Tíminn - 07.01.1939, Blaðsíða 4
12
TÍMIM, laugardaginn 7. janiíar 1939
3. blað
Vinnubrög^ð
verðlagsnefndar
(Framli. af 1. síðu)
fyrst hér eftir í ljós, hvort end-
anlegur árekstur verður.
Alþýðublaðið mun hafa haft
fregnir fyrir nokkru um þennan
ágreining. Hringdi fréttaritari
Alþýðublaðsins til mín að mig
minnir að morgni þess 4. þ. m.,
og tilkynnti mér, hvað hann
hefði heyrt, og vildi fá staðfest-
ingu mína. Sagði ég honum, að
stórkaupmennirnir hefðu að vísu
færzt undan að gefa nefndinni
ákveðnar upplýsingar, en um al-
gerða synjun af þeirra hálfu
væri þó enn ekki að ræða. Kvaðst
ég ekki álíta, að málið væri til
þess fallið á þessu stigi að um
það væri skrifað. En blaðamenn
hafa sínar starfsaðferðir, og
greinin, sem fréttaritarinn mun
hafa haft tilbúna, er hann
hringdi mig upp, kom í Alþýðu-
blaðinu daginn eftir.
Á fundi verðlagsnefndar hinn
5. þ. m. gerði dr. Oddur Guðjóns-
son, fulltrúi Verzlunarráðs í
nefndinni„ fyrirspurn út af
nefndri Alþýðublaðsgrein, og
krafðist þess að vita, hvort
nokkur af nefndarmönnum væri
valdur að henni.
Eg skýrði þá frá ofangreindu
samtali við fréttaritara Alþýðu-
blaðsins. En þessa hreinskilni
mína notar svo dr. Oddur til þess
að staðhæfa það í Morgunblað-
inu, að endilega ég hafi skrifað
eða lagt til efnið í Alþýðublaðs-
greinina, þvert ofan í yfirlýsingu
mína á fundinum, og þrátt fyrir
það þó að margir tugir manna
í bænum væru kunnugir þessum
ágreiningi.
Dr. Oddur lætur í ljós undrun
sína yfir því að „meirihluti verð-
lagsnefndar“ hafi ekki viljað út-
skýra nákvæmlega fyrir stór-
kaupmönnunum, hvernig nefnd-
in hyggðist að vinna úr þeim
gögnum, sem henni væru send.
Álítur dr. Oddur, að það sé
hlutverk verðlagsnefndar, að
taka ákvarðanir að órannsökuðu
máli, og binda fyrirfram hendur
sínar um það, hvernig nefndin
vinnur úr gögnumþeim,sem hún
æskir að fá? Hvað finnst al-
menningi?
Utanríkísmálin
(Framh. af 1. síðu)
veruleg hnignun brezka heims-
veldisins myndi breyta valda-
hlutföllunum í heiminum svo
stórlega í vil einræðisríkjunum,
að áhrifaaðstöðu Bandaríkj-
anna yrði verulega hnekkt.
Bandaríkin vígbúast því ekki
eingöngu sín vegna, því þau
þurfa ekki að óttast fyrstu á-
ÚR BÆMM
Garðræktarfræðsla sú,
sem áður hefir verið tilkynnt, að
komið verði á fyrir ungmenni hér í
bænum, hefst um miðjan þennan mán-
uð. Veitt verður munnleg og bókleg
fræðsla um undirstöðuatriði almennrar
garðræktar og megináherzla lögð á
fræðslu um ræktun matjurta. Hverjum
námsflokki verður kennt eitt kvöld 1
viku. Kennsla er ókeypis og ætluð ung-
mennum á aldrinum 14—18 ára. Þátt-
taka tilkynnist Ludvig Guðmundssyni,
Hverfisgötu 98 (sími 5307) eigi siðar
en 12. þ. m. Veitir hann allar nánari
upplýsingar og er til viðtals daglega
kl. 4—5 e. hád.
Fjárhagsáætlun bæjarins.
Á seinasta bæjarstjórnarfundi var
samþykkt tillaga frá Sigurði Jónassyni
að fresta 1. umr. um fjárhagsáætlun
til næsta fimmtudags til þess að bæj-
arfulltrúum gæfist nægur tími til að
athuga hana, en við 1. umr. á að ræða
um hana aímennt en um einstakar til-
lögur og liði við 2. umr. Höfðu flestir
bæjarfulltrúanna fengið hana daginn
fyrir fundinn.
Tveir hrútar
brunnu inni, er eldur kom upp í
gripaskúr við Vesturgötu 52 í gær-
kveldi. Fjórar kindur og einn hestur
voru einnig í skúrnum og tókst að
bjarga þeim með naumindum. Bruni
þessi stafaði af því að unglingar fóru
ógætilega með eld.
