Tíminn - 11.02.1939, Page 4
72
TÍMCVN, lawgardagmn 11. febrnar 1939
18. blað
Annar aðstoðarlæknir
Staða annars aðstoðarlæknis á Vííilsstöðum er
laus frá 1. apríl n.k.
Laun eru kr. 200,00 á mánuði auk húsnæðis,
fæðis og þvotta
Umsóknir ásamt venjulegum upplýsingum send'
ist til stjórnarnefndar ríkisspítalanna fyrir 15. n. mán.
10 febrúar 1939.
Stjóruarnefnd ríkisspítalanna.
3VLOX.1-A.I?.
Ciano utanríkisráðherra Ítalíu
heitir fullu nafni Galeazzq Ciano
de Cortelazzo. Hann er hálf-
fertugur að aldri.
Hann er kominn af einni elztu
aðalsœttinni í Ítalíu. Faðir hans
var einn fyrsti aðalsmaðurinn,
sem gerðist fylgismaður Musso-
lini. Sjálfur gekk Ciano korn-
ungur i flokkinn. Eftir að hann
hafði lokið lagaprófi varð hann
blaðamaður um skeið og ritaði
aðallega um bókmenntir og leik-
sýningar. Árið 1925 hœtti hann
blaðamennskunni og starfaði
nokkurn tima á ítölsku sendi-
sveitarskrifstofunni i Peking. Er
hann kom heim aftur var hann
skipaður sendiherra ítala í páfa-
rikinu. Á þessum árum byrjaði
kunningsskapur hans og Eddu,
elztu dóttur Mussolini, fyrir al-
vöru og leiddi af sér giftingu
þeirra. Nokkru eftir giftinguna
varð Ciano aðalrœðismaður ítala
í Shanghai og fór Edda þangað
með honum. Þau dvöldu þar ekki
lengi, þvi að Mussolini gerði
tengdason sinn að útbreiðslu-
málaráðherra. Þegar Abessiníu-
styrjöldin hófst fór Ciano þang-
að og var þar stjórnandi helztu
flugsveitarinnar. Stjórnaði hann
fyrstu flugárásinni, sem gerð var
á Addis Abeba. Að styrjöldinni
lokinni gerði Mussolini hann að
utanrikisráðherra og þeirri stöðu
hefir hann gegnt síðan.
Þó það sé Ijóst, að Ciano greifi
á tengdum sinum fyrst og fremst
að þakka hinn skjóta frama sinn,
dylst ekki að hann hefir marga
ágœta hœfileika sem stjórn-
málamaður. Hann er starfssam-
ur í bezta lagi, virðist vera at-
hugull og skjótráður, er fyrir-
mannlegur í útliti og framgöngu
og er málamaður góður. Eins og
nú standa sakir er hann talinn
líklegasti eftirmaður Mussolini.
Edda kona hans er sögð hafa
gáfur og skaplyndi Mussolini og
telja margir að hún hafi mikil
áhrif á föður sinn og mann.
Bezta skemmtun Cianos er
sögð sú, að aka bíl með miklum
hraða. Mussolini iðkar sömu
iþrótt.
* * *
/ sambandi við atburði sein-
ustu daga hefir eftirfarandi
skrítla birzt i mörgum útlendum
blöðum:
— Þegar þeir rœddust við í
haust Hitler og Chamberlain
spurði Hitler: Viltu láta mig
hafa Rúmeníu? Chamberlain
svarar játandi. Hitler spyr aftur:
Viltu láta mig hafa Ungverja-
land? Chamberlain játar enn.
Hitler spyr þá: Viltu láta mig fá
regnhlífina þína? Þá rís Cham-
berlain upp og svarar biturlega:
Nei, hún er en sk eig n.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. siðu)
lit, að ný launalög myndu, þeg-
ar til kastanna kæmi, hafa í
för með sér aukningu á út-
gjöldum ríkissjóðs. Og nánustu
aðstandendur Mbl. myndu
vafalaust leggja drjúgan skerf
til þeirrar aukningar, ef að
vanda lætur.
