Tíminn - 20.06.1939, Page 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTOEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR :
EDDUHÚSI, Llndargötu 1D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 d.
Slmi 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h. í.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
Reykjavík, þriðjudaginn 20. jání 1939
70. blað
Ávarp til íslenzkrar æsku
írá aðalfundi stjórnar S.U.F.
á Akureyri 11.—17. júní 1939
íslenzka þjóðin hefir alltaf unnað frelsi og mannrétt-
indum. Það gerðu fyrstu landnemarnir og síðan beztu
menn vorir. Allur frami og allir sigrar íslendinga hafa
líka fyrst og fremst verið tengdir þessu tvennu.
Nú blasir við sérstakt viðhorf í sjálfstæðisbaráttu
þjóðar vorrar. Á næstu árum höfum vér aðstöðu til að
ná síðasta áfanganum í hinni stjórnarfarslegu sjálf-
stæðisbaráttu vorri. Þar eigum vér að keppa að því að
vinna oss fullan rétt, í samræmi við sögulega reynslu
vora og baráttuna fyrir sjálfstæði íslands.
Kunnugt er, að ýmsir eru þeirrar skoðunar, að réttast
sé að vera í sambandinu við Dani áfram. Að vorri hyggju
kemur slíkt eigi til mála. Vegna viðskipta vorra við aðrar
þjóðir, er það tvímælalaust tjón, að hafa ekki öll utan-
ríkismálin í vorum höndum. Jafnréttisákvæði sambands-
laganna eru ekki aðeins fullkomlega óviðunandi fyrir
þjóð, sem telur sig sjálfstæða, heldur beinlínis hættuleg.
Af þessum ástæðum og mörgum fleiri teljum vér að
nota beri uppsagnarákvæði sambandslaganna og hafa
ekki í framtíðinni nánara stjórnarfarslegt samband við
Danmörku heldur en önnur ríki.
Áhugaleysi hefir ríkt undanfarið um lausn sam-
bandsmálsins. Virðist ekki seinna vænna að hefjast
handa, þar sem mikill meirihluti þjóðarinnar verður að
greiða atkvæði með sambandsslitum og vafasamt hvort
slíkur árangur næst, ef ekki er vakinn áhugi og fullur
skilningur á málinu. Vér teljum það skyldu æskunn-
ar, að gera sitt ítrasta til þess, að farsællega takist sókn-
in að þessu langþráða marki hinnar stjórnarfarslegu
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Jafnframt því, sem unnið er að þessari lausn sam-
bandsmálisins, álítum vér engu síður þýðingarmikið að
tryggja sjálfstæði íslands í framtíðinni. Verður slíkt
bezt gert með því að skapa þróttmikla menningu og at-
hafnalíf í landinu, forðast söfnun eyðsluskulda erlendis
og verjast öfgastefnum, sem að meira eða minna leyti
vilja koma þjóðinni undir útlend yfirráð. Er nauðsyn-
iegt, að allir þegnar þjóðfélagsins — og þó sérstaklega
yngri kynslóðin — geri sér ljóst, hver skylda hvílir á þeim
í þessum efnum. Sérhver vinnufær maður verður að
vinna, framleiðslustörfin eiga að skipa öndvegi í atvinnu-
lífi þjóðarinnar og ríka áherzlu ber að leggja á aukið
sjálfsnám og eflingu heimilismenningarinnar.
Eins og frelsið reynist þjóðunum bezt til vaxtar og
þroska, þannig gegnir hinu sama um einstaklinga þjóð-
félagsins. Fyrir því viljum vér vernda og efla þingræðið
í landinu, auka samvinnu í atvinnurekstri og verzlun og
skapa möguleika til þess, að allir geti verið bjargálna.
Með þessu teljum vér bezt að því unnið, að einstakling-
arnir hafi skilyrði til menningarlegs þroska og fjárhags-
legs sjálfstæðis, án þess að gengið sé á hlut annarra.
Vér teljum meginverkefni íslenzkrar æsku að berjast
fyrir framkvæmd þessara hugsjóna. Hún á ekki aðeins
að standa vel á verði gegn byltinga- og afturhaldsöflum,
til þess að vernda það, sem unnizt hefir. Hún þarf að
halda baráttunni áfram, stíga til fulls síðasta skrefið
í stjórnarfarslegri sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, treysta
og efla fullveldi hennar og auka frelsi og réttindi þegn-
anna í landinu.
