Tíminn - 27.04.1939, Síða 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARPLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1d.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIDSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1d.
. Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h. f.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
Rcykjjavík, finuutudagmit 27. apríl 1939
48. blað
Islaiidskvikniyiid S.I.S.
Víðtal víð Sígíús Halldórs irá Höínum
í tilefni af hinum miklu
skrifum um „íslandskvik-
mynd“ P. D a m, höfuðs-
manns í sjóliði Dana, þótti
Tímanum vert að afla sér
upplýsinga um aðra kvik-
mynd, sem óhætt mun að
fullyrða um, að verði a. m. k.
ekki síður umgetningarverð,
þar sem hún er innlend að
öllu leyti, en það er kvik-
mynd S. í. S. af búnaðar-
háttum og menningu ís-
lenzkrar bændastéttar.
í þessu skyni vék blaðið sér til
Sigfúsar Halldórs frá Höfnum,
sem S. í. S. fékk til að gera
handritið að þessari kvikmynd
og segja fyrir um töku hennar.
— Hver eru tildrög þess, að
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga réðist í það stórræði, að
láta gera kvikmynd af búnaðar-
högum landsmanna?
— Upphaflega komu tilmæli
frá Fiskimálanefnd til Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga
um að taka þátt í íslandskvik-
mynd. Sambandið var ekki á-
nægt með fyrirkomulag og und-
irbúning og vildi því ekki ger-
ast þátttakandi, en þetta kom
hreyfingu á málið. Fiskimála-
nefnd fékk Kamban til þess að
semja handrit og leiðbeina við
myndtökuna. En sú mynd, sem
þarna var gerð, var álitin alger-
lega ófullnægjandi. Þá tók
Ferðaskrifstofan upp ráðagerð-
ina um íslandskvikmynd og fór
fram á að S. í. S. legði fram um
lauslega áætlaðs kostnaðar,
eða um 5000.00 kr., til jafns við
aðra aðilja. Átti þá sambandið
að standa straum af landbúnað-
arþættinum; Fiskimálanefnd af
sjávarþætti sjávarútvegsins;
Iðnsambandið af iðnaðarþætt-
inum og svo ríkið að standa
straum af þeim hluta myndar-
innar, er sérstaklega væri til
þess fallinn að laða hingað
erlenda ferðamenn.
Sambandið greiddi skjót og
góð svör við þessari málaleitun.
Lofaði það framlaginu gegn því,
að það fengi eftirprentun af
landbúnaðarþætti íslandsmynd-
arinnar til afnota og fengi sjálft
að segja fyrir um upptökuna.
Var forstöðumönnum Sam-
Hítaveítan
Borgarstjórinn í Reykjavík
hefir sent til blaðanna eftirfar-
andi tilkynningu um hitaveit-
una:
„Svo sem kunnugt er, leiddu
tilraunir þær, sem á fyrra ári
voru gerðar til útvegunar láns-
fjár erlendis til hitaveitu
Reykjavíkur, að þeirri niður-
stöðu í bili, að ekki væri þá
hagkvæmir tímar til útboðs á
láni til framkvæmdanna.
Þau atriði, sem þá voru láns-
útboði til fyrirstöðu, hafa að
ýmsu leyti reynzt óbreytt til
þessa, og vexður ekki með vissu
séð hve lengi svo kann að verða.
Hinsvegar hefir jafnframt
verið athugað, hvort hefja
mætti framkvæmdir í málinu
nú í vor eða sumar, án undan-
gengins lánsfjárútboðs.
Forystu fyrir tilraunum til
að koma málinu fram með þess-
um hætti hefir Knud Höjgaard
verkfræðingur í Kaupmanna-
höfn haft og er nú vissa fengin
um að tilboð muni koma um
framkvæmd verksins á þessum
grundvelli frá verkfræðinga-
firmanu Höjgaard & Schultz A.
S., er byggði rafmagnsstöðina
Við Ljósafoss í ákvæðisvinnu."