ÚR BÆMJM
Leikfélag Reykjavíkur.
Barnaleiksýningu hefir Leikfélagið
á morgun á æfintýraleiknum „Þyrnl-
rósa“. — „Fléttuð reipi úr sandi“ verða
leikin um kvöldið.
María Jónsdóttir
byrjar um þessar mundir kennslu f
kvenleikfimi og plastik. Einnig tekur
hún barnaflokka í sérstaka tíma og
einkatíma. Kennt verður eftir nýju
þýzku kerfi.
GlímufélagiS Ármann
heldur dansleik í Iðnó í kvöld kl. 1..
Aögöngumiðar fást í Iðnó frá kl. 5 í
dag.
Misprentazt
hefir hér í blaðinu föður nafn Tóm-
asar kaupféla^sstjóra á Hofsósi, er
fórst með vélbátnum Þengli. Tómas
var Jónasson, en ekki Jónss^n. Á þess-
ari misprentun er beðið velvirðingar.
Gestir í bænum:
Lúther Lárusson nóndi á Ingunnar-
stöðum í Brynjudal, Guðlaugur Hin-
riksson bóndi á írándarstöðum í
Brynjudal, Zóphonías Árnason toll-
þjónn á Akureyri og kona hans, Sig-
ríður Daviðsdóttir.
Emil Ludwig,
hinn þekkti þýzki rithöfundur, sem
m. a. hefir skrifaS œfisögur margra
stórmenna síðari áratuga, þar á meðal
Hindehburgs, Mussolini og Bismarcks.
Fréttabréf tll Tímans.
Tímanum er mjög kærkomið
að menn úti á landi skrifi blað-
inu fréttabréf öðru hvoru, þar
sem skilmerkilega er sagt frá
ýmsum nýmælum, framförum
og umbótum, einkum því er
varðar atvinnulífið. Allar upp-
lýsingar þurfa að vera sem
fyllstar og gleggstar, svo að ó-
kunnugir geti fyllilega áttað sig
á atburðum, fyrirtækjum og
staðháttum, sem lýst er.
Mörgum mun ef til vill finn-
ast fátt til frásagnar úr fá-
mennum og strjálum byggðum.
En þó mun mála sannast, að í
hverju byggðarlagi gerist nokk-
uð það, sem tíðindum sæti, sé
vel ^ð gætt.
Allmargir menn hafa orðið til
þess að skrifa Tímanum greina-
góð bréf, og er þeim hér með
þakkað fyrir.
Merkir samtíðarmenn
(Framhald af 3. síöu.)
og samherjum. Áhrifa hans mun
lengi gæta, þar sem hann lagði
fram orku sína. En æfisaga
hans er þó þýðingarmest fyrir
bændastéttina. Hann lifði á
þeim tíma, þegar stétt hans
lendir í harðri samkeppni við
nýjar atvinnugreinar. Margir
byrja að efast um gildi bónd-
ans og mátt hans til að verða
sterkur menningaraðili í land-
inu. En á þessari öld efagirn-
innar, sýna hjónin í Fjósatungu
styrk hinnar nýju bændastétt-
ar, sem notar alla tækni nú-
tímans. Sameinar hana við
sveitalífið, starfrækir fyrir-
myndarbúskap í afskekktum
dal, finnur þar hið hugstæð-
asta verkefni. En samhliða
þessu er starfið út á við. Bónd-
inn í Fjósatungu er í æskunni
glæsilegur íþróttamaður, sam-
einar beztu eiginleika hins
starfsama bónda og fágun ver-
aldarmannsins, eins og hún var
bezt og mest í samtíð hans. í
þessu liggur meginþýðing þessa
forustumanns samvinnustefn-
unnar, sem nú er látinn. Hann
hefir sýnt, að það takmark, sem
hann og samherjar hans
stefndu að, er ekki fjarlæg
draumsjón. Hann hefir sýnt að
enn er hægt á íslandi að sam-
eina lífsbaráttu þjóðarinnar við
mikla menningu og mikla
manngöfgi.
