Tíminn - 20.06.1939, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.06.1939, Blaðsíða 4
280 TÓIIMV. |>rigj«dagiim 20. jjúní 1939 70. blatS Sýning’ sjómanna. Þar sem það er nú ákveðið að sýningin verði einn mánuð ennþá og hún mikið aukin með hliðsjón til erlendra ferða- manna, biður sýningarnefndin alla þá, sem eiga líkön af skipum, gamla muni, myndir og aðra sýningarhæfa muni úr atvinnu- lífi sjómanna og sjávarútvegs fyr og síðar, sem þeir vilja lána á sýninguna, að gefa sig fram í síma 2630, 4192 og 5143 eða bréflega adressa: Sjómannadagurinn, Box 425, Reykjavík. Sýningarnefndm. 1ÆCD1L,J^R í þessari víku verða mikil há- tíðahöld í París í tilefni af því, að liðin eru 50 ár frá vígslu Eif- felturnsins. Eiffelturninn var byggður í sambandi við heimssýningu, sem haldin var í Paris 1889. Hann var um langt skeið hæsta mannvirk- ið i heimi, en nú hafa verið byggðar. tvœr byggingar í New York, sem eru hærri, Empire State og Chrysler. Hœð Eiffelturnsíns er um 300 m. Hann er gerður úr járni og er þyngd hans talín vera um 7500 smál. Pallar eru í turnin- um á þremur stöðum, á 58 m., 116 m. og 276 m. hœð. Er sá fyrsti 4200 ferm., annar 1400 ferm. og þriðji 350 ferm. Má nokkuð marka á því, hvernig turninn mjókkar að ofan. Úr turninum er mjög gott útsýni yfir París og nágrenni hennar, og kemur tœpast sá ferðalangur þangað, sem ekki fer upp í Eíf- fel-turninn. * * * / Tottenham skeði sá atburður nú fyrir skemmstu, að hróp tveggja ára barns sameinaði foreldrana aftur, en þau höfðu verið skilin i sex mánuði. Frú Rowley steig í vitnastúkuna, með Katrlnu dóttur sína á handleggnum, en hún er tveggja ára. Frúin sakaði mann sinn um að hann hefði ekki gert skyldu sína gagnvart henni og ekki lagt fram nœgilegt fé til heimilisins. Allt i einu kom Katrin litla auga á föður sinn og hrópaði: „Þarna er pabbi minn!“ Hún sleit sig lausa af mömmu sinni, stökk upp um hálsinn á pabba sínum og kyssti hann. Hjónin komust bœði svo við, að þau táruðust. Þá sagðí dómarinn: „Henni virðist þykja vœnt um bœði.“ Foreldrarnir kinnkuðu bœði kolli. „Gœtuð þið ekki orðið vin- ir aftur?“ spurði dómarinn. „Ég vildi það gjarna," snökti maður- inn. Konan kinnkaði aðeins kolli. Hjónin yfirgáfu réttarsal- inn saman og leiddu Katrinu litlu á milli sín. Dómarinn, Mar- ia Smellie, horfði lengi á eftir þeim. Svo brosti hún og — and- varpaði. Hún var ógift. Fréttabréf til Tímans. Tímanum er mjög kærkomið að menn úti á landi skrifi blað- inu fréttabréf öðru hvoru, þar sem skilmerkilega er sagt frá ýmsum nýmælum, framförum og umbótum, einkum því er varðar atvinnulifið. Allar upp- lýsingar þurfa að vera sem fyllstar og gleggstar, svo að ó- kunnugir geti fyllilega áttað sig á atburðum, fyrirtækjum og staðháttum, sem lýst er. Mörgum mun ef til vill finn- ast fátt til frásagnar úr fá- mennum og strjálum byggðum. En þó mun mála sannast, að i hverju byggðarlagi gerist nokk- uð það, sem tíðindum sæti, sé vel að gætt. <JR BÆMJM Samband ísl. barnakennara efnir til hátíðahalda um næstu helgi, vegna fimmtíu ára starfsafmælis síns. Hefjast þau á föstudag, en þá verður sett uppeldismálaþing. Á sunnudag verða almenn hátíðahöld og verður þá opnuð skólasýning