Tíminn - 28.01.1939, Page 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 d.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 d.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
Reykjavílí, langardaginn 28. janúar 1939
Snorramynd Vígelands
Fyrir nokkrum árum síðan var
hafin fjársöfnun í Noregi í því
skyni að láta gera höggmynd af
Snorra Sturlusyni, sem reist yrði
í Reykholti, þegar 700 ár væru
liðin frá dauða hans. Jafnframt
var ákveðið, að samskonar mynd
af Snorra yrði reist á einhverjum
stað í Noregi.
Fjársöfnun þessi gekk allvel
óg hefir fyrir nokkru fengizt
nægilegt fé til að framkvæma
verkið. Jafnframt var frægasti
myndhöggvari Norðmanna, A .G.
Vígeland, fenginn til að gera
myndina.
í „Bergens Arbeiderblad" 19.
þ. m’, er skýrt frá þvi, að Vige-
land sé búinn með myndina og
sé nú ekki annað eftir en að gera
af henni eirsteypu.
Þá segir blaðið frá því, að
Snorranefndin hafi ákveðið, að
höggmyndin af Snorra, sem
verði reist í Noregi, skuli vera í
Bergen.
Nefndin hafi einnig rætt um
það, að afhjúpa höggmyndina í
Reykholti einu ári fyr en ráðgert
hefir verið eða sumarið 1940 að
afloknum norræna þingmanna-
fundinum, sem haldinn verður
í Reykjavík. En upphaflega var
ráðgert að afhjúpa myndina 23.
sept. 1941, því Snorri var veginn
þann dag 1241.Telur nefndin það
óheppilegt, að láta afhjúpunina
bíða fram á haust, þegar veðr-
átta sé orðin stirð og millilanda-
samgöngur örðugri, en fyrst
myndin verði ekki afhjúpuð á
hinum upphaflega ákveðna degi
geri ekki til þó það sé gert árinu
áður. Hinsvegar verði afhjúpun
myndarinnar í Noregi frestað til
23. sept. 1941. Segir blaðið að
nefndin muni snúa sér til Jón-
asar Jónssonar alþm., sem mest
afskipti hafi haft af þessu máli
hér heima, og leita álits hans og
aðstoðar í þessu efni.
Tíminn hefir spurt Jónas
Jónsson um þetta, en honum
hefir enn ekki borizt slík um-
leitun frá nefndinni. Hinsvegar
hefir hann nýlega fengið bréf
frá Vigeland og allmargar mynd-
ir af líkneskinu og birtist ein
þeirra hér. Hefir Jónas útvegað
honum kort af Reykholti og lýs-
ingu á staðháttum þar. Þakkar
Vigeland fyrir þá sendingu og
segist vera að athuga, hvar bezt
mun vera að velja myndinni
stað.
Myndin er um 2^ m. á hæð og
(Framh. á 4. síöu)
Vestur-Isfírðíngar
lýsa trausti á rík-
isstjórninní
Gunnar Thoroddsen
íær áminningu
Hinn árlegi þing- og héraðs-
málafundur Vestur-ísafjarðar-
sýslu hefir nýlega verið haldinn
á Flateyri. Mættir voru 18 full-
trúar og sendu allir hreppar
sýslunnar fulltrúa á fundinn.
