Tíminn - 13.04.1939, Side 2

Tíminn - 13.04.1939, Side 2
ITO TlMHViy, fiiniiiturtagiim 13. apríl 1939 43. Ma9 Cretur Reykjayík gleypt Akureyri? Gagnkvæma jaínréttíð mílli r Islands og Danmerkur ^ímmn Fimmtudaginn 13. apr. Gengismálíð, blöðin o. ÍL — ■ ií '• ”*■> Annan páskadag boðuðu liðs- menn Héðins Valdimarssonar til fundar i Reykjavík til að efla til andstöðu gegn gengislækk- uninni. Á fund þennan var boðið fulltrúum frá ýmsum verklýðsfélögum í Reykjavík og næstu þorpum. En eftir því, sem Tíminn hefir frétt, komu þarna færri en kallaðir voru. Meiri- hluti fundarmanna gerði að vísu forvígismönnunum það til geðs að samþykkja mótmæli gegn gengislækkuninni. En fulltrúar verkamanna munu hafa verið alls ófúsir til að grípa til ólög- legra aðgerða í þessu máli. Hafa það sjálfsagt orðið einhverjum kommúnistum vonbrigði, enda lætur Þjóðviljinn í gær ekki mikið yfir fundi þessum. Hitt er þó vitað mál, að kommúnistar munu halda á- fram í blöðum sínum og annars- staðar hörðum andróðri í þessu máli. Gera má ráð fyrir, að af þeirra hálfu verði reynt að gera úlfalda úr mýflugunni í hvert sinn sem einhver verðhækkun kann að verða og að jafnframt verði reynt að vekja óánægju almennings með ýmsar þær ráð- stafanir sem gera þarf til að halda verðlaginu niðri. Stjórn- arvöld landsins mega vera fylli- lega við því búin, að úr þessari átt verði öfluglega að því unnið að torvelda allar framkvæmdir í þessum málum. Margur mun nú segja sem svo. Gengislögin voru samþykkt á Alþingi með einhverjum þeim stærsta meirihluta, sem þekkzt hefir í svo mikilsverðu máli. Það ætti vissulega ekki að vera hætta á því að mál, sem 35 al- þingismenn standa að, yrði af- flutt og rægt svo meðal þjóðar- innar, að tjón hlytist að, enda þótt nokkrar „kommúnista- sprautur" væru þar að verki. En gallinn er sá, að það eru ekki kommúnistarnir einir og blöð þeirra, sem nú vinna að því að vekja andúð gegn gengislög- unum og framkvæmd þeirra. Framsóknarflokkurinn á þingi hafði þá sérstöðu meðal hinna stærri flokka að greiða heill og óskiptur atkvæði með gengis- lögunum. Hann styður líka mál- ið undandráttarlaust í blöðum sínum. Af sjö Alþýðuflokks- mönnum á þingi, greiddu sex atkvæði með lögunum. Og í Al- þýðublaðinu hefir líka, síðan lögin komu til framkvæmda, verið mjög sómasamlega tekið á þessu máli. En viðhorf Sjálfstæðisflokks- ins í málinu er enn sem komið er nokkuð sérstakt. Á Alþingi greiddi meirihluti flokksins — níu talsins — atkvæði með lög- unum. En átta greiddu atkvæði á móti. Bæði flokksbrotin komu fram í útvarpsumræðunum og gerðu grein fyrir afstöðu sinni og var það ekki óeðlilegt. En þegar að því kom að umræður um lögin væru teknar upp í blöðum flokksins, kemur það einkennilega fyrirbrigði í ljós, að meirihluti flokksins, þeir níu, sem atkvæði greiddu með lög- unum, virðast ekki eiga þar neinn málsvara. Bæði aðalblöð Sjálfstæðis- flokksins í Rvík rita nú með greinilegri andúð um þetta mál. í Vísi hefir þetta komið fram frá upphafi. Mbl. hefir verið meir tvístígandi. En í forystugrein þessa blaðs á miðvikudag kenn- ir þó ótvíræðrar andstöðu gegn málinu. Grein þessi hefst með árásum og útúrsnúningum í garð ríkisstjórnarinnar fyrir að hafa beitt sér fyrir þessu máli. Og öll tormerki eru talin á því að láta gengislækkunina verða að gagni. Mönnum verður að spyrja: Hvernig má það eiga sér stað, að höfuðmálgagni