Tíminn - 21.03.1939, Blaðsíða 4
138
TtMIM, liriðjmlaginn 21. marz 1939
34. blað
^bÆOX^IR,
/ ársbyrjun 1935 var lokiö við
voldugasta stiflugarð veraldar í
Colorado-fljótinu í Bandaríkj-
unum. Tilgangurinn með garð-
inum var að mynda stórt stöðu-
vatn og yrði vatnsmagn þess
síðan notað til rafmagnsfram-
leiðslu og áveita, en vatnsskort-
ur hindrar þarna alla rœktun
á stórum svœðum.
Vatnið hefir nú verið að safn-
ast fyrir Í4 ár og er vatnsmagnið
þó enn ekki orðið eins mikið og
því er œtlað að verða. En œtlazt
er til að þetta nýja stöðuvatn
verði um 160 km. langt og breidd
þess víða allt að 13 km. Há-
marksdýyt þess verður 582 fet.
Það verður tólf sinnum stærra
en nœst stœrsta stifluvatn í Níl-
ardalnum.
Það gefur nokkra hugmynd
um þetta mikla mannvirki, að
vœri því vatnsmagni, sem nú
hefir safnazt fyrir, hleypt á
Connecticut-fylkið og vatnið
látið flæða yfir það allt, yrði
meðaldýytin 12 fet. Connecti-
cut-fylkið er 5000 fermílur að
flatarmáli.
Byrjað er að reisa við vatnið
orkuver, sem mun hafa 1.835
þús. hestafla orku og verður þvi
sterkasta orkuver veraldar. Eftir
að vatnið hefir farið í gegnum
túrbinurnar, verður það notað
til að gera mörg þús. ferkílóm.
af ófrjóu landi rœktanlegt. Þá
verða byggð við vatnið mörg
ferðamannahótel, því að sigling-
ar um það verða sérstaklega
skemmtilegar og fiskirœkt verð-
ur þar mikil, svo hægt verður að
stunda þar veiðiskay.
Roosevelt hefir átt meginþátt
i þvi, að þetta mikla mannvirki
kemst í framkvœmd. Hefir það
þegar kostað ógrynni fjár.
* * *
Samkvœmt frásögn danska i-
haldsblaðsins Berlingske Tiden-
de, hafa 100 þús. Gyðingar flutt
búferlum frá Þýzkalandi á tíma-
bilinu 11. nóv. til 28. febr. í
vetur. Svarar það til þess að
900 Gyðingar hafi farið daglega
úr landinu.
Samkvœmt sömu heimildum
höfðu 240 þús. Gyðingar flutt
burt úr Þýzkalandi, Austurrlki
og Sudetahéruðunum frá því í
febrúar 1933 og þangað til í
nóvember 1938. Alls hafa því
340 þús. Gyðingar flutt frá Stór-
Þýzkalandi síðan nazistar kom-
ust til valda.
* * *
Sá furðulegi atburður hefir
gerzt á Lenox Hill sjúkrahúsinu
í New York, að þriggja ára gam-
all drengur, sem hefir veríð þar
til lœkninga i sex vikur, hefir
vaxið á þeim tíma úr venjulegri
hœð drengja á þessum aldri i
meðalmannshœð. Hann heldur
enn áfram að vaxa. Lœknar
hafa enn ekki til fulls getað
skýrt þetta furðulega fyrirbrigði.
* * *
Argentinski sundmaðurinn
Candiotti hefir nýlega sett nýtt
heimsmet i þolsundi með því að
vera látlaust á sundi í 100 klst.
og 35 sek.
ÍR BÆNIJM
Árshátíð Norræna félagsins
verður að Hótel Borg á laugardags-
kvöldið. Hefst hún með borðhaldi.
Mörg ágæt skemmtiatriði.
Eggert Stefánsson
syngur í þýzka ríkisútvarpið í dag
kl. 17,30, samkvæmt íslenzkum tíma.
Hefir Eggert verið ráðinn til þess að
syngja nokkrum sinnum í ríkisútvarpið
þýzka og er þetta fyrsta söngskemmt-
un hans.
Deildarfundir
í Kaupfélagi Reykjavíkur og ná-
grenni verða haldnir næstu daga.
Verða þar kosnir fulltrúar á aðal-
fundinn og deildarstjórn, lagðar fram
skýrslur o. s. frv. Er áríðandi að fé-
lagsmenn sæki deildarfundina.
Jafndægur
á vori er í dag.
Farfuglafundur
Ungmennafélaganna verður í Kaup-
þingssalnum í kvöld. Fundi þessa sæk-
ir venjulega margt ungra manna, eink.
um utan af landi, og skemmta sér við
ræðuhöld, upplestur, söng, dans o fl.
í kvöld kvað vera kvikmyndir meðal
annars á skemmtiskránni.