Mörg mál voru rædd á fund-
inum. M. a. var rætt um afstöð-
una til ríkisstjórnaninnar og
samþykkt svohljóðandi ályktun
með 12:6 atkvæðum:
„Þing- og héraðsmálafundur
Vestur-ísafjarðarsýslu lýsir yfir
fullu trausti sínu á núverandi
ríkisstjórn og lýsir um leið á-
nægju sinni yfir hagstæðum
verzlunarjöfnuðl síðastl. ár.“
Eftirfarandi ályktun var bor-
in fram á fundinum og sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum:
„Þing- og héraðsmálafundur
Vestur-ísafjarðarsýslu lýsir yfir
eindregnu fylgi sínu við lýðræð-
ið í atvinnu-, menningar- og
stjórnmálum. Vill fundurinn
brýna það fyrir héraðsbúum og
öðrum landsmönnum að gæta
vel þcssa fjöreggs íslenzku þjóð-
arinnar og þjóðmeiuiingarinn-
ar, og væntir þess, að allir góðir
íslendingar verði framvegis og í
hvívetna á verði gegn öllum ut-
anaðkomandi áhrifum, er orðið
geta til þess að hagga þeim lýð-
ræðisgrundvelli, er íslenzka rfk-
ið byggir tilveru sína á, í nútíð
og framtíð.“
í umræðunum kom það ljóst
fram, að þessi tillaga var ekki
hvað sízt fram komin vegna
þeirra ummæla Gunnars Thor-
oddsens í „Þjóðinni“, að íslend-
ingar yrðu að fullnægja „viss-
um skilyrðum um stjórnarfar
sitt innanlands“ til að tryggja
sér vináttu Þjóðverja. Deildu
ýmsir fundarmanna hart á þá
skoðun. Gunnar var sjálfur
mættur á fundinum, án þess að
vera þó þangað boðínn, og mun
hann hafa talið það ráðlegast
að afneita fyrri kenningum
sinum.
12. blað
• wm-.
A
Eftir fall Barcelona
Hvað gera Bretar og’ ’Frakkar ?
Uppreisnarmenn á Spáni héldu
innreið sína í Barcelona síðastl.
finmitudag. Kom ekki til neinna
verulegi'a bardaga um borgina,
því stjórnarlrerinn taldi vörnina
vonlausa og ákvað því, að láta
hana í hendur uppreisnar-
manna orustulaust. -
Ástæðan til þess að Barce-
lona féll í hendur uppreisnar-
mönnum svo fljótt, er marg-
þætt. Matarbitgðir voru sama
og engar í borginni og fullkom-
in hungursneyð því yfirvofandi.
Uppreisnaimenn höfðu náð
vatnsveitunni og rafmagnsstöð-
inni, sem eru alllangt frá borg-
injii, á vald sitt. í þriðja lagi
voru varnarvirki borgarinnar
svo ófullkomin, að lítil von var
um að geta veitt hinum full-
komnu árásartækjum óvinanna
teljandi mótstöðu.
Mai'gir telja fall Barcelona
úrslitasigur Francos í borgara-
styrjöldinni. Hann hefir nú
allai' helztu borgir Kataloníu og
frjósömustu hluta hennar á
valdi sínu. Stjórnin heldur enn
lítiUi sneið norður við frönsku
lanhamærin, en það má teljast
vonlítið fyrir hana áð halda
henni til lengdar. Bæði skortir
hana nægileg vopn og vistir
handa hernum og hinir stöðugu
ósigiar undanfarnar vikur hafa
lamað kjark hans. Erlendrar
hjálpar getur hún ekki vænzt,
þar sem stjómir Bretlands og
Frakklands hafa lýst yfir því,
að þær muni ekki hvika frá
hlutleysisstefnunni.
Þegar uppreisnarmenn háfa
unnið Kataloniu eiga þeir eftir
að ná Madrid og Valencia og
þeim landshlutum, sem stjórnin
ræður í nánd við þessar borgir.
Stjórnarherinn hefir komið sér
þar upp öflugum vörnum og
virðist undanfarin reynsla
benda tU þess, að vafasamt sé,
hvort uppreisnarmenn geta
sigrað hann með vopnum. En
hitt er líklegt, að með langri
umsát og stöðvun allra aðflutn-
inga tækist þeim að neyða hann
til uppgjafar. En það getur tek-
ið alliangan tíma og á meðan
geta þeir atburðir gerzt, sem
A. KROSSGÖTTJM
Af Vatnsleysuströnd. — Búpeningseign. — Félagslíf. — Byggingar. — Á Eyja-
f jallajökli. — Sjóróðrar í Mýrdal. — Raf stöðvar í Hvamms- og Dyrhólahreppum.
