Tíminn - 20.05.1939, Síða 2

Tíminn - 20.05.1939, Síða 2
236 TfMKMV, langardaginn 20. maí 1939 57. blað Frjáli Terzlun ^íminrt Laugardaginn 20. maí. Frílístínn Það er nú komið I ljós, sem Framsóknarflokkurinn hefir haldið fram á undanförnum ár- um, að innflutningshöftin hafa bjargað þjóðinni frá fjárhags- legu ósjálfstæði. Fyrir atbeina þeirra hefir innflutningurinn orðið 9.7 millj. kr. lægri að með- altali síðastl. fjögur ár (1935— 38) en hann var til jafnaðar næstu tíu árin á undan (1925— 34). Hefðu þau ekki verið og innflutningurinn orðið svipaður árin 1935—38 og hann var næstu 10 árin áður, myndi verzlunar- jöfnuðurinn hafa orðið óhag- stæður til jafnaðar á ári um 3.9 millj. kr. í stað þess, að hann varð hagstæður um 5.8 milj. kr. og er það meira en helmingi hagstæðara en niðurstaða ár- anna 1925—34. Þessar tölur tala svo skýru máll um þann árangur innflutn- ingshaftanna, að hindra stór- fellda söfnun verzlunarskulda erlendis, að ekki þarf að orð- lengja frekar um það atriði. En jafnhliða þessu hafa inn- flutningshöftin veitt fram- leiðslu landsmanna ómetan- legan stuðning. Þrátt fyrir lok- un markaðanna og stórfellda lækkun útflutningsins hefir framleiðslunni verið tryggður nauðsynlegur innflutningur til starfrækslu sinnar og aukning- ar. Ef innflutningur ónauðsyn- legra vara, sem gaf kaupmönn- um meiri álagningu, hefði verið óhindraður á þessum árum, er ekki aðeins líklegt heldur nokkurnveginn fullvíst, að þessi innflutningur til framleiðsl- unnar og stofnunar nýrra fyrir- tækja hefði stöðvazt að veru- legu leyti samtímis því, sem verið hefðu hér nægar birgðir ónauðsynlegra vara. Þá hefir, með þvi að beina innkaupum til ákveðinna landa, en slíkt hefði ekki verið hægt að neinu gagní án haftanna, verið tryggður aukinn markaður fyrir íslenzk- ar afurðir erlendis. Árangur innflutningshaft- anna er því miklu víðtækari en svo, að hann komi aðeins fram I lækkun innflutningsins. Þótt Framsóknarflokkurinn á- líti, að innflutningshöft séu ó- hjákvæmileg, þegar viðskipta- ástandið er með svipuðum hætti og verið hefir undanfarin ár, og reynslan hafi fullkomlega sann- að réttmæti þeirrar skoðunar, hefir hann jafnan haldið því fram, að innflutningshöftin væru neyðarráðstöfun, sem ekki ætti að beita nema undir fram- angreindum kringumstæðum. Flokkurinn telur það í alla staði æskilegast að viðskiptaástand- ið sé með þeim hætti að inn- flutningur allra nauðsynj avara gæti verið frjáls. Hinsvegar munu sennilega flestir lands- manna komnir á þá skoðun, að ekki eigi að leyfa ótakmarkað- an innflutning gersamlegra ó- þarfra vara, jafnvel þótt gjald- eyrisástæður leyfðu. Til þess að sýna þessa skoðun 1 verki, varð það að samkomu- iagi við myndun þjóðstjórnar- innar, að hinar brýnustu nauð- synjavörur skyldu settar á svo- kallaðan frílista, þ. e. að flytja megi þær inn án innflutnings- leyfis. Hefir þetta nú verið gert og nær þessi undanþága til kornvara og ýmsra framleiðslu- vara. Þessi ráðstöfun er ekki líkleg til að hafa áhrif á inn- flutninginn til hækkunar, því hér er yfirleitt að ræða um vör- ur, sem áður hefir verið leyfður svo að segja ótakmarkaður inn- flutningur á. Útlitið með aflabrögð og sölu- horfur erlendis eru nú svo al- varlegt, að það er ómögulegt að nokkrum ábyrgum manni detti í hug að hægt sé að afnema innflutningshöftin eða slaka til á þeim í nokkrum verulegum at- riðum, þannig að það leiddi til aukins innflutnings til landsins