Tíminn - 28.03.1939, Blaðsíða 4
150
TlMINiy, þrigjndagiim 28. marz 1939
37. blað
Stórveldin vígbúast af kappi.
En það er ekki látið sitja við það
eitt, að afla sem allra flestra
vígvéla og hérmanna. Jafn-
framt eru undirbúnar fyrirœtl-
anir, sem ná yfir lengri tima,
um það, er gera skuli til sóknar
og varnar, ef styrjöld skyldi
hefjast. Einmitt það, hversu
kœnlega þessar fyrirœtlanir eru
gerðar, getur ráðið úrslitum
nœstu s\tyrjaldar að verulegu
leyti.
í sambandi við þetta hafa ýms
heimsblöðin rifjað upp gamla
sögu, sem gerðist 1870, þegar
Frakkar sögðu Þjóðverjum stríð
á hendur. Þessi tíðindi bárust
Þjóðverjum að nœturlagi og var
strax ákveðið að vekja Moltke
yfirhershöfðingja, til að láta
hann vita um þau. En hann lét
sér ekki bilt við verða. í þriðju
efstu skúffunni i skrifborði
mínu, sagði hann, getið þið séð,
hvað nauðsynlegt er að gera.
Síðan lagðist hann fyrir aftur
og svaf til morguns, eins og ekk-
ert hefði iskorizt.
* * *
Þann 15. júní nœstkomandi
eru liðin 20 ár síðan að fyrst
var flogið yfir Atlantshafið, án
lendingar á leiðinni. Voru það
tveir enskir flugforingjar, Al-
coch og Brown, sem leystu þetta
afrek af höndum. Flugu þeir frá
N ewfoundlandi til írlands í
landflugvél. Flugu þeir 3040 km.
vegalengd á 16 klst. og 12 mín.
Afrek þeirra þótti svo einstœtt,
aö A.lcoch, sem var aðaímaður
fararinnar, var aðlaður. Hann
átti þó ekki að njóta frœgðar-
innar lengi, því nokkrum mán-
uðum seinna fórst hann í flug-
slysi.
•i* *
Átta árum seinna (1927) flaug
sœnsk-ameríski fiugmaðurinn
Charles Lindberg einsamall yfir
Atlantshafið. Var hann fyrsti
maður, sem flaug einsamall
þessa leið. Hann flaug frá New
York til Parísar á 33 y2 klst. Er
þessi vegalengd um 6000 km.
Hann var í sjóflugvél. Afrek
hans gat honum svo mikilla vin-
sælda í Bandarikjunum, að fáir
menn hafa hlotið þœr meiri.
* * *
írski forsœtisráðherrann, de
Valera, er sagður allra manna
þráastur og því þykir mjög ó-
líklegt að hann láti niður falla
kröfuna um innlimun Ulster í
írska ríkið. (Sjá grein á öðrum
stað í blaðinu). Til marks um
þráa hans er sögð eftirfarandi
saga:
Árið 1918 létu Englendingar
taka hann fastan, þegar hann
var að flytja rœðu á fjölmenn-
um fundi i Innis. Hann sat í
fangelsi i eitt ár. Þegar homn
slapp þaðan var það fyrsta verk
hans að boða til fundar í Innis.
Þangað kom mikið fjölmenni og
de Valera hóf rœðu sina á þessa
leið:
„Ég var kominn þangað,
þegar ég varð að liœtta máli
mínu..........“ síðan hélt hann
áfram með rœðuna, sem hann
œtlaði að flytja fyrir ári síðan
eins og hann hefði aðeins trufl-
ÍTR BÆMJM
Ferðafélag: íslands
heldur skemmtifund i Gamla Bíó á
miðvikudagskvöldið og hefst hann
klukkan 9. Verður þar sýnd íslands-
kvikmynd, tekin af Orlogskaptein
Dam. Áður en sýnlngin hefst leik-
ur strengjakvartett, Gunnar Pálsson
syngur einsöng, og stuttar ræður flytja
Geir G. Zoega, forseti félagsins, Skúli
Guðmundsson atvinnumálaráðherra,
de Fontanay, sendiherra Dana, og
Pálmi Hannesson, rektor.
Birger Ruud
og frú fóru heimleiðis með Dronning
Alexandrine í gærkvöldi. Óvenju
mannmargt var á bryggjunni, er skipiö
lagði frá landi. Benedikt G. Waage,
forseti íþróttasambandsins, ávarpaði
hina norsku gesti nokkrum orðum og
lét hrópa þeim ferfalt húrra.
