Tíminn - 15.06.1939, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.06.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu ln. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIDSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1d. Siml 2323. PRENTSMUÐJAN EDDA h. í. Simar 3948 og 3720. 23. árj$. Reykjavík, fimmtudagmn 15. júní 1939 Búnaðarbankinn tíu ára Hrein eign bankans hefir tvöfaldast frá stofndegi Hinn 14. júní 1929 öðluðust lögin um Búnaðarbanka staö- festingu, og átti bankinn því tíu ára afmæli í gær. Landsbankinn, elzti bankinn, var stofnaður fyrir 54 árum, en íslandsbanki um líkt leyti og stjórn landsins fluttist heim frá Danmörku 1904. En svo máttu sín mikils hin auðugu fiskimið og framfarir þær um veiðiskap, sem taka mátti eftir erlendum þjóðum, er hingað sóttu til veiða, að heita mátti að atvinnuvegur sá, sem haldið hafði þó lífinu í þjóðinni í þúsund ár, væri hvergi í húsum hæfur, þegar knúð var á dyr peningabúðanna, allt þangað til að Framsóknarflokk- urinn tók að hafa áhrif. Með skipun á manni í fram- kvæmdarstjórn Landsbankans, sem Sigurður Jónsson frá Yzta- felli framkvæmdi árið 1917, varð sú breyting á, að verzlunarfyr- irtæki bænda, samvinnufélögin, öðluðust rétt til viðskipta í Landsbankanum, en þangað til hafði nafn þeirra tæpast sézt í bankabókum, að einu útibúi ís- landsbanka undanteknu. Fyrir áhrif Framsóknarmanna var löggjöf sett um allsherjar veðlánastofnun árið 1921, sem aldrei kom til framkvæmda. Þegar Framsóknarflokkurinn kom til valda 1927, mun hann hafa falið Böðvari Bjarkan að undirbúa löggjöf um landbúnað- arbanka, sem síðan var afgreitt sem lög 1929, svo sem fyr er greint. Aðal hvatamenn þessa máls voru að sjálfsögðu þeir Jónas Jónsson og Tryggvi Þór- hallsson. Verður hér á eftir greint frá ýmsum atriðum, sem sýna starf- semi bankans og vöxt hennar, en næst sjálfu árferðinu um tíðarfar og heilsufar búfjárins á landbúnaðurinn mest undir því, að eiga örugga og réttláta bankastofnun að styðjast við. Steíán Guðmundsson og söngur hans í Gamla Bíó Stefán Guðmundsson söng í Gamla Bíó sl. miðvikudag fyrir troðfullu húsi. Hann hefir, eins og mönnum mun kunnugt, sung- ið að undanförnu við Kgl. leik- húsið í Kaupmannahöfn, og er ráðinn til að syngja þar höfuð tenórhlutverk í ýmsum óperum á komandi vetri. Hafa Kaup- mannahafnarblöðin farið mjög lofsamlegum orðum um söng hans, og talið sjálfsagt, að ó- peran tryggði sér krafta hans í framtíðinni. Jafnskjótt og Stef- án hafði lokið söng sínum í Kaupmannahöín hélt hann heim til átthaganna. Þar unir hann sér bezt i tæra fjallaloft- inu og þangað sækir hann þrótt til nýrra átaka og sigra. Söngur Stefáns í Gamla Bíó sannfærði okkur um það enn á ný, að Stefán er frábær lista- maður, sem við getum vænzt mikils frama af. Aldrei hefir rödd hans hljómað fegur en nú, enda ætlaði faðgnaðarlátum aldrei að linna, • og þeir, sem sendu honum blóm, voru álíka margir og lögin á söngskránni. Stefán á vonandi eftir að syngja hér nokkrum sinnum enn að þessu sinni, enda ekk- ert húsnæði svo rúmgott hér að rúmi nema hluta af þeirn mann- fjölda, sem æskir á hann að hlýða. Hversu lengi söngvarinn dvel- ur hér nú, mun ekki fastráðið. En allir munu óska, að hann komi heim svo oft sem kostur er, og allir munu óska þess, að framtíðin eigi eftir að færa honum marga og stóra sigra. Hilmar Stefánsson. Aðalstarfsdeildir Búnaðar- bankans eru fimm: Sparisj óðs- og rekstrarlána- deild, Byggingar- og landnáms- sjóður, Ræktunarsj óður, Veð- deild og Viðlagasjóður. Auk þess annast bankinn starfrækslu: Kreppulánasjóðs, Kreppulánasjóðs bæja- og sveitafélaga, Nýbýlasjóðs og Loðdýralánadeildar. Innstæðufé sparisjóðsdeildar var í árslok: 1930 ........ 