Af Vatnsleysuströnd hefir blaðinu
verið skrifað: — Vorið var hér kalt
og leit illa út með grasvöxt. En með
miðju sumri breytti til og varð meðal
grasár og góð nýting. Jarðeplaupp-
skera mun hafa verið 12—40 tunnur á
heimili og nokkuð af gulrófum. Tún
eru hér víðast slétt og vel girt. Að ný-
rækt er talsvert unnið, en hraun er
viðast undir og umhverfis. Moldin er
þó góð, enda gnægð af þara og þangi,
sem reynist mjög vel með öðrum á-
burði. Garðrækt getur orðið hér mikil
og hefir aukizt stórum. Þó fara jarðir
í eyði og fólkið flytur í kaupstaðina.
t t t
Hér í sveit er um 2000 fjár og rúm-
lega 100 kýr. Sauðféð er fremur létt á
fóðrum og mun ærin vel fóðruð með
50 kg. af töðu. Lömb skerast hér með
10—15 kg. skrokkþyngd. Sauðland er
hér gott á haustin og framan af vetri.
Flestir hafa hér talsvert af hænsnum,
en fáir til ábata.
t t t
Góðtemplarafélag er hér nýstofnað
með um 30 meðlimum. Vín er lítt haft
um hönd í sveitinni. Enginn gamall
innfæddur maður hér notar vín fremur
en það væri ekkí til í landinu. Kven-
félag hefir starfað hér lengi og mörgu
þarflegu til leiðar komið. Það hefir
komið sér upp samkomuhúsi í sam-
vinnu við ungmennafélagið og starf-
rækt unglingaskóla tvö undanfarin ár
frá veturnóttum til vertíðar. Barna-
stúka hefir starfað hér lengii undir
stjórn Viktoríu Guðmundsdóttur, sem
búin er að vera kennari hér í 18 ár
og hefir reynzt ágætlega í því starfi.
t t t
Víðast er hér góð bygging. Á 10
jörðum eru vönduð steinhús, en annars
jámvarin timburhús. Fjós, forir og
imughús eru alstaðar steypt, en hlöður
ýmist steyptar eða úr timbri og járni.
t t r
16. janúar gengu tveir Eyfellingar,
Eggert Ólafsson á Þorvaldseyri og Ól-
afur Ingimundarson í Yzta-Bæli, á
hæsta tind Eyjafjallajökuls. Færi var
mjög ákjósanlegt, slétt yfir allar jökul-
sprungur og harðfenni svo tæpast
markaði spor í snjóinn. Þeir félagar
lögðu af stað frá Þorvaldseyri kluklmn
sjö árdegis og gengu á hálfri annarri
klukkustund upp að jökulröndinni.
Þaðan stefndu þeir beinustu leið á
Guðnastein, hæsta tindinn, og voru
komnir þangað eftir einnar klukku-
stundar og fjörutíu og fímm mínútna
gang á jökli. Útsýn var hin bezta og
sáu þeir vel jöklana í norðri, Hofsjökul
og Langjökul, og út eftir Reykjanes-
fjallgarði og vestur á Faxaflóa. Sem
dæmi þess, hve skyggni var gott, má
geta, að þeir greindu gerla Laugar-
vatnsskólann og gufuna, er liðaðist
upp af hverum niður við vatnið. —
Blæjalogn var og sólskin á jöklinum
þenna dag, en þó var frostið seytján
stig uppi á jökulnýpunni um hádegis-
bilið. I byggð var þriggja stiga frost
um daginn.
t t t
Magnús Finnbogason í Reynisdal
skrifar Tímanum nýlega: — Nú eru
menn sem óðast að leggja af stað til
sjóróðra, aðallega til Vestmannaeyja.
Er þetta með nokkru öðrum hætti en
var í mínu ungdæmi. Þá var oft mikill
fiskafli hér við sandana og gæftir góð-
ar, enda var þá oftast norðanátt og
kuldar á útmánuðum. Gengu þá 10—14
skip úr Mýrdal og voru þá 13—
18 menn á hverju. Aflinn var oft
2—3 hundruð til hlutar á skip og
stundum allt að 4 hundruð. Aflinn var
hertur og meirihlutinn fluttur úr landi.
— Nú munu ganga héðan í vetur 4—5
bátar með 8—12 mönnum hver. Eru að-
allega á þeim menn, sem ekki geta að
heiman farið yfir lengri tíma.
t t r
í Hvammshreppi (í Mýrdal) eru nú
rafstöðvar á 16 bæjum, auk Vikur-
kauptúns, en þar hafa nú nálega öll
heimili raforku til ljósa og suðu og
nokkru leyti til hitunar. í Dyrhóla-
nreppi eru rafstöðvar á 5 bæjum. Á
nokkrum fleiri stöðum eru góð skilyrði
t'l virkjunar, en nú er skarð fyrir
skildi við fráfall Bjarna í Hólmi og
getur því orðið nokkur kyrstaða í þess-
um efnum næstu ár.
