Tíminn - 12.01.1939, Side 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
Edduhúsl, Llndargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTOEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKXTRINN
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA,
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
Edduhúsi, Lindargötu 1 D.
Síml: 2323.
PrentsmlSjan Edda h.f.
Simar: 394ð og 3720.
23. árg.
Keykjavík, flmmtudagiiin 12. janáar 1939
Skuldir Reykjavíkurbæjar
hafa þrefaldazt síðan 1929
Áríð 1929 var fátækraframSærslan sjöundi
hluti bæjargjaldanna. Nú er hún orðin helm-
ingur bæjargjaida, enda pótt pau hafi næst-
um tvöfaldazt síðan.
Þeir menn, sem kynna sér
reikninga Reykjavíkurbæj-
ar undanfarin ár, munu
fljótt sjá í hvert óefni stefn-
ir, ef ekki verða skjótlega
gerðar umbætur á allri f jár-
málastjórn hans.
Samkvæmt bæjarreikningun-
um, hafa árleg rekstrarútgjöld
bæjarsjóðs verið sem hér segir
síðan 1929:
1929 ........ 3.890 þús. kr.
1930 ........ 4.093 — —
1931 ........ 4.094 — —
1932 ........ 4.435 — —
1933 ........ 4.383 — —
1934 ........ 4.673 — —
1935 ........ 5.089 — —
1936 ........ 6.181 — —
1937 ........ 6.723 — —
1938 ........vantar
1939 . .. (áætl.) 6.957 — —
Uppgjöri reikningsins fyrir sl.
ár er enn ekki lokið og verður
Aðalfundur
míðstjórnar Fram-
sóknarílokksins
Fundurinnhefst 28.þ.m.
Aðalfundur miðstjórnar
Framsóknarflokksins á þessu
ári hefir verið kvaddur saman
í Reykjavík 28. janúar næst-
komandi kl. iy2 síðdegis. Verður
hann haldinn í hinum nýju
húsakynnum flokksins í prent-
smiðjuhúsinu á Lindargötu 1 D
og stendur væntanlega 3—4
daga.
Á aðalfundi miðstjórnarinnar
eiga nú sæti og atkvæðisrétt
þessir 35 fulltrúar kjörnir af
flokksþinginu 1937:
Úr Reykjavík og grennd:
Aðalsteinn Kristinsson,
Bergur Jónsson,
Bjarni Ásgeirsson,
Eysteinn Jónsson,
Gísli Guðmundsson,
Guðbrandur Magnússon,
Guðm. Kr. Guðmundsson,
Hermann Jónasson,
Jón Árnason,
Jónas Jónsson,
Jörundur Brynjólfsson,
Páll Zophóníasson,
Sigurður Kristinsson,
Steingrímur Steinþórsson,
Sveinbjörn Högnason.
Með búsetu í einstökum
k jördæmum:
Jón Hannesson, Deildartungu,
Jón Steingrímsson,
Borgarnesi,
Markús Torfason, Ólafsdal,
Sr. Þorsteinn Kristjánsson,
Sauðlauksdal,
Kristinn Guðlaugsson, Núpi,
Jón H. Fjalldal, Melgraseyri,
Gunnar Þórðarson,
Grænumýrartungu,
Skúli Guðmundsson,
Hvammstanga,
Hannes Pálsson, Undirfelli,
Gisli Magnússon,
Eyhildarholti,
Bernharð Stefánsson,
Akureyri,
Einar Árnason, Eyrarlandi,
Þórólfur Sigurðsson,
Baldursheimi,
Björn Kristjánsson,
Kópaskeri,
(Framh. á 4. síðu)
tæplega fyrr en á miðju þessu
ári. Á bókhaldsfyrirkomulag
bæjarins sinn þátt í hinum vax-
andi útgjöldum, því það gerir
næstum ókleift að fylgjast með
því, hvort einstakir útgjaldaliðir
fara fram úr áætlun fyrr en það
er orðið um seinan.
Þetta yfirlit sýnir, að útgjöld
bæjarins — bæjarfyrirtækin eru
ekki meðtalin — hafa næstum
því tvöfaldazt síðan 1929.