Vér skorum á íslenzka æsku, að reynast trú hugsjón
frelsisins og vinna ótrautt í þágu hennar. Vér vitum,
að það leggur henni auknar skyldur og erfiði á herðar,
en erum jafn sannfærðir um það, að árangurinn muni
koma fram í glæsilegum verkum, bættum lífskjörum
og auknum manndómi þjóðarinnar á komandi tímum.
Afsfaða íundaríns tíl þjóðstjórnarínnar
Aðalfundur stjórnar S. U. F., haldinn á Akureyri dagana
11.—17. júní, telur að rétt hafi verið af miðstjórn og þingmönn-
um Framsóknarflokksins, að gangast fyrir myndun þjóðstjórnar
á síðastliðnu vori, sökum ýmissa aðkallandi vandamála, sem lík-
ur eru til að flokkarnir geti leyst í sameiningu og þannig kom-
izt hjá óþörfum deilum um lausn þeirra. Einnig var nauðsynlegt
að draga úr innanlandsdeilum, sökum yfirvofandi stríðshættu.
Væntir fundurinn, að stjórninni megi vel takast að leysa þau
verkefni, sem henni eru ætluð, og leggur sérstaka áherzlu á, að
hún beiti sér fyrir undirbúningi að þeirri lausn sambandsmáls-
ins, sem gerð er grein fyrir í ávarpi fundarins.
Framsóknarrnenn við Eyjafjörð héldu héraðsmót að Hrafnagili sunnudaginn 11. júní. Héraðsmótið var afar fjöl-
mennt. Auk Eyfirðinga og Akureyringa, sótti það fólk af Siglufirði, úr Þingeyjarsýslum og víðar að. Hér á mynd-
inni sést Eysteinn Jónsson viðskiptamálaráðherra halda rœðu yfir 1200—1400 manns. Bak við rœðustólinn og
mannfjöldann er trjáreitur, sem Ungmennafélag Hrafnagilshrepps hefir komið upp. f baksýn eru fjöllin aústan
Eyjafjarðarbyggðarinnar, gegnt Hrafnagili. Fulltrúum á aðalfundi S. U. F. var boðið á mótið.
Aðalfundur stjórnar S. U. F. á Akureyrí
Fundurínn samþykktí ávarp til íslenzkrar
æsku og margar ályktanír, bæði um sér-
mál S. U. F. og almenn mál
Aðalfundur stjórnar Sam-
bands ungra Framsóknar-
manna var haldinn að Ak-
ureyri dagana 11.—17. þ. m.
Stjórn S. U. F. er þannig
skipuð, að í henni eiga sæti einn
maður úr hverri sýslu og kaup-
stað, þar sem starfandi eru sam-
tök ungra Framsóknarmanna,
auk fimm manna aðalstjórnar í
Reykjavík. í stjórninni eiga því
sæti nú 28 manns alls. Vara-
menn eru jafnmargir. í lögum
S. U. F. er svo fyrir mælt, að
aðalfur.d stjórnar skuli halda
einu sinni á ári. Tekur hann
allar meiriháttar ákvarðanir um
störf og stefnu S. U. F. milli
þinga, sem haldin eru með fárra
ára fresti. Á milli aðalfunda
annast aðalstjórnin í Reykjavík
framkvæmdir S. U. F.
Á fundinum á Akureyri voru
20 stjórnarmenn mættir og voru
nokkrir þeirra varamenn, því
aðalmenn gátu ekki mætt. Fara
nöfn þeirra stjórnarmanna, er
sátu þingið, hér á eftir:
Haukur Jörundsson, Hvann-
eyri, Borgarfjarðarsýslu.
Leifur Finnbogason, Hitar-
dal, Mýrasýslu.
Daníel Ágústinusson, Stykkis-
hólmi, Snæfellsnessýslu.
Jón Emil Guðjónsson, Kýr-
unnarstöðum, Dalasýslu.
Grímur Arnórsson, Tindum,
Barðastrandarsýslu.
Jakob Frímannsson kaupfélagsstjóri
mœlir fyrir minni Eyjafjarðarhéraðs
á vormóti Framsóknarmanna að
Hrafnagíli.
Ásgeir Höskuldsson, Tungu,
Norður-ísaf j arðarsýslu.
Ingólfur Jónsson, Prests-
bakka, Strandasýslu.
Magnús Gíslason, Eyhildar-
holti, Skagafjarðarsýslu.
Þorsteinn H. Hannesson,
Siglufirði.
Jóhann Valdimarsson, Möðru-
völlum, Eyjafjarðarsýslu.
Ásgeir H. Ásgeirs, Akureyri.