1.051 þús. 1938 ........ 4.593 — Byggingar- og landnámssjóð- ur hefir frá upphafi veitt 514 lán að fjárhæð samtals 3 milj. 91 þús. krónur. Veitt lán úr sjóðnum voru fæst árið 1932, að- eins 10 að tölu. En á síðasta ári var tala veittra lána 104, og er það langsamlega flest lán, sem veitt hafa verið á einu ári, en yfirleitt hefir sú stefnubreyting orðið um starfsemi sjóðsins, að lán eru nú lægri í hvern stað en áður var. Enda eru byggingar nú á sveitabýlum minni en fyr og meir við hæfi. Skuldlaus eign Byggingar- og landnámssjóðs var í árslok 1938 kr. 1.700 þús- und krónur. Ræktunarsjóður: Honum er stjórnað samkvæmt löggjöf frá 1925 og fer hér á eftir .yfirlit um starfræksluna frá þeim tíma. Tala lánanna er 2683. Lánsfjárhæð samtals 7.162 þúsund krónur. Þar af til ræktunar og áburð- arhúsa ........... 3.131 þús. Til húsabóta.... 3.183 — Til rafstöðva .... 412 — Til girðinga o. fl.. . 435 — Veðdeild. Hún hefir aðeins gefið út 1 flokk veðdeildarbréfa, sem lánaður var þegar á fyrsta starfsári bankans, og síðan hefir þessi deild því aðeins verið starfrækt sem innheimtudeild. Líku máli gegnir um Viðlaga- sjóð, sem afhentur var bankan- um til eignar og umráða með það fyrir augum, að hann yrði til tryggingar skuldbindingum Veðdeildar og Ræktunarsjóðs. En eign Viðlagasjóðs var um síðustu áramót 2.404 þús. kr. Loðdýralánadeild. Hún tók til starfa 1937 og hefir veitt 41 lán að fjárhæð samtals 103 þús. kr. Nýbýlasjóður. Hann tók til starfa 1936. Er hann hvorttveggja i senn styrktarsjóður og lánsstofnun undir sérstakri stjórn. Styrkir úr sjóðnum hafa verið veittir 195 að tölu, en að fjár- hæð 432 þús. Lán 151 að tölu, en að fjárhæð 407 þús. kr. Með löggjöf frá 1937 var heimilað að verja allt að 50 þús. krónum á ári úr Byggingar- og landnámssjóði til styrktar end- urbyggingum á ibúðarhúsum í sveit. En styrkurinn var á þing- inu 1938 hækkaður í 125 þúsund krónur á ári. Veittir styrkir 158 að tölu, en að fjárhæð 164 þús. kr. Búnaðarbankinn stofnaði úti- (Framh. á 4. siðu) Ný flughöfn víd Oslo Þann 1. júní síðastliðinn tók hin nýja flughöfn Norðmanna við Oslo til starfa. Flughöfnin er frammi við fjörðinn, um 8 km. frá borginni sjálfri. Vígsluhá- tíð var engin haldin að vísu, og mun það ekki gert að sinni, þar eð flughöfnin er ekki fullgerð, og mun ekki komin í það horf, sem á að verða, fyr en eftir 2—3 ár. Til dæmis er eftir allmikið starf við stækkun flugvallarins sjálfs og byggingum hvergi nærri lokið, þó nothæfar séu til bráðabirgða. Norðmenn hafa mjög látið flugmál til sín taka, eins og sam- göngumál yfirleitt. Þeir hafa sent flugleiðangra til heim- skautarannsókna bæði suður og norður. Þeir hafa starfrækt flugskóla og komið á allmiklum flugsamgöngum innanlands. Það er eftirtektarvert í þessu sam- bandi, að sá maður, sem hefir með höndum yfirstjórn flug- málanna í Noregi er einmitt einn af samstarfsmönnum og félögum Roald Amundsen, Riiser-Larsen. Hann er kunnur flugmaður og hefir ferðast ákaflega víða. Þrátt fyrir þetta hafa Norðmenn haft lítið af farþegaflugi milli landa að segja. Sjóflugvél hefir að vísu flogið milli Osló og Kaupmannahafnar, en slikt var Norðmönnum hvergi nóg. Það er því fyrst með þessari nýju flug- höfn, Fornebu-flughöfninni, að Noregur kemst i beint samband við aðalæðar flugsamgangnanna um Evrópu. Nægir hér að nefna áætlunarflugferðirnar þrjár, A. Að bæ Guðmundar ríka.