Tíminn - 31.01.1939, Qupperneq 4
52
TÍMIM, þrigjndagiim 31. janúar 1939
13. bla»
Skagfírðíngamót
verður lialdið að Ilótcl Borg' fiiiimtudagiiin
2. fcbniar.
Skcmmtiatriði verða: ræður, söngur og danz.
Mótið hefst með borðhaldi kl. 7 i/2.
Aðgöngumiðar seldir í „Flóru“ og Hótel Borg, og þarf að
vitja þeirra fyrir miðvikudagskvöld.
Stjórn Skagfirðingafélagsins.
V eggteppasýning.
Nú er síðasta tækífæri til að sjá veggteppi Þórdísar Eg-
ilsdóttur frá ísafirði; sýningin verður opin til miðvikudags-
kvölds frá kl, 10 f. h. til 10 e. h. í Fatabúðinni. Aðgangur 50
aurar. — Teppin verða ekki oftar til sýnis. —
Mýtt sinjörlikJ
Nýr Biái borðí á 20 ára aímæii Smára
kemur út um landíð með Súðinni.
Smjörlíkið heiir mætl svo miklum vínsældum
að síðustu 5 daga heiír verksmiðjan iramleitt
yfir 8000 pakka á dag.
Sá maður, sem nú er talinn
líklegasti eftirmaður Chamber-
lains, ef hann léti fljótlega af
völdum, er Samuel Hoare innan-
ríkisráðherra.
Þegar Hoare varð að láta af
störfum utanríkisráðherra i nóv-
ember 1935, vegna Hoare—
Lavals- tillagnanna svonefndu í
Abessiníumálinu, töldu flestir
hann pólitískt dauðan. En
reynslan sýndi, að hann hafði
þar verið raunsœrri en sam-
starfsmenn hans og mest líkindi
til að þessi mál hefðu leyst á
hagkvœmari hátt, ef ráðum hans
hefði þá verið fylgt. Hann fékk
því bráðlega aftur sæti í stjórn-
inní sem hermálaráðherra. Þeg-
ar Chamberlain myndaði ráðu-
neyti sitt 1937 varð Hoare innan-
ríkisráðherra, en það er þriðja
mesta tignarstaðan i brezka
ráðuneytinu.
Hoare er 58 ára gamall. Hann
gekk fyrst á hinn frœga skóla l
Harrow og síðan á háskóla í Ox-
ford. Hann var fyrst kosinn á.
þing 1910 og hefir jafnan átt þar
sœti síðan. Á styrjaldarárunum
starfaði hann l þjónustu utan-
ríkisráðuneytisins í Róm, Moskva
og viðar og er talið, að starf hans
á þeim stöðum hafi haft mikla
þýðingu. Kom þá greinilega í
Ijós, hversu auðvelt hann á með
að vinna sér hylli manna með
persónulegri viðkynningu. Hann
er jafnframt framúrskarandí
málamaður.
Þegar þjóðstjörnin var mynd-
uð 1931 varð Hoare Indlands-
málaráðherra. Sýndi hann mikla
rögg l því starfi og gekk m. a.
frá nýrri stjórnarskrá fyrir Ind-
land. Hann varð utanríkismála-
ráðherra l júní 1935.
Hoare er glœsimenni í útliti og
mjög aðlaðandi í viðmóti. Hann
er rœðumaður ágætur. Hann
hefir jafnan lagt mikla stund á
iþróttir, m. a. skíðaferðir, sem
hann hefir stundað á vetrum í
Ölpunum. Kona hans hefir
einnig mikinn áhuga fyrir
stjórnmálum og er honum mjög
samhent.
* * *
Seytján ára gömul stúlka í
Indlandi gerír kröfu til þess að
vera talin hárprúðasta stúlka í
heimi. Hún hefir 2.10 metra
langt hár.
