Tíminn - 02.02.1939, Blaðsíða 3

Tíminn - 02.02.1939, Blaðsíða 3
14. blað TÍMlftV fimmtmlagiim 2. fehrúar 1939 55 Benedikt Blöndal (Framh. af 2. síðu) hjón svo samtaka um það mál, að hvorugt gat þar án hins ver- ið. Eftir að Framsóknarflokkur- in náði völdum 1927 byrjaði að komast skriður á kvennaskóla- mál Austfirðinga á Alþingi, þótt þungróið virtist í byrjun, sem glöggt má sjá af Alþingistíð- indum frá þeim tíma. Málinu miðaði þó áfram, að langmestu leyti fyrir vinsældir, áhuga og ósérplægni þeirra hjóna heima- fyrir. Margt var í molum, jafn- vel um fyrirkomulag skólahúss- ins. Sín tillagan kom úr hverri áttinni. En einhvernveginn tókst þeim hjónum að fella svo saman það brotasilfur, að flest- ir, sem 'skoða þann skóla nú, munu telja hann einkennilega fagurt, hlýlegt og þjóðlegt heim- ili og menntaból fyrir íslenzk húsmæðraefni. Alþingishátíð- arárið 1930 tók skólinn til starfa, að vísu í fátæklegum búningi, sem mikilla endurbóta þurfti við. En aðalmarkinu var náð. Skólinn var risinn á legg. Frú Sigrún Blöndal var ráðin forstöðukona skólans í byrjun og hefir verið það æ síðan. Benedikt Blöndal hefir veriö talinn aukakennari við skól- ann, eiginlega alveg ólaunað- ur, en i raun og veru hefir hann verið skólanum miklu meira. Á herðum hans hefir frá byrjun hvílt aðalþunginn af fjármálaerfiðleikum skólans og vaxtarþörf hans utanhúss, og auk þess hefir hann verið konu sinni alveg ómetanleg aðstoð. við stjórn og starfsemi skólans inn á við. Frú Sigrún Blöndal er móðir Hallormsstaðaskólans. Bene- dikt Blöndal var sannarlega faðir hans. Hallormsstaðaskóli var óskabarn hjónanna. Honum hafa þau fært stærstar fórnir, á hann hafa þau lagt mesta ást og við hann hafa þau bundið hæstar vonir. Væri vel að sam- herjar Benedikts Blöndal og vinir Hallormsstaðaskóla legðu nú lið sitt til þess, að þær vonir brigðust ekki. Svo sem fyrr er getið, byrjaði Benedikt Blöndal fljótt að draga að sér góðan bókakost. Hann keypti í öllum áttum sjaldgæfar íslenzkar bækur, lét bæta útlit þeirra, ef þurfti, geymdi þær á réttan hátt og gerði þannig sjálfum sér og nemendum sín- um kleift að njóta þess gagns og þeirrar ánægju, sem fylgir þvi að geta átt aðgang að góðu bókasafni. Bókasafni þessu bættist drjúgur skerfur við giftingu þeirra hjóna, því á Hallormsstað var gamalt ættar- bókasafn allt frá tíð Sigurðar Gunnarssonar prófasts þar. — Bókasölu hafði Benedikt á hendi á Eiðum og ætíð síðan. Stuðlaði hann þannig að út- breiðslu góðra bóka, jafnframt því, sem honum varð á þann hátt léttara að auka bókasafn sitt. Myndaðist umhverfis hann andrúmsloft, sérstaklega hollt bókelskum og bóklesandi mönn- um. Hafði hann á þann hátt hina mestu þýðingu fyrir um- hverfi sitt. Bókasafn þeirra hjóna er nú að miklum mun stærra og vandaðra en nokkurt það bókasafn er ég hefi séð á íslenzku sveitaheimili Landbúnaðarmálin voru á- hugamál Benedikts Blöndals ekki einungis menntun hús- bænda og húsmæðraefna, held- ur og framkvæmdirnar sjálfar. Öll þau 30 ár er hann lifði á Austurlandi, tók hann þátt í