Tíminn - 25.04.1939, Side 4

Tíminn - 25.04.1939, Side 4
188 TÍMPny, i>riðjjndaglnm 25. aprfl 1939 47. blað Kveldúlfur fyr og nú (Framh. af 2. síOu) stæðisflokkinn var ástandið líka óþolandi. Óstjórnin í fram- kvæmdum Héðins og Gísla Hall- dórssonar snerti atvinnurekstur margra Sjálfstæðismanna til- finnanlega. Auk þess hafði Sjálfstæðismönnum verið með öllu bolað úr stjórn verksmiðj- anna, þar sem Framsóknar- flokkurinn hafði eindregið lagt til að Mbl. ætti einn af þrem fulltrúum í stjórn verksmiðj- anna, en ekki fengið því fram- gengt. Það var þessvegna algerlega ómögulegt fyrir okkur Ólaf Thors, sem formenn tveggja flokka sem hér höfðu verið beittir órétti, annað en reyna í félagi að leysa þessa verksmiðju- þraut. Og með fylgi margra manna úr báðum þessum flokk- um tókst að koma á friði og reglu í verksmiðjunum. Þar komst á hin fyrsta samstjórn núverandi stjórnarflokka. Gísli Halldórsson sá sinn kost vænst- an að hverfa hljóðalaust til Danmerkur, og áhrif „órólegu deildarinnar" hurfu úr stjórn verksmiðjanna. Gamlir and- stæðingar úr öllum þrem lýð- ræðisflokkunum hófu nú frið- samlegt samstarf að nýju. Öll sérhagsmunabarátta flokkanna var lögð niður í verksmiðju- stjórninni og hugsað um gagn allrar þjóðarinnar. Árangurinn kom fljótt í Ijós. í stað þess að „órólegu deild“ Héðins hafði tekizt að skapa mörg hundruð þúsund króna tap á rekstri verk- smiðjanna í sérstöku góðæri, varð gróði hennar síðastliðið ár um hálfa miljón króna, þótt ár- ferði væri ekki nema í meðal- lagi. XI. Saga síldarverksmiðjanna á Siglufirði sýndi að Framsóknar- menn og Sj álfstæðismenn gátu unnið saman með góðum á- rangri, þegar alþjóðarnauðsyn krafist. En skilyrði fyrir viðun- anlegum árangri virtist þó vera það að hin ábyrgðarlausu og byltingarkendu öfl í verka- mannahreyfingunni væru svift öllú áhrifavaldi. Átökin um síld- arverksmiðjurnar bentu áhuga- mönnum lýðræðisflokkanna inn á nýjar brautir. Veittu menn þessu meiri og meiri eftirtekt í sambandi við vaxandi erfiðleika útgerðarinnar og afkomunnar í kaupstöðum og kauptúnum. Hver vertíðin hafði verið annari verri fyrir stórútgerðina. Mark- aðurinn þrengdist í Suðurlönd- um. Norðmenn gáfu æ meira og meira fé úr ríkissjóði í verðlaun á sinn útflutta fisk. Sveita- þyngsli og atvinnuleysi varð meira og meira áberandi við sjávarsíðuna. Ástand kaupstaða og kauptúna var smátt og smátt að verða sviplíkt og ríkisverk- smiðjanna undir stjórn Gísla Halldórssonar. Erfiðleikar atvinnuveganna bitna að síðustu á þjóðbankan- um. Töp hans eru ósigrar at- vinnulífsins, yfirfærðir í pen- inga. Eftir að sýnilegt var um afkomu stórútgerðarinnar, var bankaráði Landsbankans ljóst, að mikill hluti togaranna var rekinn með stórfelldu tapi. Var talið, að um 20 veiðiskip ættu ekki fyrir skuldum. í þeim hóp voru flest hin stærri togarafé- lög, bæjarútgerðir þær, sem verkamenn höfðu rekið í þrem kaupstöðum, og nokkur minni félög. Kveldúlfur var með sín skip í þessum hóp. Svo stórfellt var þetta tjón útvegsins, að á tveim árum hafði þurkazt út öll sú mikla eign, sem fjölskylda Thor Jensen hafði lagt fram 1937. Ekki var hægt að gera ráð fyrir öðru en að forstjórar Kveldúlfs legðu sig alla fram við að láta fyrirtækið bera sig, þar sem svo miklu var hætt. Auk