í Austurbæjarskól- anum. Fulltrúafundur kennarasam- bandsins hófst I gær. Sitja hann um 50 fulltrúar víðsvegar að af landinu. Meulenberg biskup í Landakoti átti 40 ára prestsskapar- afmæli sunnudaginn 18. júní. Var í tilefni af því haldin mjög hátíðleg guðsþjónusta í Landakotskirkju. Meu- lenberg biskup kom hingað til lands árið 1903 og var fyrsti útlendingur, sem fékk íslenzkan ríkisborgararétt eftir að ísland hlaut fullveldisviðurkenning- una 1918. Mæffrastyrksnefndin biður konur þær, sem hafa í hyggju að fá dvöl fyrir sig og böm sín að Reykholti í Biskupstungum, að sækja umsóknareyðublöð í Þingholtsstræti 18 kl. 5—7 í dag og á morgun. Prjónlessýning. Anna Ásmundsdóttir og Laufey Vil- hjálmsdóttir hafa ákveðið að opna prónlessýningu í Iðnskólanum 1. júlí næstkomandi. Munu þær taka á móti munum úr íslenzkri ull á sýninguna í Iðnskólanum kl. 4—6 daglega. Stefán Guðmundsson heldur söngskemmtun 1 Gamla Bíó í kvöld kl. 7.15. Ámi Kristjánsson leik- ur undir. Þetta er síðasta söngskemmt- un Stefáns að þessu sinni. Sjómannasýningin í Markaðsskálanum verður opin um mánaðarskeið enn. Mun hún verða aukin talsvert, sérstaklega með tilliti til útlendra ferðamanna, er sækja hana. Gestir í bænum: Egill Þorláksson kennari á Húsavik og frú hans, Jón Kr. Kristjánsson, kennari á Viðivöllum í Fnjóskadal og frú hans, Kristján Sigurðsson kennari á Akureyri, Friðrik Hjartar skólastjóri á Siglufirði, Magnús Guðmundsson bóndi á Tindi við Steingrímsfjörð, Daníel Ágústínusson kennari í Stykkis- hólmi, Runólfur Sveinsson skólastjóri á Hvanneyri, Bjarni G. Magnússon í Vestmannaeyjum, Brynjólfur Þor- varðsson verzlunarmaður á Reyðar- firði. Vokkrar ályktanir aðalfnndar stjórnar S. IJ. F. (Framh. af 1. síOu) t. d. meff verfflaunum effa styrkj- um. Lokun iðngreina. Fundurinn leggur fram ein- dregin mótmæli sín gegn því, að ungu fólki sé meinaff nám í fjöl- mörgum iffnaffargreinum, þótt þar sé nýrra starfsmanna þörf, og gerir þá kröfu til löggjafar- valdsins aff ráða bót á þessu. Áfenfiismál. Affalfundur stjómar S. U. F. skorar á ríkisstjómina aff hafa ekki vínveitingar í þeim veizl- um, sem hún heldur og hlutast til um, að áfengi sé ekki veitt fyrir opinbert fé. Gestrisni þökkuð. Affalfundur stjórnar S. U. F.r haldinn á Akureyri dagana 11.— Leiiðrétfmg í 61. tbl. Tímans 30. f. m. eru nokkrar hugleiðingar um notk- un jarðhita og þá sérstaklega í Biskupstungum. Sagt er þar frá gjöf Jóns Halldórssonar frá Stóra-Fljóti og í því sambandi komizt svo að orði: „Hrepps- nefndin mun tæplega hafa ver- ið búin að taka formlega á móti eigninni, þegar hún seldi manni gjöfina fyrir rúmlega eins árs útsvar í hreppnum“. Þessi frásögn og hugleiðingar eru teknar úr bréfi austan úr Árnessýslu. Bréfritarinn virðist ekki hafa verið nógu kunnugur málavöxtum og ekki hirt um að kynna sér þá, sem þó hefði átt að vera honum innan handar, þvi að þessi frásögn er röng í aðalatriðum og villandi. Virðist talsvert kapp lagt á að ófrægja hreppsnefndina fyrir skamm- sýni og fyrirhyggjuleysi, en það eru sakir, sem, í þessu tilfelli, eru ranglega bornar á hrepps- nefndina, því að hún átti engan minnsta þátt í sölu Stóra- Fljóts. Jón Halldórsson gaf