Úrvals leikfimisflokkur kvenna
úr K. R. fór utan í sýningarför til
Danmerkur með Dronning Alexandr-
ine í gærkvöldi. í úrvalsflokknum eru
14 stúlkur og er Benedikt Jakobsson
stjórnandi hans. Af stúlkunum sýna
tólf leikfimisæfingar, ein er fánaberi
og ein aðstoðarstúlka.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur fund n. k. fimtudagskvöld í
Kaupþingssalnum. Formaður Fram-
sóknarflokksins hefur framsögu um
samvinnu lýðrœðisflokkanna. Nokkrar
líkur eru til, að fyrir þann tíma veröi
séð fyrir endann á þeim tilraunum
sem nú fara fram um myndun þjóð-
stjórnar. Ættu Framsóknarmenn að
fjölmenna á fundinn, fræðast um
hvernig sakirnar standa og láta í ljós
álit sitt um þessi mál.
Alþýðukonsert
M. A.-kvartettsins, sem auglýstur
hefir verið í blöðunum að haldinn yrði
á morgun 29. marz, hefir verið aflýst.
Húnvetningafélagið
heldur skemmtifund að Hótel Borg
í kvöld kl. 8.30.
Eldur
kom upp á sunnudagskvöldið í
vinnufata- og sjóklæðaverzlun Einars
Eiríkssonar í Hafnarstræti 15. Lög-
regluþjónar urðu fyrst varir við eld-
inn og kvöddu slökkviliðið á vettvang.
Réði það fljótlega niðurlögum eldsins
og brann sjálft húsið ekki mikið, en
vörur skemmdust talsvert af eldi, reyk
og vatni. Vörur, sem geymdar voru í
kjallara spilltust nokkuð af vatni.
Neðanmálssögunni
sem birzt hefir í Tímanum síðan
blaðinu var breytt í haust, lýkur í
þessu blaði.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
heldur fund í Iðnó i kvöld klukkan
8,30.
Árshátíð Norræna félagsins
verður haidin að Hótel Borg laugar-
dag 1. apríl. Fjölbreytt skemtiskrá. Að-
göngumiðar seldir í bókaverzlun Sig-
fúsar Eymundssonar og í Gleraugna-
búðinni á Laugaveg 2.
Háskólafyrirlestrar
um Gustav Fröding. Sænski sendi-
kennarinn frk. Anna Osterman, flytur
næsta fyrirlestur sinn i kvöld kl. 8.
Gestir í bænum.
Björgvin Filippusson í Vaðmúia-
staðahjáleigu 1 Austur-Landeyjum,
Einar Halldórsson hreppstjóri á Kára-
stöðum í Þingvallasveit.
ast í nokkrar mínútur, og bœtti
þar nœst við nokkrum nýjum
athugasemdum.
Hreinar
léreftstnsknr
k a u p i r
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
Lindargötu 1D.
JErlendar
yndir
Ensku konungshjónin tóku sér nýlega á hendur ferð um gervalt England.
f Birmingham tók Chamberlain forsœtisráöherra, sem þar er fœddur á
móti konungshjónunum og myndin tekin við þaö tœkifœri.
Fréttabréf tll Tímans.
Tímanum er mjög kærkomið
að menn úti á landi skrifi blað-
inu fréttabréf öðru hvoru, þar
sem skilmerkilega er sagt frá
ýmsum nýmælum, framförum
og umbótum, einkum því er
varðar atvinnulífið. Allar upp-
lýsingar þurfa að vera sem
fyllstar og gleggstar, svo að ó-
kunnugir geti fyllilega áttað sig
á atburðum, fyrirtækjum og
staðháttum, sem lýst er.
Mörgum mun ef til viil finn-
ast fátt til frásagnar úr fá-
mennum og strjálum byggðum.
En þó mun mála sannast, að í
hverju byggðarlagi gerist nokk-
uð það, sem tíðindum sæti, sé
vel að gætt.
Allmargir menn hafa orðið ti!
þess að skrifa Tímanum greina-
góð bréf, og er þeim hér með
þakkað fyrir.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
í Reykjavík
er á Lindargötu 1D
Framsóknarmenn utan af
landi, sem koma til Reykja-
víkur, ættu alltaf að koma
á skrifstofuna, þegar þeir
geta komið því við. Það er
nauðsynlegt fyrir flokks-
starfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mikils virði
að hafa samband við sem
flesta flokksmenn utan af
landi.
Framsóknarmenn! Munið að
koma á flokksskrifstofuna á
Lindargötu 1D.
Myndin er af auglýsingaspaldi, sem
búiö hefir verið til vegna heimssýning-
arinnar i New York.