Franco.
:iöi honum til óvæntrar
hjólpar.
í ítölskum og þýzkum blöð-
um er íalli Baxcelona fagnað.
Hins'.’egar kemiu’ fram mikill
óhugur í brezkum og frönskum
blöðum. Þau óttast, að Franco
verði svo háður áhrifum ítala
og Þjóðverja, að þessar þjóðir
geti notað Spán til árása gegn
Frökkum og Bretum, ef á þarf
að halda. í grein, sem Winston
Churehill hcfir skrifað nýlega,
segir hann að frá sjónarmiði
brezkra hagsmuna sé sigur
stjórnarinnar æskilegri en sigur
Francos. Meginhluti enska í
haldsflokksins hafi þó frekar
ó-skað &ftir sigri Francos af ótta
við, að sigur stjórnarinnar
myndi efla hin kommúnistisku
öfl í heiminum. Þessi hluti í-
haldsflokksins hefir látið sig
dreyma um Franco sem sjálf-
stæðan einræðisherra, er væri
óháður Þjóðverjum og ítölum
og kysi því allrar aðstöðu vegna
að hafa góða sambúð við Breta
Churchill segir líka, að sigur
stjórnarinnar hefði verið æski
legri af þeirri ástasðu, áð Bret-
ar og Frakkar hefðu frekar get
að fengið hana til að draga úr
hefndarráðstöfunum að styrj-
öldinni lokinni, en ítalir og
Þjóðverjar muni hvetja Franco
til að sýna andstæðingum sín
um vægðarlausa harðýðgi. -
Þessi ummæli Churchills virð
ast sannast á því, að fyrsta verk
uppreisnarmanna eftir að þeir
tóku Barcelona, var að stofna
herrétt og talið er, að þeir hafi
fyrir nokkru haft spjaldskrá yf-
ir eina miljón manna á stjórn-
ar-Spáni„ sem þyrfti að koma
fram hefndum á fyrir þátttöku
þeirra i styrjöldinni.
Margt virðist benda til, að
Bi'etar og Frakkar muni
næstunni gera tilraun til þess að
koma á sættum á Spáni, gegn
þvi að stríðsaðilar heiti hvorir
öðrum griðum, yfirráð Francos
verði að meira eða minna leyti
viðurkennd og allir útlendir
hermenn verði fluttir þaðan
brott. Fyrir Franco væru þess-
ii’ skilmálar að mörgu leyti að-
gengilegir. Hann losnaði við á-
framhaldandi styrjöld, ynni sér
vináttu Breta, sem eru líkleg-
astir til að geta veitt honum
fjárhagslega hjálp, og yrði laus
við hina vaxandi óánægju
margra liðsmanna sinna gegn
yfirgangi Þjóðverja og ítala á
Spáni. En hinsvegar myndi
þetta veikja vináttu hans við
ítali og Þjóðverja. Það reynir
þvi á það, hvort hann er orðinn
þeim svo háður, að þeir geti
sett honum kosti eftír eigin
vild.
Heppnist Bretum og Frökkum
ekki þessar ráðagerðir, getur vel
svo farið, að Spánn verði áður
en lýkur, orsök nýrrar heims-
styrjaldar. Fyrir Frakkland og
Bretland er ekki hægt að una
því, að Þjóðverjar og ítalir fái
hernaðarlega aðstöðu á Spáni
og Spánn verði einskonar hjá
lenda þeirra. Bretum og Frökk
um er orðið það ljóst nú, að hjá
(Framh. á 4. síðu)
A ví&avangi
Út af þvættingi Mbl. um
stjórnarkosningu í Búnaðarfé-
lagi Vestmannaeyj a, skal þetta
tekið fram, samkvæmt upplýs-
ingum, sem Tíminn nú hefir
fengið frá Eyjum: Eini Fram
sóknarmaðurinn, sem áður var í
stjórn félagsins, Hannes Sig-
urðsson Brimhólum, var endur-
kosinn með hæstri atkvæðatölu,
62 af 80 greiddum atkveeðum.