bandsins ljóst, að til þess að hún
tækist vel, þyrfti að segja fyrir
um hana kunnugur maður öllum
greinum þessa forna undirstöðu-
atvinnuvegs landsmanna. Bað
Sambandið mig síðan að gera
handritið að upptökunni. Gerði
ég þegar uppkast að slíku hand-
riti. En þegar allt drógst á lang-
inn að því loknu og engin ákveð-
in svör fengust, þrátt fyrir ítrek-
aðar eftirgrenslanir um það,
hvenær yrði hafist handa eða
hvort úr þessu yrði á annað
borð, þá afréði Sambandið að
taka málið í sínar hendur og
kosta sjálft alla myndatöku
landbúnaðarþáttarins. Var Vig-
fús Sigurgeirsson, sem viður-
kendur var fyrir hinar ágætu
landslagsmyndir sínar, ráðinn
til myndatökunnar, enda hafði
hann dvalið sérstaklega í Þýzka-
landi til þess að kynna sér kvik-
myndatöku. —
— Hve víðtæk er þessi kvik-
mynd? —
— Upphaflega var markmiðið
aðeins það að auglýsa afurðir
landbúnaðarins. En um leið og
Sambandið tekur myndina al-
veg í sínar hendur, er ákveðið
að gera hana viðtækari svo að
hún gefi sem gleggsta og rétt-
asta hugmynd um fólkið, sem
framleiðir þessar vörur, landið
sjálft og skilyrðin, sem það býr
við, vinnubrögð þess og búnað-
arkunnáttu alla, með öllum þeim
hlunnindum, sem bóndi til sjáv-
ar og sveita færir sér í nyt, að
undanteknum sjófiski, sem sjáv-
arútvegsmyndin auðvitað sýnir.
Með þessu verður myndin jafn-
gild innanlands sem utan, enda
hefi ég ávallt verið þeirrar skoð-
unar að einmitt okkur fslend-
ingum sé hin mesta nauðsyn á
því, að taka kvikmyndirnar í
þágu uppeldismálanna. Engin
leið er í þeim efnum sjálfsagð-
ari, auðveldari og afkastameiri
fyrir svo fámenna og fátæka
þjöð. Kvikmyndir, sem sýna land
og lýð og líf og stríð, geymast
betur i minni en fyrirlestrar
ótal kennslustunda. —
— Þetta verður þá gríðarstór
mynd? —
— Auðvitað kemst ekki allt
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
þetta svipað því í eina kvik-
mynd. En áætlað var, að gera
eina, 1—1 y2 klst. aðalmynd, og
svo nokkrar myndir fyrir styttri
sýningar; 15—20 mínútur. —
— Er myndin tekin á breið-
filmu? —
— Nei, hún er tekin á mjó-
filmu. Það fer nú mjög í vöxt og
þykir oft hentugra og ódýrara.
Slíkar myndir má sýna hvar sem
er án eldshættu, en það er ekki
hægt, ef um breiðfilmu er að
ræða. Mjófilman hefir líka þann
kost, að henni má auðveldlega
breyta í breiðfilmu, án þess að
myndirnar óskýrist, en erfiðara
að breyta breiðfilmu í mjó-
filmu, svo að vel fari.
— Hvenær var myndatakan
hafin? —
— Það var byrjað haustið 1936.
Vorið og sumarið 1937 voru
myndir teknar af vorönnum og
heyskap. Veturinn 1937—38 voru
teknar myndir af ýmsum vetrar-
störfum, bæði úti við og inni.
Sumarið 1938 var haldið áfram,
þar sem frá var horfið hið fyrra
sumarið. í haust eð leið fór Vil-
hjálmur Þór með filmuna vestur
um haf til framköllunar, en þar
skyldi velja úr henni kafla til
þess að fella inn í íslandskvik-
myndina á heimssýningunni. Er
rétt að geta þess hér, að nokkru
eftir að S.Í.S. hóf kvikmynda-
töku sina ákvað sýningarráðið
hér, að efna til sýningar íslands-
(Framh. á 4. síðu)
Frá kappreiðum í Englandi.
Þœr eru ein helzta þjóSaríþrótt Englendinga og eru kappreiðamót þar jajn-
an mjög fjölsótt og þeim stœrstu fylgt með mikilli athygli um landið allt.
Loíflagsbreyting síðari ára
og áhrif hennar
Norski fræðimaðurinn, Adolf
Hoel, flutti nýlega á fundi
Norsk Polarklubb í Oslo erindi
um loftslagsbreytingar síðari
ára. Vakti erindi þetta mikla at-
hygli og var þess rækilega getið
í norskum blöðum. Fer hér á
eftir stuttur útdráttur úr frá-
sögn „Nationen" af erindinu:
VeðurfarsTannsóknir síðari
ára hafa sýnt, að lofthitinn hef-
ir farið vaxandi á öllu megin-
landi jarðar, -nema á mjórri
ræmu, sem nær frá Svartahaf-
inu til Norður-Kína og á litlum
hluta á Labrador og Ástralíu. í
fyrstu steig lofthitinn aðeins
yfir vetrarmánuöina, en síðan
1930 hefir hann einnig vaxið
yfir sumarmánuðina. Mest hefir
hitaaukningin orðið í nyrztu
löndum Evrópu og á pólarsvæð-
inu. Á Spitzbergen var meðal-
talshitinn næstum 9 stigum
meiri yfir tímabilið nóvember—
marz 1930—38 en hann var á
sama tíma 1911—20. Mun mega
segja, að slík aukning lofthit-
ans sé einsdæmi.