Annað er kannske enn athygl-
isverðara í þessu sambandi. 1929
námu fátækraútgjöldin 564 þús.
kr. eða l/i hluta allra bæjarút-
gjaldanna. Þá var engin at-
vinnubótavinna. Nú eru fá-
tækraútgjöldin orðin helmingur
bæjargjaldanna, enda þótt þau
hafi nær tvöfaldazt síðan 1929.
Árið 1929 voru skuldir bæjar-
sjóðs 2.531 þús. kr. Árið 1937 voru
þær orðnar 6.118 þús. kr. Þær
hafa miklu meira en tvöfaldazt
á þessum tíma. Á síðastl. ári hafa
þær áreiðanlega aukizt mikið
og eru að líkindum orðnar þre-
faldar á við það, sem þær voru
1929.
Næstum öll skuldaaukning
síðustu ára er lausaskuldir. Þeg-
ar það er athugað, hvernig fjár-
málum bæjarins er yfirleitt
komið, hlýtur mönnum að finn-
ast það eingöngu tímaspursmál,
hversu lengi bærinn getur fleytt
sér áfram með söfnun lausa-
skulda.
En þrátt fyrir þetta geigvæn-
lega útlit og aukna erfiðleika
skattgreiðendanna til að borga
hækkandi útsvör, hafa forráða-
menn bæjarins ekki viljað fallast
á tillögur Framsóknarflokksins
um umbætur fátækraframfæris-
ins, sem myndi sannanlega spara
bænum stórfé. Svipuð hefir að-
staða þeirra verið til annarra út-
gjaldaliða bæjarins.
Og samt þykjast þessir menn
geta hælt sér fyrir ráðdeildar-
semi og sparnað.
5. blað
Skömmu eftir heimsstyrjöldina byrjuðu Frakkar að gera öi'lugar vígvarnir meðfram landamærunum frá Belgíu til
Sviss. Eru þær almennt nefndar Maginotlínan og er fullvíst, að fullkomnari varnarvígi hafa enn ekki verið gerð,
enda hafa þau líka kostað Frakka of fjár. Meginhluti þeirra er grafinn í jörðu og eru kjallararnir víða
sex hæðir. Auk íbúða fyrir hermennina, eru þar miklar skotfæra og matvælabirgðir, spítalar o s. frv. — Myndin
sýnir, hvernig Maginotlínan lítur út ofan jarðar.
Pantanír á útsæðís-
kartöflum og erlend-
um áburðí
Tímanum þykir sérstök á-
stæða til að vekja athygli á til-
kynningu frá Grænmetisverzlun
ríkisins, sem birtist í síðasta
blaði. Hún var á þá leið, að þeir
sem ætluðu að panta útlendar
útsæðiskartöf lur hj á Græn-
metisverzluninni fyrir komandi
vor, ættu að vera búnir að
senda pantanir fyrir febrúar-
lok.
Er þetta nauðsynlegt fyrir
Grænmetisverzlunina til þess að
hún geti gert sér grein fyrir,
hversu mikið hún þarf að kaupa
af útsæðiskartöflum frá út-
löndum og þurfi ekki að flytja
inn meira en þörf er fyrir.
Ætti mönnum líka að vera
það auðvelt að koma pöntunum
sínum á framfæri fyrir þann
tíma og dráttur í þeim efnum
að vera óþarfur.
Gagnrýnín í Þýzkalandí
Utan Þýzkalands standa
margir í þeirri trú, að þar ríki
ein stefna og ein skoðun. Menn
þori og vilji ekki hafa aðra
skoðun en þá, sem valdhöfunum
sé þóknanleg.
;— Þetta er ekki eins rétt og
ýmsir halda, segir norska „Dag-
bladet“ í ritstjórnargrein. —
Gagnrýnin lifir og að hún er
ekki hættulaus fyrir valdhaf-
ana, má bezt sjá á skrifum
blaðanna. Ritstjórnargrein, sem
birtist í málgagni leynilögreglu-
foringjans Himmlers, Schwarze
Korps, þegar Gyðingaofsóknir
voru sem mestar í haust, sýnir
vel að gagnrýnin er valdhöf-
um áhyggjuefni.
Þar stóð m. a.:
„Seinustu dagana höfum við
Jafníramt skal vakin athygli
á samhljóða auglýsingu, sem
birtist í síðasta blaði, frá Áburð-
arsölu ríkisins, um pantanir á
erlendum áburði.
