Tíminn - 14.02.1939, Qupperneq 4

Tíminn - 14.02.1939, Qupperneq 4
76 M, þriðjodaginn 14. febrúar 1939 19. blað Merkir samtíðarmenn (Framhald af 3. siSu.) og fékk það orð á sig, að hann væri einn færasti handlæknir I öllu landinu, enda varð hann fljótt kennari í sinni grein við háskólann þar í borginni. Síðar varð dr. Brandson yfirmaður skurðlækningadeildarinnar við háskólann í Winnipeg. Hann greiddi götu margra ágætra ís- lenzkra lækna í Vesturheimi og var af því bæði ástsæll og mik- ils virtur. Dr. Brandson var ekki aðeins mikill læknir, heldur á- huga- og áhrifamaður um ýms félagsleg málefni og tók mikinn þátt í félagslífi íslendinga. Hann var snemma öruggur fylgismaður Jóns Bjarnasonar í safnaðarmálum, enda líkur honum um marga hluti, fastur og óhvikull í lund, mikill kapps- maður í deilum en raungóður og hjálpsamur í bezta lagi. Bjarni Runólfsson: ...... Bjarni Runólfsson var meðal- maður að hæð, fremur grann- vaxinn, og virtist ekki vera burðamaður að afli, en mjúkur í hreyfingum og kvikur á fæti. Hann var dökkhærður, fölleitur í andliti, stilltur í framgöngu og manna háttprúðastur, hlýr og drengilegur í allri viðbúð. Hann var mikill vinur vina sinna, en óáleitinn við mót- gangsmenn. Hann var nauðleit- armaður hinn mesti, bæði sök- um meðfæddrar hneigðar til hjálpfýsi og með því, að hann var flestum mönnum snjallari að sjá úrræði og nýjar leiðir, þegar vanda bar að höndum. Böðvar Bjarkan: .... Eðlis- hneigð Böðvars Bjarkan dró hann í aðra átt. Hann var kom- inn af listrænni ætt. Hann var alinn upp við mikla náttúrufeg- urð. Og í byrjun starfsáranna valdi hann sér heimili á Akur- eyri, við hinn lygna, djúpa fjörð, þar sem skógur og blóm- jurtir dafna einna bezt á ís- landi, í skjóli hárra fjalla. í þessum mesta sólarbæ hérlend- is reisti Böðvar Bjarkan sér lít- ið en listrænt heimili, er hann nefndi „Sólgarða". Hann lukti húsið í víðáttumiklum garði,þar sem reynivíður og litfögur blóm fylla loftið á sumrin með sætri angan, en í miðjum garðinum var, að sið Suðurlandabúa, fögur steinþró með tæru lindarvatni. Vinir þeirra hjóna munu seint gleyma heimsóknum til þeirra að Sólgörðum..... Leiðréttíng víð leiðréttíngu (Framhald af 3. síOu.) haust og gerði á skammri stund við smávegis bilun. — Ekki útvegaði Lárus Sigurjón frá Vík eða kostaði ferð hans austur. — Hinsvegar var það gæzlumaður vélanna, Haukur Magnússon, sem óskaði eftir að- stoð hans. Sýnir það bæði var- kárni og ábyrgðartilfinningu hans, sem á verðskuldað lof, en engin ónot. Að lokum segir Lárus að þeir, sem sendi fréttir í blöðin, ættu að finna hvöt hjá sér til þess <JR BÆMJM Þingeyingamót var haldið að Hótel Borg á föstu- dagskvöldið var, að forgöngu nokkurra ungra Þingeyinga hér í bænum. Er þetta í annað sinn, sem Þingeyingamót er haldið hér í bænum. Mótið hófst með borðhaldi. Yfír borðum voru margar ræður fluttar. Fyrstu ræðuna flutti Jónas Jónsson, um sýslu sina og sýsl- unga. Guðmundur Finnbogason talaði um bernskuminningar að heiman. — Indriði Þorkelsson á Fjalli las upp kvæði eftir slg, þar á meðal tvö um Benedikt Jónsson frá Auðnum. Gunnar Ámason talaði um ættrækni Þingey- inga. Sigurður á Amarvatni las upp kvæði eftir sig inn Ódáðahraun. Har- aldur Guðmundsson mælti fyrir minni íslands. Á milli ræðanna söng kvartett. Klukkan 11 hófst dans og stóð til kl. 4 um nóttina. Fór mót þetta ágætlega fram. Skagfirðingamót var haldið fyrir skömmu. Hófst það með borðhaldi og voru ræður fluttar yfir borðum. Sr. Friðrik Friðriksson talaði fyrir minni Skagafjarðar, Jónas Jónsson sagði frá Skagfirðingum í Vesturheimi. Árni G. Eylands mælti