Sjálfstæðis- flokksins haldist uppi að skrifa á þessa leið — að þvi er virðist í nafni flokksins — eftir að meirihluti þingflokksins og þar á meðal formaður hans hafa tekið afstöðu, sem er alveg öfug við það, sem haldið er fram í blaðinu? Hefir meirihlutinn ekki Akureyri er næststærsti bær á íslandi, og höfuðstaður Norður- lands. Þar búa 5000 menn. — Nyrðra þykir þetta bæði stór bær og fallegur bær. Það hefir kostað marga svitadropa að gera á Ak- ureyri öll þau mannvirki sem þar hafa verið gerð til aö bæta úr þörfum þeirra 5 þús. manna, sem þar búa. En höfuðstaður landsins er orðinn miklu stærri. Reykjavík er orðin svo mikil fyrir sér, að hún hefir á fátækraframfæri jafn margar manneskjur eins og nú búa í höfuðstað Norður- lands. Menn geta gert sér í hugar- lund, hve mikil þessi byrði er fyrir Reykjavík, ef menn hugs- uðu sér að það hefði allt í einu þurft að byggja borgarhluta fyr- ir þetta fólk. Sá bæjarhluti yrði jafn stór og Akureyri er nú. Þar væru mörg hundruð hús, fjölda margar búðir. Skóli fyrir 800 börn, sjúkrahús, kvikmyndahús, aðstöðu til að skýra sinn mál- stað í blöðum flokksins? Sjálfstæðismenn geta auðvit- að sagt, að starfsemi blaða þeirra og það, sem fram fer inn- an flokksins, sé þeirra einka- mál og komi öðrum ekki við. Má það og að nokkru leyti til sanns vegar færa. En hitt kemur þeim nokkuð á óvart, sem stutt hafa að framgengi gengislaganna og vilja að árangur verði af þeim, að þrír fjórðu hlutar af dag- blöðum höfuðsstaðarins skuli vinna að því að útbreiða andúð á málinu og gera framkvæmd þess sem örðugasta. Slíkt er ekki einungis hvimleitt, heldur einn- ig hættulegt fyrir árangur máls- ins. Geta útgerðarmenn sætt sig við það, að hagsmunir þeirra í þessu stóra máli séu algerlega varnarlausir gagnvart öllu því fólki í höfuðstaðnum og víðar, sem fyrst og fremst eða ein- göngu les núverandi aðalblöð Sjálfstæðisflokksins, Vísi og Morgunblaðið? Það verður ekki annað ráð, en að þeir útgerðarmenn, og aðrir framleiðendur til útflutnings, sem í Sjálfstæðisflokknum eru, verði að gangast fyrir einhverri breytingu í þessu sambandi: Annaðhvort því, að blöð Sjálf- stæðismanna verði opnuð fyrir sæmilegum málflutningi um þetta efni, eða að framleiðend- urnir innan flokksins geti feng- ið umráð yfir sérstöku blaði til að ræða þetta mál meðan þess er mest þörf. I. í gær var borinn til grafar hér í Reykjavík frægur Skag- firðingur, Indriði Einarsson, fyrsti hagfræðingur landsins, skrifstofustjóri í stjórnarráðinu, leikritaskáld og faðir þjóðleik- hússhugmyndarinnar íslenzku. Indriði Einarsson var nálega 88 ára að aldri er hann andað- ist. Hann var fæddur norður í Skagafirði árið sem íslendingar risu upp gegn dönsku ofbeldi og sögðu með Jóni Sigurðssyni for- seta: „Vér mótmælum allir“. Indriði óx upp í Skagafirði við fjörugt og þróttmikið sveita- líf, við hestamennsku og svaðil- farir að sundríða vötnin. For- eldrar hans sendu hann ungan í skóla. í æfisögu sinni lýsir hann átakanlega, hve Reykja- vík var lítið þorp, þegar hann sá bæinn fyrsta sinn, er hann kom ríðandi norðan úr landi á leið í lærðaskólann í Reykjavík. Indriða sóttist vel námið bæði í Latínuskólanum og hagfræðin í Kaupmannahöfn. Á Hafnarár- um sínum kom hann eins og aðrir þjóðræfcnir íslendingar mikið til Jóns forseta og frú Ingibjargar og hafði þaðan óaf- máanlegar minningar. Meðfætt fjör, áhrifin frá Jóni forseta, og