á vörutegundum,sem þjóðin get- ur verið án. Framangreindar tilslakanir eru því líka miðaðar við nauðsynjar, sem áður hafa verið fluttar inn eftir þörfum, þar sem ekki er ætlazt til að þær hafi þau áhrif að heildar- FRAMHALD IV. Nokkuð margir af keppinaut- um kaupfélaganna tala stund- um á þann veg eins og þeir geri ráð fyxir að það sé að einhverju verulegu leyti stefnumark sam- vinnu- og Framsóknarmanna að eyðileggja alla kaupmanna- verzlun í landinu, bæði með ríkisverzlun og samvinnufélags- skap. Nú er að vísu erfitt að kanna hugrenningar manna, en verkin tala. Af framkomu sam- vinnumanna í langri kapp- streitu við leiknauta sína, kaup- mennina, má fá réttastan vitn- isburð um vinnubrögð þeirra og framtíðardrauma. Sú ríkisverzlun, sem nú er til á íslandi, var hafin undir for- ustu Jóns Magnússonar og Magnúsar Guðmundssonar laust eftir 1920, þegar einkasala var stofnsett bæði um áfengi og tó- bak. Lagasetningin um þetta efni var studd af nálega öllu Al- þingi. Tilgangurinn með þessum einkasölum var að afla ríkis- sjóði tekna til að standast vax- andi útgjöld, enda hafa þessar báðar verzlanir verið aflasæl- ar fyrir ríkissjóð. En vitaskuld var þessi nýbreytni mjög baga- leg fyrir verzlunarstéttina, því að þessar tvær vafasömu nautnavörur höfðu áður átt þátt í að auka auðlegð margra verzl- unarmanna. En tillitið til mannfélagsþarfanna knúði þá fram þessa nýbreytni i verzlun- armálunum. Einkasala á tilbúnum áburði komst á undir áhrifum Tryggva Þórhallssonar, eingöngu í því skyni að hjálpa þann veg rækt- un landsins og efla búnaðar- framfarir. Kaupmannastéttin hafði litinn ágóða af þessari innflutningurinn aukist að ráði. Ýms blöð hafa látið þær vonir í ljós, að þessar ráðstafanir kynnu að hafa einhver áhrif á verðlag í landinu. Þess er þó tæpast að vænta, þar sem þess- ar vörur hafa verið fluttar inn eftir þörfum undanfarin ár og engin óeðlileg álagning getað verið á þeim, sökum innflutn- ingstakmarkana. Það er líka kunnugt, að álagning kornvara er mjög lág og hefir frekar lækk- að á undanförnum árum, sök- um aukinnar starfsemi kaupfé- laganna. Hinsvegar hafa nú ver- ið gerðar ráðstafanir með fyrir- mælum um hámarksálagningu, til að hindra óeðlilega álagningu þeirra vara, sem innflutnings- höftunum er beitt gegn. Hefir þegar orðið talsverður árangur af þeim ráðstöfunum, og mun hann þó koma betur í ljós í framtíðinni. Hallgfrlmur Jónasson s Kennaraskóli Þegar kennaraskólanum var slitið 29. apríl s. 1., átti hann 30 ára starfsferil að baki. Að vísu var hann stofnaður 1908, en aftur á móti féll þar niður kennsla veturinn 1917—18, þeg- ar áhrif heimsstyrjaldarinnar surfu hér sem fastast að. 30 ára tími er ekki langt skeið í þróunarferli þjóðarinnar. Þó hafa uppeldismál hennar tekið meiri breytingum á þessum tæpa aldarþriðjungi en nokkru sinni fyrr. Fræðslulögin 1907 og stofn- un kennaraskóla ári síðar, voru nýr grundvöllur að skipun al- þýðufræðslunnar í landinu, þeirri, er við búum við að miklu leyti enn. í kennaraskólann hafa sótt nám um 1000 konur og karlar, en lokið hafa kennaraprófi 704, 283 konur og 421 karlmaður, auk allmargra stúdenta. Allur þorri þeirra, sem þaðan hafa útskrifazt, hafa valið kennslu að aðalstarfi, þótt ávallt hafi og nokkrir horfið inn á önnur starfssvið. Nú munu vera um starfandi 430 barnakennarar, þar af kring um 50, er ekki hafa próf frá skólanum. Er af þessu ljóst, að enn er engin of-framleiðsla á