A. KROSSGÖTUM
Mjólkurframleiðslan. — Jarðabótastyrkurinn. — Úr Eyjum. — Samvinnuút-
gerðarfélag á Sandi. — Gott útlit um aflabrögð. — Slysfarir. — Nýtt út-
------ gerðarfélag á ísafirði. -
Steingrímur Steinþórsson búnaðar-
málastjóri, flutti á mánudagskvöldið
ítarlegt erindi um afkomu landbúnað-
arins á síðastliðnu ári. Voru í því
margar mjög athyglisverðar upplýsing.
ar. Meðal annars gaf hann yfirlit um
aukningu þeirrar mjólkur, sem borizt
hefir til mjólkurbúanna, en það eru
hinar einu fullnægjandi skýrslur, sem
til eru um mjólkurframleiðsluna. Til
mjólkurbúanna á verðlagssvæði Rvíkur
bárust árið 1938 13180 þúsund lítrar
mjólkur, en 12420 þúsund árið áður.
Mjólkursamlagi Kaupfélags Eyfirðinga
bárust 3110 þúsund lítrar, en 2760
þúsund árið áður. Mjólkursamlagi
Skagfirðinga á Sauðárkróki bárust 550
þúsund lítrar mjólkur síðastliðið ár, en
390 þúsund árið áður. Hefir aukning
þeirrar mjólkur, sem mjólkurbúunum
hefir borizt, numið 1270 þúsund lítrum.
I t t
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri. sem
Búnaðarfélag íslands hefir látið gera
um jarðræktarstyrkinn árið 1938, hafa
jarðabætur verið álíka miklar í landinu
og árið áður, en þá nam jarðræktar-
styrkurinn um 520 þúsundum króna.
Nokkru hærri mun þó jarðræktarstyrk-
urinn reynast að þessu sinni, vegna
aukastyrks, sem veittur er bændum
á mæðiveikisvæðinu og hleypir hann
heildarupphæðinni fram.
t t t
Vetrarvertíð mun yfirleitt hefjast
upp úr miðjum mánuðinum í Vest-
mannaeyjum. Nokkru fleiri bátar
munu verða gerðir þaðan út í vetur,
heldur en áður. Á síðustu vertíð fórust
þrír vélbátar og hafa aðrir komið í
það skarð, auk þess, sem fleiri bátar
hafa verið keyptir eða teknir á leigu
til Eyja. Fiskimenn eru nú sem óðast
að undirbúa veiðarnar. Einn bátur,
Glaður, er byrjaður róðra. Fór hann í
fyrsta róðurinn í fyrradag og fékk
600 þorska, og þykir það dágóður afli
í útdrætti. Talið er þó, að fiskur sé
ekki enn genginn á miðin, nema að
nokkru leyti. — Eldborgin frá Borgar-
nesi kom til Eyja í fyrradag með
vörufarm, og mun ætlunin, að skipið
taki ísfisk til baka. Saltskip er nú
væntanlegt til Eyja.
t t t
Fyrir nokkru síðan réðust nokkrir
menn á Sandi á Snæfellsnesi í það að
stofna samvinnufélag um smábátaút-
gerð. Hefir félagið fengið loforð um
styrk frá Fiskimálanefndinni til smíða
á þrem opnum vélbátum, fimm smá-
lesta. Um helming stofnkostnaðarins
mun félagið ætla sér að taka að láni,
en hinn hlutann er ætlazt til að félags-
menn leggi fram. Bátarnir verða senni-
lega smíðaðir í Reykjavík og er vonazt
eftir, að fyrsti báturinn verði full-
smíðaður svo snemma vetrar, að hann
komi vestur í febrúarlok.
t t t
Gæftalítið hefir verið á Sandi siðan
um jól, þar til tvo eða þrjá síðustu
daga. Ekki hefir verið róið eftir ný-
árið, þar til í fyrradag og gær. Fiskuðu
bátarnir ágætlega, 1600—3000 pund
hver. Var stutt á fiskislóðina, eins og
ætíð er á Sandi, ef fiskigöngur eru á
annað borð. Lítur mun betur út um
aflabrögð í vetur heldur en áður.
t t t
Sorgleg slys hafa orðið þessa dagana.