starfi Búnaðarsambandsins þar og öðrum almennum búnaðar- framförum bæði sem starfsmað- ur þess og stjórnarnefndarmað- ur, trúnaðarmaður Búnaðarfé- lags íslands og Búnaðarþings- fulltrúi. Öll reyndust störf hans í þessum efnum notadrjúg og lángefin. Ein fyrsta byrjunin hefir liklega verið útlendi trjá- gróðurinn í Eiðahólma, en end- irinn úthýsabæturnar og ný- ræktin á Hallormsstað. Síðustu 15 árin var hann féhirðir Bún- aðarsambands Austurlands. — Benedikt var í eðli sínu hirðu- samur og glöggur fjárgæzlu- maður. Ætla ég það ekki of- mælt, að allra manna bezt hafi honum verið treyst sem féhirði sambandsins, enda hvergi brugðizt því trausti. Samvinnumálin lét Benedikt Blöndal mjög til sín taka. Hef- ir hann átt sæti í stjórn Kaup- félags Héraðsbúa á Reyðarfirði síðan 1921 og notið þar bæði A N N A L L Afmælt. Guðlnundur Ingimundarson frá Garði í Núpasveit, nú bóndi á Presthólum í sömu sveit, varð sjötugur 4. október síðastliðinn. Heimsóttu sveitungar hans hann þann dag og færðu hon- um að gjöf vandað skrifborð og skrifborðsstól. Dánardægur. Jón Sigurðsson bónda á Ás- mundarstöðum á Sléttu andað- ist í Kristneshæli 21. desember, 22 ára að aldri. Jón var hinn efnilegasti maður. Kenndi hann brjóstveiki síðastliðið sumar og lézt af völdum hennar. Friðfinna Friðbjarnardóttir Oddeyrargötu 8 á Akureyri and- aðist að heimili sínu 4. janúar. Hún var gift Aðalmundi Guð- mundssyni verkamanni, rösk- lega hálfáttræð að aldri. Ha,fði hún verið vanheil seinni árin. trausts og vinsælda. Lét hann sér ávalt jafn annt um sæmd og hagsmuni félagsheildarinnar sem einstakra viðskiptamanna. Reyndust störf hans fyrir fé- lagið á allan hátt hin nota- drýgstu. í almennum landsmálum hafði Benedikt Blöndal ákveðna stefnu. Markaðist sú stefna eðlilega af skoðunum hans í sérstökum málum, s. s. sam- vinnumálum, búnaðarmálum og skólamálum. Reyndist hann hér sem annarsstaðar dyggur og drjúgur starfsbróðir. Hann var enginn hávaðamaður. Og hann var of góðgjarn og of vitur til þess að eiga í illvígri viður- eign við andstæðinga. Hann gekk ekki fram fyrir fylkingar, en hann var ætíð reiðubúinn til að verja skoðanir sínar og sam- herja sinna, þegar það átti við. En þetta gerði hann á þann hátt, að andstæðingar hans í stjórnmálum urðu líka kunn- ingjar hans og jafnvel vinir. Valinn var Benedikt Blöndal í öll hugsanleg trúnaðarstörf í sveit sinni. Allir treystu honum. Ef ég ætti að benda á tvö höf- uðeinkenni á skaplyndi Bene- dikts Blöndal mundi ég til þess nefna góðvild og tryggð. Þessi tvö einkenni, hvort um sig og sameiginlega virðist mér að hafi markað skýrastan svip á lífsstörf hans. Góðvildin hvatti hann til stuðnings við góð málefni. Hún gerði hann skyggnan á góðan málstað og á hið góða, sem í öll- um mönnum býr. Hún gerði hon- um ljúft að horfa á allt sem var gott um málefni og menn, en jafnframt að horfa framhjá, eða yfir hitt, sem miður var. Hún gerði öllum mönnum notalegt að dvelja i nærveru við hann: Hún gerði sjálfan hann bjartsýnan og trúaðan á sigur góðra mála. Tryggðin