— Mýbit við Mývatn. — Laxaklak í ám við Eyjafjörð. — Vorhátíð Frammsóknarmanna að Reykjaskóla. — Framræslan á Eyrar- --------- bakka. -------- í fyrradag þágu allir fulltrúarnir á aðalfundi Sambands ungra Framsókn- armanna heimboð ungu hjónanna, sem nú sitja bæ Guðmundar ríka, þeirra Jóhanns Valdemarssonar og Helgu Kristinsdóttur á Möðruvöllum í Eyja- firði. Létu þau hjónin bifreið flytja gesti sína, og að afstaðinni veizlu á heimilinu, var ekið. með þá að Saurbæ og Grund, áður en haldiö var aftur til Akureyrar. Róma gestirnir rausn og myndarskap húsbændanna, er þeir nutu hér að. — Sláttur er nú byrjaður á mörgum bæjum í Hrafnagils- og Öngulsstaðahreppi og einnig á löndum umhverfis Akureyri. Reykjaheiði var mokuö í gær, og verður nú komizt í bifreiðum til Austurlands hvað af hverju, þegar nauðsynlegum vorvið- gerðum á vegum hefir verið komið í framkvæmd. r r r Við Mývatn koma að jafnaði tvö mýbitstímabil á hverju sumri, í júní og ágúst. En nú er mýið fyrr á ferðinni en venja er til. Frá því í maí og allt til þessa, hefir mýbit verið svo mikið, að á ýmsum bæjum hefir orðið að gefa kúm inni, og ám með lömbum ekki sleppt fyrr en lömbin voru orðin viku- gömul. í vikunni varð svo mikið mýbit, að hestur blindaðist. Bitmýið er mest við Laxá, þar sem hún fellur úr Mý- vatni, en í vatninu sjálfu er aðallega svonefnt rykmý, sem ekki veldur tjóni. Andavarp i Mývatni stendur nú sem hæst, og er það viku fyrr en venjulega. Fer það stöðugt minnkandi, og er það talið stafa af vaxandi fugladrápi er- lendis, en endur þessar eru yfirleitt farfuglar. r r r Ólafur á Hellulandi er að láta flytja laxaseiði úr klakstöðinni við Grenjað- arstað, og eru þarna fyrir hendi hálf milljón laxaseiða. Verða þau flutt í Ólafsfjarðará, Svarfaðardalsá, Eyja- fjarðará, Fnjóská, Gljúfurá í Höfða- hverfi, Djúpá í Ljósavatnsskarði og Drangá í Köldukinn, auk þess sem sett verður af klakseiðum í Reykjadalsá og Laxá, árnar sem klaklaxinn er veidd- ur í. — r r r Vorhátíð Framsóknarmanna úr byggðarlögum umhverfis Reykjaskóla við Hrútafjörð, stóð að Reykjaskóla sl. sunnudag. Sóttu hana færri menn en á fyira ári sakir influenzufaraldurs, sem gengið hefir á þessum slóðum, eða um 200 manns. Hófst samkoman með guðsþjónustu séra Jóns Guðnasonar, en síða* var setzt að sameiginlegri kaffidrykkju, en þar fluttu ræður Skúli Guðmundsson alþm., Hermann Jónas- son forsætisráðherra, Bjarni Ásgeirson alþm., Guðm. Gíslason skólastjóri og Kristján Sigurðsson kennari. Þá fór fram knattspyrnukappleikur, en að lokum dans. / r r Verið er að vinna að þurkun á land- svæði ríkisins á Eyrarbakka. Voru veittar til þess 5 þúsund krónur á fjár- lögum í ár og mun unnið fyrir þær að þessu sinni. Er það Magnús Oddsson, sem hefir umsjón með framkvæmdum eystra. — Landið er þarna ákaflega flatt og frárennsli þessvegna slæmt. Meðan Landsbankinn