* * *
Það hefir þótt sannast i seinni
tið, að fingraför væru ekki ein-
hlit til að þekkja menn. Nú hefir
þekktur vísindamaður l Manch-
ester, W. B. Barker, fundið upp
nýja aðferð til notkunar i þessu
skyni. Hún er í því fólgin, að
Ijósmynda nethimnu augnanna,
en í henni eru smá blóðrákir, sem
eru sérkennilegar fyrir hvern
einstakling. Þœr ðoreytast sama
og ekkert þótt menn eldist og
það er ekki hœgt að ná þeim
burtu, nema með þvi að eyði-
leggja sjónina. Enskir leynilög-
reglumenn eru nú að gera til-
raunir með þessa aðferð og láta
vel af henni.
ÚR BÆNUM
Félag ungra Framsóknarmanna
heldur fund í Sambandshúsinu á
föstudagskvöldið. Fundurinn hefst kl.
8,30. Hallgrímur Jónasson kennari sýn-
ir skuggamyndir frá Norðurlöndum.
Ágúst Sigurðsson cand. mag. talar
nokkur orð um námsfiokka. Að því
loknu verða umræður um atvinnuleysið
í kaupstöðunum og hefir Salómon Ein-
arsson framsögu.
Glímufélagið Ármann
heldur hátíðlegt fimmtíu ára afmæli
sitt með íþróttasýningum, ræðuhöldum
og samsætum dagana 1.—5. febrúar.
Verður fyrsta samkoman í Iðnó kl. 9
annað kvöld og mun Ármannsglíman
fara .þar fram. Keppendur eru tíu.
Einnig flytur séra Helgi Hjálmarsson
erindi um glímuna fyrir fimmtíu árum
og sýndar verða skuggamyndir af glímu.
Á fimmtudagskvöldið verður sam-
koma í íþróttahúsi Jóns Þorsteinsson-
ar og hefst hún kl. 9. Sýna þar fjm-
leika úrvalsflokkar drengja og kvenna
úr Ármanni, Hermann Jónasson og
Halldór Hansen læknir flytja ræður og
Karlakór iðnaðarmanna syngur. Auk
þess verður danssýning og glímusýning.
Á föstudagskvöldið verða enn fimleika-
sýningar, ræðuhöld og íþróttasýningar
í íþróttahúsinu. Á sunnudagskvöld
verður haldið samsæti fyrir félagsmenn
og gesti þeirra að Hótel Borg.
Prentvillur
meinlegar hafa slæðst í sálmabókar-
málsgrein Bjarnar Bjarnarsonar í
Grafarholti í 10. tölublaði Tímans. í 2.
dálki 33. línu að neðan stendur: ekki
harmur, fyrir: ekki harmbót. í 2. dáiki
greinarinnar 25. 1. a. n. stendur: er
gæddur, fyrir: ert gæddur. í 3. dálki 2.
línu a. n. er orðinu ,.pín“ ofaukið. í 3.
d. neðstu línu stendur: pínu, fyrir þínu.
í 4. dálki 5. 1. a. o. stendur: blómatréð,
fyrir: blómstrið. í 4. d. 5.1. a. o. stend-
ur: ísabeygðum lýð, fyrir: Isa byegðar
lýð.
Skjaldarglíma Ármanns
verður háð á morgun, 1. febrúar, í
Iðnó. Áður en glíman hefst flytur séra
Helgi Hjálmarsson erir.di, sem hann
nefnir: Glíman f yrir 50 árum. Þá verða
sýndar gamlar glímumyndir, skugga-
myndir. Keppcndur í glímunni eru tíu:
Skúli Þorleifsson, Þorkell Þorkelsson,
Ingimundur Guðmundsson, Kristófer
Kristófersson, Njáll Guðmundsson,
Kristján Bl. Guðmundsson, Einar
Sturluson, Sigurður Hallbjörnsson, Jó-
hannes Bjarnason, Sigurður Guð-
mundsson. Af mönnum þessum er
þekktastur Skúli Þorleifsson, en þó
munu þeir Ingimundur og Jóhannes
Bjarnason verða honum skæðir keppi-
nautar. En margir hinna eru líka góðir
glímumenn. Skjaldarhafi er nú Lárus
Salómonsson. Skjaldarglíman er upp-
haf að hátíðahöldum Ármanns í tilefni
af 50 ára afmælinu, og eru þessvegna
á dagskránni þessi tvö atriði áður en
keppnin fer fram.