Leikfélag Reykjavikur
sýnir á morgun sjónleikinn Fróðá. —
Aðgöngumiðar eru seldir í Iðnó í dag.
rásina. Vígbúnaður þeirra er
áminning til einræðisríkjanna
um þann varasjóð, sem lýðræð-
islönd Evrópu munu geta grip-
ið til, ef á þarf að halda. Roose-
velt var flotamálaráðherra
Wilsons um skeið og er því
kunnugur þeim mistökum hans,
að byrja ekki verulega á víg-
búnaðinum fyr en 1917. Það
gerði afstöðu Bandaríkjanna
þá miklu örðugri. Roosevelt
ætlar að læra af reynzlunni og
láta sig ekki henda sömu mis-
tök.
Erlendur blaðamaður hefir
sagt, að bæði hagsmunir Banda-
ríkjanna og persónulegir hags-
munir Roosevelts féllu saman
við hina nýju utanríkismála-
stefnu. Seinustu kosningar
sýndu að þjóðin var farin að
þreytast á hinu þrotlausa um-
bótastarfi hans innanlands. En
hún viðurkennir hann eigi að
síður sem mikilhæfasta stjórn-
málaleiðtoga sinn. Ekki aðeins
samherjar Roosevelts, heldur
einnig margir andstæðinga
hans viðurkenna að Bandaríkin
eiga ekki annan mann álitlegri
til að hafa forystu þeirra út á
við. Og útlitið er þannig, að á
næstu árum virðast Bandaríkin
in þurfa öruggrar forystu. Þeg-
ar það er athugað, hefir Roose-
velt mikla möguleika til að
afnema þá hefð, að enginn megi
vera forseti Bandaríkj anna
meira en í tvö kjörtímabil.
Aðalfnndnr S. I. F.
Vegna óhentugra skipaferða utan af landi og óska fjölda
félagsmanna, verður aðalfundi Sölusambands íslenzkra
í barnaskólahúsunum heljast að nýju
mánudagskvöldið 9. p. m. kl. 7 e. hád.
Stúlkur, sem hafa óskað eitir pátttöku,
eru beðnar að mæta pá.
Borgarstjórinn.
BÍÓÍ
Áttunda eígín-
kona
Bláskeggs
Bráðskemmtileg og mein-
fyndin amerísk gaman-
mynd eftir
Ernst Lnbitsch.
Aðalhlutv. leika:
CLAUDETTE COLBERT
Og
GARY COOPER.
' NYJA
Börn óvoðursins
(THE HURRICANE)
Stórfengleg amerísk kvikmynd,
er vakið hefir heimsathygli fyrir
afburða æfintýraríkt og fjölþætt
efni <r framúrskarandi „tekn-
iska snilld. — Aðalhlutverkið
leikur hin forkunnarfagra
DOROTHY LAMOUR
og hinn fagri og karlmannlegi
JON HALL
Börn ini.ari 12 ára )á ekki aðg.
Það er að brenna!
Hverja eimista mínútii, allt árið, ern luis að brenna og fyrir eldinum er enginn ó-
liultur. Það er því ekki að ástæðulausu að allir Iiiigsandi menn, sem vilja bera
umbyggju fyrir beimili sínu, telji sér skylt að BRUIVATRYGGJA IIVJVBÚ sitt.
M um áramótin skuluð þér, sem ekki haf ið áður hugsað um þetta með alvöru, taka
þá nauðsynlegu ákvörðun, að brunatryggja húsmuni yðar. Kostnaðurinn er hverf-
andi lítill.
En eins þurfið þér að gæta. Tryggingin þarf að sjálfsögðu að vera tekin hjá SJÓ-
VÁTRYGGUVG. - Hringið í síma 1700.
fiskframleiðenda frestað til 16. jan. Hefst fundurinn kl. 10
f. h. í Kaupþingssalnum.
Stjórn S. í. F.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKVR
178 Andreas Poltzer:
leiddi þetta rólega. Honum félist sjaldan
hugur, þó hann yrði fyrir óhöppum. Þau
mögnuðu hann þvert á móti oft til nýrra
dáða, og það var ekki ósjaldan, sem
honum duttu beztu snjallræðin í hug,
einmitt þegar hann hafði beðið ósigur.
Þessi hugsun lét hann aldrei í friði, að
þetta gæti verið Alice Bradford, sem
hann var að eltast við. Hann hugsaði um
það aftur á bak og áfram, hvernig Alice
Bradford hafði tekizt að komast heim
til sín fyrra skiptið, án þess að hann
yrði var við hana. Hafði þjóinninn í Old
Man’s Club gabbað hann, er hann sagði
honum, að stúlkan með ljósa hárið væri
ófarin, þegar hann fór út?