Efsti maður Sj álfstæðisflokks-
ns við síðustu bæj arstj órnar-
kosningar, fékk hinsvegar ekki
nema 28 atkv. og komst inn
með hlutkesti milli hans og
samfylkingarmanns, sem fékk
afn mörg atkv. Þeir þrír, sem
úr stjórninni gengu, voru einn
Sjálfstæðismaður, einn Alþýðu-
flokksmaður og (sennil.) einn
Samfylkingarmaður. Framsókn-
arfl.okku.inn má því vel við una,
bær -sem hann átti aðeins einn
fulltrúa áður og fékk hann nú
ndurkosinn með hæstri at-
kvæðatölu. Það eru líka ósann-
indi hjá Mbl., að tap hafi orðið
á vörusölu félagsins sl. ár.
* k *
Þjóðviljinn er úrillur út af
bví að Tíminn skuli skýra frá
rví, sem ritað er í þekkt erlend
blöð um utanríkismálastefnu
Rússa og afstöðu þeirra í flótta-
mannamálinu. Um þetta fer
Timinn vitanlega eftir sörnu
reg;lum og í fréttaflutningi frá
öðrum löndum. Hinu er ekki
hægt að gera við, þótt eitthvaö
af þeim upplýsingum, sem
óarna eru gefnar, komi að-
standendum Þjóðviljans á óvart.
Á þeim hefir löngum sannazt
hið fornkveðna: Sá segir mest
af Ólafi kóngi, sem hvorki hefir
heyrt hann né séð. Og þekking
kommúnista hér á landi á á-
formum Stalins ristir áreiðan-
lega grynnra en sumir, og þar á
meðal þeir sjálfir, halda.
* * *
Svar Bjarna Benediktssonar í
dag við hinni rökstuddu grein
um Rvík í síðasta blaði Tímans
er bæði lítið og magurt. Helzt er
svo að skilja, að hann vilji gefa
núverandi ríkisstjórn sök á
flutningi fólks í bæinn. Hitt mun
bó sönnu nær, að með margs-
konar framförum, sem komið
hefir verið á í sveitum með
stuðningi ríkisvaldsins, hafí
fólksstraumurinn orðið minni en
hann annars hefði verið. Hvað
hefði t. d. orðið um íbúa þeirra
200 nýbýla, sem búið er að reisa
á síðustu 3 árum? Og það ætti B.
B. að geta skilið, ef hann hugsar
sig um, að honum er ekki stætt
að halda því fram samtímis 1.
að stjórnin hafi farið svo illa
með atvinnuvegi Reykjavíkur. að
þar sé óbúandi og 2. að stjórnin
hafi stuðlað að innflutningi
fólks í bæinn! Slíkar mótsagnir í
málflutning gefast ekk vel, þeg-
ar til lengdar lætur.
* * *
Hinsvegar er rétt að vekja at-
athygli á því, að gefnu tilefni,
að engir hafa stuðlað meir að
flutningi fólks tíl Reykjavíkur en
einmitt ráðamenn bæjarins. Þeir
hafa í tíma og ótíma gumað af
því í blöðum sínum, hve ástand-
ið í bænum væri glæsilegt, fjár-
málastjórnin prýðileg, og að þar
réðu ráðsettir menn, sem væru á
móti skuldasöfnun og skatta-
hækkun. Það er engln furða,
þótt einhverjir hafi glæpst til að
taka mark á slíku, svo oft sem
það hefir verið endurtekið.
Ekki getur B. B. neitað því, að
allt það fé, sem ríkið leggur fram
til trygginganna í Reykjavík
gengur til bæjarsjóðsins eða
bæjarbúa. Hinsvegar fær ríkið
ekkert, hvorki af sínu eigin
framlagi, bæjarins eða bæjar-
búa. Það þýðir ekkert fyrir B. B.
að vera með útúrsnúninga í
þessu efni.
* * *
Þá hyggst B. B. að gera sér
mat úr því, að i Tímanum höfðu
af vangá verið tilgreindar
tekjuskattstölur fyrir allt land-
ið í stað talnanna fyrir Reykja-
(Framh. á 4. síöu.)