Kristján Karlsson, Húsavík,
Suður-Þingeyjarsýslu.
Sigurður Björnsson, Grjót-
nesi, Norður-Þingeyjarsýslu.
Bjarni G. Magnússon, Vest-
mannaeyjum.
Snæfellingar og Dalamenn, sem þátt
taka í bændaförinnl, gistu að Laugar-
vatni í fyrrinótt. Var í gær haldið um
Ámess- og Rangárvallasýslur og meðal
annars skoðuð kornyrkjan að Sáms-
stoðum og haldið niður í Safamýri
og Þykkvabæ. Búnaðarfélags íslands
bauð til hádegisverðar að Múlakoti,
Búnaðarsamband íslands veitti kaffi
að Þjórsárbrú og Kaupfélag Árnesinga
gaf kvöldverð að Þrastalundl. Var
gist þar í nótt. í dag er siðasti dagur
bændafararinnar. Átti að skoða Flóa-
áveituna árdegis og garðyrkjuskólann í
Ölfusi. Kvenfélögin í Árnessýslu veita
kaffi í Tryggvaskála. Síðdegis í dag
verður haldið heim.
t t t
26 Vatnsdælingar heimsóttu bændur
í Reykholtsdal og Hálsasveit um
næstsíðustu helgi í boði sunnanmanna.
Voru það gangnamenn og bændur, sem
upprekstrarland eiga í Grimstungu-
heiði, og konur þeirra. Smala gangna-
menn úr þessum byggðum Fljótsdrög
og Arnarvatnsheiði saman á hverju
hausti og rétta við Réttarvatn og draga
þar sundur féð. Borgflrðingar komu
til móts við Vatnsdæli að Kláffoss-
brú á laugardag og fóru með gesti
sína fram að Húsafelli. Á sunnudag
var efnt til gildis í ungmennafélags-
húsi Reykdæla. Er norðanmenn héldu
heim á leið, fylgdu Borgfirðingar þeim
að sýslumörkum, Hvitá hjá Kláffoss-
brú. í fyrra heimsóttu nokkrir Borg-
firðingar Vatnsdæll.
Ingimar Sigurðsson, Fagra-
hvammi, Árnessýslu.
Egill Bjarnason, Reykjavík.
Guðmundur Hjálmarsson,
Reykjavík.
Jón Helgason, Reykjavík.
Valdimar Jóhannsson, Reykja-
vík.
Þórarinn Þórarinsson, Reykja-
vík.
í fjarvistum Ingimars Sigurðs-
sonar gegndi Stefán Jasonarson,
Vorsabæ í Flóa nefndarstörfum
i hans stað.
Um 20 ungir menn úr Skaga-
firði, Eyjafirði og Þingeyj-
arsýslum, sóttu fundinn sem
gestir, auk allmargra félags-
manna F. U. F. á Akureyri.
Jónas Jónsson og Eysteinn
Jónsson komu á fundinn og
flutu sína ræðuna hvor.
Aðalverkefni fundarins voru
(Framli. á 4. síðu)
Sýslunefndarfundur Austur-Barð-
strendinga var haldinn 30.apríl til 2.
maí. Meðal annars voru lögð fyrir
fundinn bréf frá formanni skólanefnd-
ar í Reykhólasveit og formanni Ung-
mennasambands Norður-Breiðfirð-
inga. Var í bréfum þessum farið þess
á leit við sýslunefndina, að hún legði
að mörkum þúsund krónur í skóla-
sjóð, er ungmennasambandið hefir
stofnað. Er hugmyndin sú, að þessum
sjóði verði fyrst og fremst varið til
þess að byggja héraðsskóla að Reyk-
hólum. Yrði hann með nokkuð öðru
fyrirkomulagi en hinir alþýðuskól-
arnlr og fyrst og fremst vinnuskóli.
Sýslunefndarfundurinn samþykkti að
fresta ákvörðunum um þetta mál.
Skal undirbúa það betur fyrir næsta
fund og taka það þá fyrir að nýju.
t t t
Jónas Þór, verksmiðjustjóri á Akur-
eyri, hefir um þriggja ára skeið feng-
izt dálítið við býflugnarækt. Mun hann
eini maðurinn hér á landi, sem lagt
hefir stund á slíkt. Jónas hefir komið
þremur kössum, sem hann hefir bý-
flugurnar i, fyrir í skrúðgarði við hús
sitt. Sem stendur eru býflugur aðeins
í einum kassanum, 30.000—40.000 tals-
ins. Að sumrinu safna býflugurnar
hunangi. Fljúga þær víða vegu, jafn-
vel marga kílómetra, í hunangsleit.