þess var vitanlegt, að forráðamenn fyrir- tækisins stóðu að reynslu og þekkingu í meðferð þessara mála í röð fremstu manna í landinu. Éins og þar stóð á, var ómögulegt að deila um að for- ráðamenn Kveldúlfs höfðu hætt öllu sínu í fyrirtækið og lagt sig fram að láta sjást árangur. Fyrir áramót í vetur lýsti Jón Árnason yfir í bankaráðinu þessum athugunum, og að ekki yrði við svo búið unað, ef meg- inhluti togaranna í landinu ætti að halda áfram á þeirri braut, þá hefði hvorugur bankinn efni á að standa undir tapi þeirra. Allsherjaraðgerðir hlytu að koma til greina, sem næðu til allrar útgerðar í landinu. Skoðun þessari varð ekki mót- mælt. Meginhluti stórútgerðar- innar var gersamlega að þrot- um kominn. Kveldúlfur var að- eins einn hlekkur í þeirri keðju. En tap hans var mest áberandi af því hann átti mestan skipa- stól, úr því að rekstrarhalli var á hverju skipi Eins og nú var komið gat Landsbankinn vitaskuld tekið við eignum og rekstri Kveld- úlfs. En það er ekki hlutverk banka á íslandi að reka fram- leiðslustarfsemi fyrir eigin reikning. Hvorki bankastjórn né bankaráð vildi fara þessa leið. í stað þess varð samkomu- lag við forráðamenn Kveldúlfs um að fyrst um sinn skyldu vera trúnaðarmenn fyrir Landsbank- ann í stjórn fyrirtækisins. Með- an á því stæði skyldi selja, vegna Landsbankans, þær af eignum Kveldúlfs, sem ekki koma við útgerðinni. Eftir verða þá skip félagsins, síldarverksmiðjurnar báðar, fiskhús og fiskreitar. Sama breyting hefir verið gerð á stjórn hins stórútgerð- arfélagsins, Alliance. Smátt og smátt mun hið nýja bráða- birgðaskipulag ná til flestallra togarafyrirtækj a á landinu. Að því er Kveldúlf snertir mun verulega léttast skulda- byrði hans við sölu hinna marg- háttuðu fasteigna, sem ekki koma við útgerðinni. Ef stór- lega breyttust markaðsskilyrði til bóta erlendis, mætti svo fara að Kveldúlfur og þá vitanlega hin útgerðarfélögin, fengju stór- lega bættan hag. Um leið og svo væri komið, myndi Landsbank- inn sleppa beinni íhlutun um rekstur þess fyrirtækis og ann- arra, sem líkt eru sett. En ef markaðsskilyrði batna ekki verulega, þá hygg ég að öll stórútgerð verði á næstu miss- irum að komast á þann grund- völl, sem byrjað var að nálgast með hásetadeilunni 1916. Ef sjó- menn hefðu fengið að selja sjálfir lifrarhlut sinn, þá voru þeir orðnir hluthafar og með nokkrum hætti meðeigendur í fyrirtækinu. Og þá voru skil- yrði fyrir eðlilegri og friðsam- legri þróun. Menn fóru þá aðra leið, veg stríðsins milli atvinnurekenda og verkamanna. Það skeið er nú í bili runnið til enda, og nú sem stendur munu fáir gera sér miklar vonir um nálæga sigra á þeirri braut. Þá er sennilegt að horfið verði aftur að sam- vinnu og samstarfsleiðinni. Að því er snertir Kveldúlf, myndi þá á næstu missirum félaginu verða skipt í minni fyrirtæki, sem öll væru í nánu samstarfi. Það er ekki hægt að skilja veiðiskipin endanlega frá síld- arverksmiðjunum, fiskþurrkun- arhúsum eða , fiskreitum. En undir þeim kringumstæðum ynnu allir fyrir hlut, bæði þeir, sem störfuðu á sjónum, í síld- arverksmiðjunum, eða á skrif- stofum við stjórn á fyrirtækjum þessum eða sölu á framleiðslu þess. Kveldúlfur er aðeins einn lið- ur í keðju íslenzkra útgerðar- fyrirtækja. Þau