gerði hann hinsveg- ar vandlátan um störf sín og breytni og var frumorsök að ýmsu í háttum hans, sem fljótt á litið sýnist máske æði óskylt. Bened. Bl. vildi, að allt, sem hann kom nærri, eða starfaði að væri ósvikið, væri ekta. Mér skilst að þetta hafi verið höfuðástæðan fyrir því, að hann klæddist heimaunnum ullarfatnaði og skinnum, þegar honum þótti það eiga við. Af sömu orsök nægði honum það ekki, að að húsmunir hans og aðrir hlutir litu vel út, þeir urðu líka að vera úr völdu efni, og traustir að smíð. Þess- vegna varð bókasafn hans svo vandað sem það nú er. Og þess- vegna reyndist hann sá starfs- maður og samstarfsmaður, sem hann var. Af þessari ástæðu hik- aði hann ekki við það að legggja sjálfan sig í hættu fyrir starf, er hann hafði tekist á hendur, og því miður að lokum í full- komna lífshættu. Austfirðingar mættu vel muna tryggð Bened. Bl. Þótt hann væri ættaður og uppalinn vestan til á landinu, reyndist hann Austurlandi og störfunum þar svo tryggur, að betri Austfirðingur held ég að aldrei hafi verið til. Góðvild hans og tryggð áttu langstærstan þáttinn í því að skapa honum þær vinsældir og það traust, sem hann naut, og naut því meir er menn skildu hann betur. Þótt ekki stæði margmenni yfir greftrun hans, fannst það þó vel þar, að á eftir 50 ára afmælisfagnaði glímufélagsins Ármann lýkur með borðhaldi að Hótel Borg sunnudaginn 5. febrúar kl. 6 y2 síðdegis. Þátttökulistar fyrir félagsmenn og gesti þeirra liggja frammi á afgr. Álafoss og í verzluninni Brynju. Síjórn Glímufélagsins Ármaim. Hitseignin Öldugata 4 er til sölu, hentug fyrir 2 kaup- endur. Góðir greiðsluskilmálar. Uppl. gefur: KRISTJÁN SIGGEIRSSON. ÚTBREIÐIÐ TÍMANN i/ls a- 2 0 S T K . PAKKINN KOSTAR KR. 1.6« tekur öllu öðru s m Vegna pess, að LJÓMI hefir fullkomnari vél- ar en nokkur önnur smjörlíkisgerð á landinu. Hin nýja gerð ATLAS-VÉLANNA sem LJÓMI fékk á síðastliðnu ári fer nú sigurför um LJOMI er einasta smjörlíkisgerð á landinv sem hefir pessa allra nýjustu gerð Atlas-véla Húsmóðirin velur LJÓMASMJÖRLÍKI vegna pess, að hún hefir reynslu fyrir pví, að bezt er að BAKA úr LJÓMA, bezt að steíkja og brúna í LJÓMA, að pví ógleymdu að LJÓMI geymist betur en nokkurt annað smjörlíkí. Menn greínír á um maigt, en eítt eru allir sammála að bezt er - Kaup og sala - Ullarefni og sllki, margar tegundir. BLÚSSUR, KJÓLAR o. fl. nýkomið. SAUMASTOFAN UPPSÖLUM. Sími 2744. honum var horft með ósviknum söknuði. Maöur er nefndur Helgi Ás- bjarnarson, sonarsonur Hrafn- kels Freysgoða. Að Síðu-Halli undanskildum er hann mér hug- Beztu kolín GEIR H. ZDEGA Símar: 1964 og 4017. þekkastur af austfirzkum höfð- ingjum á söguöld. Hann var frið- samur höfðingi, bjargvættur nauðstaddra manna ög mann- 224 Andreas Poltzer: Patricia 221 vinur. Hann bjó fyrst á Orms- stööum (= Hallormsstað), síðar í Mjóanesi, síðast á Eiðum. Bene- dikt Blöndal átti alla hina sömu bústaði og enga aðra á Austur- landi, aðeins í annari, og að því er mér virðist, ánægjulegri röð. Margt þykir mér líkt um þessa tvo höfðingja. Hvorugur