orðum: vefnaðurinn lagðist niður. Svo kom prjónavélin og bætti úr sárustu neyð heimil- anna, því auk sokka gátu menn nú farið að prjóna utanyfirföt, peysur og barnaföt, og notkun hennar jókst að miklum mun eftir að spunavélin kom og menn gátu fengið vélarband. Þetta var óneitanlega mikil hjálp og mikil framför, en hafði það þó einnig í för með sér, að minni ástæða virtist til að taka vefnaðinn upp aftur. Um sama leyti var komið upp ullarverk- smiðjum hér á landi. Þurftu bændur nú ekki lengur að kaupa norsku vaðmálin, eða senda ull þá, er í þau fór eða vinnulaunin út úr landinu. Auðvitað var með stofnun íslenzkra ullarverk- smiðja stigið stórt spor í iðnað- armálum íslendinga. En fyrir heimilisiðnaðinn varð það eðli- lega engin hvöt. Meðan þessu fór fram, höfðu nokkrar íslenzkar konur lært handvefnað í Danmörku, Nor- egi og Svíþjóð, og kynnzt heim- ilisiðnaði þeirra landa, og lært nýtt mat á þeim iðnaði. Þær sáu í aukinni vefnaðarkunnáttu möguleika til þess að fullnægja ýmsum þeim kröfum, er nýir og breyttir tímar höfðu skapað. Jafnframt skildu þær, að hin nýju tæki spuna- og prjóna- skapar höfðu sparað svo vinnu- kraftinn á heimilunum, að víða hlaut að vera afgangstími til vefnaðar. Sumar þessar konur munu hafa átt þátt í stofnun „Heimilisiðnaðarfélags íslands". Með stofnun þess má segja, að endurreisn handvefnaðarins hefjist. Því hann varð eitt af aðaláhugamálum þess. Félagið byrjaði að halda vefnaðarnám- skeið í Reykjavík, og styrkja einstaka konur til námskeiðs- halda í þeirri grein út um sveitir landsins. En þetta reynd- ist erfiðara verk en ætla mátti. Fyrst og fremst vantaði al- menning trú á þýðingu vefnað- arins og víða vantaði áhöld. Hvað var orðið af vefstólun- um? Þegar hætt var að vefa á bæjunum, hafði jafnframt víða verið hætt að hirða um vef- stólana. Þeir lágu sundurteknir úti í skemmu eða einhverju út- hýsi. Oft munu þeir hafa fúnað niður eða týnzt úr þeim hlut- H Æ K U R Aatami Kuortti: Þjón- usta, þrælkun, flótti. — Séra Gunnar Jóhannes- son þýddi. Kristilegt bók- menntafélag gaf út. í bók þessari segir finnskur prestur úr Ingermanlandi frá kjörum sínum og lífi í ráð- stjórnarríkjunum. Hann réðist sem prestur til finnskra safn- aða er bjuggu í landamærahér- uðunum um þær mundir, er hóphandtökur fóru þar fram meðal íbúanna og fólkið var þúsundunum saman flutt til nauðungarvinnu í fjarlægum landshlutum. Presturinn var brátt tekinn höndum og settur í illræmdar fangabúðir, þar sem beitt var hinni fáheyrðustu harðneskju. Maturinn var illur og af skornum skammti og föngunum ætluð mjög erfið vinna. Hinir eiginlegu fangar sátu í haldi af stjórnmálaleg- um, þjóðernislegum og trúar- legum sökum, en yfirmenn og verkstjórar fangabúðanna voru þjófar og morðingjar víðsvegar að. Úr þessum fangabúðum tókst prestinum að flýja og komast til Finnlands eftir mikl- ar þrengingar. ir. Og líkt mun hafa farið um önnur vefnaðaráhöld. Skeiðar ryðguðu og rakgrindurnar eyði- lögðust einhvernveginn — Fá- um hefir víst dottið í hug, að þessi áhöld yrðu nokkurn- tíma notuð. Og þar sem þessir gömlu vefstólar voru til nokk- urnveginn óskemmdir, var varla von að menn tryðu því í fyrstu, að hægt væri að nota þá við hinn nýja vefnað, sem byrjað var á að kenna. Þessi vefnaður bar sem sé of mikinn blæ af er- lendum áhrifum, til þess að á hann yrði