Tíminn - 27.06.1939, Page 1

Tíminn - 27.06.1939, Page 1
RITSTJÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Lindargötu 1 d. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1d. Sími 2323. PRENTSMEÐJAN EDDA h. í. Símar 3948 og 3720. 23. árg. Reykjavík, þrlðjudaginn 27. júní 1939 73. blað Myndin er tekin af Hvanneyrarhátíðinni á sunnudaginn. Runólfur Sveins- son skólastjóri er í rœðustólnum og sést aðeins nokkur hluti mannfjöld- ans, sem hlustaði á rœðu hans Hátíðahöldín á Hvanneyri Um 1000 maims tókn þátt í þeim á sminu- dagiim. Skólanum bárust margar góðar gjaíir. g. Þessi mynd er frá biskupsvígslunni á sunnudaginn. Fyrir altarmu siu/Ma: Jón biskup Helgason fyrir miðju, Bjarni Jónsson vígslubiskup honum til hœgri handar og Friðrik Rafnar vígslubiskup til vinstri. Framan við grát- urnar stendur biskupse/ni, séra Sigurgeir Sigurðsson, og hjá honum vígslu- vottarnir, vinstra megin á myndinni, séra Friðrik Hallgrímsson og séra Þor- steinn Briem og hœgra megin séra Jósef Jónsson og bak við hann er séra Ólafur Magnússon. Samníngar Breta og Rússa Yilja Sfússar frekar semja við Rjóðverja? ■ , .'V j&teu&J:-* jvsm Biskups- vígslan Hátíðlejgasta kirkjuleg athöfn, sem fram lief- ir farið hér um langt skeið. Séra Sigurgeir Sigurðsson var vígður til biskups yfir íslandi á sunnudaginn með mikilli við- höfn. Vigsluathöfnin hófst klukkan 10 árdegis með því að um átta- tíu prestar og kennimenn gengu hempuklæddir í skrúðfylkingu frá dyrum þinghússins að dóm- kirkjunni, tveir og tveir saman. f kirkjunni hófst athöfnin með því, að séra Halldór Kol- Sigurgeir Sigurðsson biskup. beins flutti bæn. Messusöng fluttu séra Garðar Þorsteinsson og séra Jón Þorvarðsson. Séra Priðrik Hallgrimsson lýsti vigslu og las upp æfiágrip biskupsefnis. Að lokinni vígslulýsingu var sálmur sunginn. Meðan sálmur- inn var sunginn gengu biskupar, biskupsefni og vigsluvottar, pró- fastarnir Þorsteinn Briem, Ólaf- ur Magnússon.FriðrikHallgríms- son og Jósef Jónsson, og tveir ynstu prestarnir, séra Guð- mundur Helgason og séra Sigur- björn Einarsson, úr skrúðhúsi og inn í kórinn. Gekk Jón biskup Helgason fyrir altari, ásamt vígslubiskupum báðum, en bisk- upsefni og vígsluvottar krupu fyrir framan altarisgráturnar. Flutti biskup vígsiutón og vígslu- ræðu, tók biskupseiðinn af vígsluþega og lagði loks hendur yfir hann með þessum orðum: „Svo fel ég þér á hendur hið heilaga biskupsembætti og vígi þig til biskups í nafni guðs föð- ur, sonar og heilags anda.“ Lögðu þá vígsluvottar einnig hendur yfir hinn nýja biskup. Að lokinni bænagerð og sálmasöng steig Sigurgeir biskup í stólinn og flutti ræðu. í lok þessarar virðulegu at- hafnar fór fram altarisganga; gekk hinn nýi biskup, ásamt prestum, til altaris. Þjónuðu þeir séra Friðrik Friðriksson og séra Friðrik Hallgrímsson við altarið. Þessi athöfn mun lengi verða minnisstæð öllum þeim, sem við voru staddir eða á hlýddu, svo virðuleg og fögur var hún. Mikil hátíðahöld voru að Hvanneyri um síðustu helgi vegna fimmtíu ára starf- semi bændaskólans þar, og stóðu þau í tvo daga. Var staðurinn fánum skreyttur og tjaldbúð mikilli slegið á túninu. Á laugardaginn var þar haldið nemendamót, er um 260 manns sóttu. Sátu það meðal annarra Björn Bjarnarson í Grafarholti, sem er upphafsmaður skólans, og tveir af þeim fimm nemend- um, sem luku þaðan fyrstir prófi, þeir Hjörtur Hansson bóndi á Grjóteyri og Gísli Þorbjarnarson úr Reykjavík. Einnig sóttu há- tíðahöldin Ólafur Jónsson, sem urn skeið var skólastjóri að Hvanneyri, Ragnheiður Torfa- dóttir, ekkja Hjartar skólastjóra