Trésmiðir
samþykktu við allsherjaratkvæða-
greiðslu innan félags síns að hefja
verkfall gegn múrurum, ef ekki hafa
tekizt sættir innan viku í deilumáli,
sem yfir stendur þeirra í millum. Var
þetta samþykkt með 319 atkvæðum
gegn 4.
Gestir í bænum.
Gísli Kárason í Haga í Staðarsveit,
Jónatan Jónasson á Nípá í Köldukinn,
Kristinn Klemenzson á Dýrastöðum í
Norðurárdal, Hreiðar Eiríksson í Reyk-
húsum í Eyjafirði, Þorsteinn Þor-
steinsson bóndi á Húsafelli.
Sjálistætt ríki
í einn dag
(Framh. af 1. siðu)
flokksins þótzt eiga þessum
volduga vini sínum miklar þakk-
ir að gjalda þann dag. En næsta
dag hafa þeir orðið þess vísari,
að það var ekki umhyggjan fyrir
sjálfstæði Slovaka, sem hafði
komið Hitler og aðstoðarmönn-
um hans til að mæla hin fögru
og tælandi orð í eyru þeirra
undanfarna mánuði.
Vafalaust hafa foringjar
Hlinkaflokksins unnið í góðri
trú, er þeir áformuðu sjálfstæði
Slovakiu í samráði við Þjóð-
verja. Vafalaust hafa þeir hald-
ið að með því væru þeir að vinna
sjálfum sér og landi sínu mest
gagn. Vafalaust hafa þeir treyst
því að vinátta og ginningarorð
Þjóðverja byggðust á fullkom-
inni einlægni. Nú hefir reynslan
vissulega komið þeim á aðra
skoðun. Úr yfirsjón sinni geta
þeir ekki bætt, en ef til vill
dregur sú von eitthvað úr ör-
vinglun þeirra, að hún geti orð-
ið öðrum smáríkjum til við-
vörunar og hjálpað þeim til að
standa betur á verði gegn út-
lendum áróðri og fagurgala, úr
hvaða átt, sem hann kemur.
tltbreiðlð TÍMANN
Rafmagn til kauptúna
austanfjalls
(Framh. af 1. síðu'
svarar 65—70 þús. krónum á ári,
en af þeirri upphæð er allt að
helmingur erlendur gjaldeyrir.
Getur því af veitu þessari orðið
töluverður sparnaður á erlend-
um gjaldeyri til eldsneytiskaupa
o. fl., enda er ljós þörf þess að
veita orku Sogsvirkjunarinnar
sem fyrst um þau héruð, sem
talið er hagkvæmt, að fái orku
þaðan, svo afl virkjunarinnar
verði að fullu hagnýtt.
Raforkuveitunnar frá Sogi til
kauptúnanna austan fjalls og
þeirra sveita, sem veitan getur
náð til, er nú orðin hin brýnasta
þörf. Rafstöðvar þær, sem þar
eru fyrir, eru orðnar með öllu
ófullnægjandi, og yrði óhjá-
kvæmilegt að kosta til endur-
nýjunar og aukningar þeirra, og
gætu þær þó eigi látið í té raf-
orku til annars en ljósa, svo
neinu nemi, en eins og að fram-
an greinir, geta á þessu svæði
orðið not mikillar raforku. Eng-
um getum þykir þurfa að leiða
að því, að veita, er flytur næga
raforku um þéttbyggðasta hluta
sýslunnar, muni skapa skilyrði
til annara nýrra og marghátt-
aðra verklegra framkvæmda,
skapa ný og aukin lífsskilyrði í
sýslunni og draga úr flutningi
fólks þaðan.“
Bjarni Ásgeirsson og Pétur
Ottesen flytja þá viðaukatillögu,
að samskonar heimildir nái
einnig til raforkuveitna til
Akraness og Borgarness frá
Sogsvirkjuninni. Jafnframt
leggja þeir þó til, að „ ef rann-
sóknir þær, sem nú er verið að
framkvæma um lausn rafveitu-
mála Borgarfjarðarhéraðs, leiða
það í ljós, að tiltækilegra muni
og hagkvæmara að virkja Anda-
kílsárfossa heldur en veita til
héraðsins raforku frá Sogsvirkj-
uninni, þá er ríkisstjórninni
heimilt að framkvæma þá virkj-
un ásamt lagningu rafmagns-
lína og taka til þess lán eða
ábyrgjast lán, ef héraðsbúar
annast framkvæmd verksins.“
Á kross£ötnm.
