Tíminn - 03.04.1939, Blaðsíða 2
160
Islands- kvikmyndin j sem Orlogskapteinn Dam j tók hér í fyrrasumar. Sýnd í kvöld kl. 8 og 9.15. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4. (Lækkað verð). ! Ósýnilegu geislarnir Dularfull og hrikalega j spennandi amerísk kvik- j mynd frá Universal film, j j þar sem ýmsir stórfeng- j legir framtíðardraumar \ j vísindanna eru gerðir að I veruleika. — Myndin er j ! „tekniskt" snilldarverk og j f aðalhlutv. leikið af j BORIS KARALOFF. j Aðrir leikarar eru: BELA LUGASI, VIOLET COOPER o. fl. j Börn fá ekki affgang. I
Skriístoíur vorar verða lokaðar laugardaginn lyrir páska ftll&ii dftginn* Tóbakseinkasala ríkisins.
Ný bók: irfræðl FRSSON gerlafræðing. í þeim, sem vinna að fram- og mjólkurafurða, en auk nmtileg aflestrar fyrir alla. 20 myndir til skýringar. — um bókaverzlunum.
Mjélku Eftir SIGURÐ PÉTL Bókin er ómissandi öllun leiðslu og meðferð mjólkur þess er hún fróöleg og skei í bókinni eru rúmlega Kostar kr. 3.50 og fæst í öll
TÍMIM, mámidagiim 3. apríl 1939
40. bla»
lækkuninni með launauppbót-
heildartekjur verkamanna og
sjómanna verði sízt minni en
verið hefir, miðað við fram-
á síldveiðar á komandi su
sem sennilega hefði annars orð-
ið að liggja í höfn. Hinsv<
þá, sem í frv. segir, um leið og
jafnframt er fyrirbyggt,
kauphækkun verði á sama tíi
hjá hinu betur launaða fólki.
Þá er ákvæði í 4. gr. frv. um,
þeir óska þess fremur en
vinna fyrir fast kaup, og gilda
þá þær reglur um hlutaskiptin,
sem áður hafa tíðkazt á við
komandi útgerðarstað, nema
samkomulag verði um annað.
Er þetta ákvæði sett til þess að
sjómenn geti notið þeirrar verð
hækkunar á sjávarafurðum, sem
leiða mun af verðbreytingu ís-
lenzkra peninga.
í sömu gr. frv. er einnig á
kvæði um að breyta nokkuð
launagreiðslum til yfirmanna á
togurum. Er lagt til, að verð
fyrir kol og veiðarfæri skuli
dragast frá verðmæti aflans áð-
ur en „premía“ til þeirra er
reiknuð.
Ennfremur er ákveðið I þess-
ari grein, að seljendur íslenzkra
útflutningsvara, sem hafa gert
samning um sölu á þeim vörum
í íslenzkum krónum, geti sagt
upp slíkum samningum, ef vör-
urnar eru óafhentar. Þykir rétt,
að eigendum útflutningsvöru sé
þannig gert mögulegt að njóta
þeirrar verðhækkunar, sem
stafar af verðbreytingu pening-
anna, þó að þeir hafi gert sölu-
samninga um vöruna, áður en
sú breyting varð.
í 5. gr. frv. er ákvæði um, að
sömu reglur skuli gilda um verð-
lag á kjöti og mjólk á innlend-
um markaði sem um kaupgjald
verkamanna og sjómanna,
þannig, að verðlækkun á þessum
vörum haldist í hendur við
hækkun kaupgjaldsins. Þykir
ekki ástæða til, að vörur þessar
hækki meira en kaupgjaldið, þar
sem þess er að vænta, að með
aukinni atvinnu við sjóinn skap-
ist meiri og tryggari markaður
þar fyrir landbúnaðarvörur,
til hagsbóta fyrir bændur, held-
ur en orðið hefði, ef engar ráð-
stafanir hefðu verið gerðar til
stuðnings sjávarútveginum.
Einnig þykir rétt að benda á, að
með verðbreytingu peninganna
fá íslenzkar afurðir betri að-
stöðu i samkeppni við erlendar
matvörur, og virðist mega vænta
verulegrar söluaukningar á þeim
þegar af þeirri ástæðu.