Að klæða landið
(Framhald af 3. síðu.)
farið, mætti vænta fjárhags-
legra styrkja frá því opinbera
og einstökum mönnum, en fyrst
og fremst verður hver og einn að
gjöra kröfur til sjálfs sín, fyr er
ekki að vænta styrkja annars-
staðar frá.
Sameinumst öll til styrktar
góðu málefni og við munum
eiga eftir að sjá skóga vaxa upp,
þar sem áður voru ber og gróð-
urlítil holt, mun þá enginn sjá
eftir að hafa verið með í að
klæða landið.
Reykjavík, 5. febrúar 1939.
Halldór Halldórsson.
Útbrcimð TÍMAXM
LEIKFÉLAG
REYK JAVÍKIIR
„FLÉTTUÐ REIPI
ÚR SANDP*
Gamanleikur í 3 þáttum, eftir
VALENTIN KATAJEV.
Sýning á morgun kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 f dag og eftir kl. 1 á morg-
un.
„Þ YRNIRÓS A“
æfintýraleikur fyrir börn í 4 at-
riðum, 'eftir Zocharias Topelíus.
Sýning á morgun
kl. 31/2.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
5 til 7 í dag og eftir kl. 1 á
morgun. —
Fískbúðíngar.
Níðursuðuverksmíðja
S. í. F.
Uppskipun.
á Best Soutli Yorks-
hirc Association Hard
Steamkolnm stendur
yfir þessa daga hjá
Kolaverzlun
Guðna Eínarssonai
238 Andreas Poltzer:
dauða manninn í pálmagarðinum. Hinir
gestirnir höfðu kosið að forða sér und-
an, áður en lögreglan kæmi.
Læknirinn, sem síðar kynnti sig sem
Walter Johnson flýtti sér á móti lög-
reglumönnunum. Þeir komu í hóp upp
stigann. Þegar þeir stóðu við dyrnar á
pálmagarðinum rak dr. Johnson upp
undrunaróp.
Whinstone hafði um morguninn fengið
símaboð, sem honum þótti vænt um.
Patriciu langaði til að hitta hann. Hann
renndi grun í hvað það væri, sem hefði
komið henni til þessa. Hann hafði sem
sé lesið hina gömlu frétt um andlát
Holms ofursta í morgunblöðunum.
Eftir langan umhugsunartíma hafði
Patricia fallizt á að hitta hann á hinu
íburðarmikla gistihúsi Ritz-Carlton.
Patricia kom stundvíslega — að heita
mátti á réttri mínútu. Jafnvel þó að
kjóllinn, sem hún var í, kostaði ekki
nema lítið brot af því, sem kjólar annara
kvenna, sem þarna voru staddar, kost-
uðu, þá vakti hún athygli allra. Hver
veitir rammanum athygli á fögru mál-
verki?
Á eftir þessari töfrandi stúlku kom
önnur kringluleit. Og það verður að við-
urkennast, að það stafaði ljómi — án
þess að maður tali í líkingum — frá þessu
fylgitungli. En ef nokkrum dytti í hug,
Patricia 239
að Violet hefði hlaðið á sig djásnunum
úr indversku fjárhirslunni til þess að láta
bera á sér við þetta tækifæri, þá skátl-
aðist honum algerlega.
Því að Violet bar ekki nema eitt ein-
asta djásn í kvöld — að undanteknum
mörgum hringum — mjóa hálsfesti, sem
aðeins einn gimsteinn var í og svo perla.
Perlan var varla stærri en rafljósapera
og gljáði svo, að allt jólatrésskraut ver-
aldar hefði gulnað af öfund ef það hefði
séð hana. Og frá gimsteininum, sem var á
stærð við vasaspegil, stafaði eldur, svo að
Whinstone pírði augunum af hræðslu.
Þegar hann opnaði augun aftur hafði
Violet þegar tekið sér sæti við borðið og
glápti með áfergju á þá, sem næstir sátu
og störðu á stúlkuna með þetta furðu-
djásn, eins og naut á nývirki. Þeir héldu
víst að þetta væri uppáhaldskona ríkasta
maharadjains í Indlandi.