En nú rann ráðningin á gátunni upp
fyrir Whinstone, eins og ljós í myrkri:
Hann var hissa á, að sér skyldi ekki hafa
dottið þetta í hug fyrr. Þegar hann stóð
og beið eftir því, að stúlkan kæmi, hafði
þakhella allt í einu dottið ofan af einu
af næstu húsunum, niður á götu. Það
var ólíklegt, að hellan hefði dottið af
sjálfu sér, því að það var logn og kyrrð
þessa nótt. Alice Bradford hafði líklega
haft nasasjón af því, að hann væri þama
Patricia 179
á vakki, og valið sér leið yfir þökin. til
þess að komast inn.
Fáeinum mínútum síðar var Whin-
stone á fleygiferð í bifreið áleiðis til Re-
gent Park. Hann þóttist viss um, að verða
á undan Alice Bradford þangað, því að
hún mundi eflaust hafa þá varúð á, að
fara ekki beina leið heim til sín.
Tuttugu mínútum síðar ók Whinstone
á fieygiferð í bifreið fyrir framan
hornhúsið milli York Terrace og Upper
Harley Street, þar sem þakhellan hafði
fallið forðum. Það var ekki erfitt að geta
sér til, hvaða leið Alice Bradford hafði
farið yfir þökin, og þar sem það var ekki
sennilegt, að hún hefði farið langa leið
þarna uppi á mæninum, voru það ekki
nema tvær til þrjár næstu húsdyrnar
við hornið, sem gat komið til mála að
hún hefði farið inn um.
Fulltrúinn fann sér fljótt ágætan felu_
stað og sá vel þaðan til húsanna. Nóttin
var ekki hótinu hlýrri en sú, sem hann
hafði dvalið forðum í skotinu beint á
móti York Terrace 74 B. Og í þetta skipti
var Whinstone í þunnum kvensokkum
og yfirhöfn, sem ekki var hlý. Skyldi það
verða erindisleysa, ef hann biði þarna í
nótt?
Nú leið og beið og fulltrúanum fannst
tíminn aldrei ætla að líða. Loks sá hann
móta fyrir grönnum manni. Og þegar
„Fróðáw
Sjónleikur i 4 þáttum, eftir
JÓHANN FRÍMANN.
Sýnlng á morgiin kl. 8
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Vökumannaiélag
Reykjavíkur
heldur dansskemmtun
í Samvinnuskólanum i
kvöld kl. 9 e. h.
Olvuðum mönnum
bannaður aðgangur.
Stjórnin.
NÁMSKEIÐ f KJÓLASAUM.
Eftir miðjan janúaT hefst
námskeið í kjólaeaum. Kennt
verður á kvöldin tvisvar tvo
tíma á viku. Nánari upplýsing-
ar hjá mér.
Henny Ottósson, Kirkjuhvoli.
ViðskiptaNkráin.
Atviiimi- og kaupsýsluskrá 1939
er nú í prentun.
Skráin nær yfir flestalla kaupstaði landsins.
Auk þess verður bætt við í skrána ýmsum nýjum köflum, þar á
meðal teikningum af öllum götum í Reykjavík, ásamt upptalningu
allra húsa og lóða, er við götur liggja og tilgreint: ióðarstærð og
mat á lóð og húsi o. fl. o. fl.
Þeir, sem kynnu að vilja skrá ný atvinnu- eða kaupsýslufyrir-
tæki eða breyta skráningu og leiðrétta, eru vinsamlega beðnir að
senda tilkynningu um það sem allra fyrst I Steindórsprent h.f.,
Aðalstræti 4.
Aftan til í Viðskiftaskránni eru eyðublöð, sem gott væri að nota
til þessa. — Það, sem fram þarf að taka, er:
Nafn manns eða fyrirtækis.
Gata og númer og talsími.
Hverskonar starfið er eða starfrækslan.
Eigandi, stjórn og framkvæmdastjóri, ef um er að ræða.
Og undir hvaða yfirskrift í Varnings- og Starfsskrá viðkom-
andi óskar að vera.
Skráning í Viðskiftaskrána er ókeypis með almennu letri. —
Allar auglýsingar óskast sendar í
STEUVDÓRSPREIYT h.f.
Aðalstræti 4. — Reykjavík.
Til leigu!
Einlypt steinhús 1 smlðum í Hafnarfirði 5X11 ui., hentugt til
iðnreksturs.
Innréttingu má haga eftir óskum. Talið við
ODD ÍVARSSON, Hafnarfirði. — Sími 9267.