Sá hluti golfstraumsins, sem
fellur milli Noregs og Spitz-
bergen inn í íshafið, hefir
verulega hlýnað á sama tíma.
Rannsóknir á því svæði, þar
A. KROSSGÖTITM
Flugvél nauðlendir á Rauðamelsheiði. — Frá Laugarvatni. — Bændaskólinn
á Hvanneyri. — Ungmennafélögin í Dalasýslu. — Bændafundir í Skagafirði.
Flugvélin Örn fór í gær frá Akureyri
nokkru eftir hádegi, áleiðis til Reykja-
víkur. Vakti það nokkurn ótta, er
leið á daginn, að flugvélin kom ekki
hingað suður. Hafði síðast sézt til
hennar um sexleytið yfir Hvamms-
firði. Seint í gærkvöldi kom sú fregn,
að hún hefði orðið að nauðlenda vegna
þoku á svonefndu Svínavatni á Rauða-
melsheiði í Hnappadalssýslu. Farþegar
voru tveir í flugvélinni, Jón Helgason
kaupmaður og Steindór Hjaltalín út-
gerðarmaður. Gistu þeir, ásamt flug-
manninum, Agnari Kofoed-Hansen,
þar vestra í nótt, að Oddastöðum í
Kolbeinsstaðahreppi. Þegar blaðið fór í
prentun, var flugvélin enn ekki komin,
en væntanleg, þegar birti i lofti.
r t t
Laugarvatnsskóla var sagt upp 30.
marz. Var þar 171 nemandi 1 vetur.
Bergsteinn Kristjónsson gegndi skóla-
stjórastörfum í vetur, eftir að Bjarni
Bjarnason fór til þings, um miðjan
febrúarmánuð. Húsmæðranámskeið og
garðyrkjunámskeið hefst að Laugar-
vatni með maíkomu. Til sundnáms
koma þangað í vor um 150 börn úr
Hafnarfirði og Gullbringusýslu. Gest-
um er þegar veitt móttaka, en gistihús-
ið verður þó ekki opnað fyrr en í júní.
Sýslufundur Árnessýslu stendur nú yfir
að Laugarvatni.
t t t
Bændaskólanum á Hvanneyri var
slitið hinn 23. apríl. Luku 24 nem-
endur burtfararprófi, en 31 lauk prófi
upp í aðra deild. Fæðiskostnaður pilt-
anna, ásamt þjónustugjaldi, var í vetur
kr. 1,36 á dag. Verklega námið er nú
þegar byrjað og er farið að vinna að
kornyrkju og í matjurtagörðum. Hinn
24. og 25. júní í sumar verða hátíðahöld
að Hvanneyri, til minningar um fimm-
tíu ára starfsemi bændaskólans. Verður
Hvanneyringamót háð fyrri daginn, en
seinni daginn verður haldinn almenn
hátíð. — Gott veður hefir verið undan-
farið í Borgarfirði, en fremur kalt oft,
svo að heldur lítið er farið að gróa.
t t t
í Dalasýslu eru starfandi sex ung-
mennafélög, auk Sundfélags Hörðdæla,
sem nýlega hefir byggt opna sundlaug
úr steinsteypu við volga uppsprettu
í Laugardal þar í hreppnum. — Er
við laugina timburskáli til þess að
hafa fataskipti í. Fimm af ungmenna-
félögunum eiga samkomuhús. Skammt
frá kauptúninu Búðardal er samkomu-
húsið Sólvangur, sem er félagsheimili
stærsta og elzta ungmennafélagsins í
sýslunni, Ólafs páa í Laxárdal. Var það
reist á síðastliðnu ári og nemur kostn-
aðarverð þess eins og það er nú um
tíu þúsundum króna. Innti meiri hluti
félagsmanna mikla gjafavinnu af
höndum við bygginguna. Mörg ung-
mennafélagshúsanna í sýslunni væru
vel til þess fallin að nota þau sem
sumargistihús og dvalarstaði, þegar
ferðamenn hafa komið auga á hina
miklu og sérstæðu fegurð Breiða-
fjarðardalanna og kaupstaðarfólk fer
að tíðka þangað ferðir í sumarleyfum
sínum. Þarf heldur ekki að seilast um
hurð til lokunnar, þar eð aðeins er
hálf dagleið í bifreið frá Reykjavík
vestur í Dali.