Snorrasonar, og Svava Þórhalls- dóttir, ekkja Halldórs skóla- stjórastjóra Vilhjálmssonar, á- samt fimm börnum þeirra. Frú Svafa og börn hennar af- hentu skólanum fimm þúsund króna sjóð til minningar um Halldór Vilhjálmsson. Skal verja fé úr honum til að styrkja Hvanneyringa til framhalds- náms. Nemendur veturinn 1917 •—18 færðu skólanum sjóð að upphæð 720 krónur, er veita skal fé úr í svipuðu skyni. í sam- í garðyrkjustöðinni að Laugarvatni eru nú í ár gerðar umfangsmestu til- raunir með kartöfluafbrigði, sem fram- kvæmdar hafa verið hér á landi. Barst Ragnari ■ Ásgeirssyni garðyrkjuráðu- naut nýlega sending af útsæði af frostþolnum kartöfluafbrigðum frá jurtakynbótastöðinni í Svalöf, alls 500 afbrigði. Var niðursetningu kartafln- anna lokið í byrjun vikunnar siðustu. Saga þessara svonefndu frostþolnu kartöfluafbrigða er sú, að fyrir tíu árum sendu Sviar grasafræðileiðangur til Suður-Ameríku, til þess að safna kartöflutegundum, sem vaxa þar villt- ar í háfjöllunum. Fundu þeir af- brigði, sem þola svo mikinn kulda í sínum eiginlegu heimkynnum, að blöð og stönglar skemmast ekki í allt að 10—12 stiga frosti. Þessar teg- undir hafa Svíar síðan kynbætt með tilliti til annarra eiginleika. Fyrir tveim árum lagði Ragnar Ásgeirsson drög að því að fá þessi afbrigði til reynslu hér á landi. Eðlilega fæst ekki í ár nein reynsla um uppskeru, sem þessi afbrigði gefa, þar eð út- sæðið kom svo síðla á ákvörðunarstað, en hins vegar ætti í haust að fást nokkur reynsla um frostþolið. Er gert ráð fyrir, að mörg þessara afbrigða þoli 3—4 stiga frost, án þess að þau saki. En þótt þessar tilraunir I sumar gefi æskilegar niðurstöður, þarf al- bandi viö umræður innan nem- endafélagsins Hvanneyringur um aukna smíðakennslu og full- komið smíðaverkstæði að Hvanneyri, kom Björn i Grafar- holti af stað sjóðstofnun, er í var safnað á þriðja hundrað krónum með frjálsum samskot- um. Fénu á að verja til kaupa á áhöldum í fyrirhugaða smíða- stofu og nefnist sjóðurinn Steðjasjóður. Hét Búnaðarfélag (Framh. á I. siðu) Forsœtisráðherra flytur rœðu á Hvanneyrarhátíðinni. Stendur liann í hinum fagra rœðustól, sem Mýra- og Borgarfjarðarsýsla gáfu skólanum. mermingur ekki að vænta þess að fá þessi afbrigði til ræktunar, fyrr en eftir allmörg ár og ítarlega prófun þeirra. t t t í gærkvöldi komu hingaö til lands 40 þátttakendur í norræna fræðslu- mótinu að Laugarvatni. Eru þeir lang- flestir sænskir, en nokkrir finnskir, norskir og danskir. Mótið hefst í dag og mun Sigurður Nordal prófessor setja það. í kvöld flytur Sigurður Nor- dal fyrsta fyrirlestur mótsins um ís- land og íslenzka menningu. Á morgun verða þrír fyrirlestrar fluttir. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur flytur er- indi á sænsku um náttúru íslands, Árni G. Eylands talar á norsku um íslenzk- an landbúnað og Jónas Jónsson flytur fyrirlestur á dönsku um útlönd frá sjónarmiði íslendinga. Fyrirhugað er að mótinu ljúki næstkomandi þriðju- dag með samsæti í Reykjavík, þar sem Wennerström landshöfðingi, sem þá verður kominn hingað, heldur ræðu um samvinnu Norðurlanda. Mestum tímanum verður að mestu varið til fyrirlestrahalds, en nokkru til skemmtiferða. Á laugardag verður skemmtisamkoma haldin að Laugar- vatni og mun þá úrvalsflokkur kvenna úr K. R., Danmerkurfaramir, sýna fimleika undir stjórn Benedikts Ja- kobssonar. Rússneska stjórnin hefir hafnað seinustu tillögum ensku stjórnarinnar um bandalag Englands, Frakklands og Rúss- lands gegn ágengni fastistarikj- anna. Talið er víst að Bretar muni a. m. k. gera ein