fyrir minni íslands. Kvæði voru lesin eftir tvo fjarstadda Skagfirðinga, Jón á Hafsteinsstöðum og Guðjón S. Magn- ússon, búsettan á Suðurnesjum. Á milli ræðanna var sungið, og er staðið hafði verið upp frá borðum, var stiginn dans. Gestir í bænum. Jón Sigurðsson bóndi, Yztafelli, Hall- dór Árnason á Sámsstöðum í Fljótshlíð, Bjarni G. Magnússon í Vestmannaeyj - Hraust börn — hraust þjóð (Framhald af 3. síOu.) myndu líftryggingarfélögin, sem hér starfa, ekki vilja fara að dæmi hinna dönsku félaga og kosta útgáfuna? Ekki myndu þetta svo stór fjárútlát, að þau gerðu stórt strik í reikninga þeirra. Og væri ekki hugsanlegt, að einnig hér gæti þetta orðið þeim sjálfum til óbeinna hags- bóta? Þau gætu líka, eins og þau dönsku, ritað nokkur orð aftast í kverið um þýðingu líf- trygginga fyrir einstaklinga og þjóðfélagið í heild, og hvatt og leiðbeint um þessi efni. Ég sting nú upp á þvi, að Samband íslenzkra barnakenn- ara, fræðslumálastjórnin og heilbrigðisstjórnin reyni í sam- einingu að hrinda þessu máli til framkvæmda, og væri raun- ar eðlilegast að heilbrigðis- stjórnin yrði aðal framkvæmd- araðilinn. Ég vænti svo góðs af líftryggingarfélögunum, að ekki myndi standa á aðstoð þeirra, og hitt er vitanlegt, að við eig- um svo marga heilsufræðinga og íþróttafrömuði, að ekki myndi skorta á efni í kverið. En það þarf nokkurn vilja og á- huga, og svolítinn dugnað til að hrinda þessu í framkvæmd. Og ekki efa ég, að allt þetta sé fyrir hendi hjá öllum þeim að- ilum er ég nefndi. Og því skora ég á þá, að hefjast handa og koma slíku kveri út meðal barn- anna á þessu afmælisári. að skýra rétt frá. Það finnst mér líka, en hann sér því miður að- eins flísina í auga náungans, en ekki í sínu eigin. Skaftfellingur. Útsðluverð á smjörlíki í Reykjavík «g Raínarfirði, er frá og með deginum í dag kr. 1,70 pr. kg. tt um land má verðið vera hærra sem nemur fragt og öðrum kostnaði. Smjörlíkisgerðirnar í R.vík. Auálýsing Jörðin Míðhús, Bæjarhreppí, Strandasýslu er laus til kaups og ábúðar á vori komandi. Nánari upplýsingar geíur eigandi og ábú- andi jarðarinnar Ólafur Guðjónsson. Reykjavíkurannáll h.f. Reryan Fornar dygðir model 1939 leiknar annað kvöld kl. 8 stundvíslega. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó I dag frá kl. 1—7 og eftir kl. 1 á morgun. VENJULEGT LEIKHÚSVERÐ. Einbýlishús til sölu, 6 herbergi, eldhús og bað, bílskúr, afgirt og ræktuð lóð. Upplýsingar hjá Har. Guðmundssyni, Hafnarstræti 15. Sími 5415 og 5414 heima. Takið eftir! Fólki til hægðarauka afgreið- um við lyf, hjúkrunargögn, hreinlætisvörur og aðrar þær vörutegundir, sem lyfjabúðin hefir til, um allt land gegn póstkröfu. Skrifið til okkar og yður verð- ur sent með næsta pósti það, sem þér biðjið um. Laugavegs Apotek, Reykjavik. ÞÉR ættuð að reyna kolin og koksið frá Kolaverzlun Sigurðar Ólafssonar. Símar 1360 og 1933. 242 Andreas Poltzer: Patricia 243 — Hefirðu lesið um andlát Holmes ofursta í blöðunum? Loks voru þau komin að því umræðu- efni, sem þau höfðu farið kringum hingað til, eins og köttur kringum heitan graut. — Já, það hefi ég, Patricia. Hún beit vandræðalega á neðri vörina. — Viltu gera svo vel, að svara mér hreinskilnislega þessari spurningu: Viss- ir þú.... Hafðirðu frétt um fráfall frænda míns áður? — Já, svaraði hann, eins og afbrota- maður. En hún hélt hlífðarlaust áfram: — Vissir þú um það, kvöldið sem við vorum saman í Coventry Street? Whinstone lét duga að kinka kolli. Augu Patriciu ljómuðu. Nú skildi hún hvernig stóð á framkomu hans þá. — Mér finnst peningarnir ekki hafa svo mikla þýðingu, að það gerði nokkuð til, þótt