var harðsnúinn eða hávær hér- aðshöfðingi. En eiginleikar í fari þeirra sköpuðu báðum ást og virðingu samherja, en traust allra. Helga þótti Hallormsstaður vekja sér svo sárar endurminn- ingar, að þar mátti hann ekki festa yndi. Færðist því lengra í norður og féll fyrir kulda rang- snúins aldaranda. Hinsvegar gaf Hallormsstaður Benedikt Blön- dal meginþáttinn í lífshamingju hans. Benedikt sótti í áttina að Hallormsstað, sótti í suður. Leit- aði að skjóli, hlýindum og birtu, ekki svo mjög fyrir sjálfan sig, heldur fyrir menningu, þroska og vaxandi frama þjóðar sinnar. Að síðustu gaf Hallormsstaður Bened. Blöndal gröf, sem meira líktist brúðhjónasæng en venju- legri dáins manns gröf. Páll Hermannsson. eftir honum í sima. Ef Violet og Patricia hefðu forfallazt, mundu þær auðvitað hafa gert aðvart um það í það I sim- anum. En þegar enn leið löng stund fór Whin- stone að gerast órólegur. Loks afréð hann að síma til matsölu frú Croys, þó að framorðið væri. Og honum varð ekki rórra innanbrjósts, er hann fékk það svar, að Patricia væri ekki heima. Skyldl eitthvað hafa orðið að stúlkunum? Hann varð kviðnari með hverri mínútunni. Loks datt honum nokkuð i hug, sem gaf einfalda skýringu á því, að Patricia og Violet voru ekki komnar. Hann mundi hafa misskilið Violet eða tekið rangt eftir, og stúlkurnar mundu sitja á öðrum gildaskála! Jú, þannig hlaut það að vera. Hann mundi nú greinilega, að Violet hafði minnzt eitthvað á, að það værl dansað þar. Whinstone benti þjóninum og spurði hann.hvort nokkur annar gildaskáli væri til með sama nafni. — Ekki held ég það, svaraði þjónninn. — Einhver staður, þar sem dans er á kvöldin, hélt fulltrúinn áfram. — Jú, nú man ég það, sagði þjónninn. Það er lítill skemmtistaður rétt hjá Pic- cadilly og Dover Street.... — Já það er rétti staðurinn! Gefið mér reikninginn, þjónn. eina sönnunin gegn honum, voru tvö þumalfingraför, sem höfðu fundizt á kopardósum — þau voru alveg eins og fingraför Rasmussens. Dómarinn í Kaupmannahöfn hlýtur að vera einn þeirra manna, sem hlýðir að- vörún innri raddar, því að hann ályktaði sem svo, að fingraför tveggja manna gætu verið eins, og sýknaði Rasmussen blátt áfram. Sjö árum síðar lagðist grunur á Ras- mussen fyrir nýtt innbrot. Aðstæðurnar voru mjög líkar og 1907. Rasmussen þrætti jafn eindregið og áður, en fingra- förin sem fundust, voru eins og Rasmus- sens. Nú vildi rétturinn athuga þetta merki- lega tilfelli nánar. Kaupmannahafnar- lögreglan setti færustu menn sína i málið og hjá konu Rasmussens, sem nú var skilin við hann, fannst rifrildl af dag- blaði, sem féll alveg saman við blaðrifr- ildi, er fundizt hafði þar sem stolið var. Nú var þetta ekki vafamál lengur. En þá gerðist nokkuð, sem tíðindum sætti: Dómarinn fékk ofurlitla sendingu í póstinum. Það var askja með einu arm- bandinu, sem stolið hafði verið. Og í nafnlausu bréfi, sem fylgdi, játaði send- andinn að hann væri þjófurinn. Hann sagðist hafa heyrt, að Rasmussen hefði

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.