í 6. gr. frv. er ákvæði um, að
bönkum og öðrum lánstofnun-
um skuli óheimilt að hækka út-
lánsvexti á yfirstandandi ári.
Þá er samkvæmt 7. gr. frv.
óheimilt að hækka leigu eftir
hús og aðrar fasteignir frá því,
sem nú er, til 14. maí 1940, og
sömuleiðis er leigusala á sáma
tíma óheimilt að segja upp
leigusamningum um húsnæði,
ef leigutaki heldur samninga,
nema hann þurfi þess til eigin
afnota. Þykir rétt að setja slíkt
ákvæði til þess að koma í veg
fyrir hækkun á leigu, þar sem
húsaleigan er mjög stór liður í
framfærslukostnaði í kaupstöð-
unum, einkum í Reykjavík. Er
nauðsynlegt, að gert sé allt sem
unnt er til þess að vinna á móti
dýrtíð í landinu, bæði með slíku
ákvæði sem þessu, og með því að
beita, svo sem frekast er fært,
ákvæðum laga um verðlag á
vörum, sem sett voru á síðasta
Alþingi, á meðan óhjákvæmilegt
er að takmarka innflutning.
Loks er í frv. heimild fyrir
ríkisstjórnina til að setja með
reglugerðum nánari fyrirmæli
Yfírlýsíng íorsætisráðherra
Á þingfundi í dag gaf forsæt-
isráðherra svohljóðandi yfir-
lýsingu:
Að tilhlutun Framsóknar-
flokksins hafa síðan í þingbyrj-
un farið fram samtöl milli Al-
þýðuflokksins, Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins um myndun þjóðstjórnar.
Sjálfstæðisfiokkurinn hefir
nú gefið þau svör, að hann vilji
taka þátt í slíkri stjórnarmynd-
un, en hefir þó sett fyrir þeirri
þátttöku nokkur skilyrði, sem
enn eru ekki útrædd.
Frá Alþýðuflokknum liggur
málið ekki fyrir í því formi, að
afstaða hafi verið tekin til þess.
Er því auðsætt, að enn muni
til þess þurfa nokkra daga að
reyna til þrautar, hvort þjóð-
stjórn, sem þessir þrír flokkar
standi að, verði komið á, en
orðræðum um það mál verður
haldið áfram. En umtal og um-
ræður, sem orðið hafa um geng-
islækkun og fundarsamþykktir,
sem gerðar hafa verið af ýmsum
um það mál, hefir hinsvegar
skapað það ástand í landinu, að
úr því verður að fá skorið nú
þegar, hvort Alþingi felst á
gengislækkun. Það mál þolir
héðan af enga bið. — Fram-
leiðslan má ekki við því að bíða
lengur eftir þeirri hjálp, sem
henni yrði að leiðréttingu á
skráningu krónunnar. En auk
þess eiga sér nú þegar stað upp-
kaup á vörubirgðum, sem til eru
í landinu, svo að til vandræða
horfir. Jafnframt hliðra inn-
flytjendur sér hjá að kaupa inn
vörur og láta af hend.i, af ótta
við að þurfa siðar ef til vill að
greiða þær með breyttu gengi.
— Þá eru eigi alllítil bi'ögð að
því, að útflytjendur dragi að
selja vörur úr landi. Má segja,
að afurðasalan sé því nær stöðv-
uð. Getur þetta m. a. valdið
markaðstöpum. — Þá er og hitt
eigi síður áberandi, að þeir, sem
vörur selja úr landi, fresti af-
hendingu gjaldeyris í von um
gengislækkun. En hvorttveggja
þetta, sölutregðan og dráttur
þess að skila gjaldeyrinum, hef-
ir, eins og gefur að skilja, hin
alvarlegustu áhrif á gjaldeyris-
og viðskiptaástandið innan-
lands og gagnvart útlöndum, og
um framkvæmd þeirra mála,
sem lögin fjalla um, og ákvæði
um refsingar fyrir brot á lög-
unum.
Næsta blað Tímans
kemur út á miðvikudaginn.
verður eigi komizt hjá að ráða
tafarlaust bót á því.