kennaraefnum. Við lok þessa 30 ára starfs- verzlun áður. Og eftir að hún hefir staðið um mörg ár, mun engum koma til hugar að leggja hana niður, eins og þeim málum er nú háttað. Einkasalan með útvarpstæki kom um leið og hin dýra og mikla útvarpsstöð, og er alger nauðsyn vegna almennings. í jafn dreifbýlu landi eins og ís- landi, væri stórkostleg eyðsla og óþægindi að hafa fjölmargar tegundir af útvarpstækjum. Þarf ekki að minna þar á ann- að en varahluti og viðgerðir, ef ótakmörkuð samkeppni hefði verið um þá breytilegu og létt- sviknu hluti. Með þessu skipu- lagi hefir tekizt að tryggja góð útvarpstæki, fáar og öruggar tegundir, hafa fast skipulag um viðgerðir, selja tækin öllu ódýr- ara en í næstu löndum og hafa þó nokkurn ágóða af verzlun- inni, til að standast útgjöld við útvarpsstöð í landi, sem er þrem sinnum stærra en Dan- mörk, en hefir ekki nema einn ibúa móti 36 í sambandslandinu. Ríkisverzlun með útvarpstæki er þess vegna almenningi nauð- syn í þeim lífsskilyrðum, sem íslenzka þjóðin á við að búa. Einkasala með bifreiðar hefir staðið nokkur ár. Hún hefir gert gagn að því leyti, að fækka bíl- tegundum og gera varahluta- birgðirnar kostnaðarminni. En sérstakt atvik olli því, að þessi einkasala var óhjákvæmileg, þegar hún var stofnsett. Verzl- unarsamningar íslendinga við Spánverja voru þá þannig, að Spánverjar keyptu mikið af saltfiski hér á landi, en íslend- ingar höfðu orðið að skuldbinda sig til að synja ekki um inn- flutning á spönskum vínum. Þetta var misnotað hér á landi þannig, að flytja inn ótakmark- að ameríska bíla, sem seldir voru sunnan af Spáni. Ef svo hefði verið haldið fram 'stefn- unni, myndi ísland hafa flotið í gljáandi bifreiðum en ekki get- að borgað nauðsynleg matvæli. Bifreiðaeinkasalan hefir aðal- lega verið notuð til að draga úr innflutningi á þessum sam- göngutækjum til gð spara gjald- eyri vegna annarra þarfa. Raftækjaeinkasalan er yngst af þessum fyrirtækjum, og á ef til vill minnstum vinsældum að fagna, enda má segja, að hún hafi ekki verið studd með alúð af neinum flokki. Flestir munu játa, að hún hafi haft fremur litla þýðingu til ills eða góðs. Þegar litið er yfir einkasölu- málið, þá má segja, að Alþýðu- flokkurinn, sem raunverulega hefir landsverzlun á stefnuskrá sinni, hefir verið aðsúgsminnst- ur í þessum málum. Leiðtogar Sj álf stæðismanna stof nsettu íslands 30 ára timabils skólans er nú einnig lokið — á svo óvenju sviplegan hátt — starfi tveggja vinsælla og ágætra kennara hans. Björn Björnsson andaðist einn síðasta prófdaginn í síð- astliðnum mánuði. Tveim dög- um áður var hann með okkur að störfum, heill og hraustur að sjá. Sigfús Einarsson prófessor og tónskáld var hinn eini af kenn- urum skólans, sem við hann hafði unnið allt frá upphafi og átti þar því 30 ára kennslu að baki. Þegar skólanum var slitið, var hann lasinn og gat ekki verið viðstaddur. En við minningarathöfn, sem þar fór fram yfir hinum ný- látna starfsbróður okkar og vini, var Sigfús mættur og lék þá enn á orgel skólans. — Rúm- um sólarhring síðar var hann sjálfur horfinn út í þokuna miklu, jafnvel á enn skyndilegri og sviplegri hátt. Báðir þessir menn voru gæddir óvenju mikilli listagáfu, hvor á sínu sviði. Þeir nutu ó- venju rikra vinsælda allra sinna fjölmörgu nemenda. Þeir voru báðir óvenjulegir ágætis- menn. Og þeir sættu að lokum báðir þeirri hamingju, að losna við langt og þjáningafullt dauðastríð. tvær stærstu