litið af almenningi í sveitum, sem beint áframhald hins gamla íslenzka vefnaðar. Framhald. S. P. B. leggjum ekki næga áherzlu á garðrækt. En þótt þannig sé unnið, þá þarf enn, ef rétt er stefnt, að auka verulega alla þá starfsemi, sem miðar að því að rannsaka til hlítar margskonar gæði landsins, og það, sem gerir mig einna bjartsýnastan í þessum efnum, er það, að nú eru alltaf fleiri og fleiri dugandi náms- menn að leggja stund á þær námsgreinar erlendis, er að þessu lúta, enda hafa þeim styrkjum, sem ríkisstjórnin á yfir að ráða, verið beint til manna, sem vilja stunda slíkt nám. Og ánægjulegt er það, að þótt á undanförnum árum hafi borið nokkuð mikið á því hjá íslenzkum stúdentum, sérstak- lega þeim, sem nám hafa stund- að erlendis, að þeir væru ekki sem iðnastir eða reglusamastir, hefir orðið á þessu stórkostleg breyting á síðari árum. Reglu- semi námsmanna hér heima hefir vaxið, og þó jafnvel enn meir hjá þeim, er dvelja við nám erlendis. Allir þeir, sem nú njóta styrks erlendis, þurfa að skila vottorðum um það, hvern- ig þeir stunda nám sitt, og hvernig árangurinn hefir orðið. Það er næstum undantekning- arlaust nú, að íslenzkir náms- menn erlendis fá mjög góðan vitnisburð, bæði hvað snertir reglusemi og elju við námið, og það meira aö segja sumstaðar svo að af ber. Það er einnig eftirtektarvert, að annar skóla- stjóranna við bændaskóla landsins hefir sagt mér, að þeg- ar hann var við nám í bænda- skóla, hafi ekki nema um helm- ingur þeirra nemenda, er skól- ann sóttu, gert það með það fyrir augum, að stunda búskap síðar. Nú segir hann, að svo að segja hver einasti nemandi stundi námið með þeim ásetn- ingi, að gera landbúnað sér að atvinnu. Það er vöknuð áhuga- alda meðal yngri manna um að afla sér aukinnar verklegrar þekkingar og vísindalegs lær- dóms í þágu atvinnulífsins, bæði við sjó og í sveit. Við vitum ekki, hve sterk þessi vakning verður. Ef til vill, og það er meira að segja næsta líklegt, eignumst við á næstu árum nýjan Eggert Ólafsson. Hugsum okkur að Eggert Ól- afsson starfaði í íslenzku þjóð- lífi nú. Hugsum okkur að hon- um væri fengin forstaða þeirr- ar rannsóknar- og tilrauna- stöðvar, sem ríkið nú ræður yf- ir. Við vitum ekki hverju hann myndi áorka, en við vitum að það myndi verða mikið, og hitt vitum við, að stefna hans og lífsskoðun var og er rétt og æ- tíð til fyrirmyndar. Líf Eggerts Ólafssonar og starf sýnir okkur það í stækkaðri mynd, sem við sjáum oft í sögu landsins, að svo fer hverjum góðum íslend- ingi, að það að þekkja landið, er að elska það, og að skilja ís- land er að treysta á það. Það er þessi ást og þetta traust, byggt á þekkingu og skilningi, sem skapar bjargfasta vissu um sigur, trúna og viljann til starfa. En það er einmitt þessi trú, hjartað, sem slær bak við starfið, sem gerir gæfumuninn. Því að: „Sjálft hugvitið, þekkingin, hjaðnar sem blekking, sé hjartað ei með, sem undir slær. Hver þjóð, sem i gæfu og gengi vill búa, á guð sinn og land sitt skal trúa“. íslendingar og aðrir, sem mál mitt kunna að heyra, ég óska ykkur öllum árs og friðar. — Skrifstofa Framsóknarflokksius i Reykjavík er á Lindargötu 1 D Framsóknarmenn utan af landi, sem koma til Reykja- víkur, ættu alltaf að koma á skrifstofuna, þegar þeir geta komið því við. Þaö er nauðsynlegt fyrir flokks- starfsemina, og skrifstof- unni