(Framli. af 1. síðu)
stúdentinn, er stundað hefir norrænu-
nám við háskólann hér og mjög mörg-
um er kunnur hér á landi, hefir seinni
hluta vetrar dvalið heima í ættlandi
sínu. Hefir hann ritað allmargar grein-
ar um ísland og íslenzk málefni í lit-
hauisk blöð, þar á meðal tvær í tilefni
af tuttugu ára fullveldisafmæli íslend-
inga, aðra þeirra í stærsta blaðið
í Lithauen, „Lietuvas Aides“, sem er
málgagn ríkisstjórnarinnar og þjóðlega
flokksins. Eín þessara greina fjallar
um Jörund hundadagakonung og hin
fjórða er einskonar þjóðarlýsing. —
Teodoras Bielackinas hefir áður ritað
fjölda greina um ísland í hin stærstu
blöð í heimalandi sínu. Bráðlega mun
hann flytja útvarpserindi um ísland og
einnig hefir hann mikinn hug á því að
þýða íslenzkar sögur á lithauisku. Inn-
an skamms hyggst Theodoras Biel-
ackinas að ráðast til nýrrar íslands-
I ferðar, en hér unir hann bezt.
302 Andreas Poltzer:
víst ekki neitt að gagni á lögheimili hans
heldur. En það er bezt að líta snöggvast
á grenið samt....
Fám mínútum síðar stóðu þau inni 1
lítilli íbúð. Þar var allt ofur látlaust hvað
híbýlaprýði snerti og ekkert sem gat
vakið grun. í klæðaskápnum héngu
nokkrir alfatnaðir. Þeir voru ekki nýir
og alls ekki snyrtilegir. Nema einn.
Það voru samkvæmisföt og höfðu
auðsjáanlega verið saumuð af fyrsta
flokks klæðskera. Alice Rake horfði lengi
og forvitnislega á þennan fatnað. Allt í
einu heyrði Whinstone ofurlítið þrusk.
Það var eins og einhver væri að spretta
upp saum. Hann hljóp til og sá að stúlk-
an kreisti saman hendurnar eins og með
krampataki.
— Lofið mér að sjá! sagði hann.
— Whinstone fulltrúi. Munið loforðið
sem þér gáfuð mér, svaraði Alice Rake
og kreisti hendurnar enn fastar saman.
Whinstone hneigði sig án þess að segja
eitt einasta orð.
Þau fóru út úr íbúðinni og Favart læsti
henni með þjófalyklinum sínum. Meðan
þau voru að ganga niður stigann — Fa-
vart hafði gengið á undan til þess að
opna dyrnar — sagði Whinstoe lágt og
kvíðafullur:
— Ungfrú Alice, er yður ljóst hve mikla
tvísýnu þér teflið í með þessu?
Patricia 303
Og þegar stúlkan þagði, hélt hann
áfram:
—Látið þér mig að minnsta kosti vita
um heimilisfang hans!
Hún hikaði um stund, en svo sýndi
hún fuútrítanum dálitla léreftsræmu
hvíta, sem hún hafði í hendinní og hafði
rifið úr jakkavasanum innanverðum. Þar
stóð nafn og heimilisfang eigandans,
skrifað með bleki:
Leonid Warren, 173 Linden Gardens,
W. 2.
— Drottinn minn! hrópaði Whinstone.
Jafnvel slungnustu afbrotamenn gera
skissur, sem byrjendur myndu forðast
eins og heitan eldinn.... Líklega hefir
hann ekki haft tíma til að hafa fata-
skipti, og hann fór í fötum Leonards
Warren á lögheimili sitt. Það get ég að
vísu skilið, en hitt finnst mér óskiljan-
legt, hvers vegna hann tók ekki nafn-
seðilinn af fötunum.
Hann hefir ef til vill ekki vitað, að
nafnið var þarna, svaraði Alice Rake.
Ýmsir klæðskerar hafa það fyrir sið að
sauma það innan á vasann óbeðið, og
eigendurnir hafa ekki hugmynd um það,
fyrr en þeir rekast á það fyrir tilviljun.
Þau skildu á götunni. Alice Rake
endurtók enn einu sinni:
— Þér lofið mér að hafa frjálsar
hendur þangað til á morgun! Ef þér
Farfuglar!
Farfugladeild Reykjavíkur
heldur
KYANINGAR-
KVÖLD
að HÓTEL BORG þriðjudaginn
21. marz kl. 8y2
Skemmtiatriði:
1. Ávarp.
2. Steinþór Sigurðsson: Erindi
með skuggamyndum frá
Kili og Kerlingarfjöllum.
3. Farfugl leikur á fiðlu.
4. Dans.
A 11 i r velkomnir fyrir kr. 1.25.
Aðgöngumiðar seldir að Hótel
Borg (suðurdyr) eftir kl. 5.
Jörðin Vallá
á Kjalarnesi
er til sölu og laus til ábúðar í
næstu fardögum. Tilboð sendist
fyrir 10. apríl næstkomandi á
Þórsgötu 29 (uppi), Reykjavík.
Magnús Benediktsson.
Lagarfoss
fer í dag kl. 6 um Austfirði, til
Rotterdam og Kaupmanna-
hafnar.