r r t
Ólafur Jónsson, ráðunautur búnað-
arsambands Skagfirðinga, og Kristján
Karlsson, skólastjóri á Hólum, hafa
fyrir nokkru haldið fundi í öllum
hreppabúnaðarfélögum í Skagafjarðar-
sýslu. Á þessum fundum hafa þeir
flutt erindi um fóðrun búpenings og
garðyrkju, auk þess, sem umræður
hafa farið fram, þar sem sumstaðar
hefir margt borið á góma, er búskap
snertir, svo sem geymsla á verkfærum
og jarðyrkjuvélum, bygging salerna,
þrifnaður í umgengni í fjárhúsum og
hlöðum og heystæðum, svo að nokkur
atriði séu nefnd. Á einum þessara
funda upplýsti Gísli bóndi í Eyhildar-
holti í sambandi við umræður; er
spunnust út af hugvekju Péturs Bein-
tinssonar frá Grafardal í Tímanum,
að hann gengi aldrei á sömu skóm
um heyhlöðu og garða og hann notaði
endranær. Á þessum sama fundi var
að uppástungu Ólafs Sigurðssonar á
(Framh. á 4. síðu)
sem golfstraumurinn hefir upp-
tök sín, hafa leitt það sama í
ljós. Rannsóknir á yfirborði
Ermarsunds, Norðursjávarins og
írska hafsins, hafa og sýnt
svipaða niðurstöðu. Það er því
staðreynd, að golfstraumurinn
hefir flutt með sér meiri hita á
seinustu árum en áður og þess-
vegna hefir vetrarveðráttan
hlýnað í Norður-Evrópu.
Hitaaukningin í loftinu og
sjónum hefir margvísleg áhrif,
einkum í íshafslöndunum. Jökl-
arnir minnka og rekísinn berst
skemmra suður. Firði og ár
brýtur fyr upp á vorin og legg-
ur síðar á haustin. Hefir þetta
mjög torveldað selveiðarnar
í norðurhöfum, einkum í Hvíta-
hafinu. Fuglarnir byrja að verpa
fyr á vorin og sumir þeirra, sem
fóru til suðlægari landa á haust-
in, dvelja nú allan ársins hring
á norðurleiðum. Ýms dýr, sem
ekki hafa áður getað hafzt við
í íshafslöndunum, hafa þrifizt
þar á síðari árum. T. d. komu
mýflugur til Spitzbergen 1918
og hafa dafnað þar síðan. Gras-
vöxtur byrjar fyr en áður, skóg-
gróðurinn hefir færzt norðar og
korn er nú ræktað á ýmsum
stöðum, þar sem ekki var viðlit
að rækta það áður. Ný fiskimið
hafa fundizt í norðurhöfum, þar
sem ætilegs fisks var tæpast
vart áður, eins og t. d. sumstað-
ar við Vestur-Grænland, Bjarn-
areyjar og Vestur-Spitzbergen.
En það nær ekki aðeins til ís-
hafslandanna, að loftslagsbreyt-
ingin hafi haft áhrif á dýra-
lífið og fiskveiðarnar. Það sama
gildir einnig vestur- og norður
strönd Noregs. Lund fiskveiða
ráðunautur hefir nýlega lýst í
blaðagrein, hversu víðtækar af-
leiðingar þetta hefir haft á fisk-
veiðarnar á þann hátt, að ýms-
ar fisktegundir hafa flutt sig
norðar og gildir það einkum
um þorskinn og vorsíldina. Er
þorskur t. d. hættur að ganga
inn í ýmsa firði í Norður-Nor-
egi, þar sem hann veiddist mik
ið áður og þarf að sækja mjög
langt undan landi til að kom-
ast úr því hitabelti, sem hann
vill ekki halda sig í. Hefir þetta
mjög ýtt undir kröfur um það
að stunda yrði fiskveiðarnar á
stærri skipum en áður.
Má fullyrða, að aukning loft-
hitans síðari árin er stærsta
loftlagsbreytingin, sem dæmi
eru til síðan veðurfarsrann-
sóknir hófust, og að hún hefir
mjög þýðingarmiklar afleiðing-
ar fyrir atvinnulíf vort, fisk-
veiðar, dýraveiðar, landbúnað
og skógarhögg. Takist það smá-
saman, með áframhaldandi og
fullkomnari sólar- og veður-
farsrannsóknum, að geta séð
fyrirfram, hversu lengi hin
heitu og köldu tímabil vara,
myndi það hafa ómetanlega
efnahagslega þýðingu.