Á krossgötnm.
(Framh. af 1. síðu)
ið. Setti þetta mikinn geig í menn, en
þó var laugin byggð að nýju á sama
stað og fyrr, þar eð ekki var um önnur
sundlaugarstæði að velja. Var hún nú
hálfu ramgerðari en fyrr. Alla vinnu
við sundlaugina lögðu menn til án
endurgjalds, og var hún bæði mikil
og erfið.
t t t
Þá hefir ungmennafélagið einnig
haft í smíðum mikið og vandað sam-
komuhús. Er þar stór samkomusalur og
leiksvið og borðsalur, eldhús og forstofa
í útbyggingu. Húsið er senn fullgert
og hafa félagar lagt fram mestan
vinnukraft sjálfir og að mestu án end-
urgjalds. Sé kostnaður við bygginguna
allur reiknaður til peninga myndi það
hafa kostað mn fjórtán þúsund krón-
ur. Húsið er nú notað sem samkomu-
staður og þingstaður sveitarinnar.
Einnig er í ráði að nota það sem barna-
skólahús. Samkomuhúsið er í Skarðs-
hlíð.
Hvað gcrist i íebrúar?
(Framh. af 1. siðu)
Blaðið á hér auðsjáanlega við
Spönsku-Marokkó og eina Ba-
leareyna, Minorca, sem enn er
undir yfirráðum spönsku
stjórnarinnar. En spanska Mar-
okkó hefir jafnmikla þýðingu
fyrir innsiglinguna í Miðjarðar-
hafið og Gibraltar, en þeir, sem
ráða yfir öllum Baleareyjum,
ráða jafnframt yfir helztu sigl-
ingaleiðinni milli Frakklands og
nýlendna þess í Norður-Afríku.
Það er auðsjáanlega markmið
Mussolini að búa svo um sig á
Spáni, að ítalir geti haft þar
bækistöðvar í ófriði við Frakka.
Það er hinsvegar markmið
Breta og Frakka að hindra slíkt
og gera Spánverja aftur óháða
ítölum. Um þetta munu verða
höfuðátök í næsta mánuði. Og
meðan þetta deilumál er óleyst,
getur Spánn auðveldlega orðið
orsök nýrrar heimsstyrj aldar.
kVÁ\-s
H i 1 J-rr?i
Niíðiii
fer austur um til Siglufjarðar
fimmtudag 2. febrúar kl. 9 síð-
degis.
Flutningi veitt móttaka í dag
og til hádegis á morgun.
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir degi fyrir burtferð.
Stoina kommúnistar
og íhaldsmenn
verklýðssamband?
(Framh. af 1. síðu)
engin verkalýðshreyfing og ein-
mitt þetta hafa þeir fundið Al-
þýðusambandinu mest til for-
áttu. Er það áreiðanlegt, að þessi
skoðun kommúnista er ekki
breytt, þó þeim þyki hyggilegra
nú í bili að starfa undir gæru
hins pólitíska hlutleysis.
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.
218 Andreas PoltZer:
Whinstone, Forest og einn af lögreglu-
þjónunum, hlupu upp stigann.
Hurðin að ganginum á efstu hæð var
ólæst, og þeir ruddust inn, með vopn í
hendi. Þarna var allt á öðrum endanum
og var sjáanlegt að heimamenn höfðu
flúið í mesta skyndi.