og elztu ríkisverzl- anirnar. Framsóknarmenn hafa síðar haft forgöngu um áburðar- verzlunina, útvarpstækin og bif- reiðarnar, af því að þeim hefir þótt almenningsþörf krefja. En svo fjarri fer því, að þar hafi verið um stefnumál að ræða, að svo að segja hver einasta ríkis- verzlun þrengir jafnmikið að samvinnufélögunum eins og kaupmönnum. Og margir leið- andi menn í samvinnufélögun- um hafa ótvirætt látið í Ijós, að þeir vildu gæta hófs um efl- ingu ríkisverzlana. Þar sem Al- þýðuflokkurinn hefir sýnt litla löngun til að fjölga ríkisverzl- unum, og Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn hafa yfirleitt meiri trú á annarskonar verzl- unarframkvæmdum, þá sýnist einsætt, að veruleg aukning á landsverzlun muni tæplega koma til greina hér á landi á næstu árum. V. Málsvarar kaupmanna hafa sakað samvinnumenn um að hafa átt upptök að innflutnings- höftunum haustið 1931, þegar sterlingspundið féll og gjaldeyr- ir Norðurlanda. Forstöðumenn Sambandsins töldu þá óhjá- kvæmilega landsnauðsyn að draga úr innflutningi. Þeir bræður, Aðalsteinn og Sigurður Kristinssynir, drógu þá strax og jafnan síðan stórlega úr inn- flutningi til samvinnufélaga, eingöngu vegna gjaldeyrisskorts. Má heita að það hafi síðan þá verið eitt af meginviðfangsefn- um Aðalsteins Kristinssonar framkvæmdarstjóra í innflutn- ingsdeild Sambandsins með kaupfélagsstjórunum, að fá samvinnufólkið til að kaupa sem allra minnst frá útlöndum. Var þetta síðan notað á miður ridd- aralegan hátt af andstæðingum Sambandsins, með því að vilja leggja til grundvallar fyrir inn- flutningi seinni ára, einmitt þau ár, þegar kaupfélögin voru ein um hituna að koma við sparnaði af frjálsum vilja. Verð- ur síðar 1 þessari grein vikið nánar að því máli. í bankaráði Landsbankans tók Jón Árnason haustið 1931 forustuna í þessu máli með bankastjórunum. En meiri hluti bankaráðsins, þar á meðal Héð- inn Valdimarsson, beitti sér gegn öllum sparnaði eða ráð- deild í þessu efnum. Straumur viðburðanna studdi Jón Árna- son. Útvegurinn var í herfilegum þrengingum, og rekinn með stórtapi. Næsta sumar, 1932, neyddust útvegsmenn til að kasta fyrir borð sína gamla á- trúnaðargoði, sinni frjálsu sam- keppni og mynda landsskipulag, með skipulagsaðhaldi bank- anna. Kreppan skapaði svo að segja í einu bæði innflutnings- höftin og fisksölusamlagið. Þessi stutta grein á ekki að vera neinn minningaþáttur um látna kennara eða lifandi. En naumast verður svo á kennara- skólann minnst, að ekki sé getið hins fyrsta forstöðumanns hans, séra Magnúsar Helgasonar. í þau 20 ár, sem hann stýrði skólanum, mótaði hann starf hans allt, anda hans og menn- ingarsvip meir en nokkur annar maður, fyrr eða síðar. Efalítið er hann einn ástsælasti skóla- maður, sem nokkurntíma hefir fengizt við uppeldismál á ís- landi, og er það raunar löngu alkunnugt. Skólahúsið var reist í stórgrýt- isurð, skammt utan við bæinn og þegar í upphafi nokkuð af vanefnum gert. Nú er urðin að vísu horfin, en fyrst og fremst í þágu annarrar stofnunar. Húsið hefir verið bætt allmikið — að ég ætla í ráðherratíð Jónasar Jónssonar, en annars hefir skól- inn jafnan búið við stórum lé- legri aðbúnað en starfi hans og ætlunarverki hæfði, og er það raunar ekki annað og meir en segja má um fjölmargar fræðslu- og menningarstofnan- ir þjóðarinnar enn þann dag i dag, þrátt fyrir stórstígar fram- farir á þessu sviði sem fleirum. Séra Magnús Helgason lagði á