Ekkja Lenin, Nadezhda Konstantin-
omia Krupskaja, andaðist fyrir ekki
alllöngu. Mynd þessi var tekin af
henni nokkru áður en hún dó.
314
Andreas Poltzer:
Patricia
315
yfirfulltrúi! í þriðja lagi: Hvernig skýr-
ið þér flótta lávarðsins og er hann í
nokkru sambandi við glæpamál Duffys?
— Þar hefi ég eki nema ágiskanir að
styðjast við, því að opinber lausn þessa
atriðis hefir ekki fengist. Eins og þér vit-
ið tók Kingsley lávarður sonardóttur sína
í sátt rétt fyrir dauða sinn. Það virðist
svo, að hann hafi fengið minnið aftur
rétt áður en hann skildi við. Ef þér lofið
mér því, að láta orð mín ekki fara lengra
þá skal ég segja yöur skoðun mína á
málinu.
Þegar blaðamaðurinn hafði gefið
drengskaparheit um að þegja hélt Whin-
stone áfram:
—■ Kingsley lávarður var um þessar
mundir í einkennilegu sálarástandi.
Hann hafði alveg nýlega fengið andláts-
fregn Holms ofursta, sonar síns og erf-
ingja. Duffy hafði átt einhver skipti við
Kingsley fyrir nokkrum árum, en vitan-
lega hafði lávarðurinn ekki hugmynd um
hver hann var í raun og veru. Lávarður-
inn, sem var mikill listaverkasafnari,
hafði keypt af honum gamalt listaverk.
Eftir á reyndi hann að þvinga fé af lá-
varðinum. Örlagaríku nóttina kom út-
sendari frá Duffy, John Plane, á heimili
Kingsleys til þess að sækja til hans all-
stóra fjárupphæð, sem lávarðurinn hafði
fyrirfram lofað að greiða. En John Plane
hitti ekki lávarðinn heima. Hann hafði
fariö út hattlaus og frakkalaus og allt
þjónustufólkið var úti þetta kvöld. Lá-
varðurinn ráfaði um göturnar í sinnu-
leysi alla nóttina og fór svo til Frakk-
lands með fyrstu lest um morguninn.
Hann var nokkra mánuði á litlum bað-
stað í Belgíu, þvi að hann hafði haft á
sér peningana, sem fjárþvingaranum
voru ætlaðir.
— Og svo að lokum eina spurningu
enn, herra yfirfulltrúi: — Hvað gerði
Duffy við þessa merkilegu hvelfingu í
Old Mans Club?
— Þeirri spurningu get ég því miður
ekki svarað, Hurst. Duffy hefir haft það
leyndarmál með sér í gröfina. Jafnvel
Estoll, sem var samverkamaður Duffys
án þess hann vissi, að húsbóndi hans
og eftirlitsmaður var ein og sama per-
sónan, veit ekki til hvers þessi hvelfing
var notuð.
— Þakka yður fyrir, nú held ég að ég
hafi fengið að vita allt, sem ég þarf,
herra yfirfulltrúi ....
— Hurst, hættið þér nú þessu sífellda
,,yfirfulltrúa“-stagli!
— Hafið þér þá ekki hækkað í tign-
inni? stamaði blaðamaðurinn.
— Nei, og ég verð það ekki heldur,
Hurst! Því að ég get trúað yður fyrir því,
að ég ætla að segja af mér.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
prýða staðínn. Sigurður Sigurðsson hóf
skógrækt að Hólum fyrir þrem ára-
tugum og hún heppnazt svo vel, að
telja má hana óræka sönnun þess, að
skógur þrífist vel í umhverfi staðar-
ins. Hólamenn hafa nú í hyggju að
fullkomna verk Sigurðar áður en lang-
ur timi líður, og mynda dálitla tjörn
til fegurðarauka í gróðrarstöðinni eða
annarsstaðar í nágrenninu. Hafa þeir
hugsað sér veg kringum tjörnina, en
skógargróður í brekkum umhverfis.
Hefir sú hugmynd komið fram, að
skólabræður og verknámsflokkar ættu
þar afmarkaða reiti, og að hver mað-
ur gróðursetti þar tré, er hann helg-
aði sér með nokkrum hætti. — Einnig
hafa Hólamenn mikinn hug á, að unnt
verði að koma upp sundlaug við skól-
ann, svo að hægt verði að kenna nem-
endum sund. Er þá um að ræða að
leiða heitt vatn úr Biskupalaug á
Reykjum heim að Hólum. Yrði það i
senn hitagjafi og heilsubrunnur Hóla-
staðar. En Reykir eru í Hjaltadal um
8—9 km. sunnar en Hólar.