frelsisbylgjur samtíðarinnar símar, rafstöð, langar, steinlagð- ar götur o. s. frv. í þjóðfélagi, þar sem allir vinna fyrir sér, skapa allir auð- inn og menningarverðmætin. En í Reykjavik eru 5000 manneskjur sem ekki komast að heilsubrunni framleiðslunnar. Margir fá ekki að vinna. Margir vilja ekki vinna. Báðir aðilar bíða tjón af atvinnu- og iðjuleysinu á fram- færi annarra, tjón á líkama og sál, óbætanlegan skaða fyrir for- eldra og börn. Sennilega hafa menn í Reykjavík ekki athugað nógu vel þetta mikla vandamál. Bærinn ber á örmum sér ógæfu- saman og iðjuiausan mannahóp, jafnfjölmennan næststærsta bænum á íslandi. Þessi byrði er í einu illbærileg fyrir þá, sem greiða skattana í Reykjavík og óbærileg fyrir þá, sem verða íyrir því að lifa af þessu náðarbrauöi. Hinn geysifjölmenni þurfa- mannahópur í höfuðstaðnum veldur einna djúptækustu meirx- semd þjóðfélagsins. Fyrir fáum dögum hefir Al- þingi breytt gengi krónunnar til að færa hana nær sönnu verð- gildi. Það mikla átak var gert til að hlynna að útveginum, til að gera kleyft að sækja sjó á íslandi og fæða og klæða fólkið á sjávar- bakkanum. Með gengisbreyting- unni hafa „allir hinir“ komið til móts við útgerðarmenn og sjó- menn og skilað aftur ofborguöu framlagi útvegsins til þeirra, sem hafa atvinnu sína á landi, í bæjum og kauptúnum. Menn vita með vissu að þetta mikla átak til viðréttingar út- veginum, muni breyta stórlega undirstöðu atvinnulífsins í land- inu. Hér var að nokkru bætt úr gömlu óhappi, hækkun krón- unnar fyrir 15 árum, sem síðan þá hefir legið eins og þungbúið ský yfir framleiðslunni við sjó- inn. Þrír flokkar stóðu að þessu mikla verki á Alþingi. Það eru hinir þrír ábyrgu flokkar þings- ins. Það eru þeir flokkar, sem nú undangengin missiri hafa dregið úr innbyrðis deilum, og stýrt málefnum Alþingis með sameiginlegri meðferð forseta- valdsins. Framtíð íslands á næstu árum verður að mjög miklu leyti kom- in undir því, hversu þessum flokkum tekst að vinna saman að friðsamlegri lausn stórmála. Viðrétting útvegsins var fyrsta stórmál kaupstaða og kauptúna. Einum þætti þess stórmáls er nú lokið. En næsta stórmálið er fá- tækraframfærið við sjóinn. Sú þraut verður ekki leyst af nein- höfðu áhrif á hann í eina átt. Hann varð bjartsýnn og stór- huga íslendingur og hélt þeim einkennum fram á grafarbakk- ann. Fyrir ári síðan var hann ræðumaður á móti Skagfirðinga í Reykjavík. Hann stóð þar á ræðupallinum, hvítur fyrir hær- um, en fjörlegur í yfixbragði, í svörtum tilhaldsklæðum, hvítu vesti og með rauðan silkivasa- klút í brjóstvasanum. Ellin náði ekki inn í sál hans. Hann á- varpaði hinn fjölmenna fund Skagfirðinga með djarfmann- legri kveðju, og mælti á þá leið, að hann teldi þann Skagfirðing bregðast héraði sínu og rétt- mætum metnaði, sem ekki sýndi lífstrú sína og þrek í öllum verkum og framgöngu. í Reykjavík fékk Indriði Ein- arsson lága og lítt launaða stöðu í stjórnarráðinu, undir hinum fyrstu landshöfðingjum íslands við bókhald og reiknings- færslu. Skuggi Estrups lá yfir Danmörku og íslandi á þessum árum. Tíu ára harðindi og hafísár spenntu hungur- gjörð um landsfólkið. Fjórði hluti íslendinga leitaði vestur um haf úr fangbrögðum við harðindin og hina þungu hönd erlendrar kúgunar og innlendr- ar kyrstöðu. En allur þessi mót- Til ritstjóra „Tímans“, Reykjavík. Vegna greinar í „Tímanum" 9. þ. m. „Gagnkvæmið“ eftir Magnús Torfason, sem virðist benda til, að ekki hafi borizt í réttri mynd heim það, sem ég sagði í útvarpsræðu minni hér 1. desember um gagnkvæm rétt- indi Dana og íslendinga sam- kvæmt sambandslögunum, leyfi ég mér að til færa hér orðrétt eftir ræðu-handritinu það sem ég sagði: „Með samningi þeim, sem felst í sambandslögunum frá 1918, er ríkisboxgurum beggj a landa veitt gagnkvæm réttindi í hinu landinu, í talsvert víðtækara mæli en venja er í vináttusamn- ingum milli tveggja óháðra ríkja. Því verðúr ekki gengið fram- hjá, að margir íslendingar báru nokkurn ugg í brjósti fyrir af- leiðingum þessa ákvæðis. Dan- mörk var 30 sinnum fólksfleiri en ísland og miklu auðugra land. Það var ótti hjá mörgum fyrir því, að slikt jafnréttisá- kvæði mundi verða þeim aðilj- anum, sem sterkari væri, til hagsmuna, og hætta væri á því fyrir veikari aðiljann, íslenzku þjóðina, að verða borin ofurliði í þeim skiptum. Óhætt er að fullyrða í dag, eftir 20 ára reynslu, að þessi ótti hefir ekki fram að þessu reynzt á rökum reistur. Það liggur við að freistandi sé að halda þvi fram, að einmitt þetta ákvæði hafi getað átt einhvern þátt i þeirri batnandi sambúö milli Dana og íslendinga, sem enginn mun geta neitað að verið hefir síðan 1918. Og þessi góða sambúð með þjóðunum, í frið- samlegri samvinnu, án nokk- urra verulegra ágreiningsmála, mætti skoða sem enn eina sönnun þess, hve vel var ráðið, um einum flokki. Til að ráða fram úr fátækramálunum, þarf samstarf allra ábyrgra manna í landinu. Það myndi þykja undariegt, aö spyrja, hvort höfuðstaður ís- lands gæti gleypt höfuðstað Norðurlands. Hitt er ef til vill enn furðulegra, að þurfamanna- hópur Reykjavikur skuli verða jafn fjölmennur og Akureyrar- bær. Þessar 5000 sálir, sem nú eru á framfæri Reykvíkinga, þarf að leysa úr álögum. Þær þurfa að fá að vinna fyrir sér og sínum. Þær þurfa að fá aftur lífsgleði og starfslöngun hins sjálfstæða manns. gangur fór með nokkurum hætti fram hj á hinum skagfirzka end- urskoðanda á skrifstofu lands- höfðingja. Hann var vel giftur og kona hans vann að nokkru leyti með honum að starfi hans fyrir landið. Fjölskyldan var stór, tekjurnar litlar, en harð- indi og þrálátur barlómur í loft- inu. En Indriði Einarsson hélt sinni léttu og glöðu lund, var hrókur alls fagnaðar þar sem æskan skemmti sér og leyfði sér að trúa á framtíð landsins og bjarta daga í ókominni fram- tíð. Á sextugsaldri gerði Björn Jónsson Indriða að skrifstofu- stjóra í fjármálaráðuneytinu. Nálega tíu árum síðar fékk hann lausn og nokkur laun sem rit- höfundur. Hann hafði frá því á skólaárum sínum stundað leikritagerð, og sinnti þeim mál- um að mestu það sem eftir var æfinnar. Eitt af leikritum hans, Nýársnóttin, hefir í tvo manns- aldra verið eitt hið vinsælasta af íslenzkum gleðileikjum. Önn- ur leikrit hans hafa bókmennta- lega þýðingu í sögu íslenzkrar leiklistar. II. Þegar Indriði Einarsson vann ár eftir ár að því að bókfæra og endurskoða tölur um eignir, tekjur og útgjöld hins fátæka ættlands, sem var að reyna að rísa á legg að nýju í harðindum og margháttuðum mótgangi, þá sá hann aðrar sýnir, sem ekki komu við jörðina. Hann sá fyr- ir sér mikið og fagurt leikhús í höfuðstað íslands. Hann sá það fullt af glöðu fólki. Hann sá er málunum var skipað árið 1918. Ég geri ráð fyrir því að ýms- ir landa minna líti ekki alveg sömu augum á