samkomu- lagstilraun enn. í heimsblöðunum er mjög um það rætt, hvorum aðilanum megi kenna um það, að samningar hafa ekki tekizt. Féllu dómar flestra á þá leið, að Rússar eigi sökina. Telja sum, að fyrir þeim vaki að komast hjá öllu banda- lagi við Breta og Frakka og reyna frekar að ná samkomulagi við fastistaríkin. Önnur álíta sennilegt, að þau vilji ganga í bandalagið, en vilji nota sér örðugleika Breta og Frakka til að fá sem mest fyrir stuðning sinn. í sambandi við þessar umræð- ur benda blöðin á það, að fram- koma þessara ríkja í utanríkis- Vatnsdal. Dragnótaveiðarnar byrjuðu norðan lands um miðjan þennan mánuð, en hófust um miðjan maí sunnan og vestan lands. Eru þær leyfilegar frá 15. maí — 30. nóv. á svæðinu frá Horna- firði til Straumness vestra, en frá 15. júní — 30. nóv. á svæðinu frá Straum- nesi til Hornafjarðar. Veiði hefir verið góð nyrðra, en treg sunnan og vestan lands. Er heildarveiðin miklu minni nú en á sama tíma í fyrra. Nýlega er tek- ið til starfa á Skagaströnd hraðfrysti- hús, sem Kaupfélag Skagstrendinga hefir látið reisa, og hefir því borizt meiri afli en það hefir getað tekið á móti. Veiðin hefir verið einna bezt á Húnaflóa. t t r Grímur Gíslason í Saurbæ í Vatns- dal skrifar Tímanum: Á heimilum hér í sveit er nokkuð unnið að túnsléttun og nýrækt. Bændur fá plægingamann, sem fer um sveitina til þess að opna landið, en annast herfingu sjálfir, enda hafa nú flestir keypt sér herfi, einir eða í félagi við nágranna sína. — Sauðburður gekk vel eins og vænta má, í svo hagstæðri tíð, sem var í vor. Tvílembdar ær eru í flesta lagi og mun það stafa af því, að meðferð fénaðar er er mun betri en áður, síðan því fækkaði af völdum mæðiveikinnar. Er hugsunarháttur manna að færast í það (Framh. á 4. síðu) málum þann tíma, sem samn- ingarnir hafa staðið yfir, sýni glöggt að Bretum hljóti að vera það meira alvörumál en Rússum. Á þessum tima hafa Bretar heitið Póllandi, Frakklandi, Grikklandi og Rúmeníu hernað- arlegri hjálp, ef á þau væri ráð- izt og gert opinbert bandalag við tvö fyrstnefndu rikin. Þeir áttu upptökin að samningunum við Rússa, sendu Halifax lávarð á þjóðabandalagsfundinn í Genf í þeirri von að hann gæti þar rætt þessi mál við Molotoff eða Pot- emkin, og nú hafa þei'r sent sér- stakan sendimann, Strang, til Moskva í þessum erindagerðum. Jafnframt hafa þeir sýnt alvöru sína í innanríkismálum með stofnun sérstaks birgðaráðu- neytis og undirbúningi almennr- ar herskyldu. Meðan Bretar hafa farið þessu fram hafa Rússar m. a. gert eftirfarandi: Þann 4. apríl mót- mælti rússneska ríkisfréttastof- an þeirri frétt, að Rússar hefðu heitið Pólverjum að selja þeim hergögn, en stöðva alla sölu á hráefnum til Þýzkalands, ef til styrjaldar kæmi milli Pólverja og Þjóðverja. í lok aprílmánað- ar ræðir Potemkin aðstoðarut- anríkisráðherra við stjórnirnar í Tyrklandi, Búlgaríu og Rúmen- íu, án þess að nokkur árangur komi i ljós. í byrjun maí verður Litvinoff utanrkisráðherra, sem barizt hefir flestum öfluglegar fyrir bandalagi gegn einræðis- ríkjunum, að láta af störfum. Um miðjan maí láta Rússar Maisky sendiherra sinn í Eng- landi fara til Genf í stað þess að senda þangað Moltoff eða Potemkin, en Maisky gat Hali- fax daglega hitt í London. Sein- asta dag maímánaðar heldur Molotoff ræðu um utanríkismál í rússneska þinginu. Hann deildi þar harðlega á Bretland og Frakkland og endurtekur þau ummæli Stalins „að Rússland muni ekki láta teymast út í styrjöld af stríðsæsingamönnum, sem séu vanir að láta aðra skara eld að köku sinni.