A víðavangi
Frammistaða kommúnista í
umræðunum um vantraustið
þótti heldur bágborin. Aðalræð-
una hélt Einar Olgeirsson. Hefði
hitt þó verið eðlilegra, að hún
hefði verið flutt af öðrumhvor-
um formanninum, „út á við“
eða „inn á við“. Alþýðublaðið
gefur þá skýringu, að þeir Héð-
inn og Brynjólfur hafi báðir
ir viljað flytja ræðuna, en sam-
komulag hafi svo názt um, að
hvorugur skyldi gera það.
Ý
Aðeins tveir af ráðherrunum,
forsætisráðherra og félagsmála-
ráðherra, svöruðu kommúnist-
um, og aðeins stuttlega. Benti
forsætisráðherra á að helzt til
snemmt væri að bera fram van-
traust á stjórnina áður en
nokkur reynsla væri fengin um
störf hennar. Hann minnti líka
á það, að vantraust á ráðuneyti
Framsóknarflokksins hefði verið
fellt í þinginu fyrir fáum dög-
um, og myndu kommúnistar
varla geta gert sér vonir um, að
fylgi stjórnarinnar væri minna
nú en þá. — Alls stóð umræð-
an um vantraustið tæplega
þrjá klukkutíma, og mun það
vera einsdæmi, að svo stuttar
umræður hafi orðið um van-
traust.
* * *
Kröfuganga verkamanna í
Rvík 1. maí verður í þrennu
lagi að þessu sinni, eftir þvi sem
heyrzt hefir. Hafa Alþýðu-
flokksmenn og kommúnistar
hvorir sína kröfugöngu eins og
verið hefir síðan klofningsstarf-
semi kommúnista hófst. En auk
þess stofnar nú Sjálfstæðis-
flokkurinn til sérstakra hátíða-
haldÁ fyrir verkamenn þennan
dag, og segir Mbl., að hann sé
nú fjölmennasti verkamanna-
flokkurinn! í kröfugöngu Sjálf-
stæðismanna verður Ólafur
Thors aðal ræðumaður, en for-
maður l.-maí nefndar Sjálf-
stæðisflokksins mun vera Gunn-
ar Thoroddsen. Margur maður
myndi hafa hlegið fyrir svo sem
10 árum, ef því hefði verið spáð
bá, að slíkt ætti fram að koma.
Aum er sú útreið, sem samtök
verkamanna hafa hlotið af
völdum kommúnista og Héðins
Valdimarssonar.
* * *
Vísir segir, að skipun Jóns
Eyþórssonar sem formanns í út-
varpsráði muni mælast illa fyr-
ir meðal almennings. Blaðtetrið
"ii’ðist hafa gleymt því, að út-
•ai psnotendur hafa hvað eftir
annað kosið Jón sem fulltrúa
sinn í útvarpsráði, og að róg-
burður sá, er uppi hefir verið
haldið gegn honum í einu ó-
merkasta blaði landsins, hefir í
engu skert vinsældir hans. —
Hitt stæði Vísi nær að íhuga,
að sú framkoma Sjálfstæðis-
flokksins að sparka Árna Frið-
rikssyni úr útvarpsráði og kjósa
Árna frá Múla í hans stað, mun
um allt land verða skoðuð sem
reginhneyksli — og að það bæt-
ir ekkert úr skák, þó að Árni
frá Múla endurgreiði bitlinginn
með því að skrifa ritstjórnar-
greinar í Vísi.
* * *
Seinasta málið, sem þingið af-
greiddi að þessu sinni, var á-
byrgðarheimild handa ríkis-
stjórninni vegna rafveitu í
kauptúni einu norðanlands. Var
mál þetta sótt af miklu ofur-
kappi, einkum af kommúnistum
og Garðari Þorsteinssyni, er
vildu brjóta þá venju, er skap-
azt hefir á síðari árum, að þing-
ið veitti ekki ríkisábyrgð, nema
málið væri áður vandlega at-
hugað af fjárveitinganefnd og
brýnar ástæður fyrir hendi. Það
vakti sérstaka athygli, að hinn
nýi fjármálaráðherra gekk í lið
með þeim, sem vildu afnema
bessa venju og færði hann fram
þau rök, að hér væri aðeins um
50 þús. kr. að ræða! Þorsteinn
Dalasýslumaður benti á, að
bessi framkoma færi tæplega vel
þeim mönnum, sem prédikað
(Framh. á 4. síðui