Whinstone varð að játa, að hann hefði
komið of seint. Fuglinn var floginn.
Kortéri síðar hafði Whinstone fengið
vitneskju um allt það nauðsynlegasta:
Húsbóndinn, sem var vátryggingasali,
hafði leigt herbergin á efstu hæð út-
lendum manni, sem kallað sig Alphonse
Gaté. Þessi Gaté — lýsingin á honum
kom vel heim við Meller — hafði haft
þjón með sér. Húsbóndinn hafði ekki séð
þá oft, en fólkið á miðhæðinni hafði oft
orðið þess vart, að Gaté fékk heim-
sóknir á nóttunni.
Maðurinn, sem hafði hleypt Whinstone
og félögum hans inn og sem hafði átt
heima í dyravarðaríbúðinni á neðstu
hæð, sagðist hafa séð Gaté fara að
heiman kvöldið áður, með talsvert af
töskum. Þjónninn hlaut að hafa verið
heima um nóttina, því að það hafði sézt
ljós í íbúðinni snemma um morguninn.
Whinstone fulltrúi braut árangurslaust
heilann um, hver myndi hafa sent Scot-
land Yard nafnlausa bréfið — það var að
vísu skrifað utan á það til Whinstones
Patricia 219
persónulega — og hver það væri, sem
hefði aðvarað þorparana um að flýja.
Á leiðinni heim til Scotland Yard gat
hann ekki um annað hugsað en þetta
og athygli hans beindist loks einkum að
ef tirfarandi:
í bréfinu var skýrt tekið fram, að hann
ætti að gera leit í húsnu árdegis þennan
dag, en heimilismennirnir hefðu flúið
undir eins kvöldið áður — og þá var
bréfið ekki einu sinni komið í póstinn.
Þjónninn hafði hinsvegar verið í íbúðinni
um nóttina. Húsbóndi hans, sem flúinn
var, hafði, að því er virtist, ekki aðvarað
hann....
Átti að skilja þetta svo, að einhver
hefði reynt að setja gildru fyrir þennan
svokallaða þjón? spurði Whinstone sjálf-
an sig. Þetta var alls ekki svo fjarri
sanni. Fulltrúinn þekkti fleiri en eitt
dæmi þess, að glæpamenn höfðu þessa
aðferð til að losna við samsektarmenn
sem voru þeim til óþæginda.
Þegar Whinstone kom aftur í Scotland
Yard, sagði hann Duffy yfirfulltrúa frá
fýluferð sinni til Islington, en gat ekki
einu orði um grun sinn á þjóninum, sem
hann ekki vissi hver var.
Sambúð Whinstones við yfirmann sinn
var ekki beinlínis ástúðleg, og í Scotland
Yard var það ekkert leyndarmál, að þeir
Duffy og Whinstone höfðu ekki sérlega
mtmœœœGAMLA bíó»
SJÓMAMALfF
Heimsfxæg amerísk kvik-
mynd, tekin af Metro-
Gooldwyn-Mayer samkv.
hinni góðu sjómannasögu
Rudyard Kipling, og sem
birzt hefir í íslenzkri þýð-
ingu Þorsteins Gíslasonar.
Aðalhlutverkin eru fram-
úrskarandi vel leikin af
hinum ágætu leikurum:
Spencer Tracy,
Freddie Bartholomew,
Lional Barrymore.
nýja BíóramíivmritÞ
Chicago-
bruniim 1871.
(In old Chicago).
Söguleg stórmynd frá
Foxfélaginu.
Aðalhlutv. leika:
TYRON POWER,
ALICE FAYE,
DON AMACHI O. fl.
Mikilmetnustu kvikmynda
gagnrýnendur heimsblað-
anna telja þessa mynd
risavaxnasta listaverk.
Börn fá ekki aðgang.
Refaskinn.
Kaupum og tökum í umboðssölu allar
tegundir reiaskínna.