græddu öll á stríðsárunum, og einstaka sinn- um síðan. Þau voru öll lömuð með gengisbreytingunni 1924— 25. Þau hafa öll barizt upp á líf og dauða fyrir tilveru sinni síð- an verðfallið mikla skall á 1930. Þau hafa öll fengið nokkra rétt- ingu sinna mála með hinni ný- legu gengisbreytingu. Reynslan sker úr þvi hvort sú breyting bætir öll þeirra mein eða aðeins sum þeirra. Eigendur þeirra vona eins lengi og hægt er, að fyrirtækin rétti nú öll við, og að niður falli um leið öll íhlutun bankanna um rekstur þeirra. En það getur líka farið svo að þetta takmark náist ekki að sinni. En þá byrjar líka nýr kapituli í sögu atvinnulífsins í bæjunum. Hin gamla íslenzka hlutarráðning er aftur sett í hásætið. Fólkið, sem vinnur að framleiðslunni á sjón- um, finnur að það hefir sam- eiginlegra hagsmuna að gæta. Menn byrja að vinna saman að framleiðslunni af góðum og vin- samlegum hug, í stað þess að gera ráð fyrir, að þar eigist fjandmenn við. Árið 1916 gátu eigendur skipanna ekki sætt sig við að sjómenn hefðu fullan eignar- og sölurétt á lifrinni úr þorskinum. Síðan þá hefir margt komið á daginn, sem bendir á að þessi eignar- réttarkenning hafi ekki verið óbreytanleg sannindi. Ef til vill sé hitt alveg jafnfullkomið skipulag, að þeir, sem starfa að framleiðslunni, beri sömu byrð- arnar og skipti ágóðanum. Þegar Framsóknarflokkurinn hóf göngu sína 1916, var Kveld- úlfur stærsta og mesta útgerð- arfyrirtækið og stærsta fyrir- tæki einstakrar ættar. Veldi hans virtist fara vaxandi eftir því sem árin liðu. Meðan út- tJR BÆNUM U. M. F. Velvakandi hefir aðalfund sinn í Kaupþingssaln. um í kvöld. Hefst hann klukkan 8. K. R.-stúlkurnar, sem sýnt hafa leikfimi í Danmörku og Svíþjóð, komu heim með Gullfossi á laugardagskvöldið. Kvenflokkurinn hefir getið sér hinn bezta orðstír í för- inni og eiga bæði stúlkurnar og stjórn- andi þeirra og kennari, Benedikt Jakobsson, hinn mesta heiður skilið. Kappleikar milli Vals og K. R. fóru fram á íþróttavellinum á sunnudaginn. Var keppt í þrem flokkum. Meistaraflokk- ur Vals sigraði meistaraflokka K. R. með 3:1, 2. flokkur Vals sigraði K. R,- inga með 2:0 og 3. flokkur K. R. sigraði Valsmenn með 1:0. Leikfélag Reykjavíkur hefir á morgun frumsýningu á sænskum gamanleik, sem heitir Tengdapabbi. Þessi gamanleikur var sýndur hér fyrst 1916 og fékk þá hinar beztu viðtökur. Gestir í bænum. Sigurður Sigurðsson hreppstjóri í Lambhaga í Skilamannahreppi, Ingi- mundur Ólafsson kennari, Hannes Jón- asson bóksali á Siglufirði, Jón Þorleifs- son, kaupfélagsstjóri i Búðardal, séra Marínó Kristinsson i Vallanesi. gerðin var í blóma sínum, virt- ist Framsóknarmönnum að út- vegsmannastéttin íslenzka gengi í atvinnurekstri og stjórnmálum hiklaust braut auðvaldsstefn- unnar. Sjómanna- og verka- mannastéttin fylkti sér í and- stæða sveit. Baráttan um skipt- ingu auðsins var stöðugt og sí- endurtekið ófriðarefni milli hins unga auðvalds og hins unga verkamannavalds. í deilunni 1916 hafði ég sýnt minn hug. Ég taldi hollast til frambúðar, að verkamenn og útgerðarmenn hefðu með sér réttlátt samstarf um framleiðsluna og byggðu á skipulegum hlutaskiptum. Sú stefna hafði þá ekkert fylgi og lítínn stuðning eftir nálega ald- arfjórðung. Þó er þar sennilega sú lausnin, sem