“ Jafnframt tekur hann það fram, að sam- búðin milli Rússlands og Ítalíu fari batnandi, og bráðlega verði gerður verzlunarsamningur við Þýzkaland. Rússnesku blöðin hafa oft á þessum tíma ráðizt mjög harð- lega á Breta og Frakka og ásak- að þá um alvöruleysi í samninga- gerðinni. Virðist það furðulegt í meira lagi að rússneska stjórn- Á víðavangi Vestur-íslendingar hafa enn einu sinni sýnt hlýhug sinn til íslands. Nokkru eftir áramótin birtu vestanblöðin ávarp frá sjö málsmetandi Vestur-íslending- um, þar sem skorað er á landa vestan hafs, að leggja fram nægilegt fé til að reisa fyrir myndastyttu af Leifi Eiríkssyni, sem höfð væri á íslandsdeild heimssýningarinnar í New York í sumar, en yrði síðan lcomið fyrir á heppilegum stað í Ameríku. Var gert ráð fyrir, að 15 þús. kr. myndu nægja. Þetta fé safnaðist á mjög stuttum tíma. Kemur fram í þessu sá vel- vilji og ræktarhugur, sem Aust- ur-íslendingum er skylt að minnast og endurgjalda. Þeir, sem gengust fyrir fjársöfnun- inni, voru séra Rögnvaldur Pét- ursson, Ásmundur Jóhannsson, Árni Eggertsson, B. J. Brandsson, G. Grímsson, G. B. Björnsson og Vilhjálmur Stefánsson. * * * Á fundi, sem fulltrúar frá Sjúkrasamlögunum héldu ný- lega, var skorað á heilbrigðis- stjórnina að lækka lyfjataxtana. Er það ljóst af hinum mikla gróða lyfjabúðanna undanfarin ár, að taxtarnir eru nú alltof há- ir. Má í þessu sambandi geta þess, að lyfjabúð Kaupfélags Ey- firðinga hefir getað endurgreitt viðskiptamönnum sínum 8% af viðskiptum þeirra. Verður að telja víst, að heilbrigðisstjórnin bregðist vel við þessari áskorun og láti þess ekki vera langt að bíða, að fullkomin leiðrétting verði fengin á þessum málum. Er vissulega hart til þess að vita, að veikindi fátæks fólks skuli vera lyfsölunum jafn mikill gróða- vegur og nú á sér stað. * * ý Á sama fundi var vakin at- hygli á því, að læknar tíðka það oi'ðið mjög mikið, að gefa fólki svonefnd vitaminlyf, og virðist þeirra þó lítil þörf í mörgum til- fellum. í raun og veru ættu að gera öll slík lyf óþörf með bættu og breyttu mataræði, sem jafn- framt rnyndi eiga meiri samleið með framleiðslumöguleikum landsins. Ættu læknarnir frekar að beita sér fyrir því máli, en að fjölga ávísunum á vitaminlyfin. Verður þetta mál væntanlega rætt á fundi þeirra, sem haldinn verður í þessari viku. Á síðastl. ári nam kostnaðurinn við vita- minlyfin 10% af öllum lyfja- kostnaði Sjúkrasamlags Reykja- víkur og sést gleggst á því, hve mikil tízka þessar lyfjagjafir eru orðnar hjá Reykjavíkurlæknun- um. Kosníngín í Austur- Skaftafellssýsiu Aukakosningin í Austur- Skaftafellssýslu fór fram síðastl. sunnudag og voru atkvæði talin í gær. Úrslit urðu þau að Jón ívars- son kaupfélagsstjóri, sem bauð sig fram utan flokka, fékk 334 atkvæði, Páll Þorsteinsson kenn- ari, sem var frambjóðandi Farm- sóknarflokksins, fékk 227 at- kvæði, Arnór Sigurjónsson fékk 45 atkvæði. Auðir voru 9 seðlar og 3 ógildir. in skuli leyfa slikar árásir með- an samningarnir standa yfir og ósýnt er um málalok. Hinsvegar hafa þau sama og ekkert deilt á Ítalíu og Þýzkaland. Alt þetta virðist benda til að lítill hugur fylgi málum hjá Rússum í samningagerðinni og að þeir vilji gjarnan komast hjá nánu bandalagi við Breta. Það hefir vakið mikla athygli, að þýzk blöð hafa rætt mjög hóflega um Rússa undanfarna mánuði, en þeim mun meira deilt á Breta. í ræðum sínum hafa þýzkir stjórnmálamenn yf- (Framh. á 4. síðu) A KROSSGÖTTJM Umfangsmiklar tilraunir í kartöflurækt. — Norræna fræðslumótið að Laug- arvatni. — Dragnótaveiðarnar. — Úr

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.