jafnréttisákvæð- ið og afleiðingar þess eins og hér ér vikið að. Því skal heldur ekki neitað, að þetta hefði getað orðið á annan veg undanfarin 20 ár. Á núverandi þroskastigi þjóð- anna mun það almennt álit, að flestar þjóðir verði að áskilja sínum eigin ríkisborgurum ýms réttindi, sem ekki verði veitt ríkisborgurum annars ríkis. Að því ógleymdu, ætti takmarkið að vera, að skapa gagnkvæmt jafnrétti ríkisborgaranna milli þjóðanna, sem liggja á sömu eða líkri bylgjulengd um uppruna, sögu, löggjöf og menningu. Gæti það ekki hugsast, að ís- land og Danmörk hafi með jafn- réttisákvæði sambandslaganna farið inn á braut, sem gæti orð- ið fær, með eðlilegum takmörk- um, í viðskiptum t. d. milli Norð- urlandaþjóðanna innbyrðis? Gæti það ekki orðið heilladrjúgt, að Norðurlandaþjóðirnar sýndu í verki, að frændurnir gætu átt von á því, að farið væri með þá á sama hátt og landsins eigin börn á fleiri sviðum en nú, ef þeir vilja dvelja eða starfa í öðru landi en heimalandinu? Til dæmis má taka svið félags- málanna, menntunarstofnanir, sjúkrahús, embætti, stöður og ýms atvinnustörf. Það er skoðun mín, að gagnkvæma jafnréttið milli íslands og Danmerkur á þeim sviðum, sem ég nefndi til dæmis, hafi síður en svo orðið til tjóns. Ég gæti trúað því, að það hafi fremur aukið góða sambúð, slíka sambúð, sem allir góðir menn sjálfsagt mundu kjósa að væri milli þeirra þjóða, sem hafa lík menningarskil- yrði, án tillits til þess, hver þjóðin er hinni fremri é. sviði atvinnu- og fjárhagsmála." Kaupmannahöfn 22. marz 1939. Sveinn Björnsson. Fréttabróf til Tímans. Tímanum er mjög kærkomið að menn úti á landi skrifi blað- inu fréttabréf öðru hvoru, þar sem skilmerkilega er sagt frá ýmsum nýmælum, framförum og umbótum, einkum því er varðar atvinnulífið. Allar upp- lýsingar þurfa að vera sem fyllstar og gleggstar, svo að ó- kunnugir geti fyllilega áttað sig á atburðum, fyrirtækjum og staðháttum, sem lýst er. skáldverk, sum gömul og sum ó- fædd, borin fram á þessu leik- sviði. Hann sá íslenzka leiklist og íslenzka leikmenningu rísa upp úr drungalegum skýjum hins gráa hversdagslífs. Hann trúði því, að leikhús í Reykja- vík og aukin leikmennt myndi verða máttugur þáttur í endur- reisn þjóðarinnar. Og Indriði Einarsson lét ekki lenda við tóma dagdrauma. Hann talaði um þjóðleikhúsið, og hann skrifaði um málið. Hann reyndi á allan hátt að vekja áhuga samborgara sinna fyrir þessari framkvæmd. Hann fékk nokkra stoð í því, að á þessum tíma eignaðist höfuö- staðurinn marga prýöilega leik- ara, bæði karla og konur, sem stunduðu leiklistina með brenn- andi áhuga og ítrasta fórnar- vilja í hjáverkum undir hinum erfiðustu ytri kringumstæðum. Trú Indriða Einarssonar á leikhúsmálinu mun hafa kveikt áhuga hjá allmörgum fjárafla- og menntamönnum í bænum, svo að þeir keyptu dýra lóð við Tjörnina handa hinu tilvonandi leikhúsi. Það var djarft tafl og misheppnaðist með öllu. Eig- endurnir höfðu árum saman verulega byrði af þessari eign og seldu hana að lokum Odd- fellowreglunni undir samkomu- hús sitt. Var um þetta leyti ekki annað sýnna, en leikhúsdraum- ur Indriða Einarssonar myndi aldrei ná að rætast. III. Veturinn 1921—22 hittumst við Indriði Einarsson nokkrum Vökumenn og Vestur-íslend' íngar Eitt þeirra merku mála, sem Vökumenn hafa á stefnuskrá sinni, er að auka og treysta sam- bandið milli íslendinga í Vestur- heimi og hér heima