hreppnum jörðina eftir sinn dag með vissum skilyrðum, sem til eru tekin í gjafabréfinu. Þau skilyrði eru meðal annara, að hann hafi umráðarétt jarðar- innar (þó takmarkaðan) með- an hann lifir og afgjald jarðar- innar sér til framfærslu. Hins- vegar er það tekið fram, að hreppurinn megi aldrei selja eða veðsetja jörðina, svo að á þann hátt var loku skotið fyrir það, að hreppsnefndin gæti selt, þó að hún hefði haft hug á því. En svo er það gefandinn eða fjárráðamaður hans, sem selur, og án þess að leitað væri álits nefndarinnar, enda talið, að hún ætti engan tillögurétt í þessu máli. En jafnvel þó að hrepps- nefndin hefði átt atkv. um þessa sölu, tel ég meiri líkur til, að hún hefði ekki samþykkt hana, og sýnt þar meiri framsýni og fyrirhyggju, heldur en hinn háttvirti ókunni bréfritari ætl- ar henni. Hitt er annað mál, að það, sem e. t. v. væri ástæða til að ræða og athuga, er það, hvort að gefandinn hafi haft heimild til að selja, hvort að hann með sölunni hafi ekki brotið viss á- kvæði í gjafabréfinu. Sumir 17. júní 1939, tjáir Akureyring- um og Eyfirffingum beztu og al- úðarfyllstu þakkir fyrir frábær- ar móttækur og mikla gestrisni. Fundurinn árnar bænum og hér- affinu heilla og hagsældar og væntir þess, aff hér megi starf Framsóknarmanna ávallt bera góðan ávöxt. Aðalfundur stjórnar S. IJ. F. á Akureyri. (Framh. af 1. siðu) þessi mál: Stjórnmálaviðhorfið og ávarp til íslenzkrar æsku um þau mál, menningarmál, launa- mál, þegnskylduvinna, störf S. U. F. og störf F. U. F. Voru haldnar all ítarlegar framsögu- ræður um þessi mál og fóru fram stuttar umræður á eftir. Síðan var þeim vísað til nefnd- ar og fóru aðalumræðurnar fram, þegar málin komu úr nefndum. Var gengið frá ávarpi til íslenzkrar æsku og gerðar margar ályktanir, bæði varð- andi sérmál S. U. F. og almenn mál. Fundarstörf féllu niður á fimmtudaginn, en þá fóru fund- armenn til Mývatnssveitar. Var m. a. komið í Vaglaskóg, að Goðafossi, í Slútnes, Stórugjá og Námaskarð. Á þriðjudaginn var þeim boðið að Möðruvöllum í Eyjafirði, en þar býr Jóhann Valdimarsson, sem er fulltrúi Eyjafjarðarsýslu í stjórn S. U. F. Fyrir hádegi á föstudag skoð- uðu þeir verksmiðju KEA og SÍS á Akureyri og bauð KEA þeim síðan til hádegisverðar. Flokks- hátíð Fi'amsóknarmanna að Hrafnagili fyrra sunnudag sóttu þeir í boði Framsóknarfélag- anna á Akureyri og í Eyjafirði. Róma fundarmenn mjög rausn og gestrisni Framsóknar- manna á Akureyri og í Eyja- firði, sem greiddu fyrir þeim á allan hátt. M. a. þurftu þeir ekki að greiða neinn dvalar- kostnað á Akureyri, því Fram- sóknarmenn þar veittu þeim ó- keypis vist á heimilum sínum. Stjórnmálaávarpið, sem fund- urinn samþykkti, er birt á öðr- um stað í blaðinu, og einnig nokkrar helztu samþykktir hans um almenn mál. Mun Tíminn ræða nánar síðar um störf og stefnu fundarins, sem tvímæla- laust mun bera þess vitni, að S. U. F. er nú þróttmesti pólitíski æskulýösfélagsskapurinn í land- inu. ætla að svo muni vera, en senni- lega þarf þar lögfræðilegrar um- sagnar og skal ég ekki fullyrða neitt um það að svo stöddu. Það eru sjálfsagt margir sam- mála um það, að illt sé til þess að vita, að þessi miklu gæði jarðar, jarðhitinn, lendi