Patricia tók eftir, að Whinstone fannst
lítið til um þessa gestkomu og flýtti
sér því að segja:
— Violet fylgdi mér hingað, en hún
verður ekki lengi.
— Já, sagði Violet, ég hafði því miður
lofað mér annað í kvöld. Piperscu prins-
essa vonaðist eftir mér í bridge. Æ,
þessar samkvæmisáhyggjur — mikið
getur maður orðið þreyttur á þeim til
lengdar.
& Eínars.
Sími 1595 (2 línur).
M.s. Laxioss
fer til Breiðafjarðar fimmtu-
daginn 16. þ. m. Viðkomustað-
ir: Arnarstapi, Sandur, Ólafs-
vík, Grundarf jörður, Stykkis-
hólmur, Búðardalur, Salthólma-
vík, Króksfjarðarnes og Flatey.
Flutningi veitt móttaka
þriðjudaginn 14. þ. m.
Dilkaþungmn
(Framh. af 2. síðu)
gert til þess að fá mikinn
lambaþunga haustið 1939. Og
þá veit ég, að eitt það, sem mest
á ríður, er að láta ærnar ekki
leggja af í vor. Sleppa þeim
ekki fyrr en kominn er sauð-
gróður, og gefa þeim til síðustu
vikurnar fyrir burðinn, svo að
saman geti farið vænn burður,
og ær, sem fæða lömbin vel. Þvl
að þar er eitt höfuðskilyrði
fyrir því, að lömbin verði væn
að haustinu.
mmmntmtGAMLA bíóc
SJÓMAMALÍF
Heimsfræg amerísk kvik-
mynd, tekin af Metro-
Gooldwyn-Mayer samkv.
hinni góðu sjómannasögu
Rudyard Kipling, og sem
birzt hefir í íslenzkri þýð-
ingu Þorsteins Gíslasonar.
Aðalhlutverkin eru fram-
úrskarandi vel leikin af
hinum ágætu leikurum:
Speneer Tracy,
Freddie Bartholomew,
Lional Barrymore.
NÝJA
Grænt Ijós.
Alvöruþrungin og athygl-
isverð amerísk stórmynd
frá WARNER BROS, sam-
kvæmt hinni heimsfrægu
sögu með sama nafni, eftir
Lloyd C. Douglas. — Aðal-
hlutverkin leika:
ERROL FLYNN,
ANITA LOUIS,
MARGARET LINDSAY
og
Sir Cedric Hardwicke.
Happdrætti
Háskóla Islands
Víðskíptamenn eru beðnír að athuga:
Til 15. iebrúar hafa menn forréttindi að
númerum þeím, sem þeir áttu í fyrra. —
Eftir þann tíma eiga menn á hættu, að
þau verði seld öðrum.
Mjög mikill hörgull er á heilmiðum og
hálfmiðum, og er því alveg nauðsynlegt
að tryggja sér pá aftur fyrir þann tíma.
Talíð við umboðsmann
yðar sem íyrsí.
Harðfiskframleiðsla.
Getum selt á íeigu fyrír yfír-
standandi ár 30 trönur á
Hrólfskálamelum og 47 á Bú-
staðarhlíð.
Upplýsingar á skrifstofu vorri
Sími 2850.
Fisktmálaiiefnd.
Kaupum notaðar
Kjöttunnur
Sérstaklega hálftunnur
Sláturfélag Suðurlands.
Kvenleikfimi og plastik.
Einnig sérstakir tímar fyrir barnaflokka og
einkatímar.
Kennt er eftir nýju þýzku kerfi.
Upplýsingar í síma 1971.
MARÍA JÓNSDÓTTIR.
Dan^leik
heldur Glímufélagið Ármann í Iðnó í kvöld (laugar-
dag) klukkan 10 síðdegis.
Nýja bandið leikur. - Ljóskastarar.
Aðgöngumiðar í Iðnó eftir kl. 5 í dag.