í fyrrakvöld bar það slys til á ísa-
firði, að Kristján Edwald, starfsmaður
í útibúi Landsbankans þar, varð fyrir
skoti og beið bana af. Menn vita eigi,
með hverjum hætti slysið hefir borið
að, því að Kristján var einrj í her-
berginu, er þetta skeði. Lá riffill hjá
líkinu, er að var komið. — í fyrra-
kvöld drukknaði maður um tvítugt,
Sigurður Magnússon í Arnþórsholti, í
Grímsá 1 Lundarreykjadal. Hann var
vetrarmaður að Lundi og fór suður að
Skarði, haiidan við ána, að kvöldlagi.
Á heimleið féll hann niður um ísinn.
Var þá myrkur á. Sigurður var elztur
af sex börnum Magnúsar bónda i Arn-
þórsholti og Jórunnar konu hans.
t t t
Skömmu fyrir nýárið var stofnað
nýtt útgerðarfélag á ísafirði og er það
nefnt Valur. Hefir félag þetta keypt
togarann Hávarð ísfirðing, sem verið
hefir um skeið i eign Landsbankans.
(Framh. á 4. síðu)
iðulega rekizt á einlæga tals-
menn hins fornkristna hugs-
unarháttar, kærleikans til ná-
ungans. Slíkir menn hafa alls-
staðar sprottið upp, í matvöru-
verzlunum, við blaðsöluborðin,
á kaffihúsunum ...“
Hverjir eru þessir menn, sem
þora að gagnrýna stjórn
Hitlers?
Gamlir kunningjar, heldur
Schwarze Korps áfram. Meðan
heimsstyrjöldin stóð yfir pré-
dikuðu þeir frið og kærleika
milli þjóðanna. Á stjórnarárum
Stresemans sáu þeir hylla undir
regnboga hins eilífa friðar. Síð-
ar vöruðu þeir við því, að skír-
skota málum til „augnabliks-
tilfinninga fjöldans“. Þeir voru
alltaf „fyrirgefningarfúsir og
vitrir eftir á“. „Örlög Benesar-
ríkisins særði þá í hjartastað“
og þeir „grétu yfir endalokum
Schuschniggs“.
Hvar er þá að finna í Þýzka-
landi þessa menn? Eru þeir á-
hrifalausir?
„Færið þá“, segir Schwarze
Korps, „úr þeirra borgarlegu
umbúðum, takið af þeim titl-
ana, embættin, ef þau eru ein-
hver, viðurkenningarnar og
orðurnar, sem þeir hafa hlaðið
utan á sig ...“
Og þá munuð þér sjá, heldur
blaðið áfram, hina velþekktu
mynd af „rótlausum mennta-
mönnum og andlegum ein-
trjáningum, sem við höfum
einu sinni réttilega líkt við dýr“.
En menn hlusta samt á þá.
„Þeir geta sýkt heilar fjöl-
skyldur eða vinnustaði, þegar
þeir troða fram og prédika fyr-
ir almúgafólki, vafðir æfintýra-
ljóma menntunarinnar og sér-
vitringsskaparins. Það er þýð-
ingarlaust að rökræða við þá.
Hnefi á nasirnar hefir heppi-
legri áhrif á þá en rök“. ...
Schwarze Kórps lýkur máli
sínu með beinni hótun til
þessa „mælska menntahyskis",
sem aðeins ariskt ætterni
skilur frá mönnum eins
og Emil Ludwig, Kerr og Ein-
stein.
„En þó þessir menn séu ekki
Gyðingar, getum við eigi að
síður farið með þá eins og Gyð
inga . .. þeir eru í raun og veru
það varhugaverðasta og ómann
legasta hyski, sem við höfum
rekið okkur á — og nú krefjast
þeir að mega gráta óhegnt yfir
vesalings Gyðingunum. Við
skulum vissulega kenna þeim“.
Þrátt fyrir allan undirróður,
alla þá sigra, sem lýðræðis-
ríkin hafa hjálpað Hitler til að
vinna, öflugustu leynilögreglu
(Framh. á 4. siðu)
A viðavangi
Til viðbótar því, sem sagt er
í forystugrein blaðsins í dag,
skal það tekið fram, að Skúli
Guðmundsson atvinnumálaráð-
herra lagði í fyrradag fram til-
lögur af hálfu Framsóknar-
flokksins í milliþinganefndinni
í útgerðarmálum. Það hefir þó
orðið að ráði, að Tíminn birti
ekki tillögurnar að þessu sinni,
þar sem enn er óséð, hvort sam-
komulag næst um þær í nefnd-
inni eða ekki.