átti land þetta voru aðalskurðir gerðir og holræsi frá þeim fram í sjó. Þurkun á landinu var þó mjög ábótavant, þar eð aðalskurðir dugðu hvergi nærri sökum flatlendis. Þær framkvæmdir, sem nú eru gerðar, eru þessvegna áframhald og endur- bætur á þurkun landsins. Unnið var þarna í fyrra fyrir sömu fjárhæð. Sú framkvæmd sýndi ágætan árangur, þegar á þvi sumri. Þeir sem hennar nutu, fengu 50—70 hestburði af hektara á móti 30—40 hestburðum hjá þeim, sem ekki nutu góðs af þurkuninni. Er hér miðað við sama áburð í báðum tilfellum. Pálmi Einarsson áætlaði kostnað framræslunnar í heild 24 þús. kr. Nær þurkunin alls til á annað hundrað hektara lands. sem hafa hafist, en þær eru þessar: Oslo - Gautaborg - Kaupmannahöfn - Hamborg, Kaupmannahöfn - Álaborg - Kristiansand og Oslo - Kristian- sand - Amsterdam. Það er þessi síðastnefnda flugleið, sem mesta þýðingu hefir. Nú er hægt að fara frá Oslo til Amsterdam á rúmum fjórum klukkustundum. Frá Amster- dam eru mjög góðar flugsam- göngur, svo að segja í allar átt- ir, t. d. til nýlendna Hollendinga í Austur Indíum og Ástralíu. Á þessum leiðum eru m. a. þessir viðkomustaðir: Leipzig, Buda- pest, Aþena, Alexandria, Lydda, Basra, Djask, Karachi, Jodhpur, Allahabad, Kalkutta, Rangoon, Bankok, Penang, Singapore, Batavía og svo endastöðin Sid- ney. Auk þessa eru beinar flug- samgöngur frá Amsterdam til Brussel, Parísar, Marseille, Frankfurt, Milano, Róm og London. Senn munu einnig hefj- ast flugsamgöngur milli Amst- erdam og Madrid og Lissabon. Amsterdam er þannig einskon- ar miðstöð fyrir flugsamgöngur á langleiðum, bæði í og frá Evr- ópu. Þýðing flugleiðarinnar Oslo - Amsterdam fyrir Noreg, mun þó skýrar koma í ljós í framtíðinni. Maður getur til dæmis gert sér í hugarlund hvaða þýðingu það hefir fyrir Noreg sem ferða- mannaland, þegar hægt verður að komast frá Suðurlöndum til Noregs á einum degi. Norðmenn hafa líka gert mikið til þess að hagnýta þetta. Þeir hafa komið á flugsamgöngum innanlands, sem sérstaklega eru sniðnar fyr- ir ferðamennina. Má þar nefna flugleið norður eftir Noregi, yf- ir háfjöllunum. Á þeirri leið er dásamlegt útsýni í góðu skyggni. Norðmenn, sérstaklega Oslo- búar, hafa lagt mjög mikið á sig til þess að koma upp Forne- bu-flughöfninni. Framkvæmdin hefir kostað mikla erfiðleika, meðal annars vegna þess hve erfitt var um stað fyrir flug- höfnina. En þeir trúðu á þessa framkvæmd og sögðu „ég skal“, og hafa á sinn hátt sannað það, að trúin flytji fjöll. Grjótið, sem þeir hafa sprengt upp og notað við bygginguna, er um 900 þús. teningsmetrar, og sprengiefnið, sem til þess var notað, um 500 smálestir. Áætlaður kostnaður við byggingu flughafnarinnar var 27 miljónir íslenzkra króna. — Af þessu má nokkuð ráða hvílíkt feikna verk þetta er. En flughöfnin verður líka góð, svo að nú hefir Oslo betri skilyrði til móttöku flugvéla, af hvaða stærð sem er, en flestar aðrar borgir á Norðurlöndum að minnsta kosti. Hollendingar hafa löngum verið lærimeistarar Norðmanna í flugmálum, og gefið þeim það ráð, að búa sem bezt í haginn heima fyrir, áður en þeir færu að hugsa um millilandaflug. Þetta hafa Norðmenn látið sér að kenningu verða, eins og fram- kvæmdir þeirra í flugmálum innanlands sýna. Þeir annast sjálfir flugsam- (Framh. á 4. síðu) 68. blað Á víðavangi Frændur okkar