þú vissir það, Patrick, sagði hún blátt áfram. Þetta var í fyrsta skipti, sem hún ' nefndi hann skírnarnafni og Whinstone fann, að honum hlýnaði um hjartaræt- urnar. í sama augnabliki kom þjónn að borðinu til þeirra. Hann bað Whinstone að koma í sím- ann. Þegar hann kom þangað aftur, var hann alvarlegur á svipinn. — Því miður á maðurinn ekki nóttina sjálfur, þegar maður er í minni stöðu. Og nú þurfa þeir á mér að halda. Ég verð að biðja þig um, að gera svo vel að koma, Patricia. Hann fylgdi henni að bifreið. — Sofðu vel, Patricia. Eiginlega hafði hann ætlað að segja eitthvað miklu inni- lega, en hann var ennþá hálf feiminn við hana. Hálftíma síðar gekk hann inn i húsið á Jermyn Street, þar sem Old Man’s Club hafði bækistöð sína. Morðmálanefndin var þar enn, en var í öngum sínum, því að henni hafði ekki tekizt að finna dauða manninn. — Undir eins og Whinstone hafði heyrt um þetta, fór hann að inn- skotinu, þar sem líkneski Pallas Aþenu stóð. Honum var fengin öxi og nú hjó hann gat á þilið. Á næsta augnabliki glórði í þrjú kertaljós inni 1 dimmri stofunni. Og líkið lá þar á gólfinu. Whin- stone þekkti manninn þegar. Þetta var lík Mellers. James Henry Meller-Ortega, sem hét svo fullu nafni, hafði verið lagður rýtingi gegnum hjart- að og hafði dáið samstundis. Eftir að lögreglulæknirinn og ljós- myndarinn höfðu lokið störfum sínum, rannsökuðu mennirnir frá Scotland Yard þessa kynlegu stofu bak við Pallas Aþenu nánar. ,,Brúarfoss“ fer á miðvikudagskvöld 15. fe- brúar vestur og norður um land hringferð. Lestar freðkjöt. Fer svo héðan til London, Gautaborgar og Kaupmanna- hafnar. ,,Dettifoss“ fer væntanlega á miðvikudags- kvöld, um Vestmannaeyjar, til Grimsby, Hamborgar og Kaup- mannahafnar. Blfreið (7 manna) til sölu með tækífærís- verði. Naítah.L, sími 4493. tltbrelðið TÍMAIVN mttnmmntGAMT.A Bíómmuuum BALLKORTIÐ (Un carnet de bal) . Heimsfræg frönsk kvik- mynd, er hlaut 1. verðlaun í alheimskvikmyndasam- keppni, er haldin var í Feneyjum síðasta vetur. — Kvikmyndina s a m di og gerði fremsti leikstjóri Frakka: Julien Duvivier. Aðalhlutv. leika: HARRY BAIJR MARIE BELL LOUIS JOUVET og PIERRE BLANCHAR. ' nýja Bíótmttm*mtt» Miss Ameríka Amerísk skemmtimynd, iðandi af fjöri og léttri múslk. Aðalhlutverkiö 1 e i k u r undrabarnið SHIRLEY TEMPLE. í Borgarfirdi til sölu. BÚNADARBANKI ÍSLANDS Sími 4816. Austfirðingamót verður haldið á Hótel Borg, miðvíkudaginn 15. p. m. og hefst með borðhaldi kl. 7,30 e. h Aðgöngumiðar seldir á Hótel Borg og hjá Jóni Hermannssyni á Laugaveg 30. Austiirðingafélaglð. Hveiti: GOLD MEDAL í lausri vigt 0.35 kgr., 50 kgr. sekkur 15.25. LYFTIDUFT 2.20 kgr. KOKOSMJÖL 1.75 kgr. Nú er hagkvæmast að baka heima. C3) ka u pfélaq ið II íisin íu O ii i% Látið ekki erfiðisvmnu ónýta daginn, heldnr leikið ’yður að því að fegra gólfin með NOTKUNARREGLUR. 1. Hafi gólf verið bón- að áður eða lakkað með öðru en RE- FLEX, — þarf fyrst að þvo það vel úr sterku sápuvatni og lofa því síðan að þorna algerlega. 2. Síðan er REFLEX- SJÁLFGLJÁI bor- inn á með mjúkum pensli eða lérefts- klút, einu sinni á mánuði. Tvær yfir- ferðir — látið þorna I á milli! — gefa sterkari gljáa og meiri endingu. — Nuddið ekkil 3. í góðu og hlýju veðri þomar REFLEX. SJÁLFGLJÁI á 20 mínútum; í rigningu tekur það svolítið lengri tíma. 4. Farið yfir gólfin með mjúkum, rökum klút, helzt daglega, þá gljá þau að nýju. 5. REFLEX-sjálfgljái md ekki frjósa. Heildsölu- birgðír: H. Ólafsson & Bernhöít Reykjavfk. Einkaframleiðandi: i Lakk- og Málníngarverk- smíðjan HARPA h. S. Reykjavik.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.