Af þessum ástæðum er nú bor-
ið fram á Alþingi frumvarp um
þessi mál, og er það óumflýjan-
leg nauðsyn, að afbiigði frá
þingsköpum verði veitt til þess
að ekki þurfi að verða löng bið
á afgreiðslu frumvarpsins, hvei’t
sem það verður samþykkt eða
fellt í þinginu.
Umræður um gengisfrumvarpið
hófust kl. 2 í dag.
Frumvarpið var tekið til um-
ræðu á nýjum fundi í neðri
deild kl. 2 í dag. Atkvæðagreiðsla
fór fram um það, hvort taka
mætti málið til umræðu þegar í
stað og voru greidd atkvæði
með nafnakalli. Móti því að mál-
ið væri tekið fyrir voru greidd
4 þingmannaatkvæði (Einar Ol-
geirsson, Héðinn Valdimarsson,
ísleifur Högnason og Sigurður
Kristjánsson). Hjá sátu 3 þing-
menn (Garðar Þorsteinsson,
Gísli Sveinsson og Sigurður E.
Hlíðar). Tveir eru fjarverandi
vegna veikinda (Jakob Möller og
Þorbergur Þorleifsson). En 24
þingmenn greiddu atkvæði með
því, að málið yrði tekið til um-
ræðu þegar í stað.
Hóf því næst Skúli Guðmunds-
son atvinnumálaráðherra fram-
söguræðu frumvarpsins.
Happdrætli Háskóla íslands
Á morgun er síðastí endurnýjunardagur.
Dregið verður 11. apríi næstkomandí.
Athu^lð
Vegna hátíðarínnar eru nú aðeíns 4 söludagar eitir.
Vinntð ötullega fyrir
Tímann.
Hagkvæm
páskakaup
Bökunarvörur
mikið úrval
Páskaegg
Otal stærðir
lágt verð
Páskagrænmeti
Hvítkál
Ranðkál
Sellerl
Gulrætur
Rauðrófur
Nesti
í skiðaferðlr
í páskamatinn
Nautakjöt
Hangikjöt
Dilkakjöt
Gerið páskakaupin
tímanlega.
(ökaupíélaqió
C ^ostovstr. ð sirm 3hS2.0pið kl.11-12o<joJ
kaupir kreppulánasjóðs-
bréf, veðdeildarbréf og
hlutabréf í Eimskipafé-
lagi íslands h. f. — Ann-
ast allskonar verðbréfa-
viðskipti.
Kopar
keyptur f Landssmiðjunni.
§máiölHverð
á eítirtöldum tegundum ai tóbaki má eigi
vera hærra en hér segír:
Rjól B. B..................
Mellemskraa B. B. . í 50 gr.
Smalskraa B. B. . . í 50 —
Mellemskraa Obel . í 50 —
Skipperskraa Obel . í 50 —
Smalskraa Obel .
. . kr. 14 pr. V* kg.
pk. — 1,50 - pk.
— — 1,70 - —
— — 1,50--------
— — 1,60 - —
— — 1,70 - —
. í 50----
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má leggja allt
að 3% á innkaupsverð fyrír sendingarkostnaði til
útsölustaðar.
Tóbakseínkasala ríkísins.
hín nýja
Yfirburðir hinnar nýju olíus
Hinar nýju „SheH“-bílaolíur eru jafnfljótandi, en
mynda þó afar seiga og örugga olíuhimnu. Sori í
olíunni myndast við það, að olían sundrast við
hita eða þrýsting. Hinar nýju olíur sundrast ekki
við hita eða þrýsting, og eru þess vegna soralausar.
Hinar nýju olíur eru hreinsaðar með hinni nýju
„solvent“-aðferð, sem tryggir það að olían heldur
sínum góðu eiginleikum við hinn erfiðasta akstur
og ver vélina fullkomlega fyrir sliti.
. ER í EFTIRFARANDI
ÞYKKTUM:
SINGLE SHELL, S.A.E. 20
DOUBLE SHELL,
TRIPLE SHELL,
GOLDEN SHELL,
S.A.E. 30
S.A.E. 40
S.A.E. 50
Shell smurt er vel smurt