annað meira kapp en að toga fé úr greipum þings og stjórn- ar, til þess að gera stofnun sína sem glæsilegasta hið ytra, þó honum væri einnig sú hliðin á þróun skólans Ijós. Á hitt lagði hann höfuð á- herslu, að búa skólann þeim Samvinnumenn höfðu sannar- lega ekki óskað eftir höftunum, en þeir sáu hver nauðsyn var í þessum efnum, og hikuðu ekki við að beita sér fyrir lausn, sem var erfið en óhjákvæmileg. VI. Allmargir andstæðingar sam- vinnumanna hafa haldið því fram, að svo hafi verið valið í gjaldeyrisnefnd, að beinlínis hafi þar verið stefnt að hlut- drægni i garð kaupmanna. Fátt er meira rangmæli. í nefndinni hafa nú um mörg ár verið 5 menn. Formaður, skipaður af stjórninni, sem var Framsókn- armaður. Fulltrúi kaupmanna, sem var heildsalinn Björn Ól- afsson. Tveir bankastjórar, sinn frá hvorum banka, og gegndu þeir Kaaber og Jón Baldvinsosn löngum því starfi. Loks kom einn fulltrúi frá verkamanna- stéttinni, og var það Kjartan Ólafsson í Hafnarfirði. Það má segja, að það hafi verið of veikt frá hálfu Fram- sóknarmanna, sem beittu sér fyrir því að rétta við verzlun- arjöfnuðinn við útlönd, að tryggja sér ekki nema eitt af fimm sætum í nefndinni. En að minnsta kosti er ekki hægt að saka Framsóknarmenn um á- gengni í þessu efni. Kaup- mannastéttin naut auk þess góðs af því í glímunni um inn- flutninginn, að bönkunum var hagkvæmt, að gamlir viðskipta- vinir héldu áfram innflutningi, og honum sem allra ríflegustum. Þá kom til greina sjónarmið iðnaðarmanna og verkamanna. Þeir þurftu að fá byggingarvör- ur í hús í Reykjavík og öðrum af hinum stærri kaupstöðum, til að þar væri vinna og lifj- brauð handa fólkinu. Þá vár ekki hægt nándar nærri nógu mikið að meta það, hvort þjóð- ina vantaði mest af öllu hin mörgu, nýju og dýru hús í höf- uðstaðnum. Starf innflutnings- nefndar byrjaði þess vegna á viðtæku samstarfi kaupmanna og kaupfélaga, bænda, iðnaðar- manna og verkamanna. Það var reynt, ár eftir ár, síðan 1934, að halda verzlunarjöfnuðinum sæmiiegum út á við, jafnframt því að bætt var úr þörfum allra stétta í landinu, eftir því sem fjárhagur þjóðarinnar og gjald- eyrir ársafkomunnar leyfði. Með þessum inngangi er gerð grein fyrir þróun verzlunar og viðskiptamálanna á undan- gengnum árum. Þjóðin hefir misst stærsta og bezta markað sinn erlendis. Það hefir orðið að grípa til margháttaðra bjarg- ráða, sem áður voru lítið eða ekki þekkt. Samvinnumenn hafa beitt sér fyrir hóflegum lausnum. Þeir hafa neitað al- gerlega að fallast á það stefnu- atriði gamalla samstarfsmanna í Alþýðuflokknum, að til mála innri kostum, sem í hans augum skipti megin máli til undirbún- ings því lífsstarfi, er nemend- anna beið, við þau kjör og þá kosti, sem þjóðfélagið bauð á þeim tíma þessu starfsmanna- liði. Honum stóð skapi næst að senda frá skóla sínum dreng- skaparmenn, fólk með styrkleik hins sanna, yfirlætislausa manndóms, sem ekki óx 1 aug- um erfiðleikar þýðingarmikils, en lítt metins og illa launaðs æfistarfs, fólk, sem væri gætt næmum og traustum siðferðileg- um þroska. Hann kappkostaði að efla hinn innri vöxt nem- endanna, gefa þeim af göfgi síns karlmannlega huga, af sann- færingarvissu sinni um kær- leiksfulla, vizkuríka stjórn til- verunnar, magna þá til þeirrar þrautseigju, nægjusemi og þols, er hverjum kennara er þörf, sem gegnir vandasömu verki, við næsta léleg skilyrði. Og hér stóð skólastjórinn vel að vígi. Um þessa hluti þurfti hann ekki að