Norðmenn eru nú að taka í notkun flug- völl þann sem þeir hafa unnið að með ærnum kostnaði undan- farin ár. Sýnir það yfirburði landflugsins, að fært skuli að leggja í slíkan óhemju kostnað, og það innst við hinn vogskorna og langa Oslofjörð. Hlýtur þetta að herða á öllum hugsandi mönnum í okkar landi um að koma því til vegar, að Reykja- vík hefjist handa um aðgerðir í sínu flugvallarmáli. Vilji menn ekki fórna Vatnsmýrinni eða þyki hún ekki kjörinn staður til þess að verða framtiðar flug- höfn, þá verður að leita uppi og ákveða annan stað. Við eig- um þegar eina farþegaflugvél, sem væri þess albúin að fljúga yfir land, spara sér helming reksturskostnaðar. Við eigum tilraunaflugvél, sem jafnframt er notuð sem póstflugvél til af- skekktasta landshlutans, við eigum eina æfingaflugvél til þess að halda við flugkunnáttu og flugréttindum hinna útskrifuðu og æfa aðra, a. m. k. undir einkaflug. En landflug er orðið svo fullkomið samgönguúrræði, að við í okkar fátækt höfum ekki ráð á til lengdar að geta ekki tekið til þess, aðeins vegna þess að ekki er jafnaður og þurrkaður jafnlendur völlur í Reykjavík! * * * Þegar Guðm. Björnson land- læknir vígði fyrsta íþróttavöll- inn í Reykjavík árið 1917, þá flutti hann ræðu, sem vert væri að endurprenta öðru hvoru. Þar kom hann fram með hugmynd- ina um „bæjarskóginn“. Hann hafði fyrir átta árum komið í Hallormsstaðaskóg, féll í stafi og stóð eins og steini lostinn af fögnuði og — skömmustu. Þá sá hann hvað við höfðum gert, sá hvernig landið var þegar það var numið — og áður en farið var að afnema það. Sem landlæknir fór hann að hugsa um eldiviðar- leysið, þessi skelfilegu bágindi, öllum óholl, en allra verst fyrir börnin, brumið á þjóðarstofnin- um. Og þá kom honum til hugar: Hvað skyldi þurfa stóran bæjar- skóg á hverri bújörð til þess að hann gæti staðist að leggja heimilinu til nægan eldivið á hverju ári? Hann bað sérfræð- ing að athuga hvað stór skógur- inn þyrfti að vera. * * * Og nú var hann nýbúinn að fá vel athugað og vel rökstutt svar. Bæjarskógur þyrfti að vera 30 hektarar. En hvað eru 30 hekt- arar þegar hvert býli er að víð- áttu eins og konungsríki. Yrði plantað í landið, þyrfti ekki að líða nema 20 ár, yrði sáð í það þyrfti lengri tíma til þess að fullnægt yrði eldsneytisþörfinni, en yrði líka mun ódýrara, sagði landlæknirinn. * * * Nú er það kannske ekki elds- neytisskorturinn, sem líklegast- ur er til þess að koma skógrækt- armálunum til hjálpar, en „pen- ingalyktin“, síðan litla og stóra tréð urðu hlutfallslega jafnvíg gagnvart hinni margvíslegu tækni síðustu ára — peninga- lyktin sem leggur frá skógum nágrannalandanna og nýrækt skóga í Englandi, sem farið hafði að, eins og við, því skógurinn er, auk hins mikla verðgildis, fegurð og heilsa landanna, svo mjög fegra þeir þau og bæta loftslagið. Og sá sem ekki vildi hjálpa til að láta að nýju tré vaxa á íslandi, m. a. í tómstund- um og þegnskaparvinnu, aðeins ef þjóðfélagið sæi fyrir fræi, plöntum og verkstjórn, hann hugsar ekki hátt, og því síður langt. * * * -----„Við höfum reyndar öll talsverðan hug á að gera land- inu eitthvað til góða og höldum þá að það muni allt ganga greið- ast með vélum og vísindum. En þau góðu ráð koma ekki ávallt (Frauih. á 4. síSu)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.