Geta flugurnar alls til samans, safnað
um tveim kílógrömmum hunangs á
dag, þegar bezt gegnir. Að stærð eru
býflugurnar ámóta og maðkaflugur,
þó heldur minni, og gulbrúnar að lit.
Nokkrar ályktanír
aðalfundar stjórnar
S. U. F.1939
Þefinshylduvinna.
ASalfundur stjórnar S. U. F.
haldinn á Akureyri dagana 11.—
17. júní, telur að athuga beri hið
fyrsta, hvort ekki sé rétt að lög-
leiöa almenna þegnskylduvinnu,
sem hagað yrði í .aðalatriðum á
þessa leið:
Að allir vinnufærir karlmenn
á aldrinum 16—20 ára ynnu
minnst 1—2 mánuði endur-
gjaldslaust að undirbúningi
að ræktun Iandsins, skógrækt,
vegagerð, hafnargerð, íþrótta-
vallagerð, leikvallagerð og öðr-
um þjóðnýtum störfum. Þeim,
sem þegnskylduvinnu inna af
hendi, yrði séð fyrir fæði, verk-
færum og e. t. v. fleiri nauðsynj-
um meðan vinnan stendur yfir.
Launamál.
Aðalfundur stjórnar S. U. F.,
haldinn á Akureyri dagana 11.—
17. júní 1939, lítur svo á, að
nauðsyn beri til þess að ný
launalög verði samin hið bráð-
asta. Lög þessi nái til starfs-
manna ríkisins, allra ríkisstofn-
ana, bankanna og fyrirtækja,
sem njóta ríkisstyrks.
Fundurinn telur að í launa-
málum beri að leggja áherzlu á
eftirfarandi:
Að koma á því fyrirkomulagi
í launagreiðslum, að öll laun
verði færð til fyllsta samræmis
við kjör framleiðslustéttanna og
taki breytingum eftir því, sem
framleiðsluvörurnar hækka og
lækka í verði. Telur fundurinn,
að á þennan hátt verði fundinn
réttlátur og eðlilegur grundvöll-
ur fyrir launagreiðslum.
Að setja ákvæði um það, að
maður, sem hefir full laun hjá
því opinbera, megi ekki hafa
launuð aukastörf, er ætla mætti
að kæmi í bága við aðalstarf
hans.
Að gætt verði fyllsta sparnað-
ar í launagreiðslum og lögð
áherzla á, að útrýma óhæfilega
háum launum, ekki eingöngu
hjá því opinbera, heldur einnig í
einkarekstri landsmanna með
sköttum á háum launum og öðr-
um hliðstæðum ráðstöfunum.
Að unnið verði eftir megni að
fækkun starfsmanna hjá ríkinu
og stofnunum þess og að yfirleitt
verði hætt að skipa launaðar
nefndir.
Að ákveðið verði, að ráðherra-
launin verði hæstu launin, sem
greidd eru af ríkinu og þeim
fyrirtækjum, sem launalög ná
til.
Bœndadagur.
Aðalfundur stjórnar S. U. F.
1939 telur æskilegt, að komið
verði á almennum bændadegi í
sveitum. Verði það 24. júní
(jónsmessudagur) og skulu
haldin bændamót í öllum hér-
uðum landsins þann dag ár
hvert. Felur fundurinn aðal-
stjóm sambandsins að skrifa um
málið til Búnaðarfélags íslands,
þar sem heppilegast mun að það
beitist fyrir framkvæmd þess.
Kaupfélöfiin.
Aðalfundur stjórnar S. U. F.
1939 hvetur alla unga Fram-
sóknarmenn til að fylkja sér um
kaupfélögin og vinna ötullega að
útbreiðslu þeirra.
Shófirwkt.
Aðalfundur stjórnar S. U. F.
1939 skorar á öll félög sam-
bandsins að styðja af alefli að
skógræktarstarfi á félagssvæð-
unum. Jafnframt skorar fundur-
inn á þingflokk Framsóknar-
manna að beitast fyrir því, að
sett verði löggjöf um aukna
skógræktarstarfsemi í landinu.
Meðal annars verði í þeirri
löggjöf ákvæði, sem ýta undir
trjáræktun við hús og býli,
(Framh. á 4. síðu)
A KKOSSG0TUM
Bændaför Snæfellinga og Dalamanna. — Heim-
sóknir gangnamanna. — Skólamál Austur-Barð-
strendinga. — Býflugnarækt. -