koma skal. Á þessum gömlu góðu tímum útvegsins var Kveldúlfur ekki aðeins fyrirferðarmikill í at- vinnurekstri, heldur einnig sterkasta flokksvígi. — Ungir menn úr fyrirtækinu voru að byrja að leggja undir sig hvert kjördæmið af öðru. Hin mikla ræktun á Korpúlfsstöðum varð líka á vegi venjulegra bænda. Þetta eina bú seldi jafnmikla mjólk á markað í Reykjavík eins og allir bændur i tveim eða þrem hreppum gátu framleitt. í sjálfu sér var ekki hægt að segja að það væri brot við mannfélagið að gera mýrar i Mosfellssveit að túni. En rétti- lega eða ranglega gat þessi framkvæmd orðið ófriðarefni eins og líka kom á daginn. En það íslenzka útvegsauð- vald var ungt, veikt og lítið skipulagt. Það gerði eins og flestir aðrir, ýmiskonar yfir- sjónir í meðferð fjármuna. Það fékk á sig holskeflu. gengis- hækkunar 1924—25. Það varð síðan fyrir lokun og tapi mark- aða, innflutningshömlum og mjög hörðum og vaxandi kaup- kröfum, sem voru eðlilegar í góðæri, en komu illa við tap- rekstur. Kveldúlfur fylgist með í allri þessari þróun. Frá því að vera ríkt fyrirtæki, var hann orðinn fátæk stofnun. Erfiðleikar út- gerðarinnar þrengdu að sínum mönnum eins og fjárpestin, sem lamaði atvinnu landbænda í mörgum héruðum. Sameigin- legir erfiðleikar þokuðu hægt og hægt framleiðendum til sjávar og sveita meir og meir til sam- eiginlegra átaka um þýðingar- mikil vandamál. Að lokum kem- ur sú stund, að stofnandi Kveldúlfs og frændur hans verða fyrir byltingarsókn Héð- ins og félaga hans 1937. Um sama leyti gefur formaður bankaTáðs Landsbankans þeim kost á eðlilegum og öfgalausum skilyrðum. Þeim er boðið að tryggj a framtíð Kveldúlfs á samkeppnisgrundvellinum, með- an fært var, ef þeir leggi allar eignir sínar í áhættuna. Þessi raun var nokkurskonar járn- burður að fornum sið. Thor Jensen átti veglegasta íbúðar- hús á íslandi, mesta stórbú í sveit og mestu laxá á íslandi, þeirra, sem bættar hafa verið með mannlegri vinnu. Það hlaut á venjulega mannlega vísu að I. KAFLI. Fyrstu stundir flóttans urðu að löng- um dögum og dagarnir að vikum. Hann var harðger og vanur hnakknum frá barnæsku, en samt fannst honum þreyt- an ætla að vinna bug á sér og hann hafa ferðazt hálfan mannsaldur. Stálviljinn einn hélt honum uppi. Flóttinn hafði verið sem martröð, frá þeirri stund, er hann þeysti út í auðnina með mannaveiðarana á hælum sér. Sótt- hitinn ætlaði stundum að steikja hann, en stundum saug k.uldinn merginn úr beinunum. Hann var gersamlega úttaug- aður, en hélt sig þó við hnakkinn, því að hann var svo þrár, að hann vildi ekki með nokkru móti gefast upp. Hann hafði þjáðzt af hitaveiki, kvölum og lúa, og nú síðast af sulti, eftir að sárið fór að gróa .... Kyrrðin ætlaði að æra hann.... Óttinn nagaði jafnt og þétt.... Hér norður frá, þar sem hann var núna, var ekkert að sjá nema hvíta, óendan- lega auðnina. Snjórinn virtist hylja allt. Hann var kominn langt, langt að, og OAMLA BÍÓ“°—°~>* Saklansa skrif- stofustúlkan (Easy Living) Afar fjörug og bráð- skemmtileg amerísk gam- anmynd, eftir VERA CASPARY Aðalhlutv. leika: hin fagra og fjöruga JEAN ARTHUR og RAY MILLAND. Aukamynd: TALMYNDAFRÉTTIR. Bökunardropar Á. V. R. Rommdropar V anillutlr opar Citrondropar Möndludropar Cardemommudropar Smásöluverð er