leita á náðir neins löggjafarvalds né naumrar fjár- málastjórnar. Hér gat hann veitt af gnægð síns eigins ríkidæmis, af mannkostum sínum. Fyrir það fáum við nemendur hans honum aldrei of vel þakk- að. Frá stofnun skólans og til ársins 1924 hélzt starf og tílhög- un öll með líku sniði, en það ár var honum sett ný reglugerð, þar sem námstíminn var lengdur um einn mánuð og tekin upp kennsla í ensku. Þorbergur Þorleífsson alþingismaður frá Hólum, f. 18. júní 1890, d. 23. april 1939. Við söknum þín vinur, sem svifinn ert á braut, er sólskin jafnt oss færðir í gleði og þraut. Að liðsinna öðrum þér ánægja var og allra vanda leysa að höndum sem bar. Þitt auga sá langt fram á ókominn veg, til umbóta var höndin ei sein eða trcg. Þú trúðir á framríð þess Fróns, sem oss bar og fyrir það að starfa þér alkærast var. Þú trúðir á sannleikans sigrandi mátt, með sigurvissu merki hans barstu svo hátt. Á framhald og fullkomnun traust var þín trú, þess takmarkaða jarðlifs, sem þekkjum vér nú. Og örugg var trú þin þó oft byrgi ský, að afl hins góða sigri heiminum í. í æðra og betra heimi, er það vor trú, að andi þinn sé lifandi og starfandi nú. Við minningu geymum um góðan, nýtan mann, sem gullvægt traust og hylli sér vann. [almenna Hjalti Jónsson. gæti komið á friðartímum, að ríkið hefði í sínum höndum allá utanríkisverzlun. Það hefði vafalaust á undangengnum ár- um verið unnt að fá lögfest slíkt skipulag, ef Framsóknar- og samvinnumenn hefðu hneigzt að því. En Framsóknarmenn vildu ekki þessa breytingu. Þeir vita, að mjög verulegur hluti af þjóðinni vill verzla við kaup- menn fremur en samvinnufélög eða ríkisverzlun. Og Framsókn- armenn vilja ekki hindra þá,sem vilja verzla á kaupmannavísu frá að fylgja sinni trú, alveg eins og þeim finnst eðlilegt, að samvinnumenn séu ekki hindr- aðir frá að verzla við sín eigin fyrirtæki. Framsóknarmenn vita að sumir af verzlunarmönnum landsins hafa grætt afarmikið, og óeðlilega mikið á hinum tak- markaða innflutningi undan- genginna ára, og að sumir af þessum mönnum hafa lagt ríf- (Framh. á 3. síðu) Tíu árum seinna, 1934, var enn gerð á skólanum reglugerð- arbreyting, aukin kennsla í upp- eldisfræðinámi, þyngd verulega inntökuskilyrði, tekin upp smá- barnakennsla og kennsluæfing- ar auknar, svo að nú eru þær raunar nær þrisvar sinnum meiri að stundafjölda en reglu- gerðin setur lágmarksákvæði um. Þrátt fyrir þessar umbætur, er okkur það vel ljóst, að betur má, ef vel á að vera. Kröfur um kennslu og uppeldi fara hrað- vaxandi. Margar þeirra eru rétt- mætar. Og kennaraskólinn verður að fullnægja þeim kröfum, sem réttlátlega má og á að gera til þeirra, er þaðan útskrifast. En ég hygg að starfsmenn hans séu nokkuð á einu máli um það, að í þeim aðkallandi umbótum eigi að fara leið þró- unar, en ekki byltingar. Án þess að ég ætli mér hér að tala fyrir munn annarra en sjálfs mín, á- lít ég þó, að kennarar hans séu sammála um tvær æskilegar breytingar, m. a.: þyngd inn- tökuskilyrða í 1. bekk, t. d. próf úr héraðs- eða gagnfræðaskóla, og viðbættu eins árs námi, þ. e. 4. bekk, er að mestu væri helgað uppeldisfræði og kennsluæfing- um. Kæmi þá í góðar þarfir húsrými það, sem skólanum er fyrirhugað i háskólabygging- unni, þegar hún er fullbúin. Annars verður hér — sökum rúmleysis — ekki gerð nánari grein fyrir þeim æskilegu um- bótum, er lítillega hefir verið drepið á.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.