Selfoss
fer á morgun til Antwerpen og
London.
Dettifoss
fer annað kvöld (22. marz) um
Vestmannaeyjar til Grímsby,
Rotterdam og Hamborgar.
Bezta
munntóbakið
er frá
BRÖDRENE BRAIJIV
KAUPMANNAHÖFN.
Biðjið kaupmann yðar um B. B.
munntóbakið.
FÆST ALLSSTAÐAR!
ÞÉR ættuð að reyna kolin og
koksið frá
Kolaverzlnn
Sigurðar Ólafssonar.
Símar 1360 og 1933.
BROADWAY YÁMAR
MELODY SALOMONS
1938 eftir H. Rider Haggard,
sem ensk stórmynd frá
Bráðskemtileg og skraut- Gaumont British.
leg amerísk dans- og Aðalhlutv. leika:
■ söngvamynd. — Aðalhlut- Paul Robeson,
:: verkin leika: Sir Cedric Hardwick, Roland Young o. fl.
ROBERT TAYLOR i Aukamynd:
SVIFFLUG.
og Amerísk fræðimynd um :
svifflug og kennslu í svif- :
ELEANOR POWELL flugi. — Böm innan 10 ára
fá ekki aðgang.
Jft. A. kTartettinu
syngnr í Gamla Bíó fimmtudaginn 23. þ. mán.
kl. 7 síðdegis.
VÆST StÐASTA SIWí.
Bjarni Þórðarson aðstoðar.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
og Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju.
Jafnvel ungt fólk
eyknr vellíðan sína með því að nota
hárvötn og ilmvötn
Við framleiðnm:
EAL DE PORTIGAL
EAL DE QlIiMAE
EAL DE COLOGAE
BAYRHLM
ÍSVATJV
Verðið í smásölu er frá kr. 1,10 til kr. 14,00, eítir
stærð. —
Þá höfum við hafið framleiðslu á
ILMVÖTIVLM
úr hinum beztu erlendu efnum, og eru nokkur
merki þegar komin á markaðinn.-----
Auk þess höfum við einkainnflutning á erlendum ilmvötn-
um og hárvötnum, og snúa verzlanir sér þvi til okkar, þeg-
ar þær þurfa á þessum vörum að halda.-----
Loks viljum vér minna húsmæðurnar á bökunardropa þá,
sem vér seljum. Þeir eru búnir til með réttum hætti úr
r é 11 u m efnum. — Fást allsstaðar.------
Áfengisverzl. ríkisins.
Stúdentafélagr Reykjavíkur
og StúdentarádReykjavíkur
Framhaldsfundur verður haldinn um sjálfstæðismálin í
Varðarhúsinu næstkomandi miðvikudag kl. 8 y2 siðd.
Meðal ræðumanna verða Gunnar Thoroddsen, Guðbrandur
Jónsson, Gísli Sveinsson og Axel Tulinius.
Stúdentar, eldri og yngri, fjölmennið!
Ræðismaður Islands
og Danmerkur
i Winnipeg
(Framh. af 1. siðu)
Þegar ræðismannsembættið í
Winnipeg losnaði fyrir skömmu
þótti einsýnt að í það yrði val-
inn íslendingur, því að Danir
eru miklu færri í þeirri borg.
Var völ margra ágætra manna í
þessa stöðu, en svo fór að al-
mennt og óvenjulegt samkomu-
lag varð um Gretti Jóhanns-
son. Var hann studdur af mæt-
um mönnum úr báðum kirkju-
félögunum, af aðalræðismanni
Dana í Montreal, af stjórnar-
völdum á íslandi, og loks út-
nefndur af utanríkisstjórninni.
Grettir er giftur kanadiskri
konu, sem hyggur á íslandsferð
hið bráðasta, ekki sízt til að sjá
ættarstöðvar manns síns og
tengdaföður. Henni þykir
„Húnavatnssýsla“ fegurst orð á
íslenzku. Grettir er líkur föður
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
blaðið segir frá. Ræðumenn
fengu mjög daufar undirtektir
og er kommúnistablaðið auðsjá-
anlega sáróánægt yfir fundin-
um. Bendir hann greinilega til
þess, sem fleiri merki hafa sézt
um áður, að verkafólk bæjarins
er stöðugt að misse trúna á hina
n e i k v æ ð u æsingastarfsemi
kommúnista, og sér æ betur
og betur í gegnum blekkinga-
grímu þeirra. Hafa þessi
straumhvörf sérstaklega verið
greinileg, síðan Héðinn hóf
makk sitt við „elsku Sturlu“
og „baróninn“ og gerði fjár-
mála-„plön“ þeirra að aðalmáli
kommúnista.
sínum, drengur góður, athafna-
samur og mikill íslendingur,
bæði vestan hafs og austan.
J. J.