Útbreiðið TÍMA N IV
Konnnguriim
fyrirskipaði.
j 1
| Söguleg dönsk kvikmynd j
j tekin af „Dansk Kultur- |
I film“, er lýsir tildrögum til \
| þess er dönsku bændurnir |
| voru leystir úr átthaga- \
j fjötrunum 20. júní 1788. \
j
! Aðalhlutv. leika:
HENRIK MALBERG,
CLARA PONTOPPIDAN, j
EDITH PIO 0. fl.
r-“—NÝJA BÍÓ —'■»
í *
Scotland Yard
á ferðinni.
i i
í Spennandi og viðburðarík j
| sakamálakvikmynd frá 1
! United Artists, er sýnir j
j frægasta leynilögreglufé- !
j lag heimsins í bardaga I
| gegn illræmdum saka- j
j mannaflokki. — Aðalhlut- j
! verkin leika:
! PAUL CAVANAGH,
\ MARGOT GRAHAME.
j Aukamynd:
j Klukknahljómar
j frá belgiskum kirkjum. !
Bankarnir verða lokaðir
langardag lyrír páska
Athygli skal vakin á |»ví. að víxlar sem falla
í gjjalddaga þriðjjudaginn 4. apríl, verða af-
sagðir miðvikudaginn 5. apríl, séu þeir eigi
greiddir eða framlengdir fyrir lokunartíma
bankanna þann dag.
LATMDSBANKI ÍSLA\DS.
LTVEGSBAAKl ÍSLANDS H.F.
BÚHADABBANKI ÍSLANDS.
Framsóknarfél. Reykjavíkur
Fundur n. k. fimmtudag (30. marz) kl. 8.30
I Kaupþingssalnum.
Fundureini:
JÓiWS JÓÁSSOÁ hefur umræður um
SAMVIIWT LÝBRÆÐISFLOKKAMA.
Stjórnin.
Látinn
Y atnsnesingur.
(Framh. af 3. síðu)
felldu ekki segl á hættustund.
Jón í Vík ákvað að stunda
læknisfræði, og varð hann
læknir fyrst nokkur ár hér á
landi og síðan allmörg ár í
Noregi. Gegndi hann þar að
sögn erfiðu læknishéraði á vest-
urströnd Noregs, þar sem þurfti
að ferðast mikið á sjó. Hefir Jón
eflaust verið vel vaxinn því
starfi og hefir sjómennska hans
komið honum þar að góðu haldi.
Um æfiferil hans er mér ókunn-
ugt eftir að leiðir okkar skildu
á æskuskeiði, en heyrt hefi ég
að honum hafi tekizt vel lækn-
isstörfin, og tæplega trúi ég
öðru en að drengileg framganga
hans, dugnaður og víðtæk þekk-
ing hafi aflað honum trausts
og vináttu meðal frænda vorra
í Noregi. En eflaust hefir hann
ekki notið sín til fulls erlendis,
eða getað fest þar yndi, og hvarf
aftur heim eftir 15 ára dvöl. Og
einhverra hluta vegna naut
han sín ekki heldur heima. Ef
til vill voru hneigðir hans og
hæfileikar of íjölþættir til þess
að góðri fótfestu yrði náð. Ef til
vill voru það hin gömlu, mein-
legu örlög, sem marga landa
vora hafa hrjáð og rænt dögum,
sem eiga rætur sínar í fátækt,
fámenni og fjarlægð frá mið-
stöðvum menningarinnar og
því skipað mörgum í krókbekk,
sem annars hefðu átt sæti í
kór. Ef til vill átti sökina að ein-
hverju leyti „óminnis hegri sá
er of öldrum þrumir.“ En hvað
sem um það er. Þó nú séu liðin
rúm 30 ár síðan ég kynntist um
stutt skeið þessum gjörfilega
unga „víking“ af Vatnsnesi, hef-
ir hann orðið mér ógleyman-
legur eins og sumar persónur,
sem hafa tekið hug manns í
æsku föstum tökum, og maður
á erfitt með að sætta sig við, að
hafi brotið skip sitt á úfnum
sjó lífsins.
Bjöm Stefánsson.
Sígurður Olason &
Egill Sigurgeírsson
Málflutníngsskriistofa
Austurstræti 3. — Sími 1712.
Fríkirkían
i Reykfavík
Skrílstolan er ilutt
á Grettísgötu 2
Sími 2949. Opin kl.
10 12 og 4—5 dag-
lega.
Vinnið ötullega fyrir
Tímtinn.