er mjög mikils virði að hafa samband við sem flesta flokksmenn utan af landi. Framsóknarmenn! Munið að koma á flokksskrifstofuna á Lindargötu 1D. „Já, þetta er hinn rétti kaffi- ilmur“, sagði Gunna, þegar Maja opnaði „Freyju“-kaffi- bætispakkann. „Nú geturðu verið viss um að fá gott kaffi, því að nú höfum við hinn rétta kaffi- bæti. Ég hefisannfærzt um það eftir mikla reynslu, að með því að nota kaffibætir- inn „Freyja“, fæst lang- bezta kaffið. FREVJA Þið, sem enn ekki hafið reynt Freyju- kaffibæti, ættnð að gera jiað sem fyrst, og' |>cr munuð komast að sömu niður> stöðu og Maja. Hitar, ilmar, heillar drótt, hressir, styrkir, kætir. Fegrar, yngir, færir þrótt Freyju-kaffibætir. Beztu kolín Bezta GEIR H. ZOEGA Símar: 1964 og 4017. Munnfóbakið er írá Brödrene Braun KAUPMANNAHÖFN Bíðjið kaupmann yðar um - Kaup og sala - Ullarcfni og silki, margar tegundir. BLÚSSUR, KJÓLAR o. fl. nýkomið. SAUMASTOFAN UPPSÖLUM. Sími 2744. Vinnið ötullcga fgrir Tímann. B.B. munntóbakið Fæst allsstaðar. Kopar keyptur I Landssmiðjunni. Útbrciðið TÍMAIVIV 176 Andreas Poltzer: sem ég sjái yður í kássu niðri á götu- flórnum .... Alice. Ég er hræddur um, að þér teflið of djarft. — Ekki skuluð þér kvíða því, Louis! Ég er jafn örugg á þakinu eins og á stofugólfi. Það var skónum að kenna, að ég rann seinast. Ég var með gúmmísóla, en nú verö ég með flókasóla. Þau sátu þegjandi um stund. Alice kveikti sér í sigarettu áður en hún tók til máls aftur. — Hvað er um Patriciu Holm? spurði hún svo. — Eins og stendur virðist enginn skipta sér af henni. En ég veit ekki hve lengi sá friður helzt. Því miður verð ég að flytja á burt úr matsölunni. — Fólkið í húsinu grunar ekki neitt, en ég er hræddur um, að Whinstone full_ trúi láti njósna um mig. Og þess vegna er bezt, að hverfa meðan tími er til. Ég ætla að skrifa frú Croys linu núna, og segja henni, að ég verði fjarverandi um tíma. Ég fer núna í dag til Battersea og breyti mér ofurlítið i útliti. Ég hugsa að fulltrúanum reynist erfitt að finna mig .... Alice Bradford virtist ekki kunna þessu áformi vel. Sluice sá það greinilega á andlitinu á henni. — Þér haldið kannske að hann fari þá að leita að mér í Old Mans Club, hélt Patricia 173 reiðinni við National Gallery og labbaði svo inn á Pall Mall. Þar leitaði hún uppi gamlan og góðan klúbb, þar sem hún var vel kynnt undir nafninu mr. Ford, enda þótt hún kæmi þangað ekki nema sjaldan. Það voru ekki margir karlmenn i klúbbnum svo síðla nætur. Mr. Ford þurfti því ekki að leita lengi þangað til hún kom auga á Louis Napoleon Sluice, í djúpum hægindastól. Hann sat þar og lyngdi aftur augunum, en hann svaf ekki — hann hugsaði. Þegar Alice kom nær leit hann upp. — Ég hefi beðið árangurslaust! Með þessum orðum gekk ungi maðurinn til Sluice. — Alice, ég er hræddur um, að þér teflið of djarft! Sluice var alvarlegur. Unga stúlkan svaraði engu. Það þurfti ekki annað en sjá einbeittu drættina kringum munninn, til þess að sannfær- ast um, að engin aðvörun gat haft hana ofan af því, sem hún hafði ætlað sér. — Og fulltrúinn? spurði Sluice. — Hann elti mig vitanlega. En ég slapp frá honum — það var rétt við Scot. land Yard. Ég verð að játa, að heppnin var með mér. — Þér megið ekki gera of lítið úr mr. Whinstone! Hann er kænn og einn af

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.