tilgreint á hverju glasi. öll glös eru nieð áskrúfaðri hettu. Áiengisverzluu ríkísíns. °*~-K>"NÝJA BÍÓ**—" HVÍTAR AMRÁTTIR Amerísk stórmynd frá Warner Bros, er sýnir á ó- gleymanlegan hátt skugga- hliðar stórborgarlífsins. Aðalhlutverkið 1 e i k u r frægasta „karakter“-leik- kona Ameríku: BETTE DAVIS. Börn fá ekki aðgang. Til auglýsenda. Tíminn er gefinn út í fleiri eintökum en nokkurt annað blað á íslandi. Gildi almennra auglýsinga er í hlutfalli við þann fjölda manna, er les þœr. Tíminn er öruggasta boðleiðin til flestra neytend- anna í landinu. — Þeir, sem vilja kynna vörur sínar sém flestum, auglýsa þœr þess vegna í Tímanum. — vera nokkur freisting fyrir þá, sem höfðu séð útgerðina stór- tapa hvert ár, að kasta „ryð- kláfunum" og skuldunum í bankana og eiga eftir hinar álit- legu eignir. En eigendur Kveld- úlfs stóðust raunina. í sömu mund, sem Héðinn Valdimars- son seig af mannlegri eðlis- þyngd úr samfélagi við Jón Baldvinsson niður til manna, sem taka við skipunum erlendra valdhafa, lögðu eigendur Kveld- úlfs hinar góðu fasteignir sínar í áhættuna með tapskuldum sínum í bönkunum. Og á nokkr- um missirum voru þessar eignir sokknar líka. Hver togari dró með sér 30 þúsund kr. í árlegt tap að meðaltali. Sjálfstæðismenn höfðu orðið undrandi, þegar á reyndi og í ljós kom, að Framsóknarmenn voru móti byltingu. Framsókn- armenn urðu á sama hátt fyrir því, sem kalla mætti „gleðileg vonbrigði“, þegar það kom í ljós, að Kveldúlfsmenn voru ekki ein- göngu hinir harðsnúnu auð- valdsforkólfar, sem komnir voru frá baráttu uppgangsár- anna, heldur gátu þeir líka bor- íð járn mótgangsins án þess að brenna. Eftir löng og margháttuð á- tök um skiptingu hinna ný- fengnu veraldlegu gæða á ís- landi, stóðu samvinnubændur og útvegsmenn hlið við hlið í baráttunni fyrir lífi sínu og framtíð barna sinna á íslandi. Gróði stríðsáranna hafði borizt burtu eins og frostreykur á haustdegi. Gamlir andstæðing- ar fundu, að þrátt fyrir fortíð- ardeilur um útrædd mál, áttu þeir sameiginleg ýms verkefni, að minnsta kosti um stund. Ef til vill er það verkefnið stærst að taka upp aftur vandamálið frá 1916, og fylkja öllum, sem starfa að framleiðslunni, í eina heild um að gera gæði landsins hagnýt fyrir þjóðina og skipta arðinum réttlátlega milli þeirra, sem koma og vilja vinna. J. J. 9<4llllf08Né fer héffan í kvöld til Vestfjarffa og Breiffaf jarffar. Kemur viff á Arnarfirffi, Súg- andafirði og Bolungarvík í vesturleið, ef veffur leyfir. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKVR „Tengdapabbi“ Sænskur gamanleikur í 4 þátt- um eftir Gustaf Geijerstam. Frnmsýning á morgun kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 i dag og eftir kl. 1 á morg- un. — Þorbergur Þorleifsson (Framh. af 1. síðu) með þjóðinni og vildi hlynna að þeim á allan hátt. Þorbergur Þorleifsson var hrekklaus maður, glaðvær og góðviljaður. Slíkir menn verðá jafnan vinsælir hvar sem þeir fara. Ég vil biðja háttvirta deildar- menn að minnast þessa látna þingbróður vors, sem nú er fall- inn frá á bezta aldri, með því að rísa úr sætum sínum. Vér snú- um hugum vorum til hins aldr- aða föður hans og annara ást- vina og vottum þeim innilega samúð.“

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.