Höfum undanfarin ár selt fyrír ýms stærstu
refabú landsins.
G. Helgason & Melsted h.í.
Reykjavik. Símnefni: Melsted. Simi 1644.
Takid eftir!
Ferðir Strætisvagna Reykjavíkur h/f. verða fyrst um sinn
sem hér segir frá og með 1. febrúar:
Lækjargata—Landsspítali:
Fyrsta ferð kl. 12,10 og síðan á 15 mínútna fresti til kl. 20,20.
Ekið um Laufásveg og Bergstaðastræti til baka.
Lækjartorg—Sundlaugar:
Fyrsta ferð kl. 12,20 og síðan á 30 mínútna fresti til kl. 20,20
Lækjartorg—Stiidentagarður-Tiingata:
Fyrsta ferð kl. 7,45 og síðan á 30. mínútna fresti til kl. 23,45.
Ekið um Lækjargötu—Fríkirkjuveg—Skothúsveg—Bjark-
argötu — Hringbraut — Hofsvallagötu—Túngötu—Kirkju-
str æti—Lækj ar götu.
Lækjartorg—Kleppur:
Fyrsta ferð kl. 7,05 og síðan á 30 mínútna fresti til kl. 24,05.
Frá Kleppi 20 mínútum eftir brottför af Lækjartorgi.
Læk j ar torg—Sker j af j örður:
Fyrsta ferð kl. 7,03 og síðan á 30 mínútna fresti til kl. 24,03.
Á 15 mínútna fresti frá kl. 12,03 til kl. 20,33.
Lækjartorg—Sogamýri:
Fyrsta ferð kl. 7,00 og síðan á klukkustundar fresti til kl.
24,00.
Læk j ar tor g—Selt j arnarncs:
Fyrsta ferð kl. 7,02 og síðan á 30 mínútna fresti til kl. 24,02.
NB. Ekið að Nýjabæjarhliði kl. 9,02 — 12,02 — 16,02 — 20,02
— 24,02.
Lækjartorg—Njálsgata—Guimarsbraut:
Fyrsta ferð kl. 7,04 og siðan á 12 mínútna fresti til kl. 24,04.
Ekið um Njálsgötu — Barónsstíg — Hringbraut — Njáls-
götu — Gunnarsbraut — Flókagötu — Hringbraut — Leifs-
götu — Barónsstíg — Freyjugötu — Lækjartorg.
Lækjartorg—Sólvellir:
Fyrsta ferð kl. 6,48 og síðan á 12 mínútna fresti til kl. 24,00.
ATH. Klippið augl. úr blaðinu og geymið.
Strætísvagnar Reykjavíkur hÁ.
Idnaðarmannafélagið í Reykjavík
heldur afmælisfagnað að Hótel Borg föstudaginn 3. febrúar
næstk. og hefst með dansleik kl. 9 síðd.
GÍSLl SIGURÐSSON SKEMMTIR.
Aðgöngumiðar fást hjá: Jóni Hermannssyni, Málaranum, Ósk-
ari Gíslasyni Laugaveg 4 og Sveini Hjartarsyni Bræðraborg-
arstíg 1.
Stjórn og skemmtinefnd.
Námsflokkar Reykjavíkur.
Námsflokkarnir byrja starf sitt 10. febrúar. Þessar greinar
verða kenndar: íslenzka, íslenzkar bókmenntir, danska, enska,
félagsfræði, hagfræði, náttúrufræði og saga (mannkynssaga og
saga íslands).
Kennarar námsflokkanna verða sérfræðingar hver í sinni
grein. Kennt verður eitt kvöld í viku í hverri grein, kl. 8—9y2-
Þátttaka í einni eða fleiri greinum eftir vali.
ÖLL KENNSLAN ER ÓKEYPIS.
Allar frekari upplýsingar gefur undirritaður, heima dag-
lega 6—8.
Ágúst Stgurðsson, Grettisgötu 46.