í braski og komi á þann hátt ekki al- menningi til nota eins og skyldi. Skal ég síður en svo áfella þá menn, sem hafa opin augu fyrir þessu, benda á hættuna og á- telja það, sem miður hefir farið í þessu efni, þegar slíkt er gert af sanngirni og samvizkusemi. En hinu kann ég illa, þegar ranglega og villandi er skýrt frá málavöxtum og einstaklingar teknir út úr og atyrtir, en þagað yfir hliðstæðum dæmum ann- arsstaðar. Ég skal ekki fjölyrða um stofnun hlutafél. Garður á Syðri Reykjum eða þátttöku hinna launaháu reykvízku lækna í því fyrirtæki. En það er varla hægt annað en benda á það, að síðastliðinn vetur seldi Búnaðarbankinn jörðina Gröf í Hrunamannahreppi með öllum jarðhitaréttindum, þessum sömu læknum, sem bréfritarinn telur varga í véum á Syðri-Reykjum, og fyrir sem sagt sama „smán- arverð“ og Stóra-Fljótið var selt. Það mætti þó ætla, að opinberar stofnanir, sem eru í umsjá ríkis- valdsins, gættu í þessu efni meiri fyrirhyggju og framsýni en hægt er að krefjast af öllum almenningi. En á þetta dæmi er bent, til að sýna að víðar er pottur brotinn í þessu efni en í Biskupstungum og mætti þó nefna nokkur fleiri dæmi úr öðrum áttum, sem þó skal sleppt að þessu sinni, enda e. t. v. á þau bent af öðrum. En það mun gleðja bæði mig og aðra, þegar Alþingi hefir búið svo um þessa hnúta, að þeir verða ekki leystir nema á þann eina hátt: til hags- bóta og heilla alþjóð. Þorsteinn Sigurðsson. 94 William McLeod Raine: fari þessa laglega, unga manns. Hann var eini maðurinn, sem hún hafði séð brosa eins blítt og konu, án þess að karl- mennskan hyrfi um leið úr andlitinu. Gott viðmót hans gerði hann að ein- hverjum vinsælasta manni í héraðinu og hugrekki hans kom mönnum til að dáðst að honum. Nú hafði hann engan tíma til að vera vingjarnlegur. Hugur hans snerist ekki um annað en það, sem hann átti fyrir höndum. Molly sá það, og varð óttasleg- in. Hann ómakaði sig ekki einu sinni til að svara heimskulegri athugasemd hennar. Hún skildi ekki sjálf hvernig á því gæti staðið, en henni fannst rödd sín hafa titrað, er hún talaði, eða hversvegna gat henni orðið svo um þetta? Það var bjánalegt að hrífast af hinni sorglegu hlið þessa viðburðar og það var bjána- legt, að vera svona eins og á nálum. Steve gat séð fótum sínum forráð. Hann var jafnvel jafningi þessa harðgerða villi- manns, sem virti mannslíf einskis, þessa lögbrjóts, sem sennilega hafði gengið glæpabrautina árum saman og nú var að leggja upp í gang sinn, um síðustu mílu þeirrar brautar. Hversvegna var hún svona trufluð, hvað átti þessi örvæntingarótti að þýða? Jane frænka vafði saman prjóna sína Flóttamaðurinn frá Texas 95 og bjóst til að fara. Hún hafði ekki hug- mynd um að í dagstofunni var þegar byrjað einvígi, sem sennilega mundi enda með ósköpum. — Verður þú samferða, Molly, spurði hún. — Ekki — ekki alveg strax, svaraði Molly. — Góða nótt þá, og sofið vel. Er dyrnar luktust á eftir henni, tók Walsh til máls. Hann hækkaði ekki rödd- ina, en Molly fannst stálhljómur í henni. — Nú er bezt að við tölum í alvöru, herra Webb Barnett. Hefir þú skilið að nú ert þú fangi minn? — Mér hefir skilist að þú héldir það, svaraði hinn maðurinn