á íslandi. í þessu máli hafa Vökumenn nú gert stórt átak í samráði við áhrifamenn fyrir vestan hafið. Vökumenn hafa beitt sér fyrir þvi að koma á víðtækum bréfa- skiptum milli æskufólks hér heima og í Vesturheimi. Sneru þeir sér aðallega til skólanna í landinu og leituðu þar stuðnings og samstarfs skólaæskunnar. Þótt enn séu ekki komin svör frá öllum þeim skólum, er Vöku- menn leituðu til, þá hafa þegar gefið sig fram yfir fimm hundr- uð ungir menn og konur, sem vilja taka virkan þátt í því göf- uga starfi, að tengja æskuna i Vesturheimi við ættland hennar og frændur sína er þaö byggja. Þessi starfsemi Vökumanna má telja eitt hið merkasta, sem gert hefir verið til þess að við- halda þjóðernislegu sambandi við landana fyrir vestan Atlants- hafið, og með því að tengja stóra hópa æskumanna og kvenna kynningar- og vináttuböndum, er byggður traustur grunnur undir varanlegt samband og samvinnu milli þessara tveggja hópa íslenzku þjóðanna um langa framtíö. Á víðavangl. (Framh. af 1. síðu) Árni frá Múla og Magnús Gíslason þykjast bera sérstaka umhyggju fyrir skipaferðum um Austfirði og hafa borið fram þingsályktunartillögu til að und- irstrika áhuga sinn á því máli. En broslegir eru þeir tilburðir, þegar þess er minnst, að á s.l. hausti hömuðust flokksblöð þessara þingmanna á móti því, að keypt yrði nýtt strandferða- skip í stað Esju og vildu láta rjúfa gefin fyrirheit í því máli og verja peningunum í milli- landaskip fyrir útlenda ferða- menn. Var því haldið fram i þessum blöðum, að flugvélar myndu geta bætt hinum af- skektari héruðum upp strand- ferðirnar á hvaða tima árs sem væri! Þá hreyfðu þeir Árni og Magnús hvorki hönd né fót Austfjörðum til varnar, og jafn- vel ekki grunlaust um, að Árni hafi sjálfur skrifað eitthvað af hinum gálauslegu Morgunblaðs- greinum. Hollustan við Aust- firðinga í þessu efni virðist því vera svipuð og í gengismálinu. sinnum hjá sameiginlegum góð- kunningjum. Við áttum ekki skap saman, nema ef telj a skyldi vissan þátt af bjartsýni um framtíðarmöguleika íslands. — Leikhúsmálið bar að sjálfsögðu á góma. Ég var þá að vinna að framboði mínu til Alþingis, og náði kosningu í landkjöri fyrir Framsóknarflokkinn vorið eftir, 1922. Þennan vetur gerðum við munnlegt samkomulag um að reyna að hrinda áfram leikhús- málinu. Ég hafði þá skoðun, að rétt væri að láta hinar lægri skemmtanir bera útgjöld við hærri tegundir andlegs lífs. Á þeirri hugmynd byggði ég síðar löggjöfina um að styðja listir, vísindi og bókmenntir með tekj- um af áfengissektum. í þetta sinn hélt ég fram að eina leiðin til að koma upp þjóðleikhúsi væri sú, að taka til þess skatt- inn af danssamkopium og kvik- myndasýningum. Indriða þótti þetta þjóðráð. Hér var fundinn Aladdinslampi, sem nota mátti til að gera leikhúsdrauminn að veruleika. Að öðru leyti var að- staða okkar erfið til samstarfs. Við vorum í gagnstæðum og mjög andvígum flokkum. Milli okkar voru engin bönd nema um þetta eina mál. Og þetta eina mál var á almenna vísu ó- vinsælt og hafði raunverulega enga áheyrn fengið hjá valda- mönnum í höfuðstaðnum. Stuðningur minn við málið var eingöngu byggður á bjart- sýni. Ég áleit að rétt væri að nota skemmtanaskattinn í glæsilega stórbyggingu fyrir landiö og Reykjavíkurbæ. Það J. J. JÓNAS JÓNSSON: Indriði Einarsson og þjódleikhús Islendinga

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.