* * *
Hinn dyggi þjónustumaður
heildsalanna í Rvík, Oddur
Guðjónsson, réðst nýlega á for-
mann verðlagsnefndar, Guð-
jón Teitsson, með rosta og skæt-
ingi. Birtust skrif Odds í Mbl.
Það sýndi sig, sem við mátti bú-
ast, að þessi árás Odds var á
engum rökum reist og frum-
hlaup eitt, enda ástæðan sú ein,
að beygur heildsalanna við
verðlagsnefndina fer nú mjög
vaxandi. Snemma í vetur seldu
kaupmenn sveskjur 'með 300%
álagningu, eftir því sem upplýst
hefir verið. Ef margt hefir fatið
þar eftir, er engin furða, þó þeir
óttist að missa spón úr aski.
* * *
Menn munu minnast rann-
sóknar þeirrar, sem Tíminn lét
fram fara sl. haust um álagn-
ingu á ýmsar vörur í Rvík, sér-
staklega vefnaðarvörur. Út af
þeim tölum, sem Tíminn birti i
því sambandi, varð gífurlegur
úlfaþytur í kaupmannablöðun-
um. En staðreyndir þær, er rann-
sóknin leiddi í ljós, var ekki hægt
að hrekja. Þess vegna var líka
skipun verðlagsnefndar tekið
fegins hendi af öllum þorra al-
mennings.
* * *
Ýmsir tala nú um gengislækk-
un. Ef slík ráðstöfun yrði gerð,
væri starfsemi verðlagsnefndar
alveg sérstök nauðsyn. Margir
muna sjálfsagt, hversu verzlan-
ir hækkuðu vörubirgðir sínar 1
verði í byrjun síðustu heims-
ityrj aldar og græddu við það
stórfé á óeðlilegan hátt. Slík
hætta vofir alltaf yfir — sé ekki
að gert — ef verðlag hækkar
eða gengi lækkar.
* * *
Grein Jónasar Jónssonar um
nýjar leiðir til að efla hið
menningarleg^ samband milli
íslendinga heima og í Vestur-
heimi, hefir að vonum vakið
mikla athygli. J. J. hefir í þess-
ari grein gert gagngerðari til-
raun en áður hefir verið gerð
til að gera sér grein fyrir þeim
möguleikum, sem fyrir hendi
eru og framkvæmanlegir í þessu
efni. Mun Tíminn ræða þetta
merkilega mál nánar nú á næst-
unni, og óskandi að svo verði
einnig gert í öðrum blöðum
landsins. Því aðeins .verður hér
eitthvað aðhafzt að gagni, að
almennur áhugi sé vakandi með
þjóðinni.
* * *
Hinn nýi vinnudómstóll, fé-
lagsdómur, kvað upp fyrsta dóm
sinn í gær. Var það í máli milli
Reykj avíkurbæj ar og Dagsbrún-
ar út af ákvæðisvinnu. Má þetta
teljast merkilegur viðburður í
sögu íslenzks réttarfars og þró-
un lýðræðisins á þessu landi.
* * *
Stjórnarkosning stendur nú
fyrir dyrum í Verkamannafélag-
inu Dagsbrún í Rvík. Eru komn-
ir fram tveir listar, annar frá
Héðlns- og kommúnistaliðinu,
með Héðni í formannssæti, hinn
frá verkamönnum sjálfum. —
Þjóðv. í dag hefir það helzt á
móti formannsefni verkamanna,
Stefáni Sigurðssyni, að hann sé
verkamaður hjá Sambandi ísl.
samvinnufélaga! Eftir kenningu
þessa vísa málgagns, þarf víst
frambj óðandinn að vera í þjón-
ustu Kveldúlfs, Garðars Gísla-
sonar eða British Petroleum Co.,
til þess að verkamenn geti verið
þekktir fyrir að greiða honum
atkvæði. Eftir er nú að vita,
hvort Mbl. og Vísir styðja Héðtn
í þessari kosningu, eins og i alls-
herjaratkv.greiðslunni í haust.