kuldalega. Molly flaug í hug setning, sem þulur- inn hafði sagt: „Ósennilegt að hann láti taka sig án þess að berjast fyrir frelsi sínu til hins ýtrasta." — Þarftu endilega að gera þetta, Steve, spurði hún í ofboði. — Ég verð að gera það, Molly, svaraði vinur hennar, en tók ekki augun af manninum, sem átti hattinn merktan stöfunum W. B. — Montana væntir þess, að hver ein- asti sýslumaður geri skyldu sína, ungfrú Prescott, sagði Taylor háðslega. — Ég hefi verið blindur, sagði Walsh. — Mér fannst ég þekkja þig, en mér var “~“GAMLA Eíó— María Walewska. Heimsfræg Metro Goldwyn Mayer stórmynd, er gerist á árunum 1807—1812 og segir frá ástum pólsku greifafrúarinnar Maríu Walewsku og Napoleons keisara. Aðalhlutv. leika tveir á- gætustu og frægustu kvik- myndaleikarar heimsins: GRETA GARBO og CHARLES BOYER. °*NÝJA bÍÓ“~^°—" „Jezebel“. (Flagff undir fögru skinni) Tilkomumikil amerísk stórmynd frá Wamer Bros, er gerist í New Orleans ár- ið 1850. — Aðalhlutv. leikur fræg- asta „Karakter“-leikkona nútímana: BETTE DAVIS Óoq rn f HENRY FONDA og GEORGE BRENT. Börn fá ekki affgang. IAlúðarpakkir til allra þeirra, er sýndu mér |í: | velvild og hugulsemi á 40 ára prestskapar af- $ | mœli mínu. ii: | Meulenberg | | biskup. | « íi Óperusöngvari Stefán Guðmundsson syugur í Gainla Ríó í kvöld kl. 7.15 með aðstoð Árna Kristjánssonar pianóleikara. Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun S. Eymundssonar og Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur. SÍÐASTA SIIVIV. Graiið grær — Gleymið ekki að tryggja ykkur góða sláttuljái í tæka tíð. Eylandsljáirnir írá Brusletto reynast bezt. Þeir eru handslegnir og hertir í viðarkolum. Samband ísl. samvinnuiélaga Símí 1080. THE WORLD'S GOOD NEWS will come to your home every day through THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR An Xnternational Daily Newspaper It records íor you the world’s clean, constructive doings. The Monltor does not exploit crime or sensation; neither does it lgnore them, but deals correctively with them Features for busy men and alí the family, including the Weekly Magazine Section. The Christian Science Publlshing Society One, Norway Street. Boston. Massachusetts Please enter my subscripMon to The Christian Science Monitor for a period of 1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00 Wednesday issue, including Magazine Section: 1 year $2.60. 6 issues 25o Name_____________ Address „ Samþle Coþv on Requeft §nðiD fer austur um til Siglufjarðar fimmtudaginn 22. þ. m. kl. 9 síðdegis. Pantaffir farsefflar óskast sóttir og flutningi skilaff á miff- vikudag. Vinnið ötullega fyrir Tímann. Dregiff var í happdrætti Lestrarfélags Skeiffahrepps 30. maí 1939, á skrfistofu sýslu- manns Árnessýslu. — Vinninga hlutu eftirtalin númer: 184, 708, 512 og 23. STJÓRNIN. Innheimtumenn! Vinnið ötullega að innheimtu og útbreiðslu Tímans í ykkar sveit. Svarið fljótt bréfum frá innheimtu blaðsins í Reykjavík, og gerið skil til hennar svo fljótt sem möguleikar leyfa. Tíminn er ódýrasta blaðið, sem gefið er út á íslandi. Allir Framsóknar- menn eiga að kaupa, lesa og borga Tímann.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.